26. kafli
Hjá Gaiusi
Nú óskaði Kristín, að geta fengið einhvers staðar inni fyrir sig og sonu sína, því að þeir voru orðnir þreyttir. Ráðvandr sagði henni, að skammt fyrir framan þau væri veitingahús eitt, er maðr nokkur, að nafni Gaius, heiðvirðr lærisveinn, hèldi. (Róm. 16. 23.) Kom mönnum nú saman um, að fara þangað, einkum vegna þess, að hinn ráðvandi öldungr, þekkti manninn að öllu góðu. Þegar þau komu þangað, fóru þau inn og drápu ekki að dyrum, því það er ekki venja á slíkum stöðum. Þau gerðu boð fyrir húsbóndann; og er hann kom framm beiddust komumenn gistingar, og svaraði Gaius beiðni þeirra á þessa leið.
Ef þið eruð hinir rèttu, þá eru húsin heimil; enn eg hýsi enga, nema pílagríma. Við þetta glöddust konurnar og sveinarnir, því þau heyrðu nú, að maðrinn var pílagríma vinr. Beiddu þau nú um herbergi og var þeim konunum og börnunum vísað í eitt herbergi enn Hugprúðum og Ráðvandi í annað.
Þá spurði Hugprúðr húsráðandann, hvað hann hefði til kvöldverðar; þessir pílagrímar þurfa hressingar; því þeir eru komnir langt að í dag, og eru þreyttir.
Gaius svaraði: Það er frammorðið, og eigum við ekki gott með að senda út af húsinu eftir matvælum; enn ef þið látið ykkr nægja það, sem er fyrir hendi, þá er ykkr það velkomið.
Hugprúðr: Við erum allskostar ánægð með það, sem er fyrir hendi; því eftir minni reynd hefir þú jafnan eitthvað boðlegt á borðum.
Að svo mæltu fór Gaius framm í eldhúsið, og beiddi matreiðslumann sinn að nafni Bergðu-enu-bezta, að búa kvöldverð pílagrímunum, sem komnir væru. Eftir þetta kom hann inn aftr til pílagrímanna, og sagði: Komið, góðu vinir! verið velkomnir með oss; eg er feginn að hafa húsrúm fyrir ykkr öll. Ef ykkr lízt svo, skulum við koma á meðan kvöldverðr er búinn til, og stytta okkr stundir með einhverjum skemmtilegum viðræðum. Að þessu gjörðu allir góðan róm; og spurði nú Gaius fyrst: Hvers kona er þessi aldraði kvennmaðr? og hvers dóttir er þessi únga mær?
Hugprúðr varð fyrir svörum og mælti: Þetta er kona Kristins nokkurs, sem gjörðist pílagrímr fyrir nokkurum tíma, og þessir fjórir sveinar eru börn hans. Mærin er kunningjakona hennar, sem hún fèkk til að verða sèr samferða. Sveinarnir eru allir líkir föður sínum, og girnast að feta í fótspor hans; og ef þeir koma á nokkurn blett, þar sem hinn aldraði pílagrímr, faðir þeirra, hvíldist, eða sjá nokkur ummerki eftir, þar sem hann hefir komið, þá fyllast hin úngu hjörtu þeirra fagnaði, og þeir biðja um að lofa sèr að hvíla þar og skoða sig þar um.
Gaius svaraði: Er þetta kona Kristins, og börnin hans, drengirnir þeir arna? Eg þekkti föður mannsins þíns, og afa hans líka. Það hefir margr góðr maðr verið í þeirri ætt; forfeðr þeirra bjuggu fyrst í Antiokkía. (Post. g. 11. 26.) Eg býzt við, að þú hafir heyrt mann þinn geta um forfeðr sína; þeir voru allir mestu virkta menn. Það eru þeir dygðugustu menn, sem eg hefi þekkt; og enga hefi eg þekkt jafn hugrakka, og ötula að berjast fyrir konung pílagrímanna, lög hans og alla, sem hann elska. Eg hefi heyrt getið um marga af ættmönnum mannsins þíns, sem staðizt hafa allar hættur og freistingar fyrir sannleikans sakir. Stefán var einn hinn elzti af ættinni, og hann var grýttr. (Post. g. 7. 59, 60.) Jakob var annar af sömu ætt, hann var drepinn með sverði. (Post. g. 12. 2.) Eg nefni ekki Pál nè Petr, sem báðir voru af sömu ætt. Ignatius var einn; honum var fleygt fyrir ljón. Þá var Romanus; hold hans var flegið af allt að beini, og Polykarpus, sem dó píslarvættis dauða á báli. Einn af ættinni var hengdr upp í körfu og ormar látnir eta hann sundr lifandi; annar var látinn í poka og drekkt í sjónum. Þeir verða ekki taldir allir, sem liðu pínslir og dauða, fyrir það, að þeir unnu lífi pílagríma. Eg get ekki annað enn glaðzt yfir því, að maðrinn þinn hefir skilið eftir fjóra sonu slíka, sem þessir eru. Eg vona að þeir haldi uppi frægð föður síns, feti í hans spor og fari, sem hann að lokum.
