43. kafli
Æðri þjónusta
Þetta var sumarið 1895. Á sólríkum ágústdögum, þegar hveitiuppskeran var komin í hús, boðaði Hsi til sérstaks móts í Mið-Eden til að ræða áætlanir um að efla og víkka út starf athvarfanna. Honum var margt efst í huga varðandi möguleika framtíðarinnar. Drottinn hafði unnið undursamleg verk á liðnum tíma og opnað þeim víðar dyr og verkmiklar, og hann var fullur vonar og trausts þegar hann leit til komandi daga.
Starfsmenn athvarfanna komu víða að og forystumenn safnaðarins slógust í hópinn, uns tvö hundruð gestir fylltu gamla heimilið í Vestur-Chang-þorpinu út úr dyrum. Hsi var svo sannarlega í essinu sínu þegar hann tók á móti þessum kæru vinum og annaðist þarfir þeirra. Enn meiri varð þó gleði hans og eldmóður þegar samkomurnar hófust. Íhuga þurfti í bæn ýmis mál sem vörðuðu starf athvarfanna. Með aukinni reynslu var eðlilegt að augljósar úrbætur kæmu í ljós og einnig leiðir til að komast hjá mistökum og árekstrum og auka andlegt gagn starfsins. Þótt Hsi væri fjarri því að telja starfsaðferðir þeirra fullkomnar, hafði hann trú á þeim, og hann fann það jafnvel enn betur nú en í upphafi að með blessun Guðs mætti gera þær æ árangursríkari til að frelsa sálir. Eitt sá hann þó skýrt: þörfina á meiri umsjón, og að tíminn var kominn til að fá reynda bræður sér við hlið sem umsjónarmenn yfir ýmsum þáttum starfsins. Og af ekki litlu þakklæti fylgdist hann með þroska nokkurra manna sem virtust vera að vaxa til slíkrar ábyrgðar á næstunni.
Mann langar helst til að dvelja við bjarta daga þessa sumarmóts: hina glaðværu trú, kærleikann og eininguna, verkið sem unnið hafði verið af náð Guðs, það sem menn höfðu lært og hinn aukna þroska. Hsi var orðinn sextugur og var fullur lífskrafts þrátt fyrir linnulaust og strangt strit. Gott var að sjá hann þarna á eigin heimili, umkringdan vinum og samverkamönnum sem voru honum bundnir mörgum helgum böndum, þar sem hann leit um öxl með þakklæti og fram á veg með endurnýjaðri helgun.
Á einum af síðustu dögum mótsins flutti Hsi prédikun sem aldrei mun gleymast. Margir leitendur voru viðstaddir og kristnir menn úr nágrenninu, auk starfsmanna athvarfanna. Hann lagði út af dæmisögunni um ríka manninn og Lasarus: „hvern dag“ þessa lífs og „mikið djúp staðfest“ handan grafar. Þegar hann talaði um eilífar afleiðingar alls lífs okkar hér á jörð, var eins og ljós frá öðrum heimi lýsti upp boðskapinn. Hann var fullur hátíðleika og krafts. Hefði hann vitað að þetta væri í síðasta sinn sem hann talaði til safnaðarins sem hann elskaði svo heitt, hefði hann ekki getað lagt fastar að þeim að snúa sér til Guðs af óskiptu hjarta. Þannig hélt þessi litli hópur hver til síns heima til að taka aftur til starfa, með glæddri þrá eftir að lifa lífi sem hefði gildi fyrir eilífðina.
Fáeinum dögum eftir mótið fór Hsi upp til Hung-tung að hitta Hoste, heilsuhraustur og kröftugur að vanda.
Dagurinn var heitur og ferðin ströng, en hann virtist varla finna fyrir því. Um kvöldið var hann alveg eins og hann átti að sér að vera og sýndi öllu sem fram fór mikinn áhuga. En skyndilega tóku þeir sem hjá honum voru eftir breytingu á honum. Það leið yfir hann og áður en nokkur náði til hans féll hann meðvitundarlaus til jarðar. Eftir stutta stund rankaði hann við sér en virtist undarlega máttfarinn. Þegar liðinn var dagur eða tveir án þess að hann hjarnaði við, taldi Hoste ráðlegast að fara með hann niður til P'ing-yang til Millar Wilsons læknis.
