Tuttugasti kafli
Við hliðið
Nú var Kristín komin af stað, og fór Líkn með henni; börnin urðu og samferða, og tók nú Kristín þannig til máls: Líkn mín, það var mèr óvænt happ, að þú skyldir fara að heiman til þess að fylgja mèr á leið.
Þess er að geta, að Líkn var enn þá á unga aldri. Hún svaraði nú Kristínu þannig: Ef að eg að eins vissi, að það væri nokkurt gagn í því að fara með þèr, þá skyldi eg aldrei koma nærri bænum oftar.
Kristín: Gjörðu nokkuð, góða mín, láttu eitt ganga yfir okkr báðar; eg veit vel, hver endir muni verða á pílagrímsferð okkar. Þaðan, sem maðrinn minn er nú, vill hann ekki fara, þó allt heimsins gull væri í boði. Taktu boði mínu, kondu með mèr; þú munt ekki verða gjörð aftrreka. Konungrinn, sem sendi eftir mèr og börnum mínum er náðarríkr, og það er hans velþóknanlegr vili, að auðsýna miskunnsemi. Enn ef þú vilt það heldr, þá skal eg taka þig fyrir hjú mitt, og svo ferðu með mèr eins og þjónustu stúlka mín; enn þó skal allt mitt vera sem beggja sè. Kondu með!
Líkn: Enn hvernig get eg orðið viss um það, að eg verði náðuð? Ef einhver gæti gefið mèr vissa von um þetta, þá skyldi eg ekki hika mèr eitt augnablik við, að fara; eg skyldi leggja ótrauð í ferðina með styrk hans, er einn megnar að hjálpa, hvað ervið sem leiðin kann að vera.
Kristín: Heyrðu, góða Líkn, eg skal segja þèr, hvað þú skalt gjöra. Farðu með mèr að þröngva hliðinu, þar skal eg spyrjazt ýtarlega fyrir um hagi þína, og ef þèr verðr ráðið þar frá að halda lengra, þá skal eg láta mèr lynda, að skilja við þig, og snúir þú þá heim aftr. Eg skal líka borga þèr fyrir greiðviknina er þú hefir sýnt mèr og börnum mínum, með því að fylgja okkr á leið eins og þú gjörir nú.
Líkn: Eg ætla þá að fara þangað, og taka því, er að höndum ber. Guð, Drottinn minn, gefi, að hlutskifti mitt ráðist þar eftir þeirri miskunsemi er konúngr himinsins hefir á mèr.
Kristín gladdist nú í hjarta, bæði þess vegna, að hún nú hafði samferðakonu, og svo af því, að hún hafði áorkað því, að vekja löngun þessarrar konu til að verða sálu-hólpin. Nú hèldu þær áframm; enn Líkn tók að gráta; spurði Kristín hana þá: Hví grætr þú, systir góð?
Líkn: Hver getr annað enn tárast, þegar hann íhugar hag vesalings ættingjanna minna, er enn þá lifa eftir heima, í okkar syndugu borg? Það, sem hryggir mig mest, er það, að enginn er til þess, að leiðbeina þeim og segja þeim, hvað ókominn tími muni bera í skauti sínu.
Kristín: Það er einkenni pílagríma, að taka þátt í annarra kjörum; og nú tekr þig eins sárt til frænda þinna eins og blessuðum manninum mínum tók til mín, þegar hann skildi við mig. Hann bar þúngan harm í brjósti af því, að eg vildi ekki heyra hann nè gegna honum. Enn Guð, Drottinn hans og okkar, hefir safnað öllum tárum hans í ker sitt, og nú erum við, eg og þú og blessuð börnin mín að uppskera ávexti tára hans. Eg vona, Líkn, að þessi tár þín glatist ekki, því Sannleikrinn segir: Þeir sem sá með tárum munu uppskera með gleðisöng. Grátandi gengr sáðmaðrinn og ber sáðið, sem á að sá, enn hann kemr aftr með gleðisöng, þegar hann ber heim kornbindinin. (Sálm 126. 5. 6.)
