31. kafli
Ný sókn
Með aukinni ábyrgð fann Hsi æ meiri þörf fyrir bænina. Hann hafði verið bænamaður allt frá upphafi. En nú fannst honum hin venjulega bænastund kvölds og morgna og hinar daglegu samkomur til guðsþjónustu ekki lengur duga. Hann þurfti lengri og kyrrlátari stundir til að bíða frammi fyrir Guði, svo að vilji Hans yrði honum ljós og hann fengi að meðtaka fyllingu Hans. Í stað þess að láta starfið reka sig áfram og gleypa allan tíma sinn og hugsanir lagði hann því allt annað til hliðar af ásettu ráði og var í bæn tímunum saman, og stundum heilu dagana eða næturnar, oft með föstu. Einmitt á slíkum stundum fékk hann jafnan nýjar hugmyndir og áætlanir fyrir starfið, nýja sýn á trúfesti Guðs og jafnframt dýpri vitund um eigin vanmátt.
Við eitt slíkt tækifæri snemma árs 1884 kom það honum á óvart að finna hve þungt borgin Chao-ch'eng hvíldi á hjarta hans. Því meira sem hann bað, því meiri angist greip hann vegna íbúa hennar, sem lifðu og dóu án þess að þekkja veg hjálpræðisins.
En hvað gat hann gert til að mæta þörf þeirra? Hingað til hafði hann enga tilraun gert til að hefja starf inni í borg. Starfssvið hans virtist fremur vera meðal sveitafólksins og sérhvert athvarf hans hafði verið stofnað úti í sveitum. Það var allt annað mál að ryðja sér til rúms í stjórnarsetrum héraðsins, meðal fólks með borgarsiði og borgarviðhorf og mun meiri fordóma gegn kristinni trú.
Auk þess, hvað þýddi að hugsa um að færa út kvíarnar nokkurs staðar einmitt þá? Hann hafði enga fjármuni handbæra, ekki einu sinni fyrir ferðakostnaði, og hvað þá til að opna nýtt athvarf. Hugmyndin var vissulega óframkvæmanleg. Hún gat ekki verið frá Guði komin. Og þó, því meira sem hann bað, þeim mun þyngra hvíldi borgin á hjarta hans.
Til einskis sagði hann Drottni að hann gæti ekkert gert, hann ætti enga peninga og þetta væri ómögulegt. Chao-ch'eng, með sína mikilvægu legu, sín miklu tækifæri og sína alræmdu, spilltu íbúa sem voru sólgnir í ópíum – sálir sem enginn skeytti um – virtist rétta út biðjandi hendur í myrkrinu. Og Meistarinn, sem vissi allt, beið – beið fullur eftirvæntingar eftir svari hans. „Allt vald er mér gefið,“ virtist Hann segja, „og ég er með þér alla daga.“
Undarlegt var hvernig erfiðleikarnir hurfu einn af öðrum og allar hinar viturlegu mótbárur hans virtust bráðna burt. Peningar? Voru það peningar sem myndu opna hjörtu fólksins og vinna sálir? Ef Drottinn vildi láta vinna þetta verk, gat Hann þá ekki séð fyrir öllu sem til þurfti? Borg, og svo langt í burtu? Já, en múrar Jeríkóborgar hrundu án þess að mannshendur kæmu þar nærri. Og var hún annars svo langt í burtu þegar öllu var á botninn hvolft? Þegar hann fór að hugsa málið sá hann að þótt staðurinn væri í tveggja daga ferðafjarlægð frá þorpi hans var alls ekki erfitt að komast þangað. Borgin lá nefnilega við þjóðveginn til höfuðborgarinnar og svo undarlega vildi til að hvert athvarf sem þegar hafði verið opnað myndaði ásamt hinum samfellda keðju frá Fan-ts'uen allt þar til fimm mílur voru eftir að suðurmúr hennar. Hvers hönd hafði skipulagt það þannig og búið til þessa stiklusteina alla leiðina?
En það þurfti að huga að ýmsum hagnýtum atriðum: Hver myndi til dæmis taka verkið að sér? Hsi gat ekki farið sjálfur. Og ef einhverjir af aðstoðarmönnum hans væru hæfir og fúsir til fararinnar, hvernig gat hann þá sent þá af stað án peninga, jafnvel fyrir sjálfri ferðinni?
