30. kafli
Hvernig Guð sá fyrir öllu
Snúum okkur nú um stund aftur að Vestur-Chang-þorpinu og því starfi sem Hsi vann þar heima. Margt hafði breyst frá dögum iðjuleysis og ópíumreykinga áður en hann snerist til trúar, og einnig frá síðari árum þegar hann hafði enn nægan tíma aflögu til að gegna starfi þorpshöfðingja. Nú var heimili hans orðið eins og iðandi býkúpa, jafn þéttsetið og annasamt og hvert annað athvarf fyrir ópíumfíkla, og verkefnin enn fjölbreyttari.
Smám saman hafði Hsi nefnilega dregist inn í nýja grein þjónustunnar, sem fyllti út í allt það sem hann hafði áður tekið sér fyrir hendur. Með hverju nýju athvarfi stækkaði áhrifahringur hans og ábyrgðartilfinning hans jókst að sama skapi. Meðal sjúklinganna voru margir sem voru langt frá því að vera rótfastir í trúnni, þótt þeir væru læknaðir af ópíumfíkninni. Einn eða tveir mánuðir undir kristilegum áhrifum höfðu sannfært þá um hvílík heimska það væri að dýrka skurðgoð og vakið hjá þeim þrá eftir einhverju betra. Í mörgum tilvikum var hver slíkur maður einlægur leitandi, en þeir voru ekki í stakk búnir til að mæta ofsóknum eða taka nægilegum framförum upp á eigin spýtur. Ef þeir væru sendir aftur heim í heiðinn heimahaga, þar sem hvorki næðist til þeirra með frekari hjálp né fræðslu, væri hætta á að þeir glötuðust alveg. Margir voru líka enn mjög máttvana þegar kom að því að yfirgefa athvarfið. Einhverjir gamlir kvillar höfðu kannski tekið sig upp að nýju og hættan var sú að þeir leituðu aftur í ópíumið til að fá líkn. Þessir menn þurftu umönnun og eftirlit, og það þurfti að kenna þeim hinn óbrigðula mátt bænarinnar. En oft voru athvörfin full og þörf fyrir hvert einasta rúm. Átti þá að vísa þeim á dyr og láta þá reka stefnulaust af því að enginn rétti þeim hjálparhönd?
Síðan voru alltaf aðrir sem höfðu í raun og veru snúist til Guðs meðan þeir dvöldu í athvarfinu, og þar á meðal voru nokkrir sem voru augljóslega vel til þess fallnir að vinna sálir og verða nytsamir aðstoðarmenn, eða jafnvel leiðtogar, í starfinu í framtíðinni. Sumir voru fáfróðir og aðrir fátækir; sumir þurftu á hjálp að halda vegna þess að þeir höfðu misst lífsviðurværi sitt við það að gerast kristnir, og allir þurftu þeir á mikilli og vandlegri þjálfun að halda fyrir komandi tíma. Að vanrækja þroska þessara manna hefði verið óheillavænlegt fyrir starfið og slæm ráðsmennska með þær gjafir sem Guð hafði trúað honum fyrir.
Svo fór að allir þessir menn, og margir fleiri sem erfitt var að flokka, fengu rúm bæði á heimili Hsi og í hjarta hans; þeir söfnuðust saman á gamla heimilinu í Vestur-Chang-þorpinu, og frá dyrum þess var engum vísað burt sem hann gat mögulega hjálpað.
Einkum í fyrstu var þetta sundurleitur hópur og erfitt að halda uppi reglu og finna þeim öllum gagnleg verkefni. En festa og reynsla gerðu kraftaverk og árangurinn varð sífellt betri.
Ein regla sem Hsi hélt fast við var þessi: „Ef einhver vill ekki vinna, þá skal hann heldur ekki eta.“ Þetta sparaði honum mikil vandræði. Ef svo vildi til að svikahrappar fengju inni, menn sem höfðu engan smekk fyrir heiðarlegu striti, fundu þeir sér fljótt afsökun til að hypja sig á brott. Sem betur fer nægði litla jörðin sem hann átti enn til að sjá allmörgum fyrir vinnu. Til að hvetja gesti sína vann hann með þeim og varði öllum þeim tíma sem hann gat í líkamlega vinnu. Þekkingin á búskap, sem hann hafði aflað sér fyrst eftir að hann varð kristinn, reyndist nú ómetanleg, því að hún gerði honum kleift bæði að stjórna verkum þeirra og leggja þeim lið.
