Fjórði kafli
Ný skref og áfangar í undirbúningnum
Ástríða fyrir sálum er guðlegur eldur, og í hjarta George Müllers tók sá eldur nú að loga enn skærar og krafðist útrásar.
Í ágúst 1827 beindist hugur hans enn ákveðnar en áður að kristniboðsstarfi. Þegar hann frétti að Breska meginlandsfélagið leitaði að presti til starfa í Búkarest bauð hann sig fram fyrir milligöngu dr. Tholucks, sem hafði augun opin fyrir hæfum manni fyrir hönd félagsins. Honum til mikillar undrunar gaf faðir hans samþykki sitt, þótt Búkarest væri í meira en þúsund mílna fjarlægð og í raun jafn ósvikinn kristniboðsakur og hvert annað svæði. Eftir stutta heimsókn heim sneri hann aftur til Halle, staðráðinn í að halda á þennan fjarlæga starfsvettvang, og bjó sig í bæn undir þær fórnir og þá erfiðleika sem vænta mátti. En Guð hafði önnur áform með þennan þjón Sinn, og hann fór aldrei til Búkarest.
Í október sama ár átti Hermann Ball leið um Halle og sótti litlu vikulegu samkomuna í herbergi Müllers. Þar sagði hann honum frá því að vegna heilsubrests gæti hann ekki haldið áfram starfi sínu meðal pólskra Gyðinga. Þegar í stað kviknaði sterk löngun í huga George Müllers til að taka við starfi hans. Slíkt verkefni laðaði hann tvöfalt að sér: annars vegar myndi það færa hann í náin tengsl við Ísrael, hina útvöldu en villuráfandi þjóð Guðs, og hins vegar gæfi það honum tækifæri til að nýta sér hebreskunámið sem átti hug hans allan.
Einmitt um þetta leyti heimsótti hann dr. Tholuck, sem þá var umboðsmaður Kristniboðsfélags Lundúna til eflingar kristniboði meðal Gyðinga. Honum til mikillar furðu spurði dr. Tholuck hvort hann hefði nokkurn tíma fundið hjá sér löngun til að starfa meðal Gyðinga. Þessi spurning blés eðlilega í glæður þeirrar löngunar sem þegar var kviknuð. Skömmu síðar var hins vegar horfið frá því í bili að senda prest til Búkarest, þar sem borgin var í miðri hringiðu stríðsins sem þá geisaði milli Rússa og Tyrkja. En nýjar dyr virtust opnast fyrir framan hann um leið og aðrar lokuðust að baki honum.
Þegar nefndin í Lundúnum frétti að hann væri fáanlegur til kristniboðsstarfa meðal Gyðinga, lagði hún til að hann kæmi þangað í sex mánuði sem kristniboðsnemi til að búa sig undir starfið. Það reyndi á holdið að gangast þannig undir nokkurs konar reynslutíma. Honum fannst þó réttmætt að nefndin og umsækjandinn fengju tækifæri til að kynnast hvort öðru til að tryggja farsælt samstarf, og því var hann fús til að fallast á tillöguna.
Mikil hindrun var þó í veginum. Prússneskir karlmenn þurftu almennt að gegna þriggja ára herþjónustu, en háskólanemar í klassískum fræðum sem höfðu staðist háskólapróf þurftu að þjóna í að minnsta kosti eitt ár. George Müller hafði ekki einu sinni lokið þessum styttri tíma og gat því ekki fengið vegabréf til að fara úr landi án konunglegrar undanþágu. Sótt var um slíka undanþágu en án árangurs. Á meðan veiktist hann og honum hrakaði aftur eftir tíu vikur. Þegar hann var staddur í Leipzig með bandarískum prófessor og fór með honum í óperuna, gerði hann þau axarsköft að neyta veitinga í hléinu milli þátta, og við það tóku veikindin sig upp á ný. Æð hafði rofnað í maganum á honum, og hann sneri aftur til Halle og steig aldrei framar fæti inn í leikhús. Síðar var hann beðinn um að fara til Berlínar í nokkrar vikur til að kenna þýsku. Hann fór þangað í þeirri von að í höfuðborg Prússlands gæti hann komist í samband við hirðina fyrir milligöngu tignarfólks og fengið hina langþráðu undanþágu. En þar fór hann líka erindisleysu. Nú virtist engin leið fær til að komast hjá herþjónustu. Hann gaf sig því fram til læknisskoðunar en var úrskurðaður líkamlega óhæfur til herskyldu. Fyrir forsjón Guðs lenti hann í höndum góðviljaðra manna, og eftir að hann hafði verið skoðaður í annað sinn og aftur metinn óhæfur, fékk hann fulla ævilanga undanþágu frá allri herþjónustu.
