Sextándi kafli
Töfravellir
Nú þótti mèr þeir halda áframm þangað til, að þeir komu í hèrað eitt, þar sem loftslagi var svo farið, að það gjörði þá svefnuga, sem voru óvanir því. Vongóðr fór nú að verða þungbúinn og svefnmók sè á hann. Segir hann þá við Kristinn, eg er orðinn svo syfjaðr, að eg get varla haldið opnum augunum; við skulum leggja okkr hèrna og taka dálítinn blund.
Kristinn: Nei öldungis ekki. Ef við sofnum hèr, þá vöknum við aldrei aftr.
Vongóðr: Því þá, góði bróðir? svefninn er sætr fyrir þann er vinnr; ef við leggjum okkr dálítið, þá hressumst við.
Kristinn: Manstu ekki eftir því, að einn af hirðunum beiddi okkr að varast Töfravelli? með því minnti hann okkr á að varast að sofa. Sofum því ekki eins og hinir aðrir, heldr vökum og verum ódrukknir. (1 Thess. 5. 6.)
Vongóðr: Eg má játa yfirsjón mína, og hefði eg verið hèr einn míns liðs, þá hefði eg komizt í dauðans tvísýni með svefni mínum. Eg finn, að það er satt, er spekingrinn segir: Tveir eru betri enn einn. (Prèd. 4. 9.) Hingað til hefir mèr staðið hamingja af samfèlaginn við þig; þèr mun verða endrgoldin önn þín.
Kristinn: Nú, nú, góði vin, við skulum taka okkr eitthvert skemtilegt umtalsefni, svo við fáum hrundið af okkr svefnmókinu.
Vongóðr: Æ, já, eg verð því guðsfeginn.
Kristinn: Hvar eigum við þá að byrja?
Vongóðr: Þar sem Guð byrjaði með okkr. Enn gjörðu svo vel að byrja.
Kristinn: Eg ætla fyrst að syngja eitt vers.
Ef helga syfjar, komi hingað þeir,Að heyra hvað nú ræða þessir tveir:Og læri af þeim, er svefn þá sækir á,Að svifta móki og deyfð af þungri brá.Því fèlag helgra er halda saman vel,Þeim heldr vöktum, já þótt svæfi hel.
Því næst mælti Kristinn: Heyrðu, mig langar að spyrja þig eins hlutar: Hvernig atvikaðist það í fyrstu, að þú rèðst í það er þú hefir nú fyrir stafni?
Vongóðr: Áttu við það, hvernig eg fyrst tók að hyggja að velferð sálar minnar?
Kristinn: Já, það er einmitt það, sem eg á við.
Vongóðr: Lengi vel undi eg mèr við hluti þá, sem sýndir voru og seldir á markaði vorum. Enn nú er mín skoðun sú, að þeir mundu hafa sökkt mèr í fyrirdæmingu og glötun, ef eg hefði unað jafn ánægðr við þá til þessa tíma.
Kristinn: Hvaða hlutir voru það?
Vongóðr: Það voru allir dýrgripir og auðr þessa heims. Þá hafði eg líka gaman af að fljúgast á, vera í róstusömum veizlum, að drekka, sverja, ljúga, hafa óhreinan munnsöfnuð, rjúfa helgi hvíldardagsins, og hafast allt að, sem stuðlaði að því, að tortýna sálu minni. Enn er eg heyrði þig og Trúann, elskulegan, sem líflátinn var fyrir trú sína á Hégómamarkaði, fara með guðlega kenningu, og fór að íhuga hana, þá komst eg að raun um það, að endir þessarra hluta er dauðinn (Róm. 6. 21-23); og að vegna þessarra hluta kemr guðleg reiði yfir óhlýðninnar börn. (Eph. 5. 6.)
Kristinn: Varstu þegar í stað hrifinn af afli þessarrar sannfæringar?
Vongóðr: Nei; því upphaflega hraus mèr hugr við því, að skoða viðbjóð syndarinnar, og að hugsa um hegninguna sem á eftir henni fer; þess vegna reyndi eg, framan af, að loka augum mínum fyrir birtu orðsins, þegar birta þess fór að hrífa á huga minn og meðvitund.
