Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

25. kafli

Gamli Ráðvandr

um 23 mín. lestur

Skammt eitt framm undan þeim stóð eik ein, og er þau komu að henni, fundu þau þar aldraðan mann í fasta svefni. Sáu þau, að hann var pílagrímr bæði af klæðnaði hans, göngustafnum og beltinu.

Hugprúðr gekk að honum og vakti hann. Enn er öldungrinn lauk upp augunum, mælti hann: Hvað gengr á? Hverir eru þið? Hvað vilið þið hèr?

Hugprúðr varð fyrir svörunum og mælti: Láttu þèr hægt, hèr eru ekki aðrir enn vinir þínir. Enn maðrinn brást ekki allkunnuglega við þeim fyrir þetta; hafði hann alla varúð við, og vildi vita hvað manna þau væri, áðr enn hann hefði meiri afskifti af þeim. Hugprúðr sagði þá fyrst til nafns síns, og er eg fylgdarmaðr þessarra pílagríma, mælti hann: Eru þeir á leiðinni til hins himneska lands.

Þá svaraði öldungrinn: Mitt nafn er Ráðvandr, og bið eg ykkr fyrirgefningar á stygglyndi mínu. Eg hèlt að þið kynnuð ef til vildi, að vera úr reifaraflokki þeim, sem rændu Trúarveikann fyrir skömmu, og höfðu á brottu alla peninga hans. Enn nú sè eg, síðan eg opnaði augun, að þið eruð af heiðarlegra tagi.

Hugprúðr: Enn heyrðu: hvernig heldr þú að þú hefðir getað bjargað þèr ef við hefðum verið ræningja flokkr?

Ráðvandr: Eg hefði blátt áframm barizt við ykkr meðan nokkur þróttr var í mèr; og er eg viss um það, að þið hefðuð aldrei haft neitt gott af mèr; því að kristinn maðr er ósigrandi, nema hann gefist upp.

Hugprúðr: Fallega mælt; og sè eg af þessu, að þú ert einn af kyninu, því þú hefir satt mælt.

Ráðvandr: Og eg heyri af undirtektum þínum, að þú veizt í hverju sannarlegt pílagríms líf er fólgið; því allir aðrir halda, að við sèum allra manna auðunnastir.

Hugprúðr: Fyrst við höfum nú orðið svo heppnir að finnast, þá gjörðu svo vel og segðu mèr nafn þitt, og nafn staðarins, sem þú kemr frá.

Ráðvandr: Ekki get eg sagt þèr nafn mitt; enn kominn er eg frá Fásinnuborg; hún er eitthvað fjórum mælistigum norðar enn Glötunarborg.

Hugprúðr: Á, já já; nú er eg að að skilja; eg ætla þá að eg muni ráma í, hver maðrinn er. Nafn þitt er forn Ráðvendni. Er ekki svo?

Ráðvandr roðnaði við og mælti: Ekki er eg ráðvendnin sjálf, enn Ráðvandr er nafn mitt, og er það hjartans ósk mín, að eg megi bera nafn með rentu. Enn hvernig gaztu getið þess til, að eg væri þessi maðr, úr því eg kom frá slíkum stað?

Hugprúðr: Eg var búinn að heyra getið um þig aðr, því Drottinn minn þekkir þig eins og alla aðra hluti á þessari jörðu. Enn eg hefi oft verið að furða mig á því, að nokkur skyldi ráðast frá þinni fæðingarborg í pílagríms ferðir; því þín borg er jafnvel miklu verri enn Glötunarborg.

Ráðvandr: Já, við erum fjær sólu, og þess vegna erum við kaldari og tilfinningarlausari. Enn þó að maðrinn lifi uppi á há jöklum, þá bráðnar hið ískalda hjarta hans jafnskjótt og geisla rèttlætisins sólar leggr inn í það. Þannig fór fyrir mèr.

Hugprúðr: Eg trúi því, faðir Ráðvandr, eg meir enn trúi því; því að eg veit að það er heilagr sannleiki.

Þá heilsaði öldungrinn öllum pílagrímunum mið heilögum elsku kossi; spurði þá til nafns, og hvernig ferðin hefði gengið frá því þau hófu pílagrímsgöngu sína.

