Átjándi kafli
Sterkari en allur máttur óvinarins
Undursamleg var sú breyting sem hafði orðið á lífinu og lýsti nú allt upp með nýrri von og gleði hjá manninum sem gekk út úr litla herberginu sínu þetta haustkvöld, ný sköpun í Kristi Jesú. Í fyrstu undrun og fögnuði hjálpræðisins fann hann hjá sér sterka hvöt til að finna einhvern sem gæti skilið hann, einhvern sem hann gæti sagt frá því hvað Jesús hafði gert fyrir sál hans. Hve gerbreyttur var nú hugur hans til hinna óbreyttu manna sem hann hafði áður forðast að umgangast vegna þess að þeir voru ólæsir og kristnir. Nú er hann líka kristinn. Og ákafur leitar hann uppi gamla Song til að taka honum sem bróður í Drottni.
Með sínum alkunna krafti og festu var það nú heitasta ósk Hsi að játa Krist frammi fyrir mönnum með því að ganga opinberlega í litla hópinn af trúuðum sem kom saman daglega til tilbeiðslu og fræðslu. Honum fannst hann ekki verður þess að biðja sjálfur um þessi forréttindi. Hann fór því að öllu eftir réttum kínverskum sið og bað Song, sem var eldri í trúnni, að bera málið upp við Hill og fá leyfi hans.
Hann flýtti sér á móti sendiboðanum þegar hann sneri aftur, en varð fyrir miklum vonbrigðum þegar hann frétti að Hill teldi enn of snemmt að stíga svo afgerandi skref og ráðlegði honum að bíða litla stund.
„Bíða!“ hrópaði Hsi í forundran. „En til hvers koma kristniboðarnir? Er það ekki til að leiða menn til trúar á Jesú? Hvers vegna er mér þá vísað frá? Ég bið kennarann innilega að breyta ákvörðun sinni.“
„Hill óttast,“ svaraði gamli maðurinn, „að þú kunnir að sjá eftir því síðar ef þú stígur þetta skref svona skyndilega.“
„Segðu honum,“ sagði Hsi ákaft, „að ég tilbiðji Guð núna, ekki vegna neinna ytri áhrifa, heldur fyrir tilsögn heilags anda. Ég hef öðlast skilning sjálfur eftir að hafa lesið orð Hans. Ég veit að syndir mínar eru miklar og verðskulda refsingu helvítis. Ég veit líka að Jesús hefur fyrirgefið allar syndir mínar, að Hann mun frelsa mig frá þeim og veita mér að lifa með Honum á himnum að eilífu.“
Þótt Hill væri fullur þakklætis hikaði hann enn. Hann óttaðist að of mikið fljótræði gæti spillt fyrir því góða verki sem hann sá að var hafið.
„Kannski, Hsi,“ sagði hann vingjarnlega, „gætir þú tekið trú Jesú af miklum ákafa en snúið jafnfljótt við aftur. Væri ekki betra að við frestuðum þessu um nokkrar vikur?“
Þá svaraði hinn nýtrúaði maður með hryggð og ásökun: „Frá þessum degi og allt til dauða og handan hans mun ég aldrei, aldrei hörfa til baka.“
Djúp einlægni hans snerti Hill svo mikið að hann flýtti sér að hughreysta hann og sagði af innilegri hlýju:
„Komdu þá endilega með okkur. Við fögnum því að bjóða þig velkominn.“
Sterkari en allt 17 5
Sú fyrsta samverustund í Kristi gleymdist honum aldrei. Bænirnar, sálmarnir og fræðslan úr Orðinu virtist allt svala hinni nýju þörf sálar hans svo vel. Þótt Hsi væri ungur í trúnni fann hann og mat að verðleikum hlýjuna af kærleika Guðs sem streymdi um kristin hjörtu. Mörgum árum síðar minntist hann þessa og rifjaði það upp eins og það hefði gerst í gær: „Þegar við komum úr guðsþjónustunni var Hill ákaflega glaður. Ó, hvað hann reyndist mér góður! Ég elskaði hann eins og föður og hann elskaði mig eins og son.“
En það var ekki allt saman logn og sólskin. Fram undan voru átök og myrkur í dal auðmýkingarinnar og skugga dauðans, þar sem Apollýon sat fyrir honum, staðráðinn í að handsama flóttaþræl sinn á ný með öllum tiltækum ráðum.