Kristinn: Enn hvað ætli hafi valdið því, að þú tókst þannig móti hinum fyrstu áhrifum guðs Heilaga Anda?
Vongóðr: Það, fyrst og fremst, að eg vissi ekki, að þetta var verk Guðs í mèr. Mèr datt aldrei í hug, að Guð byrjaði, að fyrra bragði, að snúa syndaranum, þegar hann er að vakna til meðvitundar um synd sína. Í öðru lagi var þess að gæta, að syndin var enn þá sæt fyrir hold mitt, og eg var tregr á það, að skilja við hana. Í þriðja lagi voru þau vandræði, að eg vissi ekki hvernig eg átti að skilja við hina fornu fèlaga mína; því mèr þótti svo vænt um það, að hafa þá hjá mèr, og að sjá verk þeirra. Í fjórða lagi voru þær stundir, er þessi sannfæring greip mig, svo þjáningafullar og skelfilegar fyrir hjarta mitt, að eg gat ekki þolað einu sinni svo mikið sem endrminningu þeirra.
Kristinn: Mèr skilst þá, að þessar þjáningar hafi stundum hvarflað frá þèr.
Vongóðr: Já, þær gjörðu það, enn þær svifu aftr í huga minn og settust að mèr og voru þá langt um sárari og sviðameiri enn fyrr.
Kristinn: Enn hvað var það þá, sem minnti huga þinn að nýju um syndina?
Vongóðr: Það var nú margt; t. á. m. ef eg mætti góðum manni á götunni, ef eg heyrði lesið í biflíunni, eða ef mèr varð illt í höfði, eða ef mèr var sagt, að einhver nágranni minn lægi veikr, eða ef eg heyrði líkhringingu, eða ef eg hugsaði til dauða míns, eða ef eg heyrði, að einhver hefði dáið sviplega, enn þó einkum það, ef mèr datt það í hug, að eg kynni að verða kallaðr skyndilega fyrir dómstól Drottins.
Kristinn: Enn þegar nú tílfinningin um syndasekt þína hreif þig, við eitthvert af atvikum þeim, er þú taldir nú upp, áttirðu þá ávallt hægt með að hrista hana af þèr?
Vongóðr: Nei, það var langt frá; því hún læsti sig fastar og fastar að samvizku minni, og ef mèr þá datt að eins í hug, að hverfa aftr til syndarinnar, sem mèr þó bauð við í hjartanu, þá olli þessi sannfæring mèr nýrra og margfaldra písla.
Kristinn: Hvernig fórstu þá að?
Vongóðr: Eg hugsaði með sjálfum mèr: Eg verð að reyna að bæta líf mitt; því annars á eg fyrirdæminguna vísa.
Kristinn: Reyndir þú þá að bæta líf þitt?
Vongóðr: Já, og eg flýði ekki einungis syndina, heldr einnig allt syndsamlegt samfèlag við menn, og lagði á mig helgar skyldur, svo sem bænahald, lestr, viðrkenningu syndarinnar með tárum, og tamdi mèr að tala sannleikann við náunga minn. Þetta lagði eg fyrir mig, og margt fleira sem of mikið yrði að telja upp nú.
Kristinn: Fannst þèr að þèr lètti við þetta?
Vongóðr: Já, um stundar sakir; enn þá kom aftr að lokunum að mèr óþreyjan og geisaði í mèr, þrátt fyrir allar tilraunir mínar til lífernis bóta.
Kristinn: Hvernig atvikaðist það, er þú þá hafðir betrað þig?
Vongóðr: Það var ýmislegt, er studdi að því, og olli þessum óróa: t. á. m. Þessar ritningar greinir: Allt vort rèttlæti er sem óhreint fat. (Es. 64. 6.) Af verkum lögmálsins rèttlætist ekkert hold (Gal. 2. 16); þegar þèr hafið gjört allt þetta, þá segið ónýtir erum vèr. (Lúk 17. 10.) Út af þessum greinum fór eg að hugsa þannig með sjálfum mèr: Ef allt mitt rèttlæti er eins og óhreint fat, ef enginn rèttlætist af verkum lögmálsins og ef vèr erum ónýtir þegar vèr höfum gjört allt sem vèr getum, þá er það fásinna, að hugsa til himinsins með því, að halda lögmálið. Enn fremr hugsaði eg með mèr: Eg set svo að einhver verði kaupmanni skuldugr um hundrað dala, enn borgi, eftir það, að skuldin fèll á, allt, sem hann fær hjá honum, þá stendr þó gamla skuldin óborguð og kaupmaðrinn getr sókt skuldunaut að lögum um skuldina, og varpað honum í dýflissu unz hann hefir lokið henni.
