Sextándi kafli
Skuggi mikillar sorgar
„Með skýjum hylur Hann ljósið.“ (Jobsbók 36:32, KJV.) Enginn maður kemst í gegnum lífið án þess að upplifa þungbúinn himin og stormasama daga, og stundum „koma skýin aftur eftir regnið“. Það er blessunarrík reynsla að koma auga á silfurröndina á dekksta óveðursskýinu. Enn betra er þó að vera viss um að ljós Guðs skíni á bak við himin sem virðist algerlega og vonlaust alskýjaður.
Árið 1870 verður ævinlega minnst með trega vegna andláts frú Müller. Hún lifði einmitt nógu lengi til að sjá síðasta nýja munaðarleysingjaheimilið opnað. Frá upphafi starfsins í nóvember 1835, í meira en þrjátíu og fjögur ár, hafði þessi elskaða og trúfasta eiginkona einnig verið honum skilningsrík hjálparhella.
Hjónaband þeirra hafði komist mjög nærri fyrirmynd hjónabandssælu. Þau hæfðu hvort öðru vel, áttu sameiginlega trú á Guð og kærleika til verks Hans og höfðu lengi verið sameinuð í bæn og þjónustu. Hjá þeim tóku tilhugalífsdagarnir aldrei enda. Hin blíða, nærgætna og gagnkvæma umhyggja þessara fyrstu daga jókst fremur en hitt eftir því sem árin liðu. Þar sannaðist og birtist sú mikla lífsregla að leyndardómurinn á bak við það að vinna ást er sá sami og að varðveita hana. Og ekki nóg með það, heldur vex slík væntumþykja og verður æ meira að lind gagnkvæmrar gleði. Aldrei hafði hans elskaða „Mary“ verið eiginmanni sínum jafn dýrmæt og einmitt árið sem hún kvaddi þennan heim.
Þetta hjónaband var svo hamingjuríkt að Müller gat ekki stillt sig um að bera henni það kærleiksríka vitni að hann hefði aldrei nokkru sinni litið hana augum, eftir að hún varð kona hans, án þess að finna til nýrrar gleði. Dag hvern vöndu þau sig á að finna að minnsta kosti örfárra augnablika hvíld saman. Þá sátu þau hönd í hönd eftir miðdegisverðinn í innilegu samfélagi huga og hjarta, sem varð enn fullkomnara við þessa líkamlegu snertingu, og áttu samfélag í Drottni, hvort sem var í tali eða þögn. Hamingja þeirra í Guði og hvort í öðru var sígræn og óslitin og óx eftir því sem árin liðu.
Djúp sannfæring Müllers var sú að öll þessi hjónabandssæla stafaði af því að hún var ekki aðeins einlæg kristin kona, heldur var eina sameiginlega markmið þeirra að lifa eingöngu og í einu og öllu fyrir Guð. Þau höfðu alltaf næg verkefni fyrir Guð sem þau stóðu heilshugar saman að. Þessari vinnu var þó aldrei leyft að koma í veg fyrir að þau ræktuðu eigin sálir eða tækju sér tíma til einkabæna og rannsóknar á Ritningunni. Auk þess vöndu þau sig á að taka sér tíma daglega, og oft þrisvar á dag, til sameiginlegrar bænar og lofgjörðar. Þá báru þau fram fyrir Drottin þau málefni sem kölluðu á þakkargjörð og bænabeiðni hverju sinni.
Frú Müller hafði aldrei verið mjög hraust kona og oftar en einu sinni hafði hún verið komin í dauðans greipar. Í október 1859, eftir tuttugu og níu ára hjónaband og kærleika, hafði gigt lagt hana í rúmið. Hún þjáðist mikið í um það bil níu mánuði, algerlega ósjálfbjarga og ófær um að vinna. Það þótti þó sérstakt merki um kærleika Guðs og trúfesti að Hann skyldi einmitt nota þessa raun til að endurheimta heilsu hennar og þrótt. Að mati Müllers varð þessi nauðungarhvíld, sem varð óhjákvæmileg stærstan hluta ársins, til þess að lengja líf hennar og þjónustutíma um þau tíu ár sem á eftir fóru. Þannig hafði hörð prófraun, sem þau mættu bæði í trú, leitt til mikillar blessunar fyrir bæði sál og líkama.