Þá söng Líkn:
Ó, blíði Faðir, braut mèr sýn,Ef blíðr svo er vili þinn;Því hliðið þá og hjarðhús þínOg helga fjallið þitt eg finn.
Og lát mèr aldri leyfast það,Að leggja á rangan villustigFrá náðar helgu brautum, hvaðSem henda kann á foldu mig.
Eg bið, ástmenni að annist mín,Er eg skil við, og lát þau fáÞèr bæn að verða börnin þínAf bæði hjarta og sál að tjá.
Nú tók hinn aldraði förunautr minn til sögu sinnar aftr og mælti:
Enn þegar Kristín kom til Sturlandíkis, tók hún að hika við, og sagði: Hèr var það, að maðrinn minn sálugi var nærri því kafnaðr í efjunni. Sá hún nú og, að þrátt fyrir boð konungsins að búa pílagrímum góðan veg yfir fenið, var það öllu verra yfirferðar enn nokkuru sinni fyrr. Eg spurði, hvort þetta væri satt. Já, sagði förunautr minn, það er því miðr of satt; því margir vinna við fen þetta, er þykjast vera vegabótamenn konungsins, enn flytja leir og for ofan í það í staðinn fyrir grjót, og gjöra svo illt verra, í staðinn fyrir að bæta veginn. Vegna þessa stóð Kristín við með sonum sínum, enn sagði við Líkn: Kondu, við skulum reyna að fara yfir um, enn fara gætilega. Lögðu þær nú af stað og könnuðu veginn fyrir sèr og stikluðu svo klaklaust yfir um, nema hvað Kristín var nærri því dottin niðr í einum tvisvar eða þrisvar sinnum.
Þegar er þær voru komnar yfir um, virtist þeim þau heyra rödd, er sagði: Sæl ert þú, að þú trúðir, því það mun rætast, er Drottinn hefir sagt þèr. (Lúk 1. 45.)
Nú hèldu þær áframm ferð sinni, og segir Líkn við Kristínu: Ef eg gæti búizt við eins góðum viðtökum hjá þröngva hliðinu, eins og þú, þá skyldi ekkert Sturlandíki hræða mig.
Þú þekkir þinn veikleika, svaraði Kristín, og eg þekki minn; enn það uggir mig, góða vina, að við munum hvor um sig fá nógar raunir ratað í áðr enn leið okkar er öll. Við höfum ásett okkr, að öðlast himneska dýrð, og eilífa farsæld; það getr því enginn ímyndað sèr, hve mjög hatrsmenn vorir kunna að öfunda oss, og hvílíkar hættur, ógnanir og snörur þeir kunna að leggja í veg okkar, eða hvílíka armæðu og mótlæti þeir kunna að hafa okkr búið.
Nú skildi herra Glöggsær við mig og lèt mig njóta draums míns. Þótti mèr þá eg sjá Kristínu og Líkn fara með öllum börnunum upp að hliðinu, og er þau voru þangað komin, tóku þær vinkonur ráð með sèr, hvernig þær skyldu drepa á dyr og hvað þær skyldu segja þeim, er upp lyki hliðinu. Var það afráðið, að Kristín skyldi drepa á dyr, með því hún væri eldri, og beiðast inngöngu fyrir sig og þá, er með henni væru. Barði nú Kristín hvað eftir annað að dyrum, eins og maðrinn hennar hafði gjört; enn í stað svars virtist þeim öllum þau heyra hund urra inni fyrir, og var sem hann kæmi einhvers staðar innan að og færðist nær og nær þeim; þeim þótti sem hundr þessi mundi vera allstór, og sló nú ótta að þeim öllum. Þær þorðu nú ekki að berja aftr, vegna þess, að þær óttuðust, að rakkinn mundi fljúga á þær. Nú vissu þær ekki hvað til ráða skyldi taka og gjörðust næsta óróar og óttafullar; drepa að dyrum þorðu þær ekki, vegna hræðslunnar við hundinn; snúa aftr þorðu þær heldr ekki, með því þær óttuðust, að dyravörðrinn mundi sjá til ferða þeirra, er þær hyrfu aftr, og reiðast þeim fyrir það. Loks rèðu þær af, að berja á dyr að nýju, og börðu nú ákafar enn nokkuru sinni fyrr. Þá mælti dyravörðrinn innifyrir: Hver er þar? Þá hætti hundrinn að gelta, og maðr kom framm og opnaði hliðið.
