Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

Tíundi kafli

Málugr

um 21 mín. lestur

Nú, er þeir hèldu þannig áframm ferð sinni, þótti mèr Trúr líta til annarrar handar við sig, og sjá mann nokkurn, er var þeim jafnfara; enn bil var þó nokkurt á milli þeirra, því svo var leið farið, að þrír máttu vel ganga samhliða. Maðr þessi hèt Málugr; var hann hár maðr vexti, og laglegri á að líta langt til, enn nærri við. Trúr varpaði kveðju á manninn, og sagði: Heyrðu, góði vin, hvað ertu að fara? Ertu á leiðinni til hins himneska lands?

Málugr: Já, svo er víst, þangað er ferðinni heitið!

Trúr: Það var gott; þá vona eg við getum notið samfylgdar þinnar.

Málugr: Já, það er mèr sannarlega kært, að verða samfylgdar-maðr ykkar.

Trúr: Komum þá; við skulum ganga saman, og stytta okkr stundirnar með nytsamlegum viðræðum.

Málugr: Eg verð manna fegnastr, að fá að ræða um góða og nytsama hluti, og er mèr jafnkært við hvern sem ræða er; enda þykir mèr næsta vænt um, að eg hefi mætt mönnum, sem hafa skemmtun af slíkum viðræðum. Satt að segja eru þeir sjaldhittir, sem hirða um, að verja tíma sínum til þess konar hluta, þegar þeir eru á ferðalögum; þeir eru langtum fleiri, sem ekki tala um annað, enn markleysur einar, og hefir mèr gramizt það mörgum sinnum.

Trúr: Já, það er í sannleika bágt til þess að vita; því hvað er manninum á jörðunni samboðnara að hafa á túngunni, eða að bera í munni sèr, heldr enn umræður um Guð sinn á himnum?

Málugr: Þú ert maðr, sem mèr líkar að tala við, því þessi orð þín eru mjög svo full sannfæringar. Já, og eg vil bæta því við: hvað er svo unaðlegt, og hvað er svo gagnlegt, sem það, að ræða um guðleg efni? Hvað er jafn unaðlegt? segi eg; það er að segja fyrir þá, sem yndi hafa af undrsamlegum hlutum. Eg vil nú taka til dæmis: ef einhver hefir yndi af að ræða um sögu, eða um leyndardómsfull efni, eða um kraftaverk, tákn og stórmerki, hvar ætli hann finni slíka hluti jafn fagrlega og jafn unaðlega færða í letr og í hinni heilögu ritningu?

Trúr: Það er satt. Enn við ættum að setja oss það, að ræða um slík efni til þess, að umnæðurnar verði oss að gagni og frama.

Málugr: Það er nú einmitt það, sem eg sagði; því það er næsta nytsamlegt, að ræða um slíka hluti; með því, að menn geta, með slíku móti, fengið þekkingu á mörgum hlutum; t. á. m. því, hvað þessa heims hlutir eru hègóminn einber, enn hinir himnesku hlutir hið eina nauðsynlega. Þetta er nú í almennu máli sagt. Enn taki menn framm einstök atriði: þá er, t. á. m. það, að menn geta með þessu móti lært að þekkja nauðsyn endrfæðingarinnar, menn geta sèð hversu verk vor eru allsendis ónóg, og hver þörf manninum er á rèttlæti Krists, o. s. fr. Auk alls þessa geta menn lært af samræðum þessum, hvað það er, að iðrast, að trúa, að biðja, að þola, og þess háttar allt. Menn geta enn fremr lært að þekkja hin miklu og huggunarríku fyrirheit náðarlærdómsins. Loks geta menn með þessu móti og lært að hrekja rangar kenningar, að verja sannleikann og fræða hinn fáfróða.

Trúr: Þetta er allt mjög satt, og þykir mèr vænt, að heyra þig mæla þannig.

Málugr: Því er miðr, að fyrir því, að slíkar viðræður eru ótíðar, skilja svo fáir það, hvað trúin er nauðsynleg, og hve mjög þeir þurfa starfsemi náðarinnar í hjarta sínu, svo að þeir megi öðlast eilíft líf; heldr lifa þeir í fáfræði sinni í verkum lögmálsins, sem með engu móti geta aflað manninum himnaríkis.

