Sextándi kafli
Netið dregið inn
Stóra prófinu var lokið og þúsundir fræðimanna, bæði þeir sem höfðu staðist það og hinir sem höfðu fallið, voru á heimleið vítt og breitt um Shan-si-hérað. Á leiðinni tóku nýbökuðu meistararnir við virðulegum hamingjuóskum, sem voru ljúfur fyrirboði um fögnuðinn sem beið þeirra í heimahögunum, þar sem þeir yrðu brátt hetjur dagsins.
Meðal litlu hópanna sem héldu suður á bóginn voru nokkrir á leið yfir hæðirnar til nágrennis P'ing-yang og fluttu tíðindi af öllu því sem hafði gerst í höfuðborginni, hverjir hefðu náð prófi og hverjir fallið, og þó einkum af því fáheyrða tiltæki útlendinganna að bjóða lærðum mönnum að keppa um vegleg peningaverðlaun. Menn veltu því ákaft fyrir sér hvað kristniboðunum gæti eiginlega gengið til. Verðlaunaféð sem lofað var nam tugum taela.* Hvað gátu þeir vænst þess að fá í staðinn? Hér hlaut að búa eitthvað illt undir, einhver gildra lögð fyrir grunlausa menn.
Meðal hinna varkárari í hópi prófgráðuhafa voru ekki fáir sem vöruðu félaga sína við því furðulega valdi sem útlendingarnir byggju tvímælalaust yfir. Ógerningur var að komast til botns í því hvað þeim gekk til. Allir vissu að þeir gátu lagt álög á fólk með dularfullum hætti og heillað menn með einu augnaráði. Jafnvel bækurnar þeirra báru með sér einkennilega lykt,* sem stafaði eflaust af einhverju kröftugu lyfjaefni. Vitur maður gerði best í því að forðast öll samskipti við þá, og þannig yrði alþýðunni líka bent á að halda sig fjarri þeim. En öðrum og djarfari mönnum þótti tækifærið til að vinna þrjátíu únsur silfurs fyrir eina ritgerð ekki svo lítið að því væri hægt að hafna. Það var of gott til að láta það sér úr greipum ganga. Því hvað sem segja mátti um útlendinginn var silfrið hans að minnsta kosti hafið yfir allan grun og orð hans stóðu eins og stafur á bók. Þrátt fyrir áhættuna ákváðu því tugir manna að taka þátt í samkeppninni.
* Eitt tael = 1⅓ únsa af silfri.
Mikil spenna ríkti í mörgum héraðsbæjum og þorpum þegar fræðimennirnir fóru að skila sér heim, og blöðin sem útlendingarnir höfðu dreift voru breidd út til skoðunar og feður og bræður þyrptust í kringum þau fullir áhuga og undrunar. Þetta átti sérstaklega við um Vestur-Chang-þorpið við fjallsræturnar. Einn af eldri bræðrum Hsi var kominn aftur úr borginni, fullur af þessum undarlegu tíðindum.
„Gamli-Fjarki, Gamli-Fjarki,“* kallar hann, „hvar ertu? Komdu bara og líttu á þetta. Þú ert rétti maðurinn í bókmenntaritgerðir. Enginn er þér fremri! Hér er tækifærið þitt, ef þú ert þá ekki hræddur.“
* Vegna olíunnar sem prentsvertan okkar er blönduð með. Kínverjar prenta eingöngu með kínableki og vatni.
* Algengt gælunafn þegar fjórði sonur í fjölskyldu er ávarpaður.