Kristín hneigði sig djúpt og mælti: Reiðist ekki, herra, að ambáttir yðar drepa á hinar konunglegu dyr yðar. Hann svaraði: Hvaðan komið þið, og hvað vilið þið?
Kristín svaraði: Við komum þaðan, sem Kristinn kom, og í sömu erindum og hann, og vildum við auðmjúklega spyrjast fyrir, hvort yðr mætti ekki þóknast að veita oss inngöngu um hlið þetta, svo við getum komizt inn á veginn sem liggr til Himnaborgar. Enn næst verð eg að svara yðr því, herra minn, að eg heiti Kristín og var einu sinni kona Kristins, sem nú býr á hæðum.
Við þetta varð dyravörðr næsta hissa og mælti: Hvað þá, hefir hún nú gjörst pílagrímr, hún, sem fyrir skemmstu ekki mátti heyra slíkt nè sjá? Kristín hneigði sig og mælti: Já, og blessuð börnin mín líka, sem þarna eru.
Nú tók dyravörðr í hönd henni, fór með hana og börn hennar inn, og sagði um leið: Leyfið smábörnunum til mín að koma, og lokaði síðan hliðinu. Að svo búnu bauð hann lúðr-blásara, er yfir var hliðinu, að taka móti Kristni með lúðr-þyt og gleði hljóm. Hann hlýddi og endrkvað nú lúðrgjallið í himingeimnum.
Allan þenna tíma stóð vesalings Líkn útifyrir; skalf og titraði og grèt hástöfum, af ótta fyrir því, að henni mundi verða synjað hèr inngöngu. Enn þegar Kristín var komin inn með börnum sínum tók hún að mæla fyrir Líkn og beiðast inngönguleyfis fyrir hana, og mælti: Herra minn, kvennmaðr varð mèr samferða hingað; hún er hèr komin sömu erinda og eg, enn stendr enn þá úti; hún er harmsfull í huga og hrædd, að hún verði gjörð aftrreka af því, að hún kemr hingað óboðin, enn konungr mannsins míns sendi eftir mèr.
Líkn gjörðist æ órórri, og varð nú hver mínúta henni jafnlöng og klukkutími. Hún tók nú fyrirhöfnina af Kristínu að mæla framm með sèr, og drap sjálf á dyrnar, og barði svo öflugt, að Kristín hrökk við. Gekk nú dyravörðr framm og mælti: Hver er úti? Kristín varð fyrir svörunum og sagði: Það er vina mín.
Hann lauk nú upp dyrunum og leit út; var þá Líkn liðin í öngvit, og lá fyrir dyrunum; hafði svifið yfir hana af ótta fyrir því, að aldrei mundi verða lokið upp fyrir sèr. Enn dyravörðr tók í hönd henni og mælti: Kona, eg segi þèr, rístu á fætr.
Hún svaraði: Ó, herra minn, eg er svo máttfarin; mèr er nærri því horfinn allr lífsþróttr. Enn dyravörðrinn svaraði: Minnstu þess, sem skrifað er: Þegar sála mín vanmegnaðist í mèr, þá minntist eg á Drottin, og mín bæn kom til þíns heilaga musteris. (Jónas 2. 8.) Óttastu ekki, rístu á fætr, og seg mèr, hverra erinda þú ert komin.
Líkn: Eg er komin í sömu erindum og vinkona mín, Kristín; enn sá er munrinn, að hún kemr boðin, enn eg óboðin. Konungrinn bauð henni, enn hún bauð aftr mèr, og því er eg hrædd um, að það hafi verið of mikil dirfð af mèr, að koma.
Dyravörðr: Beiddi hún þig, að koma með sèr hingað?