„Hvað hefur þú í hendi þér?“ virtist spurningin vera.
„Ja, Drottinn, ekkert nema dálítið af lyfjum! Aðeins þessar pillur gegn ópíumfíkn.“
„Nú, nægir það ekki, með blessun minni?“
Og þegar hann hugsaði sig betur um sá hann að ef til vill nægði það. Ef þeir menn fyndust sem vildu fara í trú og taka með sér þær pillur sem hann gæti látið þá fá, ganga einfaldlega frá einu athvarfi til annars þar til þeir kæmu í þorpið nærri borginni og bíða þess þar að Drottinn leiddi þá inn í hana – hvers vegna skyldi ekki vera hægt að gera það?
Þegar Hsi var loks sannfærður um að þetta væri gerlegt kallaði hann heimilisfólk sitt saman til bænar og sagði því hvernig hann hefði verið leiddur. Hann tók skýrt fram að verkið yrði erfitt, því að fólkið væri óeirðasamt og hefði sterka fordóma gegn því sem það taldi útlenda trú; eins tók hann fram að hann hefði ekkert fram að færa til að koma nýja athvarfinu á fót nema fyrstu birgðirnar, þrjú þúsund pillur, og loforð um trúfasta samstöðu í bæn. En hann trúði því að þetta væri frá Guði komið og að Hann myndi sjá fyrir öllu sem til þyrfti og gera starfið að blessun. Var það nokkur furða þótt fleiri í þessum litla hópi tryðu því líka?
Eftir þetta tók ekki langan tíma að taka ákvörðun um þetta nýja framtak, og daginn eftir eða svo höfðu bræðurnir Si og Cheng lokið sínum einfalda undirbúningi og lögðu upp í ferðina. Þeir báru bækur sínar og sængurföt, lyfin og lítilsháttar vistir og gengu þrjátíu mílur í norðurátt til þorps Fans, og í athvarfinu þar var þeim tekið opnum örmum og þeir sögðu ferðasögu sína.
„Hvað segið þið!“ hrópuðu áheyrendur þeirra furðu lostnir. „Þið hafið ekkert húsnæði í borginni og enga peninga fyrir húsaleigu. Ekkert stofnfé til að byrja með. Ekkert nema þrjú þúsund pillur. Hvað getið þið gert í Chao-ch'eng annað en að koma ykkur í vandræði?“
En þegar málsatvikin höfðu verið skýrð út horfði þetta allt öðruvísi við. Fan og hinir sýndu þeim fullan skilning og lofuðu að muna eftir bræðrunum í bænum sínum. Þeir létu þá einnig fá vistir fyrir næsta áfanga ferðarinnar og sendu þá áfram til So-pu. Uppörvaðir af þessu héldu Si og Cheng áfram og gistu eina eða tvær nætur í Pan-ta-li og öðrum athvörfum á leiðinni, allt þar til þeir sáu til borgarinnar. Handan við síðasta athvarfið, í þorpi einu nærri suðurúthverfinu, bjó leitandi nokkur sem þeim hafði verið bent á, og þeir gátu ekkert annað gert en að finna heimili hans og segja honum erindi sitt. Honum virtist þetta vonlaust fyrirtæki. Hann bauð þeim þó að dvelja hjá sér í nokkra daga, en gætti þess vandlega að gefa þeim engar vonir.
„Fólkið í borginni er hrjúft og fáfrótt,“ útskýrði hann. „Það er án efa þörf á athvarfi. En þegar fréttist að þið tengist hinni útlendu trú kynni fólk í fávisku sinni að setja sig upp á móti því að þið setjist að meðal þess.“
Þetta virtist meira en líklegt og bræðurnir ákváðu að verja einum eða tveimur dögum í bæn áður en þeir reyndu að afla sér vina inni í borginni. En á meðan var Drottinn að verki fyrir þá. Fréttir berast hratt, og á götum og í tehúsum Chao-ch'eng var fólk þegar farið að tala um komu þeirra. Án þess að þeir vissu hafði orðstírinn af hverju athvarfi Hsi borist til borgarinnar, og þrátt fyrir fordómana voru ekki svo fáir af þeim íbúum hennar sem reyktu ópíum reiðubúnir að fagna svo vænlegri von um frelsun.
