Fréttabréf

Bréf frá Eiríki.

Hugleiðingar, fréttir og hvatning frá stofnanda Omega.

Vertu með í hópnum

Skráðu þig á póstlistann og fáðu fréttir af starfinu og hvatningarorð frá Eiríki.

Bréf frá Eiríki — júní 2026

Kæri vinur,

Bestu kveðjur frá Sjónvarpsstöðinni Omega.

Bókin „90 mínútur á himnum“ hefur fengið frábærar viðtökur á heimsvísu. Þetta er einstök, uppbyggileg og trúarstyrkjandi frásögn manns sem fór til himna og sneri aftur. Sagan er afar uppörvandi og fyllilega í takti við Guðs orð.

Við bíðum spennt eftir að geta sent þér bókina, en til þess þurfum við að biðja þig um að senda okkur tölvupóst á omega@omega.is með heimilisfanginu þínu. Ef þér reynist erfitt að senda tölvupóst geturðu hringt í okkur í síma 800 9700 og skilið eftir nafn og heimilisfang á símsvaranum. Tölvupóstur er þó æskilegri ef þú átt þess kost.

Þegar við lesum 11. kafla Hebreabréfsins, sem fjallar um trúna, er minnt á hversu dýrmætt það er að treysta á Guð og hversu mjög það byggir okkur upp. Þar er talað um að forfeður Ísraelsmanna — Abraham, Ísak og Jakob — hafi leitað að borg sem ekki var gerð af mannahöndum, heldur sköpuð af Guði. Ritningarstaðurinn orðar þetta vel:

„En nú þráðu þeir betri ættjörð og himneska. Þess vegna blygðast Guð sín ekki fyrir að kallast Guð þeirra því að borg bjó hann þeim.“ (Hebreabréfið 11:16)

Þeirra tími var ekki kominn, en í dag erum við svo þakklát fyrir loforð Jesú um að hann fari á undan til að búa okkur stað, svo við megum vera þar með honum — öll okkar sem höfum tekið á móti honum og treystum honum. Jesús sagði: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið.“ Jesús er vegurinn sem mun hjálpa okkur og leiða alla ævi.

Þegar við höfum fengið slík fyrirheit og loforð, og vitum hvert við stefnum, er fátt mikilvægara en að Guð gefi okkur áframhaldandi góða heilsu og tækifæri til að miðla orði hans. Þannig getum við unnið fólk til trúar á Drottin og átt dýrmætt samfélag hvert við annað það sem eftir er. Okkar bæn er að við fáum að ávaxta það sem Guð hefur gefið okkur, honum til dýrðar. Stundum finnst okkur ef til vill að við höfum áorkað litlu, en með einlægu trausti á Guð vitum við að hann er máttugur að margfalda það og blessa sem við höfum lagt fram.

Við erum ákaflega þakklát fyrir þinn ómetanlega stuðning við þetta mikilvæga útbreiðslustarf. Þitt framlag og þinn stuðningur er þess valdandi að margir eignast lifandi von á Jesú og aðrir hafa hlotið mikla blessun og uppörvun á göngu sinni.

Megi Guð blessa þig ríkulega og launa þér margfalt fyrir þitt framlag.

„Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auðug að voninni í krafti heilags anda.“ (Rómverjabréfið 15:13)

Vinarkveðja,

Eiríkur Sigurbjörnsson

Omega Stöðin