Viðauki
A. Ritningarorð sem mótuðu Müller
Ákveðin boðorð og fyrirheit í Ritningunni höfðu svo einstök áhrif á þennan Guðs mann og vísuðu honum svo oft veginn að þau eru lifandi dæmi um Sálmana 119:105:Sálmarnir 119:105
„Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.“
Hér eru birt þau ritningarorð sem urðu honum vegvísar Guðs á vegamótum og sýndu honum rétta stefnu, eins nærri þeirri röð og unnt er sem þau urðu honum til svo mikillar hjálpar. Að íhuga þau er líkt og að lesa andlega ævisögu sem dregur upp megindrætti ævistarfs hans. Sum versin, sem vitað er að höfðu sérstaklega mikil áhrif á hann, prentum við með hástöfum. Skáletrunin er frá honum sjálfum komin.
„ÞVÍ SVO ELSKAÐI GUÐ HEIMINN, AÐ HANN GAF SON SINN EINGETINN, TIL ÞESS AÐ HVER SEM Á HANN TRÚIR GLATIST EKKI, HELDUR HAFI EILÍFT LÍF.“ (Jóhannesarguðspjall 3:16.)
Jóhannes 3:16 · Biblían 1981
„Bölvaður er sá maður, sem reiðir sig á menn og gjörir hold að styrkleik sínum.“ (Jeremíabók 17:5.)
Jeremíabók 17:5 · Biblían 1981
„Óttist Drottin, þér hans heilögu, því að þeir er óttast hann líða engan skort.“ (Sálmarnir 34:10.)
„Skuldið ekki neinum neitt, nema það eitt að elska hver annan.“ (Rómverjabréfið 13:8.)
Rómverjabréfið 13:8
„LEITIÐ FYRST RÍKIS HANS OG RÉTTLÆTIS, ÞÁ MUN ALLT ÞETTA VEITAST YÐUR AÐ AUKI.“ (Matteusarguðspjall 6:33.)
Matteus 6:33 · Biblían 1981
„Heilagar ritningar, sem geta veitt þér speki til sáluhjálpar.“ (Síðara Tímóteusarbréf 3:15.)
Seinna Tímóteusarbréf 3:15
„Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða.“ (Matteusarguðspjall 7:7, 8.)
Matteus 7:7, 8 · Biblían 1981
„HVERS SEM ÞÉR BIÐJIÐ Í MÍNU NAFNI, ÞAÐ MUN ÉG GJÖRA, SVO AÐ FAÐIRINN VEGSAMIST Í SYNINUM. EF ÞÉR BIÐJIÐ MIG EINHVERS Í MÍNU NAFNI, MUN ÉG GJÖRA ÞAÐ.“ (Jóhannesarguðspjall 14:13, 14.)
Jóhannes 14:13, 14 · Biblían 1981
„Þess vegna segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast ... Verið því ekki áhyggjufullir um morgundaginn.“ (Matteusarguðspjall 6:25–34.)
Matteus 6:25–34
„Sá sem vill gjöra vilja hans, mun komast að raun um, hvort kenningin er frá Guði.“ (Jóhannesarguðspjall 7:17.)
Jóhannes 7:17 · Biblían 1981
„Ef þér eruð stöðugir í orði mínu, eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa.“ (Jóhannesarguðspjall 8:31, 32.)
Jóhannes 8:31, 32 · Biblían 1981
„Þá mælti hirðmaðurinn: Hér er vatn, hvað hamlar mér að skírast? Filippus sagði: Ef þú trúir af öllu hjarta, þá er það heimilt. Og hann svaraði og sagði: Ég trúi, að Jesús Kristur sé sonur Guðs. Og stigu báðir niður í vatnið, Filippus og hirðmaðurinn, og Filippus skírði hann.“ (Postulasagan 8:36–38.)
„Eða vitið þér ekki, að allir vér, sem skírðir erum til Krists Jesú, erum skírðir til dauða hans? Vér erum því dánir og greftraðir með honum í skírninni.“ (Rómverjabréfið 6:3, 4.)
Rómverjabréfið 6:3, 4 · Biblían 1981
„Fyrsta dag vikunnar, er vér vorum samankomnir til að brjóta brauðið.“ (Postulasagan 20:7.)
