Fjórtándi kafli
Bygging Guðs: nýju munaðarleysingjaheimilin
Hve margbrotin eru verk forsjár Guðs! Sumir atburðir eru í sjálfu sér örlagaríkir. Líkt og hjólin í sýn Esekíels – þar sem eitt hjólið var innan í öðru hjóli – fela þeir í sér aðrar afleiðingar í dularfullu gangverki sínu og marka tímamót í sögunni. Slíkur tímamótaatburður var bygging fyrsta nýja munaðarleysingjaheimilisins á Ashley Down.
Eftir október 1845 varð Müller ljóst að Drottinn leiddi hann í þessa átt. Íbúar við Wilson Street höfðu kvartað undan hávaðanum í börnunum, einkum á leiktímum. Leikvellirnir voru ekki lengur nógu stórir fyrir svo mörg munaðarlaus börn. Frárennslinu var ábótavant og staðsetning leiguhúsanna hentaði illa með tilliti til hollustuhátta. Einnig var æskilegt að fá land til ræktunar og útvega þannig piltunum útivinnu og svo framvegis. Þetta voru nokkrar af þeim ástæðum sem virtust kalla á að reist yrði nýtt munaðarleysingjaheimili. Sú sannfæring styrktist jafnt og þétt að öllum sem hlut áttu að máli yrði það til mestrar farsældar ef hægt væri að finna hentuga lóð og reisa þar hús sem væri sniðið að þessu hlutverki.
Ýmis rök mæltu þó gegn byggingunni og voru þau vegin og metin af kostgæfni. Þörf yrði á háum fjárupphæðum, og bæði undirbúningur og framkvæmdir myndu reyna mjög á tíma og krafta. Visku og yfirsýnar yrði þörf á hverju stigi verksins. Þá vaknaði einnig sú spurning hvort svo varanleg mannvirki hæfðu pílagrímum Guðs, sem eiga hér enga varanlega borg og trúa því að endir allra hluta sé í nánd.
Þolgæði í bæninni færði honum þó hljóða og rólega sannfæringu um að önnur og jákvæðari rök vægju þyngra en allar mótbárur. Eitt atriði þótti sérlega veigamikið: Ef Guð legði til stórar fjárhæðir í þessu skyni myndi það sýna enn betur hve mikinn mátt bæn sem beðið er í trú hefur til að kalla fram hjálp að ofan. Nógu rúmgóð lóð myndi strax í upphafi kosta þúsundir punda, en hvers vegna ætti það að skjóta sannu Guðs barni skelk í bringu þegar Faðir þess er óendanlega ríkur? Dag eftir dag leituðu Müller og samverkamenn hans leiðsagnar Guðs. Eftir því sem trúin nærðist á þessu daglega brauði samfélagsins við Hann styrktist sú vissa að hjálpin myndi berast. Brátt var Müller jafn viss um þetta og ef byggingin stæði þegar fyrir augum hans, þótt ekki eitt einasta pens hefði borist í þessu skyni í fimm vikur. Á meðan rannsakaði hann eigið hjarta í þaula til að ganga úr skugga um hvort nokkur eigingjörn hvöt hefði ósýnileg áhrif á vilja hans. En þessi stranga sjálfskoðun leiddi engan annan meðvitaðan tilgang í ljós en þann að vegsama Guð með því að vinna að velferð munaðarlausra barna og vekja alla sem yrðu vitni að verkinu til aukins trausts á Guði. Því var það metið svo að það væri vilji Guðs að hann héldi áfram.
Í nóvember þetta ár fékk hann mikla uppörvun þegar trúaður bróðir* kom í heimsókn og hvatti hann til að halda verkinu áfram. Hann brýndi þó jafnframt viturlega fyrir honum að biðja um visku að ofan við hvert fótmál og leita hjálpar Guðs við gerð uppdráttar að húsinu, svo að öll smáatriði væru í samræmi við huga Guðs. Á þrítugasta og sjötta degi eftir að fyrst var farið að biðja sérstaklega fyrir þessu nýja húsi, þann 10. desember 1845, bárust Müller eitt þúsund pund í þessu skyni. Þetta var hæsta upphæð sem borist hafði í einni gjöf frá því að starfið hófst þann 5. mars 1834. Engu að síður var hann jafn rólegur og yfirvegaður og ef gjöfin hefði aðeins numið einum skildingi. Hann hafði fulla trú á Guði, að Hann bæði leiddi og sæi fyrir öllu, og skrifar að það hefði ekki komið sér á óvart þótt upphæðin hefði verið fimm eða tíu sinnum hærri.
* Robert C. Chapman frá Barnstaple, sem enn er á lífi og Müller mat mikils sem „elsta vin“ sinn.