Þar í gamla kristniboðshúsinu var tekið á móti honum af innilegustu hluttekningu. Honum var komið fyrir í rólegu herbergi í þeirri von að nokkurra daga hvíld myndi endurnýja krafta hans. En þrátt fyrir allt sem gert var fyrir hann virtist hann ekki geta náð þrótti á ný.
En kannski myndi honum líða betur heima. Hann fann að minnsta kosti hjá sér löngun til að leggja í ferðina án tafar. Því var sent eftir vagni hans sjálfs og hann fluttur með allri nærgætni aftur í Vestur-Chang-þorpið. „Hvað sem verður,“ sagði hann þegar hann fór úr kristniboðshúsinu, „þá er bara að treysta Drottni.“
Í fyrstu virtist engin ástæða til að hafa áhyggjur. Hann lá hljóður og rólegur í herberginu sínu sem sneri út að sólríkum húsagarðinum, og allt gekk sinn vanagang, nema hvað frú Hsi hélt sig heima og var hjá honum öllum stundum. Hann þurfti ekki mikla hjúkrun, því að hann fann hvorki til vanlíðunar né kvala. En það var gott að vera saman, og hann var mjög máttfarinn. Hoste kom þangað oft, og þótt Hsi væri of máttvana til að tala mikið þótti honum innilega vænt um komu hans. Si öldungur sá um alla hluti og beðið var heitt um allt héraðið að hinn ástkæri hirðir næði brátt heilsu á ný.
En vikurnar urðu að mánuðum, haustlitirnir færðust yfir sléttuna og enn styrktist hann ekkert. Læknarnir Millar Wilson og Hewett voru svo elskulegir að koma frá P'ing-yang og gerðu allt sem kærleikur og læknislist máttu sín. En allt kom fyrir ekki. Frá læknisfræðilegu sjónarmiði var hér um að ræða algjöra örmögnun eftir áralanga ofreynslu, auk þess sem alvarleg hjartaeinkenni gerðu vart við sig. En það leið langur tími áður en fólk gat fengið sig til að trúa því að hann myndi ekki ná sér.
Hversu glaður hefði hann ekki viljað hressast ef hann hefði getað, til að strita litlu lengur þar sem þörfin virtist svo brýn. Hve undursamleg hafði náð Guðs ekki verið frá gömlu myrku dögunum í þessu sama herbergi, þegar hann lifði fyrir það eitt að reykja ópíum. En þetta hafði allt liðið svo hratt. Svolitlu hafði verið áorkað, nokkrar lífslexíur lærðar og nokkur tækifæri nýtt til að vaxa í þekkingu á Honum og líkjast Honum, til að eiga hlutdeild í „krafti upprisu hans og samfélagi písla hans með því að mótast eftir honum í dauða hans“ – en æ, hve margt var enn óunnið. Nokkrar sálir höfðu frelsast og þúsundum ópíumreykingamanna verið bjargað. En það var aðeins byrjunin og enn stærri tækifæri virtust vera í nánd. Og það voru þau. En ekki hér; ekki á þann hátt.
Útslitinn: já, en í þjónustu Drottins sem hann elskaði. Brotinn: en við fætur Hans. Öllum kraftinum og ljúfleikanum úthellt þar. Ó, hann var ríkur og blessaður. Þeir sem stóðu í kringum hann sneru sér kannski undan og grétu; en ef englar geta girnst sælu mannshjartans, hljóta þeir vissulega að hafa öfundað þennan mann sem lá fyrir dauðanum, því að þeir vissu hvaða móttökur og fögnuður biðu rétt handan við skuggana. Áður en Hsi hirðir varð of máttfarinn til að geta lagt það á sig, gaf hann fyrirmæli um að nokkur fjarlægari athvarfanna skyldu lokuð um tíma. Hann vissi að erfiðir tímar hlytu að fara í hönd eftir brottför hans og reyndi að búa menn undir það eins og kostur var. Hann spurðist fyrir um mál sem ollu áhyggjum og sýndi starfinu sama djúpa áhugann og sömu fullvissuna um að Drottinn myndi annast það og halda því áfram, svo lengi sem það væri Honum til dýrðar. En örmögnunin var afar mikil og hann hafði ekki þrek til mikilla tilfinninga. Að lokum gat hann ekki lengur kropið til bænar og jafnvel málið brást honum. Hann þjáðist hvorki af sjúkdómi né kvölum; lífið fjaraði einfaldlega út smám saman áður en lífskraftinn þraut.