Þetta var annasamt samfélag, því að heimilið var nánast sjálfu sér nægt um allar nauðsynjar. Að mala korn, baka brauð, bera vatn, spinna, vefa, sauma föt, smíða og síðast en ekki síst hin mikilvæga lyfjagerð – allt voru þetta störf sem fylltu stundirnar svo að tíminn flaug áfram. Tími Hsi sjálfs fór að miklu leyti í daglega kennslu og samkomur, því að hans fyrsta og fremsta áhugamál var að dýpka hið andlega líf, og allir undir þaki hans voru annaðhvort sálir sem þurfti að vinna eða kristnir menn sem þurfti að þjálfa til að vinna aðrar sálir.
Eftir því sem heimilisfólkinu fjölgaði þurfti meira húsrými og Hsi varð hinn færasti húsameistari og byggingameistari. Smám saman reisti hann nokkur lítil hús og eldhús nærri þreskigólfinu, og einni hlöðunni var breytt í kapellu. Daglegan rekstur og önnur heimilismál tóku frú Hsi og systir hennar að mestu leyti af herðum hans. Þær voru einnig helstu aðstoðarmenn hans við að búa til pillurnar gegn ópíumfíkn sem hvert athvarf var svo háð. Það er ánægjulegt að geta þess að systirin, hún litla ungfrú Liang, varð sífellt nytsamari. Nokkrum árum síðar giftist hún einum af dýrmætustu aðstoðarmönnum Hsi og varð þannig varanlegur hluti af heimilinu.
Lyfjagerðin var ekkert hægðarverk. Eftir því sem hvert nýtt athvarf bættist við varð hún eitt af alvarlegustu viðfangsefnum Hsi. Og þó að hann þjálfaði aðstoðarmenn og nyti liðsinnis þeirra, var þetta verk sem hann fól aldrei öðrum alfarið.
Í þetta fór töluverður tími og vinna, svo ekki sé minnst á þá leikni sem krafist var með svo frumstæðum áhöldum. En Hsi lét sér ekki nægja að hnoða pillurnar saman einhvern veginn. Þær voru ætlaðar til verks Guðs, hluti af þeirri þjónustu sem honum hafði verið falin, og til þess að „frelsa sálir manna“. Þess vegna lagði hann ríka áherslu á að þær væru „vel gerðar og fallegar á að líta“. Og þó hafði hann ekkert annað en einfalda, rákótta körfu sem hékk í reipi til að sveifla þeim í rétt form.
En honum var þó mest í mun að blessun Guðs hvíldi svo yfir verkinu að pillurnar næðu tilgangi sínum og yrðu leið til að veita bæði andlega og líkamlega heilun. Hann bar ekkert traust til lyfsins eins og sér. En hann var fullviss um að Drottinn hefði leitt hann inn í starfið við að reka athvarf fyrir ópíumfíkla og gefið honum þessa uppskrift sem bænheyrslu, og að meðan blessun Hans hvíldi yfir pillunum gætu þær orðið, og myndu verða, leið til hjálpræðis fyrir mikinn fjölda fólks. Hvenær sem þurfti að búa til nýjar birgðir hóf hann því verkið með bæn og föstu. Vani hans var að neita sér um mat allan sólarhringinn sem fór í þessa vinnu. Stundum var hann orðinn svo örmagna undir kvöld að hann stóð varla í lappirnar. Þá dró hann sig í hlé í nokkrar mínútur til að bíða einn frammi fyrir Guði. „Drottinn, þetta er Þitt verk. Gefðu mér Þinn styrk,“ var bæn hans. Og hann kom alltaf til baka endurnærður og styrktur, rétt eins og hann hefði fengið mat og hvíld.