Trúr: Enn, með leyfi að segja, þekking hinna himnesku hluta er guðleg náðargjöf; hana öðlast enginn með mannlegri atorku einni, nè heldr með eintómum umræðum.

Málugr: Það veit eg vel, því enginn maðr meðtekr neitt, nema það sè honum veitt af himnum; allt öðlumst vèr af náð, enn ekkert fyrir verk vor, og get eg sannað þetta með hundrað ritningarstöðum, ef þið vilið.

Trúr: Það er nú allt gott. Enn hað eigum við að hafa til umræðu nú? það er bezt, að það sè eitthvert eitt ákveðið efni.

Málugr: Ójá, það má vera hvað sem þú villt; mèr er allt jafnkært að tala um, hvort það heldr eru himneskir hlutir eða jarðneskir, siðferðislegir eða trúarlegir, heilagir eða vanheilagir, umliðnir eða ókomnir, erlendir eða innlendir, varanlegir hlutir eða hverfulir, það er að segja, ef við eigum að tala um þá okkr til gagns og fróðleiks.

Nú gekk yfir Trúann. Hann gekk að Kristni, sem allt af hafði gengið einn sèr og afsíðis, og sagði við hann í lágum hljóðum: Það er fjörugr samfylgdar-maðr, sem við höfum fengið, eg er viss um, að hann er ágætt pílagrímsefni.

Kristinn brosti hægt að þessu og svaraði: Manni þessum, sem þèr finnst nú svo mikið um, er leikið að táldraga með þessarri liðugu tungu sinni hvern, sem vera skal, er ekki þekkir hann.

Trúr: Þekkir þú hann?

Kristinn: Já, eg þekki hann betr, heldr enn hann þekkir sjálfan sig.

Trúr: Æ, gjörðu svo vel og segðu mèr þá, hvað manna hann er.

Kristinn: Nafn hans er Málugr; hann á heima í borg vorri. Það er hvort tveggja að hún er stór, enda mun það valda, að þú þekkir hann ekki.

Trúr: Hvers son er hann, og hvar býr hann?

Kristinn: Hann er sonr manns er Mjúkmáll hèt. Hann bjó í Þvaðrgötu, og kannast hver maðr, sem hefir haft nokkur kynni af honum, við hann af nafni hans og viðrnefni: Málugr úr Þvaðrgötu. Og satt að segja er hann leiðr maðr, þó hann hafi nógu lipra túnguna.

Trúr: Hann er þó nettmenni, á að sjá.

Kristinn: Svo virðist þeim, sem ekki eru fullkunnugir honum; því hann er góðr að heiman; enn heima fyrir er hann ljótr og óþarfi á að bæta. Þegar þú sagðir hann væri nettmenni, datt mèr það í hug, sem eg hefi oft tekið eftir í málverkum sumra pentara, að þau fara tilsýndar vel, enn verða óþægilegri áhorfs er nær er komið.

Trúr: Enn ertu ekki að gjöra að gamni þínu, þú hlærð?

Kristinn: Guð varðveiti mig frá því, að gjöra að gamni mínu í þessu máli, eða áfella nokkurn mann ranglega. Þú skalt ekki marka það, þó eg brosi. Eg skal nú lýsa honum betr fyrir þèr. Þessi maðr er til í allan hóp og allskonar munnsafnað. Hann mundi tala eins á ölbekknum og hann talaði við þig nú; og því meira sem færi í höfuðið á honum, þess meira mundi hann láta vaða um þessi efni. Trúin finnst hvorki í hjarta hans, á heimili hans, nè í dagfari hans. Öll hans trú er á vörunum, og er fólgin í málæði einu.

Trúr: Hvað segirðu? Þá hefi eg ljótlega glæpzt á þessum manni.