Hugprúðr: Þeir eru sannarlega efnilegir piltar; og þræða rækilega veg föður síns.
Gaius: Það er það sem eg segi; og því er það vonandi, að ætt Kristins fari enn víða, og verði enn þá fjölmenn í heiminum. Enn þèr ræð eg, Kristín, að sjá sonum þínum út góðan ráðahag, og trúlofa þá vænum meyjum, svo að nafn föður þeirra, og afspringr hans aldrei deyi út í heiminum.
Ráðvandr: Það væri bág tilhugsun, ef ættin skyldi deyja út.
Gaius: Út deyr hún ekki, enn hún getr orðið fámenn, enn ef Kristín fer að mínum ráðum, þá er öllu borgið.—Eg er glaðr, sagði hann því næst við Kristínu, að sjá þig hèr og vinstúlku þína, Líkn. Þið eigið vel saman býzt eg við. Og ef eg má ráða þèr heilt, þá eru það mínar tillögur, að þið tengist nánar, enn nú eruð þið tengdar, og sting eg upp á því, að hún verði gefin Matteusi, elzta syni þínum, ef henni er það ekki móti skapi. Það er vegrinn til að auka afkomendrna. Það er ekki að orðlengja það, að þau Matteus og Líkn trúlofuðust og giftust þegar tímar liðu framm, og verðr sú saga sögð nákvæmar seinna.
Gaius hèlt áframm skrafi sínu, og mælti: Eg verð líka að geta kvennanna að nokkuru góðu. Því eins og konan leiddi dauða og bölvun inn í heiminn (1 Mós. b. 3), eins leiddi hún og líf og blessun yfir hann; því að Guð sendi son sinn, fæddan af meyju. (Gal. 4. 4.) Já og til þess, að sýna hversu eftirkomendr konunnar hötuðu verk hennar, má tilfæra það, að konurnar á dögum gamla testamentisins girntust svo mjög að eignast börn, ef verða mætti að þeim auðnaðist sú sæla, að einhver þeirra yrði móðir heimsins frelsara. Það er og alkunnugt, að þegar heimsins frelsari var kominn, glöddust konur yfir komu hans fyrr enn englar eða menn. (Lúk 1. 42–46.) Eg hefi aldrei lesið, að nokkur karlmaðr hafi gefið Kristi peningvirði, enn konur fylgdu honum og miðluðu honum því er þær máttu. (Lúk 8. 2, 3.) Ein þeirra þvoði fætr hans í tárum (Lúk 7. 37–50); önnur smurði líkama hans til greftrunar. (Jóh. 11. 2; 12. 3.) Það voru konurnar er grètu, þegar hann gekk til krossfestingarinnar (Lúk 23. 27), og konur fylgdu honum frá krossinum (Math. 27. 55, 56; Lúk 23. 55), og konur sátu gegnt legstaðnum, er hann var grafinn. Það voru konur, er mættu honum fyrst á upprisumorgni hans (Lúk 24. 1), og konur fluttu fyrst fregnina til lærisveinanna, að hann væri risinn upp frá dauðum. (Lúk 24. 22, 23.) Þess vegna eru konur orðnar hluttakendr mikillar náðar, og má sjá af þessu, að þær eru samarfar vorir í lífsins náð.
Nú gjörði matreiðslumaðr aðvart, að kvöldverðr væri þegar búinn, og skipaði þjóni einum að leggja á borðið, og bera framm salt og brauð.
Þegar Matteus sá, að farið var að leggja á borðið, sagði hann; borðdúkrinn og allr þessi viðbúnaðr vekr mèr meiri matarlyst enn eg hafði áðr.
Láttu þá sjá, svaraði Gaius, að sèrhver heilsusamleg kenning er þú heyrir í þessu lífi, veki eins löngun þína að sitja til borðs með hinum mikla konungi í ríki hans; því allar prèdikanir, bækr og guðsþjónusta, eru ekki meira enn að eins salt og þurt brauð, ef þeim á að jafna við hina miklu hátíð, sem Drottinn hefir búið oss, þegar vèr komum í hús hans.