Þremur dögum síðar bauðst kristinn arkitekt í Lundúnum að fyrra bragði til að teikna ekki aðeins uppdrættina, heldur einnig að hafa umsjón með byggingarframkvæmdunum endurgjaldslaust! Þetta tilboð hafði komið til með svo undarlegum hætti að eðlilegt var að líta á það sem nýtt tákn og sönnun um velþóknun Guðs og nýtt fyrirheit um örugga hjálp Hans. Mágkona Müllers var í heimsókn í höfuðborginni og hafði hitt þennan arkitekt. Þegar hún fann hve áhugasamur hann var um að fá að vita meira um starfið, sem hann hafði lesið um í frásögninni, sagði hún honum frá fyrirhugaðri byggingu. Hann gerði þá þetta höfðinglega tilboð með glöðu geði, án þess að hún hefði á nokkurn hátt farið fram á það eða búist við því. Hún hafði ekki gengið á eftir arkitektinum á neinn hátt, heldur fylgdi hann sjálfur tillögu sinni fast eftir, knúinn áfram af djúpum áhuga á starfinu í þágu munaðarlausra barna. Á innan við fjörutíu dögum höfðu þannig fyrstu þúsund pundin verið gefin sem svar við bæn, auk þess sem guðrækinn maður, sem Müller hafði hvorki séð né þekkti nokkuð til, hafði fengið innblástur um að bjóða fram þjónustu sína við að teikna nýja húsið og hafa umsjón með því að reisa það. Sannarlega fór Guð á undan þjóni Sínum.
Fyrir mann sem átti ekki eyri sjálfur krafðist það ekki lítillar trúar að hætta sér út í að reisa slíkt hús af þessari stærðargráðu, án þess að leita til manna og í algjöru trausti á Guð einan.
Maður skynjar ekki til fulls alla þá áhættu sem fólst í slíku stórvirki, né heldur allan kraft þess vitnisburðar sem það hefur síðan borið um Guð sem bænheyrir, nema maður geri sér grein fyrir öllum þunga ábyrgðarinnar og taki allar kringumstæður með í reikninginn.
Í fyrsta lagi þurfti að kaupa land sem væri sex eða sjö ekrur að stærð, og lóðin varð að vera í Bristol eða í nágrenni hennar. Almennur starfsvettvangur Müllers var nefnilega í borginni, og munaðarlausu börnin og aðstoðarfólk þeirra þurftu að vera í hæfilegri fjarlægð frá sínum fasta samkomustað. Af mörgum öðrum ástæðum var slík nálægð við borgina einnig æskileg. En slík lóð myndi kosta tvö til þrjú þúsund pund.
Næst þurfti að reisa húsið, innrétta það og búa húsgögnum og húsbúnaði, þannig að þar væri rými fyrir þrjú hundruð munaðarlaus börn ásamt umsjónarmönnum þeirra, kennurum og ýmsu aðstoðarfólki. Hversu einföld sem byggingin og húsbúnaðurinn yrðu, myndi heildarkostnaðurinn nema þreföldu til fjórföldu verði lóðarinnar.
Þá myndi árlegur rekstrarkostnaður við að halda slíku húsi opnu og sjá svo stórum hópi heimilisfólks farborða nema fjórum eða fimm þúsund pundum til viðbótar.
Hér var því fram undan útgjaldaliður upp á tíu til fimmtán þúsund pund fyrir lóð og byggingu, og þar að auki árlegur kostnaður sem nam þriðjungi þeirrar upphæðar. Engum manni jafn fátækum og George Müller, sem jafnframt væri með réttu ráði, hefði nokkurn tíma dottið svo risavaxið áform í hug, hvað þá að hann hefði ráðist í að hrinda því í framkvæmd, ef trú hans og von hefðu ekki verið fastbundnar við Guð. Müller játar sjálfur að í þessu hafi allur leyndardómur hans falist. Hann var ekki knúinn áfram af neinni eigingirni, heldur dreginn áfram af þeirri sannfæringu að hann væri að gera vilja Guðs. Þegar Konstantínus var að leggja drög að hinni nýju höfuðborg við Bospórussund í stórum stíl svaraði hann efasemdum manna í kringum sig, sem undruðust dirfsku hans, með því einu að segja: „Ég fylgi Þeim sem leiðir mig.“ Áform George Müllers var ekki sprottið frá honum sjálfum. Hann fylgdi Þeim sem leiddi hann, og vegna þess að hann var öruggur og meðvitaður um þá leiðsögn þurfti hann aðeins að fylgja, treysta og bíða.
Því stærra sem verkefnið var, þeim mun heitar þráði hann að hönd Guðs sæist sem allra skýrast. Þess vegna gætti hann þess að trana sér hvergi fram. Hann gaf ekki út neitt dreifibréf til að kynna áform sitt og ræddi það aðeins við þá fáu sem voru í trúnaðarráði hans, og jafnvel þá aðeins ef talið barst í þá átt. Hann minntist fyrirheitisins: „Ég vil vísa þér veginn með auga Mínu“ (Sálmarnir 32:8, KJV), og leit upp til Guðs. Hann steig ekkert skref nema augnaráð eða bending Guðs gerði skylduna „skýra sem dagsljósið“. Eins og hann leit á málið var hans eina hlutverk að bíða frammi fyrir Guði í bæn með trú og þolinmæði.
Vissan varð tvöfalt sterkari um að Guð myndi reisa Sér stórt munaðarleysingjaheimili nálægt Bristol til að sýna öllum, nær og fjær, hve blessuð forréttindi það eru að treysta Honum. Hann þráði að Guð sjálfur starfaði svo augljóslega að allir menn sæju að Müller væri ekkert annað en verkfæri Hans, viljalaust tæki í höndum Hans. Á meðan hélt hann áfram daglegri rannsókn sinni í Orðinu. Þar fann hann svo auðuga fræðslu og svo tímabæra uppörvun að Ritningin virtist skrifuð sérstaklega handa honum til að færa honum boðskap að ofan. Til dæmis sá hann í upphafi Esrabókar hvernig Guð fór að þegar tími Hans var fyllilega kominn til að hinn útlægi lýður Hans sneri aftur inn í land sitt og endurreisti musteri Hans. Þá notaði Hann Kýrus, konung sem dýrkaði skurðgoð, til að gefa út tilskipun og leggja til fé svo að óþekktur tilgangur Hans næði fram að ganga. Hann sá einnig hvernig Guð vakti fólkið til að hjálpa útlögunum sem sneru heim við verk þeirra. Og hann sagði við sjálfan sig að þessi sami Guð gæti og myndi, á Sinn eigin hátt, leggja til peningana og alla þá mannlegu aðstoð sem þyrfti, og vekja hjörtu barna Sinna til að liðsinna eins og Honum þóknaðist.
