36. kafli
Vetrarstarf í Hung-tung
„Á þessum dögum var eins og Himinninn væri á jörðu; ekkert virtist erfitt.“ Það var mikið sagt. En hver sá sem hefur kynnst hinni sönnu fyllingu heilags anda, þegar friður og kraftur sem ekki er af þessum heimi flæðir yfir hjarta og líf, getur efast um að slík reynsla sé raunveruleg? Þessi glaðværi vitnisburður kristniboða sem var nýfarinn úr héraðinu hefði allt eins getað lýst þessum vetri í Hung-tung hjá þeim sem eftir urðu. Margt í ytri aðstæðum var til uppörvunar. Allt lofaði góðu í byrjun. Fullir vonar og eldmóðs helltu Stanley Smith og Hoste sér út í starfið á nýju stöðinni sinni og nutu þar dugmikillar aðstoðar hinna innfæddu kristnu. Þetta var ekki spurning um „ráðningu“ – ákveðið vinnuframlag fyrir ákveðið kaup. Engin laun voru greidd. Fólk sem elskaði Drottin boðaði fagnaðarerindið einfaldlega vegna þess að það gat ekki annað. Og einlægni og fórnfýsi ungu kristniboðanna átti mikinn þátt í að efla þetta hugarfar.
Starfsvettvangurinn sem við þeim blasti var einstaklega áhugaverður. Margra ára sáning hafði rutt brautina. Yfir meira en fimmtíu mílna langt svæði, frá Hoh-chau í norðri og nokkuð suður fyrir Vestur-Chang-þorpið, lágu athvarf Hsi á víð og dreif, og voru þau öll að meira eða minna leyti miðstöðvar andlegrar blessunar. Fyrsta ferðin um héraðið nægði til að sýna fram á mikla möguleika, ef aðeins væri hægt að veita hverjum leitandi hjálp og fræðslu. Í Chao-ch'eng fann Stanley Smith til dæmis meira en fimmtíu manns sem játuðu kristna trú, en aðeins sautján þeirra höfðu verið skírðir; í fjölförnum bæ lengra í suðri var falleg lítil kapella þar sem tuttugu til þrjátíu manns sóttu reglulega guðsþjónustur, en enginn var til að stýra samkomunum nema heimamennirnir sjálfir. Hinir nýtrúuðu á þessum stöðum og víðar gerðu sitt besta og heilagur andi blessaði starf þeirra. En flestir voru sveitafólk með litla sem enga menntun. Meirihlutinn var ólæs. Og jafnvel leiðtogarnir voru ekki nógu langt komnir til að dýpka andlegt líf þeirra sem þeir höfðu fengið að safna saman.
Þörf var á einhverjum til að taka við starfinu og leiða það áfram; það þurfti að fylgja leiðsögn Andans, styrkja og þjálfa þá verkamenn sem Hann notaði og dýpka hjá öllum það líf sem Hann var tekinn að veita. Hsi hafði fundið sterkt fyrir þessari þörf og fagnaði komu samstarfsmanna úr hópi kristniboðanna sem gátu sinnt því sem hann komst ekki yfir sjálfur. Og fólkið tók þeim opnum örmum af heilum hug.
„Ó, útlendu hirðar, komið endilega og búið hjá okkur,“ var hrópað hvarvetna. „Verið kyrrir í þorpinu okkar og kennið okkur. Við þurfum meira á ykkur að halda en fólkið í borginni.“
En héraðið var stórt og þeir gátu ekki dvalið alls staðar. Í samráði við Hsi var því ákveðið að fara tvíþætta leið. Fyrst skyldu þeir kalla saman alla sem komist gætu til borgarinnar á biblíuskóla eða mót í upphafi vetrarstarfsins, og fylgja því síðan eftir með tíðum og reglulegum heimsóknum á allmargar miðstöðvar næstu sex mánuðina. Bagnall, hinn nýi umsjónarmaður kristniboðanna í héraðinu, var að flytja til P'ing-yang og myndi verða viðstaddur. Og þar sem brúður hans var í för með honum var víst að honum yrði tekið enn betur, því engin útlend kona hafði nokkru sinni komið til Hung-tung.