„Drottinn er að taka frá mér þróttinn,“ sagði hann. „Það hlýtur að vera vegna þess að verki mínu er lokið.“
Hann lá rúmfastur í rétta sex mánuði og var undir það síðasta stundum í hálfgerðu móki. Húsið var fullt af fólki, en allt var mjög hljótt og mikið var beðið. Undir lok janúar fór hann að finna til hálsbólgu eftir kvef, og olli hún miklum öndunarerfiðleikum. Þá varð þeim sem umhverfis hann voru ljóst að endalokin nálguðust. Þótt þau hefðu lengi búist við því var áfallið skelfilegt, því að hundruðum manna var hann ósegjanlega kær. Sterkir karlmenn gátu ekki hamið sorg sína og grétu með ekka eins og börn. En frú Hsi fékk styrk til að segja í gegnum tárin:
„Ég hugsa til Jesú, og Hann er nóg.“
Og þannig var hann fluttur yfir til æðri þjónustu að morgni 19. febrúar 1896.
Það er ekki hægt að hugsa sér hann látinn: heldur óendanlega miklu fremur lifandi í því landi þar sem þjónar Hans þjóna Honum og sjá auglit Hans. Hér niðri í myrkrinu gaf hann allt. Ekkert var of dýrmætt, ef nota mátti það fyrir Jesú; ekkert erfiði of strangt, ef það gat frelsað sál sem Hann dó fyrir. Enginn kross virtist of þungur, ef hann var borinn fyrir Meistarann; enginn vegur of örðugur, sem blessaðir fætur Hans höfðu troðið.
„Sá sem þjónar mér, fylgi mér eftir, og hvar sem ég er, þar mun og þjónn minn vera. Þann sem þjónar mér, mun faðirinn heiðra.“
Og þannig hverfur hann sjónum okkar inn í hið fyllra líf í fullkominni einingu við Drottin – um alla eilífð, æ lengra, í óendanlegum fögnuði sem vex án afláts, þar sem hann uppfyllir dýrðlegan tilgang Hans og á hlutdeild í sigri og kærleika Hans, en á aukningu ríkis Hans „verður enginn endir“.
Kæri lesandi, enn er margt ósagt sem segja mætti. Við gætum sagt frá því hvernig menn þjöppuðu sér saman af hugrekki eftir að hann var allur, og hvernig þeir mitt í sárasta söknuðinum lögðu jarðneskar leifar hins ástkæra leiðtoga síns með þakklæti til hinstu hvíldar í kyrrlátri hlíðinni með útsýni yfir sléttuna og ána í fjarska, og sneru sér svo á ný að verkinu sem hann hafði skilið eftir handa þeim, í þeirri vissu að Guð væri enn með þeim. Við gætum sagt frá því hvernig Si öldungur var valinn til að fylla hið auða skarð eftir föngum og hvernig frú Hsi helgaði sig á ný umönnun kvennaathvarfanna. Við gætum sagt frá því hvernig Hoste varð að yfirgefa héraðið og fara í langþráð leyfi, og hvernig aðrir tóku við af honum og vöktu í sama anda yfir frekari vexti safnaðarins í Hung-tung. Síðan mætti segja frá hinum hræðilegu ofsóknum og mörgu píslarvættum ársins 1900, þegar Shan-si var skírt í blóði á myrkum dögum Boxarauppreisnarinnar; frá dauða Si öldungs, sem særðist af völdum uppreisnarmanna, og fórnfýsi samverkamanna hans sem lögðu eigið líf í hættu til að gera flestum þeim kristniboðum sem komust lífs af kleift að flýja út að ströndinni. Og við gætum dvalið við bjartari myndina: endurkomu þessara elskuðu verkamanna eftir ólýsanlegar þjáningar til að verja því sem eftir er ævinnar í að safna inn uppskerunni sem fyrirheitið er af sáðkorni í jörð; fögnuðinn sem kristnir menn í Shan-si tóku á móti þeim með á ný; og núverandi stöðu kirkjunnar, sem tekst hugrökk á við marga erfiðleika, og starfs athvarfanna, sem nú er undir handleiðslu Hsü öldungs. En allt er það önnur saga, og pílagrímsferð okkar saman er á enda.