Postulasagan 20:7
„Bræður mínir, farið ekki í manngreinarálit, þér sem trúið á dýrðardrottin vorn Jesú Krist. Nú kemur maður inn í samkundu yðar með gullhring á hendi og í skartlegum klæðum, og jafnframt kemur inn fátækur maður í óhreinum fötum, ef öll athygli yðar beinist að þeim, sem skartklæðin ber, og þér segið: „Settu þig hérna í gott sæti!“ en segið við fátæka manninn: „Stattu þarna, eða settu þig á gólfið við fótskör mína!“ hafið þér þá ekki mismunað mönnum og orðið dómarar með vondum hugsunum?“ (Jakobsbréfið 2:1–6.)
Jakobsbréfið 2:1–6 · Biblían 1981
„Vér höfum margvíslegar náðargjafir, eftir þeirri náð, sem oss er gefin.“ (Rómverjabréfið 12:6.)
Rómverjabréfið 12:6 · Biblían 1981
„En öllu þessu kemur til leiðar eini og sami andinn, og hann útbýtir hverjum einum eftir vild sinni.“ (Fyrra Korintubréf 12:11.)
Fyrra Korintubréf 12:11 · Biblían 1981
„Ekki að mér væri svo umhugað um gjöfina sem um ábata þann, sem ríkulega rennur í yðar reikning.“ (Filippíbréfið 4:17.)
„Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast.“ ... „Lítið til fugla himinsins ... Hyggið að liljum vallarins ... Því að himneskur faðir yðar veit, að þér þarfnist alls þessa.“ (Matteusarguðspjall 6:25–32.)
Matteus 6:25–32
„Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu.“ (Matteusarguðspjall 6:19.)
Matteus 6:19
„SELJIÐ EIGUR YÐAR OG GEFIÐ ÖLMUSU.“ (Lúkasarguðspjall 12:33.)
Lúkas 12:33
„Enginn getur tekið neitt, nema honum sé gefið það af himni.“ (Jóhannesarguðspjall 3:27.)
Jóhannes 3:27 · Biblían 1981
„Símon hefur skýrt frá, hvernig Guð sá til þess í fyrstu, að hann eignaðist lýð meðal heiðinna þjóða, er bæri nafn hans.“ (Postulasagan 15:14. Sbr. Matteusarguðspjall 13:24–30, 36–43.)
Postulasagan 15:14 · Biblían 1981 · Matteus 13:24–30, 36–43
„Vita skalt þú þetta, að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir ... En vondir menn og svikarar munu magnast í vonskunni, villandi aðra og villuráfandi sjálfir.“ (Síðara Tímóteusarbréf 3:1, 13.)
Seinna Tímóteusarbréf 3:1, 13 · Biblían 1981
„Farið því burt frá þeim og skiljið yður frá þeim, segir Drottinn, og snertið ekki neitt óhreint.“ (Síðara Korintubréf 6:14–18.)
Seinna Korintubréf 6:14–18
„Ekki með valdi né krafti, heldur fyrir anda minn! segir Drottinn allsherjar.“ (Sakaríabók 4:6.)
Sakaríabók 4:6
„NÁÐ MÍN NÆGIR ÞÉR.“ (Síðara Korintubréf 12:9.)
Seinna Korintubréf 12:9
„Hver og einn sé kyrr í þeirri stöðu, sem hann var kallaður í. Bræður, sérhver verði frammi fyrir Guði kyrr í þeirri stétt, sem hann var kallaður í.“ (Fyrra Korintubréf 7:20, 24.)
Fyrra Korintubréf 7:20, 24 · Biblían 1981
„Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar, til leiðréttingar, til menntunar í réttlæti.“ (Síðara Tímóteusarbréf 3:16.)
Seinna Tímóteusarbréf 3:16 · Biblían 1981
„OPNAÐU MUNN ÞINN VÍTT, OG ÉG MUN FYLLA HANN.“ (Sálmarnir 81:11, KJV.)
„Minn tími er ekki enn kominn.“ (Jóhannesarguðspjall 2:4.)
Jóhannes 2:4
„Hann tók lítið barn, setti það meðal þeirra, tók það sér í faðm og sagði við þá: Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni, tekur við mér, og hver sem tekur við mér, tekur ekki aðeins við mér, heldur og við þeim er sendi mig.“ (Markúsarguðspjall 9:36, 37.)
Markús 9:36, 37 · Biblían 1981
„Hafið frið við alla menn að því leyti sem það er unnt og á yðar valdi.“ (Rómverjabréfið 12:18.)