Lokastundir þessa fagra lífs eru nánast of helgar til að svipta megi hulunni af þeim fyrir augum almennings. Nokkur ár fyrir andlát hennar var augljóst að heilsu hennar og lífsþrótti fór hrakandi. Þó gekk erfiðlega að telja hana á að draga úr störfum sínum eða leyfa að kallaður væri til læknir, jafnvel þegar kvalafullur hósti sótti að henni. Eiginmaður hennar vakti yfir henni og hjúkraði henni af mikilli natni. Með því að gæta vel að mataræði og hvíld, forðast óþarfa vosbúð og leita stöðugt í bænina, tókst að halda í henni lífinu þrátt fyrir mikið máttleysi og stundum miklar kvalir. En á laugardagskvöldið 5. febrúar fann hún að hún hafði misst máttinn í einum útlim sínum og þá var ljóst að endalokin nálguðust. Hugur hennar sjálfrar var skýr og friður ríkti í hjarta hennar. Sjálf hafði hún á orði: „Hann kemur bráðum.“ Og fáeinum mínútum eftir klukkan fjögur síðdegis á degi Drottins, hinn 6. febrúar 1870, hvarf hún ljúflega frá jarðnesku striti og þrautum til að vera að eilífu hjá Drottni.
Undir fargi slíkrar sorgar hefðu flestir menn sokkið niður í næstum vonlausa örvæntingu. En þessi Guðs maður, sem studdur var guðlegum kærleika, leitaði þegar í stað að tilefnum til þakkargjörðar. Í stað þess að mögla yfir missi sínum minntist hann með þakklæti gæsku Guðs og skráði hana hjá sér – að Hann skyldi taka slíka eiginkonu til Sín og leysa heilaga sál hennar úr fjötrum veikleika, veikinda og þjáninga, fremur en að láta hana búa við langvarandi kvalir og þögla angist ósjálfbjarga ástands. Og umfram allt þakkaði hann fyrir að Guð skyldi leiða hana inn í það sem hjarta hennar þráði heitast: hina beinu nærveru Drottins Jesú og æðri þjónustu á himnesku sviði. Er sú sorg ekki skyld eigingirni sem dvelur svo mjög við okkar eigin missi að hún gleymir hinum dýrðlega ávinningi hinna burtkölluðu heilögu, sem eru horfnir frá okkur og fjarri líkamanum, en komnir heim til Drottins?
Það er aðeins í slíkum eldraunum, sem reynast venjulegum mönnum ofurþung byrði, að skilyrðislaus trú á óbrigðula visku og kærleika Föðurins sýnir sinn fulla mátt til að halda manni uppi. Þar sem eigin vilji hverfur í sannleika inn í vilja Guðs, birtist lífið sem er falið í Honum hvað skærast á myrkustu stundinni.
Andlát þessarar elskuðu eiginkonu var skýrt dæmi um þetta. Fáeinum klukkustundum eftir fráfall hennar, sem hafði deilt með honum áætlunum og störfum allra þessara löngu þjónustuára, fór Müller á bænastundina á mánudagskvöldinu, sem þá var haldin í Salem-kapellu, til að sameina bænir sínar og lofgjörð að vanda við bænir bræðranna. Með bókstaflega ljómandi andliti reis hann á fætur og sagði: „Elskaðir bræður og systur í Kristi, ég bið ykkur að sameinast mér í innilegri lofgjörð og þakkargjörð til míns dýrmæta Drottins fyrir miskunnsemi Hans, að hafa tekið mína heittelskuðu eiginkonu burt úr þeim sársauka og þjáningum sem hún hefur þolað og inn í Sína eigin nærveru. Og líkt og ég gleðst yfir öllu sem er henni til hamingju, þannig gleðst ég nú þegar ég geri mér grein fyrir hve miklu sælli hún er að fá að líta Drottin sinn, sem hún elskaði svo heitt, heldur en í nokkurri þeirri gleði sem hún hefur þekkt eða hefði getað þekkt hér. Ég bið ykkur einnig að biðja þess að Drottinn geri mér þannig kleift að eiga hlutdeild í gleði hennar, að mitt sorgmædda hjarta megi vera upptekið af sælu hennar í stað míns ósegjanlega missis.“ Þessi merkilegu orð eru höfð eftir manni sem sjálfur var viðstaddur og þau greyptust svo í minni hans að þau gleymdust aldrei.