Strax við sinnaskiptin sá þessi fræðimaður fyllilega ljóst að hann yrði þegar í stað að segja skilið við ópíumfíkn sína. Hann virðist ekkert hafa tvínónað við það. Allt frá því að hann kom fyrst inn á heimili kristniboðans hafði hann haft slæma samvisku út af þessu. Vingjarnleg en döpur orð Hills vildu ekki víkja úr huga hans og áminning þeirra var brennd í sál hans.
„Hsi,“ hafði hann sagt, „þú ert virtur maður af lærðri ætt. Mér þykir ákaflega sárt að sjá hvernig ópíumið hefur dregið úr þér allan mátt. Ef þú hreinsar þig ekki af þessu, hvernig getur þú þá verið öðrum til fyrirmyndar?“
En á þeim tíma þekkti hann engan þann mátt sem gæti gert honum kleift að hreinsa sig af þessum smánarlega lesti. Nú var allt breytt. Hann tilheyrði Kristi og enginn vafi gat leikið á því hver vilji hins nýja meistara hans var. Að taka þessa skýru ákvörðun þegar í stað var alveg í samræmi við skapgerð mannsins. Auðvitað vissi hann mætavel hvað það hafði í för með sér að hætta ópíumreykingum. En hann veigraði sér ekki við því og reyndi ekkert hálfkák. Hann sá að hann varð að fórna þessu þegar í stað, algerlega og í eitt skipti fyrir öll.
Þá hófst hin hræðilega barátta. Líkast var því að hinn mikli óvinur sálnanna sæi fanga sinn vera að sleppa og gripi því til ópíumfíknarinnar sem órjúfanlegra hlekkja til að binda hann með. Hsi gerði sér varla grein fyrir því sjálfur hve örlagarík þessi glíma var og hve mikið var í húfi. Allur framtíðarkraftur hans og gagnsemi valt á því hvernig færi. Eins og englarnir dvöldu nærri frelsaranum þegar Hans var freistað í eyðimörkinni, megum við þá ekki trúa því að árvökul umhyggja Guðs hafi umvafið þennan unga trúmann þegar hann hélt út í þessa skelfilegu baráttu við holdið og djöfulinn?
Hill vissi að kennarinn hans var hættur að reykja ópíum og þjáðist mikið fyrir vikið. Hann útbjó því þegar í stað venjuleg lyf til að lina kvalir hans. Hsi tók þau fúslega og var þakklátur fyrir alla hjálp, en ekkert virtist stoða hann. Ópíumfíkn hans hafði staðið lengi og allur líkami hans var gegnsýrður af eitrinu. Öll ráð reyndust gagnslaus til að draga úr kvölum hans og engin orð fá lýst því sem hann þoldi næstu daga.
Eftir því sem klukkustundirnar liðu varð fíkn hans í eitrið sárari en nokkurt hungur eða þorsti. Ákafar kvalir virtust ætla að rífa líkamann í sundur og þeim fylgdi máttleysi og örmögnun sem ekkert gat linað. Vökvi streymdi úr augum og nösum. Djúp vanlíðan og þunglyndi lagðist yfir hann. Svimi sótti á hann, ásamt skjálfta og verkjum í öllum líkamanum eða brennheitum þorsta. Í sjö daga og sjö nætur bragðaði hann varla mat og gat alls ekki sofið. Hvort sem hann sat eða lá fann hann enga hvíld. Kvalirnar urðu nánast óbærilegar, og allan tímann vissi hann að nokkrir drættir úr ópíumpípunni myndu samstundis bera hann inn í ljúfa drauma.
Hinn þjáði maður hélt þó út, staðráðinn í því í krafti Guðs að snúa aldrei aftur til fíknarinnar. Hill og aðrir gerðu allt sem þeir gátu til að hjálpa honum. Honum voru gefin lyf í stærri skömmtum og bæði innlend og erlend meðul voru reynd, en allt kom fyrir ekki. Stöðugt var beðið fyrir honum og Hsi varpaði sér sjálfur á Drottin eins og hann hafði þrek til.