Rómverjabréfið 12:18 · Biblían 1981
„Feður vorir öguðu oss um fáa daga, eftir því sem þeim leist, en oss til gagns agar hann oss, svo að vér fáum hlutdeild í heilagleika hans. Í bili virðist allur agi að vísu ekki vera gleðiefni, heldur hryggðar, en eftir á gefur hann þeim, er við hann hafa tamist, ávöxt friðar og réttlætis.“ (Hebreabréfið 12:10, 11.)
Hebreabréfið 12:10, 11 · Biblían 1981
„HVERS SEM ÞÉR BIÐJIÐ Í BÆN YÐAR, ÞÁ TRÚIÐ, AÐ ÞÉR HAFIÐ ÖÐLAST ÞAÐ, OG YÐUR MUN ÞAÐ VEITAST.“ (Markúsarguðspjall 11:24.)
Markús 11:24 · Biblían 1981
„Sá sem á hann trúir mun eigi verða til skammar.“ (Fyrra Pétursbréf 2:6.)
Fyrra Pétursbréf 2:6
„Þú sem heyrir bænir, til þín leitar allt hold.“ (Sálmarnir 65:3.)
„Komið, hlýðið til, allir þér er óttist Guð, að ég megi segja frá, hvað hann hefir gjört fyrir mig.“ (Sálmarnir 66:16.)
„FAÐIR FÖÐURLAUSRA.“ (Sálmarnir 68:6.)
„Son minn, lítilsvirð eigi ögun Drottins og lát þér eigi gremjast umvöndun hans.“ (Orðskviðirnir 3:11.)
Orðskviðirnir 3:11 · Biblían 1981
„Eins og faðir sýnir miskunn börnum sínum, eins hefir Drottinn sýnt miskunn þeim er óttast hann.“ (Sálmarnir 103:13.)
„JESÚS KRISTUR ER Í GÆR OG Í DAG HINN SAMI OG UM ALDIR.“ (Hebreabréfið 13:8.)
Hebreabréfið 13:8 · Biblían 1981
„Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur.“ „Hverjum degi nægir sín þjáning.“ (Matteusarguðspjall 6:34.)
„Allt til þessa hefir Drottinn hjálpað oss.“ (Fyrri Samúelsbók 7:12.)
Fyrri Samúelsbók 7:12
„Finnið og sjáið að Drottinn er góður:“
„Sæll er sá maður er leitar hælis hjá honum!“ (Sálmarnir 34:9.)
„Allur mörinn heyrir Drottni til.“ (Þriðja Mósebók 3:16.)
Þriðja Mósebók 3:16
„Ég er volaður og snauður, en Drottinn ber umhyggju fyrir mér.“ (Sálmarnir 40:18.)
„Þá munt þú gleðjast yfir Drottni, og hann mun veita þér það sem hjarta þitt girnist.“ (Sálmarnir 37:4.)
„Ef ég hygg á illt í hjarta mínu, þá heyrir Drottinn ekki.“ (Sálmarnir 66:18.)
„Vitið að Drottinn hefir dásamlega útvalið sinn trúaða, Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.“ (Sálmarnir 4:4.)
„JEHOVAH JIREH.“ (Drottinn sér fyrir.) (Fyrsta Mósebók 22:14.)
Fyrsta Mósebók 22:14
„SJÁLFUR HEFUR HANN SAGT: ÉG MUN EKKI SLEPPA AF ÞÉR HENDINNI NÉ YFIRGEFA ÞIG; ÞVÍ GETUM VÉR ÖRUGGIR SAGT: DROTTINN ER MINN HJÁLPARI.“ (Hebreabréfið 13:5, 6.)
Hebreabréfið 13:5, 6
„Ver þú ekki meðal þeirra, er ganga til handsala, meðal þeirra, er ganga í ábyrgð fyrir skuldum.“ (Orðskviðirnir 22:26.)
Orðskviðirnir 22:26 · Biblían 1981
„Sá sem hatar handsöl, er óhultur.“ (Orðskviðirnir 11:15.)
Orðskviðirnir 11:15
„Ég er fús til að verja því, sem ég á, já, leggja sjálfan mig í sölurnar fyrir yður. Ef ég elska yður heitar, verð ég þá elskaður minna?“ (Síðara Korintubréf 12:15.)
Seinna Korintubréf 12:15 · Biblían 1981
„Þér eruð allir Guðs börn fyrir trúna á Krist Jesú.“ (Galatabréfið 3:26.)
Galatabréfið 3:26 · Biblían 1981
„VARPIÐ ALLRI ÁHYGGJU YÐAR Á HANN, ÞVÍ AÐ HANN BER UMHYGGJU FYRIR YÐUR.“ (Fyrra Pétursbréf 5:7.)