Þessi atburður hafði djúp áhrif á alla sem voru á samkomunni. Allir þekktu frú Müller sem afar dýrmæta, elskulega og guðrækna konu og eiginkonu. Eftir nærri fjörutíu ára hjónaband og kærleika hafði hún yfirgefið hið jarðneska heimili fyrir hið himneska. Eiginmanni sínum hafði hún verið ólýsanleg blessun og dóttur sinni, Lydíu, í senn vitur og blíð móðir og skilningsríkur félagi. Missir þeirra beggja varð aldrei bættur hér á jörð. Samt var þessum Guðs manni gefin náð við þessar aðstæður til að gleyma hinum óbætanlega missi sínum og dóttur sinnar, og lofa Guð fyrir hinn ósegjanlega ávinning hinnar burtkölluðu eiginkonu og móður.
Líkami hennar var lagður til hinstu hvíldar 11. febrúar og mörg þúsund syrgjandi vinir sýndu dýpstu samúð. Tólf hundruð munaðarlaus börn gengu í líkfylgdinni ásamt öllu starfsliðinu, að svo miklu leyti sem hægt var að missa það frá heimilunum. Hinn sorgmæddi eiginmaður, sem var á undraverðan hátt studdur af armi hins almáttuga Vinar sem hann treysti á, tók sjálfur að sér útfararathöfnina bæði í kapellunni og í kirkjugarðinum. Hann veiktist alvarlega á eftir, en um leið og kraftar hans leyfðu flutti hann útfararræðu eiginkonu sinnar – og var það önnur ógleymanleg stund. Hin yfirnáttúrulega ró og friður hans í nærveru slíkrar sorgar varð til þess að læknir hans sagði við vin sinn: „Ég hef aldrei áður séð jafn ómennskan mann.“ Já, ómennskur í þeim skilningi að vera hafinn yfir hið mennska, þótt hann væri fjarri því að vera ómanneskjulegur – hafinn upp yfir veikleika mannlegs eðlis fyrir kraft sem ekki er frá mönnum kominn.
Sú útfararræða var göfugur vitnisburður um gæsku Drottins, jafnvel í þessari miklu raun lífs hans. Ritningartextinn var:
„Þú ert góður og gjörir vel.“ (Sálmarnir 119:68.)Sálmarnir 119:68 · Biblían 1981
Ræðunni var skipt í þrjá hluta: „Drottinn var góður og gerði vel: í fyrsta lagi með því að gefa mér hana, í öðru lagi með því að leyfa mér að hafa hana svo lengi, og í þriðja lagi með því að taka hana frá mér.“ Ræðan hefur sem betur fer varðveist í dagbók Müllers og hana þarf að lesa til að meta hana að verðleikum.*
* Narrative, III. 575-594.
