Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

Sautjándi kafli

Fávís á ný

um 19 mín. lestur

Nú þótti mèr Vongóðr líta um öxl, og sjá hvar Fávís kom, sem þeir höfðu áðr skilið við, og farið framm úr. Sko, sagði hann við Kristinn, sko hvar ungmenni þetta dundar aftr úr.

Kristinn: Já, eg sè hann, hann hirðir ekki um okkar fèlagskap.

Vongóðr: Enn eg held það hefði ekki orðið honum að neinu illu, þó hann hefði orðið okkr samferða hingað til.

Kristinn: Það ætla eg satt vera, enn eg skal ábyrgjast þèr, að hann hugsar allt annað sjálfr um það efni.

Vongóðr: Það býzt eg við hann gjöri. Enn við skulum samt bíða eftir honum; og svo gjörðu þeir.

Þá kallaði Kristinn til hans og mælti: Haltu áframm maðr; því ertu allt af á eftir?

Fávís: Mèr þykir mest gaman að fara einn mèr; að minnsta kosti þykir mèr það skemmtilegra, enn að vera með fleirum, nema þeir sè þá því skemmtilegri.

Þá mælti Kristinn í lágum hljóðum við Vongóðann: Sagði eg þèr ekki, að hann mundi ekki hirða um okkar fèlag? Kondu samt til okkar; við skulum skrafa saman og stytta okkr stundir í þessari eyðimörku. Nú, nú, sagði hann, enn fremr, við Fávísan, hvernig líðr þèr? Hvernig stendr á reikningunum milli Guðs og sálar þinnar nú?

Fávís: Ó, eg vona bærilega. Því allt af hefi eg nóg af góðum hugsunum, sem vakna í sál minni og eru mèr til huggunar á leiðinni.

Kristinn: Æ, blessaðr láttu okkr heyra einhverjar af þessum góðu hugsunum.

Fávís: Nú, eg er að hugsa um Guð og himininn.

Kristinn: Já, það gjöra nú líka djöflar og dæmdar sálir.

Fávís: Enn eg hugsa um þá með löngun og þrá eftir þeim.

Kristinn: Það gjöra líka margir, sem aldrei koma þangað. Sála heimskingjans þráir, enn öðlast ekkert. (Orðskv. 13. 4.)

Fávís: Enn eg hugsa um þá, og yfirgef allt þeirra vegna.

Kristinn: Það efast eg um, því að yfirgefa allt, er mjög hart aðgöngu, já langt um harðara aðgöngu enn margir ætla. Enn því heldr þú, eða hvað gengr þèr til, að vera sannfærðr um það, að þú hafir yfirgefið allt fyrir Guð og himininn.

Fávís: Hjarta mitt segir mèr það.

Kristinn: Spekingrinn segir: Sá sem treystir hjarta sínu, er heimskr. (Orðskv. 28. 26.)

Fávís: Þessi orð eru töluð um illt hjarta, enn mitt hjarta er gott.

Kristinn: Hvernig sannar þú það?

Fávís: Það huggar mig með voninni um himininn.

Kristinn: Enn það dregr þig líklega með því syndsamlega á tálar. Því að hjartað veitir manninum oft glaðar vonir um þá hluti, sem hann hefir enn þá enga ástæða að hafa nokkra von um.

Fávís: Enn mitt hjarta og líf samsvara hvort öðru og því er von mín á góðum rökum byggð.

Kristinn: Hver hefir sagt þèr, að hjarta þitt og líf þitt samsvari hvort öðru?

Fávís: Það segir mitt eigið hjarta.

Kristinn: Spurðu fèlaga minn, hvort eg sè þjófr. Vittu hvað hann segir. Eins er vitnisburðr hjarta þíns. Í þessu efni er allr vitnisburðr ógildr, nema vitnisburðr Guðs orðs, því hann er órækr.

Fávís: Enn er það ekki gott hjarta, sem hefir góðar hugsanir? og er það ekki gott líf, sem fer eftir boðum Guðs?