Aðferðin sem beitt var við lyfjagerðina var jafn einföld og hún var snjöll. Fyrst var valinn góður þurrkdagur sem hentaði vel til að þurrka pillurnar jafnóðum og þær voru búnar til. Síðan voru lyfjaefnin tekin saman, vegin og skoðuð, því að öll hráefnin urðu að vera af bestu fáanlegu gerð. Því næst voru þau steytt vandlega með grófum stauti í mortéli, þeim blandað saman í réttum hlutföllum og hrúgað upp í stóra hauga af rauðbrúnu dufti. Þá tók við erfiðari þáttur verksins, sem Hsi annaðist yfirleitt sjálfur. Það þurfti að væta duftið með nákvæmlega hæfilegu magni af vatni og hnoða það þar til það fékk ákveðna áferð, svo að það mótaðist í fallegar, þéttar litlar kúlur þegar því var sveiflað rétt í körfunni. Þetta síðasta stig verksins krafðist bæði handlagni og þolinmæði. En þegar körfunni var haldið á stöðugri hreyfingu gátu þau framleitt hundruð, ef ekki þúsundir af pillum á dag. Með útsjónarsemi og margvíslegri hjálp gesta sinna tókst Hsi að láta heimilið standa að mestu leyti undir sér sjálft. En það fylgdi því annar kostnaður að taka á móti gestum, einkum á sunnudögum, og eins að halda hverju athvarfi uppi og fjölga þeim. Búskapurinn gaf ekkert reiðufé af sér. Og ágóðinn af pillunum, sem eingöngu voru seldar sjúklingum hans, var ekki mikill. Mitt í allri þessari ábyrgð var Hsi farinn að reyna ekki aðeins raunina heldur líka blessunina sem fylgir tómri fjárhirslu sem neyðir mann til að varpa sér á Guð.
Kristniboðsvinum hans í P'ing-yang fannst hann ef til vill fara of geyst og þeir ráðlögðu honum að draga saman seglin, einkum hvað varðaði gestrisni hans á sunnudögum. Þessu gleymdi Hsi aldrei, og frásögn hans af málinu er þess virði að hún sé skráð, þó að hún sýni um leið veikleika í sumum hugmyndum hans um biblíuskýringar. „Á þeim tíma,“ skrifar hann, „voru í hverju athvarfi nokkrir úr hópi þeirra sem trúðu á Drottin Jesú sem voru vinalausir og fátækir, og aðrir sem þurftu á fræðslu að halda eða voru líkamlega veikburða og höfðu ekkert lífsviðurværi. Allir komu þeir heim til mín til að læra kenninguna og fá fæði. Stöðugt voru tuttugu til þrjátíu manns að koma og fara. Ég treysti á Drottin og tók fagnandi á móti þeim, í þeirri von að þeir mættu frelsast til fulls og verða nytsamir í verki Guðs.
„Auk þess söfnuðust fimmtíu eða sextíu manns saman frá þorpunum í kring á hverjum hvíldardegi til guðsþjónustu. Ég treysti á Drottin og tók einnig á móti þeim, án þess að harma það að efni mín dygðu ekki fyrir þörfinni. Von mín var sú að ég gæti veitt sálir í jafn ríkum mæli og menn veiða fisk.
„Að lokum taldi útlendi hirðirinn vinsamlega um fyrir mér og sagðist hafa heimsótt marga söfnuði, en hefði aldrei áður séð þennan hátt hafðan á.
„‚Ég þekki ekki til starfsins á öðrum stöðum,‘ svaraði ég, ‚en þegar vinir koma um langan veg til að tilbiðja undir mínu þaki, fæ ég ekki af mér að láta þá fara svanga heim.‘
„Síðar minntist hirðirinn aftur á þetta mál.
„‚Ég sé,‘ sagði hann, ‚að í þessu efni reynir þú að fylgja fordæmi Drottins þegar Hann mettaði fimm þúsundirnar. En gleymdu því ekki að Drottinn gerði þetta aðeins tvisvar, ekki í sífellu.‘ ‚Já,‘ svaraði ég glöðu hjarta, ‚Drottinn mettaði mannfjöldann sem fordæmi fyrir lærisveina sína. Til þess hefði eitt skipti verið alveg nóg. Hve miklu fremur er það þá bindandi fyrst Hann gerði það tvisvar.‘“
Á þeim dögum var greinilega ekki auðvelt að fá hann til að sjá hlutina í öðru ljósi ef þeir samrýmdust ekki eigin sannfæringu hans. Óttast má að kristniboðunum hafi stundum þótt hann þrjóskur og einþykkur, og allt of óþolinmóður gagnvart öllu taumhaldi. En þeir sáu kærleika hans til sálna og einlæga hollustu hans, og þeir mátu hann mikils þó að þeir gætu ekki alltaf lagt blessun sína yfir það sem hann gerði. Á meðan lagði Hsi sig allan fram um að gera sitt besta eftir því sem hann vissi réttast, og Drottinn annaðist hann á undursamlegan hátt þrátt fyrir mistök hans.