Nú var kvöldverðrinn borinn inn. Var fyrst borinn á borð upplyftingarbógr og veifingar-bringa, til að sýna þeim, að máltíðin ætti að byrja með bæn og lofgjörð til Guðs. Með upplyftingarbógnum hóf Davíð hjarta sitt til Guðs; og með veifingarbringunni, sem hjarta hans lá í, var hann vanr að hvíla á hörpu sinni er hann lèk hana. (3 Mós. b. 7. 32–34; 10. 14, 15; Sálm 25. 1; Hebr. 13. 15.) Þessir rèttir voru næsta hressandi og gómtamir, og borðuðu þá allir með góðri lyst. Þessu næst var borin á borð flaska full af víni, rauðu sem blóði (5 Mós. b. 32. 14; Dóm. 9. 13; Jóh. 15. 5), og mælti Gaius við gesti sína: Drekkið eins og þið vilið. Þetta er hinn sanni vínvökvi, sem gleðr hjarta Guðs og manna. Drukku menn nú og gjörðust glaðir. Þessu næst var borin framm mjólk, og brotið brauð út í. Þetta er bezt að drengirnir fái, mælti Gaius; það eykr þeim þroska og vöxt. (1 Pet. 2. 1, 2.) Þá var borið framm smjör og hunang. Borðið vel af þessu, mælti Gaius, því að það hressir og skerpir skilning yðar og vit. Þetta var aðalnæring Drottins vors meðan hann var barn. Smjör og hunang mun hann eta, uns hann hefir vit á að hafna hinu illa og velja hið góða. (Es. 7. 15.) Þá voru borin framm gómsæt epli; enn er Matteus sá það, mælti hann: Er okkr óhætt, að borða þann ávöxt, sem höggormrinn hafði til að svíkja vora fyrstu móður?
Gaius svaraði:
Þó epli fengju í fyrstu oss búið tál,Þá flekkar synd, ei epli, vora sál.Að neyta bannaðs eplis eitrar blóð,Af áti hins leyfða verðr heilsan góð.Hans veiga neyt því, kirkja Kristí dúfa,Þú kjarneplanna, er sýkir elskan ljúfa.
Þá svaraði Matteus: Eg var svo hræddr við að eta þessi epli, af því mèr varð fyrir skemmstu svo illt af epla áti.
Gaius: Það er eðlilegt, að þèr verði illt af þeim ávexti, sem þèr er bannað að neyta; enn þèr verðr ekkert meint af því, að borða það sem Drottinn vor hefir leyft.
Meðan þeir voru að ræða um þetta voru bornar framm hnetr. (Lofkv. 6. 11.) Varð þá einhverjum að orði, sem sat að máltíð: Hnetr eru óhollar fyrir veikar tennr, einkum á börnum. Enn er Gaius heyrði þessa athugasemd, svaraði hann:
Hnetrnar eru harðr texti talinn,(Tál-bita eg hafði nærri kallað þær),Þeirra er kjarni þykku skurni falinnÞeim er að munni sèr þær lagið fær.Skurnið ef opnar muntu ætið geta,Er þèr og frjálst að brjóta þær og eta.
Urðu menn nú glaðir mjög, sátu lengi að borðum og kom margt á góma. Þá mælti Ráðvandr við Gaius: Góði herra, meðan við erum að brjóta hnetr yðar, ráðið þèr þessa gátu:
Maðr einn, sem margir hèldu óðan,Græddi fè á gjöfla hönd.(Gátan mín er ekki vönd.)
Þögnuðu menn nú við og biðu svars Gaiusar, og er hann hafði hugsað sig um, stundarkorn, svaraði hann:
Menn ef gefa muni sína snauðum,Öðlast skulu aftr þeirAllt, og tíu sinnum meir.
Jósef tók til máls og sagði: Eg hèlt herra, að þèr munduð gefast upp við gátuna.
Ó, svaraði Gaius, þessu og þvílíku hefi eg vanizt lengi; enginn kennir betr enn reynslan. Eg hefi lært það, af Drottni, að vera góðgjörðasamr, og er reynslan búin að sanna mèr, að eg hefi ábatazt á því. Einn gefr og miðlar, og ábatast að meira; annar nurlar og heldr dauðahaldi um hvert skildingsvirði og verðr þó að fátækari. Sá er til sem útbýtir ríkuglega, og fær æ meir og meir; og sá er til, sem heldr inni meiru, enn rètt er, og hefir þó að eins skort. (Orðskv. 11. 24; 13. 7.)