Kristinn: Jú; það er gott hjarta, sem hefir góðar hugsanir, og það er gott líf, sem fer eftir boðum Guðs. Enn það er tvennt ólíkt, að vera þannig, eða að halda að maðr sè þannig.

Fávís: Segðu mèr nokkuð: Hvað kallar þú góðar hugsanir, og hvaða líf segir þú að sè eftir boðum Guðs?

Kristinn: Það eru margvíslegar góðar hugsanir til; sumar um oss sjálfa, sumar um Guð, um Krist, og ýmislegt fleira.

Fávís: Hvaða hugsanir eru góðar um oss sjálfa?

Kristinn: Þær einar, sem samsvara Guðs orði.

Fávís: Hvenær koma hugsanir vorar um oss sjálfa saman við Guðs orð?

Kristinn: Þegar vèr fellum sama dóm á oss, eins og Guðs orð gjörir. Þetta skal eg nú skýra betr. Guðs orð segir um holdlega lyndan mann: Enginn er rèttlátr, enginn er sá er gott gjöri. Það segir einnig: Sèrhver löngun hjartans er einungis vond, og það allt í frá æsku (1 Mós. b. 6. 5; Róm. 3. 10, 12) og aftr: löngun hjartans er vond, jafnvel allt í frá æsku. (1 Mós. b. 8. 21.) Ef vèr því hugsum þannig um sjálfa oss, og höfum tilfinningu samsvarandi hugsuninni, þá eru hugsanir vorar góðar, því að þær eru samkvæmar orði Guðs.

Fávís: Því trúi eg aldrei, að hjarta mitt sè svo vont.

Kristinn: Þá hefir þú aldrei haft eina góða hugsun um þig, alla þína æfi. Enn nú skal eg segja þèr meira. Eins og orð Guðs dæmir hjörtu vor, eins dæmir það hegðun vora; þegar því hugsanir vorar um hjartað og breytnina samsvara dóminum, sem Guðs orð fellir á hvort tveggja, þá er hvort tveggja gott, því að það samsvarar dómi Guðs orðs.

Fávís: Talaðu greinilegar.

Kristinn: Það mun bezt. Guðs orð segir, að vegir mannsins sè krókóttir, ekki góðir, heldr illir; það segir, að mennirnir sè af náttúrunni ekki á hinum góða vegi og þekki hann ekki. (Sálm 125. 5; Orðskv. 2. 15; Róm. 3. 12.) Þegar nú maðrinn hugsar þannig um vegu sína; og gjörir það með innilegri tilfinningu og í auðmýkt hjartans, þá hefir hann góðar hugsanir um vegu sína, því að þeim ber þá saman við dóm Guðs orðs.

Fávís: Hvað eru góðar hugsanir um Guð?

Kristinn: Um þær er að öllu leyti sama máli að gegna; þær eru góðar þegar þeim ber saman við það, sem orð hans segir um hann; og það er þá, þegar vèr hugsum um veru hans og eiginlegleika, eins og orð hans hefir kennt oss. Enn eg get ekki orðið fjölorðr um það efni að sinni. Enn þegar vèr tölum um Guð með tilliti til sjálfra vor, þá höfum vèr rèttar hugsanir um hann ef vèr erum sannfærðir um það, að hann þekki oss betr en vèr sjálfir, og að hann geti sèð þar synd hjá oss, er vèr ekki höfum neina hugmynd sjálfir um að synd sè fyrir hjá oss. Þegar vèr hugsum, að hann þekki vorar huldustu hugsanir, og að hjarta vort með öllu þess dýpi sè ávallt opið fyrir augum hans; einnig þegar vèr hugsum, að allt vort rèttlæti er andstyggð fyrir honum, og að hann hatar, að vèr stöndum frammi fyrir honum með nokkurum sèrþótta, jafnvel þá, er vèr höfum gjört vor beztu verk.