Þegar neyð hans stóð sem hæst var eins og honum væri loks opinberað að kvalirnar sem hann leið stöfuðu ekki aðeins af líkamlegum orsökum, heldur að á bak við þetta allt leyndist andstaða voldugs andlegs afls; í raun og veru sótti djöfullinn hart að honum og notaði ópíumfíknina sem vopn til að tortíma honum. Í þjáningum sínum varð Hsi æ betur meðvitaður um nærveru og mátt Satans, og baráttan stóð þá milli sálarinnar, sem Kristur styrkti, og illsku og valds hins vonda sem reyndi að buga hana. Hve algerlega varpaði þessi hjálparvana maður sér þá á Guð. Hann neitaði að láta draga sig eitt einasta fet frá sínu eina athvarfi og háði baráttuna í sjálfri nærveru síns nýfundna frelsara. Hann bað og hélt sér fast í Krist og neyddi sinn hræðilega andstæðing til að koma, eins og hann segir sjálfur, „fram fyrir auglit Drottins daglega“, og þar hrópaði hann hvað eftir annað: „Djöfull, hvað getur þú gert mér? Líf mitt er í hendi Guðs. Og sannarlega er ég fús til að hætta ópíumneyslu og deyja, en ekki fús til að halda áfram í syndinni og lifa!“
Þegar kvalirnar voru sem mestar stundi hann oft upp: „Þótt ég deyi snerti ég þetta aldrei framar!“
Eftir margra daga kvalir vöktu loks nokkur vers í opinni Biblíunni athygli hans, en þau fjölluðu um „huggarann“, og þegar hann las varð honum ljóst að Hann, heilagur andi Guðs, var sá voldugi kraftur sem var sérstaklega gefinn til að styrkja mennina. Þarna á staðnum, í algerum vanmætti sínum, varpaði hann sér á Guð og hrópaði á gjöf heilags anda. Hann skildi ekki margt, en hann hafði gripið þann meginsannleika að heilagur andi gæti hjálpað honum, gert hið ógerlega mögulegt og sigrað allan mátt óvinarins.
Og þarna, þar sem hann bað í kyrrðinni, barst hið undursamlega svar. Skyndilega var eins og straumur lífs og kraftar flæddi inn í sál hans. Veruleikinn var svo áþreifanlegur að svitinn spratt fram á honum frá hvirfli til ilja. Kvalirnar og átökin hurfu og baráttunni var algerlega lokið. Heilagur andi kom og fyllti hjarta hans friði.
„Hann gerði það sem menn og lyf gátu ekki gert,“ skrifar þessi frelsaða sál. „Frá þeirri stundu fékk líkami minn fullkomna hvíld. Og þá vissi ég að það væri í raun ógerlegt að losna við ópíumið án sannrar trúar á Jesú.“
Á síðari árum fannst Hsi alltaf sem sérstakur tilgangur hefði búið að baki þeim þjáningum sem hann þoldi á þessum tíma og því hvernig frelsun hans bar að. Hann sagði oft: „Ég sé það núna hvers vegna mér var leyft að ganga í gegnum svo harða eldraun. Það var til þess að ég fengi til hlítar skilið hið sanna eðli baráttunnar og hinn eina mátt sem getur frelsað.“
Í öllum samskiptum hans við ópíumsjúklinga upp frá því var þessi sannfæring honum að leiðarljósi og mótaði þær aðferðir sem hann beitti til að lækna þá. Hann hafði aldrei hina minnstu trú á lyfjum einum saman, þótt hann notaði alltaf lyf og kynni að meta gildi þeirra. Það sem hann sá svo skýrt var að taka yrði á sjálfri rót vandans með því að sigrast fyrst á hinum andlega vanda ef takast ætti að vinna bug á hinum líkamlega ávana fyrir fullt og allt.
„Sannarlega,“ var hann vanur að segja, „er aðeins hægt að mæta andstöðu illra anda með krafti heilags anda. Sá sem treystir á lyf mun fyrr eða síðar örugglega falla í sama farið aftur, vegna þess að djöfullinn hefur ekki verið rekinn út. Ef þú vilt losna við ópíumið, stólaðu þá ekki á læknishjálp, reiddu þig ekki á menn, heldur treystu einungis á Guð.“