Fara í efni
Vitnisburðir

Trúin.
Lífið.
Sagan þín.

Það sem Guð hefur gert í lífi einnar manneskju getur orðið annarri til vonar.

Sagan þín

Lífið eins og það er.

Segðu frá eigin reynslu. Slepptu persónuupplýsingum annarra nema þau hafi samþykkt birtinguna.

Aðeins til samskipta um söguna. Birtist ekki á vefnum.

Lesa sögurnar
Frá samferðafólki

Sögur sem gefa von.

6 birtar frásagnir

01 · Vitnisburður

Ungur maður sem hringdi til Omega

„Konan mín er með lungnakrabbamein, sem einnig er komið upp í höfuð og veldur miklum sársauka.“ Mannlega séð er framtíðin ekki björt, en hjá honum var trú fyrir því að Guð megnaði allt. Hann sagði: „Omega er eina sjónvarpsstöðin sem er í gangi á okkar heimili.“

02 · Vitnisburður

Áhorfandi

Mig langar til að þakka ykkur fyrir stórkostlega trú ykkar! Mitt líf og þúsunda annarra hefur tekið miklum breytingum. Að hafa fagnaðarerindið 24 tíma á sólarhring hefur verið þvílík blessun! Áður leið mér ekki vel yfir sjónvarpinu, þar til ég fann Omega. Þá breytti Guð sjónvarpinu í hina mestu blessun fyrir mig.

03 · Vitnisburður

Áhorfandi

Ég þakka ykkur fyrir að vera trúföst við Guð og hina kristnu með því að koma upp þessari rás, og ég treysti því að þið fáið fleiri stórkostlega predikara. Samfélag mitt við Drottin Jesú Krist hefur orðið sterkara og sterkara eftir að ég fann rásina ykkar.

04 · Vitnisburður

Bænasvar

Kona fékk alvarlega bakteríusýkingu eftir mjaðmaaðgerð. Hún var lengi í sóttkví og þurfti að taka inn sterk sýklalyf. Þetta tók mikið á hana og hún varð mjög þunglynd. Það var oft beðið fyrir henni í gegnum sjónvarpsstöðina og nú hefur hún náð heilsu og er komin aftur heim. Hún er Drottni mjög þakklát.

05 · Vitnisburður

Bænasvar

Kona hringdi inn alvarlegt bænarefni fyrir vinkonu sína sem hafði fengið stíflu í vélinda og orðið mjög veik. Læknar voru ráðþrota og hún gat ekkert borðað. Konan bað um bænaklút og fyrirbænir frá sjónvarpsstöðinni. Í beinni útsendingu sagði svo maður: „Vélinda læknast.“ Alvarlega veika vinkonan fékk lækningu.

06 · Vitnisburður

Bænasvar

Faðir hringdi inn bænarefni fyrir son sinn sem var með mikla verki í hálsliðum og slæmt psoriasis á fótum. Sonurinn læknaðist fullkomlega eftir fyrirbæn. Þökk sé Jesú.

Áður en þú deilir

Gott að vita.

Birtist sagan strax?

Nei. Hún fer fyrst til Omega til yfirferðar.

Hver sér netfangið mitt?

Netfang er valfrjálst og ætlað til samskipta um söguna. Það birtist ekki með henni.

Get ég skrifað um annað fólk?

Segðu frá eigin reynslu. Slepptu persónuupplýsingum annarra nema þau hafi samþykkt birtinguna.

Viltu frekar biðja um fyrirbæn? →