Viðauki
E. Hvers vegna munaðarleysingjaheimili?
Ég stóð sífellt frammi fyrir dæmum sem sönnuðu að eitt af því sem börn Guðs þurftu hvað mest á að halda á okkar dögum var að fá styrkingu í trúnni. Ég heimsótti til dæmis bróður sem vann fjórtán eða jafnvel sextán stundir á dag við iðn sína. Afleiðingin var óhjákvæmilega sú að ekki aðeins líkami hans beið tjón af því, heldur var sál hans líka vannærð og hann hafði enga gleði af því sem Guðs er. Við slíkar aðstæður benti ég honum gjarnan á að hann ætti að vinna minna, svo að líkamsheilsa hans geldi þess ekki og hann gæti safnað kröftum fyrir sinn innri mann með því að lesa orð Guðs, íhuga það og biðja. Svarið var þó yfirleitt eitthvað á þessa leið: „En ef ég vinn minna vinn ég mér ekki inn nóg til að framfleyta fjölskyldu minni. Jafnvel núna, þótt ég vinni svona mikið, á ég varla nóg. Launin eru svo lág að ég verð að leggja hart að mér til að afla þess sem ég þarf.“ Þarna var ekkert traust á Guði. Engin raunveruleg trú á sannleika þeirra orða: „Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.“ Ég svaraði þá gjarnan eitthvað á þessa leið: „Kæri bróðir minn, það er ekki vinnan þín sem heldur uppi fjölskyldu þinni, heldur Drottinn. Hann sem hefur fætt þig og fjölskyldu þína þegar þú gast alls ekkert unnið vegna veikinda mun vissulega sjá fyrir þér og þínum ef þú vinnur aðeins svo margar stundir á dag að þú hafir nægan tíma til kyrrðar og næringar fyrir þinn innri mann. Og er því ekki þannig varið núna að þú hefst handa við dagsverkið eftir að hafa aðeins átt örfá augnablik í flýti til bænar? Og þegar þú hættir vinnu á kvöldin og ætlar þá að lesa dálítið í orði Guðs, ertu þá ekki of úrvinda á sál og líkama til að njóta þess, og sofnarðu ekki oft út frá ritningunni eða á hnjánum við bæn?“ Bróðirinn viðurkenndi að svo væri og að ráð mitt væri gott. Samt las ég úr svip hans, jafnvel þótt hann segði það ekki berum orðum: „Hvernig ætti ég að komast af ef ég færi að ráðum þínum?“ Mig langaði því til að hafa eitthvað sem ég gæti bent bróðurnum á sem sýnilega sönnun þess að Guð okkar og faðir er sami trúfasti Guðinn og Hann hefur alltaf verið – jafn fús og nokkru sinni fyrr til að SANNA að Hann er HINN LIFANDI GUÐ, á okkar dögum rétt eins og áður, öllum þeim sem treysta á Hann. Eins hitti ég stundum börn Guðs sem voru þjökuð í huga vegna ellinnar sem fram undan var, þegar þau gætu ekki lengur unnið, og kviðu því sárlega að þurfa að fara á fátækraheimili. Ef ég benti þeim þá á hvernig himneskur faðir þeirra hefði alltaf hjálpað þeim sem treysta á Hann sögðu þau kannski ekki alltaf að tímarnir hefðu breyst, en þó var augljóst að þau litu ekki á Guð sem HINN LIFANDI Guð. Andi minn var oft beygður vegna þessa, og ég þráði að geta sett eitthvað fram fyrir augu Guðs barna svo að þau mættu sjá að Hann yfirgefur ekki heldur á okkar dögum þá sem reiða sig á Hann. Annar hópur manna voru bræður í viðskiptum sem liðu í sál sinni og bökuðu sér samviskubit með því að reka viðskipti sín nánast á sama hátt og ófrelsað fólk gerir. Samkeppnin í viðskiptalífinu, erfiðir tímar og ofsetið land voru nefnd sem ástæður fyrir því að ekki væri hægt að búast við að reksturinn gengi vel ef honum væri einfaldlega stýrt í samræmi við