Þræðir í fyrirætlun Guðs lágu saman á dularfullan hátt. Stundin var runnin upp; Meistarinn talaði og það varð. Allt stefndi í eina átt – að leysa þjón Hans undan þjónustu við föðurlandið, svo að hann mætti undir stjórn foringja hjálpræðis síns þola illt eins og góður hermaður Krists, án þess að flækjast í málefni þessa lífs. Auk þessa hafði dvöl hans í höfuðborginni ekki verið árangurslaus, því að hann hafði prédikað fimm sinnum í viku á fátækraheimilinu og rætt við fangana í fangelsinu á dögum Drottins.
Í febrúar 1829 lagði hann af stað til Lundúna. Á leiðinni heimsótti hann föður sinn í Heimersleben, en þangað hafði faðir hans flust aftur eftir að hann lét af embætti. Hann kom svo til ensku stórborgarinnar þann 19. mars. Frelsi hans var mjög skert við þennan nýja prestaskóla þar sem hann var nú nemandi, en þar sem engin regla gekk gegn samvisku hans beygði hann sig undir reglurnar. Hann sat við nám í um tólf klukkustundir á dag og einbeitti sér einkum að hebresku og skyldum greinum sem tengdust væntanlegu starfssviði hans náið. Hann gerði sér grein fyrir hættunni á þeirri sálardeyfð sem hlýst oft af því að sökkva sér of djúpt í fræðilegt nám. Því lærði hann stóra hluta Gamla testamentisins utanbókar á hebresku og sinnti verkefnum sínum í bænaranda, um leið og hann leitaði hjálpar Guðs í öllum málum, hversu smávægileg sem þau voru, er lutu að daglegum skyldustörfum.
Þar sem hann bjó með þýskum löndum sínum freistaðist hann til að nota móðurmál sitt stöðugt. Hann tók því litlum framförum í ensku, sem hann sá eftir síðar. Af þeim sökum var hann vanur að ráðleggja þeim sem hyggjast starfa meðal erlendrar þjóðar að búa ekki aðeins á meðal fólksins til að læra tungumál þess, heldur halda sig einnig sem mest frá eigin löndum. Þannig væru þeir neyddir til að nota tungumálið sem á að veita þeim aðgang að fólkinu sem þeir starfa meðal.
Í tengslum við þennan flutning til Bretlands skildi atvik nokkurt, sem virtist smávægilegt, eftir varanleg spor í huga hans – enn ein sönnun þess að í lífinu er ekkert smávægilegt. Stórar og þungar dyr geta leikið á afar litlum hjörum. Raunar eru það oft atburðir sem virðast ómerkilegir sem móta sögu okkar, starf og hlutskipti.
Nemandi nokkur minntist af tilviljun á tannlækni í Exeter – herra Groves að nafni – sem hafði vegna Drottins sagt skilið við starf sitt, er gaf honum fimmtán hundruð pund í árstekjur, og boðið sig fram ásamt eiginkonu og börnum sem kristniboði í Persíu, í einföldu trausti á að Drottinn sæi þeim fyrir öllum stundlegum þörfum. Þessi sjálfsafneitun og þetta traust heilluðu Müller á undarlegan hátt og hann gat ekki leitt það hjá sér. Hann skráði þetta meira að segja sérstaklega í dagbók sína og skrifaði vinum sínum heima um það. Þetta var enn ein lexían í trú, og hún var í fullu samræmi við það traust sem hann átti sjálfur eftir að verða svo áberandi fyrirmynd og lifandi dæmi um í meira en sextíu ár.