Fávís: Heldr þú, að eg sè sá heimskingi, að ímynda mèr það, að Guð sjái ekki betr og lengra enn eg? eða svo sèrgóðr, að eg þyrði að koma framm fyrir Guð, jafnvel með mín beztu verk?

Kristinn: Já, já, láttu mig þá heyra hvað þín skoðun er á þessu efni.

Fávís: Já; og til þess, að verða sem orðfæstr, þá er það mín skoðun, að eg verði að trúa á Krist, til þess, að eg verði rèttlættr.

Kristinn: Ha? heldr þú, að þú verðir að trúa á Krist, þegar þú finnr ekki, að þú þurfir hans við? Þú sèrð hvorki þinn meðfædda, nè sjálfskapaða veikleika; heldr hefir þú þá ímyndun um sjálfan þig og verk þín, sem auðsjáanlega bendir til þess, að þú ert einn af þeim, sem aldrei sáu það, að Kristr varð að vera rèttlátr, til þess, að rèttlæta þig fyrir Guði. Hvernig getr þú sagt, þegar nú allt er þannig, að þú trúir á Krist?

Fávís: Ó, jeg trúi full vel minni trú samt.

Kristinn: Nú hvernig trúir þú þá?

Fávís: Eg trúi því, að Kristr sè dáinn fyrir synduga menn, og að eg verði rèttlættr fyrir Guði, og undan þeginn bölvuninni með því, að hann líti í náð sinni til hlýðni minnar við boð hans; eða, með öðrum orðum: Kristr gjörir hina guðræknu skyldurækt mína þekka Föður sínum fyrir sakir þess máttar, er liggr í verðskuldun hans, og þannig verð eg rèttlættr.

Kristinn: Eg verð að svara þessarri trúarjátningu þinni:

1. Þú hefir ímyndaða trú, því þessarrar trúar er hvergi getið í Guðs orði.

2. Þú hefir ránga trú, því að hún tekr rèttlætinguna frá Krists eigin rèttlæti og eignar hana þínu eigin rèttlæti.

3. Þessi trú játar ekki því að Kristr rèttlæti þig sjálfan, heldr verk þín; og fyrir verk þín þig sjálfan, enn það er villa.

4. Þess vegna er þessi trú þín táldræg; já svo táldræg, að hún mun draga yfir þig dóm á degi Guðs almáttugs. Því hin rèttlætandi trú lætr sáluna flýja í skjól Jesú Krists rèttlætis, þegar hún finnr til þess, hversu ósjálfbjarga hún er með lögmálinu. Enn þetta rèttlæti er ekki náð, í þeim skilningi, að hann gjöri hlýðni þína Guði þakknæmilega þèr til rèttlætingar, heldr sína eigin hlýðni við lögmálið, er hann leið og gjörði vor vegna það sem lögmálið heimtaði. Þetta rèttlæti, segi eg, er það, er hin sanna trú þekkist; undir faldi þess er sálinni skýlt og með því kemr hún svo sem óflekkuð framm fyrir Guð, og verðr meðtekin og leyst frá fyrirdæmingunni.

Fávís: Hvað segirðu? Ætlastu til þess, að vèr treystum því, sem Kristr hefir í eigin persónu gjört án vor? Þessi skoðun mundi leysa bönd allra girnda vorra, og heimila oss leyfi til þess, að lifa og láta eins og vèr vildum; því að, hvað gjörir það til, hvernig vèr hegðum oss, úr því að trú vor á persónulegt rèttlæti Krists rèttlætir oss?

Kristinn: Þú heitir Fávís, og þú berð nafn með rentu; enda sannast það bezt af þessu svari þínu, að það er satt, er eg segi. Þú veizt ekki hvað rèttlætandi rèttlæti er, og eins fáfróðr ertu um það, hvernig þú getir frelsað sál þína með trúnni á það, frá hinni þungu reiði Guðs. Já, þú hefir enga hugmynd um afl hinnar sáluhjálplegu trúar á rèttlæti Jesú Krists, sem beygja skal hjartað og leiða til Guðs fyrir Krist, og kennir oss að elska hans nafn, hans orð, vegu og lýð, enn ekki eins og þú í fávizku þinni ætlar.