orð Guðs. Slíkur bróðir lét kannski í ljós þá ósk að staða hans væri önnur. En afar sjaldan sá ég menn taka afstöðu með Guði og sýna þann heilaga ásetning að treysta á hinn lifandi Guð og reiða sig á Hann til að varðveita góða samvisku. Þessum hópi þráði ég líka að sýna með sýnilegri sönnun að Guð er óbreytanlega hinn sami. Síðan var enn einn hópur fólks: einstaklingar í starfsgreinum sem þeir gátu ekki haldið áfram í með góðri samvisku, eða fólk sem var í óbiblíulegri stöðu í andlegum efnum. En báðir þessir hópar óttuðust afleiðingarnar af því að segja skilið við starf þar sem þeir gátu ekki gengið með Guði, eða að yfirgefa stöðu sína, af ótta við að verða atvinnulausir. Andi minn þráði að verða til þess að styrkja trú þeirra, ekki aðeins með því að nefna þeim dæmi úr orði Guðs um fúsleika Hans og mátt til að hjálpa öllum sem reiða sig á Hann, heldur með því að sýna þeim í verki sannanir fyrir því að Hann er hinn sami á okkar dögum. Ég vissi vel að orð Guðs ætti að nægja, og af náð nægði það mér. Samt taldi ég mér skylt að rétta bræðrum mínum hjálparhönd, ef ég mætti á einhvern hátt styrkja hendur þeirra í Guði með slíkri sýnilegri sönnun um óbreytanlega trúfesti Drottins. Ég minntist þess nefnilega hve mikla blessun mín eigin sál hafði hlotið af handleiðslu Drottins í lífi þjóns Hans, A. H. Francke, sem treysti eingöngu á hinn lifandi Guð og stofnaði gríðarstórt munaðarleysingjaheimili sem ég hafði margoft séð með eigin augum. Ég taldi mig því skuldbundinn til að þjóna söfnuði Guðs á því sérstaka sviði þar sem ég hafði hlotið miskunn: nefnilega í því að geta tekið Guð á orðinu og reitt mig á það. Allar þessar hugrenningar mínar spruttu af því að svo margir trúaðir sem ég kynntist voru hrjáðir og áhyggjufullir í huga eða bökuðu sér samviskubit vegna þess að þeir treystu ekki Drottni. Guð notaði þetta til að vekja í hjarta mínu þá löngun að leggja fram fyrir kirkjuna alla og fyrir heiminn sönnun þess að Hann hefði ekki breyst hið minnsta. Mér virtist best að gera þetta með því að stofna munaðarleysingjaheimili. Þetta þurfti að vera eitthvað sem hægt væri að sjá, jafnvel með líkamlegum augum. Ef ég, fátækur maðurinn, fengi einfaldlega fyrir bæn og trú – án þess að biðja nokkurn mann – það fé sem þyrfti til að stofna og reka munaðarleysingjaheimili, þá væri þar komið eitthvað sem með blessun Drottins gæti orðið til að styrkja trú Guðs barna, auk þess að vera samvisku hinna ófrelsuðu vitnisburður um raunveruleika þess sem Guðs er. Þetta var sem sagt frumástæðan fyrir stofnun munaðarleysingjaheimilisins. Ég þráði vissulega af heilu hjarta að Guð notaði mig til að annast líkamlegar þarfir fátækra barna sem misst höfðu báða foreldra sína, og leitaðist við með Guðs hjálp að gera þeim gott að öðru leyti fyrir þetta líf. Ég þráði líka sérstaklega að Guð notaði mig til að ala hin elskuðu munaðarlausu börn upp í guðsótta. En engu að síður var (og er enn) fyrsta og fremsta markmið verksins það að Guð yrði miklaður af þeirri staðreynd að hinum munaðarlausu börnum í umsjá minni væri séð fyrir öllu sem þau þurfa eingöngu fyrir bæn og trú, án þess að ég eða samverkamenn mínir bæðum nokkurn mann um neitt. Þannig mætti sjá að Guð er ENN TRÚFASTUR og BÆNHEYRIR ENN.