Þannig fengu Si og Cheng óvænta heimsókn. Meðan þeir voru enn á bæn kallaði gestgjafi þeirra þá út að dyrum, en þar biðu tveir herramenn sem óskuðu eftir þeim forréttindum að fá að ræða við þá. Þessir gestir virtust ákafir og vinsamlegir. Þeir voru greinilega borgarbúar og höfðu komið með peninga, því að nokkur þúsund koparpeningar lágu í kippum við fætur þeirra.
Eftir að þeir höfðu skipst á veglegum kveðjum gaf Si í skyn að þeir væru gagnteknir af þeim heiðri sem þeim væri sýndur.
„Við höfum frétt það okkur til mikillar ánægju,“ svöruðu ókunnugu mennirnir, „að þið, virtu herrar, séuð komnir á meðal okkar í góðgerðarskyni og séuð í þann mund að opna dyggðuga stofnun til að lækna fórnarlömb hins útlenda reyks.“
Af viðeigandi hógværð svaraði Si því til að þeir þráðu að mega verða að liði, ef hinir virtu borgarbúar vildu veita þeim búsetu innan borgarmúranna.
„Hvað það varðar,“ hrópuðu gestirnir upp yfir sig, „skuluð þið ekki hafa neinar áhyggjur. Við, yngri bræður ykkar, óskum eftir að fá að leigja og búa húsnæði undir hið virðulega athvarf nú þegar og biðjum þess að okkur megi hlotnast sá heiður að njóta góðs af hinni víðfrægu lækningu ykkar.“
Nú voru dregnir fram peningar til að greiða fyrir lyfin fyrir fram, og svo virtist sem ókunnugu mennirnir væru reiðubúnir á staðnum til að annast allan nauðsynlegan undirbúning. Fjármagnið sem lagt var fram átti að endurgreiðast, eða greiða af því vexti, þegar athvarfið gæti staðið undir sér sjálft.
Fullir undrunar í hjarta fylgdust Si og Cheng með því hvernig hverri hindruninni af annarri var rutt úr vegi og bænum þeirra svarað langt fram yfir allt sem þeir höfðu beðið um eða hugsað sér. Ekki hefði getað farið betur, og brátt var þeim fylgt sem heiðursgestum um stræti borgarinnar, þar sem þeir hefðu svo auðveldlega getað orðið óvelkomnar boðflennur.
Í fyrstu virtist þetta vera eins og draumur, of dásamlegt til að geta verið satt, þegar þeir sáu húsið tekið á leigu, húsgögn borin inn og lampa, leirtau, eldhúsáhöld, hveiti, olíu, te og aðrar nauðsynjar útvegaðar í ríkum mæli. Þeir tóku til óspilltra málanna eins fljótt og auðið var, því að nýju vinir þeirra voru áfjáðir í að hefja meðferðina án þess að glata svo mikið sem einum degi. Í stuttu máli sagt gafst varla tími til að senda gleðifréttirnar heim til þeirra sem báðu fyrir þeim áður en athvarfið í Chao-ch'eng var orðið að veruleika.
Allt frá upphafi hvíldi blessun Guðs með sérstökum hætti yfir þessu starfi. Það óx fljótt og varð stærst allra þeirra athvarfa sem Hsi bar ábyrgð á. Lækning fyrstu vistmannanna tókst svo vel að tugir annarra fylgdu í kjölfarið, og innan sex mánaða höfðu hundrað sjúklingar hlotið farsæla meðferð. Margir þessara manna sneru baki við skurðgoðadýrkun og urðu einlægir kristnir menn. Líkt og á öðrum stöðum þurfti að koma á reglulegum sunnudagssamkomum, og að lokum var þar stofnaður söfnuður sem í dag telur yfir þrjú hundruð meðlimi.*
Þessi nýi áfangi hafði í för með sér tíma uppörvunar og blessunar á öllum sviðum. Þegar Hsi hafði meira svigrúm í fjármálum opnaði hann nokkur ný athvörf, og á hverjum stað frelsuðust sálir og litlir söfnuðir urðu til. Í Teng-ts'uen opnaði hann einnig athvarf í tengslum við lyfjabúð sína, og á eigin heimili gerði hann ráðstafanir til að taka bæði karla og konur til meðferðar. Þetta jók til muna annríkið á heimili hans, en hjálparmenn voru nú teknir að rísa upp allt í kringum hann, og eftir því sem tækifærunum fjölgaði lærðu þeir æ betur að sækja styrk í guðlegar lindir.