Vongóðr: Spurðu, hvort hann hafi nokkurn tíma sèð Krist opinberast sèr af himnum.

Fávís: Hvað þá? Ert þú líka einn af þessum opinberunar mönnum? Eg held nú að allt það, sem bæði þú og aðrir segja mèr um það efni, sè að eins úr sprottið rugluðum heila.

Vongóðr: Vittu, maðr, að Kristr er svo djúpt falinn í Guði, fyrir hinni náttúrulegu skynjan holdlega hugsandi manns, að enginn getr þekkt hann sèr til sáluhjálpar nema Guð Faðirinn opinberi manninum hann.

Fávís: Þetta er þín trú, enn ekki mín. Enn samt efast eg ekki um það, að mín trú sè allt eins góð og gild, eins og ykkar, þó eg hafi færri heilabrot enn þið.

Kristinn: Lofaðu mèr að svara þessu einu orði: Þú ættir ekki að mæla svo lettúðarfullum orðum í þessu efni, því það skal eg standa óhræddr við og fullyrða, eins og fèlagi minn hefir gjört, að enginn getr þekkt Jesúm Krist, nema Faðirinn opinberi hann honum Já, jafnvel trúin (þegar hún er sönn), með hverri sálin meðtekr Jesúm Krist, verðr að vakna fyrir hinn óendanlega mikla mátt hans (Math. 11. 27; 1 Kor. 12. 3; Eph. 1. 17-19); og sè eg, vesæli Fávís, að þú ráfar í fávizku um afl og magn þessarrar trúar. Vaknaðu því, sjáðu ófarsæld þína, og flýðu í faðm Drottins Jesú Krists; og með rèttlæti hans, sem er guðlegt rèttlæti, því hann er sjálfr Guð, muntu frelsaðr verða frá glötuninni.

Fávís: Þið gangið svo hart; eg get ekki orðið ykkr samferða; farið þið á undan; eg ætla að verða á eftir um tíma.

Þeir fóru, og súngu:-

Vilt þú enn, Fávís, hrinda í heimsku þinniHeilræðum, sem þèr buðust mörgu sinni?Hafnirðu enn þá einu sinni þeim,Eftirköstin þig sækja bráðum heim.Gæt þín í tíma, beyg þig, hræðslu hrind!Heilræði, þegið greitt, er frelsis lynd;Hafnirðu því að sinni, er horfin þèrHamingjusemin, Fávís; trú þú mèr!

Því næst tók Kristinn þannig til orða við fèlaga sinn: Kondu, nú Vongóðr minn, eg sè það, að við erum orðnir aftr einir saman.

Þótti mèr þeir nú halda áframm og Fávís fara í hægðum sínum á eftir. Þá hófst Kristinn máls, og sagði við fèlaga sinn: Eg sáraumkast yfir þenna vesaling; eg er sannfærðr um það, að hann fær að lokum hörmuleg afdrif.

Vongóðr: Í borg vorri úir og grúir alstaðar af þess konar fólki; þar eru heil heimili, já heilar götur, og það þær er pílagrímar búa í, sem ekki eru betr farnar enn hann. Fyrst nú svo margir af þessu tagi eru í okkar átthögum, hversu margir getrðu þá ekki ímyndað þèr að hafi verið þar er hann var fæddr?

Kristinn: Já, satt er það, sem ritningin segir: Hann hefir blindað augu þeirra, að þeir sjái ekki, o. s. frv. (Joh. 12. 40.) Enn nú erum við tveir einir. Hvað virðist þèr um þess konar menn? Heldr þú, að þeir finni aldrei til syndabyrði sinnar, nè skyni hversu hætt hagr sinn stendr?

Vongóðr: Æ, blessaðr svaraðu þessarri spurningu sjálfr, því að þú ert mèr eldri og reyndari.