Þau komu í lok október. Fyrstu dagana var það talsvert vandamál hvernig ætti að svala forvitni borgarbúa, sem streymdu í hópum að kristniboðshúsinu til að berja ensku frúna augum. Undirbúningur fyrir mótið stóð einnig yfir, svo að þar var sannarlega mikið um að vera. En margar hendur vinna létt verk. Þrjú eldhús og níu eldavélar voru í fullum gangi í heila viku og tókst þannig að sjá um tvö hundruð gestum fyrir nægu brauði og öðrum vistum. Og hugrekki og þolinmæði frú Bagnall fleyttu henni í gegnum þetta allt.
Þetta var fjölmennasta kirkjusamkoma sem haldin hafði verið í Suður-Shan-si fram að þeim tíma. Hún gaf kristniboðunum einmitt það tækifæri sem þeir þurftu til að komast í samband við alla hluta síns víðfeðma starfssvæðis. Meðal hinna leitandi virtust ekki svo fáir vera reiðubúnir undir skírn, og voru mál þeirra skoðuð vandlega með hjálp Bagnalls og Hsi hirðis. Á meðan vingaðist frú Bagnall við konurnar. Þær grátbáðu hana um að vera um kyrrt í héraðinu, og þegar þær komust að því að hún yrði að halda áfram til P'ing-yang var aðeins hægt að hugga þær með loforði um að frú Hsi myndi brátt koma í heimsókn. Samkomurnar voru þrungnar krafti og kveiktu í öllum hjörtum eftirvæntingu um að enn meira væri í vændum. Stór ný skírnarlaug hafði verið hlaðin í húsagarði kapellunnar, og var hún notuð í fyrsta sinn þegar fimmtíu og fjórir karlar og tvær konur voru tekin inn í söfnuðinn í lok mótsins.
Síðan tók vetrarstarfið við. Stanley Smith og Hoste skiptu héraðinu í svæði og skipulögðu reglulegar heimsóknir á fimmtán til tuttugu miðstöðvar, þar sem hinir kristnu úr þorpunum í kring gátu hitt þá. Stutt hlé á milli þessara ferða nýttu þeir til hvíldar og náms. Þeim miðaði þó lítið áfram í klassískri kínversku þessa annasömu mánuði, en talmálið gekk hins vegar prýðilega. Auðvitað var þetta strangt starf og því fylgdu sífelld harðræði á köldum og erfiðum ferðalögum og á fátæklegum heimilum fólksins. En þeir vöndu sig við slíkar aðstæður með því að lifa alfarið að kínverskum sið í borginni. Þeir borðuðu alltaf með prjónum, sváfu á upphituðum múrsteinsbálkum eins og nágrannar þeirra og klæddust eins og venjulegur fræðimaður í Shan-si. Þegar þeir lögðu af stað mánuð eftir mánuð í langar yfirferðir sínar voru hin óhjákvæmilegu óþægindi því ekki óbærileg.
Klæddir bómullarstunguðum fötum, með loðfóðraðar húfur og þykkfóðraða skó, voru þeir vel búnir gegn hörku vetrarins í norðrinu, og þar sem þeir voru ekki vanir ofnum heima hjá sér voru þeir reiðubúnir að verjast kuldanum með aðferðum Kínverja. Þeir fóru allar ferðir sínar fótgangandi í vetrarsólinni, yfir snævi þakta fjallvegi eða yfir frosinn dalinn og ísilagt fljótið, þar sem bæir og þorp lágu þéttast undir hvítri blæju sinni. Í fylgd fúsra aðstoðarmanna vörðu þeir mörgum klukkustundum í söng og samræður á göngunni og nýttu vel þau tækifæri sem gáfust á leiðinni, sem og á hinum ýmsu áningarstöðum þar sem þeim var tekið svo hlýlega.
Hinir kristnu í héraðinu höfðu afar mikið yndi af söng, og þá góðu hneigð færðu ungu kristniboðarnir sér vel í nyt. Í eigin húsakynnum í Hung-tung, á ferðum sínum í allar áttir og á heimilum hvar sem þeir komu héldu þeir fólkinu við sönginn. Hsi hafði þegar unnið talsvert á þessu sviði og sálmar hans voru vinsælir að verðleikum. Við þá bestu þeirra bætti Stanley Smith öðrum úr ýmsum áttum, ásamt söngvum og viðlögum eftir sjálfan sig. Safnið óx og varð að fallegu litlu kveri sem svaraði langþráðri þörf. Svo miklar vinsældir hlaut það að full þúsund eintök voru keypt þennan vetur, og sálmarnir voru sungnir alls staðar af slíkum eldmóði að heiðinn lýður utan safnaðarins fór að læra þá.