Eitt af því sem var merkilegt í fari hans frá upphafi var hve laus hann var við fégirnd eða löngun í fjárhagslegan ávinning sér til handa. Að sjálfsögðu varð hann að láta hvert athvarf standa undir sér eins og kostur var, og nota þann afgang sem myndaðist á einum stað til að mæta skorti á öðrum. En hann lét peningamál aldrei vera í fyrirrúmi, og þegar til lengdar lét var alveg ljóst að hann sóttist ekki eftir eigin hag.
Í fyrsta lagi krafðist hann aldrei greiðslu með harðri hendi. Fyrir lyfin tók hann frá sjö hundruð upp í tvö þúsund koparpeninga (tvo til sex skildinga), eftir því hve alvarlegt tilfellið var. Flestir sjúklingarnir komu með eigin mat. En ef sjúklingar höfðu ekki efni á svo miklu endurgreiddi hann hluta fjárins eða tók þá ókeypis inn á eigið heimili. Og ef þeir voru óheiðarlegir og neituðu að borga, þótt rætt væri við þá af skynsemi, lagði hann málið einfaldlega fram í bæn og fól Guði málalokin. Ekki var óalgengt að afleiðingarnar reyndust hinum seka alvarlegar.
Annað sem var óvenjulegt í fari hans var að hann hikaði ekki við að skila peningum sem honum voru gefnir til starfsins ef hann fann að blessun Guðs fylgdi þeim ekki. Gjöf sem gefin var af röngum hvötum eða með semingi taldi hann ekkert gagn gera. „Hún verður að koma af hreinu hjarta,“ var hann vanur að segja, „og af fúsum huga til að hljóta velþóknun Drottins og blessun.“ Og án þess, hvernig gat hún annað en verið til skaða? Voru þeir að sækjast eftir peningum eða blessun Guðs? Fátæktin gerði þá aðeins enn háðari Honum, en peningar án blessunar Hans myndu fljótt baka þeim vandræði.
Eitt slíkt atvik átti sér stað í tengslum við mann að nafni Ts'ui, sem játaði kristna trú. Hann var steinsmiður að iðn og honum hafði vegnað vel í viðskiptum, en vitað var að hann hafði safnað í sjóð meira en hundrað þúsund koparpeningum, sem var talsvert ríkidæmi á þeim slóðum. En ekki vildi hann láta svo mikið sem brot af því af hendi rakna til verks Drottins. Engar fortölur hreyfðu við honum. Og þetta var auðvitað hneykslunarhella fyrir fátækari kristna menn, sem þurftu að bæta upp nísku hans með framlögum sínum.
Að lokum veiktist Ts'ui alvarlega og virtist í lífshættu. Hann sendi þegar í stað eftir Hsi og grátbað hann að biðja fyrir bata sínum. „Ég er fús til þess, Hsi bróðir,“ stundi hann, „að gefa fjörutíu þúsund koparpeninga, bara ef þú kemur mér út úr þessum þrengingum.“
„Hvað hefur þú eiginlega gert,“ hrópaði Hsi upp yfir sig, „til að vera kominn í annað eins ástand? Heldurðu að þú getir mútað Drottni og keypt líf þitt fyrir peninga? Játaðu syndir þínar af einlægni og þá skal ég biðja fyrir þér. Nú er enginn tími til að tala um gjafir.“
Svo virtist sem maðurinn hrópaði í raun og veru til Guðs um miskunn. Hsi bað fyrir honum og honum batnaði fljótt. En eins og búast mátti við minntist hann ekki einu orði framar á peningana. Framlagið sem honum hafði verið svo mikið í mun að inna af hendi var steingleymt.