„Hvað er um að vera?“ svarar fræðimaðurinn og kemur hægt út úr innra herberginu, þrungnu af ópíumreyk. „Hvað gengur nú á? Hefurðu frétt eitthvað af prófinu í höfuðborginni?“
„Fréttir, já heldur betur! Nokkrir af piltunum eru komnir til baka með lærdómsgráður, eins stoltir og hugsast getur. En líttu á þessi blöð sem þeir komu með. Einhver tilkynning frá útlendingnum Li í P'ing-yang. Lestu hana upphátt og láttu okkur heyra hvað þér finnst um þetta.“
Og fyrir hóp nágranna, sem hafði troðist inn fullur undrunar, les fræðimaðurinn nú hátt og virðulega:
TILKYNNING
Þar sem ég óska þess að gera þekkinguna á Vegi Himinsins ljósa hef ég ákveðið að leggja fram sex ritgerðarefni.* Ég býð fræðimönnum í Shan-si virðingarfyllst að tjá skoðanir sínar á þeim og rita ritgerðir um hvert þeirra fyrir sig.*
Ritgerðarefnin sex eru sem hér segir*:
Uppruni hinnar sönnu kenningar, eða Hins rétta vegar. Hinn mikli uppruni Hins rétta vegar er (að sögn kínverskra spekinga) sagður vera frá Himninum. Spekingar fornaldar, bæði í Kína og á Vesturlöndum, „leituðu hinna skýru tilskipana Himinsins“. En arfsögnin um Hinn rétta veg varðveittist ekki. Síðar sömdu fornaldarmenn helgirit og lífsreglur til viðbótar við bækur um helgisiði og tónlist. Þeir ræddu um sálnaflakk, umbun, ódauðleika og fleira þess háttar. Nú hittir maður enn á ný þá sem boða Hinn rétta veg.* Ef spurt er hvort hann sé frá Himninum eða frá mönnum, hvaða óyggjandi sönnunargögn liggja þá fyrir til að skera úr um uppruna hans?
* Boðin voru fern verðlaun og námu hin fyrstu þrjátíu taelum, sem þá samsvaraði um sjö gíneum.
* Pakki með kristilegum bókum og smáritum fylgdi hverju eintaki af ritgerðarefnunum, svo að menn gætu kynnt sér viðfangsefnin.
* Orðalag ritgerðarefnanna kann að virðast einkennilegt. Þau voru af ásettu ráði sett fram í eins kínverskum búningi og unnt var til að höfða til lesenda úr röðum Konfúsíusarsinna.
Stjórnun hjartans. Konfúsíusarsinninn þráir að fækka brestum sínum, búddistinn að sigrast á ástríðum sínum og taóistinn leitast við að öðlast ódauðleikadrykkinn. Múhameðstrúarmaðurinn viðurkennir aðeins einn Guð. Og allir leggja þeir mesta áherslu á að rétta hjartað af. En hver er aðferð Hins háa Himins til stjórnunar hjartans?
Um bænina. Dyggð mannsins er takmörkuð en náð Himinsins er óendanleg. Hvernig eiga þeir sem þrá að hljóta hylli Himinsins að leita hennar í einlægni, svo að þeir öðlist hana og umflýi ógæfu?
Umbun og refsing. Það er mikilvæg meginregla viturra stjórnenda að umbuna fyrir hið góða og refsa fyrir hið illa. Guð elskar alla menn, og til að leiða þá á veg dyggðarinnar umbunar Hann og refsar fólki á öllum tímum. Hvernig býður Hann hamingju í stað refsingar, til að leiða menn til þess að forðast kvalir helvítis og öðlast sælu Himinsins?
Líkneski guðanna. Er það leyfilegt að þeir sem tilbiðja Hinn æðsta stjórnanda og fylgja hinum rétta vegi Yao og Shun (fornra kínverskra hetja) falli fram fyrir skurðgoðum?
Um ópíum. Þeir sem vilja sjá ópíumbölið sigrað, og hrinda þannig í framkvæmd viturlegum óskum stjórnvalda, þekkja vel þann skaða sem af þessu eitri hlýst. Hvaða góðu ráð eru til svo að stöðva megi ræktun ópíums, takmarka neyslu þess og lækna fíknina sem það vekur?
Á 5. ríkisári Kwang-hsü, í 8. mánuði, á 1. degi. Enski kristniboðinn Li gefur þetta út.
Margt var um upphrópanir og athugasemdir á meðan lesið var, og síðasta viðfangsefnið vakti sérstaklega mikla hrifningu: „Þetta er rétta efnið fyrir þig, eldri bróðir,“ stakk einhver upp á í stríðni.
* Vísar til prédikunar kristniboðanna.