Líkn: Já; og nú er eg hèr komin, eins og þèr sjáið, herra minn! og sè nokkur synda-fyrirgefning til, þá er það mín auðmjúk bæn, að eg fáráð ambátt yðar megi verða hluttakandi hennar.
Þá tók dyravörðrinn í hönd henni og leiddi hana hægt inn, og sagði: Eg bið fyrir öllum þeim, er trúa á mig, hvernig sem þeir koma til mín. Því næst mælti hann við þá, er hjá stóðu: Berið ilmjurtir að vitum hennar, svo að hún hressist af magnleysi sínu. Sóktu þjónar hans mirru-bundin og báru henni; hresstist hún þá við, og kom alveg til sjalfrar sín eftir litla stund.
Nú ávarpaði dyravörðrinn þær Líkn og Kristínu og börn hennar mjúkum orðum og beiddi þau velkomin. Þær svöruðu ræðu hans og mæltu: Vèr erum harmandi yfir syndum vorum, og biðjum yðr, herra, að fyrirgefa oss þær, og fræða oss um það, hvað vèr eigum að gjöra.
Eg veiti yðr fyrirgefningu syndanna bæði í orði og verki. Með orði veiti eg yðr hana með því, að gefa yðr fyrirheiti hennar, í verki veiti eg yðr hana með því, að eg afrekaði hana.
Takið hið fyrra af vörum mínum með kossi, og hitt eins og það verðr yðr opinberað. (Lofkv. 1. 2; Joh. 20. 20.)
Nú þótti mèr hann ávarpa þær mörgum blíðum huggunar orðum, og glöddust þær mjög í hjarta við þau. Hann fór með þær upp í turninn yfir hliðinu, og sýndi þeim, með hverju móti þær hefðu frelsazt. Sagði hann þeim, að útsýnið frá turninum mundi verða þeim til mestu huggunar á veginum.
Því næst fór hann með þær niðr í laufskála einn hjá hliðinu, og lèt þær þar einar um tíma, og tóku þær nú samtal með sèr á þessa leið. Kristín tók fyrst til máls og sagði: Ó, hvað eg er nú glöð að vera komin hèr inn.
Líkn: Það er sem von er; enn enginn hefir þó meiri ástæðu til að fagna heldr enn eg.
Kristín: Þegar við stóðum við dyrnar, og börðum, enn enginn gegndi, hèlt eg, að allt okkar erviði mundi koma fyrir ekki, einkum þegar grimmi rakkinn tók til að gelta og urra við okkr.
Líkn: Enn eg varð hræddust eftir það, að dyravörðrinn hafði tekið við þèr, enn eg stóð ein eftir úti fyrir. Þá hèlt eg, að á mèr mundi ætla að rætast það sem skrifað er: Tvær konur munu þá mala í kvernhúsi, önnur þeirra mun verða tekin, hin eftir skilin. (Math. 24. 41.) Eg var nærri því hvað eftir annað farin að æpa upp yfir mig: Glötuð, glötuð, og var svo hrædd, að eg þorði ekki að berja aftr á dyrnar; enn er eg leit upp, og sá, hvað skrifað var yfir dyrunum, þá varð eg hugrakkari; enda hugsaði eg með sjálfri mèr: Mèr er annaðhvort að gjöra, að berja að nýju, eða sálast hèr út af. Svo barði eg í einhverju fáti, því sál mín brauzt um í einhverju óviti milli lífs og dauða.
Kristín: Manstu hvernig þú barðir? Þegar eg heyrði barið, voru höggin svo þung, að eg hrökk við; eg hefi aldrei á æfi minni heyrt eins hart barið á dyr. Eg hèlt að þú mundir ætla að brjótast inn með ofbeldi eða taka konungsríkið með valdi. (Math. 11. 12.)
Líkn: Ó, hver mundi ekki hafa gjört það í mínum sporum? Þú vissir, að dyrunum var lokað fyrir mèr, og grimmr hundr var á næstu grösum. Hver mundi ekki hafa barið á dyr af öllum mætti, er hefði verið jafn hræddr og eg var? Enn segðu mèr nokkuð, hvað sagði dyravörðrinn um ofsann í mèr? Varð hann ekki styggr við mig fyrir barsmíðina?