Þá hvíslaði Samúel að móður sinni og sagði: Dæmalaust er það góðr maðr, sem býr í þessu húsi. Eigum við að dvelja hèr um tíma og láta Matteus bróður minn kvænast Líkn, áðr enn við förum hèðan? Enn Gaius heyrði hvað sveinninn mælti og sagði: Já hjartans feginn, góðrinn minn! Hèldu nú pílagrímarnir hèr til meir enn í mánuð, og var Líkn gefin Matteusi, aðr enn þau fóru af stað. Enn Líkn varði tímanum, meðan þau dvöldu hèr, til þess, að búa til utanhafnarföt handa fátækum, og kom hún pílagrímum í góðan þokka með því meðal manna.
Enn snúum nú að sögunni aftr. Þegar kvöldverðr var á enda, óskuðu sveinarnir að mega fara til hvílu, því að þeir væri þreyttir eftir ferðina. Kallaði nú Gaius á einn af þjónum sínum, og beiddi hann fara með þá til svefnherbergis þeirra. Enn Líkn sagði: Eg ætla að hjálpa þeim í rúmið. Háttuðu þeir nú og sváfu vært, enn hinir sátu uppi alla nóttina, því Gaius skemmti þeim svo vel, að allir gleymdu svefni og þreytu. Þegar þau höfðu öll talazt margt við um Drottin sinn og um ferðalag sitt, tók hinn aldraði Ráðvandr að hnjóta. Þá mælti Hugprúðr: Hvað er að tarna, herra minn, þú ert orðinn syfjaðr. Kondu, hristu af þèr svefninn; eg hefi gátu að leggja fyrir þig. Láttu mig heyra hana, svaraði Ráðvandr. Hugprúðr bar upp gátuna:
Eina færðu ei ósigraðr drepið;Ef heiman viltu hafa lífHeima bíddu dauðans kíf.
Sú er ekki lètt, svaraði Ráðvandr; erfitt er að ráða hana, enn enn þá erfiðara að fara eftir henni.
Heyrðu, Gaius, sagði hann því næst, taktu við henni fyrir mig, og ráddu hana; mèr þykir gaman að heyra hvernig þèr tekst það.
Nei, góði vin, svaraði Gaius, hún var lögð fyrir þig, og þú átt að svara henni. Tók þá gamli maðrinn til máls og sagði:
Fyrst skyldi af náð Guðs sigrast jafnan sá,Er syndina vill yfirbugað fá;Ef sannast viltu láta að lífi hèrÞú lifir, dey þú áðr sjálfum þèr.
Það var rètt, svaraði Gaius; þetta segir bæði kristileg kenning og reynslan. Því fyrst er það, að það er þýðingarlaus byrjan, að fara að standa gegn syndinni meðan náðin hefir ekki gjört vart við sig, eða gagntekið sálu mannsins; og hins vegar er þess að gæta, að ef syndin er fjötur, sem leggr sálina í djöfulsins læðing, þá er ekki að búast við því, að hún megni, að gjöra neina mótstöðu, fyr enn hún er leyst úr dróma þessum. Enn fremr er þess að gæta, að enginn, er þekkir skynsemi eða náð, mun geta trúað því, að hann geti verið tvennt í einu: bæði lifandi vottr náðarinnar, og þjón sinnar eigin spillingar. Mèr dettr nú í hug saga ein, sem eg býst við, að ykkr þyki ekki ómerkileg. Tveir menn fóru í pílagrímsferð. Annar fór af stað ungr, hinn fór á gamals aldri. Hinn ungi maðr átti að berjast við megnar ástríður; enn ástríður hins aldraða manns voru sljóvar orðnar, vegna þess, að líkami hans var mjög farinn að láta undan. Hinn úngi maðr var allt af jafnfljótr hinum aldraða og drógst hvergi aftr fyrir hann. Hjá hvorum þessarra manna ætlið þið nú að náðin hafi verið á hærra stigi, þar sem báðir voru jafnfljótir?