Ekki löngu síðar tók sami sjúkdómur sig upp aftur og einkennin voru enn alvarlegri en fyrr. Ts'ui varð dauðskelkaður og sendi aftur eftir Hsi, og í þetta sinn fékk hann honum í hendur bankavíxil upp á háa fjárhæð og grátbað hann að biðja þegar í stað fyrir líkn handa sér. En Hsi skilaði peningunum og sagði hryggur í bragði:
„Því miður óttast ég að það sé of seint. Þó kann að vera að Guð aumki sig yfir sál þína. Hrópaðu til Hans í Jesú nafni og biddu um fyrirgefningu. Ég get ekki tekið við peningunum.“
Degi eða tveimur síðar lést Ts'ui. Fáeinum mánuðum síðar giftist ekkja hans aftur – sem var hræðileg smán fyrir minningu hins látna – og auðæfunum sem hann hafði safnað saman var tvístrað.
En þótt Hsi færi sínar eigin leiðir í þessum efnum, til heiðurs nafni Meistara síns, og þótt hann ræki bú sitt og hvert athvarf fyrir ópíumfíkla af ráðdeild og færi eins vel með hvern einasta koparpening og hugsast gat, var langt í frá auðvelt að láta enda ná saman. Það var gott og blessað að tala um að fylgja fordæmi Drottins og metta mannfjöldann, en í raun og veru þýddi það annaðhvort gjaldþrot eða að sækja í guðlega gnægtabrunna.
Undir lok ársins, eftir að vinur hans úr hópi kristniboðanna hafði hvatt hann til sparnaðar, fór Hsi að gera upp reikninga sína, og honum til mikillar skelfingar kom þá í ljós að fram undan var halli upp á meira en áttatíu þúsund koparpeninga: þetta var einmitt það sem útlendi hirðirinn hafði óttast og heiðingjarnir í kringum hann spáðu í sífellu. Hann sá sér fært að brúa um þriðjung af þessari upphæð, en þá vantaði samt enn nærri fimmtíu þúsund upp á. Hann gat ekki tekið lán, því að það braut í bága við hið skýra boðorð: „Skuldið ekki neinum neitt.“ Og hversu mjög sem hann braut heilann kom hann ekki auga á neina leið til að útvega svo háa fjárhæð. Heiðnir ættingjar hans lýstu því reiðilega yfir að hann myndi steypa þeim öllum í ógæfu. Eiginkona hans og samverkamenn voru þögul og áhyggjufull. En Hsi tók sér fyrir hendur að bíða frammi fyrir Guði.
Og einmitt þá gerðist hið óvænta. Frá höfuðborg héraðsins barst merkilegt skjal suður í sveitina til Hsi og komst í hendur hans. Í því var skrá yfir ýmis viðfangsefni tengd kristinni trú og var lærðum mönnum boðið að rita um þau ritgerðir og keppa til verðmætra verðlauna. Ritgerðirnar áttu að vera um fimm þúsund rittákn að lengd og mátti semja þær annaðhvort í bundnu eða óbundnu máli, en hæstu verðlaunin voru veitt fyrir ljóðasmíðar og námu fimmtíu únsum af silfri. Tilboðið kom frá kristniboðunum í T'ai-yuan og stóð öllum fræðimönnum héraðsins opið.
„Þetta,“ hrópaði Hsi af miklum eldmóði, „er svar Drottins við bænum okkar. Fyrstu verðlaunin verða sannarlega mín.“
Hann tók til óspilltra málanna, fullur trúar og hugrekkis. Þegar var kominn tíundi mánuður ársins og engan tíma að missa. Fyrstu verðlaunin voru eingöngu veitt fyrir kveðskap og því hélt hann sig alfarið við hann.
Þótt hann gerði sér lítið grein fyrir því á þeirri stundu bjó dýpri tilgangur að baki þessum ljóðasmíðum en sá sem hann hafði í huga. Hinir vaxandi söfnuðir í hæðum hans og dölum þurftu á nýjum sálmasöng að halda, einhverju sem var þeirra eigið og tjáði reynslu hjartans á máli heimamanna. Hsi skynjaði þessa þörf óljóst. Hann vissi að sálmarnir sem þeir notuðu höfðuðu ekki mikið til fólksins. En honum hafði aldrei dottið í hug að honum gæti auðnast að yrkja aðra sálma sem gerðu það. Þegar hann sat nú hugsi með pennann í hendinni streymdu hugsanirnar til hans og vísurnar runnu fram, uns hvert ljóðið af öðru varð til og leiddi í ljós náðargáfu sem aldrei féll í gleymsku upp frá því.