Þetta hjónaband, sem hófst í bæn, var helgað í bæn allt til enda. Mesti kostur frú Müller fólst í einlægri guðrækni hennar. Hún bar það eina skraut sem er dýrmætt í augum Guðs – hógværan og kyrrlátan anda; og yndisleiki Drottins Guðs hennar hvíldi yfir henni. Hún hafði af samúð deilt bænum og tárum eiginmanns síns á öllum hinum langa reynslutíma trúar og þolinmæði, og tekið þátt í allri gleði og uppskeru sigurstundanna. Engu þarf að bæta við vitnisburð Müllers sjálfs um hana, því þar talar sá sem þekkti hana lengst og best. Hann skrifar:
„Hún var gjöf frá Guði sjálfum og hæfði mér fullkomlega, jafnvel að skapgerð til. Þúsundum sinnum sagði ég við hana: ‚Elskan mín, Guð sjálfur valdi þig handa mér sem þá hæfustu eiginkonu sem ég hefði nokkurn tíma getað óskað mér.‘“
Hvað menntun varðar hafði hún traustan grunn í skynsamlegu og hagnýtu námi. Ofan á það bættust ýmsar fágaðar menntir sem hæfðu hefðardömum, en í hjónabandi sínu hafði hún hvorki tíma né löngun til að sinna þeim. Hún var ekki aðeins fær í tungumálum og æðri fræðum á borð við stjörnufræði, heldur einnig í stærðfræði. Sá hæfileiki gerði hana að ómetanlegri hjálp fyrir eiginmann sinn í þrjátíu og fjögur ár, þegar hún fór í hverjum mánuði yfir allar bókhaldsbækurnar og hundruð reikninga frá forstöðukonum munaðarleysingjaheimilanna og kom auga á minnstu villu með glöggskyggni sérfræðingsins.
Öll þjálfun hennar og meðfæddir hæfileikar báru vitni um að forsjónin hefði búið hana undir þetta starf, svo að hún var þar alveg á réttri hillu. Hagnýt menntun hennar í hannyrðum og þekking á því hvaða efni dugðu best til ýmissa heimilisnota gerðu hana vel í stakk búna til að stjórna bæði innkaupum og saumaskap á klæðum og öðrum vefnaði í fatnað, rúmföt og fleira. Hún fór um munaðarleysingjaheimilin eins og engill kærleikans og hafði óeigingjarna ánægju af jafn auðmjúkri þjónustu og þeirri að búa um snyrtileg og hrein rúm handa litlu börnunum til að hvílast í, og breiða hlý teppi ofan á þau í kuldatíð. Vegna Hans, sem tók lítil börn í faðm Sinn, varð hún þessum þúsundum allslausra, munaðarlausra barna sem umhyggjusöm móðir.
Skömmu eftir andlát hennar barst bréf frá trúuðu munaðarlausu barni sem hafði verið sent út í vist um sautján árum áður. Í bréfinu var beðið um leyfi, einnig fyrir hönd annarra sem áður höfðu dvalið á heimilunum, til að reisa legstein yfir gröf frú Müller sem vott um kærleika og þakkláta minningu. Þegar samþykki hafði verið veitt bárust hundruð lítilla gjafa frá munaðarlausum börnum sem höfðu notið móðurlegrar umsjár hennar á liðnum tuttugu og fimm árum. Þetta var fallegur vitnisburður um ágæti hennar og hrífandi fórnargjöf frá þeim sem höfðu verið henni sem stóra fjölskyldan hennar.
Kæra dóttirin Lydía hafði tveimur árum fyrir andlát frú Müller fundið heilagt minnisblað með rithönd móður sinnar í einni af vasabókum hennar. Hún sýndi sorgmæddum föður sínum það tveimur dögum eftir að eiginkona hans lést. Það telst til dýrmætustu minja úr sögu hennar og hljóðar svo:
„Ef Drottni skyldi þóknast að kalla M. M. [Mary Müller] burt með skyndilegum hætti, þá látið engan hinna elskuðu eftirlifenda líta svo á að það sé í refsingarskyni, hvorki gagnvart henni né þeim. Hún hefur svo oft, þegar hún hefur notið meðvitaðrar nándar við Drottin, fundið hve ljúft það væri að fara héðan núna og vera að eilífu með Jesú, að ekkert nema það áfall sem það yrði fyrir hennar elskaða eiginmann og barn o.s.frv. hefur haldið aftur af þeirri heitu þrá hennar að sæll andi hennar fengi þannig að hefja sig til flugs. Dýrmæti Jesús! Verði Þinn vilji í þessu sem í öllu öðru, en ekki hennar!“
Þessi orð voru Müller hinsta arfleiðsla hennar. Með þá huggun sem þau veittu honum, hina kærleiksríku samúð sinnar dýrmætu Lydíu, sem gerði allt sem dóttir gat gert til að fylla skarð móður, og í minningunni um Hann sem hefur sagt: „Ég mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig,“ hélt hann áfram sinni einmana pílagrímsför. Hann gladdist í Drottni, en fann þó fyrir sári í hjarta sínu sem virtist fremur dýpka en gróa.
