25. kafli
Undirhirðar: vandamál
Þetta var vissulega mikill vandi. Hvað sem Hsi og eiginkona hans lögðu á ráðin vissu þau ekki hvernig þau áttu að leysa hann.
Starfið sem hafði vaxið upp í kringum þau varð sífellt umfangsmeira og flóknara. Hinir kristnu í nágrannaþorpunum, sem höfðu snúist til Drottins fyrir starf þeirra, leituðu í æ ríkara mæli til þeirra eftir hjálp og fræðslu. Kristniboðsstöðin í borginni var í fullra tíu mílna fjarlægð, og yngri karlmenn gengu þangað á sunnudögum til að sækja guðsþjónustur og komust þannig í samband við kristniboðana, en gamla fólkinu og flestum konunum og börnunum var ofviða að ganga bæði fram og til baka. Því varð að sinna þeim nær heimilum þeirra. Og í mörgum tilvikum þurfti aðstoðin ekki síður að ná til líkamans en sálarinnar, því að hinir nýtrúuðu voru ekki aðeins fátækir heldur sættu þeir líka oft ofsóknum. Margur maðurinn, sem hafði getað séð fyrir fjölskyldu sinni áður en hann gerðist kristinn, stóð skyndilega uppi án nokkurs lífsviðurværis. Heiðinn vinnuveitandi hans eða ættingjar ráku hann frá sér, eða þá að atvinna hans var þess eðlis að hann varð að láta af henni. Aðrir voru kúgaðir og hlunnfarnir og stundum hraktir frá húsi og heimili. Fórna varð ópíumuppskerunni og þeim mikla gróða sem hún gaf af sér, og heiðarlegri viðskiptahættir höfðu oft fjárhagslegt tap í för með sér. Margir hinna nýtrúuðu liðu skort og voru orðnir snauðir svo að þeir þurftu á tímabundinni neyðarhjálp að halda, og nú var gengið nærri efnum Hsi til hins ítrasta.
Þá krafðist staða hans líka ekki lítillar gestrisni. Hver sá leitandi sem kom langt að þurfti oft að gista í nokkra daga á þessu kristna heimili, svo að hann gæti séð sannindin sem honum voru kennd í verki. Trúað fólk sem safnaðist saman úr margra mílna fjarlægð til sunnudagsguðsþjónustu var oft þreytt og átti of langt heim til að geta farið þangað í hádegismat milli samkoma. Sumir komu með hveiti, brauð og annan mat, en aðrir höfðu lítið sem ekkert meðferðis; allir þurftu þó að fá afnot af eldhúsinu og gestasalnum, að ekki sé minnst á kvennaherbergin. Eins þurfti að útvega bekki fyrir samkomurnar, olíu á lampana, heitt vatn í sífellda tedrykkjuna – en án hennar verður ekkert gert í Kína – og sýna margs konar aðra gestrisni sem of langt yrði upp að telja.
„Ég hugsaði mikið um dæmisöguna um góða hirðinn,“ skrifaði Hsi, „og íhugaði orð Krists: ‚Þeir munu ganga inn og út og finna haga.‘“
Í hans huga merkti þetta greinilega að annast yrði sauðina í stundlegum efnum jafnt sem andlegum. Sjá varð fyrir þörfum hinna ungu í trúnni sem gengu inn og út úr þessu sauðabyrgi. Þegar fólk lagði á sig langa ferð til að sækja guðsþjónustu á sunnudögum var það hans hlutverk að sjá til þess að enginn færi svangur heim. Sýna varð kristilegan kærleika til bræðranna í verki. Þetta var hluti af vandanum.
Hinn hlutinn sneri að stærra viðfangsefni. Þennan hjálpræðisboðskap varð að prédika „öllu mannkyni“. Ljóst var að kristniboðarnir gátu aldrei áorkað svo miklu verki einir síns liðs. Og þegar fólk hafði snúist til trúar varð að hjálpa því, ef þörf krafði, að finna sér hæfilegt lífsviðurværi. Auðvitað gat það ekki verið upp á hinn erlenda kristniboða komið. Þörf yrði á innlendum starfsmönnum, mörgum innlendum starfsmönnum. Þá varð að velja úr röðum einmitt þessara nýtrúuðu. Og finna varð einhverja leið til þess að slíkir menn gætu unnið sér inn heiðarlegt viðurværi um leið og þeir helguðu sig því starfi að frelsa sálir.