Litlu síðar kom kristniboðinn aftur í heimsókn í Vestur-Chang-þorpið, og í þetta sinn kom hann ekki til að ráðleggja varfærni, heldur til að afhenda sigurvegaranum í fyrsta sæti silfurhleif að verðmæti sjötíu þúsund koparpeninga, sem dugði ríkulega til að ljúka árinu réttum megin við strikið. Þetta var Hsi ógleymanleg lífsreynsla og sannkallaður áfangi á lífsleiðinni.
Upp frá því hélt hann áfram, líkt og sálmaskáldið forðum, að flétta allar sviptingar lífsins inn í lofgjörðar- og bænasöngva. Það sem hann lærði í gleði eða raunum, ósigri eða frelsun, streymdi úr penna hans í einföldum og oft fögrum ljóðlínum. Og hinir kristnu í Shan-si tóku þessum sálmum fagnandi. Sextíu eða fleiri þeirra urðu hluti af lífi fólksins og lifa þannig áfram, þótt hin ástkæra rödd hans sé þögnuð.
En fjárhagserfiðleikar voru ekki einu tækifærin til að reyna mátt Guðs og trúfesti. Aðrar prófraunir, og sársaukafyllri, stöfuðu af skapferli þeirra manna sem Hsi þurfti að fást við. Sumir reyndust vel frá upphafi og urðu fljótt nytsamir liðsmenn á þessu annasama heimili. Aðrir tóku viturlegri og þolinmóðri leiðsögn þegar til lengdar lét, en þurftu tíma til að losa sig úr viðjum fortíðarinnar, og það var ekki auðvelt að búa með þeim á meðan á því stóð. En eftir stóðu nokkrir sem voru svo spilltir og lokaðir að öll viðleitni til að bjarga þeim virtist vonlaus. Að búa undir sama þaki og slíkir menn mánuð eftir mánuð og bera ábyrgð á þeim var þung raun, en Hsi gat ekki komist hjá henni. Eftir því sem tíminn leið varð hann sífellt varkárari um það hverjum hann tók við inn á heimili sitt, en þegar hann hafði einu sinni tekið mál að sér gat ekkert fengið hann til að sleppa af því hendinni. „Nei,“ var hann vanur að segja, „ég þori ekki að byrja á verki og gefast svo fljótt upp á því vegna örðugleika á veginum. Ef það er ekki frá Guði ætti maður alls ekki að byrja á því. Sé það hins vegar frá Honum væri synd að leggja það niður. Ef ég gerði það kynni Hann líka að leggja mig til hliðar sem nytsaman þjón í þjónustu Hans.“
Hann hafði það því fyrir reglu að senda engan mann burt. Hann trúði því að máttur Guðs gæti frelsað jafnvel þá allra vonlausustu, en ef einhverjir reyndust á endanum óforbetranlegir myndu þeir fara af sjálfsdáðum á sinn eigin stað. Þetta gat haft í för með sér langvinnar þjáningar fyrir þá sem reyndu að bjarga þeim, en er það ekki Guð sjálfur sem þjáist mest? Hann bað því fyrir þessum mönnum og sýndi þeim þolinmæði löngu eftir að aðrir höfðu gefið upp alla von. Stundum bar trú hans sigur úr býtum, jafnvel í verstu tilfellunum, en stundum virtist allt unnið fyrir gýg. En fyrr eða síðar var víst að þeir sem vildu ekki láta segjast yrðu fjarlægðir án íhlutunar Hsi, og stundum með mjög alvarlegum hætti.
Einn lykillinn að þeim krafti sem hann bjó tvímælalaust yfir var kærleikurinn sem gerði honum kleift að halda fast í þessa menn af slíkri undraverðri þolinmæði. Hann sá alltaf eitthvað gott í þeim og vonaði hið besta. En þegar þeir syndguðu þjáðist hann eins og kærleikurinn einn getur þjáðst. Og þar sem þeir dvöldu á heimili hans nótt sem nýtan dag hafði þetta í för með sér tíðan hjartasársauka og var ein sárasta raunin sem hann þurfti að bera.