Líf hinna kristnu í Hung-tung var þannig borið uppi af söng. Útkoman var ekki alltaf hljómfögur, en hún var full af blessun. Góður sálmur er sannleikslind, og með stöðugri notkun getur jafnvel treggáfaðasti trúmaður ausið þaðan mikla sælu. Söngurinn reyndist þannig afar mikilvægt náðarmeðal, auk þess að koma að hagnýtu gagni á annan hátt. Ekkert gladdi sjúklingana í hverju athvarfi jafnmikið eða vann jafnfljótt á kvíða og áhyggjum. Í mesta kuldanum höfðu kristniboðarnir oft gaman af að sjá hina kristnu sem þeir dvöldu hjá, eða þá hressari meðal ópíumsjúklinganna, hrekja burt kulda úr sál og líkama með því að syngja við vinnu sína eða á meðan þeir gengu fram og aftur sér til hreyfingar, allt þar til svitinn sem rann niður andlit þeirra bar ákafa þeirra vitni. Þegar svo var komið var næsta víst að kjarkleysi og depurð væru á bak og burt.
Lögin voru í mörgum tilfellum jafnfrumleg og sálmarnir. Hsi hirðir söng sjálfur öllum stundum. Mörg laganna sem hann tók upp voru af innlendum uppruna, en önnur sem voru evrópsk að uppruna „fengu rakað höfuð eins og kristniboðarnir og voru færð í kínverskan búning“. Þessi lög sem höfðu fengið kínverskan þegnrétt féllu fólkinu afar vel í geð. Hsi hafði líka sinn eigin hátt á að leiða sönginn. Hann hafði yndi af að byrja lögin eins hátt og hugsast gat og halda góðum og líflegum takti. Ekkert var dauft eða syfjað við guðsþjónusturnar í Hung-tung þegar hann var viðstaddur. Og sami glaðværi tónninn einkenndi samkomurnar í hverju athvarfi og víðar.
Þetta var undursamlegur vetur. Orð Guðs breiddist víða út, þeir sem höfðu fallið frá sneru aftur og hinir nýtrúuðu fylltust kærleika og eldmóði. Stundum þegar Stanley Smith prédikaði í Hung-tung virtist allur staðurinn fyllast krafti heilags anda. Og Hsi var ekki síður notaður, bæði þar og um allt héraðið.
Auðvitað voru gerð ýmis mistök og skoðanamunur olli stundum núningi. Ungu kristniboðarnir áttu margt ólært og Hsi var langt frá því að vera fullkominn. Þeir voru fullir framtakssemi og gengu oft rösklega fram í einlægni sinni. Hann var ekki alltaf samþykkur og fylgdist stundum heldur þungbúinn með. En honum þótti allt of vænt um þá til að misskilja þá. Og með bæn og þolinmæði á báða bóga tókst að komast hjá öllum alvarlegum árekstrum.
Og jafnvel þegar þeim voru brestir hans hvað ljósastir komust þeir ekki hjá því að sjá hve augljóslega Guð blessaði hann og notaði. Allan þennan vetur var hann svo undir valdi Andans að það var engu líkara en hann veitti öðrum hlutdeild í hinni guðlegu nærveru. Þegar hann sá trúfasta bræður meðal samverkamanna sinna verða fyrir sérstökum freistingum helgaði hann sig bæn og föstu og lagði síðan hendur yfir þá, með þeim árangri að slíkir menn fylltust ítrekað heilögum anda. Hann hafði alltaf gert þetta að vissu marki, en nú sá hann sífellt meiri blessun hljótast af því. Og bænum hans var ekki aðeins svarað í slíkum tilfellum. Í hverju athvarfi og meðal hinna kristnu var hann oft beðinn um að leggja hendur yfir fólk og biðja fyrir því, að það mætti öðlast huggun og uppörvun, og sú varð líka oft raunin, en þó aðeins þegar hann var sjálfur í nánu sambandi við Guð.