Sextán mánuðir liðu og þá bað herra James Wright, sem líkt og Müller hafði misst lífsförunaut sinn, hann um hönd hinnar elskuðu Lydíu. Beiðnin kom Müller algerlega á óvart, en hann fann að engum manni á lífi gæti hann með meiri gleði og trausti falið og trúað fyrir sínum dýrmætasta jarðneska fjársjóði sem hann átti eftir. Þar sem hann bar alltaf meiri umhyggju fyrir hamingju annarra en sinni eigin, hvatti hann dóttur sína til að þekkjast kærleiksboð herra Wrights, þegar hún hikaði eðlilega vegna föður síns. Þann 16. nóvember 1871 gengu þau í hjónaband og hófu líf í sameiginlegri bæn og samhug sem, líkt og hjónaband föður hennar og móður, reyndist í hæsta máta og nánast fullkomlega hamingjuríkt, hjálplegt og gagnlegt.
Meðan þessi ráðahagur var enn í vændum fann Müller sárt til einmanaleika síns, og þó enn frekar í ljósi þess að dóttir hans myndi brátt flytjast á heimili eiginmanns síns. Hann fann þörf fyrir einhvern til að deila í einlægni erfiði sínu og bænum og hjálpa sér í verki Drottins. Sú sannfæring óx innra með honum að það væri vilji Guðs að hann kvæntist á ný. Eftir mikla bæn ákvað hann að biðja ungfrú Susönnu Grace Sangar um að verða eiginkona sín, en hann hafði þekkt hana í meira en tuttugu og fimm ár sem trúfastan lærisvein og taldi hana vel til þess fallna að verða sér hjálparhella í Drottni. Fjórtán dögum eftir brúðkaup dóttur sinnar og herra Wrights gekk hann því í hjónaband með ungfrú Sangar, sem á komandi árum stóð með honum í bæn, óeigingjörnum gjöfum og starfi til heilla fyrir sálir.
Síðari frú Müller var á einu máli með eiginmanni sínum um ráðsmennsku yfir eigum Drottins. Hann fann hana fátæka, því hún hafði tapað því sem hún hafði eitt sinn átt. Hefði hún verið rík hefði hann litið á auðæfi hennar sem hindrun í vegi hjónabands og talið þau gera hana óhæfa til að vera lífsförunautur hans í sjálfsafneitun sem byggðist á meginreglum Ritningarinnar. Ríkidæmi eða uppsafnaður auður hefði orðið þeim báðum að snöru, og þannig leit hún einnig á málið. Þar sem hún átti enn eftir tvö hundruð pund fyrir giftingu sína, lagði hún þau þegar í stað fram til umráða fyrir Drottin og gekk þannig til liðs við eiginmann sinn í lífi sjálfviljugrar fátæktar. Þótt henni væru síðar greiddar út arfleiðslur, hélt hún áfram að vera fátæk vegna Drottins allt til dauðadags.
Müller hafði oft verið spurður að því hvað yrði um starfið þegar hann, sjálfur verkstjórinn, félli frá. Mönnum reynist erfitt að líta af verkfærinu og muna að í raun og veru er aðeins einn VERKANDI, því verkandi er sá sem vinnur verkið, en verkfærið er það sem hann vinnur með. Þótt hægt væri að gera ráðstafanir með stjórn trúnaðarmanna til að halda starfinu fyrir munaðarleysingjana áfram, hvar myndi þá finnast maður til að taka við stjórn þess – maður sem hefði anda svo skyldan anda stofnandans að hann myndi treysta Guði og reiða sig á Hann alveg eins og Müller hafði gert á undan honum? Slíkar voru spurningar þeirra nokkuð efins eða óttaslegnu áhorfenda sem fylgdust með hinu mikla og margþætta starfi sem unnið var undir umsjón Müllers.