Kristín tók undir fyrst, og mælti: Eg býzt við, að þú hafir heyrt getið nafns míns; því Kristinn, hinn alkunni góði pílagrímr var maðrinn minn, og þessir fjórir drengir eru synir okkar.

Það er ekki hægt að ímynda sèr, hvað öldungnum varð við, þegar Kristín sagði honum, hver hún var. Hann komst allr á loft, hann brosti út undir eyru, og blessaði þau og árnaði þeim allra heilla, og mælti: Eg hefi heyrt margt sagt um mann þinn, og ferðir hans, og alla þá bardaga, er hann háði; og eg má segja það, þèr til huggunar, að nafn mannsins þíns kveðr hvervetna hèr um slóðir við í hvers manns munni. Trú hans, hugrekki, þolgæði og hreinskilni í öllum hættum og mótlæti, hefir fengið nafni hans frægðar mikillar. Því næst snèri hann sèr að drengjunum og spurði þá til nafns og er þeir höfðu sagt honum hið sanna af, mælti hann við þá: Matteus! líkstu tollheimtumanninum Matteusi, ekki í ókostum, heldr í sannnefndum mannkostum. (Math. 10. 3.) Enn þú, Samúel, líkstu spámanninum Samúel, hinum bænrækna trúmanni. (Sálm 99. 6.) Við Jósef sagði hann: Líkstu Jósef í húsi Pótífars, skírlífr og öflugr til að standa af þèr freistingar. (1 Mós. b. 39.) Við Jakob mælti hann: Líkstu Jakob hinum rèttláta, og Jakobi bróður Drottins vors. (Post. g. 1. 13.)

Að svo mæltu var honum sagt, að Líkn hefði yfirgefið. fóstrjörð sína og frændr til þess, að verða Kristínu samferða, og sonum hennar. Þá mælti hinn aldraði heiðvirði öldungr við hana: Þú heitir Líkn, og mun Drottins miskunn halda þèr við, og leiða þig gegnum alla mæðu, er þèr kann að mæta, unz þú kemr þangað er þú nýtr þess unaðar, að sjá lynd miskunnarinnar augliti til auglitis.

Hugprúðr hlustaði með unaði á mál öldungsins og brosti við honum, er hann hafði talað út.

Nú fóru menn af stað, og hèldu áframm ferðinni. Spurði þá Hugprúðr öldunginn, hvort hann kannaðist ekki við mann, að nafni Síhræddr, er lagt hafði í pílagrímsferð frá sömu stöðvum og Ráðvandr.

Ráðvandr: Jú, eg kannast vel við hann. Hann var á leiðinni að verða Guðs barn. Enn hann var sá mesti vandræða maðr, sem eg hefi nokkurn tíma þekkt.

Hugprúðr: Eg heyri, að þú þekkir hann, því manninum er rètt lýst.

Ráðvandr: Já, eg held eg þekki hann. Eg var nákunnugr honum og við vorum að kalla allt af saman; og þegar hann fór fyrst að snúa huga sínum til hins ókomna, var eg hjá honum.

Hugprúðr: Eg fylgdi honum alla leið frá húsi herra míns allt að hliðum hinnar himnesku borgar.

Ráðvandr: Já, já; þú veizt þá, held eg, hvaða vandræða maðr hann var.

Hugprúðr: Ó, já. Enn eg gaf mig ekkert að því. Því að þeir menn, sem hafa mína köllun á hendi, verða oft að takast leiðsögu á hendr fyrir menn af því tagi.

Ráðvandr: Gjörðu svo vel að segja mèr dálítið af honum og hegðun hans, meðan þú sagðir honum til vegar.

