Viðauki
L. Safnaðarsamfélag, skírn o.fl.
Þegar við bróðir Craik hófum starf okkar í Bristol og nokkrir trúaðir gengu í kjölfarið til liðs við okkur í samfélagi og komu saman í Betesda, byrjuðum við að koma saman á grundvelli hins ritaða orðs eingöngu, án nokkurra safnaðarreglna. Frá upphafi lá ljóst fyrir að með hjálp Drottins myndum við prófa allt með orði Guðs, og taka það eitt upp og halda fast í það sem sanna mætti með Ritningunni. Þegar við tókum þessa ákvörðun þann 13. ágúst 1832 var það vissulega í veikleika, en af heilu og hreinskilnu hjarta. – Þess vegna var ekkert ákveðið um það atriði hvort taka ætti þá eina inn í samfélagið sem höfðu látið skírast eftir að þeir tóku trú, eða alla sem trúðu á Drottin Jesú, óháð skírn, enda vorum við sjálfir ekki fullkomlega sannfærðir um það. Okkur fannst við hafa frelsi til að brjóta brauðið og eiga samfélag við þá sem voru óskírðir. Við gátum því með góðri samvisku starfað í Gídeon, þar sem meirihluti hinna heilögu var óskírður, að minnsta kosti í fyrstu. Á sama tíma óskuðum við þess þó í laumi að engir nema skírðir trúaðir gengju til liðs við okkur í Betesda. Ástæðan fyrir því var sú að í Devonshire höfðum við orðið vitni að mikilli og sárri sundrungu sem við töldum stafa af því að skírðir og óskírðir trúaðir væru í sama samfélagi. Án þess að gera það að reglu að söfnuðurinn í Betesda hefði lokað samfélag gættum við þess samt að þeir sem báðu um inngöngu í samfélagið fengju fræðslu um skírnina. Í marga mánuði komu engir örðugleikar upp, því að engir báðu um inngöngu í samfélagið nema þeir sem annaðhvort höfðu þegar verið skírðir, óskuðu eftir að verða það eða sannfærðust um að skírn trúaðra samræmdist Ritningunni eftir að við höfðum rætt við þá. Síðar báðu hins vegar þrjár systur um inngöngu í samfélagið. Engin þeirra hafði verið skírð og afstaða þeirra breyttist ekki heldur eftir að við höfðum rætt við þær. Þar sem við bróðir Craik töldum þær engu að síður sannar trúaðar konur, og vorum ekki heldur sjálfir fullvissir um hver vilji Drottins væri í slíku tilviki, töldum við rétt að tekið yrði á móti þessum systrum. Það þyrfti þó að gerast samhljóða, eins og allar safnaðarákvarðanir okkar voru teknar á þeim tíma, en þá vissum við að nokkrir í samfélagi okkar gátu ekki samvisku sinnar vegna tekið á móti óskírðum trúuðum. Við nefndum því nöfn systranna þriggja fyrir söfnuðinum og tókum fram að þær sæju ekki að skírn trúaðra ætti sér stoð í Ritningunni. Ef einhver bróðir teldi það ástæðu til þess að ekki ætti að taka á móti þeim skyldi hann láta okkur vita. Niðurstaðan varð sú að nokkrir hreyfðu andmælum. Haldnir voru tveir eða þrír fundir þar sem við hlýddum á mótbárur bræðranna og leituðumst sjálfir við að komast að vilja Guðs í þessu máli. Á meðan nokkrir dagar liðu þannig áður en málið var útkljáð kom ein af þessum þremur systrum og þakkaði okkur fyrir að hafa ekki tekið á móti sér áður en hún yrði skírð. Hún sá nú að það var aðeins blygðun og mannaótti sem hafði haldið aftur af henni og að Drottinn hafði nú gert hana fúsa til að láta skírast. Þetta atvik styrkti þá bræður í skoðun sinni sem töldu það samkvæmt Ritningunni að allir ættu að láta skírast áður en tekið væri á móti þeim í samfélagið. Hvað okkur bróður Craik varðaði varð þetta að minnsta kosti til þess að við veltum því enn frekar fyrir okkur hvort bræðurnir kynnu ekki að hafa rétt fyrir sér, og okkur fannst við því ekki geta lagst gegn þeim í þeirri óvissu. Systirin sem óskaði eftir að láta skírast var því tekin inn í samfélagið, en hinar tvær ekki. Þetta lagðist þeim mun síður á samvisku okkar vegna þess að allir, þótt óskírðir væru, máttu taka kvöldmáltíð Drottins með okkur í Betesda, þó að þeir væru ekki teknir inn í fullt samfélag. Auk þess gátu þeir jafnvel fengið inngöngu í fullt samfélag í Gídeon, þar