Starf Hsi á þessum tíma var bæði stöðugt og fjölbreytt. Auk sálgæslu og hirðisþjónustu í héraðinu þurfti hann að heimsækja öll athvörfin sín, og í nokkrum þeirra þurfti að stækka húsakynnin. Hann fór einnig suður til P'ing-yang um veturinn á mót og aðstoðaði Bagnall við að skíra nýja safnaðarmeðlimi og skipa fleiri embættismenn í söfnuðinum. Og í Hung-tung þurfti að ráðast í sérstakar byggingarframkvæmdir, því að athvarfið var vinsælt og oft voru fimmtíu menn þar í meðferð í einu. Allt þetta kallaði á tíðar fjarvistir að heiman og hefði verið ógerlegt án hjálpar Si öldungs, sem kvæntist yngri systur frú Hsi um veturinn og gat tekið að sér umsjón með málum í Vestur-Chang-þorpinu.
Þar sem Si hafði sjálfur verið bjargað úr dýpstu eymd stóð hjarta hans afar nærri öllu því starfi sem Hsi vann að. Reynsla hans í athvarfinu í Chao-ch'eng og víðar gerði hann vel í stakk búinn til að þjálfa aðra, og ljúfur og auðmjúkur andi hans gerði hann kærkominn öllum samverkamönnum sínum. Hann var stórhjartaður og hluttekning hans takmarkalaus, og hann bar svo djúpa umhyggju fyrir syndurum og þjáðum að það jaðraði við brennandi ástríðu fyrir sálum manna. Og þó hafði þessi sami maður aðeins fáum árum áður verið svo vonlaust sokkinn í synd að honum var mánuðum saman synjað um inngöngu í athvarfið í Fan-ts'uen.* Saga hans er áhugaverð því hún sýnir hvers konar mönnum Hsi þurfti að fást við og hvert leyndarmálið var á bak við áhrif hans á þá.
Í þorpi Fans, skammt frá Hung-tung, hafði Si ungi alist upp. Faðir hans var efnaður maður en forfallinn ópíumreykingamaður, undir áhrifum eiturlyfsins dag og nótt. Með slíkt fordæmi fyrir augum fór pilturinn snemma afvega. Hann tók upp þennan banvæna ósið sextán ára gamall og tíu árum síðar var hann alþekktur sem „ópíumþræll“. Heilsan og skapgerðin létu á sjá, þar til hann var lítið annað en flak, bæði andlega og líkamlega. Vinir hans, sem um tíma höfðu lagt hart að honum að bæta ráð sitt, gáfust upp á þeim árangurslausu tilraunum, og Si ungi fór ört úr öskunni í eldinn.
* Þetta var maðurinn sem hóf starfið í Chao-ch'eng með ekkert annað í höndunum en þrjú þúsund pillur. Eftir að hann var skipaður einn af fyrstu öldungunum í Hung-tung-héraði starfaði hann dyggilega í Vestur-Chang-þorpinu um margra ára skeið. Og þegar Hsi var kallaður burt var það hann sem söfnuðurinn í sorg sinni valdi til að taka við af hinum ástkæra leiðtoga sínum sem forstöðumaður alls starfsins sem hvert athvarf vann. Í Boxaraofsóknunum árið 1900 var hann sá fyrsti í Shan-si sem ráðist var á. Hann var stunginn í kviðinn, og þótt hann lifði í nokkurn tíma eftir það náði hann aldrei heilsu á ný og lést árið 1902.
Samt hafði hann ekki teljandi áhyggjur af þessu. Hann hafði úr nógu að spila og hirti lítið um mannorð sitt svo framarlega sem hann átti peninga til að eyða og nóg af ópíumi. Fan, sem var trúaður maður þótt hann væri ekki orðinn kristinn á þeim tíma, gerði ítrekað sitt besta til að vekja Si unga til vitundar um hættuna sem hann var í. En það var bara hlegið að honum fyrir ómakið, og að lokum lét hann staðar numið.
Þá skall á þurrkur og hungursneyð í þrjú löng og skelfileg ár. Auðurinn varð að engu, öll lífsþægindi hurfu á svipstundu og innan skamms blasti við fjölskyldunni sár skortur, ef ekki beinlínis hungurdauði. Hvernig þau komust í gegnum þennan hræðilega tíma og tókst samt að útvega nóg ópíum til að svala fíkn þeirra feðga var hrein ráðgáta. En eftir stóðu þau í fjárhagslegri rúst og ungi maðurinn þráði nú loksins að losna við sinn illa ávana. En árum saman barðist hann við hann til einskis.