Við öllum slíkum spurningum átti hann alltaf eitt svar á reiðum höndum – sína einu og sömu lausn á öllum áhyggjum og ráðaleysi: hinn lifandi Guð. Sá sem hafði reist munaðarleysingjaheimilin gat haldið þeim við. Sá sem hafði vakið upp einn auðmjúkan mann til að hafa umsjón með verkinu í Sínu nafni gat séð fyrir verðugum eftirmanni, líkt og Jósúa sem ekki aðeins fylgdi Móse heldur tók einnig við hlutverki hans. Jehóva allsherjar er ekki takmarkaður í úrræðum Sínum.
Engu að síður var mikið beðið um að Drottinn myndi sjá fyrir slíkum eftirmanni, og í herra James Wright var þeirri bæn svarað. Hann var ekki valinn af því að hann væri tengdasonur Müllers, því valið fór fram áður en honum hafði nokkurn tíma komið til hugar að kvænast Lydíu Müller. Í meira en þrjátíu ár, allt frá því að hann var drengur, hafði Müller þekkt herra Wright vel og fylgst með vexti hans í því sem Guðs er. Hann hafði þegar verið „hægri hönd“ hans í þrettán ár í öllum mikilvægustu málum. Nánast allan þann tíma höfðu Müller-hjónin borið hann fram fyrir Guð í bænum sínum sem eftirmann hans, og voru þau bæði fullvissuð af Guði um að Hann myndi gera hann æ hæfari til að axla alla ábyrgðina.
Þegar eiginkonan sofnaði í Jesú árið 1870 og Müller var sjálfur veikur, opnaði hann hjarta sitt fyrir herra Wright varðandi það að hann tæki við af sér. Auðmýkt varð til þess að hann veigraði sér við slíkri stöðu og eiginkona hans á þeim tíma óttaðist að hún yrði honum of þungbær. En allar mótbárur viku þegar þeir sáu og fundu að þetta var köllun Guðs. Tuttugu og einum mánuði eftir þetta, í nóvember 1871, kvæntist herra Wright einkadóttur og eina barni Müllers. Því er alveg ljóst að hann hafði hvorki sóst eftir þeirri stöðu sem hann gegnir nú, né heldur var hann skipaður í hana vegna þess að hann væri tengdasonur Müllers, því á þeim tíma var fyrri eiginkona hans á lífi og við góða heilsu. Frá maí 1872 deildi herra Wright því ábyrgðinni á stofnuninni með tengdaföður sínum. Hann veitti honum mikla gleði sem samverkamaður og eftirmaður, enda var hann í fullum samhljómi við allar þær miklu meginreglur sem starf hans hafði byggst á.
Rúmum þremur árum eftir síðara brúðkaup Müllers, í mars 1874, veiktist frú Müller. Tveimur dögum síðar fékk hún sótthita og óværð, og eftir um það bil tvær vikur fékk hún blæðingu sem færði hana einnig mjög nærri hliðum dauðans. Hún hjarnaði við, en þá fylgdi sótthiti, óráð og þrálátt svefnleysi, þar til hún virtist í annað sinn komin í dauðans greipar. Lífsþróttur hennar var raunar orðinn svo lítill að jafnvel 17. apríl sagði afar reyndur læknir frá Lundúnum að hann hefði aldrei vitað neinn sjúkling ná sér eftir slík veikindi. Þannig virtist í þriðja sinn öll mannleg von um bata úti. Og samt var frú Müller reist við sem svar við bæn. Í lok maí var farið með hana út að sjó til að skipta um loftslag og þar efldist hún ört uns hún hafði náð fullri heilsu á ný. Þannig þyrmdi Drottinn lífi hennar til að hún gæti verið lífsförunautur eiginmanns síns á þeim árum kristniboðsferðalaga sem gerðu honum kleift að bera vitni um víða veröld. Úr skugga sorga sinna kom þessi elskaði Guðs maður ávallt fram til að finna þá guðlegu endurnæringu sem er sem „skuggi af stórum hamri í vatnslausu landi“.