Fyrra Pétursbréf 5:7 · Biblían 1981
„Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð.“ (Filippíbréfið 4:6.)
Filippíbréfið 4:6 · Biblían 1981
„Sagði ég þér ekki: ‚Ef þú trúir, munt þú sjá dýrð Guðs‘?“ (Jóhannesarguðspjall 11:40.)
Jóhannes 11:40 · Biblían 1981
„VÉR VITUM, AÐ ÞEIM, SEM GUÐ ELSKA, SAMVERKAR ALLT TIL GÓÐS.“ (Rómverjabréfið 8:28.)
Rómverjabréfið 8:28 · Biblían 1981
„Skyldi dómari alls jarðríkis ekki gjöra rétt?“ (Fyrsta Mósebók 18:25.)
Fyrsta Mósebók 18:25
„Slíkra (smábarna) er himnaríki.“ (Matteusarguðspjall 19:14.)
Matteus 19:14
„Hann sem þyrmdi ekki sínum eigin syni, heldur framseldi hann fyrir oss alla, hví skyldi hann ekki líka gefa oss allt með honum?“ (Rómverjabréfið 8:32.)
Rómverjabréfið 8:32 · Biblían 1981
„Sérhver góð gjöf og sérhver fullkomin gáfa er ofan að.“ (Jakobsbréfið 1:17.)
Jakobsbréfið 1:17
„Ungljónin líða skort og svelta, en þeir er leita Drottins, fara einskis góðs á mis.“ (Sálmarnir 34:11.)
„Sumir miðla öðrum mildilega, og eignast æ meira, aðrir halda í meira en rétt er, og verða þó fátækari. Velgjörðasöm sál mettast ríkulega, og sá sem gefur öðrum að drekka, mun og sjálfur drykk hljóta.“ (Orðskviðirnir 11:24, 25.)
Orðskviðirnir 11:24, 25 · Biblían 1981
„Gefið, og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.“ (Lúkasarguðspjall 6:38.)
Lúkas 6:38 · Biblían 1981
„En göfugmennið hefir göfugleg áform og stendur stöðugur í því, sem göfuglegt er.“ (Jesaja 32:8.)
Jesajabók 32:8 · Biblían 1981
„Fátæka hafið þér jafnan hjá yður og getið gjört þeim gott, nær þér viljið.“ (Markúsarguðspjall 14:7.)
Markús 14:7 · Biblían 1981
„Látið því ekki hið góða, sem þér eigið, verða fyrir lasti.“ (Rómverjabréfið 14:16.)
Rómverjabréfið 14:16 · Biblían 1981
„Ljúflyndi (eftirgefni) yðar verði kunnugt öllum mönnum.“ (Filippíbréfið 4:5.)
Filippíbréfið 4:5 · Biblían 1981
„ÁLÍTIÐ ÞAÐ, BRÆÐUR MÍNIR, EINTÓMT GLEÐIEFNI, ER ÞÉR RATIÐ Í ÝMISS KONAR RAUNIR (þ.e. PRÓFANIR). ÞÉR VITIÐ, AÐ TRÚARSTAÐFESTA YÐAR VEKUR ÞOLGÆÐI, EN ÞOLGÆÐIÐ Á AÐ BIRTAST Í FULLKOMNU VERKI, TIL ÞESS AÐ ÞÉR SÉUÐ FULLKOMNIR OG ALGJÖRIR OG YÐUR SÉ Í ENGU ÁBÓTAVANT.“ (Jakobsbréfið 1:2–4.)
Jakobsbréfið 1:2–4 · Biblían 1981
„Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit. Mundu til hans á öllum þínum vegum, þá mun hann gjöra stigu þína slétta.“ (Orðskviðirnir 3:5, 6.)
Orðskviðirnir 3:5, 6 · Biblían 1981
„Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá, en undirferli svikulla tortímir þeim.“ (Orðskviðirnir 11:3.)
Orðskviðirnir 11:3 · Biblían 1981
„Fel þú Drottni verk þín, þá mun áformum þínum framgengt verða.“ (Orðskviðirnir 16:3.)
Orðskviðirnir 16:3 · Biblían 1981
„Fyrir þá náð, sem mér er gefin, segi ég yður hverjum og einum að hugsa ekki hærra um sig en hugsa ber, heldur í réttu hófi, og halda sér hver og einn við þann mæli trúar, sem Guð hefur úthlutað honum.“ (Rómverjabréfið 12:3.)