„Já, en hví ekki að skrifa um fleiri en eitt? Þú hefur hæfileikana. Eru ekki veitt fern verðlaun? Skrifaðu eina ritgerð fyrir sjálfan þig og aðra fyrir mig, heiðraði frændi.“
„Og fyrir mig, gamli frændi,“ skaut annar inn í. „Það getur varla leitt nokkurn mann á afvegu að skrifa ritgerð og vinna til verðlauna.“
„Þetta virðist vissulega vera úrvals tækifæri til að hafa fé út úr útlendingunum, bróðir,“ sagði maðurinn sem hafði komið með blöðin. „En hvað heldurðu um galdrabrögðin þeirra? Allt er þetta mál hið undarlegasta. Ertu ekki hræddur um að þeir beiti þig göldrum ef þú átt eitthvað saman við þá að sælda?“
Yngri maðurinn hugsaði sig lengi og vel um og fór yfir blöðin aftur og aftur. Það hlaut að búa eitthvað uggvænlegt að baki þessu öllu, en hann gat með engu móti komist að því hvað það var. Viðfangsefnin virtust eðlileg og vel orðuð, og þau voru vissulega mjög áhugaverð. Útlendingurinn, Li, var vel þekktur af afspurn, enda bjó hann í borginni í aðeins tíu mílna fjarlægð. Að vísu voru sögusagnirnar um hann undarlega mótsagnakenndar. Sumir héldu því fram að hann ynni góðverk og væri mikill velgjörðamaður, en aðrir fundu engin orð nógu sterk til að lýsa þveröfugri skoðun. En hvað sem því leið þyrfti hann ekki að eiga nein persónuleg samskipti við útlendinginn. Það gat varla gert nokkurt mein að lesa og skrifa í næði í sínu eigin herbergi. Smám saman tók Hsi því þá ákvörðun að taka þátt í keppninni og gera nágrönnum sínum um leið greiða með því að skrifa fjórar ritgerðir í stað einnar, en halda þeirri bestu auðvitað eftir handa sjálfum sér.
Þegar þessi ákvörðun lá fyrir varð Hsi að hefjast handa fyrir alvöru og kynna sér ritin sem fylgdu ritgerðarefnunum. Eitthvað af hinum gamla fræðilega eldmóði virtist vakna með honum á ný þetta haustkvöld, og þegar hann las áfram gat hann ekki annað en hrifist með, jafnvel þótt hann ætlaði sér það ekki. Hefði hann kynnst slíkum kenningum löngu fyrr, hve ólíkt hefði líf hans þá getað orðið. En nú var of seint að breyta til, jafnvel þótt hin nýja kenning væri sönn. Þegar öllu var á botninn hvolft var nógu auðvelt að tala um Hinn rétta veg og stjórnun hjartans, en hver gat svo sem náð því marki í raun? Bænin gat vel átt við þá sem nutu hylli guðanna; þeir gátu ef til vill forðast helvíti og keppt eftir sælu Himinsins, en hvers gat hann, ósjálfbjarga ópíumreykingamaðurinn, vænst í þessu lífi eða því næsta? Hvað varðaði einhvern þann mátt sem gæti gert manni kleift að hætta ópíumneyslu og hefja nýtt líf – ef slíkur máttur var þá til – hafði hvorki hann né nokkur annar nokkru sinni heyrt hans getið.
En stundum þegar hann sat við skriftir, einkum á nóttunni þegar hljótt var í húsinu, fannst honum hann skynja einhverja óvenjulega nærveru, og nokkrum sinnum varð hann var við undarlegt, skært ljós sem bar greinilega að ofan og hvíldi yfir dyragættinni á herbergi hans.
„Sjáðu,“ hvíslaði eiginkona hans, „guðirnir hafa sent þér tákn! Þú hlýtur örugglega verðlaunin.“
„Já,“ hugsaði hinn niðursokkni fræðimaður, „þetta hlýtur að vera tákn frá guðunum.“
En síðar meir var hann vanur að segja, í þau fáu skipti sem hann minntist á þessa reynslu: „Þetta hlýtur að hafa verið guðleg bending um upplýsingu heilags anda, sem átti svo brátt eftir að koma að ofan.“
Á meðan hafði David Hill snúið aftur heim til sín í P'ing-yang og var önnum kafinn við að undirbúa afhendingu hinna lofuðu verðlauna. Hundrað og tuttugu ritgerðir höfðu borist víðs vegar að úr héraðinu. Hæfir innlendir fræðimenn lásu þær fyrst yfir og flokkuðu þær. Þeir völdu þær bestu af kostgæfni og lögðu þær síðan fyrir Hill og Richards, sem úthlutuðu verðlaununum. Þegar lokaúrslitin voru tilkynnt varð fögnuður Hsi og vina hans mikill er í ljós kom að ritgerðir hans höfðu borið sigur úr býtum. Undir ólíkum nöfnum hafði hann hreppt þrenn verðlaun af fernum.