Um miðjan maí 1829 veiktist hann og taldi sjálfur að sér væri ekki batnaðar von. Veikindum fylgir oft undarleg sjálfsskoðun. Vitund hans um synd og sekt við afturhvarfið hafði verið of yfirborðskennd og grunn til að skilja eftir sig nokkra varanlega minningu. En eins og oft vill verða í sögu heilagra Guðs, þá skaut sektarkenndin – sem í fyrstu virtist engar rætur eiga í samviskunni og varla vera til staðar – dýpri rótum í vitund hans og efldist eftir því sem hann kynntist Guði betur og varð líkari Honum. Þessa algengu reynslu frelsaðra sálna er auðvelt að skýra. Skilningur okkar á hlutunum ræðst einkum af tvennu: í fyrsta lagi því hversu skýrt við greinum sannleikann og skyldu okkar, og í öðru lagi þeim mælikvarða sem við miðum við. Því meira sem við lifum í Guði og fyrir Guð, þeim mun betur upplýsast augu okkar svo að við sjáum hversu geigvænleg og afskræmd syndin er, og greinum því andstyggð hins illa þeim mun skýrar. Jafnframt sjáum við fullkomnun heilagleika Guðs í skýrara ljósi og gerum hana að fyrirmynd og mótunarafli í okkar eigin heilaga líferni.
Viðvaningur í tónlist eða myndlist er falsklega ánægður með sitt eigið ófullkomna verk, en þó aðeins svo lengi sem eyra hans, auga eða smekkur hefur ekki enn þjálfast til nákvæmrar greiningar. Eftir því sem honum fer hins vegar fram í listinni og hann lærir að meta hana betur, kemur hann auga á hvern einasta galla og lýti á fyrri verkum sínum, uns tónlistarflutningurinn virðist aumkunarvert klúður og málverkið ekkert annað en klessuverk. Breytingin hefur þó öll orðið á listamanninum sjálfum en ekki á verkinu. Bæði tónlistin og málverkið eru í sjálfu sér alveg eins og þau voru áður, en maðurinn er nú fær um svo miklu betri hluti að viðmið hans hafa færst á hærra plan og hæfni hans til réttmæts dóms hefur vaxið að sama skapi.
Á sama hátt getur barn Guðs, sem líkt og Elía stendur frammi fyrir Honum sem þolinmóður, fús og hlýðinn þjónn og hefur bæði líkingu af Guði og kraft hjá Guði, sest undir gýfilrunn vonleysisins, niðurbeygt af vitund um eigin óverðugleika og sekt. Eftir því sem guðrækni vex verður tilfinningin fyrir óguðleika næmari, og því eru tilfinningar aldrei nákvæmur mælikvarði á það hversu mjög við höfum mótast eftir Guði. Við munum virðast verst í eigin augum þegar við erum best í Hans augum, og öfugt.
Múhameðstrúarþjónn nokkur dirfðist eitt sinn að andmæla prédikara opinberlega á útimarkaði á Indlandi, þegar prédikarinn hélt fram allsherjarspillingu mannkynsins. Þjónninn fullyrti að hann þekkti að minnsta kosti eina konu sem væri flekklaus og algjörlega án ágalla, og sú kona væri hans eigin kristna húsmóðir. Prédikarinn fékk þá hugboð um að spyrja á móti hvort hann hefði nokkra leið til að vita hvort hún væri sjálf á þeirri skoðun um sjálfa sig. Þá varð múhameðstrúarmaðurinn að viðurkenna að einmitt þar lægi ráðgátan: oft hefði heyrst til hennar í bæn þar sem hún játaði að hún væri óverðugust allra syndara.
En svo við hverfum aftur frá þessum útúrdúr, þá bjó Müller, ekki aðeins í þessum veikindum heldur allt til hinna skyndilegu æviloka sinna, yfir vaxandi vitund um synd og sekt. Sú tilfinning hefði stundum orðið honum ofviða ef hann hefði ekki vitað á grundvelli vitnisburðar Orðsins að „sá sem dylur yfirsjónir sínar, verður ekki lángefinn, en sá sem játar þær og lætur af þeim, mun miskunn hljóta.“ Hann sneri augum sínum frá eigin sekt og leit til krossins þar sem friðþægt var fyrir hana, og til náðarstólsins þar sem fyrirgefningin mætir hinum iðrandi syndara. Þannig snerist hryggðin yfir syndinni upp í fögnuð hins réttlætta.