Fyrstu gjafirnar til verksins fela í sér lærdómsríka lexíu. Þann 10. desember höfðu eitt þúsund pund verið gefin í einu lagi; tuttugu dögum síðar bættust við fimmtíu pund, og daginn eftir þrír skildingar og sex pens, og sama kvöld barst önnur gjöf upp á þúsund pund. Skömmu síðar var lítil taska, gerð úr erlendum fræjum, send ásamt blómi sem unnið var úr skeljum, og átti að selja hvort tveggja til ágóða fyrir sjóðinn. Með þessum síðastnefndu gjöfum, sem höfðu mjög lítið veraldlegt gildi í sjálfu sér, var vitnað í fyrirheit sem hafði verið gefandanum ofarlega í huga og veitti Müller meiri uppörvun en nokkur peningagjöf ein og sér:
„Hver ert þú, stóra fjall, fyrir Serúbabel?Að sléttlendi skalt þú verða!“ (Sakaría 4:7.)Sakaríabók 4:7
Gjafir, hversu stórar sem þær voru, voru aldrei metnar eftir veraldlegu verðgildi sínu, heldur sem merki um verk Guðs í hugum fólks Hans og náðarríkt starf Hans með og fyrir tilstilli þjóns Hans. Af þeim sökum vöktu þúsund pund ekki einlægari lofgjörð til Guðs né meiri geðshræringu en þau fjögur pens sem fátækt munaðarlaust barn gaf síðar.
Müller bað Drottin sérstaklega að fara á undan sér og tók nú að leita að hentugri lóð. Um fjórar vikur liðu í árangurslausri leit að því er virtist, en þá fékk hann sterka tilfinningu fyrir því að Drottinn myndi mjög bráðlega gefa landið. Hann sagði samverkamönnum sínum frá því laugardagskvöldið 31. janúar 1846. Innan tveggja daga beindist hugur hans að Ashley Down, og þar fann hann landspildur sem hentuðu þörfum hans einstaklega vel. Skömmu síðar gekk hann tvívegis á fund eigandans, fyrst heim til hans og síðan á skrifstofu hans, en hitti hann í hvorugt skiptið og skildi aðeins eftir skilaboð. Hann mat það svo að sjá mætti hönd Guðs jafnvel í því að hann skyldi ekki hitta manninn sem hann leitaði að. Þar sem hann hafði tvívegis gripið í tómt sama daginn ætti hann ekki að knýja á um málið af eigin þvermóðsku, heldur bíða þolinmóður til næsta dags. Þegar hann svo hitti eigandann var þolinmæði hans óvænt verðlaunuð. Maðurinn játaði að hann hefði legið andvaka í rúmi sínu í tvær klukkustundir og hugsað um landareign sína og hverju hann ætti að svara fyrirspurn Müllers um að kaupa hana undir munaðarleysingjaheimili. Hann sagðist hafa ákveðið, ef falast yrði eftir landinu, að setja aðeins upp hundrað og tuttugu pund fyrir ekruna í stað tvö hundruð punda, sem var fyrra verð hans.
Gengið var frá kaupunum án tafar, og með því að vera ekki með neinn asa sparaði þjónn Drottins þannig fimm hundruð og sextíu pund við kaupin á þessari sjö ekru lóð! Müller hafði beðið Drottin að fara á undan sér, og Hann hafði gert það í öðrum skilningi en Müller hafði órað fyrir. Hann talaði fyrst um málið við eigandann og hélt honum vakandi uns Hann hafði gert honum ljóst, sem þjóni Sínum og ráðsmanni, hvað Hann vildi að hann gerði við sölu þessarar eignar.*
* Viðauki G.
Sex dögum síðar barst formlegt tilboð frá arkitektinum í Lundúnum um að annast landmælingar, gera grunnmyndir, útlitsteikningar, þverskurði og verklýsingar og hafa umsjón með byggingarframkvæmdunum. Viku síðar kom hann til Bristol, skoðaði lóðina og lýsti því yfir að hún hentaði í alla staði vel til síns brúks.