Kristinn: Glæpzt! Já þú mátt vera viss um það. Mundu eftir máltækinu: Þeir tala, enn gjöra ekki; Guðs ríki er ekki fólgið í orðum heldr í krafti. (Math. 23. 3; 1 Kor. 4. 20.) Hann talar um bæn, iðrun, trú og endrfæðingu; enn hann þekkir þessa hluti ekki að öðru, enn nöfnunum einum. Eg hefi verið kunnugr í húsi hans, og tekið eftir honum bæði heima og að heiman, og veit því með vissu, að það er sannleikr, sem eg segi um hann. Hús hans er eins trúarlaust, eins og eggja hvíta er bragðlaus. Þar er hvorki bæn, nè vottr um iðrun fyrir syndina; jafnvel skynlaus skepnan þjónar Guði betr, að sínu leyti, enn hann. Hann er sannkallaðr blettr, fyrirlitning og skömm trúarinnar í allra þeirra augum, sem þekkja hann (Róm. 2. 24, 25), og þeim megin í bænum, er hann býr, heyrist varla orð, er mæli trúarbrögðunum bót; og er það allt honum að kenna. Alþýða manna, sem þekkir hann segir hann sè “dýrlingr að heiman, djöfull heima fyrir.” Vesalings konan og börnin fá að kenna á því; hann er slíkr rusti og ill-lynda seggr, og svo ónærgætinn við þjónustufólk sitt, að það getr aldrei orðið honum til hæfis, hvorki í orði nè verki. Þeir, sem gjörzt hafa skiftavinir hans, segja betra enn við hann sè að eiga við Tyrkja, því hann sè miklu sanngjarnari í viðskiftum. Hvenær sem unt er fer Málugr þessi kringum þá, beitir undirferli og vélum við þá og svíkr þá. Ofan á allt þetta venr hann syni sína á að fylgja í fótspor sín. Og finni hann hjá nokkurum þeirra vott hinnar viðkvæmu barnlegu samvizku þeirra, þá kallar hann það heimskulega hræðslugirni, kallar þá fífl og flónshausa, og vill með engu móti nota þá til nokkurra starfa, nè leggja þeim nokkur meðmæli við aðra. Eg, fyrir mitt leyti, er sannfærðr um það, að hann hefir orðið mörgum að fótakefli, með hinu óguðlega líferni sínu; og verðr mörgum að falli enn þá, nema Guð sjái betr til.

Trúr: Gott, bróðir minn! eg verð að trúa þèr, úr því þú bæði segist þekkja hann, enda dæmir menn eins og kristnum mönnum hæfir. Eg leiði mèr ekki í grun, að þú segir þetta af illvilja, heldr að þú segir mèr allt eins og það er.

Kristinn: Ef eg hefði ekki þekkt hann betr enn þú, þá hefði líklega okkr báðum litist eitt um manninn. Já, hefði eg heyrt þenna dóm um hann hjá þeim einum, er hatast við alla trú, þá mundi eg hafa álitið það rógburð einn, sem illir menn því miðr of oft nota, til að sverta mannorð og trúrækni hinna góðu. Enn eg get sannað af eigin reynslu, að hann er sekr í öllu þessu, og mörgu fleiru jafn illu. Þar að auki fyrirverða allir góðir menn sig fyrir hann, þeir geta hvorki kallað hann bróður nè vin. Ef menn nefna hann á nafn meðal þeirra, þá roðna þeir vegna hans, ef þeir annars þekkja hann.

Trúr: Eg sè, að orð og athöfn er tvennt ólíkt, og skal eg hèðan af hafa betri gætr á grein þessa hvors um sig.

Kristinn: Já, það er sannarlega tvennt eins ólíkt eins og sál og líkami. Því eins og líkaminn án sálarinnar er að eins dautt lík, eins er og orðið tómt að eins dautt lík er frammkvæmdina vantar. Sálin í trúnni er breytnin. Hrein og óflekkuð Guðs dýrkun fyrir Guði og Föður, er sú, að vitja munaðarlausra og ekkna í þeirra þrengingu, og að varðveita sjálfan sig óflekkaðan af heiminum. (Jak. 1. 27, sbr. 22–26.) Enn Málugr hefir ekki minnstu hugmynd um þetta. Hann heldr, að heyrn og mál sè nóg til þess, að gjörast sannkristinn, og svíkr þannig sína eigin sál. Heyrnin er einungis sáðsins sáning, og orðin ein eru ekki nægileg sönnun fyrir því, að trúin beri ávöxt í hjartanu fyrir lífið. Enn það getum vèr reitt oss á, og því megum vèr fyllilega treysta, að á degi dómsins munu menn verða dæmdir eftir ávöxtum þeirra. (Math. 13. 23.) Þá mun ekki verða spurt: Trúðu þið? heldr: Voruð þèr gjörendr orðsins, eða einungis heyrendr þess? og eftir því mun dómrinn falla. Endalokum þessa heims er líkt saman við uppskeru (Math. 13. 30), og þú veizt, að vèr spyrjum í uppskerunni að eins um ávöxtinn. Eg segi þetta ekki þess vegna, að þú vitir ekki vel, að Guð lítr á ekkert, nema það, sem er af trú, heldr til þess, að sýna þèr, hversu þýðingarlaus játning Málugs muni verða á þeim degi.