Ráðvandr: Eflaust hjá hinum unga. Því að hver hlutr er því sterkari, sem hann stenzt betr öflugar mótspyrnur. Eg tala nú ekki um það, þegar þannig stendr á, eins og þú tókst framm; því að því verðr ekki neitað, að ellin hefir ekki helfing þeirra mótspyrna að etja við, sem æskan hefir. Eg hefi tekið eftir því, að aldraðir menn hafa verið í villu um þetta atriði, og talið sig sæla, að þeir hafi sigrazt fyrir styrk náðarinnar á spillingu sinni, þar sem sigrinn hefir þó að eins verið fólginn í því, að þeirra eigin synduga eðli hefir látið undan. Í rauninni eru hinir öldruðu menn, sem að njótandi hafa orðið náðarinnar í tíma, bezt lagnir til þess, að gefa ungum mönnum góð ráð, því að þeir hafa lært að þekkja fánýti hinna jarðnesku hluta. Enn þó er þess að gæta, að þegar ungr og gamall fara báðir undir eins í pílagrímsferð, þá stendr hinn ungi þeim mun betr að, að starfsemi náðarinnar birtist hjá honum í miklu meira fjöri og ljóma, enn hjá hinum aldraða, þó að hinar syndugu girndir hans sè allar þróttminni enn hins unga. Á þessum viðræðum gekk þeim alla nóttina þangað til að dagr rann.
Um morguninn beiddi Kristín Jakob að lesa upp kapítula úr ritningunni, þegar þeir sveinarnir voru komnir á fætr, og las hann 53. kapítula í spádómsbók Esajasar. Þegar hann var búinn að lesa, spurði Ráðvandr, hvað það þýddi, að Frelsarinn skyldi spretta úr þurri jörðu, og að engin fegrð, nè neitt álitlegt væri á honum?
Hugprúðr varð fyrir svörum, og mælti: Fyrra atriðið þýðir það, að trúarlíf Gyðinga var á þeim tíma, er Frelsarinn fæddist, orðið kjarnlaust og andalaust. Seinna atriði spurningarinnar svara eg þannig: Þau orð eru töluð í nafni vantrúaðra, sem dæma konung sinn eftir útlitinu einu, af því þá vantar augað til þess, að skoða inn í hjarta hans; og fer því eins og þeim, sem finna gimstein, og fleygja honum aftr eins og hverjum öðrum algengum steini, af því, að þeir vita ekki, hvað innan undir soranum er.
Þá tók Gaius orðið, og mælti: Fyrst við erum nú hèr allir saman, og herra Hugprúðr er svo vopnfimr, þá sting eg upp á því, að við förum eftir morgunverð í leiðangr, ef ykkr lízt svo. Skammt hèðan býr risi sá, er Góðrabani nefnist; hann vinnr usla mikinn hèr um slóðir; og veit eg hvar bæli hans er. Hann er foringi ræningjaflokks nokkurs allfjölmenns. Tel eg það gott verk, ef við gætum unnið risann, og friðað veginn. Þetta rómuðu allir vel, og lögðu af stað. Hugprúðr klæddist verjum sínum, tók sverð og skjöld og hjálm, enn hinir vopnuðu sig atgeirum og kylfum.
Þegar þeir komu á svæðið, þar er hann var vanr að haldast við, fundu þeir hann með pílagrím einn, að nafni Ístöðulaus, milli handanna; höfðu þjónar hans tekið mann þenna, og fært hann foringja sínum. Risinn var að búa sig til að slátra manninum; og ætlaði hann síðan að gjöra sèr máltíð af honum; því að hann var mannæta.
Enn er hann sá Hugprúð og fèlaga hans í hellismunna sínum í alvepni, spurði hann, hvað þeir vildu.
Hugprúðr svaraði: Þig erum við komnir að hitta; ætlum við að hefna óskunda þess, er þú hefir í frammi á þjóðbrautum konungsins, með því þú tælir pílagríma hans afvega og drepr þá síðan. Kondu því, og berstu! Hann tók vopn sín og gekk út, tókst þegar bardagi með þeim, og börðust þeir heilan tíma hvíldarlaust. Þá varð hlè á bardaganum, og hvíldu menn sig, og köstuðu mæðinni.
Þá mælti risinn: Hví eruð þið hingað komnir á mína lóð?
Hugprúðr: Til þess, að hefna á þèr fyrir blóð allra þeirra pílagríma, er þú hefir drepið. Eftir litla stund hófu þeir bardagann að nýju, og varð Hugprúðr að hopa, lítið eitt. Enn bráðum sóktist honum bardaginn betr, og lá hann nú hvorki á hugprýði sinni nè heljar afli; gaf hann risanum svo tíð högg og lög, bæði í höfuðið og hliðarnar, að vopnin hrukku úr höndum risans, og eftir það lagði Hugprúðr hann að velli, hjó höfuðið af honum, og hafði það á brottu með sèr heim, og sýndi það heimilsfólki Gaiusar. Reistu þeir upp stöng, og settu höfuð risans á hana, til viðvörunar fyrir aðra, er leggjast kynnu vilja í sama ránskap.