Kristinn: Þá segi eg: eg held þeir finni til þess af og til; enn vegna fávizku sinnar ímynda eg mèr að þeir sjái það ekki, að þesskonar meðvitund miði þeim til góðs. Þeir gjöra því allt, er þeir orka til þess, að kæfa þessar tilfinningar, og halda svo áframm að smjaðra fyrir sjálfum sèr í hjarta sínu.

Vongóðr: Eg held það sè satt, er þú segir, að óttinn stuðli mjög mikið að betrun mannsins og beini honum á rètta leið, er hann leggr af stað í pílagrímsferð sína.

Kristinn: Það er efalaust, að hann gjörir það, ef það er sannr ótti; því að ritningin segir: Ótti Drottins er upphaf vizkunnar. (Job 28. 28; Sálm 111. 10; Orðskv. 1. 7, og 9. 10.)

Vongóðr: Hvað kallar þú sannan ótta?

Kristinn: Hinn sanna ótta má þekkja á þrennu. Hann byrjar á hinni hollu sannfæringu mannsins um syndsemi sína. Hann knýr sálina til þess, að halda sèr fast við Krist, að hún megi frelsast. Hann glæðir og elr í sálunni djúpa lotningu fyrir Guði, orði hans og vegum; hann skerpir samvizkuna og hræðir manninn frá því, að snúa til hægri eða vinstri, út af vegi Guðs og hallast að nokkurum hlut, sem vanheiðrar hann, truflar sálarinnar friði, hryggir Andann, eða gefr óvininum efni til ákæru.

Vongóðr: Það er rètt; nú held eg þú hafir mælt satt. Erum við nú ekki bráðum komnir út úr Töfrahèraði?

Kristinn: Hvað, ertu orðinn þreyttr á samtalinu?

Vongóðr: Nei, það er lángt frá, enn eg vildi vita, hvar við værum.

Kristinn: Við eigum eftir hèr um bil tvær mílur af því. Enn við skulum nú sleppa því, og hverfa að umræðuefninu aftr:

Hinir fávísu skynja því ekki það, að þessar tilfinningar, sem miða til þess, að hræða þá, sè þeim til góðs, og þess vegna reyna þeir, með öllu móti, að kæfa þær niðr.

Vongóðr: Hvernig reyna þeir til að kæfa þær?

Kristinn: Þeir ætla, að þessi ótti sè djöfulsins verk, sem þó er í rauninni Guðs verk, og vegna þessarrar ímyndunar standa þeir á móti honum, eins og hann væri beinlínis þeim til bölvunar. Þeir ímynda sèr, að þessi ótti miði til þess, að brjóta niðr trú þeirra, og þó hafa þessir fáráðlingar, Guð hjálpi þeim, alls enga trú, og þess vegna herða þeir hjörtu sín gegn óttanum. Þeir sannfæra sjálfa sig um það, að þeir eigi ekki að óttast, og þess vegna þróast, þrátt fyrir hræðsluna, sjálfstraust þeirra og sèrgæðingsskapr. Þeir sjá það, að hræðsla þessi stuðlar að því, að nema frá þeim hina hörmulegu gömlu sjálfs-helgi, þess vegna berjast þeir líka gegn þessum ótta af öllu megni.

Vongóðr: Já, eg kannast við margt af þessu, sem þú segir; það lýsir mèr eins og eg var, áðr enn eg þekkti sjálfan mig.

Kristinn: Eg held það sè nú bezt, að láta Favísann vera einn um sína reiðu, og hverfa að öðru, sem við höfum meira gagn af að ræða um.

Vongóðr: Já, fyrir alla muni; enn byrja þú eins og þú ert vanr.

Kristinn: Þekktir þú mann nokkurn, að nafni Skammgóðr, fyrir eitthvað tíu árum, þar sem þú áttir heima? Hann var þá álitinn trúmaðr mikill.