Trúr: Mèr dettr nú í hug það, sem Móses segir, þegar hann er að lýsa hreinum dýrum. (3 Mós. b. 11; 5 Mós. b. 14.) Hann er einn þeirra, sem klaufir hefir og jórtrar; enn ekki þeirra, er klaufir hafa að eins, eða að eins jórtra. Hèrinn jórtrar, enn er óhreinn allt að einu, af því að hann hefir ekki klaufir. Og þetta líkist Málugum að öllu leyti. Hann jórtrar og leitar sèr fræðslu; hann jórtrar orðið, enn hann hefir ekki klofinn hófinn. Hann hverfr ekki af vegi syndaranna, enn líkist hèranum í því, að hann hefir fót hunds eða bjarnar, og þess vegna er hann óhreinn.

Kristinn: Að því er mèr skilst hefir þú dregið hina sönnu þýðingu út úr þessum stað. Eg ætla nú að bæta við fleiru: Páll kallar suma menn, og einmitt þessa málæðismenn, hljómandi málm og hvellandi bjöllu (1 Kor. 13. 1–3); á öðrum stað lýsir hann þeim svo, að þeir sè dauðir hlutir sem hafi hljóð. (1 Kor. 14. 7.) Dauðir hlutir, eðr með öðrum orðum hlutir, er vanti hina sönnu trú og náð fagnaðarlærdóms Jesú Krists, er og þess vegna verði aldrei hluttakandi í Guðs ríki með börnum lífsins, þó að ræða þeirra hljómi eins og engils tunga eða rödd.

Trúr: Eins og mèr þótti leið samfylgd hans í fyrstu, eins býðr mèr við honum nú að sama skapi. Enn hvernig eigum við að koma honum af okkr?

Kristinn: Farðu að mínum ráðum, og gjörðu nú eins og eg legg fyrir þig, og mun honum þá brátt leiðast að verða þèr samferða, nema Guð snerti hjarta hans og snúi honum.

Trúr: Hvað viltu þá að eg gjöri?

Kristinn: Farðu til hans, og byrjaðu á alvarlegri viðræðu um afl trúarinnar; hann mun taka vel á slíku umtalsefni, og skaltu þá spyrja hann blátt áframm, hvort þetta afl trúarinnar lýsi sèr í hjarta hans, á heimilinu eða í breytni hans.

Nú sneri Trúr sèr að Málugum og sagði: Nú, nú, hvernig gengr það?

Málugr: Eg þakka, það gengr vel. Enn nú höfum við þagað lengi og hefðum getað ræðzt margt við allan þenna tíma.

Trúr: Já, nú getum við tekið aftr til óspilltra málanna. Og fyrst þú áskildir mèr að stinga upp á umtalsefni okkar, þá skulum við nú ræða um þetta: Hvernig lýsir hin sáluhjálplega náð Guðs sèr, þegar hún gagntekr hjarta mannsins?

Málugr: Eg sè þá, að við eigum að ræða um afl trúarinnar, það er gott umræðu efni, og eg er fús að svara þèr. Og mitt svar er í stuttu máli þetta: Í fyrsta lagi: þegar Guðs náð hefir rutt sèr til rúms í hjartanu, þá vekr hún hávær mótmæli móti syndinni. Í öðru lagi—

Trúr: Nei, bíddu nú við! Við skulum ekki íhuga nema eitt í einu. Eg held þú hefðir heldr átt að segja, að hún lýsti sèr í því, að vekja viðbjóð í sálu mannsins á syndinni.

Málugr: Nú, nú, hvaða munr er á því, að mæla móti syndinni, og að hafa viðbjóð á henni?