Fram til 4. júní 1846 var heildarupphæðin sem safnast hafði í byggingarsjóðinn rúmlega tvö þúsund og sjö hundruð pund. Það var aðeins lítill hluti þeirrar upphæðar sem þurfti, en Müller efaðist ekki um að allt sem á vantaði yrði gefið á Guðs eigin tíma. Í tvö hundruð og tólf daga hafði hann beðið frammi fyrir Guði eftir að leiðin opnaðist til að hefja bygginguna. Hann ákvað að bíða enn lengur þar til öll upphæðin væri komin í hús og nota til verksins einungis þær gjafir sem annaðhvort voru eyrnamerktar því eða gefnar án skilyrða. Hann tók einnig þá viturlegu ákvörðun að héðan í frá yrðu aðrir að deila byrðinni með honum. Hann hugðist finna tíu vel kynnta bræður, fulla af heilögum Anda og visku, til að sitja í stjórn trúnaðarmanna sem héldi utan um eignina og stýrði henni í Guðs nafni. Honum fannst að þar sem starfið færi nú svo mjög vaxandi og leggja ætti grunn að varanlegri stofnun, ætti hinn kristni almenningur, sem myndi styðja byggingu hennar og rekstur, rétt á fulltrúum í stjórn hennar. Á slíkum tímamótum hafa margir gert alvarleg mistök og glatað trausti með því að ráðstafa opinberum gjöfum á persónulegan hátt og í einræðisanda – þar sem þeirra eigið höfuð er skrifstofan og þeirra eigin vasi fjárhirslan í opinberri góðgerðarstofnun.
Satan tók aftur að tálma verkinu. Eftir að lóðin undir nýja munaðarleysingjaheimilið var fundin, keypt og greidd, komu ófyrirséðar hindranir í veg fyrir að hægt væri að taka strax við henni. En ekkert raskaði friði Müllers, því hann vissi að jafnvel hindranir lúta stjórn Guðs. Ef Drottinn leyfði að eitt landsvæði yrði tekið frá honum væri það aðeins vegna þess að Hann ætlaði að gefa honum annað enn betra. Þannig varð töfin aðeins til þess að reyna trú hans og fullkomna þolinmæði hans.
Þann 6. júlí bárust tvö þúsund pund – tvöfalt stærri gjöf en nokkru sinni hafði áður borist í einu lagi. Þann 25. janúar 1847 barst önnur eins gjöf, svo að byggingarframkvæmdir hófust 5. júlí sama ár. Sex mánuðum síðar, eftir að beðið hafði verið frammi fyrir Guði í fjögur hundruð daga vegna þessa nýja munaðarleysingjaheimilis, höfðu níu þúsund pund verið gefin sem svar við bæn í trú.
Nýja byggingin, með sínum þrjú hundruð stóru gluggum, var nú nærri fullgerð og búa þurfti hana að öllu leyti undir að hýsa um þrjú hundruð og þrjátíu heimilismenn. Þótt rúmlega ellefu þúsund pund hefðu þegar safnast vantaði enn nokkur þúsund pund til viðbótar. En Müller fékk ekki aðeins hjálp, heldur fór hún langt fram úr hans stærstu vonum. Fram til 26. maí 1848 var þessi þörf enn fyrir hendi, og hefði svo mikið sem einn alvarlegur tálmi orðið eftir óleystur hefði allt farið út um þúfur. En allt það fé sem þurfti fékkst, og gott betur, og allir nauðsynlegir starfsmenn fengust til að annast munaðarlausu börnin. Þann 18. júní 1849, rúmum tólf árum eftir að starfið hófst, var byrjað að flytja munaðarlausu börnin úr leiguhúsunum fjórum við Wilson Street yfir í nýja munaðarleysingjaheimilið á Ashley Down. Fimm vikur liðu áður en tekið var við nýjum umsækjendum, svo hægt væri að koma fullri reglu á alla starfsemi hinnar nýju stofnunar og öðlast nokkra reynslu af rekstri hennar. Þann 26. maí 1850 voru hins vegar tvö hundruð sjötíu og fimm börn í húsinu og heildarfjöldi heimilismanna var orðinn þrjú hundruð og átta.
Nafnið „Nýja munaðarleysingjaheimilið“ fremur en „Hælið“ var valið til aðgreiningar frá annarri stofnun í grenndinni. Sérstaklega var þess óskað að það yrði aldrei kallað „Munaðarleysingjaheimili Müllers“, svo að manni sem hafði aðeins verið verkfæri í hendi Guðs við byggingu þess yrði ekki hampað um of. Hann leit á það sem synd að eigna sér, jafnvel óbeint, eða leyfa öðrum að eigna honum nokkurn hluta þeirrar dýrðar sem tilheyrði Honum einum sem hafði leitt verkið, gefið trú og fjármuni til þess og hjálpað við það frá upphafi til enda. Eignin var fengin í hendur ellefu trúnaðarmanna sem Müller valdi, og afsölin voru þinglýst hjá kansellírétti. Svo var um hnúta búið að húsið væri aðeins opið gestum síðdegis á miðvikudögum, enda tók um eina og hálfa klukkustund að skoða alla bygginguna.