Eftir þetta spurðu þeir Ístöðulausann, hvernig það hefði atvikazt, að hann hefði lent í hendr risanum.
Hann svaraði: Eg er maðr lingjörðr, eins og þið getið sèð. Vegna þess, að dauðinn drap á dyr hjá mèr, vanalega einu sinni á dag, hèlt eg að mèr mundi aldrei batna heima. Eg fór því í pílagrímsferð, og hefi nú komizt með illan leik hingað. Eg er kominn frá Vafaborg, þar er eg fæddr og faðir minn líka. Eg er maðr magnlítill að líkamaburðum, og þróttlítill á sálunni. Enn eg vildi reyna, að verja lífi mínu til pílagrímsfarar, þó eg að eins geti skriðið. Þegar eg kom að hinu þrönga hliði, tók sá er húsum rèði þar ágætlega við mèr, og veitti mèr allan beina fyrir ekkert; hann brá mèr hvorki um kraftaleysi nè hugleysi, enn gaf mèr allt er eg þurfti að hafa til ferðarinnar, og beiddi mig að vona allt til enda. Þegar eg kom til Fræðara var mèr tekið með mestu virktum, og lèt hann einn af þjónum sínum bera mig upp Örðugfell, af því hann áleit það of örðugt fyrir mig. Margir pílagrímar hafa lètt undir með mèr, þó ekki hafi þeir getað orðið mèr samferða, því allir eru hraðgengari enn eg, sem neyðist til að feta mig áframm í hægðum mínum fót fyrir fót. Enn eftir því sem þeir gengu framm á mig, hughreystu þeir mig, og beiddu mig vera glaðan; sögðu það væri vili herra síns, að hinir ístöðulitlu yrðu huggaðir (1 Thess. 5. 14); og þegar þeir höfðu hughreyst mig þannig, hèldu þeir áframm. Þegar eg kom í Arásaklif, mætti þessi risi mèr og beiddi mig að búast til bardaga. Enn eg var illa við kominn að verða við áskorun hans; eg, sem ekki var annað enn ístöðuleysi; svo hann gekk rakleiðis að mèr og tók mig. Enn eg gat með engu móti leitt mèr þá hugsun í grun, að hann mundi drepa mig. Já, jafnvel í hellinum var eg þeirrar vonar, að eg mundi komast út aftr, af því, að eg hafði farið inn með honum sárnauðugr; því eg hefi heyrt, að það sè lög forsjónarinnar, að enginn pílagrímr skuli deyja fyrir hönd óvinarins, þó ofríkisfullar höndr sè lagðar á hann, ef hann heldr sèr af öllu hjarta við Drottin sinn. Eg bjóst við, að mèr mundi verða rænt, og það fór líka sem mig grunaði; enn úr ræningja höndunum hefi eg sloppið með lífi, og þakka eg konungi mínum fyrir það, að hann hefir gjörzt höfundr frelsis míns, og yðr fyrir það, að þið urðuð verkfæri í hönd hans til þess. Eg býst við, að eg eigi fleiri árásir í vændum; enn eg hefi fastlega ásett mèr, að hlaupa, þegar eg get hlaupið, og gánga, þegar eg ekki get hlaupið, og skríða, þegar eg ekki get gengið. Enn yfir höfuð þakka eg Honum, sem mig elskaði að fyrra bragði.—Mèr er óhætt; vegrinn er fyrir framan mig, enn hugrinn er allr hinu megin við fljótið, sem engin brú er á, þó eg aldrei nema sè ístöðulaus, eins og þið vitið.
Ráðvandr spurði hann nú, hvort hann hefði nokkurn tíma kynnzt pílagrími einum, að nafni Síhræddr.
Ístöðulaus: Já, eg held nú það; hann kom frá Fásinnuborg; hún liggr langalangt í norðr frá Glötunarborg, og eins langt frá mínum fæðingar stað. Enn við vorum nákunnugir, því hann var föðurbróðir minn. Við vorum mjög líkir bæði að skapi og skapnaði; þó mun hann hafa verið minni maðr enn eg.
Ráðvandr: Eg heyri, að þú þekkir hann, og ekki er eg fjarri því, að þið munið frændr verið hafa—þú ert fölleitr, eins og hann, augnaráðið og röddin allt hið sama.