Kristín: Þegar hann heyrði hversu hart þú glamraðir við hurðina, þá leið svo undarlega blítt bros yfir varir hans. Eg held honum hafi líkað atferli þitt vel, því ekki var annað á honum að sjá. Enn mig furðar á því, að hann skuli hafa þenna hund; hefði eg vitað það fyrir, þá held eg, að eg hefði aldrei haft áræði til að koma hingað. Enn nú erum við komnar inn, og skulum því ekki hugsa um annað, enn að gleðjast; já við skulum vera glaðar af öllu hjarta.
Líkn: Ef þèr lízt svo, þá ætla eg, þegar við komum niðr, að spyrja hann, hvers vegna hann hafi svo grimman hund í garði sínum. Eg vona að hann styggist ekki við mig fyrir það.
Ó, já, gjörðu það, sögðu börnin, og fáðu hann til þess, að hengja hann, því við erum svo hrædd að hann bíti okkr þegar við förum hèðan.
Loks kom dyravörðr niðr aftr, og Líkn fèll á knè frammi fyrir honum, tilbað hann og sagði: Meðtak, herra minn, þakkarfórn hinna veiku vara minna!
Hann mælti: Friðr sè með þèr, stattu upp! enn hún hèlt áframm ræðu sinni að framm kropin, og mælti: Rèttlátr ertu, Drottinn, þegar eg fer í mál við þig; samt verð eg að tala um dóma þína. (Jer. 12. 1.) Hví geymirðu svo grimman hund í garði þínum? Konur, sem ekki eru hugrakkari enn eg, og börnin þarna, erum dauðhrædd við hann, svo að við lá, að við flýðum, hans vegna, frá hliðinu.
Hann svaraði: Eg á ekki hundinn, hann er annars eign; hann er heldr ekki í mínum garði, heldr í annars garði, sem liggr fast að mínum, og heyra pílagrímar mínir að eins geltið úr honum. Hann á heima í víginu, sem þið sjáið þarna álengdar, enn hann getr komið fast að veggnum mínum. Hann hefir hrætt margan pílagrím frá illu til góðs með hinu óttalega gelti sínu. Enn það er þó sannast að segja, að eigandi hans hefr hann ekki í neinu góðu skyni við mig eða mína. Honum gengr ekki annað til enn það, að fæla pílagríma frá því, að koma til mín, og hræða þá, svo að þeir vogi ekki að berja hèr að dyrum og beiðast inngöngu. Stundum hefir hann brotizt út, og ráðist á þá, er eg hefi elskað, enn eg tek því öllu með þögn og þolinmæði sem stendr. Eg veiti líka pílagrímum mínum hjálp í tíma, svo að þeir sè hvorki undirorpnir ofsa hans, nè hann fái að skeyta hundsskapi sínu á þeim. Enn eg held, mín dýrkeypta, að þú mundir ekki hafa orðið svo hrædd við hundinn, ef þú hefðir vitað þetta fyrir. Beiningamenn, sem fara hús úr húsi og beiðast ölmusu, vilja heldr leggja á hættu að mæta urrandi, geltandi og jafnvel glepsnum hundi, enn að láta fèð ganga sèr úr greipum; og hví skyldi þá sá hundr, sem haldið er í annars garði fæla nokkurn frá því, að koma til mín. Eg frelsa þá frá ljónunum og líf minna kjörnu frá ofbeldi hundanna.
Líkn: Eg játa fávizku mína, því eg tala um það, sem eg hefi ekki vit á. Eg viðrkenni, að þú gjörir alla hluti vel.
Eftir þetta tók Kristín að tala um ferðalagið og spyrjast fyrir um veginn: Enn hann gaf þeim saðningu, þvoði fætr þeirra, og benti þeim, að fara sama veginn og hann hafði vísað manni hennar á fyr meir. Nú fór Kristín og þau öll af stað. Veðrið var fagrt; og þegar þær voru komnar á leiðina söng Kristín:
Ó, blessaði dagr, þá byrja eg vannÁ brautlífi vegferla að trúa!Enn margfaldri blessan eg blessa þann mann,Er bauð mèr á þá leið að snúa.
