För pílagrímsins
John Bunyan
Inngangur
Formáli
Árin 1862–63 sneri eg riti þessu á íslenzku fyrir herra Isaac Sharp, sem Íslendingum er löngu að góðu kunnr orðinn, og var ætlazt til, að það yrði prentað 1864. Þetta fórst þó fyrir, og lá handritið óhreyft um nokkur ár hjá eiganda þess. Árið 1867 leitaði herra Sharp á Kristilegra-smárita-fèlagið í Lundúnum um að taka að sèr útgáfu ritsins. Fèlagið hèt liðsinni sínu, enn spurðist fyrst fyrir, að ráðum Sharps, hjá byskupinum á Íslandi, hvort honum þætti ráðlegt að það rèðist í að gefa ritið út. Þá stóð svo á, að nýkomin var út þýðing þessa rits á íslenzku,* og það gjörði, að byskup treystist ekki til að eggja fèlagið á að gefa þessa þýðingu út, heldr rèði frá því, og hvarf það því frá fyrirtækinu að því sinni.
* Krossgangan, úr þessum heimi, til hins ókomna.—Draumvitran—eptir John Bunyan. Snúið úr ensku af O. V. Gíslasyni, Cand. Theol. Fyrri parturinn eða Kristinn. Reykjavík. 1864. Síðari parturinn eða Kristjana 1865.
Enn með því herra Sharp hafði fastráðið, að koma ritinu út, enda hafði þegar haft töluverðan kostnað af þýðingunni, þótti honum viðrhlutamikið, að láta verkið detta niðr við svo búið, að fullu og öllu. Hann rèð því af, að bíða betri tíma. Á áliðnu ári sem leið tókust samningar að nýju milli Sharps og fèlagsins, er leiddu til þess, að þýðingin, er legið hafði á hyllunni í þrettán ár, er nú komin á prent.
Þýðingu þessarri er, því miðr, í mýmörgu bóta vant; og mundi eg hafa kosið, ef eg hefði átt kost á, að bæta hana og leiðrètta að málfæri alla, frá upphafi til enda. Enn til þess hafði eg engan tíma, er til útgáfunnar kom, enda þótti herra Sharp eigi frestandi lengr, að koma framm áformi er hann hafði svo lengi búið yfir. Þannig til komin býðst þá, lesendunum þýðing þessi, og verða þeir að meta hana, eftir því sem hèr er tekið framm, eins og þeim þykir hæfa.
Cambridge, á Jónsmessu, 1876.
Eiríkr Magnússon.