Næsta skref var auðvitað að fara til P'ing-yang og sækja peningana, og þótt það virtist nógu einfalt olli það miklum áhyggjum í fjölskyldu hins sigursæla fræðimanns. Hingað til hafði engin alvarleg áhætta verið tekin, því að engin bein snerting hafði átt sér stað við útlendinginn, en að fara í eigin persónu heim til hans og taka við peningunum úr hendi hans var allt annað mál. Hsi var staðráðinn í því að það gæti hann ekki og myndi ekki gera, ef nokkur kostur væri að komast hjá því. Eina leiðin var að fá staðgengil, og fljótlega fannst hentugur maður í það hlutverk, en það var bróðir eiginkonu hans, djarfur náungi sem var meira en fús til að taka verkið að sér.
En þá kom upp nýtt vandamál. Ungi maðurinn var nógu fús til að fara og sækja peningana, en það þótti meira en lítið tvísýnt hvort hann yrði jafnfús til að skila þeim til rétts eiganda. Þar sem upphæðin var talsverð varð því úr að Hsi skyldi fara með honum til borgarinnar og bíða fyrir utan húsið á meðan hann fengi silfrið afhent, og að síðan skyldu þeir fara saman með það til silfursmiðsins og láta vega það og meta; með því móti vonaðist Hsi til að fá að minnsta kosti stærri hlutann í eigin hendur.
Þeir tveir héldu því af stað til P'ing-yang, sem var hálfs dags ferð yfir sléttuna, og bróðirinn, Liang, gaf sig fram við hús útlendingsins. Hill gladdist mjög yfir að heyra að verðlaunahafinn væri kominn og gekk út til að taka kurteislega á móti honum. Verðlaunaritgerðin hafði vakið áhuga hans og hann langaði til að eiga samtal við höfundinn. En um leið og hann sá unga sveitamanninn vissi hann að um einhvern misskilning hlyti að vera að ræða.
„Hef ég þann heiður að ávarpa hinn mikilsmetna fræðimann Hsi?“ spurði hann vingjarnlega.
„Nei, herra,“ svaraði ungi maðurinn, „óverðugt nafn mitt er Liang. Ég er kominn fyrir hönd eldri bróður míns til að taka við þóknuninni sem veitt var fyrir lítilmótlega ritsmíð hans.“
„Herra,“ var hið óvænta svar, „silfrið má aðeins afhenda hinum hæfileikaríka höfundi sjálfum í hendur. Ég óttast að það reynist nauðsynlegt að ónáða hann og biðja hann að koma í eigin persónu.“
Þar sem þessu var ekki haggað var eina leiðin út úr vandræðunum sú að láta Hsi vita, en hann var ekki langt undan, og sannfæra hann um að hann yrði að fara sjálfur ef hann vildi fá peningana. Fræðimaðurinn lét mjög treglega undan og fylgdi leiðsögumanni sínum að húsinu í hljóðlátu götunni. Fallegar dyr lágu inn í rúmgott anddyri og þaðan sást inn í húsagarðinn fyrir innan. Þar sem Hsi sá ekkert sem vakti ótta hans hætti hann sér inn og kallaði á hliðvörðinn. Honum til ómælds léttis birtist þá geðþekkur Kínverji. Hsi hneigði sig kurteislega og spurði hann að nafni.
„Óverðugt nafn mitt er Song,“ svaraði gamli maðurinn, sem var enginn annar en fyrsti trúskiptingur Hills og dyggur vinur hans. „En fyrirgefðu mér, ég hef enn ekki spurt um virðulegan titil þinn.“
„Ómerkilegt nafn mitt er Hsi,“ svaraði gesturinn. „Má ég vonast eftir þeim heiðri að fá viðtal við enska kennarann Li?“
„Það mun gleðja Hill mjög, herra. Hann bíður komu þinnar með óþreyju. Ég bið þig að ganga inn í gestasalinn og drekka te.“
Nærvera Songs og eins eða tveggja annarra Kínverja sem litu inn róaði Hsi talsvert. Hann fór að líta í kringum sig og spyrja nokkurra spurninga um útlendinginn og lífshætti hans, en hafði þó auga á dyrunum þar sem Hill hlyti að birtast.