Ekki var það svo að þessi sýn á málið birtist þeim fullmótuð eða öll í einu. En smám saman, á meðan Hsi og eiginkona hans gerðu sitt besta í starfi sem óx sífellt, fóru þau að koma auga á þessa hluti, rétt eins og foreldrar skynja þarfir eigin barna. Og þau gerðu sér líka grein fyrir því að umönnun lamba Hans og sauða Hans kostaði fórnir, og að jafnvel undirhirðar yrðu að vera reiðubúnir að færa fórnir.
Mátturinn til að hjálpa öllum, fúsleikinn og hæfnin til að þjóna sem flestum – þetta er innsigli guðlegrar köllunar til forystu meðal manna. „Sá sem vill verða mestur á meðal ykkar, sé minnstur allra og þjónn allra.“ Hvort sem Hsi skildi þessa meginreglu til fulls eður ei, þá var hann farinn að hrinda henni í framkvæmd.
Allt frá upphafi hafði hann fúslega látið af hendi það sem hann gat verið án þegar þörf krafði, og selt hvaðeina sem hann mátti missa til að geta hjálpað bræðrunum. Hann lagði allt á sig í þjónustu við þá og var jafnfús til að hita vatnið í koparkatlinum og hella upp á te á sunnudögum eins og að stjórna samkomunum eða gefa þeim sem voru í neyð fé og góð ráð. Heimili hans, tími og áhrif stóðu þeim öllum til boða. Hann bar byrðar hinna hrjáðu, vitjaði sjúkra og bað með þeim, ávísaði lyfjum og gaf þau, og tók að sér á heimili sitt hvern manninn á fætur öðrum sem var í ánauð ópíumreykinga, til að geta vakað betur yfir þeim og stutt þá í baráttunni við að losna.
Auðvitað má ekki ætla að hann hafi gert allt þetta án þess að honum yrðu stundum á mistök í framkomu og aðferðum. Ágallar sem fylgt hafa manni alla ævi verða ekki sigraðir á einu ári eða tíu. Hann var enn oft bráðlátur og ráðríkur, féll í gamla farið með hrokafullu fasi eins og lærður fræðimaður og vildi ólmur fá sínu framgengt. En fúsleiki hans til að strita og þjást fyrir Drottin, sem hann elskaði, og til heilla fyrir þær sálir sem honum var trúað fyrir, var afar einlægur.
En starfið hafði þegar talsverðar fjárhagsbyrðar í för með sér og nú var svo komið í fyrsta sinn að efni hans voru á þrotum. Aðkallandi þarfir blöstu við úr mörgum áttum en hann átti enga peninga til að grípa til og engin ráð lengur til að útvega svo mikið sem fáeinar kippur af koparpeningum. Þetta var brýnasti vandinn í bili, og þau hjónin lögðu hann fram fyrir Drottin í bæn. Þau voru hvort öðru sannarlega styrkur í trúnni og léttu allar sínar byrðar með því að bera þær saman.
Á meðan þau báðu rann upp fyrir þeim ljós; frú Hsi var með ráð. Hún gat ekki lagt mikið af mörkum til að leysa vandann til frambúðar, en hún gat að minnsta kosti veitt tímabundna hjálp. Niðri í skarlatsrauðum kistlum voru enn geymdar nokkrar flíkur og dálítið af skartgripum sem voru hluti af brúðarbúnaði hennar. Þótt eiginmaður hennar hefði óspart látið sínar eigin eigur af hendi hafði honum aldrei dottið í hug að ganga á hennar hluti, og hann var enn tregur til að leyfa henni að færa þessa fórn.
„En ég hef enga þörf fyrir þessa hluti,“ sagði hún ákaft. „Hvers vegna ættum við að geyma þá? Gefum Drottni þá með gleði sem fórnargjöf svo að hægt sé að gæta hjarðar Hans.“
Kistlarnir voru því opnaðir og nokkrir munir teknir út. Múldýrin voru spennt fyrir í skyndi og Hsi lagði af stað til borgarinnar. Fórnargleðin bjó í hjörtum þeirra. Engan tíma mátti missa.