Varla voru munaðarlausu börnin komin í hús á Ashley Down fyrr en sú þrá vaknaði og óx í hjarta Müllers að eitt þúsund börn í stað þrjú hundruð mættu njóta slíkrar blessunar, bæði líkamlegrar umönnunar og andlegrar fræðslu. Áður en nýtt ár, 1851, rann upp hafði þessi þrá þroskast í fastan ásetning. Með sinni venjubundnu vandvirkni og bænrækni leitaði hann fullvissu um að hann fylgdi ekki eigin vilja heldur vilja Guðs. Enn á ný voru rökin með og á móti vegin samviskusamlega á vogarskálum guðrækilegrar dómgreindar. Myndi hann ætla sér um of, andlega eða veraldlega? Var starfið, með öllum sínum miklu bréfaskriftum og ábyrgð, ekki þegar nógu umfangsmikið? Myndi nýtt munaðarleysingjaheimili fyrir þrjú hundruð munaðarlaus börn ekki kosta fimmtán þúsund pund í viðbót, eða þrjátíu og fimm þúsund pund ef byggt yrði fyrir sjö hundruð börn ásamt nauðsynlegri lóð? Og jafnvel þegar búið væri að reisa það, innrétta og fylla, þyrfti þá ekki að sjá fyrir daglegum þörfum, sem er stöðug ábyrgð og ekki er hægt að greiða í eitt skipti fyrir öll eins og lóð og byggingu? Það myndi kosta átta þúsund pund á ári að framfleyta sjö hundruð smábörnum til viðbótar. Við öllum mótbárum var eitt fullnægjandi svar: Guð sem er nægur í öllu. Af því að augu Müllers hvíldu á mætti Hans, visku og ríkidæmi, gleymdist hans eigin veikleiki, fáviska og fátækt. Önnur mótbára kom einnig upp: Hvað ef honum tækist að hýsa og fæða þúsund fátæk og vegalaus börn, hvað yrði þá um stofnunina eftir dauða hans? Svarið er eftirminnilegt: „Mitt hlutverk er að þjóna minni kynslóð af öllum mætti að Guðs ráði; með því að gera það þjóna ég best næstu kynslóð, ef endurkoma Drottins Jesú dregst.“ Væri slík mótbára gild, gilti hún jafnt gegn því að hefja nokkurt það verk sem líklegt væri til að lifa þann sem vinnur það. Og Müller minntist þess hvernig Francke í Halle hafði þurft að mæta sömu mótbáru þegar hann, fyrir rúmum tvö hundruð árum, stofnaði stærstu góðgerðarstofnun sem til var í heiminum fram til ársins 1851. En þegar Francke var kallaður burt eftir að hafa veitt stofnuninni persónulega forstöðu í um þrjátíu ár, tók tengdasonur hans við stjórninni, eins og við höfum séð. Þessi landi hans, sem hafði talað til sálar Müllers árið 1826, hvatti hann þannig tuttugu og fimm árum síðar til að halda ótrauður áfram, gera skyldu sína og fela hinum eilífa Guði framtíðina.
Müller nefnir nokkrar ástæður sem höfðu sérstök áhrif á þá ákvörðun að stækka starfið enn frekar: hinar mörgu umsóknir sem ekki var hægt að verða við vegna plássleysis; hið lága siðferðisstig á fátækraheimilunum sem hætt var við að þessi börn fátæktarinnar yrðu send á; hinn mikli fjöldi átakanlegra tilfella þar sem vitað var að munaðarlaus börn þurftu sárlega á hjálp að halda; fyrri reynsla af náðugri leiðsögn Drottins og af starfinu sjálfu; innri ró hans gagnvart hinni fyrirhuguðu stækkun; og sú andlega blessun sem hægt væri að veita enn fleiri heimilislausum börnum. En ein ástæða bar þó af öllum öðrum: aukin þjónusta við mennina, sem ráðist væri í og leidd yrði til lykta í algjöru trausti á Guð einan, yrði þeim mun sterkari vitnisburður um Hann sem heyrir bænir. Ekki þarf að endurtaka þessar ástæður sem hér eru skráðar þegar kemur að frekari stækkunum starfsins síðar meir, því á hverju nýju framfaraskrefi voru það einmitt þær sem knúðu þennan þjón Guðs áfram.
Þann 4. janúar 1851 barst önnur gjöf upp á þrjú þúsund pund – stærsta einstaka framlagið fram að þeim degi. Þar sem honum var gefið algjörlega frjálst vald um ráðstöfun fjárins hvatti það hann til að halda áfram.
Enn á ný hélt hann þessu fyrir sig. Fram til 25. janúar hafði hann ekki einu sinni nefnt það við eiginkonu sína að hann hefði í huga að stækka starfið enn frekar. Honum fannst að til þess að forðast öll mistök yrði hann fyrst af öllu að fá skýra leiðsögn frá Guði og ekki myrkva hana með misvísandi ráðum manna. Almenningi var ekki gerður kunnur sá ásetningur hans að sjá, með Guðs hjálp, fyrir sjö hundruð nauðstöddum munaðarlausum börnum til viðbótar fyrr en Biblíufræðslustofnunin gaf út tólftu ársskýrslu sína.
Fram til 2. október 1851 höfðu aðeins um ellefu hundruð pund verið gefin beint til hins fyrirhugaða munaðarleysingjaheimilis númer tvö, og fram til 26. maí árið eftir nam heildarupphæðin um þrjú þúsund og fimm hundruð pundum. En George Müller minntist hans sem „öðlaðist það, sem Guð hafði heitið honum er hann hafði beðið þess með stöðuglyndi“. Hann hafði beðið í rúm tvö ár áður en allt það fé sem þurfti til fyrsta hússins hafði borist, og hann gat beðið enn lengur, ef það væri vilji Guðs, eftir svörum við núverandi bænum um fjármuni til að reisa annað hús.