Þessi fullvissa um að vera tekinn í sátt í Hinum elskaða svipti dauðann öllum ógnarljóma sínum, svo að í þessum veikindum langaði hann helst til að fara héðan og vera með Kristi. Eftir tvær vikur var hann þó úrskurðaður á batavegi, og þótt hann þráði enn hina himnesku hvíld beygði hann sig undir vilja Guðs um lengri dvöl í landi vegferðar sinnar. Lítið óraði hann þá fyrir því hvaða gleði hann ætti eftir að finna í því að lifa fyrir Guð, eða hversu mikið hann ætti eftir að fá að reyna af dögum himinsins hér á jörð.
Í þessum veikindum kom einnig fram hjá honum sú vaxandi hneigð að bera jafnvel hin smæstu atriði fram fyrir Drottin í bæn, sem síðar átti eftir að einkenna líf hans svo mjög. Hann grátbað Guð stöðugt um að leiðbeina lækni sínum, og hverjum nýjum lyfjaskammti fylgdi ný bæn um að Guð mætti nota lyfið honum til góðs og gefa honum þolinmæði til að bíða vilja Hans. Þegar honum tók að batna leitaði hann hvíldar í Teignmouth, en skömmu eftir komu hans þangað var kapellan „Ebenezer“ opnuð á ný. Þar kynntist Müller einnig herra Henry Craik, sem var í svo mörg ár ekki aðeins vinur hans heldur einnig samverkamaður.
Um þetta leyti tóku einnig, eins og hann greinir sjálfur frá, tiltekin mikilsverð sannindi að skýrast fyrir honum og fá aukið vægi. Þetta tímabil persónulegs undirbúnings hafði svo mikla þýðingu fyrir allt lífsstarf hans síðar meir að lesandinn ætti að fá aðgang að hans eigin vitnisburði.*
* Sjá viðauka B.
Þegar hann sneri aftur til Lundúna, styrktur jafnt á sál sem líkama, lagði hann til við samnemendur sína að þeir héldu daglega morgunsamkomu frá klukkan sex til átta til bænahalds og biblíulestrar, þar sem hver og einn deildi með hinum þeirri sýn á lesnar ritningargreinar sem Drottinn kynni að gefa honum. Þessar andlegu iðkanir reyndust svo gagnlegar og nærðu svo mjög hungrið eftir guðlegum hlutum að eftir að hafa haldið áfram í bæn fram á síðkvöld leitaði hann stundum á miðnætti eftir samfélagi við einhvern skoðanabróður sinn, og framlengdi þannig bænastundina til klukkan eitt eða tvö um nóttina. Jafnvel þá frestaðist svefninn oft enn frekar vegna þess hve barmafullur hann var af gleði í Guði. Þannig lærði þessi nemandi, undir handleiðslu síns mikla Meistara, snemma á andlegri vegferð sinni þá æðstu lexíu að sérhverju Guðs barni er orð Guðs brauð lífsins og bæn trúarinnar andardráttur lífsins.
Müller hafði varla verið kominn aftur til Lundúna í tíu daga þegar heilsu hans tók aftur að hraka. Þá greip hann sú sterka sannfæring að hann ætti ekki að eyða sínum litlu kröftum í innilokað bóklegt nám, heldur hefjast þegar handa við starf sitt. Þessi sannfæring styrktist enn frekar þegar hann minntist hins aukna ljóss sem Guð hafði veitt honum og þeirrar dýpri ástríðu sem hann fann nú hjá sér til að þjóna Honum enn frjálslegar og fyllilegar. Knúinn þeirri vissu að raunverulegt starf til heilla fyrir sálir manna myndi efla bæði líkamlega og andlega velferð hans, fór hann fram á það við félagið að hann yrði án tafar skipaður til starfa á vettvangi sínum. Og til þess að þeir gætu falið honum starfið með enn meira trausti, bað hann um að einhver reyndur maður yrði sendur út með honum sem ráðgjafi og samverkamaður.