Hugprúðr: Það er þá stutt af að segja, að hann var allt af dauðhræddr um það, að hann mundi aldrei komast þangað, er ferðinni var heitið. Allt er hann heyrði menn tala um, varð til að hræða hann, ef af því mátti ráða, að honum væri búinn einhver ókominn erviðleiki eða mótstaða. Eg hefi heyrt, að hann hafi legið veinandi við Sturlandíki í heilan mánuð, og hafi ekki þorað að leggja út í það, þó hann sæi marga aðra fara yfir um, og þótt margir byðust til að hjálpa honum. Hann vildi samt með engu móti hverfa aftr. Hann kvaðst heldr vilja deyja, heldr enn komast ekki til Himinborgar; og þó var hann huglaus við hvern hinn minnsta erviðleika, og valt um hvert strá, er fleygt var í götu hans. Enn er hann hafði legið við Sturlandíki allan tímann, sem eg áðr gat um, lagði hann í einhverju fáti út í fenið árla morguns, einn góðan veðrdag, og komst yfir um. Enn þegar yfir um var komið, ætlaði hann ekki lengi vel að trúa sjálfum sèr. Eg held hann hafi allt af haft Sturlandíki í huganum og flutt það með sèr, hvar á landi sem hann fór, því ella hefði hann ekki getað verið eins hræddr og hann var. Þegar hann kom að hliðinu þröngva, sem gætir vegar þessa, þar sem hann hefst, stóð hann þar lengi, lengi, áðr enn hann hætti á að drepa á dyr. Þegar hliðið var opnað, hleypti hann öllum öðrum inn á undan sèr, enn drógst sjálfr aftr úr, og kvaðst ekki vera þess verðr, að sèr væri hleypt inn. Þarna stóð hann nú lafhræddr og lèt marga fara inn á undan sèr, sem þó komu seinna að hliðinu enn hann; stóð hann skjálfandi og titrandi, og mundu flestir, er sèð hefðu þessa eymda sjón, hafa aumkazt yfir hann. Enn ekki vildi hann aftr hverfa með neinu móti. Loks tók hann í hnallinn er hèkk við hliðið og drap eitt eða tvö högg ofr hægt á dyrnar, og voru þær jafnskjótt opnaðar, enn hann hrökk aftr, eins og fyrr. Enn sá, er kom til dyranna, fór út á eftir honum og sagði við hann: Þú skjálfandi skepna hvað viltu? Enn er Síhræddr heyrði þessi orð, hnè hann á jörð niðr. Enn hinn varð hissa, er hann sá manninn liggja þarna magnlausan og sagði: Friðr sè með þèr! stattu upp, því eg hefi opnað hliðið fyrir þèr, kondu inn, því þú ert blessaðr! Nú brölti hann á fætr, og gekk inn skjálfandi og titrandi, enn er inn var komið, var hann svo feiminn, að hann þorði ekki, að láta sjá framan í sig. Hann stóð við stundarkorn þarna og var honum gjört til góða, eins og þú þekkir til; og að því búnu var hann beðinn að halda áframm og honum sagt til vegar. Nú hèlt hann áframm, unz hann kom að húsi okkar, þar sem húsbóndi minn, Fræðari, býr; og fór honum á sömu leið hèr, eins og áðr við hliðið. Hann lá í kuldanum fyrir dyrum lengi, lengi, áðr enn hann rèðst í, að drepa á dyr; enn aftr vildi hann samt ekki snúa, fyrir nokkurn mun, eg var þó ekki vistin góð úti fyrir, því þá voru nætr bæði langar og kaldar. Já, hann hafði í barmi sèr hið besta meðmælabrèf til herra míns, um það, að taka honum vel, og veita honum allan þann beina, er föng væri á, og að ljá honum hraustan og öflugan leiðsögumann, því að hann væri sjálfr svo undarlega lítilsigldr. Enn þrátt fyrir allt þetta áræddi hann ekki að drepa á dyr; og lá hann svo úti kringum húsið, þessi aumingi, þangað til hann var nærri sálaðr úr hungri; og svo var hugleysi hans magnað, að hann þorði ekki að koma nærri húsinu, þó hann sæi aðra drepa á dyr; og fá viðstöðulaust inngöngn. Loks varð mèr litið út um gluggann og sá eg þá, hvar, maðr var að ráfa framm og aftr fyrir utan dymar; fór eg þá út til hans, og spurði hann, hvað manna hann væri. Þessi vesalingr svaraði engu, enn augun flutu í tárum, og þóktist eg þá ráða í, hvað hann vildi. Eg hljóp inn og sagði frá manninum, og sögðum við húsbónda okkar frá, hvað um væri að vera. Hann sendi mig því út aftr, og beiddi mig að fá hann inn: enn það gekk ekki af fyrirhafnarlaust. Loks fèkkst hann þó til að koma inn, og má eg segja það, að húsbóndi minn tók honum með allri alúð og nærgætni. Allt sem bezt var á borðinu var borið fyrir hann. Hann tók nú upp meðmælingarbrèfið og sýndi það, og tjáði húsbóndi minn honum, að beiðni hans skyldi verða að öllu fullnægt. Hèr dvaldi hann nú um tíma, og var sem af honum rynni nokkuð feimnin og hugleysið, og hann færi að una sèr betr. Enda er og húsbóndi minn næsta mjúklátr og þýðr í viðmóti, einkum við þá, sem hann sèr að eru hræddir, og þess vegna gjörði hann hvað hann gat, að örfa hann upp með öllu móti. Þegar hann nú hafði sèð flest, er markvert var að sjá í húsinu, bjóst hann af stað til hinnar himnesku borgar; gaf þá húsbóndi minn honum vínflösku og ýmisleg matvæli, eins og hann áðr hafði gefið Kristni; fórum við svo af stað; eg gekk á undan enn hann fór á eftir; var hann fátalaðr mjög, og gjörði ekki annað enn að stynja og andvarpa í sífellu.