Loks urðu umskipti í þorpinu. Búddistinn Fan var orðinn kristinn og hafði fyllst nýrri gleði og von. Hús hans varð að miðstöð sem fjöldi fólks laðaðist að til að heyra „fagnaðarerindið“, eins og hann kallaði sína nýju trú. Að lokum fann Fan svo til með nágrönnum sínum sem reyktu ópíum að hann taldi útlenda kennarann á að koma frá P'ing-yang og taka að sér að lækna alla þá sem vildu láta af ávananum. Tilraunin tókst með afbrigðum vel og leiddi til þess að komið var á fót varanlegu athvarfi, og fyrir tilstilli þess rataði fjöldi manna úr allri sveitinni aftur til lífs og heilsu. En fyrir vesalings Si virtist tækifærið hafa komið of seint. Furðulegt nokk var svo illa fyrir honum komið að Fan vildi ekki taka við honum. „Nei,“ sagði hann, „við höfum í nógu að snúast með menn sem hægt er að lækna. Þú ert vonlaus.“ En um leið bauð hann honum þó að sækja samkomurnar.
Það hélt Si áfram að gera. En allt sem hann heyrði á samkomunum jók aðeins á áhyggjur hans. Loks hreyfði prédikun sem Drake flutti svo djúpt við honum að hann sótti aftur um inngöngu í athvarfið. En Fan var enn ófús til þess.
Eina von hans var nú bundin við Hsi, og þegar Hsi kom næst í heimsókn í athvarfið nýtti Si tækifærið og bar fram sína síðustu bæn. Hsi komst mjög við og talaði máli hans við Fan. „Til hvers kom Drottinn Jesús eiginlega í heiminn?“ sagði hann. „Var það ekki til að frelsa syndara? Við skulum ekki líta á hvort líf hans er gott eða slæmt. Vera má að Drottinn miskunni honum og frelsi hann.“ Og þar með var honum að lokum veitt innganga.
Meginreglur athvarfsins voru útskýrðar fyrir nýja sjúklingnum af sérstakri natni og honum var gert skiljanlegt að ekkert nema bæn og kraftur Guðs gæti bjargað honum. Í einlægri þrá sinni eftir að komast í gegnum þetta varði vesalings maðurinn mörgum klukkustundum um nóttina í að reyna að biðja. Hann hélt að í slíkum efnum fengi maður aðeins bænheyrslu fyrir mörg orð, og hann endurtók sama neyðarópið látlaust fram í birtingu í von um að hræra hjarta Guðs hinna kristnu. Og bænheyrður varð hann svo sannarlega, því að bati hans gekk ótrúlega hratt fyrir sig.
Innan viku var hann orðinn nógu hress til að fara að gera sér vonir jafnvel um vesalings gamla föður sinn. Hann fékk leyfi til að bregða sér úr athvarfinu, fann hann að máli og grátbað hann lengi og innilega um að láta af illum ávana sínum áður en það yrði of seint. En nei, það virtist ómögulegt. Gamli maðurinn gladdist vissulega yfir því að sjá son sinn snúa við blaðinu, en sjálfur hafði hann verið ópíumreykingamaður í meira en fjörutíu ár. Því var ekki hægt að breyta úr þessu.
Sonurinn varð að snúa vonsvikinn til baka. En það stóð ekki lengi. Veikindi bar að garði, og í dauðans ótta ákvað gamli maðurinn að hætta ópíumneyslunni sem síðasta úrræði. Það var áhættusamt tiltæki, en mikið var beðið fyrir honum og „Guð hjálpaði honum líka,“ eins og sonur hans komst svo einfaldlega að orði.
Það var afar hrífandi að sjá þá feðga hefja nýtt líf saman þegar báðir voru læknaðir. Meðan þeir voru enn í athvarfinu höfðu þeir komið sér saman um að taka niður öll skurðgoð sín, og það fyrsta sem þeir gerðu þegar heim kom var að hrinda þessum sameiginlega ásetningi í framkvæmd. Faðirinn hafði verið ákafur skurðgoðadýrkandi, en nú var honum mikið í mun að brenna hvern einasta vott af fyrri guðum þeirra. Umskiptin á heimilinu voru svo mikil að margt hjartað fór að þrá sömu blessun, og brátt hlotnaðist gamla manninum sú gleði að fara með bróður sinn, sem einnig var forfallinn ópíumreykingamaður, í athvarfið, og þar hlaut hann líka frelsun.