Kristinn: Já já, enn hvernig gaztu heimfært þetta til þín?
Vongóðr: Eg hugsaði með mèr: Með syndum mínum hefi eg gjörzt stór-skuldugr hjá Guði, og sú skuld verðr ekki borguð með þessari lífernisbetrun minni, og þess vegna hlýt eg, þrátt fyrir allar tilraunir til lífernisbóta, að hafa það ávallt hugfast: Hvernig fæ eg losað mig undan þeirri fyrirdæmingu, sem eg olli mèr með hinum fyrri afbrotum mínum.
Kristinn: Það var rètt; það er vel heimfært; enn haltu áframm.
Vongóðr: Þá er og annað, sem allt af óróar mig, síðan eg hóf að bæta ráð mitt, og það er það; að ef eg gæti vandlega að hinum beztu verkum mínum, þá finn eg að synd, ný synd, blandast saman við þau, svo að eg neyðist nú til að ráða af því, að eg drýgi á einum degi svo mikla synd, að hún ein nægi til þess, að steypa mèr til helvítis, þrátt fyrir hina háu hugmynd, er eg gjörði mèr fyrr um sjálfan mig og skyldurækt mína; þó að allt mitt undanfarna líf hefði verið saklaust.
Kristinn: Og hvað gjörðir þú þá?
Vongóðr: Hvað gjörði eg? eg vissi ekki, hvað eg átti að gjöra, fyrr, enn eg sagði Trúum huga minn, því hann og eg vorum góðir kunningjar. Hann sagði mèr, að ef eg ekki gæti öðlazt rèttlæti þess manns, sem aldrei hefir syndgað, þá gæti hvorki mitt eigið, nè alls heimsins rèttlæti frelsað mig.
Kristinn: Og hèlztu að hann hefði rètt að mæla?
Vongóðr: Ef hann hefði sagt mèr það, þegar eg var ánægðr með lifnaðarbót mína, og mèr líkaði hún, þá mundi eg hafa kallað hann fífl og heimskingja fyrir orðið. Enn nú, þegar eg sè vanmátt minn, og syndina, sem loðir við hin beztu verk mín, hefi eg neyðzt til þess, að þekkjast skoðun hans.
Kristinn: Enn hèlztu, þegar hann talaði þetta við þig, að nokkur maðr væri til, er menn gæti sagt um með rèttu, að hann syndgaði aldrei?
Vongóðr: Eg get ekki neitað því, að orð hans lètu allundarlega mèr í eyrum, í fyrstu, enn þegar eg hafði rætt við hann og notið samfèlags hans um tíma, þá fèkk eg fullgilda sannfæringu um þetta.
Kristinn: Spurðir þú hann um þenna mann og hvernig því viki við, að þú yrðir rèttlættr af honum?
Vongóðr: Já, og hann sagði mèr, að hann væri Drottinn Jesús sem dveldi til hægri handar hinum Æðsta. (Hebr. 10. 12-21.) Hann mun þig rèttlættan gjöra, ef þú setr traust þitt til þess, sem hann gjörði við sjálfan sig á dögum hèrvistar sinnar í holdinu, og trúir hans saklausu pínu og dauða á krossinum. (Róm. 4. 5; Kol. 1. 14; 1 Pet. 1. 19.) Eg spurði hann, hvernig á því stæði, að rèttlæti þessa manns væri svo áhrifamikið, að það gæti rèttlætt aðra menn fyrir Guði. Hann sagði mèr þá, að þetta væri sjálfr Guð; er hefði gjört það sem hann hafði gjört, og hann hefði dauða dáið, ekki sín, heldr mín, vegna, og að mèr yrði eignuð verk hans og verðskuldan ef eg að eins tryði á hann.