sem voru bæði skírðir og óskírðir trúaðir. Við höfðum nefnilega ekki enn séð skýrt að í Ritningunni er enginn greinarmunur gerður á því að eiga samfélag við einstaklinga og að brjóta brauðið með þeim. Þannig stóðu málin í marga mánuði, það er að segja að trúaðir fengu að taka þátt í brotningu brauðsins, jafnvel í Betesda, þótt óskírðir væru, en þeir fengu ekki að njóta allra réttinda samfélagsins. – Í ágúst 1836 átti ég samtal við bróður K. C. um það mál að taka óskírða inn í samfélagið, en það hafði leitað meira og minna á huga minn um árabil. Þessi bróðir lagði málið þannig fyrir mig: Annaðhvort teljast óskírðir trúaðir til þeirra sem lifa óreglulega, og í því tilviki ber okkur að sneiða hjá þeim (Síðara Þessaloníkubréf 3:6), eða þeir lifa ekki óreglulega. Ef trúaður maður lifir óreglulega eigum við ekki aðeins að sneiða hjá honum við borð Drottins, heldur ætti framkoma okkar við hann að vera allt önnur en ef hann lifði ekki óreglulega, í öllum samskiptum okkar við hann og hvenær sem leiðir okkar liggja saman. En þessu er augljóslega ekki þannig farið í framkomu skírðra trúaðra við óskírða trúbræður sína. Andinn lætur ekki svo vera, heldur vitnar Hann um að þótt þeir hafi ekki verið skírðir feli það ekki endilega í sér að þeir lifi óreglulega, og því getur verið hið dýrmætasta samfélag milli skírðra og óskírðra trúaðra. Andinn leyfir okkur ekki að neita að eiga samfélag við þá í bæn, við lestur og rannsókn Ritninganna, í daglegri og náinni umgengni og í verki Drottins. Samt ætti það að vera svo ef þeir lifðu óreglulega. – Þessi ritningarstaður, Síðara Þessaloníkubréf 3:6, sem bróðir E. C. vísaði til, varð mér til leiðsagnar um vilja Drottins í þessu efni, sem er sá að okkur ber að taka að okkur alla þá sem Kristur hefur tekið að Sér (Rómverjabréfið 15:7), óháð því hversu mikilli náð eða þekkingu þeir hafa náð. – Nokkrum tíma eftir þetta samtal, í maí 1837, gafst tækifæri þar sem við (því að bróðir Craik hafði séð sama sannleika) vorum kallaðir til að hrinda í framkvæmd því ljósi sem Drottni hafði þóknast að gefa okkur. Systir nokkur, sem hvorki hafði verið skírð né taldi sér skylt að láta skírast, bað um inngöngu í samfélagið. Við ræddum við hana um þetta sem og önnur efni og lögðum til að hún yrði tekin inn í samfélagið, þótt samtal okkar hefði ekki sannfært hana um að henni bæri að láta skírast. Þetta varð til þess að söfnuðurinn tók málið aftur til umfjöllunar. Við færðum rök fyrir því út frá Ritningunni hvers vegna við teldum rétt að veita þessari óskírðu systur hlutdeild í öllum réttindum Guðs barna, en talsverður fjöldi, ef til vill þriðjungur, lýsti því yfir að það stríddi gegn samvisku þeirra að taka á móti henni. Sérstaklega var vísað til fordæmis postulanna, sem skírðu fyrstu trúuðu mennina við trúarjátningu þeirra. Það væri vissulega óyfirstíganlegur þröskuldur ef sannleikanum hefði ekki verið blandað saman við villu í svo langan tíma að það sannar ekki vísvitandi óhlýðni þótt einhver á okkar dögum neiti að láta skírast eftir að hafa tekið trú. Drottinn veitti okkur hins vegar mikla hjálp við að benda bræðrunum á sannleikann, svo að þeim fækkaði nánast dag frá degi sem töldu að einungis skírðir trúaðir ættu að vera í samfélaginu. Að lokum töldu aðeins fjórtán bræður og systur af rúmlega 180 rétt að segja skilið við okkur þann 28. ágúst 1837, eftir að við höfðum átt mikil samtöl við þau. [Ég er glaður að geta bætt því við að jafnvel af þessum fjórtán sá meirihlutinn síðar villu sína og sneri aftur til okkar, og að það að taka alla sem elska Drottin okkar Jesú inn í fullt samfélag, óháð skírn, hefur aldrei valdið sundrungu á meðal okkar, þótt meira en fimmtíu og sjö ár séu liðin síðan.]Seinna Þessaloníkubréf 3:6 · Biblían 1981 · Seinna Þessaloníkubréf 3:6 · Biblían 1981 · Rómverjabréfið 15:7 · Biblían 1981