Eftir þetta fór Si yngri niður í Vestur-Chang-þorpið. Hsi bar mikla umhyggju fyrir velferð hans og gerði allt sem hann gat til að styrkja hann í trúnni. Smám saman steig Si fram í fullt ljós og blessun. Hann og faðir hans voru skírðir saman, og undir áhrifum Hsi varð ungi maðurinn farsæll sálnaveiðari og síðar einn af leiðtogum starfsins sem hvert athvarf vann.
Hsi hafði einstakt lag á að blása þessum mönnum anda í brjóst og þroska þá. Hann kunni að laða fram það besta sem í þeim bjó. Engin furða var að áhrif hans á þá væru nánast takmarkalaus. Samt reyndi framkoma hans stundum á þolrif þeirra. Hann hafði ekki enn lært til fulls þann leyndardóm að stjórna með kærleika og leiða án þess að sýnast ráða.
Strax þennan fyrsta vetur var ljóst að sú ábyrgðarstaða sem honum hafði verið falin gat orðið hættuleg ef einhver samverkamanna hans fjarlægðist Drottin í hjarta sínu. Fan hafði til dæmis hrakað nokkuð í andlegu lífi sínu, og þar sem starf hans blómstraði ekki lengur hafði hann verið feginn að þiggja stöðu í nýlegu athvarfi Hsi. En þótt hann væri vingjarnlegur á ytra borði var hann öfundsjúkur og óánægður og var þegar farinn að spilla hugum annarra. Ef Hsi hefði sýnt meiri auðmýkt í samskiptum sínum við þessa menn og verið betur á varðbergi gagnvart freistingum nýrrar stöðu sinnar, hefði mátt komast hjá miklum erfiðleikum. En hann varð að læra af sárri reynslu, og á meðan voru rætur beiskjunnar að skjóta upp kollinum þrátt fyrir alla blessun þessa undursamlega tíma.
Ef til vill fæst hvergi betri mynd af skapgerð hans þessa mánuði en í endurminningum Stanley Smiths sjálfs, sem birtast í nýlegu bréfi:
„Í félagslegri umgengni,“ skrifar hann, „var Hsi sannur heiðursmaður og afar áhugaverður félagi. Hann var gæddur miklum vitsmunum. Ímyndunarafl hans, skipulagsgáfa, mælska, minni og dómgreind voru með ólíkindum. Að skapferli var hann ákafur, djarfur og ákveðinn. Í andlegu fari hans, þegar ég kynntist honum fyrst, var margt elskulegt og aðlaðandi, en þó voru nokkrir þættir þar sem hann stóð greinilega höllum fæti. Frá því að hann tók fyrst trú á Drottin hafði hann ekki notið leiðsagnar neins andlega sinnaðs manns, fróðs í Orðinu, sem gat stutt hann í þeim efnum, og fyrir vikið var biblíuskýringum hans oft ábótavant og þær ærið hugmyndaríkar. Á þeim dögum skorti hann líka undirgefni við Orð Guðs og honum hætti til að hefja kínverskar hugmyndir til skýjanna, auk þess sem hann vanmat útlenda kristniboðann ekki lítið. Bænalíf hans var hins vegar auðugt og ákaflega einlægt. Hann lagði öll mál fram í bæn, og er tímar liðu fram varð hann afar öflugur í að útleggja Biblíuna og hélt ræður sem einkenndust af miklum frumleika og djúpu andlegu innsæi.
„Hann varð fyrir sterkum freistingum, og lét stundum undan þeim, á því sviði sem var veikasti bletturinn í skapgerð hans – valdafíkninni; þó væri mjög ósanngjarnt að skrifa það eingöngu á reikning metnaðargirndar og hroka. Hann trúði því að Guð hefði sett hann í svipaða stöðu og Móse, stöðu leiðtogans, og þegar hann ætlaði öðrum að lúta valdi sínu taldi hann sig vera að framkvæma vilja Guðs. Hann varð þó fyrir ýmsu sem auðmýkti hann, og þau tvö ár sem ég var með honum tók hann greinilegum framförum í auðmýkt, og hún dýpkaði enn frekar er fram liðu stundir. Kærleikur hans til Meistarans og til sálnanna einkenndist af stöðugu erfiði og sjálfsafneitun.