Ístöðulaus: Svo hafa flestir sagt, sem hafa sèð okkr báða; og var fátt í fari hans, er ekki var einnig í mínu.
Gaius: Kondu, og hrestu upp hugann! Þú ert mèr velkominn, og húsið er þèr jafnan opið. Gjörðu þig heimakominn og biddu um hvað sem þú vilt. Þjónar mínir skulu gegna þèr við hálft orð, og gjöra hvað sem þú mælist til.
Ístöðulaus þakkaði Gaiusi góðfýsi hans og mælti: Þetta var óvænt náð; það er eins og þegar ský dregr frá sólu, svo er munrinn mikill. Skyldi þá Góðrabani hafa hugað mèr þessa heppni, þegar hann gekk í veg fyrir mig, og rèði af að leyfa mèr ekki lengri farar kost. Skyldi hann hafa ætlazt til þess, að eg nyti góðs beina hjá vini mínum Gaiusi, þegar hann rupláði mig öllu, er eg hafði fèmætt á mèr? Eg er á því, að það hafi verið tilgangr hans.
Meðan þeir voru í mesta gæti að tala saman Ístöðulaus og Gaius, kom maðr hlaupandi heim þangað og sagði þau tíðindi, að pílagrímr einn, að nafni Villr, hefði orðið þrumulostinn og lægi dauðr skammt eitt þaðan.
Ístöðulaus: Hvað er þetta? er hann nú fallinn? Hann náði mèr nokkurum dögum áðr enn eg komst hingað, og bauðst að verða mèr samferða. Hann var með mèr, þegar risinn tók mig, enn hann var fóthvatr og komst því undan; enn það má virðast sem hann hafi slopið til að deyja, enn eg verið tekinn fastr til þess að lifa:
Það, sem virðist oss mundi bana brátt,Bjargar úr mestu voða-raunum þrátt;Forsjón, er dauðans ásýnd að oss vendir,Umkomulausum tíðum lífið sendir.Nú hèlt sinn hvora, frjáls og fanginn, leið,Því fanginn lifir, frjáls sinn bana beið.
Um þetta leyti voru þau gefin saman Matteus og Líkn; enn dóttir Gaiusar, að nafni Febe, var gefin Jakob, bróður Matteusar. Eftir það stóðu þau við hjá Gaiusi hèr um bil tíu daga, og vörðu tíma sínum til þess, er pílagríma er venja að verja honum.
Þegar nú pílagrímarnir fóru af stað, sló Gaius upp veizlu fyrir þá, borðuðu menn og drukku og gjörðust glaðir. Enn er þau voru albúin að fara af stað, beiddist Hugprúðr reiknings fyrir það, sem þau höfðu kostað Gaius. Enn hann svaraði, að það væri ekki vani sinn að taka fè af pílagrímum, þótt þeir gistu hjá sèr. Hann kvaðst veita þeim ókeypis beina ár eftir ár, enn sagðist búast við því, að hinn góðhjartaði Samveri mundi borga fyrir þá, þegar hann kæmi aftr; því hann hefði lofað því. (Lúk 10. 34, 35.)
Þá tók Hugprúðr til orða og mælti: Minn elskulegi, þú breytir eins og trúmaðr í því sem þú vinnr fyrir bræðurna, og það þèr ókennda, er hafa vitnað fyrir söfnuðinum um elskusemi þína. Þú munt og gjöra vel við þá, og beina ferð þeirra virðuglega fyrir Guðs sakir. (3 Jóh. 5, 6.) Eftir það kvaddi Gaius börn sín og þá alla gestina, enn Ístöðulítinn kvaddi hann þó rækilegast af þeim öllum, og fèkk honum drykk til hressingar á leiðinni.
Þegar nú farið var af stað drógst Ístöðulítill aftr úr. Enn er Hugprúðr sá það, sagði hann: Kondu, góði fèlagi, gjörðu svo vel og vertu okkr samferða. Eg skal fylgja þèr, og skal eitt yfir þig ganga og hina.