Þegar við komum þangað, sem þrímenningarnir voru hengdir, sagði hann: Hver veit nema sömu örlög bíði mín líka? Enn þegar við komum að gröfinni og krossinum, glaðnaði yfir honum; vildi hann dvelja þar dálítið, og skoða sig um, og virtist mèr hann verða eftir það dálítið hressari í bragði um tíma. Þegar hann kom að Örðugfelli brá honum lítið, og þegar hann sá ljónin lèt hann ekki á sèr bera, að mun; enda var hann ekki svo kvíðinn fyrir slíku; öll hans hræðsla var um það, að hann mundi verða rækr að lokum.

Að Fegrð (s. bls. 37, 9) hafði eg hann inn með mèr, að eg held, nauðugan viljugan. Þegar við vorum komnir inn, kom eg honum þegar í kynni við meyjar þær, er fyrir voru. Enn hann var svo feiminn, að koma meðal manna. Hann leitaði einveru, er hann mátti; og þó þótti honum gaman að fræðandi viðræðum, enn hann var vanr að sitja að hurðarbaki að hlusta á þær. Hann var mjög gefinn fyrir forn fræði og hugsaði mikið um allt þesskonar með sjálfum sèr. Seinna sagði hann mèr, að hann hefði unað sèr mæta vel á þeim tveim stöðum, er hann hefði síðast gist, að Hliði, og heima hjá Fræðara, enn hann hefði ekki komið sèr til þess, að spyrja nokkurn um það, er hann ekki skildi sjálfr.

Þegar við fórum frá Fegrð niðr fjallið, ofan í Niðrlægingardal, gekk honum ferðin betr, enn nokkurum öðrum, er eg hefi sèð fara þann veg; því hann hirti ekki um neina niðrlægingu; og hugsaði um ekkert annað, enn að verða sæll að lokum. Eg held, satt að segja, að einhver ósjálfráð þrá hafi dregið hann að dal þessum; því eg sá hann aldrei sælli á allri ferðinni, enn einmitt í dalnum; því að hann lagðist niðr, faðmaði jörðina og kyssti blómin er uxu þar. (Jer. Harm. 3. 27–29.) Hann fór á fætr á hverjum morgni með dögun og gekk til og frá um dalinn.

Enn þegar við komum í Dauðans-skugga-dal, hèlt eg, að eg mundi missa hann til fulls. Ekki stóð það samt í veginum, að hann vildi hverfa aftr, því honum stóð allt af stuggr af þeirri tilhugsun, heldr vegna þess, að eg hèlt, að hann mundi ætla að sálast úr hræðslu. Hann veinaði hástöfum og sagði: Ó, draugarnir taka mig! Draugarnir taka mig! og gat eg með engu móti haft hann niðr af þessu. Ef draugarnir hefðu heyrt orgin og kveinið í honum, þá er eg viss um það, að þeir hefði komið og sezt að okkr.