„Hann var sannur liðsmaður hinnar stríðandi kirkju og það var fastur liður í lífi hans að berjast gegn óvininum með bæn, eða með bæn og föstu. Og nafnið sem hann valdi sér þegar hann gerðist kristinn var ekkert innantómt mont – því að hann vildi aðeins láta skilja það svo að Guð gæfi honum kraftinn til þess – en Sheng-mo þýðir Sigurvegari illra anda.“ Þannig nálgaðist vorið 1887. Sex mánaða samfellt starf og bænahald hafði sett mark sitt á héraðið. Þegar snjórinn bráðnaði í fjöllunum og allt grænkaði á ný í aðdraganda uppskerunnar, leyndu sér ekki merki andlegrar vakningar sem lofaði mikilli uppskeru. Þegar ungu kristniboðarnir fóru í vitjunarferðir sínar báðu fjölmargir úr hópi leitenda um skírn. Regluleg heimilisguðsþjónusta var komin á í mörgum húsum. Jafnvel híbýli hinna kristnu höfðu fengið bjartara yfirbragð og mátti oft þekkja þau úr: uppáhaldssálmar og ritningargreinar höfðu verið skrifaðar á litaðar pappírsarkir og límdar upp fyrir utan dyrnar. Kristniboðsandi fór einnig vaxandi í söfnuðinum. Stanley Smith hélt varla svo ræðu að hann dveldi ekki við þá skyldu og þau forréttindi að vinna sálir. Þetta leiddi til markvissari bæna og umhyggju fyrir öðrum og fékk marga til að taka afstöðu sem annars hefðu ef til vill lengi haldið áfram í sinnuleysi.
Á meðan gætti nýrra og góðra áhrifa uppi í Hoh-chau. Konurnar sem komið höfðu um veturinn voru þegar orðnar afar ástsælar, og blessunin af bænræknu og fórnfúsu lífi þeirra fannst víða þar sem þær höfðu ekki enn komið. Með því að lifa einföldu lífi að hætti heimamanna, klæðast búningi héraðsins og laga sig að siðum fólksins höfðu þær kveðið niður fordóma og fundu nú opin hjörtu og opin heimili í allar áttir.
Vetrarstarfið hafði einnig dýpkað kærleikann og traustið milli Hsi og samstarfsmanna hans úr hópi kristniboðanna á báðum stöðvunum. Svo mjög kvað að þessu að í Hung-tung taldi Stanley Smith að það yrði starfinu til mikils styrktar ef hirðirinn og eiginkona hans settust bæði að í borginni og tækju að sér beina umsjón með öllu sem þar fór fram.
„Ég hef í huga að setja mig undir stjórn Hsi,“ skrifaði hann um þetta leyti. „Guð hefur notað hann mikið og starfið er beint eða óbeint að mestu leyti hans verk. Það er mér fjarri að trúa á „guðlegan rétt“ kristniboða – að eingöngu vegna þess að maður er kominn hingað út sem kristniboði eigi allir innlendir kristnir menn að beygja sig fyrir skoðunum manns og viðurkenna mann sem leiðtoga. Kirkjan á sér einn Leiðtoga. Ó, að við mættum öll horfa æ meira til Hans.“
Þessir þættir, ásamt mörgum öðrum, lögðust á eitt um að skapa „samkomuna miklu“ í apríl 1887, sem varð hápunkturinn á starfi og bænum vetrarins.
Þetta mót varð öllum viðstöddum ógleymanleg stund. Áður höfðu allmargar samkomur af sama tagi verið haldnar, en aldrei nein jafn þrungin krafti og fyrirheitum. Bæði að fjölda og eldmóði bar það jafnvel af samkomunum árið áður, þegar „hinn aldni yfirhirðir“, æðsti hirðir kristniboðsins, heimsótti héraðið. Þá söfnuðust kristnir menn saman í tugatali. Nú skiptu þeir hundruðum ásamt hverjum leitandi. Þá voru aðeins fáar konur viðstaddar. Nú var kominn sérstakur forgarður fyrir konur.