En erfiðleikarnir voru ekki á enda enn. Hann var hálfnaður á leiðinni þegar tók að þykkna upp, vindurinn rauk upp og úrhellisrigning skall á. Brátt voru vagninn og þeir sem í honum voru orðnir rennblautir, og meira að segja hinn dýrmæti kistill varð fyrir skemmdum. En þó að Hsi kenndi „valdhafanum í loftinu“ um þetta óhapp, hughreysti hann sig við þá tilhugsun að himneskur Faðir hefði leyft þetta og því hlyti allt að vera í lagi. Hann var fjarri því að vera gramur eða áhyggjufullur heldur fór hann leiðar sinnar „og lofaði Drottin hástöfum“ fyrir þau forréttindi að fá að þola illt vegna Jesú. Þrátt fyrir bleytuna fékkst gott verð fyrir munina, og í blíðskaparveðri og með glöðu hjarta hélt Hsi heimleiðis yfir sléttuna.
Nú vildi svo til einmitt á þessum tíma að verslunarhúsnæði losnaði í þorpinu Teng-ts'uen, aðeins fimm mílur frá heimili hans. Það vakti hagnýta hugmynd. Teng-ts'uen var markaðsbær þangað sem fjöldi fólks úr öllum þorpunum í kring lagði leið sína, og sárafáir í þeim hópi höfðu nokkru sinni heyrt fagnaðarerindið. Hví ekki að taka húsið á leigu, ráða í vinnu nokkra af hinum kristnu mönnum sem þurftu á hjálp að halda og opna þar lyfjabúð? Ef vel væri á málum haldið yrði hún fljótt sjálfbær og gæti um leið orðið miðstöð fyrir kristniboðsstarf í öllu nágrenninu. Því meira sem Hsi bað yfir þessari hugmynd, þeim mun betur leist honum á hana. Sem kínverskur læknir hafði hann nokkra þekkingu á lyfjum, og hvað viðskiptahliðina varðaði var hann slíku fyrirtæki fyllilega vaxinn.
Þannig atvikaðist það að á sumardögum 1881 var stigið nýtt og allmikilvægt skref. Læknakristniboðsstöð á algerlega innlendum grunni, sem rekin var og haldið uppi án nokkurrar erlendrar umsjónar, var nýmæli á þeim dögum. Kristniboðarnir í borginni fylgdust með af áhuga og velvilja, en töldu viturlegra að veita enga beina aðstoð. Hsi gekk einn til verks undir ríkulegri bæn og brátt var nýja lyfjabúðin komin í fullan rekstur.
Herbergið á bak við búðina var innréttað sem gestasalur. Háir stólar stóðu í öndvegi, tilbúnir að taka á móti gestum. Gljáfægð látúnstekanna og postulínsbollar biðu girnileg á borðinu. Kristileg spakmæli prýddu veggina og gott framboð af bókum og bekkjum bar vitni um kvöldsamkomur og sunnudagsguðsþjónustur. Búðin sjálf var snyrtileg og aðlaðandi, allt frá opna glugganum með ríkulegu úrvali af lyfjum* og inn í hið hefðbundna horn þar sem læknirinn ræddi við sjúklinga sína og skrifaði út lyfseðla. Yfir dyrunum héngu leturstafirnir Fuh-in T'ang – Salur fagnaðarómsins, eða Gleðifréttanna.
* Sennilega voru þar á meðal rabarbarakögglar, lakkrísrótarstangir, katekú-kubbar, *nux vomica*-baunir og önnur óunnin lyf sem jafnan er að finna í kínverskum lyfjabúðum.
Hsi hafði í mörgu að snúast á þessum dögum, því að hann var læknir, prédikari og verslunarstjóri allt í senn. Hann vann í vissum skilningi starf læknis og kristniboða, en hafði jafnframt þann kost að vera innlendur sjálfboðaliði. Þetta fór einkar vel saman.