Kristinn: Hvað gjörðir þú þá?
Vongóðr: Eg hreyfði ýmsum mótmælum gegn þessu, því eg gat ekki trúað því, að hann væri fús að frelsa mig.
Kristinn: Hvað sagði Trúr þá?
Vongóðr: Hann bað mig að fara til hans og sjá. Eg kvað það vera frammfýsi eina og hnýsni. Hann kvað nei við, því þú ert boðinn til hans, sagði hann. (Math. 11. 28.) Síðan fèkk hann mèr bók í hönd, sem Jesús Kristr hefir sjálfr lesið fyrir, til þess, að hvetja mig því fremr til þess, að ganga nær, og sagði hann um þessa bók, að sèrhver stafr og punktr í henni stæði fastar enn himinn og jörð. (Math. 24. 35.) Þá spurði eg hann, hvað eg yrði að gjöra, þegar eg kæmi, og sagði hann eg yrði að ákalla Guð Föður minn á knjám mínum (Sálm 95. 6; Dan. 6. 10) af öllu hjarta og sál minni (Jer. 29. 12, 13), að hann opinberaði sig mèr. Eg spurði hann enn fremr hvernig eg ætti að biðja hann, og hann svaraði: Farðu, og muntu finna hann í hásæti náðarinnar, þar sitr hann ár út og ár inn til þess, að veita þeim fyrirgefningu, er koma. (2 Mós. b. 25. 22; 3 Mós. b. 16. 2; 4 Mós. b. 7. 89; Hebr. 4. 16.) Eg sagði honum, að eg vissi ekki hvað eg ætti að segja, þegar eg kæmi, enn hann sagði mèr að segja: Guð, vertu mèr syndugum líknsamr, og veit mèr að þekkja, og trúa á, Jesúm Krist, því eg sè, að ef hans rèttlæti hefði ekki verið, eða ef eg hefi enga trú á hans rèttlæti, þá er eg að eilífu glataðr. Drottinn, eg hefi heyrt, að þú sèrt náðugr Guð, og að þú hafir lagt svo fyrir, að Sonr þinn, Jesús Kristr, skyldi verða heimsins frelsari, og, meir að segja, hafir gjört eins vesæla syndara eins og mig hluttakandi í frelsi hans. Já, eg má í sannleika játa synd mína. Drottinn, heyr því bæn mína, og gjör náð þína dýrðlega í frelsun sálar minnar fyrir þinn Son, Jesúm Krist. Amen.
Kristinn: Gjörðir þú eins og hann lagði fyrir þig?
Vongóðr: Já, eg baðst fyrir hvað eftir annað.
Kristinn: Opinberaði þá Faðirinn þèr Soninn?
Vongóðr: Nei, ekki í fyrsta skifti, nè annað, nè þriðja, nè fjórða, nè fimmta, nè sjötta skifti heldr.
Kristinn: Hvað gjörðir þú þá?
Vongóðr: Hvað? Ja, satt að segja, vissi eg ekki, hvað eg átti að gjöra.
Kristinn: Datt þèr ekki í hug, að hætta öllu bænahaldi?
Vongóðr: Jú, hundrað sinnum datt mèr það í hug.
Kristinn: Hvað dróg þig til þess?
Vongóðr: Eg trúði því, að það væri satt, sem hafði verið sagt, að án rèttlætis þessa Jesú Krists gæti allr heimrinn ekki frelsað mig. Þessvegna hugsaði eg með mèr: Ef eg hætti að biðja, þá er mèr dauðinn vís, og meira get eg þó ekki enn dáið fyrir náðarinnar hásæti; og allt í einu duttu mèr í hug þessi orð: Ef hann tregðast, þá bíð hans, því hann mun vissulega koma, og ekki bíða. (Hab. 2. 3.) Þannig hèlt eg áframm að biðjast fyrir þangað til Faðirinn sýndi mèr Son sinn.
Kristinn: Hvernig opinberaðist hann þèr?