„Ertu ekki hræddur, gamli Song kennari, við að vera svona mikið í félagsskap útlendingsins, nótt sem nýtan dag?“
„Hvers vegna, herra, hvað ætti ég svo sem að óttast?“ svaraði hann brosandi. „Sérðu eitthvað ógnvekjandi eða verðurðu var við einhver töfraáhrif? Ég sé að þú hættir þér ekki í að drekka teið okkar. En slíkur ótti er í raun og veru alveg ástæðulaus, herra.“
„Já,“ tóku Lee-bræðurnir undir, „því meira sem við umgöngumst erlenda kennarann, þeim mun vænna þykir okkur um hann.“
Hsi gramdist að hafa orðið uppvís að þessu, svo að hann bar bollann upp að vörum sér og hneigði sig kurteislega, en ekkert hefði þó getað fengið hann til að drekka svo mikið sem dropa af tei útlendingsins. Samt var ástandið ekki eins slæmt og hann hafði búist við. Hann varð þó að vera á varðbergi og forða sér við fyrsta tækifæri. Brátt heyrði hann fótatak nálgast og sperrti eyrun. Fremur hávaxinn, grannur maður í kínverskum klæðum gekk inn í herbergið. Hsi heyrði einhvern segja:
„Li kennari.“
Hann reis þegar úr sæti og gekk til móts við ókunnuga manninn á miðju gólfi með djúpri hneigingu, sem gaf honum tíma til að virða fyrir sér bláa bómullarkyrtilinn, hvítu léreftssokkana og innlendu skóna sem kristniboðinn klæddist; en í fyrstu þorði hann ekki að líta upp í andlitið sem hann næstum kveið fyrir að sjá.
Hill endurgalt kveðju hans og lagði fast að honum að setjast í heiðurssætið, en tók sér sjálfur lægra sæti hinum megin við borðið. Þægileg röddin vakti strax traust, og þegar kristniboðinn sneri sér við til að hella nýju tei í bolla gestsins leit Hsi loksins upp og virti hann fyrir sér með einu snöggu, rannsakandi augnaráði.
Hve margt getur ekki rúmast í einu augnabliki. Fordómar og tortryggni heillar ævi bráðnuðu burt úr þessu stolta, kalda hjarta eins og snjór í sólskini við það eitt að horfa í rólegt og geislandi andlit Davids Hill. Mörgum árum síðar sagði Hsi um þetta augnablik:
„Eitt augnaráð, eitt orð, það nægði. Eins og dagsbirtan rekur myrkrið á flótta, þannig eyddi nærvera Hills öllum þeim marklausa orðrómi sem ég hafði heyrt. Allur ótti var horfinn og hugur minn varð rólegur. Ég leit í góðleg augu hans og minntist orða Mensíusar: ‚Sé hjarta manns ekki rétt, munu augu hans vissulega bera því vitni.‘ Þetta andlit sagði mér að ég væri í nærveru sanns og góðs manns.“
Þannig voru þeir tveir leiddir saman eftir löng og ströng ár. Loks sátu þeir hlið við hlið: Konfúsíusarsinninn, laus við allan fjandskap, vinveittur og ánægður, og kristniboðinn með hjartað fullt af samúð og þrá eftir þeirri sál sem hann var kominn svo langt að heiman til að blessa. „Klukkur Guðs ganga ætíð rétt.“ Öll þessi ár hafði þessi stund verið ákveðin. Fyrir þennan vonlausa Kínverja sem reykti ópíum yrði lífið aldrei samt á ný, og fyrir David Hill kviknaði einstaklega skær stjarna sem myndi lýsa um alla eilífð í þeim kórónusveig sem hann ætti eftir að leggja við fætur Meistarans. Kristniboðinn hrósaði gesti sínum hlýlega og kurteislega fyrir hina ágætu ritgerð sem hafði hlotið verðlaunin, og sagði að lærðir fræðimenn í höfuðborginni hefðu séð ritgerðina og farið um hana fögrum orðum. Þegar teið hafði verið drukkið var silfrið dregið fram og rétt Hsi, sem tók við því með mörgum kurteislegum mótbárum um eigin óverðugleika. Um leið og hann hafði peningana í höndunum fann hann sig knúinn til að fara og sú hugsun brá fyrir í huga hans:
„Kannski er þessi útlendingur þegar allt kemur til alls bara að seiða mig! Það er best að fara strax og sjá hann aldrei framar.“
Hill tók eftir óróleika hans og gerði enga tilraun til að tefja hann. Hann var allt of vitur til að liggja nokkuð á. Hann gaf honum lausan tauminn, kvaddi hann vingjarnlega og minntist ekkert á að þeir hittust aftur.
Hsi hélt hæstánægður heim á leið með silfrið. Þrjátíu tael voru heil auðæfi á þessum erfiðu tímum. Kona hans og fjölskylda glöddust innilega yfir því að honum hefði tekist að fá peningana og hann væri kominn aftur án þess að verða meint af. Og þar við sat að sinni.