Eftir að hafa beðið í rúma nítján mánuði eftir byggingarsjóði fyrir annað húsið og hafa nánast daglega fengið eitthvað sem svar við bæn, barst honum tilkynning þann 4. janúar 1853 um að honum yrðu brátt greidd átta þúsund og eitt hundrað pund sem sameiginleg gjöf nokkurra kristinna manna. Af þeirri upphæð lagði hann sex þúsund pund í byggingarsjóðinn. Enn sem fyrr varð hann hvorki hissa né æstur, þótt hann fylltist mikilli gleði og sigurfögnuði í Guði. Nákvæmlega tveimur árum áður, þegar hann skráði stærstu gjöf sem þá hafði borist – þrjú þúsund pund – hafði hann einnig skráð þá eftirvæntingu sína að hann ætti eftir að sjá enn stærri hluti. Og nú var gjöf sem var tvöfalt til þrefalt stærri í þann mund að berast honum í hendur. Peningaupphæðin var þó ekki það sem veitti honum þessa ómældu gleði, heldur sú staðreynd að hann hafði ekki hrósað sér af Guði til einskis.
Þar sem nú biðu um fjögur hundruð áttatíu og þrjú munaðarlaus börn eftir inngöngu, fann hann sig knúinn til að biðja þess að brátt opnaðist leið til að hefja byggingu nýja hússins. Orðin í Jakobsbréfi 1:4 greiptust djúpt í huga hans sem sú áminning sem hann ætti nú að hafa fyrir augum sér: „en þolgæðið á að birtast í fullkomnu verki, til þess að þér séuð fullkomnir og algjörir og yður sé í engu ábótavant.“Jakobsbréfið 1:4 · Biblían 1981
Þann 26. maí 1853 var heildarupphæðin sem til var fyrir nýju bygginguna um tólf þúsund og fimm hundruð pund, og sótt hafði verið um pláss fyrir rúmlega fimm hundruð munaðarlaus börn. Tvöfalt hærri upphæð þurfti hins vegar áður en hægt væri að hefja byggingu nýja hússins án þess að eiga á hættu að stofna til skulda.
Þann 8. janúar 1855 tóku nokkrir kristnir vinir sig saman og lofuðu að greiða honum fimm þúsund og sjö hundruð pund til verks Guðs, og af því fé tók hann þrjú þúsund og fjögur hundruð pund frá í byggingarsjóðinn. Þar sem umsækjendur voru nú orðnir á bilinu sjö til átta hundruð virtist það vera frá Guði að tryggja ætti að minnsta kosti lóð undir annað nýtt munaðarleysingjaheimili. Nokkrum vikum síðar óskaði Müller eftir því að fá að kaupa tvö tún sem lágu að lóð fyrsta hússins. Þar sem þau voru hins vegar ekki til sölu á þeim tíma var eina úrræðið að trúa því að Drottinn hefði önnur áform, eða myndi gefa betra land en það sem þjónn Hans hafði sett hug sinn á.
Við nánari umhugsun og bæn vaknaði sú hugmynd hjá honum að reisa mætti tvö hús í stað eins og staðsetja þau sitt hvorum megin við núverandi byggingu, á því landi sem þegar var í þeirra eigu. Því var ákveðið að hefjast handa sunnanmegin og reisa þar hús sem rúmaði fjögur hundruð munaðarlaus börn, enda var til nægilegt fé í bankanum, eða væntanlegt innan skamms, til að byggja það, innrétta og búa húsgögnum.
Þann 26. maí 1856 voru nærri þrjátíu þúsund pund í handbæru fé fyrir nýja munaðarleysingjaheimilið nr. 2. Þann 12. nóvember 1857 var þetta hús opnað fyrir fjögur hundruð munaðarlaus börn til viðbótar, og þá var afgangur upp á nærri tvö þúsund og þrjú hundruð pund. Sá Guð sem sá fyrir byggingunni sá einnig fyrir starfsfólki, án nokkurra erfiðleika eða auglýsinga.
Í byrjun nýs árs tók Müller að leggja til hliðar sex hundruð pund sem fyrsta framlagið til þriðja munaðarleysingjaheimilisins, og skrefin sem leiddu til þess að því verki var lokið voru einnig nákvæmlega hin sömu og áður. Keypt var meira land sem lá að byggingunum tveimur. Þar sem umsækjendur voru svo margir og kostnaðurinn við að sjá fyrir fleiri börnum yrði aðeins litlu meiri, var ákveðið að byggja þannig að hægt yrði að taka á móti fjögur hundruð og fimmtíu börnum í stað þrjú hundruð. Hann fagnaði því að með hverri stækkun starfsins kæmi enn betur í ljós hversu miklu einn fátækur maður, sem einfaldlega treystir Guði, getur áorkað með bæn. Þannig mætti leiða önnur Guðs börn til að vinna verk Guðs í trausti á Hann einan, og almennt til að treysta Honum betur í öllum kringumstæðum og hverju sem að höndum ber.
Munaðarleysingjaheimili nr. 3 var opnað 12. mars 1862 og voru þá til rúmlega tíu þúsund pund fyrir rekstrarkostnaði. Þá hafði enn ekki fengist allt það starfsfólk sem þurfti, en sú töf var aðeins ný hvatning til bænar í trú. Í stað þess að biðja einu sinni á dag var Guð nú beðinn þrisvar á dag um að sjá fyrir hæfu fólki. Einn af öðrum bættist þannig í hópinn, og í engu tilfelli of seint, svo að ekkert hamlaði móttöku barna og starfið varð ekki fyrir neinum truflunum.