Þrjár helstu ástæðurnar fyrir því að stofna munaðarleysingjaheimili eru þessar: 1. Að Guð verði vegsamaður, ef Honum skyldi þóknast að sjá mér fyrir fjármunum, með því að menn sjái að það er ekki til einskis að treysta á Hann, og að trú barna Hans verði þannig styrkt. 2. Andleg velferð föður- og móðurlausra barna. 3. Stundleg velferð þeirra.
Það sem hugur minn hefur einkum beinst að er að stofna munaðarleysingjaheimili þar sem nauðstöddum föður- og móðurlausum börnum verði séð fyrir fæði og klæðum ásamt biblíulegri menntun. Um þetta fyrirhugaða munaðarleysingjaheimili vil ég segja eftirfarandi:
1. Ætlunin er að það tengist Biblíufræðslustofnuninni fyrir heimalandið og útlönd hvað varðar skýrslugjöf, bókhald, yfirstjórn og þær grundvallarreglur sem starfið byggist á. Í vissum skilningi má því líta á það sem nýtt verkefni á vegum stofnunarinnar, en þó með þeim mun að til munaðarleysingjaheimilisins verður eingöngu varið þeim fjármunum sem eru sérstaklega gefnir til þess. Ef einhver trúaður vill því fremur styðja annaðhvort þau verkefni sem hingað til hafa notið styrks úr sjóðum stofnunarinnar eða hið fyrirhugaða munaðarleysingjaheimili þarf aðeins að taka það fram, svo að fénu verði varið í samræmi við það.
2. Það verður aðeins stofnað ef Drottinn sér bæði fyrir fjármunum til þess og hæfu fólki til að veita því forstöðu.
Varðandi fjármunina vil ég taka fram eftirfarandi: Ástæðan fyrir því að lagt er til að víkka út starfssviðið er ekki sú að við höfum haft svo ríflegt fé handa á milli upp á síðkastið, því að við höfum fremur verið í þröngri stöðu. Hin mörgu og náðarríku bænasvör sem Drottinn hafði gefið okkur varðandi þessa stofnun urðu þó til þess að við bróðir C––r snerum okkur einlæglega að bæn og báðum Hann að sjá okkur fyrir fjármunum til að halda verkinu áfram, þar sem við teljum það óbiblíulegt að stofna til skulda. Í fimm daga báðum við nokkrum sinnum, bæði saman og hvor í sínu lagi. Eftir það tók Drottinn að svara bænum okkar, svo að á fáeinum dögum voru okkur gefin um 50 pund. Enn fremur vil ég nefna hina afar náðugu og mildu handleiðslu Guðs í mínu eigin lífi. Síðastliðin fimm ár hefur Hann, sem svar við bæn, séð fyrir mínum eigin stundlegu þörfum án þess að ég hafi nokkrar fastar tekjur. Mér hafa verið sendir peningar, matvæli og föt á tímum þegar ég var í mikilli þröng, og það ekki aðeins í litlum mæli heldur líka í ríkum mæli; og ekki einungis frá einstaklingum sem búa á sama stað og ég, heldur einnig úr talsverðri fjarlægð; og ekki bara frá nánum vinum, heldur frá fólki sem ég hef aldrei séð. Allt þetta hefur oft vakið hjá mér þá hugsun, þegar fyrir fjórum árum, að Drottinn hafi ekki gefið mér þetta einlæga traust á Hann eingöngu fyrir mig sjálfan, heldur líka fyrir aðra. Þegar ég sá fátæk og vanrækt börn hlaupa um göturnar í Teignmouth sagði ég oft við sjálfan mig: „Skyldi það ekki vera vilji Guðs að ég stofni skóla fyrir þessi börn og biðji Hann að gefa mér fjármuni til þess?“ Þetta varð þó ekki annað en hugsun í huga mínum í tvö eða þrjú ár. Fyrir um það bil tveimur og hálfu ári fann ég mig aftur sérstaklega knúinn til að gera eitthvað fyrir nauðstödd börn þegar ég sá svo mörg þeirra betla á götum Bristol og koma að dyrum okkar. Það var þó ekki látið ógert þá vegna skorts á trausti til Drottins, heldur vegna fjölda annarra verkefna sem kröfðust alls tíma og krafta okkar bróður Craiks. Drottinn hafði nefnilega bæði gefið trú og einnig sýnt með eftirfarandi dæmi, auk ótal annarra, bæði hvað Hann getur gert og hvað Hann vill gera. Morgun einn, þegar ég sat í herbergi mínu, hugsaði ég um neyð nokkurra af bræðrunum og sagði við sjálfan mig: „Ó, að Drottni mætti þóknast að gefa mér fjármuni til að hjálpa þessum fátæku bræðrum!