Við árslok 1884, rúmum fimm árum eftir sinnaskipti sín, stóð Hsi þannig þegar fyrir allumfangsmiklu starfi. Átta eða tíu athvörf höfðu verið sett á fót, allt frá Teng-ts'uen suður af heimili hans til borgarinnar Chao-ch'eng fjörutíu mílum norðar, og í þorpum og smábyggðum alla þá leið komu litlir hópar trúaðra reglulega saman til guðsþjónustu.
* September 1903.
En Hsi lét sér þetta ekki nægja. Þetta var aðeins byrjunin. Kærleikur Krists og neyð glataðra sálna á báða bóga knúði hann áfram, svo að hann var ákafari en nokkru sinni fyrr að sækja fram og bera Ljósið langt inn í myrkrið umhverfis.
Enn lengra norður af Chao-ch'eng, dagleið nær höfuðborginni, lá önnur mikilvæg borg sem hvíldi þungt á huga hans um þessar mundir. Hoh-chau stóð á fögrum stað, var fjölmenn og auðvelt að komast þangað, en var enn sem komið var nánast án fagnaðarerindisins. Kristniboðar höfðu komið þar við á ferðum sínum, en það sæði sem þannig var sáð virtist ekki hafa borið ávöxt. Mánuðum saman hafði Hsi óskað þess að opna athvarf í þessari borg, en hann hafði í nógu öðru að snúast og fjárhagur hans var þaninn til hins ýtrasta.
Samt bað hann fyrir Hoh-chau og bar neyð hennar ekki síður fyrir brjósti þótt hann gæti ekkert annað gert til hjálpar að sinni. Á hverjum morgni við heimilisguðsþjónustuna minntist hann borgarinnar og bað Guð sérstaklega um að senda þangað verkamenn.
Loks kom frú Hsi til hans, full hluttekningar, og sagði:
„Við höfum beðið lengi fyrir Hoh-chau. Er ekki kominn tími til að gera eitthvað? Hví ekki að senda menn og opna athvarf þar, eins og í Chao-ch'eng og á öðrum stöðum?“
„Það vildi ég glaður gera,“ svaraði eiginmaður hennar. „En slíkt starf er kostnaðarsamt og við höfum enga peninga handbæra.“
„Hve mikið þyrfti til?“ spurði litla frúin. „Þrjátíu þúsund koparpeninga? Það er sannarlega há upphæð.“ Og þar með fór hún leiðar sinnar.
En frú Hsi gat ekki gleymt neyðinni í Hoh-chau og allan daginn velti hún því fyrir sér hvort hún gæti ekki gert eitthvað til að koma fagnaðarerindinu til borgarinnar. En þrjátíu kippur af koparpeningum! Áður fyrr hefði hún ef til vill getað ráðið við það. En nú átti hún svo lítið eftir sem einhvers virði var. Og þó þráði hún svo innilega að þetta fólk fengi að heyra um Jesú.
Morguninn eftir bað Hsi aftur fyrir Hoh-chau. Hann bar neyð borgarinnar fram fyrir Drottin og bað þess að brátt yrði unnt að opna þar athvarf. Þegar hinni litlu guðsþjónustu var lokið fór frú Hsi ekki út úr herberginu eins og hún var vön, heldur gekk að borðinu, lagði lítinn böggul fyrir framan eiginmann sinn og sagði lágt:
„Ég held að Drottinn hafi kannski svarað bænum okkar.“
Hsi velti fyrir sér hvað hún gæti átt við og tók böggulinn upp. Hann var þungur og vafinn í mörg lög. Inni í marglitum vasaklút fann hann loks sér til undrunar fullkomið safn allra þeirra skartgripa sem kínverskri konu eru dýrmætastir – gull- og silfurhringana og armböndin, fallegu hárprjónana, eyrnalokkana og annað skart sem er brúðargjöf eiginmannsins til hennar.
Með tárvotum augum leit hann á eiginkonu sína og skildi nú hvers vegna útlit hennar hafði breyst. Allt skart sem sæmdi giftri konu í hennar stöðu var horfið. Engir hringir voru á fingrum hennar og engir silfurhárprjónar sáust undir dökkum fléttunum, heldur var hárið einfaldlega bundið með snæri og fest með bambusspöng.