Enn frekari stækkun virtist nauðsynleg, af sömu ástæðum og fyrr. Sífellt meiri þörf var á rými fyrir nýja umsækjendur, og fyrri reynsla af undursamlegum verkum Guðs hvatti hann bæði til að ráðast í og vænta enn stærri hluta. Munaðarleysingjaheimili nr. 4 og 5 tóku að rísa við sjóndeildarhring trúar hans. Þann 26. maí 1862 átti hann rúmlega sex þúsund og sex hundruð pund til að verja til byggingar þeirra. Í nóvember 1864 barst stór gjöf upp á fimm þúsund pund frá gefanda sem vildi hvorki láta nafns síns né búsetu getið, og um þetta leyti höfðu safnast um tuttugu og sjö þúsund pund af þeim fimmtíu þúsundum sem þurfti. Þar sem meira en helmingur nauðsynlegrar upphæðar var þannig fyrir hendi var óhætt að festa kaup á lóð og leggja grunn að byggingunum. Augu Müllers höfðu um árabil beinst að landi sem lá að húsunum þremur sem þegar voru risin, og var aðeins aðskilið frá þeim af þjóðveginum. Hann fór á fund umboðsmannsins og komst að því að á eigninni hvíldi leigusamningur sem átti enn tvö ár eftir. Þessi hindrun hvatti aðeins til nýrrar bænar, en erfiðleikarnir virtust hins vegar aukast: uppsett verð var of hátt og Vatnsveita Bristol átti í samningaviðræðum um þetta sama landsvæði undir vatnsgeymi. Engu að síður ruddi Guð öllum hindrunum úr vegi, hverri af annarri, svo að landið var keypt og afsalað til trúnaðarmannanna í mars 1865. Eftir að kaupverðið hafði verið greitt voru enn um tuttugu og fimm þúsund pund eftir til sjálfra bygginganna. Bæði kostnaður og óþægindi við framkvæmdirnar myndu minnka til muna ef bæði húsin yrðu reist á sama tíma, og því var Guð beðinn um ríkulega fjármuni til að ljúka öllu verkinu fljótt og vel.
Í maí 1866 hafði Müller yfir þrjátíu og fjögur þúsund pund til umráða og var þá hafist handa við byggingu húss nr. 4, og í janúar árið eftir við hús nr. 5 einnig. Í lok mars 1867 höfðu rúmlega fimmtíu þúsund pund borist, svo aðeins vantaði sex þúsund pund í viðbót til að innrétta byggingarnar tvær og búa þær húsgögnum svo hægt væri að flytja inn. Í byrjun febrúar 1868 höfðu alls fimmtíu og átta þúsund pund verið gefin. Því var nýja munaðarleysingjaheimilið nr. 4 opnað þann 5. nóvember 1868 og nr. 5 þann 6. janúar 1870, og voru þá nokkur þúsund pund afgangs til almennra nota. Þannig hafði starfið í þágu munaðarlausra barna snemma árs 1870 náð fullum vexti í fimm stórum byggingum á Ashley Down, með rými fyrir tvö þúsund munaðarlaus börn og alla þá kennara og aðstoðarmenn sem þurfti.
Þannig hefur staðreyndunum um byggingu þessa mikla minnisvarða á Ashley Down um Guð sem bænheyrir verið safnað saman í einn kafla, þótt byggingarframkvæmdirnar hafi spannað svo mörg ár. Frá því að fyrst var ákveðið að byggja árið 1845 og þar til þriðja húsið var opnað árið 1862 liðu nærri sautján ár, og tuttugu og fimm ár áður en hús nr. 5 var opnað árið 1870. Verkið var ein heild í skipulagi sínu og tilgangi. Hver nýr áfangi fól aðeins í sér víðtækari framkvæmd og skýrara dæmi um sömu lífslögmál og meginreglur í breytni og höfðu með vaxandi krafti stýrt George Müller allt frá upphafi starfsins í Bristol. Hans eina æðsta markmið var dýrð Guðs; hans eina úrræði, bæn í trú; hans eina trausta véfrétt, hið innblásna Orð; og hans eini guðlegi Kennari, heilagur Andi. Eitt skref stigið í trú og bæn hafði búið í haginn fyrir það næsta; eitt traustsverk hafði gert hann djarfari til að hætta á annað sem virtist fela í sér enn meiri áhættu og krafðist því enn fyllra trausts. En bænheyrslan var umbun trúarinnar, og hver ný áhætta sýndi aðeins að engin áhætta fólst í því að halla sér í fullu trausti að sannleika og trúfesti Guðs.
Þegar munaðarleysingjaheimilin eru heimsótt kemst maður ekki hjá því að hrífast af nokkrum áberandi einkennum þeirra, og þá fyrst og fremst stærðinni. Þau eru afar rúmgóð, með um sautján hundruð stórum gluggum og rými fyrir yfir tvö þúsund heimilismenn. Þau eru einnig afar traustbyggð, hlaðin úr steini og gerð til að endast. Þau eru í hvívetna látlaus; nytsemi fremur en fegurð setur sterkan svip á þau, jafnt innan dyra sem utan. Sparsemi hefur augljóslega verið ráðandi lögmál við byggingu þeirra; húsgögnin eru jafn einföld og íburðarlaus, og hvað skraut varðar er það alls ekkert. Í augum nokkurra eru húsin nánast of snauð af öllu skrauti, og hefur Müller verið legið á hálsi fyrir að bæta ekki við einhverjum fagurfræðilegum þáttum sem gætu mildað þessa ströngu nytjastefnu og þroskað fegurðarskyn hjá þessum munaðarlausu börnum.