“ Um klukkustund síðar voru mér send 60 pund sem gjöf til mín sjálfs frá bróður sem ég hef enn þann dag í dag aldrei séð, og sem bjó þá og býr enn í nokkur þúsund mílna fjarlægð héðan. Ætti slík reynsla, ásamt fyrirheitum eins og því sem stendur í Jóhannesarguðspjalli 14:13, 14, ekki að hvetja okkur til að biðja með allri djörfung um bæði stundlega og andlega blessun handa okkur sjálfum og öðrum? Drottinn – því ég get ekki annað en talið að það hafi verið Hann – minnti mig aftur og aftur á þessi fátæku börn, uns það leiddi að lokum til þess að stofnuð var „Biblíufræðslustofnunin fyrir heimalandið og útlönd“. Eftir að hún var stofnuð hefur sú hugsun verið lögð mér á hjarta með svipuðum hætti að stofna munaðarleysingjaheimili, fyrst fyrir um fjórtán mánuðum og ítrekað síðan, en þó einkum þessar síðustu vikur. Tíð bæn mín að undanförnu hefur verið sú að ef þetta sé frá Guði láti Hann það verða að veruleika, en ef svo sé ekki taki Hann allar hugsanir um það frá mér. Hið síðarnefnda hefur ekki gerst, heldur hef ég hallast æ meira að því að málið kunni að vera frá Honum komið. Sé svo getur Hann hreyft við fólki Sínu hvar sem er í heiminum (því að ég horfi hvorki til Bristol né heldur til Englands, heldur til hins lifandi Guðs sem á gullið og silfrið) til að trúa mér og bróður C––r, sem Drottinn hefur gert fúsan til að aðstoða mig við þetta verk, fyrir fjármununum. Þangað til við höfum fengið þá getum við ekkert aðhafst varðandi það að leigja hús, búa það húsgögnum og svo framvegis. En þegar okkur hefur verið sent nægilegt fé til þessa, ásamt hæfu fólki til að ganga til verksins, teljum við ekki nauðsynlegt að bíða uns munaðarleysingjaheimilið hefur fengið stofnsjóð eða fjölda fastra styrktaraðila sem greiða árlega. Við treystum því að Drottinn, sem hefur kennt okkur að biðja um okkar daglega brauð, geri okkur kleift að horfa til Hans um daglegar þarfir þeirra barna sem Honum kann að þóknast að fela okkur til umsjár. Tekið verður við öllum gjöfum á heimili mínu. Ef einhverjir trúaðir eiga aflögu borð, stóla, rúmgrindur, rúmföt, leirtau eða hvers kyns húsbúnað til að búa húsið, eða afganga eða búta af lérefti, líni, flóneli, klæði eða öðru efni sem nýtist í fatnað, eða þegar notuð föt, verður tekið við slíku með þökkum.Jóhannes 14:13, 14 · Biblían 1981
Hvað varðar það fólk sem þarf til að vinna verkið, sem er ekki síður mikilvægt mál en öflun fjármuna, vil ég taka fram að við horfum til Guðs Sjálfs eftir því, rétt eins og eftir fjármununum. Allir sem ráðnir verða sem forstöðumenn, forstöðukonur og aðstoðarfólk, eftir því hve lítil eða stór stofnunin verður, verða að vera okkur kunnir sem sannir trúaðir og jafnframt hæfir til starfsins, svo langt sem við getum dæmt um það.
3. Sem stendur er ekkert hægt að segja um hvenær líklegt sé að starfsemin hefjist, né heldur hvort stofnunin muni taka við börnum af báðum kynjum eða einskorðast við annaðhvort drengi eða stúlkur. Ekki er heldur hægt að segja á hvaða aldri börnin verða tekin inn eða hve lengi þau geta dvalist þar. Þótt við höfum hugleitt þessi atriði viljum við fremur láta stjórnast í þeim efnum af þeim fjármunum sem Drottinn kann að fela okkur í hendur og þeim fjölda fólks sem Hann kann að sjá fyrir til að annast rekstur stofnunarinnar. Ef Drottni skyldi þóknast að nota okkur sem verkfæri Sín verður gefin út stutt prentuð yfirlýsing jafnskjótt og hægt er að segja eitthvað ákveðnara.