Enn það vildi svo til, að þegar við fórum um dalinn, var þar allt svo hljótt, að eg hefi aldrei farið um hann jafn kyrran hvorki fyrr nè síðar; og þetta furðaði mig. Enn eg held Drottinn vor hafi haldið óvinunum í skefjum, og hafi stranglega bannað þeim, að hreyfa á sèr, meðan Síhræddr færi um dalinn.

Það yrði of löng og leiðinleg saga, að geta alls, er við bar á ferð okkar, og ætla eg því, að eins að drepa á eitt eða tvö atriði enn þá úr ferðasögunni. Þegar við komum til Hègómamarkaðar, hèlt eg, að hann mundi ætla að fljúga á alla, er á markaðinum voru. Eg hèlt, að þeir mundi rjúka allir upp og berja á okkr, vegna refsiorða þeirra, er hann lèt dynja óspart yfir þá, fyrir fásinnu þeirra. Á Töfravöllum var hann mjög varkár. Enn, er hann kom að ánni Brúlaus, varð hann sami Síhræddr aftr. Já, já, sagði hann, hèr á eg þá að drukkna að lokum. Aldrei fæ eg að njóta þeirrar sælu, að líta auglit það, er eg hefi farið margar mílur vegar til að sjá.

Enn hèr tók eg eftir einum hlut, er mig furðaði ekki all-lítið. Áin var öll miklu grynnri, enn eg hafði aðr nokkurn tíma sèð hana; og að lokum lagði hann út í hana eftir mikla mæðu, og reyndist hún þá örgrunn. Á leiðinni frá ánni upp að borgarhliðinu fór eg að tala utan að því, að nú væri fylgd mín á enda, og árnaði eg honum að skilnaði góðrar viðtöku. Ó, eg fæ hana, eg fæ hana vissulega svaraði hann, og að því mæltu kvöddumst við og hefi eg ekki sèð hann síðan.

Ráðvandr: Það virðist þá, sem allt hafi lánazt vel á endanum.

Hugprúðr: Já, meir enn það. Eg var aldrei hið minnsta hræddr um hann. Andi hans var gagntekinn af guðlegum hlutum, enn það var allt af að, að hann var svo niðr beygðr, og þess vegna var líf hans svo þúng byrði fyrir hann sjálfan og vandræðasamt fyrir aðra. Hann hafði næmari tilfinningar enn margir aðrir, og svo var hann hræddr að gjöra á hluta annarra, að hann neitaði sèr oft um það, sem hann þó hafði fullkominn rètt til að njóta, vegna þess, að hann vildi engan styggja. (Róm. 14. 21; 1 Kor. 8. 13.)

Ráðvandr: Enn hvað ætli hafi komið til þess, að svo góðr maðr leit aldrei bjartan dag alla æfi?

Hugprúðr: Til þess liggr tvennt: Fyrst það, að Guð vill, að sumir syngi gleðisöngva, enn aðrir djúpa harmasöngva. Herra Síhræddr var einn þeirra, er stöðuglega sló hina dimmu strengi. Hann, og þeir, sem honum líkjast leika á básúnu, sem allra hljóðfæra er bezt löguð fyrir djúpar harmaraddir og kveinstafi; sumir segja líka, að hinn dýpsti tón sè undirstaða alls söngs. Eg fyrir mitt leyti hirði alls ekki um þá lifnaðarbót, sem ekki byrjar í hinu innsta djúpi sálarinnar. Þegar söngmeistarinn ætlar að leika hljóðfæri, slær hann jafnast fyrst lægstu nótuna. Og þegar Guð vekr anda mannsins úr hinu synduga óviti andvaraleysisins, slær hann þenna streng fyrst. Enn það, sem var að herra Síhræddum, var það, að hann gat ekki látið nokkura aðra rödd endrkveða í djúpi sálar sinnar, enn þessar harmaraddir.

Eg dirfist að mæla þessum líkíngar orðum, vegna þess, að eg vildi æfa hugsun ungra lesenda, og líka þess vegna, að í opinberunar bókinni er hinum útvöldu líkt við söngmanna flokk, sem leika lúðra, og slá hörpur og syngja frammi fyrir hásætinu. (Opb. b. 5. 8; 14. 2, 3.)