Trúr: Það er mikill munr á því. Menn geta mælt og kennt móti syndinni, af heimshyggju tómri, enn þeir fá ekki viðbjóð á henni nema fyrir kraft guðlegrar náðar. Eg hefi heyrt margan mann hefja í stólnum öflug mótmæli gegn syndinni, sem ann henni vel bæði í hjarta sínu, á heimilinu og í breytninni. (1 Mós. b. 39. 15.) Húsmóðir Jósefs vitnaði með hárri röddu, að hún hefði verið skírlífið sjálft, enn hún vildi eigi að síðr drýgja saurlifnað með honum. Sumir hefja rödd sína móti syndinni, og ferst viðlíka og móður, sem atyrðir barnið á skauti sínu, kallar það ódám og brekabarn, enn klappar því síðan og kyssir það.

Málugr: Nú, eg sè þú ert að veiða mig.

Trúr: Nei, langt frá. Eg er einungis að reyna að fara rètt í málið. Enn hvað var nú hitt, sem þú ætlaðir að færa til sönnunar fyrir því, að menn fyndu til áhrifa guðlegrar náðar á hjartað.

Málugr: Það er djúpsett þekking á leyndardómum náðarlærdómsins.

Trúr: Þetta atriði hefði átt að koma fyrst. Enn hvort sem það kemr fyrr eða síðar, þá er það þýðingarlaust og rangt, og á hèr ekki við; því að þekkingu, já djúpsetta þekkingu, geta menn öðlazt á leyndardómum náðarlærdómsins, og þó farið varhluta af öllum áhrifum náðarinnar á sáluna. Já, þó að maðr hafi alls háttar kunnáttu, þá getr hann samt verið einskis virði, ekki einu sinni Guðs barn. (1 Kor. 13. 2.) Þegar Kristr sagði við lærisveinana: Þekkið þèr alla þessa hluti? og þeir höfðu sagt: Já; þá bætti hann þessu við: Sælir eruð þèr, ef þèr gjörið þá. Hann telr ekki sæluna fólgna í þekkingunni, heldr í breytninni. Því til er sú þekking, sem ekki leiðir til frammkvæmdar. Eins og þar stendr: Sá sem veit vilja herra síns, enn breytir ekki eftir honum, hann hefir þekkingu, enn hann lætr ekki breytnina bera henni vott. Já menn geta haft þekkingu eins og englar, og þó alls ekki verið kristnir. Þess vegna er þessi vottr þinn um náðarinnar áhrif alls ósannr. Það er satt, að málæðismönnum og gorturum þykir mikið komið undir þekkingunni; enn frammkvæmdarsöm trú er það eina sem Guði þóknast. Þó er þetta ekki svo að skilja, að hjartað geti verið gott án nokkurrar þekkingar, því þá er það ekkert. Menn verða því að gjöra mun á þekkingu og þekkingu—á þekkingu, sem er fólgin í eintómri skoðun hlutanna, og þeirri þekkingu, sem náð trúarinnar og kærleikans hefir í för með sèr, og sem kennir manninum, að gjöra Guðs vilja af fúsu hjarta. Hin fyrnefnda þekking nægir hverjum málskrafsmanni, enn sannkristinn maðr hefir ekki frið fyr, enn hann hefir öðlazt hina síðar nefndu. Gefðu mèr skilning, og mun eg þá halda lögmál þitt, já halda það af öllu hjarta. (Sálm 119. 34.)

Málugr: Þú leggr mig í einelti aftr. Þetta finnst mèr ekki sèrlega uppbyggilegt skraf.

Trúr: Nú, taktu þá framm eitthvert annað einkenni, er sýni áhrif guðlegrar náðar, þar sem hún er fyrir.

Málugr: Nei, ónei, því eg sè, að okkr kemr svo ekki saman, hvort sem er.

Trúr: Viltu þá lofa mèr að gjöra það, úr því þú villt það ekki sjálfr?

Málugr: Fyrir mèr er þèr það frjálst.

Trúr: Þegar guðleg náð hefir gagntekið hjarta mannsins, þá birtast, áhrif hennar annaðhvort manninum sjálfum eðr og öðrum út í frá.