Eftir að hafa beðið árangurslaust í sex vikur eftir svari við þessari beiðni fékk hann aðra sterka sannfæringu: að það væri óbiblíulegt og þar með rangt að bíða eftir því að samferðamenn hans sendu hann út á akurinn til starfa. Barnabas og Sál voru kallaðir með nafni og sendir út af heilögum anda áður en söfnuðurinn í Antíokkíu hafði gripið til nokkurra aðgerða. Hann fann svo sterkt til þess að andinn hefði kallað hann til verksins að hann fann sig knúinn til að hefjast handa þegar í stað, án þess að bíða eftir mannlegu umboði – og hvers vegna ekki meðal Gyðinga í Lundúnum? Þar sem hann var vanur að bregðast skjótt við sannfæringu sinni tók hann að dreifa smáritum á meðal þeirra, merktum nafni hans og heimilisfangi, svo að allir sem óskuðu eftir persónulegri leiðsögn gætu fundið hann. Hann leitaði þá uppi á samkomustöðum þeirra, las Ritninguna á ákveðnum tímum með um fimmtíu Gyðingadrengjum og kenndi í sunnudagaskóla. Í stað þess að liggja eins og skip í þurrkví til viðgerðar var honum þannig ýtt úr vör út í kristilegt starf, þótt hann yrði, líkt og aðrir verkamenn meðal hinna fyrirlitnu Gyðinga, fyrir smávægilegum raunum og ofsóknum og væri kallaður til að þola smán vegna nafns Krists.
Áður en haustið 1829 var liðið sóttu á hann enn frekari efasemdir um hvort hann gæti með góðri samvisku verið áfram tengdur þessu Lundúnafélagi með hefðbundnum hætti, og þann 12. desember tók hann þá ákvörðun að slíta öllum slíkum tengslum nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Til að gera bæði Müller og félaginu full skil er enn á ný vísað í hans eigin orð í viðaukanum.*
* Sjá viðauka C.
Snemma á næsta ári varð honum ljóst að hann gæti aðeins starfað í tengslum við slíkt félag ef þeir féllust á að hann þjónaði án fastakaups og starfaði hvenær og hvar sem Drottinn virtist leiða hann. Hann skrifaði þeim bréf þess efnis og fékk ákveðið en vinsamlegt svar, þar sem sagði að þeir teldu „óráðlegt að hafa í þjónustu sinni menn sem væru ófúsir til að lúta leiðsögn þeirra varðandi kristniboðsstörf“ o.s.frv.
Þannig rofnuðu þessi tengsl við félagið. Hann taldi sig breyta í samræmi við það ljós sem Guð gaf honum, og þótt hann legði félaginu ekkert til lasts, sá hann aldrei eftir þessu skrefi né breytti þessu mati sínu. Þeim sem líta yfir þetta langa líf, sem var svo auðugt af ávöxtum óvenjulegrar þjónustu við Guð og menn, má vera fyllilega ljóst að Drottinn var mjúklega en staðfastlega að ýta George Müller út af hinni troðnu slóð og inn á braut þar sem hann átti eftir að ganga í afar nánu samfélagi við Hann sjálfan. Þær ákvarðanir sem jafnvel í smærri málum greiddu götu fyrirætlunar Guðs voru vitrari og afdrifaríkari en hægt var að sjá á þeirri stundu.
Við lestur dagbókar Müllers er maður sífellt minntur á að hann var maður með sama veikleika og aðrir. Á jóladagsmorgun þetta ár, eftir tímabil sérstakrar gleði, vaknaði hann í Örvæntingarmýrinni, sviptur allri gleðitilfinningu, og bænin virtist jafn árangurslaus og tilgangslaust brölt manns í feninu. Á hinni venjulegu morgunsamkomu hvatti bróðir nokkur hann til að halda engu að síður áfram í bæn þar til hjarta hans bráðnaði á ný frammi fyrir Drottni – en það er viturlegt ráð handa öllum lærisveinum þegar nærvera Drottins virðist hafa dregist í burtu á undarlegan hátt. Skortur á tilfinningalegri gleði má aldrei hindra staðfasta þrautseigju í bæninni; raunar er það örugg lífsregla að því minni sem gleðin er, þeim mun meiri sé þörfin. Ef samfélagi við Guð er hætt, af hvaða ástæðu sem er, verður aðeins enn erfiðara að taka þráðinn upp að nýju og endurheimta bænavanann og bænarandann. Þegar maður hins vegar heldur ótrauður áfram að úthella bænabeiðnum sínum, samhliða óslitnu starfi í þjónustu Guðs, snýr hin glataða gleði brátt aftur. Hvenær sem maður lætur undan andlegu þunglyndi, svo að hann hættir eða jafnvel gerir hlé á samfélaginu í leynum eða kristilegu starfi, fagnar djöfullinn sigri.