Myndin var tekin þar sem hundruð kristinna manna komu saman við innsetninguna.
Þessum forgarði hafði verið bætt við húsakynnin, og frú Hsi og nýgift systir hennar höfðu í nógu að snúast við að annast konur úr sveitum og bæjum alls staðar að úr héraðinu, en yfir fimmtíu þeirra áttu nú að skírast. Þá var söfnuðurinn í Hung-tung stofnaður og sjötíu trúaðir, sem fluttir voru frá móðurstöðinni, brutu saman brauðið við fyrstu heilögu kvöldmáltíðina. Nú átti að taka við meira en þreföldum þeim fjölda með skírn á einum og sama deginum.*
Staðreyndirnar einar segja fátt. Maður þarf að hafa lifað öll undangengin ár og þekkja hvernig það er þegar slíkt verk vex hægt úr kærleika og bænum í dýpstu fylgsnum sálarinnar til að skilja hvað slík stund þýðir. Ein sál er dýrmæt, unnin með erfiðismunum úr myrkri þar sem heiðinn dómur ríkir. Hvað skal þá segja um hundruð?
Flestar samkomurnar voru haldnar úti í opnum húsagarðinum fyrir framan kapelluna. Skipulagið var aðdáunarvert, allt frá undirbúningnum undir að hýsa og fæða svo mikinn mannfjölda niður í einfalda aðferð til að kynna nýja sálma og viðlög. Notaðar voru tvær súlur sem blöstu við og héldu uppi þakskegginu framan við kapelluna, og voru stórir bómullardúkar, þar sem erindin voru skrifuð skýrum táknum, dregnir þar upp eða látnir síga eftir þörfum. Söngurinn sjálfur var hreinasta hugljómun. Aldrei fyrr hafði svo voldugur lofsöngur stigið upp til Guðs djúpt úr innsveitum Kína.
Taka varð heilan dag frá fyrir skírnirnar, því að taka átti við tvö hundruð og fjórtán leitendum, og þar af voru fimmtíu og tvær konur. Hsi hirðir, sem hafði fastað tvo daga á undan, talaði af miklum krafti um friðþæginguna og setti afar djúpa og áhrifamikla alvöru á stundina. Athöfnin varð að hefjast árla morguns og allir viðstaddir kristniboðar tóku þátt. En það var ekki fyrr en sól var að renna að Hsi, enn fastandi, steig upp úr vatninu eftir að hafa skírt síðasta hópinn, fimmtíu karlmenn.
* Hsi hirðir fékk síðar að reyna að í slíkum fjöldahreyfingum höfðu margir ekki skilið andlega þýðingu gjörðar sinnar, en jafnvel þótt fullt tillit sé tekið til þeirra sem brugðust hefur framhaldið leitt í ljós hve mikil og sönn blessun var veitt.
Heilög kvöldmáltíð, sem fylgdi í kjölfarið, var verðugur endir á þessum ógleymanlega degi, þegar nærri fjögur hundruð trúaðir í þessari heiðnu borg sameinuðust í að minnast kærleikans sem gaf Jesú í dauðann: „Ein áhrifamesta sjón sem ég hef nokkru sinni orðið vitni að,“ skrifaði Stanley Smith. Þótt Smith gerði sér litla grein fyrir því þá var starfi hans í Hung-tung nærri lokið. Sumarið var að ganga í garð og þá varð að gera hlé á reglulegum boðunarferðum vegna uppskerutímans. Og skyndilegar, óvæntar breytingar voru í vændum – kreppa sem átti eftir að skekja söfnuðinn, sem hann unni svo heitt, allt niður í grunninn.
Skyldi það hafa verið í ljósi þessa sem hann var leiddur til að biðja fólk á síðustu samkomunni að gefa sig Drottni Jesú heilshugar á vald og brýna fyrir hverjum og einum þá undursamlegu möguleika sem felast í lífi í Heilögum Anda? Sumir fylltust Andanum á þeirri sömu stundu sem aldrei fyrr. Og lokastundir mótsins voru ógleymanlegar þegar Hsi, „bókstaflega glóandi af bæn“, leiddi þakkargjörð fyrir komandi blessun.