4. Okkur hefur þótt rétt að taka aðeins við þeim nauðstöddu börnum sem hafa misst báða foreldra sína.
5. Ætlunin er að stúlkurnar verði aldar upp til þjónustustarfa en drengirnir til iðngreina. Því verður börnunum falið nytsamlegt starf í samræmi við getu þeirra og líkamsþrek, og þannig munu þau hjálpa til við eigin framfærslu. Auk þess er ætlunin að þau hljóti almenna grunnmenntun, en helsta og sérstaka markmið stofnunarinnar verður þó að leitast við, með blessun Guðs, að leiða þau til þekkingar á Jesú Kristi með því að fræða þau í ritningunum.
Frekari frásögn af munaðarleysingjaheimilinu o.fl.
Þegar hugsanirnar um að stofna munaðarleysingjaheimili í trausti til Drottins vöknuðu á ný í huga mínum fyrir skömmu, bað ég fyrstu tvær vikurnar aðeins um það að ef þetta væri frá Drottni komið myndi Hann láta það verða að veruleika, en ef svo væri ekki, að Honum mætti þá í náð Sinni þóknast að taka allar hugsanir um það úr huga mínum. Óvissa mín um vilja Drottins stafaði ekki af því að ég efaðist um að það væri Honum þóknanlegt að nauðstöddum föður- og móðurlausum börnum yrði búið heimili og biblíuleg menntun, heldur af því hvort það væri vilji Hans að ég yrði verkfærið til að hrinda slíku málefni í framkvæmd, þar sem ég hafði þegar meira en nóg á minni könnu. Huggun mín var þó sú að ef þetta væri vilji Hans myndi Hann ekki aðeins sjá fyrir fjármununum, heldur líka hæfu fólki til að annast börnin. Þannig myndi minn þáttur í verkinu aðeins taka svo mikinn tíma sem ég gæti varið til þess í ljósi mikilvægis málsins, þrátt fyrir mín mörgu önnur störf. Allar þessar tvær vikur bað ég Drottin aldrei um peninga eða fólk til að ganga til verksins. Hinn 5. desember breyttist bænarefni mitt hins vegar skyndilega. Ég var að lesa í Sálmunum, 81. sálmi, og staldraði sérstaklega við 11. versið, meira en nokkru sinni fyrr: „Opnaðu munn þinn vítt, og ég mun fylla hann.“ (KJV.) Ég íhugaði þessi orð í nokkur augnablik og fann mig síðan leiddan til að heimfæra þau upp á málefni munaðarleysingjaheimilisins. Það flaug í hug mér að ég hafði aldrei beðið Drottin um neitt varðandi það, nema að fá að þekkja vilja Hans um hvort stofna ætti það eða ekki. Ég féll þá á kné, lauk upp munni mínum og bað Hann um mikið. Ég bað í undirgefni við vilja Hans og án þess að ákveða hvenær Hann skyldi svara bæn minni. Ég bað þess að Hann gæfi mér hús, það er að segja annaðhvort að láni, eða að einhver yrði leiddur til að greiða húsaleiguna, eða að hús yrði gefið til frambúðar í þessu skyni. Enn fremur bað ég Hann um 1000 pund og sömuleiðis um hæft fólk til að annast börnin. Auk þessa hef ég síðan fundið mig leiddan til að biðja Drottin að leggja fólki Sínu í brjóst að senda mér húsbúnað í húsið og nokkur föt handa börnunum. Þegar ég bar fram þessa bæn gerði ég mér fulla grein fyrir því hvað ég var að gera, það er að segja að ég var að biðja um eitthvað sem engar líkur voru á, frá mannlegu sjónarmiði séð, að ég fengi frá þeim bræðrum sem ég þekki, en sem var þó ekki of mikið fyrir Drottin að veita.