Svo fljótt losnaði Müller úr þessari snöru Satans fyrir þrautseigju í bæninni að um kvöldið á þessum sama jóladegi, sem hafði byrjað svo skýjaður og dimmur, útskýrði hann Orðið við heimilisguðsþjónustu í húsinu þar sem honum var boðið til kvöldverðar. Það gerði hann með slíkri hjálp frá Guði að tveir þjónar sem viðstaddir voru komust undir djúpa syndavitund og leituðu ráða hjá honum.
Hér erum við komin að öðrum áfanga á þessari lífsleið. George Müller var nú kominn að lokum ársins 1829 og Drottinn hafði leitt hann um sannarlega merkilega braut. Aðeins voru liðin um fjögur ár síðan hann fann hinn mjóa veg fyrst og tók að ganga hann, og hann var enn ungur maður á tuttugasta og fimmta aldursári. Samt hafði honum þegar verið kennt ýmislegt af hinum miklu leyndardómum heilags, hamingjuríks og nytsamlegs lífs, sem varð grundvöllurinn að allri byggingu þjónustu hans síðar meir.
Þegar við lítum til baka yfir þessi fjögur ár virðast þau í raun þéttsetin af mikilvægri og viðburðaríkri reynslu sem öll boðaði framtíðarstarf hans, þótt hann sæi enn ekki tákn Drottins í henni. Afturhvarf hans á einfaldri samkomu trúaðra, þar sem tilbeiðslan og orð Guðs voru eina aðdráttaraflið, var upphafspunkturinn á vegferð þar sem hvert fótmál virðist hafa verið stórt skref fram á við. Hugsið ykkur ungan nýtrúaðan mann, með svo flækjukennda fortíð sér til áfellis og trafala, læra á þessum fáu árum svo djúpar lexíur í sjálfsafneitun: hann brennir skáldsöguhandritið sitt, segir skilið við stúlkuna sem hann elskaði, snýr baki við lokkandi framtíðarhorfum um þægindi og auðæfi til að gangast undir sjálfsafneitun fyrir Guð, losar sig undan því að vera fjárhagslega háður föður sínum og hafnar síðan öllu fastakaupi til þess að frelsi hans til vitnisburðar verði ekki skert, auk þess sem hann velur þann einfalda prédikunarhátt að útskýra textann í stað þess að þóknast almennum smekk! Takið síðan eftir því hvernig hann nærðist á orði Guðs; hvernig hann ræktaði með sér þann vana að rannsaka Ritningarnar og biðja í leynum; hvernig hann varpaði sér á Guð, ekki aðeins varðandi stundlegar þarfir heldur einnig til að fá styrk til að bera allar byrðar, smáar sem stórar; og hvernig hann bauð sig svo snemma fram til kristniboðsstarfa og brann af óþreyju eftir að komast út á akurinn. Lítið svo á hinn alvalda kærleika Guðs, sem veitti honum í svo ríkum mæli barnslegan anda og kenndi honum að treysta ekki eigin hverfulu tilfinningasveiflum, heldur hinu óbreytanlega fyrirheitisorði Hans; sem kenndi honum að bíða þolinmóður frammi fyrir Honum eftir fyrirmælum í stað þess að horfa til mannlegs valds eða leiðsagnar; og sem leysti hann með svo einstökum hætti undan herþjónustu fyrir lífstíð og hélt honum á dularfullan hátt frá hinum fjarlæga kristniboðsakri, svo að Hann mætti þjálfa hann undir einstakt hlutverk hans í þágu mannkynsins og komandi kynslóða!
Þetta eru nokkrir af helstu dráttum þessarar frásagnar hingað til, og hverjum hreinskilnum huga hlýtur að vera ljóst af þeim að æðri Hönd var að móta þetta útvalda ker á rennibekk leirkerasmiðsins og búa það með óyggjandi hætti undir þá einstöku þjónustu sem því var ætluð!