„Þetta er allt í lagi,“ svaraði hún glöð þegar hann fór hálfpartinn að malda í móinn. „Ég get verið án þessa. Látum Hoh-chau fá fagnaðarerindið!“
Hsi tók við þessari dýrmætu gjöf og fyrir hana var opnað athvarf sem varð brátt miðstöð ljóss og blessunar í borginni. Fjöldi sjúklinga fékk þar farsæla meðferð og innan skamms komst á fast starf sem óx og varð að reglulegri kristniboðsstöð sem stendur enn þann dag í dag.
Þannig fjölgaði tækifærunum til að láta gott af sér leiða og Hsi var annasamari og bænræknari en nokkru sinni fyrr. Hvert athvarf í borgunum krafðist sérstakrar umsjónar, bæði andlega hlið starfsins og sú fjárhagslega. Sjálft álagið sem fylgdi aðstæðunum rak hann til að reiða sig í hvívetna á Guð, og erfiðleikarnir, sem voru margir, urðu aðeins til að styrkja trúna.
Samt má ekki ætla að hann hafi verið fullkominn eða laus við þá galla sem fylgdu góðum kostum hans. Þvert á móti var hann afar mannlegur í allri trú sinni og fórnfýsi. Þótt andi Guðs væri augljóslega að verki í hjarta hans hafði honum enn ekki gefist tími til að koma auga á alla sína bresti, hvað þá að sigrast á þeim. Og þessir brestir voru mjög áberandi, eins og jafnan vill verða hjá svo skapgerðarsterku fólki.
Í fyrsta lagi var Hsi fæddur leiðtogi og komst ekki hjá því að finna það sjálfur. Aðrir fundu það líka og voru reiðubúnir að fylgja honum hvert sem var, þótt honum hætti stundum til að vera of ráðríkur. Þessi veikleiki olli hins vegar talsverðum núningi sem hefði mátt komast hjá. En hann fann djúpt til þess hve mjög hann skorti meiri auðmýkt – hógværð og mildi Krists – og bað því innilega um hana.
Þá var hann einnig afar sjálfstæður. Það kom skýrt fram í afstöðu hans til peningamála. Hann þáði aldrei nokkur laun né leitaði eftir fjárhagsaðstoð, ekki einu sinni til kristniboðsfélagsins sem starf hans tengdist. En þetta kom líka fram á þann hátt að það hlaut að vekja áhyggjur. Hann átti ekki gott með að taka tilsögn, eins og við höfum þegar séð, og trú hans og eldmóður ráku hann áfram á hraða sem var stundum ógnvekjandi. Prédikun hans skorti jafnvægi og hófstillingu og reynsluna þurfti til að tempra ákafa hans. En á fyrstu árunum var ekki auðvelt að ráðleggja honum, og enn síður að hafa hemil á honum.
Raunar er það ekkert launungarmál að hér liggur eitt alvarlegasta vandamál kristniboðsstarfsins: hvernig megi þjálfa innlendan leiðtoga af visku, gefa honum nægt rými og þá ábyrgð sem ein getur laðað fram það besta í fari hans, en tempra jafnframt reynsluleysi hans og forða honum frá skaðlegum öfgum. Til þess þarf mikið og kærleiksríkt umburðarlyndi, og gott er að hafa í huga að þess er þörf á báða bóga. Það krefst alveg jafn mikillar náðar fyrir mann eins og Hsi að eiga gott samstarf við hinn erlenda kristniboða eins og fyrir kristniboðann að eiga gott samstarf við hann. Hætta er á að mönnum yfirsjáist þessi hlið málsins.
Í besta tilgangi var Hsi til dæmis um þetta leyti settur í erfiða stöðu sem krafðist meiri og sannari auðmýktar en mörg okkar hefðu búið yfir.
Eitt athvarf hans, þar sem nokkrir höfðu snúist til trúar, lá dálítið úr leið miðað við aðra starfsemi hans, í þorpi nær P'ing-yang-borg. Kristniboðinn í þeirri borg, sem jafnframt hafði umsjón með héraðinu, taldi að Hsi hefði í nógu að snúast þótt hann legði ekki lykkju á leið sína til að heimsækja þetta tiltekna þorp, og hann skipaði því annan mann, launaðan prédikara á sínum vegum, til að búa þar og annast hirðisþjónustu við starfið. Þegar þeir Hsi hittust næst skýrði hann honum frá þessari tilhögun og bætti við:
„Þú þarft ekki að hafa fyrir því lengur að fara þangað til að halda samkomur. Starfið heima hjá þér og í nágrenninu, auk athvarfanna, er alveg eins mikið og þú getur sinnt sem skyldi.“
Eflaust mátti færa ýmis rök fyrir slíkri tilhögun frá sjónarhóli kristniboðans. En í raun og veru er ekki auðvelt að létta umönnun eigin barna af föður eða móður, hversu hlaðin störfum sem þau annars eru – einkum þegar böndin á milli þeirra eru óvenju innileg og enginn kærir sig um breytinguna.
