Viðauki
C. Skilnaðurinn við Lundúnafélagið
Það varð mér mikið alvörumál að íhuga hvort ég gæti áfram verið tengdur félaginu á venjulegan hátt. Helstu mótbárur mínar voru þessar: 1. Ef félagið sendi mig út og ég færi frá Englandi var meira en líklegt, og raunar nánast nauðsynlegt, að ég starfaði á meginlandinu. Heilsa mín leyfði ekki að ég væri sendur til Austurlanda, því að hún hefði líklega beðið hnekki, bæði vegna loftslagsins og vegna þess að ég hefði þurft að læra önnur tungumál. Ef ég færi hins vegar til meginlandsins var ljóst að ég gæti ekki fengið neinn víðtækan starfsvettvang nema ég væri vígður, þar sem óvígðum prédikurum er yfirleitt meinað að starfa þar óhindrað. Samviska mín leyfði mér samt ekki að láta ófrelsaða menn vígja mig, menn sem sögðust hafa vald til að taka mig frá til þjónustunnar eða veita mér eitthvað til þessa verks sem þeir búa ekki yfir sjálfir. Auk þessa hafði ég aðrar mótbárur gegn því að tengjast nokkurri ríkiskirkju eða opinberri trúarstofnun. Þær spruttu af því aukna ljósi sem ég hafði öðlast þegar ég tók við þeim sannleika að orð Guðs er eini mælikvarði okkar og heilagur andi eini kennari okkar. Þegar ég fór nú að bera það sem ég þekkti til þjóðkirkjunnar á Englandi og slíkra kirkjustofnana á meginlandinu saman við þennan eina sanna mælikvarða, orð Guðs, komst ég að raun um eitt. Allar slíkar kirkjustofnanir – einmitt vegna þess hvað þær eru, það er að segja heimurinn og kirkjan í einni blöndu – fela ekki aðeins í sér grundvallarreglur sem hljóta óhjákvæmilega að leiða til fráhvarfs frá orði Guðs, heldur útiloka þær líka algerlega, svo lengi sem þær eru slíkar stofnanir, að hægt sé að breyta í einu og öllu samkvæmt heilagri ritningu. Ef ég yrði aftur á móti um kyrrt á Englandi myndi félagið ekki leyfa mér að prédika hvar sem væri án aðgreiningar, þar sem Drottinn kynni að opna mér dyr. Og ég hafði enn meiri mótbárur gegn því að láta enska biskupa vígja mig en prússneskt kirkjuráð.
2. Þá var það einnig gegn samvisku minni að láta menn leiða mig og segja mér fyrir verkum í kristniboðsstarfi mínu. Mér virtist sem mér bæri, sem þjóni Krists, að láta andann leiða mig en ekki menn, bæði hvað varðaði tíma og stað. Þetta segi ég með fullri virðingu fyrir öðrum sem kunna að vera mun fróðari og andlegri í hugsun en ég. Þjónn Krists á sér aðeins einn meistara.
3. Ég bar kærleika til Gyðinga og mér hafði verið gert kleift að sanna það. Samt gat ég ekki með góðri samvisku sagt, eins og nefndin myndi vænta af mér, að ég myndi verja mestöllum tíma mínum eingöngu meðal þeirra. Mér virtist sú stefna sem ritningin boðar vera sú að þegar ég kæmi á einhvern stað ætti ég að leita uppi Gyðinga og hefja starf mitt sérstaklega meðal þeirra. En ef þeir höfnuðu fagnaðarerindinu ætti ég að snúa mér til þeirra sem voru kristnir að nafninu til. Því meira sem ég vó og mat þessi atriði, þeim mun ljósara varð mér að ég myndi sýna hræsni ef ég leyfði þeim að búa í huga mér án þess að gera nefndinni grein fyrir þeim.