Vongóðr: Eg sá hann ekki með líkamlegum augum, heldr með augum skilningsins (Eph. 1. 18, 19), og þannig var það. Einn dag var eg mjög sorgmæddr, eg held sorgmæddari enn nokkuru sinni fyrr á æfi minni. Þessi sorg mín var vegna þess, að eg hafði sèð stærð og auðvirðu synda minna. Eg hafði ekki hugann annars staðar enn við helvíti og eilífa fyrirdæmingu sálar minnar, þá var mèr sem eg sæi allt í einu Drottinn Jesúm Krist líta ofan frá himnum niðr til mín og segja: Trúðu á Drottin, Jesúm Krist, og þú munt verða hólpinn. (Post. g. 16. 31.)
Eg svaraði honum aftr: Ó, Drottinn minn, eg er mikill, já, mjög mikill, syndari, og hann svaraði: Náð mín nægir þèr. (2 Kor. 12. 9.) Þá mælti eg: Drottinn, hvað er það þá, að trúa? Enn þá rèð eg af þessum orðum: Þann, sem kemr til mín, skal aldrei hungra, og þann sem trúir á mig skal aldrei þyrsta, að það er allt eitt, að koma til Krists og að trúa á hann (Joh. 6. 35), og að sá sem kæmi til Krists, eða með öðrum orðum, sem brynni í hjartanu af löngun eftir sáluhjálpinni fyrir Jesúm Krist, hann tryði sannarlega á Krist. Þá flutu augu mín í tárum, og eg spurði enn fremr: Enn, Drottinn, ætli slíkr syndari, sem eg er, geti fundið náð hjá þèr og sáluhjálp? Þá heyrði eg hann svara mèr: Þeim, sem kemr til mín, mun eg engan veginn varpa út. (Joh. 6. 37.) Þá sagði eg: Enn, Drottinn minn, hvernig má eg hugsa um þig, er eg kem til þín, svo að eg seti sanna trú á þig? Þá mælti hann: Jesús Kristr kom í heiminn til þess, að frelsa syndarana (1 Tim. 1. 15), hann er endir lögmálsins til rèttlætingar hverjum þeim sem trúir. (Róm. 10. 4, og 4. kap.) Hann dó vegna synda vorra, og reis upp aftr oss til rèttlætis. (Róm. 4. 25.) Hann elskaði oss, og þvoði af oss syndir vorar með sínu eigin blóði. (Opb. b. 1. 5.) Hann er meðalgangari milli Guðs og manns. (1 Tim. 2. 5.) Hann lifir ávallt til að biðja fyrir oss. (Hebr. 7. 25.) Af öllu þessu varð mèr það ljóst, að eg varð að leita rèttlætis í hans persónu, og hreinsunar synda minna í blóði hans. Að það, sem hann gjörði, til þess, að hlýðnast lögum föðrsins, er hann lagði sig undir hegningu þá, er þau ákváðu, var ekki fyrir hann sjálfan, heldr þann, sem vill þakklátlega þyggja það, sèr til sáluhjálpar. Nú fylltist hjarta mitt fögnuði, augu mín flutu í tárum og tilfinningar mínar bráðnuðu í elsku til nafns Jesú Krists, þjóðar hans og vega.
Kristinn: Þetta hefir verið sannarleg opinberun Krists í sálu þinni. Enn segðu mèr ýtarlega frá þeim áhrifum, er þetta hafði á anda þinn.
Vongóðr: Það opnaði augu mín svo, að eg sá, að allr heimrinn, þrátt fyrir allt rèttlæti hans, er háðr fyrirdæmingunni. Það sannfærði mig um það, að þó að Guð sè rèttlátr, þá getr hann rèttlátlega að eins rèttlætt þann syndara, sem til hans kemr. Eg fyrirvarð mig fyrir forna spillingu liðinna lífdaga, og hjá mèr vaknaði blygðun fyrir fáfræði mína; því aldrei hafði að undanförnu ein einasta hugsun eða tilfinning hjarta míns sýnt mèr Jesúm í slíkri fegrð og heilögum ljóma sem nú. Það vakti hjá mèr elsku til heilags lífernis, og löngun til þess, að gjöra eitthvað nafni Jesú Krists til dýrðar og vegsemdar. Já mèr fannst að eg mundi glaðr vilja fórna lífi mínu og blóði fyrir Drottin minn Jesúm Krist.