Við allri slíkri gagnrýni eru tvö eða þrjú fullnægjandi svör. Í fyrsta lagi lét Müller allt lúta sínum eina mikla tilgangi: að sýna fram á þá staðreynd að hinn lifandi Guð heyrir bænir. Í öðru lagi leit hann á sig sem ráðsmann yfir eigum Guðs og hikaði við að eyða svo mikið sem einu pensi í það sem ekki var nauðsynlegt til að halda verki Guðs áfram af hagsýni. Honum fannst að allt sem hægt væri að spara án þess að það kæmi niður á heilsu, góðri þjálfun hugans og traustri biblíulegri og andlegri menntun, ætti að varðveita til að lina neyð fátækra og bjargþrota annars staðar. Enn fremur taldi hann að þar sem þessi munaðarlausu börn væru líkleg til að fara í vist á venjulegum alþýðuheimilum og þurfa að lifa spart, gæti allt umhverfi sem vendi þau við fágaðan smekk og munað gert þau óánægð með hlutskipti sitt í framtíðinni. Þess vegna kappkostaði hann einfaldlega að stuðla að heilbrigði þeirra og vellíðan, og kenna þeim að vera nægjusöm þegar lífsnauðsynjum væri fullnægt.
En það sem meira er, örlítil alvarleg umhugsun sýnir að hefði hann umkringt þau þeim glæsileika sem vönduð byggingarlist og aðrar fagrar listir bjóða upp á, hefði hann getað sætt enn harðari gagnrýni. Þá hefði hann verið að eyða gjöfum fátæklinga, sem neituðu sér oft um margt vegna þessara munaðarlausu barna, í að kaupa skraut og prjál sem hefði gert gjafir þúsunda gefenda ómögulegar ef það hefði prýtt þeirra eigin látlausu heimili. Þegar við minnumst þess hversu margar gjafir – tugþúsundir talsins – voru líkt og smápeningar ekkjunnar mjög litlar í sjálfu sér en þó mjög stórar miðað við efni, sést hve fráleitt það hefði verið að nota gjafir sem aðeins höfðu sparast með því að gefendurnir skömmtuðu sér jafnvel lífsnauðsynjar, til að kaupa handa munaðarlausu börnunum það sem gefendurnir hvorki gátu né vildu veita sér sjálfir.
Hreinlæti, snyrtimennska, festa og regla ríkja hins vegar alls staðar, og heiðarleg vinna hefur ávallt notið ákveðinnar virðingar á munaðarleysingjaheimilunum. Landspildurnar sem liggja að byggingunum eru nýttar sem matjurtagarðar. Þar fá munaðarlausu drengirnir holla hreyfingu og vinna um leið störf sem hjálpa til við að afla daglegrar fæðu og þjálfa þá þannig að hluta til í að sjá fyrir sér sjálfir.
Alls staðar í þessum húsum gætir mikillar alúðar og markvissrar skipulagningar. Hvert barn á sitt ferhyrnda og númeraða hólf fyrir föt, og eru sex munaðarlaus börn í senn valin í hverri deild til að hafa umsjón með þeim. Drengirnir eiga þrenn föt hver og stúlkurnar fimm kjóla hver, og er stúlkunum kennt að sauma og bæta eigin flíkur. Á ungbarnadeildinni hafa litlu börnin bækur og leikföng til að hafa ofan af fyrir sér og skemmta sér við, og njóta þar blíðrar og móðurlegrar umönnunar. Oft eru tekin inn nokkur börn úr sömu fjölskyldu á heimilið til að rjúfa ekki fjölskylduböndin að óþörfu með því að aðskilja þau. Meðaldvalartíminn er um tíu ár, þótt sum munaðarlaus börn hafi dvalið þar í sautján ár.
Daglegt líf er í föstum skorðum og gengur fyrir sig eins og smurð vél í stundvísi sinni. Börnin fara á fætur klukkan sex og eiga að vera tilbúin klukkan sjö, stúlkurnar til að prjóna og drengirnir til að lesa, fram til klukkan átta þegar morgunverður er borinn fram. Hálftíma síðar er stutt morgunbænastund og skólinn hefst klukkan tíu. Hálftíma útivera á leikvellinum býr þau undir hádegisverðinn klukkan eitt, og síðan tekur skólinn aftur við til klukkan fjögur. Þá tekur við leikur eða útivera í eina og hálfa klukkustund, og síðan hálftíma helgistund á undan kvöldmatnum klukkan sex. Eftir það sitja stúlkurnar við sauma en drengirnir eru í skólastofunni fram að háttatíma; yngri börnin fara í háttinn klukkan átta en þau eldri klukkan níu. Maturinn er einfaldur, ríkulegur og næringarríkur, og samanstendur af brauði, hafragraut, mjólk, súpum, kjöti, hrísgrjónum og grænmeti. Allt miðar að einu lokamarkmiði, eða svo notuð séu orð Müllers sjálfs: „Við stefnum að því að ef einhverjum þeirra vegnar ekki vel, veraldlega eða andlega, og þau verða ekki nýtir þjóðfélagsþegnar, þá skuli það að minnsta kosti ekki vera okkur að kenna.“ Jafnvel hin ítarlegasta og vandlegasta skoðun á öllum starfsháttum stofnunarinnar getur ekki annað en sannfært gestinn um að það verður ekki þeim að kenna sem veita þessu starfi forstöðu ef munaðarlausu börnin eru ekki vel í stakk búin, á sál og líkama, undir lífsstarfið og undirbúin fyrir sælan ódauðleika.