Ráðvandr: Eftir þeirri lýsingu, sem þú hefir gefið af Síhræddum, hefir hann verið mjög vandlætingasamr maðr. Hann hræddist alls ekki Örðugfell, ljónin, nè Hègómamarkað, heldr að eins synd, dauða og helvíti. Þetta olli honum skelfingar, af því hann var allt af undir niðri hræddr um það, að honum mundi ekki verða veitt viðtaka í hinum himnesku bústöðum.

Hugprúðr: Já, það er öldungis rètt. Þetta var það, sem óróaði hann; og þessi órói var sprottinn af tápleysi sálar hans, eins og þú munt skilja, enn alls ekki af því, að hann væri hræddr við ferðalagið sjálft, eða að honum hrysi hugr við pílagríms lífinu. Hann hefði ekki horft í það, að troða eldinn, ef á hefði þurft að reyna. Enn það, sem dró kjarkinn úr honum, var þess eðlis, að engum var unnt að hrista það af honum.

Kristín tók þá til orða, og mælti: Þessi saga um Síhræddan hefir veitt mèr mikla huggun. Eg hugsaði, að enginn mundi vera mèr líkr. Enn eg sè nú, að margt hefir verið líkt með okkr, og er það að eins í tvennu, sem okkr skilr. Hans órói var svo megn, að hann brauzt út, enn eg hefi bælt mína þrá niðr. Hans sálarangist lagðist svo þungt á hann, að hann gat ekki barið á dyr, þar sem hann átti vísa gistingu og beina, enn mín hugaróró neyddi mig til þess, að berja því öflugar, sem eg beið lengr úti.

Líkn: Ef eg á að segja eins og er, þá verð eg að játa, að eg hefi, að mörgu leyti, verið lík honum; því eg hefi allt af óttazt meira díkið og missi paradísar, enn nokkurn hlut annan. Eg hugsaði ávallt á þessa leið: Ó, fái eg að njóta þeirrar sælu, að lifa þar eilíflega, þá kveð eg glöð allan heiminn, till þess, að öðlast þetta hnoss.

Matteus: Eg hefi allt af haldið, að ótti minn væri sönnun fyrir því, að eg væri fjærri því, að vera viss um mína sáluhjálp. Enn eg sè nú, að þessi góði maðr hefir verið mjög þjáðr af honum, og þó orðið hólpinn; hví skyldi mèr þá ekki farnast eins vel og honum?

Jakob: Án ótta er engin náð. Þó ekki sè ávallt náðin þar fyrir, sem ótti fyrir eilífri kvöl býr, þá er þó hitt víst, að þar er engin náð, sem enginn er guðsótti fyrir.

Hugprúðr: Það var vel sagt, Jakob! Þú komst með athugasemd og hana alveg rètta. Því að ótti Drottins er upphaf vizkunnar, og sá, sem ekki hefir upphafið, hefir heldr ekki miðið, nè endann. Enn nú skulum við hætta umtalinu um herra Síhræddann og kveða honum skilnaðarsöng:

Heill þèr, Síhræddr, ótta Drottins íHèr ávalt lifðir þú, og hræddist þvíAð láta þangað orði og athöfn vikiðEr þig af lausnar vegi fèngi svikið.Og fekk þèr hræðslu heljar gröf og hver?Hamingjan gæfi, að margir fylgdu þèr!Því þeir, er hyggju þinnar fara á mis,Í þungu fári lenda margsinnis.

Eftir þetta þótti mèr þau halda áframm skrafi sínu. Því eftir að Hugprúðr hafði lokið sögu sinni um Síhræddann, tók Ráðvandr til máls, og fór að segja þeim söguna um Einþykkan. Hann lèt jafnan í veðri vaka, sagði Ráðvandr, að hann væri pílagrímr; enn eg er samt sannfærðr um það, að hann fór aldrei inn um hliðið, sem gætir hins rètta pílagríms vegar.

Hugprúðr: Áttir þú nokkurn tíma orðastað við hann um það?

Ráðvandr: Já, oftar enn einu sinni. Enn hann var allt af sá sami sèrlundaði Einþykkr. Hann skeytti hvorki mönnum, nè ástæðum, nè dæmum. Hann gjörði að eins það, er hugr hans hvatti hann til, og sinnti aldrei neinu öðru.