Ístöðulaus: Já það er nú allt gott, enn mig vantar fylgdarmann, sem er við mitt hæfi; þið eruð öll hraust og sterk; enn eg er veikr og máttvana eins og þið sjáið. Eg vil helzt vera á eftir; því eg vil ekki, að magnleysi mitt verði ykkr og mèr sjálfum til byrði. Eg er ístöðulaus og veikr fyrir; eg styggist og guggna við hvað eina, sem aðrir geta vel borið, án þess að láta á sèr festa. Eg get engan hlátr þolað; nè prjál; eg þoli ekki að heyra neinar hègóma spurningar, nè óþarfa ræður. Já, eg er svo stygglyndr, að eg amast við öllu, sem aðrir hafa fullt frelsi til að leyfa sèr. Eg þekki ekki allan sannleika, eg er mjög fákunnandi þótt kristinn sè. Þegar svo ber til, að eg sè aðra gleðjast í Guði, þá óróar það mig, sökum þess, að mèr er það ekki auðið. Mèr fer sem veikum meðal hraustra, eða sjúkum meðal heilbrigðra; eg er eins og ómerkileg ljóstýra; eg veit því ekki, hvað eg á að gjöra. Sá sem fall er búið, hann er í huga hins ugglausa fyrirlitinn lampi. (Job 12. 5.)
Hugprúðr: Enn gættu að, bróðir, mèr er falið það starf á hendr, að hugga hina ístöðulitlu og aðstoða veika. Þú verðr að verða okkr samferða, við skulum bíða eftir þèr; við viljum rètta þèr hjálpar hönd; við viljum neita oss sjálfum um marga hluti bæði til orðs og æðis, þín vegna; við munum ekki láta þig heyra, að við gefum oss við að þrátta um vafaspurningar; við viljum heldr gjörast þèr jöfn í öllu, enn að þú verðir aftr úr. (1 Thess. 5. 14; Róm. 14; 1 Kor. 8. 9–13; 9. 22.)
Meðan þetta fór þeim á milli, stóðu þeir fyrir utan dyr Gaiusar, og sjá, þegar sem hæst stóð samtal þeirra, kom herra Bægifótr þar, og gekk við tvær hækjur. Hann var líka kominn á pílagrímsferð.
Þegar Ístöðulítill sá hann, kallaði hann upp, og sagði: Hvað? Kemr þú líka hingað? Eg var að barma mèr rètt í þessu, að eg hefði engan samfylgdarmann, sem væri við mitt hæfi, enn þú ert einmitt maðrinn, sem mig vantaði. Vertu margvelkominn, Góði vin! eg vona að við sèum rètt samvaldir.
Bægifótr: Eg verð feginn, að verða þèr samferða, góði vinr minn! og vil eg heldr ljá þèr aðra hækjuna mína, enn missa af samfylgd þinni, úr því við urðum svo heppnir, að hittast.
Ístöðulaus: Eg þakka þèr fyrir greiðvikni þína, enn mèr er ekki um að ganga haltr, fyrr enn eg hefi fulla ástæðu til þess. Enn hækjan þín getr komið mèr í góðar þarfir, ef eg þarf að lemja frá mèr ásækinn hund.
Bægifótr: Hvenær sem þú þarft að halda á mèr eða hækjum mínum, þá er þèr hvort tveggja velkomið.
Að svo mæltu fóru nú allir af stað. Hugprúðr og Ráðvandr fóru á undan, þá Kristín og synir hennar, enn þeir Ístöðulaus og Bægifótr fóru aftastir.
Nú erum við komnir á veginn, sagði Ráðvandr; segðu okkr Hugprúðr eitthvert fróðlegt æfintýri af þeim, sem farið hafa þessa leið á undan okkr.
Hugprúðr: Það skal eg gjöra, með mestu ánægju. Eg býst við, að þið hafið heyrt söguna um fund þeirra Kristins og Apollyons í Niðrlægingardal, og eins um hættuförina miklu, er hann fór um Dauðans-skugga-dal. Eg þykist líka viss um það, að þið hafið heyrt, í hvaða vandræða viðskipti Trúr komst við mærina Gjálíf, Adam hinn gamla, Oánægðann og Blygðunarlausann, sem eru hver um sig, og öll fjögur saman, hinir hættulegustu bófar á þessari leið.
Ráðvandr: Já, eg má segja, eg hefi heyrt þessarra atburða getið; enn hörðust var þó raunin við Blygðunarlausann, það var óskammfeilið varmenni.
Hugprúðr: Já, hann bar allra manna bezt rèttnefni, eins og pílagrímrinn (Trúr) sagði.
Ráðvandr: Segðu mèr nokkuð, vinr, hvar mættu þeir Kristinn og Trúr Málugum? Hann var líka einn góðr.
Hugprúðr: Hann var sjálfbyrgingr og heimskingi, eins og margir, sem honum fylgja.
Ráðvandr: Það lá nærri, að Trúr hefði villzt alveg á honum.
Hugprúðr: Já, enn Kristinn lagði á ráðið, sem dugði, til þess, að komast fyrir það, hver maðrinn var.