Hún birtist manninum sjálfum í því, að vekja meðvitundina um syndsemi og eðlisspillingu hans, og þá synd, er hann drýgir með trúarleysi sínu, er vissulega mun olla honum dómsáfellis, nema hann njóti að guðlegrar náðar fyrir trúna á Jesúm Krist. Þegar hann nú sèr synd sína við ljós þessarrar sannfæringar, vaknar sorg hans og viðbjóðr á henni. (Sálm 38. 18; Jer. 31. 19; Jóh. 16. 8; Róm. 7. 24; Mark 16. 16; Gal. 2. 16; Opb. b. 1. 6.) Hann finnr, að Lausnari heimsins hefir opinberazt sèr í enum innra manni, og að hann hlýtr um framm allt að bindast honum við hönd alla æfi sína; hann hungrar og þyrstir eftir honum. Enn eftir því, hvað trú hans er styrk eða veik, fer gleði hans og friðr í trúnni, eftir því fer kærleiki hans og helgun, eftir því fer löngun hans til að þekkja Lausnara sinn betr og betr, og að þjóna honum í þessum heimi. Enn þó eg segi að náðin birtist manninum á þessa leið, þá er það þó sjaldnast, að hann hafi þegar fulla vissu þess, að þetta sè áhrif guðlegrar náðar, sökum þess, að syndsemi hans og afvega leidd skynsemi geta auðveldlega leitt hann til að fella rangan dóm í því efni. Á engu ríðr manninum því meira, þegar hann finnr til þessarra áhrifa, enn að dæma sjálfan sig rètt, svo hann geti með fullri vissu ráðið, að þetta sè náðarinnar starfi. (Jóh. 16. 9; Gal. 2. 15, 16; Post. g. 4. 12; Math. 5. 6; Opb. b. 21. 6.)

Nú ætla eg þá að taka framm hvernig náungi vor getr sannfærzt um að Guðs náð hafi gjört áhrif á hjartað; og sèst það, af tvennu:

Fyrst af því, að hann ófeilinn játi trúna á Jesúm Krist í þrengingum lífsins; og í öðru lagi af því, að líf hans samsvari þessarri játningu, eða sè heilagt líferni; hann sè heilagr í hjartanu, í heimilislífinu og í breytni sinni við heiminn, sem jafnast kennir honum, að hafa djúpan viðbjóð á syndinni og sjálfum sèr hennar vegna, þó heimuglega; að hann komi í veg fyrir hana á heimili sínu og stuðli að heilagleikanum í heiminum; ekki með masi einu, eins og hræsnurum og málæðis mönnum er lagið, heldr með því, að semja breytni sína í fúsri undirgefni eftir valdi hins guðdómlega orðs, í trú og kærleika. (Job 42. 5, 6; Sálm 50. 23; Ezek. 20. 43; Math. 5. 8; Jóh. 14. 15; Róm. 10. 10; Ezek. 36. 25; Phil. 1. 27; 3. 17.) Ef að þú hefir nokkuð að bera móti þessarri stuttu lýsingu á starfi náðarinnar, eðr móti því, hvernig það starf lýsir sèr, þá kondu með þá mótbáru; enn ef þú hefir ekkert að bera móti þessu, þá leyfðu mèr að setja fyrir þig hina spurninguna.

Málugr: Nei, eg hefi nú ekkert annað að gjöra, enn að hlusta á þig; lofaðu mèr því að heyra seinni spurninguna þína.

Trúr: Hún er þá þessi: Finnst þèr, að þú hafir reynt nokkuð, er svarar til hins fyrra hluta lýsingar minnar á áhrifum náðarinnar á hjarta mannsins? og sannast það af lífi þínu og breytni? eða er trú þín fólgin í orðum og málskrafi, í staðinn fyrir í verki og sannleika? Ef að þú svarar mèr til þessarra spurnínga, þá bið eg þig þess lengstra orða, að segja svo hreinskilnislega hugsun þína, að Guð, sem yfir okkr er báðum, geti sagt já og amen til þess; og segðu ekki annað enn það, sem samvizka þín getr rèttlætt þig fyrir. Því sá, sem lofar sjálfan sig, er ekki rèttlátr, heldr sá, sem lofstír fær af Drottni.

Nú roðnaði Málugr nokkuð í fyrstu; enn síðan tók hann sig á, og sagði: Nú hefirðu snúið umræðunni að reynslunni, samvizkunni og Guði, og skírskotar til hans, að rèttlæta manninn fyrir orð hans. Eg bjóst nú reyndar ekki við þessu tali; og finn heldr ekki skyldu mína að svara spurningum þínum; enda er eg og næsta ófús til þess, nema þú ætlir að leggja mig á knè þèr, til að spyrja mig út úr, eins og barn. Enn þó að þú gjörðir það, þá mundi eg leyfa mèr að skorast undan, að gjöra þig að dómara mínum. Enn gjörðu svo vel og segðu mèr, hvað þèr gengr til að leggja þessar spurningar fyrir mig.