Rómverjabréfið 12:3 · Biblían 1981
„Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, já, vona á Drottin.“ (Sálmarnir 27:14.)
„Og Abraham öðlaðist það, sem Guð hafði heitið honum er hann hafði beðið þess með stöðuglyndi.“ (Hebreabréfið 6:15.)
Hebreabréfið 6:15 · Biblían 1981
„SANNLEGA, SANNLEGA SEGI ÉG YÐUR: HVAÐ SEM ÞÉR BIÐJIÐ FÖÐURINN UM Í MÍNU NAFNI, MUN HANN VEITA YÐUR.“ (Jóhannesarguðspjall 16:23.)
Jóhannes 16:23 · Biblían 1981
„Sá sem sáir sparlega mun og sparlega uppskera, og sá sem sáir ríflega mun og ríflega uppskera.“ (Síðara Korintubréf 9:6.)
Seinna Korintubréf 9:6 · Biblían 1981
„Þér eruð verði keyptir. Vegsamið því Guð með líkama yðar.“ (Fyrra Korintubréf 6:20.)
Fyrra Korintubréf 6:20 · Biblían 1981
„ÞEIR SEM ÞEKKJA NAFN ÞITT, TREYSTA ÞÉR, ÞVÍ AÐ ÞÚ YFIRGEFUR EIGI ÞÁ ER LEITA ÞÍN, DROTTINN.“ (Sálmarnir 9:11.)
„… og hefir stöðugt hugarfar. Þú veitir ævarandi frið, því að þeir treysta á þig. Treystið Drottni æ og ætíð, því að Drottinn, Drottinn er eilíft bjarg.“ (Jesaja 26:3, 4.)
Jesajabók 26:3, 4 · Biblían 1981
„Því að ef viljinn er góður, þá er hver þóknanlegur með það, sem hann á til, og ekki farið fram á það, sem hann á ekki til.“ (Síðara Korintubréf 8:12.)
Seinna Korintubréf 8:12 · Biblían 1981
„VERIÐ STAÐFASTIR, ÓBIFANLEGIR, SÍAUÐUGIR Í VERKI DROTTINS. ÞÉR VITIÐ AÐ ERFIÐI YÐAR ER EKKI ÁRANGURSLAUST Í DROTTNI.“ (Fyrra Korintubréf 15:58.)
Fyrra Korintubréf 15:58 · Biblían 1981
„Þreytumst ekki að gjöra það sem gott er, því að á sínum tíma munum vér uppskera, ef vér gefumst ekki upp.“ (Galatabréfið 6:9.)
Galatabréfið 6:9 · Biblían 1981
„Hversu mikil er gæska þín, er þú hefir geymt þeim er óttast þig, og auðsýnt þeim er leita hælis hjá þér, í augsýn mannanna barna.“ (Sálmarnir 31:20.)
„ÞÚ ERT GÓÐUR OG GJÖRIR VEL.“ (Sálmarnir 119:68.)
„Ég veit, Drottinn, að dómar þínir eru réttlátir og að þú hefir lægt mig í trúfesti þinni.“ (Sálmarnir 119:75.)
„Örlög mín eru í þinni hendi.“ (Sálmarnir 31:16.)
„Drottinn Guð er sól og skjöldur, Drottinn veitir náð og vegsemd, hann synjar þeim einskis góðs er ganga í grandvarleik.“ (Sálmarnir 84:12.)
„Styð þú mig, að ég megi frelsast.“ (Sálmarnir 119:117.)
„Sjá, ég kem skjótt, og launin hef ég með mér, til að gjalda hverjum og einum eins og verk hans er.“ (Opinberunarbókin 22:12.)
Opinberunarbókin 22:12 · Biblían 1981
„Sælla er að gefa en þiggja.“ (Postulasagan 20:35.)
Postulasagan 20:35
„Gef oss í dag vort daglegt brauð.“ (Matteusarguðspjall 6:11.)
Matteus 6:11 · Biblían 1981
„Sem megnar að gjöra langt fram yfir allt það, sem vér biðjum eða skynjum.“ (Efesusbréfið 3:20.)
Efesusbréfið 3:20
„Þá mun ég heiðra, sem mig heiðra.“ (Fyrri Samúelsbók 2:30.)
Fyrri Samúelsbók 2:30
„Það er til þess að trúarstaðfesta yðar, langtum dýrmætari en forgengilegt gull, sem þó stenst eldraunina, geti orðið yður til lofs og dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists.“ (Fyrra Pétursbréf 1:7.)
Fyrra Pétursbréf 1:7 · Biblían 1981