Sjötti kafli
Kvænst óþekktri brúði
Hsi ungi hafði verið nokkur ár í skóla þegar gamli, góði faðir hans, sem nú nálgaðist leiðarlok, varð óþreyjufullur að sjá eftirlætisson sinn kvæntan og kominn í fasta höfn. Hann hafði tryggt drengnum sínum kosti góðrar menntunar og búið í haginn fyrir framtíð hans eins vel og efni hans leyfðu. Nú var það eitt eftir að inna af hendi síðustu föðurskyldurnar og halda brúðkaupið með tilhlýðilegum myndarskap. Litla brúðurin hafði verið valin löngu áður; enginn í fjölskyldu brúðgumans, og hvað þá drengurinn sjálfur, hafði nokkurn tíma séð hana, en þó hafði verið skipst á gjöfum og hin vönduðu rauðu skjöl höfðu verið útfyllt sem gerðu þau óafturkallanlega að einu.
Loks var dagurinn ákveðinn og brúðarburðarstóllinn sendur til að sækja grátandi stúlkuna og flytja hana á nýja heimilið.* Mikil spenna ríkti í þorpi brúðgumans og allir þyrptust að til að fylgjast með hinum líflegu hátíðarhöldum. Veglegur undirbúningur stóð yfir fyrir brúðkaupsveisluna. Vinir og ættingjar voru komnir saman nær og fjær, og ómögulegt er að lýsa kliðnum og uppnáminu sem þar ríkti. Eldri bræðurnir, öldungar heimilisins, áttu fullt í fangi með að halda uppi reglu og gæta eigna heimilisins í sívaxandi æsingnum.
* Brúðkaupið sem hér er lýst er athöfn sem höfundur varð vitni að í Norður-Kína. Er sú lýsing birt hér þar sem nánari heimildir skortir um sjálft brúðkaup Hsi unga.
Herbergi hafði verið gert klárt fyrir brúðina, gluggarnir voru klæddir nýjum pappír og allt var ríkulega skreytt með rauðum skrautrúllum og vegghengjum. Á fallegu borði úti í húsagarðinum stóðu minningartöflur forfeðranna ásamt tveimur litlum vínbikörum fyrir hjónavígsluna. Brátt heyrðist hljóðfærasláttur nálgast og þá þustu allir út að stóra útidyrahliðinu til að taka á móti fylkingunni sem sneri til baka. Við lokahríð af púðurkerlingum, hróp í börnum og troðning áhorfenda var hinn skrautlegi brúðarburðarstóll borinn inn í húsagarðinn og settur niður. Konurnar tóku á móti þögulli og tregri stúlkunni og drógu* hana fremur en leiddu að borðinu undir beru lofti, þar sem brúðguminn stóð ásamt föður sínum og vinum. Hann hafði aldrei séð andlit hennar og gat ekki heldur á þessari stundu gert sér neina grein fyrir því hvernig hún liti út, því að síð, grófgerð yfirhöfn umlukti hana alla, stór rauður bómullardúkur huldi höfuð hennar og ekkert gat fengið hana til að líta upp. Þegar konurnar slepptu af henni hendinni féll hún á kné frammi fyrir borðinu og barði enni sínu þrisvar í jörðina í tilbeiðslu á Himninum, Jörðinni og forfeðrunum. Brúðguminn gerði hið sama á sama tíma. Síðan var hún sett niður við „óæðri hlið“ borðsins og henni réttur agnarlítill vínbikar sem hún var látin dreypa á, á meðan brúðguminn sat í heiðurssætinu og bragðaði einnig á sínum. Því næst var skipt um bikara og aftur dreypt á þeim, og þar með var hjónavígslunni lokið.
* Að ganga fúslega fram þætti bera vott um skammarlegan skort á blygðunarsemi.
Mannþröngin ýtti á eftir stúlkunni og konurnar studdu hana þegar hún var dregin inn í herbergi sitt, og eins margir áhorfendur og komust fyrir tróðu sér þar inn til að sjá hana klædda og gera athugasemdir við útlit hennar og eigur. Hún sat í miðri æstri þvögunni og varð að láta sér lynda að vera skoðuð hátt og lágt, á meðan mágkonur hennar leystu hár hennar, settu það upp að nýju eins og við átti fyrir giftar konur og færðu hana í hennar skrautlegustu klæði og brúðarskart. Allt sem hún átti eða gerði var rætt opinskátt og án nokkurs hiks. Síðir, svartir lokkar hennar, smáir fæturnir, hörundslitur, skapferli og heimanmundur – allt var þetta tekið til skoðunar og dæmt, á meðan hún sat algerlega þögul, horfði niður á jörðina og reyndi hvorki að hlæja né gráta.
Á meðan sátu brúðguminn og vinir hans að veisluhöldum í húsakynnum karlmannanna. Skyldi hann hafa hugsað til ungrar eiginkonu sinnar, sem hann hafði aldrei séð í framan? Skyldi hann hafa langað til að hlífa henni við svo strangri þolraun og hugga hana í einmanaleika hennar, þar sem hún var í fyrsta sinn fjarri heimili sínu? Nóg var látið falla af athugasemdum svo hann heyrði og óspart rætt um brúði hans, enda hlupu börn og aðrir á milli herbergja með alls kyns ýktar sögusagnir. En hann getur ekki farið til hennar. Það mun líða langur tími þar til hann vogar sér að láta sjá sig tala við hana í annarra viðurvist.*
* Sums staðar í Norður-Kína er það venja að móðir eiginmannsins banni og komi í veg fyrir öll samtöl á milli ungu hjónanna fyrstu þrjú hjúskaparárin.