Á meðan hlóðust sífellt fleiri skyldustörf á hann í hans eigin þorpi. Heimili hans var rúmgott líkt og hjarta hans og fullt af fólki sem þurfti á hjálp að halda. Strax sumarið 1881, tæpum tveimur árum eftir sinnaskipti hans, skrifaði kristniboðinn sem hafði umsjón með héraðinu á þessa leið:
Maður úr þorpi Hsi var hér á samkomunum í gær, vel til fara og hraustlegur. Hann bað á fallegri kínversku að við mættum öll læra hvað það er að deyja með Kristi, verða grafinn með Honum og rísa upp með Honum þegar nú til að lifa upprisulífinu. Fyrir fáeinum mánuðum var þessi maður tötralegur, óhreinn og vesældarlegur; hann var forfallinn ópíumreykingamaður og neytti nærri únsu af eitrinu á dag. Hsi tók hann upp á sína arma, skaut yfir hann skjólshúsi á eigin heimili, kom fram við hann eins og bróður, keypti ópíumlyf til að lækna fíkn hans, annaðist hann og leiddi hann til Krists. Nú er hann algerlega laus við ópíumfíknina og er hægri hönd Hsi á öllum bænasamkomum og guðsþjónustum. Hvort hann hefur í raun og veru snúist til trúar get ég ekki fullyrt um, en sem dæmi um það starf sem bróðir okkar Hsi vinnur er hann að mínu mati afar gleðilegt tilfelli.
Hsi hefur einnig opnað lyfjabúð nálægt heimili sínu ... Hugmyndin er að gera hana að bækistöð fyrir starf kristniboða í bænum. ... Eins og sakir standa fer ég ekki þangað yfir eins og ég ætlaði mér, vegna þess að mikil óvild ríkir í garð „útlendu trúarbragðanna“ og ég held að nærvera mín myndi aðeins spilla fyrir málefninu. Þessir bræður eru fyllilega færir um að halda áfram því verki sem þeir hafa tekið að sér, undir leiðsögn og í krafti heilags anda. Þar sem þeir eru ólaunaðir sjálfboðaliðar bera þeir eðlilega ríka umhyggju fyrir eigin verki og þurfa minna eftirlit en menn sem þægu nokkra dali á mánuði frá okkur.
Ekki gekk þó allt áfallalaust, jafnvel eftir að lyfjabúðin hafði verið opnuð. Í Kína, rétt eins og heima fyrir, er til fólk sem er tilbúið að játa nánast hvað sem er í ábataskyni, og eflaust hélt einhver leitandi að með því að gerast kristinn öðlaðist hann rétt á fjárhagsaðstoð. Ekkert gat þó verið fjær hugsunarhætti Hsi. Sjálfur var hann sjálfstæður og úrræðagóður og gerði miklar kröfur til hinnar innlendu kirkju. En hann hafði hjarta hins sanna hirðis og bar ávallt djúpa umhyggju fyrir þjáðum og veikburða. Hann gat aldrei látið sér nægja að segja: „Vermið ykkur og mettið,“ og látið trúbróður fara burt svangan og hrjáðan. Það gerði hann aldrei. Á hinn bóginn var þýðingarlaust að reyna að blekkja hann. Enginn var fljótari að sjá í gegnum svik eða koma auga á óheilindi hvar sem þau leyndust. Þessi glöggi mannskilningur forðaði honum frá mörgum mistökum og hélt jafnvægi við stórhuga samúð hans.
Þar að auki var hann á meðal síns eigin fólks og þekkti það svo vel að ólíklegt var að hægt væri að blekkja hann að ráði. Frá upphafi var hann of vitur til að leggja til, eða jafnvel láta sér detta í hug, að kristniboðar erlendis frá reyndu að beita sams konar góðgerðastarfsemi. Þar sem þeir þekktu eðlilega lítt til kínversks skapferlis og siða var mun auðveldara að misnota góðvild þeirra, auk þess sem tengsl þeirra við hina innlendu kirkju voru með öðrum hætti. En hvað hann sjálfan varðaði sá hann aldrei neina ástæðu til að draga úr sinni eigin örlátu gestrisni, og svo lengi sem hann lifði stóð heimili hans opið öllum sem hann gat þjónað vegna Jesú. Einstaka sinnum varð hann fyrir vonbrigðum. Til dæmis brugðust honum mennirnir sem hann setti fyrst til starfa í lyfjabúðinni og vildu ekki vera þar áfram vegna þess hve hagnaðurinn var lítill. Hsi hafði áhyggjur af þessu, einkum þeirra sjálfra vegna, og það fór eins og hann óttaðist, að þeir reyndust aldrei traustsins verðir eftir þetta. Hann lét þó ekki hugfallast heldur fékk aðra í þeirra stað og hélt starfinu á þessari stöð áfram í meira en tuttugu ár.