Eitt dæmi, sem kristniboði nokkur varð vitni að og skráði hjá sér, gefur nokkra hugmynd um hve erfiðar slíkar aðstæður gátu verið.
Á fyrstu árunum í Ts'ao-seng kom kona nokkur að nafni Kuo til Hsi í miklum harmi vegna einkasonar síns. Ungi maðurinn var þrítugur að aldri, en fjarri því að vera ekkjunni móður sinni til huggunar var hann „ópíumdjöfull“, eins og hún komst að orði, gjörsamlega óreglusamur og óhlýðinn sonur. Vesalings konan grátbað Hsi með mörgum tárum að taka mál hans að sér. Hann var vafinn í spilaskuldir og skelfingu lostinn yfir afleiðingum nýlegs sukks, svo að hann var sjálfur áfjáður í að snúa við blaðinu og komast undir verndarvæng Hsi, sem var kristinn fræðimaður.
Eftir talsvert hik féllst Hsi á þetta. Eitthvað geðþekkt var í fari vesalings mannsins, og hann virtist meira en fús til að vinna fyrir sér á búinu og hlíta öllum reglum heimilisins. Með því skilyrði var tekið við honum; Hsi greiddi honum engin laun en sá fyrir honum eins og eigin syni.
Í fyrstu hegðaði hann sér nokkuð vel og læknaðist af ópíumfíkninni þrátt fyrir miklar þjáningar og erfiðleika. Hann tileinkaði sér fljótt hið ytra form kristninnar og varð vel kunnugur Biblíunni og kenningum hennar. En áður en margir mánuðir voru liðnir fór honum að leiðast aginn og hann beitti allri kænsku sinni til að valda usla. Hann var bæði snjall og samviskulaus og tókst yfirleitt að halda uppi fögru yfirborði en láta aðra gjalda fyrir misgjörðir sínar. Hsi umbar þetta ónæði af þolinmæði og reyndi á alla lund að telja hann á betri vitund, en allt kom fyrir ekki. Ár eftir ár gekk þetta svona, en samt vildi Kuo ekki fara af heimilinu og Drottinn greip ekki inn í til að fjarlægja hann.
Loks, þegar fjögur ár voru liðin, varð breyting þar á. Skyndilega virtist ungi maðurinn vakna til vitundar um hvað þetta allt þýddi. Náð Guðs greip hjarta hans og að öllu útliti að dæma hafði hann snúist til sannrar trúar. Fullur gleði fyrirgaf Hsi honum hið liðna af öllu hjarta og tók honum sem syni í kærleika sínum. Tíminn virtist aðeins sanna einlægni Kuos. Hæfileikar hans og glaðværð urðu æ meiri huggun og hann varð einn af nytsamlegustu mönnum heimilisins.
En einmitt þegar hann virtist ómissandi kom kristniboðinn sem hafði umsjón með umdæminu og bað um þennan sama mann til að starfa undir sinni stjórn í nágrannahéraði. Þetta var mikil fórn fyrir Hsi, en þegar hann baðst fyrir vegna málsins hugsaði hann með sér:
„Þetta er boð útlenda hirðisins, ég þori ekki að neita. Drottinn mun gefa mér annan aðstoðarmann.“
Kuo fór og stóð sig vel um nokkurra ára skeið. Predikanir hans voru vinsælar og framkoma hans aðlaðandi. Kristniboðinn treysti honum fullkomlega.
En svo kom að því að hann var skilinn einn eftir með umsjón kristniboðsstöðvarinnar og talsverðar fjárupphæðir fóru um hendur hans. Starfið blómstraði og fjöldi fólks streymdi í kapelluna. Þá fylltist Kuo drambi og fór að villast af leið. Hann féll fyrir óheiðarleika. Fégirndin náði tökum á honum. Og eftir það beið hann skjótt skipbrot. Kristniboðinn hraðaði sér til baka og sá að hann var kominn í hafsjó vandræða. Ekki var jafn auðvelt að losna við Kuo og verið hafði að fá hann til starfa. Hann bauð öllu yfirvaldi byrginn og dró marga hinna trúuðu með sér. Að lokum var honum þó vikið úr starfi og hann varð að yfirgefa héraðið.