Eitt síðasta atriði er enn ótalið varðandi það líf sem við höfum fylgt allt til loka, eða öllu heldur til fullkomnunar þess; ein hugsun sem ég vildi gjarnan leggja þér á hjarta.
Snemma sumars 1896, aðeins þremur mánuðum eftir að Hsi hirðir var kallaður heim, var séra David Hill hjá Wesleyan Mission í Hankow einnig tekinn heim til Drottins. Hvílíkir endurfundir fyrir þessa vini sem höfðu verið aðskildir svo lengi. Sautján árum áður hafði kristniboðinn unnið þennan heiðna Kínverja fyrir Jesú, og óraði hann þá lítt fyrir því hve marga hann ætti síðan eftir að vinna. Með hvílíkri gleði og lofgjörð til Guðs hljóta þeir að hafa farið yfir alla söguna og rakið hönd Hans í blessun sem breiddist æ víðar út.
En var það David Hill sem vann Hsi fyrir Krist? Eða var hann einn um það? Löngu eftir að báðir voru horfnir héðan barst höfundi þessarar bókar þetta bréf, sem einn samverkamanna hans í Hankow ritaði:
Má ég segja þér frá óbirtu atviki sem Hill sagði mér sjálfur frá.
Hill átti kæra vinkonu á Englandi sem var þekkt fyrir máttugan bænakraft sinn. Þegar hún lést fannst óklárað bréf á skrifborðinu hennar sem ætlað var Hill, og sendi fjölskylda hennar honum það. Í bréfinu sagði þessi kona Hill frá því að hún hefði nýverið fundið sterka köllun til að biðja fyrir honum og hefði sérstaklega verið leidd til að sárbæna um að honum yrði veitt einstök blessun í starfi sínu á þeim tíma. Hún fann skýrt að hún hafði verið bænheyrð, þótt hún vissi ekki í hvaða mynd blessunin myndi birtast. Dagsetning þessa bréfs reyndist falla svo nákvæmlega saman við sinnaskipti Hsi hirðis að Hill efaðist aldrei um að það væri hin einstaka blessun sem gefin var sem svar við bænum vinkonu hans.
Kæri lesandi, vilt þú biðja – biðja fyrir Kína og fyrir öllum heiðnum löndum eins og þú hefur aldrei beðið áður? Hlustaðu: „Svo segir Drottinn, Hinn heilagi í Ísrael og sá er hann hefir myndað: Spyrjið mig um hið ókomna og felið mér að annast sonu mína og verk handa minna!“
„Ef þér eruð í mér og orð mín eru í yður, þá biðjið um hvað sem þér viljið, og yður mun veitast það.“
Er líf þitt í svo nánu sambandi við Guð að þú getir í raun og veru beðið? Notar þú þennan volduga kraft? Frelsast sálir á myrkum stöðum sem svar við ákalli þínu? Djúpstæðasta þörf kristniboðsstarfsins í Kína í dag er bæn; meiri bæn í krafti andans; kröftug og innileg bæn fyrir öllum kristniboðum og innfæddum kristnum mönnum, að þeir megi komast í kynni við karla og konur alls staðar sem hinn sami heilagi andi hefur búið undir að taka við sannleikanum, og að líf þeirra, líkt og líf Davids Hill, megi vinna sálir fyrir frelsarann.
Hann fór, og vinkona hans bað. Beggja var þörf. Getur þú farið? Ef ekki, vinndu þá samt sálir í Kína með bæn heima fyrir og með því að hjálpa til við að senda aðra. En ef þú getur það – „Ó, DROTTINN, HÉR ER ÉG, SEND ÞÚ MIG!“