Viðauki
F. Röksemdir í bæn fyrir starfinu
Röksemdirnar sem ég ber fram fyrir Guð eru þessar:
1. Að ég hófst handa við verkið Guði til dýrðar, þ.e. til þess að með því að Guð sæi hinum munaðarlausu börnum fyrir nauðsynjum eingöngu sem svar við bæn yrði til sýnileg sönnun þess að Hann er hinn lifandi Guð og fúsastur til að svara bænum, jafnvel á okkar dögum; og að Honum þóknaðist því að senda aðföng.
2. Að Guð er „faðir föðurlausra“ og að Honum þóknaðist því, sem föður þeirra, að sjá fyrir þeim. (Sálmarnir 68:6.)
3. Að ég hef tekið við börnunum í Jesú nafni og að þar með hefur verið tekið við Honum í þessum börnum, og Honum er gefið fæði og klæði; og að Honum þóknaðist því að líta til þessa. (Markúsarguðspjall 9:36, 37.)Markús 9:36, 37
4. Að trú margra Guðs barna hefur styrkst við þetta verk hingað til, og að ef Guð léti ekki fjármuni í té framvegis myndu þeir sem eru veikir í trúnni hrasa, en ef fjármunir héldu áfram að berast mætti trú þeirra styrkjast enn frekar.
5. Að margir óvinir myndu hlæja ef Drottinn léti ekki aðföng í té og segja: Spáðum við því ekki að þetta ofstæki yrði að engu?
6. Að mörg Guðs börn, sem eru ófrædd eða í holdlegu ástandi, myndu telja það réttlætanlegt að halda áfram bandalagi sínu við heiminn í verki Guðs og halda áfram sem fyrr óbiblíulegum vinnubrögðum sínum varðandi svipaðar stofnanir, hvað varðar öflun fjármuna, ef Hann hjálpaði mér ekki.
7. Að Drottinn vildi minnast þess að ég er barn Hans, og að Hann vildi í náð Sinni aumka Sig yfir mig og minnast þess að ég get ekki séð fyrir þessum börnum, og að Hann vildi því ekki láta þessa byrði hvíla lengi á mér án þess að senda hjálp.
8. Að Hann vildi sömuleiðis minnast samverkamanna minna í verkinu, sem treysta Honum en myndu verða fyrir prófraun ef Hann léti ekki aðföng í té.
9. Að Hann vildi minnast þess að ég yrði þá að senda börnin burt úr biblíulegri fræðslu okkar aftur til fyrri félaga sinna.
10. Að Hann vildi sýna fram á að þeir höfðu rangt fyrir sér sem sögðu að í fyrstu mætti búast við aðföngum, meðan verkið væri nýtt, en ekki eftir það.
11. Að ég myndi ekki vita, ef Hann léti ekki fjármuni í té, hvaða skilning ég ætti að leggja í öll hin mörgu og stórmerkilegu bænasvör sem Hann hefur veitt mér hingað til í tengslum við þetta verk og hafa sýnt mér til fulls að það er frá Guði.