Hsi tók þetta mjög nærri sér en mótmælti því ekki. Hann viðurkenndi ávallt þá skyldu sína að lúta valdi hinna erlendu kristniboða í því sem heyrði undir réttmætt embætti þeirra. Hann reyndi því að fella sig við þessa tilhögun og styðja við bakið á vesalings prédikaranum, sem fannst staða sín síður en svo öfundsverð.
En þegar það rann upp fyrir þorpsbúum að þeir hefðu misst andlegan föður sinn varð opinber uppreisn, því að þeir sáu nú að hann myndi ekki koma framar til að leiða samkomurnar né vera til taks með þá kærleiksríku hluttekningu og hjálp í öllum þörfum þeirra sem þeir höfðu treyst á svo lengi. Hsi gerði sitt besta til að stilla til friðar og telja þá á að beygja sig undir þetta eins og hann hafði sjálfur gert. En fyrir þá var þetta of mikið. Þeir gátu ekki borið það. Þannig sat prédikarinn uppi með auða bekki og vonlaust verkefni, þótt góður maður væri. Enginn vildi sækja kapelluna, og þeir sem gátu gengu langar leiðir til næsta staðar þar sem þeir fengu að hitta og heyra manninn sem þeir elskuðu.
Meðan á þessu stóð var málið hið sárasta og Hsi átti erfitt með að sigla milli Skyllu og Karýbdis. En í þetta sinn leið ekki á löngu þar til prófrauninni létti. Eftir áralanga dygga þjónustu varð kristniboðinn að fara heim í leyfi og um tíma var ekki hægt að senda neinn í hans stað. Kristniboðshúsið í P'ing-yang stóð autt og hinir kristnu voru án hirðis. Song öldungur gerði sitt besta til að líta eftir málum í borginni og Hsi varð að taka að sér almenna yfirumsjón með starfinu, bæði þar og um allt héraðið. Prédikarinn var svo hygginn að leita sér annarra starfa og litli söfnuðurinn í þorpinu sneri aftur í sitt fyrra horf.
Undravert var hve mjög fólkið fylgdi Hsi og elskaði hann, jafnvel þegar það fann hvað mest fyrir göllum hans. Guð hafði gert hann að blessun fyrir það á besta mögulega hátt. Margir áttu honum líf og heilsu að launa, sem og allt það sem gerði lífið þess virði að lifa því. Og jafnvel þegar hann var hvað óþolinmóðastur eða einstrengingslegastur vissu þau að hann myndi fúslega fórna öllu sem hann átti fyrir velferð þeirra og að hann lagði daglega alla sál sína í þjónustuna við þau.
Stuttur kafli úr handriti hans, sem vísar til þessa tímabils, sýnir nokkuð af því sem bjó undir niðri.
„Þegar djöfullinn sá,“ skrifar hann, „að Guð notaði mig þessi þrjú eða fjögur ár með krafti heilags anda, reyndi hann að tæla mig út í dramb og sjálfsupphafningu. Hann fékk fáfróða menn til að ávarpa mig sem ‚hirði‘ og ég gat ekki stöðvað þá. Sumir gengu jafnvel svo langt að tala um mig á bak við mig sem ‚hinn lifandi Jesú‘. Ég vissi að allt var þetta aðeins vélráð djöfulsins til að fá mig til að eigna sjálfum mér dýrðina og yfirgefa kross Krists.
Þess vegna auðmýkti ég sjálfan mig enn frekar og kappkostaði að hafa í öllum hlutum hjarta þrælsins. Ég neytti allra krafta til að leiða menn til iðrunar og fá þá til að láta af syndinni, og gefa þannig djöflinum ekkert rúm. Ekki svo að skilja að ég megnaði þetta af sjálfum mér; það var allt saman einungis fyrir náð Guðs.“