Þá hélt hann aftur í Vestur-Chang-þorpið, viti sínu fjær af bræði og vonbrigðum, búinn að glata bæði mannorði sínu og tækifærum, til að úthella skálum reiði sinnar yfir Hsi. Vinir hans þar höfðu frétt hvað gerst hafði og voru reiðubúnir að gefa hinum villuráfandi manni annað tækifæri. En þá grunaði ekki hvað beið þeirra. Kuo var ævareiður. Fall hans virtist vekja upp alla hina gömlu illsku í eðli hans og slökkva líf Andans, ef það hafði þá nokkurn tíma verið til staðar.
Nú virtist helsta ósk hans sú að hefna sín á Hsi, sem hann kaus að líta á sem rót allra sinna vandræða. Af slægð hins slungna óþokka spann hann upp ótal falskar ásakanir og gróf upp löngu gleymd mál, og að lokum krafðist hann svívirðilegrar fjárupphæðar í laun fyrir vinnu sína á búinu allt frá þeim tíma er velgjörðarmaður hans tók hann fyrst að sér.
Angist og skelfing greip um sig á heimilinu og Hsi átti fullt í fangi með að koma í veg fyrir uppþot. Kuo hafði unun af því að gera málið eins opinbert og hugsast gat, og hann hrópaði ásakanir sínar af öllum lífs og sálar kröftum og þuldi umkvartanir sínar yfir öllum sem vildu hlýða á. Í neyð sinni átti Hsi ekkert annað úrræði en bænina. Allar tilraunir til sætta fóru út um þúfur. Hann vildi ekki leita til dómstóla og virtist algjörlega á valdi þessa samviskulausa óvinar án nokkurrar vonar. Afar óráðlegt var að kaupa hann af sér með peningum. En hvað var þá til ráða?
En þegar hann baðst fyrir rann upp fyrir honum ljós. Nýársdagur var í nánd, sá eini tími þegar sérhver Kínverji telur brýna nauðsyn að vera í sátt og samlyndi við alla í kringum sig. Hví ekki að leggja til að öllu málinu yrði frestað þar til hinum heillaríku hátíðahöldum væri lokið? Slík tillaga myndi vafalaust falla í góðan jarðveg hjá almenningi, og yrði hún samþykkt gæfist tími til frekari umhugsunar og bæna.
Með hjarta sem hrópaði til Guðs gekk Hsi því aftur út í æstan mannfjöldann og beið færis að taka til máls. Þá beindi hann hugsunum nágranna sinna af lagni að skyldum hátíðarinnar sem í hönd fór og dvaldi sérstaklega við þann undirbúning sem hlyti að standa fyrir dyrum heima fyrir til heiðurs komu Kuos. „Ef þú kemur aftur, bróðir,“ bætti hann við, „þegar nýárshátíðinni er lokið, höfum við öll betra næði og munum þá íhuga þessi mál vandlega og reyna að bæta úr því sem aflaga hefur farið.“
Tillögunni var tekið með slíkri velþóknun að Kuo gat ekki leyft sér að hunsa hana, og þar sem hann þekkti einlægni mannsins sem bar hana fram óttaðist hann engin undirmál. Þannig létti spennunni í bili. Kuo fór heim til að finna menn af sama sauðahúsi sem myndu snúa aftur með honum til að valda usla. En Hsi helgaði sig bæn og föstu.
Þá kom að endalokunum. Hsi hafði umborið nógu lengi í von um að bjarga þessari sál. „Sá sem oft hefur verið ávítaður en þverskallast þó, mun skyndilega knosaður verða, og það án miskunnar.“
Þetta var afar óvænt og þrungið alvöru. Kuo, sem yfirgaf Vestur-Chang-þorpið fullur ósættanlegs fjandskapar þennan dag, sneri aldrei aftur. Áður en nýárið rann upp bárust þær fregnir að hann og tveir aðrir úr fjölskyldunni hefðu látist skyndilega. „Hvað, er hann dáinn!“ hrópuðu nágrannarnir forviða. „Guð hinna kristnu er reiður. Það er best að láta þá í friði.“