Hugprúðr: Segðu mèr, hvaða lífsreglum fylgdi hann? eg býst við að þú vitir allt um það.

Ráðvandr: Hann hèlt, að óhætt væri, að taka bæði lesti og dyggðir pílagríma sèr til fyrirmyndar; og þóktist viss um, að verða hólpinn, ef hann gjörði hvort tveggja.

Hugprúðr: Hvernin á eg að skilja það? Hefði hann sagt, að jafnvel hinn bezti maðr gæti rasað í lesti pílagríma, eins vel, eins og hann gæti tekið upp dygðir þeirra, það hefði verið sök sèr; því það er auðvitað, að við erum ekki undanskildir löstunum, nema með því eina móti að við vökum og berjumst. Enn þessu máli er ekki hèr að gegna; því ef eg skildi þig rètt, þá áleit hann óhult, að iðka dyggðir og lesti undir eins.

Ráðvandr: Já það er rètt skilið; það var sannfæring hans, og eftir þeirri sannfæringu breytti hann.

Hugprúðr: Enn hvað gekk honum til þess, að halda framm þessarri trú sinni?

Ráðvandr: Það, að hann kvaðst geta borið ritninguna fyrir sig.

Hugprúðr: Gjörðu svo vel, Ráðvandr, að gefa okkr nokkuð nákvæmari lýsingu á þessum hans trúarlærdómi.

Ráðvandr: Eg skal gjöra það, með ánægju. Hann sagði, að Davíð konungr, sem Guð þó hefði elskað, hefði lagzt með konu annars manns, og þess vegna væri sèr það óhætt. Hann tók það og framm, að sèr væri leyfilegt að hafa fleiri enn eina konu, því að það hefði Salómon gjört. Hann tilfærði það, að lærisveinarnir hefði farið eftir skipun meistara síns, og tekið asna frá eigandanum; þess vegna mætti hann og gjöra það að ósekju. Hann sagði, að Jakob hefði fengið frumburðar rèttinn með brögðum og slægð, og hans dæmi væri sèr víst óhætt að fylgja.

Hugprúðr: Það voru þá ástæður! Enn ertu viss um, að þetta hafi verið hans innileg sannfæring!

Ráðvandr: Eg hefi heyrt hann verja þessa sannfæringu, sanna hana með orðum ritningarinnar og færa ótal ástæðr fyrir henni.

Hugprúðr: Enn þessi skoðun nær engri átt, og á alls ekki að þolast.

Ráðvandr: Þú verðr að skilja mig rètt; hann fór því aldrei framm, að þetta væri hverjum einum leyfilegt, heldr að eins, að þeir er væru jafn dygðugir og þessir menn, er hann tók til dæmis, mætti gjöra hið sama og þeir.

Hugprúðr: Já eg skil það full vel. Enn hvað er rangsnúnara, enn þessi kenning? Því það er hið sama sem að segja, að hann megi syndga af ásetningi, úr því að þessir menn syndguðu af breyskleika; eða að segja að hann megi fleygja sèr niðr í sorpið og veltast í því, af því, að barni varð hið sama á, er bylr feykti því um koll, eða það rak sig á stein og datt í sorpið.

Hver skyldi trúa því, að girndin gæti blindað nokkurn mann svo háskalega? Enn það stendr stöðugt, sem skrifað er: Þeir sem hrasa, eru þeir, sem ekki trúa lærdóminum; þar til voru þeir og settir. (1 Pet. 2. 8.) Hann heldr, að þeir, sem gjöra það að lífsreglu sinni, að fylgja ódyggðum sem guðhræddum mönnum hafa orðið á, geti líka fylgt dyggð þeirra; enn það er svikull lærdómr; því sá, sem svelgir syndir Guðs manna, eins og hundr, sem sleikir upp óhroða, sannar alls ekki, að hann sè þeim jafnsnjall í mannkostum. Eg get heldr ekki trúað því, að sá, sem fylgir framm þessarri sannfæringu, hafi jafnframt trúna og kærleikann til að bera. Enn eg þykist vita, að þú hafir fært gild og góð rök gegn honum; og þykir mèr gaman, að heyra, hvað hann færði framm sínu máli til sönnunar.