Smám saman rennur æsingurinn af fólki og fyrsti ókunnugleikinn hverfur. Gestir streyma þó enn að í nokkra daga til að skoða brúðina, sem verður að sitja þögul í sínu besta skarti og láta glápa á sig eins lengi og þeim þóknast að staldra við. En þess á milli fer hún að tala dálítið við konurnar í fjölskyldunni og lætur jafnvel telja sig á að borða, þar til í lok fyrstu vikunnar að lífið er að mestu komið í vanalegar skorður. Brátt verður stúlkan nógu heimavön til að taka sinn þátt í heimilisstörfunum og þjóna foreldrum eiginmanns síns, og þá fer hún að fylgja í verki kunnuglegum lífsreglum á borð við þessar, sem settar hafa verið konum til leiðsagnar:
„Vertu ávallt hógvær og virðuleg í framkomu. Settu aðra framar sjálfri þér. Hafir þú gert eitthvað gott skaltu ekki bera það á torg; hafir þú gert eitthvað illt skaltu ekki afsaka það. Umberðu móðganir og ámæli með þolinmæði. Óttastu sífellt að þér verði eitthvað á. Gakktu seint til náða og rístu árla úr rekkju, og kveinkaðu þér ekki við fyrstu dagsbirtu áður en myrkrið flýr. Vertu iðjusöm. Skorastu aldrei undan verki af því að það er erfitt, og kastaðu ekki höndunum til annars af því að það er auðvelt. Temdu þér vandvirkni í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur og hafðu fasta reglu á öllum hlutum. Vertu stillt og hlédræg. Sýndu sjálfsaga og þjónaðu eiginmanni þínum; tilreiddu vín hans og mat af alúð, og sömuleiðis fórnirnar til forfeðranna á réttum tíma.“
„Frú Ts'ao segir að í fyrndinni hafi dóttir, þremur dögum eftir fæðingu, verið lögð undir rúmið og henni fenginn tígulsteinn að leika sér með á meðan forfeðrunum voru færðar fórnir. Að leggja hana undir rúmið táknaði vanmátt hennar og undirgefni í framtíðinni. Tígulsteinninn var tákn um stritfyllt líf sem verja skyldi í þjónustu við eiginmann hennar. Og fórnirnar táknuðu að það yrði skylda hennar að viðhalda ættlegg eiginmannsins. Þetta er æðsti tilgangurinn með tilveru eiginkonunnar.“
Þegar Hsi ungi kvæntist var hann aðeins sextán ára gamall, en brúður hans líklega ári eða tveimur eldri. Lítilla breytinga var þó þörf á heimilishögum fjölskyldunnar. Hann bjó áfram í húsi föður síns og hélt námi sínu áfram líkt og áður. Svo virðist sem hann hafi tekið miklu ástfóstri við blíðlynda eiginkonu sína, sem skildi án efa Regluna um hlýðniskyldurnar þrjár sem Konfúsíus setti fram:
„Konan er manninum undirgefin. Hún getur ekki sjálf ráðið neinum málum. Heima fyrir, áður en hún giftist, verður hún að hlýða föður sínum. Þegar hún er gift verður hún að hlýða eiginmanni sínum. Eftir dauða eiginmanns síns verður hún að hlýða syni sínum. Hún má ekki dirfast að fylgja eigin dómgreind.“
Og ennfremur: „Lotningarfull hlýðni er æðsta skylda eiginkonu. Eiginmaðurinn á að leiða og eiginkonan að fylgja. Þetta er hið rétta samband.“
Hsi ungi var tvímælalaust fæddur til forystu, og það var líklegt til að stuðla að friði í heimilislífinu. Í Kína vill kona nefnilega miklu fremur eiga eiginmann sem er bráðlyndur og ofsafenginn, ef hann aðeins vekur ótta hjá öðrum, heldur en mann – hversu góðlátur sem hann annars er – sem hægt er að ýta til hliðar og vaða yfir. Skylda eiginmannsins til að vera sterkur er kennd jafn skýrt og sú kvöð eiginkonunnar að vera undanlátssöm. Þannig segir:
„Samband eiginmanns og eiginkonu líkist tengslum hins æðra og hins lægra frumafls sem gegnsýra alla hluti og hafa áhrif á jarðneskar og himneskar verur. Dyggð hins æðra frumafls er óhagganleg festa, en dyggð hins lægra frumafls er sveigjanlegur veikleiki. Þannig er styrkur karlmannsins heiður hans, en veikleiki konunnar ágæti hennar ... Himinninn gengur framar jörðinni: konungurinn gengur framar ráðgjöfum sínum: maðurinn stendur ofar eiginkonu sinni.“
Um þetta leyti færðist ungi eiginmaðurinn einnig upp í opinberan skóla og fékk sérstaka tilsögn til undirbúnings fyrir fyrsta prófið sitt. Hann hlaut lærdómsgráðu* sína sextán ára gamall, gat sér mikinn orðstír og gladdi hjarta föður síns.
Fáar heimildir eru til um árin sem fylgdu í kjölfarið. Smám saman urðu breytingar á gamla fjölskylduheimilinu. Móðirin var látin fyrir löngu og nýtt hjónaband hafði fyllt skarð hennar. Síðan lést faðirinn einnig, og minningartöflur beggja foreldranna voru þá reistar í forfeðrasalnum og börn þeirra tilbáðu þær í djúpri lotningu. Síðar var eignunum skipt og tók hver bræðranna fjögurra sinn hlut. Sá yngsti kom sér fyrir í notalegu húsi í útjaðri þorpsins, með akra og útihús allt í kringum sig, og fram undan blasti við honum björt framtíð á braut fræðanna.
* Á kurteisismáli Kínverja: „Gekk inn um Drekahliðið og synti í hinum miklu vötnum.“