Trúr: Það, að þú varst í fyrsta svo málhvatr, og svo hitt, að eg vissi ekki, að þèr gengi annað til umræðunnar, enn innri hvöt. Enn þar að auki gekk mèr það til, svo að eg segi þèr allt hið sanna, að eg hafði heyrt, að öll þín trú væri fólgin í málæði einu, og að breytni þín gjörði játníngu vara þinna að lýgi. Menn segja, að þú sèrt afhrak kristinna manna, og að hin óguðlega breytni þín sè talin trúnni til ógildis; menn segja, að þú hafir þegar orðið sumum mönnum að hrösun, og mörgum fleiri sè enn þá hrösun búin af þèr. Þeir segja að öllu agi saman hjá þèr, trú, öldrykkju, ágirnd, óhreinleika, blóti, lýgi og illum fèlagsskap. Á þèr sannast því það, sem sagt er um skækjuna, að hún sè háðung allra kvenna; því að þú ert hverjum þeim er trú játar til minnkunar.

Málugr: Fyrst að þú ferð eftir sögum einum, og fellir sleggjudóm þinn eftir þeim, og hann jafn harðan og þessi er, þá verð eg að ætla, að þú sèrt stirfinn þunglyndis maðr, og óhæfr til þess, að eiga viðræður við um nokkurt efni; og vertu nú sæll!

Nú gekk Kristinn að Trúum og mælti: Eg sagði þèr, bróðir, hvernig fara mundi: að orðum þínum og girndum hans mundi ekki koma saman. Hann ræðst fyr úr fèlagi við þig, enn hann bæti ráð sitt. Nú er hann farinn eins og eg spáði, og fari hann vel; það er engum til ills nema honum sjálfum; hann hefir tekið af okkr ómakið að þurfa að stökkva frá honum, því hefði hann haldið áframm að vera eins og hann er, og það hefði hann gjört, þá hefði hann orðið fèlagi voru til háðungar. Postulinn segir líka: Sneiddu þig hjá slíkum mönnum.

Trúr: Enn mèr þykir vænt, að við áttum þessa stuttu samræðu við hann, því vera má, að hann hugsi um hana seinna meir. Það er það bezta, að eg hefi verið full ber í máli mínu við hann, svo að blóð hans kemr ekki yfir mig, þó hann glatist.

Kristinn: Það var öldúngis rètt gjört, að tala eins opinskátt við hann og þú gjörðir. Það er næsta sjáldgæft, að mönnum sè sagt hreinskilnislega til syndanna, nú á dögum, og þess vegna er það svo almennt, að trúarbrögðin eru orðin mönnum hvumleið. Því að þessir málóðu glópar, sem nú gjörast, leggja trúna á varirnar; líf þeirra og breytni er spilling og hègómi; og vegna þess, að þeir trana sèr svo oft framm meðal hinna ráðvöndu og góðu, þá villa þeir augu manna, eru kristninni til háðungar og hinum hreinhjörtuðu til armæðu og sorgar. Eg vildi, að hver maðr færi eins að þessum mönnum og þú fórst að Málugum, því það mundi leiða til þess, að þeir annaðhvort semdu sig betr eftir trúarbrögðunum, eða þá að fèlag hinna góðu mundi verða þeim of heitt.

Hve Málugr í fyrstu fjaðrir reisti,Og fjölmargt ræddi af stórmannlegri hreysti,Og lèt sem allt hann mundi yfir stíga!Enn er Trúr lèt að hjartans starfi hnígaMál sitt, tók Málugan að þverra brátt,Sem mána úr fylling genginn; á þann háttMun alla þverra, nema þá sem hèrÞekkja hvað hjartans náðar-reynsla er.

Nú hèldu þeir fèlagar áframm, og ræddust við um það, er þeir höfðu sèð á leið sinni, og varð nú leið og ferð þeim ljúf og lètt, sem að öðrum kosti mundi efalaust hafa orðið þeim leið og löng, því nú lá vegr þeirra um eyðimerkr.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

10. kafli af 31 · 21 mín. eftirMálugr