Ráðvandr: Hann færði það til, að sèr þætti það heiðarlegra, að breyta þannig af sannfæringu, heldr enn gegn sannfæringu sinni.

Hugprúðr: Það er næsta guðlaust svar. Því það er nægilega illt, að gefa girndinni tauminn móti vilja sínum, enn hitt er þó hálfu verra, að telja það synd sinni til afbötunar, að hún er drýgð vísvitandi. Hið fyrra hneykslar, hið síðara tælir.

Ráðvandr: Enn margir hugsa samt eins og Einþykkr, þó að þeir tali öðruvísi; þess vegna eru pílagrímsferðir svo lítils virtar, eins og þær eru.

Hugprúðr: Þú hefir satt að mæla, og er hörmulegt til þess að vita. Enn hver sem óttast himnanna konung, mun á öllu sigrast.

Kristín: Margar eru hugsanir manna í þessum heimi. Eg þekki mann, sem var sannfærðr um það, að það væri nógr tími að iðrast, þegar hann legðist banaleguna.

Hugprúðr: Hann hefir ekki stigið í vitið maðrinn sá. Þó honum hefði verið gefin vika til að fara tuttugu þingmannaleiðir, þá hefði hann líklega frestað ferðinni til síðustu stundar af hinum gefna tíma.

Ráðvandr: Það er satt; og þó er það almennast, að menn, sem segjast vera pílagrímar, fara alveg að eins og þessi maðr. Eg er nú svo gamall, sem þið getið sèð; hefi eg ferðast um þessar slóðir langa tíma, og hefi eg tekið eftir mörgu. Eg hefi þekkt marga, sem hafa farið af stað og hafa verið í þeim ákafa, að allt hefir ætlað af göflum að ganga; enn eftir fáa daga hafa þeir dáið eins og Israels menn forðum í eyðimörkinni, og hafa því aldrei sèð hið fyrirheitna land. Eg hefi sèð aðra menn leggja af stað, sem enginn mundi hafa ímyndað sèr, að gætu lifað stundu lengr, svo óhæfir virtust þeir til slíks ferðalags; enn að lokum rèðzt svo vel úr þeim, að þeir urðu hinir beztu pílagrímar. Eg hefi sèð marga hlaupa af öllum kröftum af stað; enn eg hefi líka sèð þá hina sömu hlaupa eins hratt heim aftr. Eg hefi þekkt menn, sem mjög hafa haldið framm pílagrímalíferni, enn eg hefi líka vitað þessa sömu menn amast eins mikið við því seinna meir. Eg hefi vitað marga fara að heiman og segja skýlaust: Eg veit að sælunnar heimkynni er til; enn þegar þessir menn hafa verið nærri komnir þangað, hafa þeir horfið aftr og fullyrt, að enginn slíkr staðr væri til. Eg hefi þekkt menn, sem hafa verið digrmæltir um það, hvað þeir skyldu taka til bragðs, ef þeir kynnu að mæta mótspyrnum, og þessir sömu menn hafa fleygt frá sèr trú, pílagríms staf, öllu er við þá var fast, og flúið sem fætr toguðu jafnskjótt og nokkuð kom fyrir, þó engin hætta hafi verið á ferðum.

Í þessu bili kom maðr móti þeim og hljóp í dauðans afboði eins og hann ætti lífið að leysa, og sagði við pílagrímana: Eg ræð ykkr, körlum og konum, að bjarga ykkr sem fyrst, ef þið metið líf yðar nokkurs; því ræningja, flokkr er á veginum framm undan ykkr.

Hugprúðr: Það eru þeir sömu þrír bófar sem ræntu Huglítinn fyrir skemmsta. Það er bezt þeir komi, við erum ekki hrædd við þá. Nú hèldu menn áframm, og höfðu auga nákvæmlega á veginum, og gættu að hverjum krók, hvort þeir ekki sæi reifarana. Enn, hvort sem þeir hafa heyrt til Hugprúðs, eða þeir hafa tafizt við rán annarstaðar, nokkuð var það, þeir mættu aldrei þessum pílagríma flokki.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

25. kafli af 31 · 23 mín. eftirGamli Ráðvandr