Vongóðr: Nú, ætli eg þekkti hann þó; já, hann dvaldi í Onáð, það var bær einn hèr um bil bæjarleið frá Ráðvendni, og var í næsta húsi við mann, að nafni Viðsnúinn.

Kristinn: Það kemr heim, þeir voru báðir í sama húsinu. Þessi maðr var mjög árvakr um tíma, og held eg að hann hafi þá haft einhverja tilfinningu af synd sinni og launum hennar.

Vongóðr: Eg er á þínu máli um þetta, því hann kom oft til mín allr út grátinn, því eg bjó á næstu grösum við hann, og aumkaðist eg þá yfir manninn og hafði góða von um hann; enn menn geta sèð það á honum, að það sannaðist er Kristr mælti: Ekki munu allir sem segja Herra, Herra! innganga í Guðs ríki.

Kristinn: Hann sagði mèr einu sinni, að hann ætlaði að fara í pílagrímsferð eins og við förum nú. Enn þá komst hann allt í einu í kynni við mann nokkurn að nafni Sjálfhólpinn; og frá þeim tíma hættu kynni okkar.

Vongóðr: Nú, fyrst við erum að tala um hann, þá er eins gott, að við gætum dálítið nákvæmar að því, hvað dróg hann til þess, að snúa svo bráðlega við, og hvað dregr aðra menn til þess.

Kristinn: Já, við getum haft margt gott af því; enn byrja þú.

Vongóðr: Eg skal gjöra það. Að því, er eg fæ skilið, þá er það fernt sem dregr þá til þessa.

Fyrst: Þó að samvizka þessarra manna sè vöknuð, þá er samt hjarta þeirra óbreytt. Þegar því hin þúnga og sára tilfinning um sekt þeirra líðr frá, þá er öll guðræknishvöt þeim horfin; þeir hverfa því í fornan farveg aftr; þeim fer líkt og hundi, sem veikr hefir orðið af því, sem hann hefir etið. Meðan hann er veikr ælir hann öllu upp aftr, sem hann etr; enn hann gjörir það ekki af eigin hvöt, ef vèr megum svo að orði kveða um hund, heldr þess vegna, að maginn er veikr. Enn þegar veikin er liðin frá, og maginn kominn í samt lag, þá snýr hann við aftr, og sleikir allt upp, því að velgjan hefir eftir allt saman ekki einu sinni vakið viðbjóð hjá honum á spýjunni. Þess vegna er það satt sem skrifað er: Hundrinn snýr aftr til spýju sinnar. (2 Pet. 2. 22.) Þeir brenna af löngun eftir himninum einungis þá, er óttatilfinningin og ímyndunin um helvítis kvalir legst þungt á þá; enn þegar tilfinningin og óttinn fyrir fyrirdæmingunni kulnar og dofnar, þá kólnar og dofnar einnig löngun þeirra eftir himninum og sáluhjálpinni. Þannig ber þá á endanum að því, að þegar tilfinning um synd þeirra, og óttinn fyrir hegningunni er farinn, að löngun þeirra eftir sælu og sáluhjálp deyr, og þeir hverfa aftr á hinn forna veg.

Í öðru lagi: Er ótti þeirra þrælsótti, sem yfirstígr þá. Þessi ótti er fyrir mönnum, því ótti fyrir mönnum hefir snöru. (Orðskv. 29. 25.) Þó að þeir því virðist brenna af löngun eftir himninum, á meðan logar helvítis suða þeim í eyrum, þá hverfa þeir til annarra hugsana, þegar þessi skelfing er um liðin; og hugsa: Það er þó eins gott, að vera hygginn og leggja ekki allt á hættu fyrir það, sem menn ekki fá skynjað, hvað er, eða varpa því á tvísýnu fyrir það, sem að minnsta kosti leiðir af sèr óumflýjanlegar og óþarflegar þrautir. Því næst hverfa þeir aftr í heimsins skaut.

Í þriðja lagi liggr sem bjarg á braut þeirra sú blygðun sem trúnni er samfara. Þeir eru drambvísir og hrokafengnir, enn trú er í þeirra augum lá og fyrirlitleg; þegar þeim því er horfin tilhugsunin um helvíti og komandi reiði, þá hverfa þeir aftr á fornan veg.

Í fjórða lagi fá þeir með engu móti staðizt, að hugsa um syndasekt og hræðslu. Þeir vilja með engu móti sjá eymd sína fyrr enn þeir eru komnir í hana. Þó er alllíklegt, að þeir mundu flýja þangað, sem hinir rèttlátu flýja, og verða hólpnir, ef þeim væri um það gefið fyrst þegar þeir sjá þessa synda sjón, að sjá hana og skoða til hlítar. Enn þeir hræðast, eins og eg sagði, hugsun um sekt og hræðslu, og þegar þeir því hætta að hrökkva upp við umhugsun um skelfingar og reiði Guðs, þá herða þeir glaðir hjörtu sín og kjósa þann lifnaðar hátt, sem herðir þau meir og meir.

Kristinn: Þú ert all-nærri sannleikanum, því undirrótin til alls þessa er það, að hjartað og vilinn hafa ekki snúizt. Þeir eru því líkir ódáðamanni, sem stendr frammi fyrir dómaranum, hann skelfr og titrar og virðist iðrast alvarlega, enn undirrótin er þó að eins óttinn fyrir gálganum, enn ekki viðbjóðr eða andstyggð á ódáðaverkinu, og sèzt það bezt á því, að jafnskjótt og þessi maðr er látinn laus, gjörist hann þjófr og bófi að nýju. Enn ef hugr hans hefði tekið nokkurum umskiftum, þá mundi hann hafa orðið allr annar.

Vongóðr: Nú hefi eg sýnt þèr tildrögin til þess, að menn hverfa þannig aftr; enn sýndu mèr nú aðferðina er þeir hafa.

Kristinn: Það skal el gjöra.

1. Þeir þoka hugsunum sínum svo langt, sem þeim er unt frá Guði, dauðanum og hinum komanda dómi.

2. Því næst fara þeir að vanrækja smátt og smátt sínar heimuglegu skyldur, t. á. m. að bænast í leyndum, að bæla niðr girndir sínar, að vera árvakrir, að hryggjast út úr synd sinni, og þar framm eftir götunum.

3. Þá fara þeir að forðast fèlag þeirra manna, er hafa lifandi og heita trú.

4. Eftir þetta fara þeir að verða hirðulausir um opinberar guðræknisskyldur sínar, t. á. m. að heyra Guðs orð, lesa það, sækja kristilega guðsþjónustugjörð o. s. frv.

5. Þessu næst fara þeir að grafast eftir yfirsjónum hins guðhrædda, og það svo djöfullega, að ef þeir finna einhverja yfirsjón hjá honum, þykjast þeir hafa algilda ástæðu til þess, að kasta allri trú.

6. Framm úr þessu sækjast þeir eftir fèlagsskap og umgengni við holdlega hugsandi menn, lettúðuga og sírvirðulega menn.

7. Þá fara þeir að hafa um hönd holdlegar og óguðlegar viðræður í leyni; og verða manna fegnastir ef þeir sjá það, að þetta sama verðr þeim á, er taldir eru heiðvirðir menn; þegar þeir því hafa þessarra manna dæmi fyrir sèr, þá gjörast þeir enn þá ósvífnari í athæfi sínu og frammgöngu.

8. Nú fara þeir að leika sèr opinberlega að smá-syndum.

9. Og þegar þeir eru orðnir full-harðúðugir og ósvífnir, þá fara þeir að sýna sig eins og þeir eru. Þegar þeir nú þannig eru sokknir að nýju í djúp eymdarinnar, þá eru þeir að eilífu glataðir í sjálfstáli sínu, nema þeir bjargist við af einhverju kraftaverki guðlegrar náðar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

17. kafli af 31 · 19 mín. eftirFávís á ný