Æ lengi það beið, áðr leitaði egAð lífs eilífs sælu margfaldri;Enn nú keppi eg bráðfara brott þangað veg,Því betra er seint þó enn aldri.
Enn tárum í unað og ótta í trúVèr oft sjáum bráðlega snúið;Og eins sýnir ferð sem er upphafin núVorn enda þá skeiðið er búið.
Með veginum er þau gengu lá veggr, og fyrir handan hann var garðr, sem sá átti er hundinn hafði, sem áðr er minnzt á. Garðr þessi var alsettr ávaxtatrjám og námu greinarnar af sumum þeirra út yfir vegginn; ávextirnir voru næsta safaríkir og bar það ekki sjaldan við, að pílagrímar lásu þá af greinunum og átu þá, enn þeim varð jáfnan mein að því. Sonum Kristínar leizt vel á ávextina eins og börnum er títt; þeir fóru því til og tíndu þá, og tóku að matast á þeim, og hèldu áframm aldinaátinu, þó að móðir þeirra bannaði þeim það.
Synir mínir, sagði hún, þetta er rangt gjört, því þið eigið ekkert af þessum aldinum. Enn hún vissi ekki að það voru aldini óvinarins; því hefði hún vitað það, þá fullyrði eg, að hún hefði dáið af ótta. Enn nú var ekki hugsað meira um þetta að sinni, heldr fóru þau nú leiðar sinnar. Þegar þau voru komin, á að gizka svo sem tvær örskots-lengdir frá hliðinu, sáu þau hvar tveir menn, allískyggilegir, komu rakleiðis á móti þeim. Þær Kristín og Líkn, vinkona hennar, brugðu nú blæum fyrir andlit sèr, og hèldu þannig áframm ferðinni, enn börnin fóru á undan, þangað til hvorir tveggja mættust. Þessir tveir menn, sem mættu þeim þarna gengu rakleiðis framan að konunum, eins og þeir ætluðu að faðma þær. Enn Kristín hrökk undan, og kallaði upp: Farið brott og gangið friðsamlega eins og heiðvirðum mönnum hæfir. Enn þeir voru sem heyrnarlausir, skeyttu hvergi orðum Kristínar, enn tóku að leggja höndr á þær, konurnar. Enn Kristín varð svo bráð, að hún drap við þeim fótum, og Líkn gjörði allt sem hún gat, til þess að hafa þá af sèr. Kristín æpti nú aftr til þeirra og mælti: Farið brott! við höfum ekkert fè aflögum handa ykkr, því við erum pílagrímar, eins og þið líklega getið sèð, og það svo umkomulausir förumenn, að við verðum að lifa af góðgjörðasemi vina vorra.
Þá tók annar þessara skuggasveina til orða, og mælti: Við ætlum ekki að gjöra ykkr neitt fjárránsatferli; enn við vildum láta ykkr vita, að ef að þið vilið verða við lítilli bón, sem við ætlum að biðja ykkr, þá munum við láta ykkr njóta þess alla ykkar æfi.
Kristínu grunaði, hvað undir þessu mundi búa, og svaraði jafnskjótt: Það er stutt af að segja, að við viljum hvorki heyra nè sinna, nè verða við bón ykkar. Við erum á hraðri ferð, og höfum ekki tíma til að slóra, því þar við liggr líf okkar; og nú ætlaði hún og förunautur hennar, að komast framm hjá þeim, enn þeir hlupu fyrir þær, og synjuðu þeim, að halda áframm, og sögðu: Því látið þið svona? Við ætlum ekki að bana ykkr, það er lángt frá; nei, það er annað sem við viljum.
Já, þið vilið hafa bæði sál og líkama, sagði Kristín, því eg veit, að það er erindi ykkar. Enn við viljum heldr deyja í sömu sporum, enn að láta veiða okkr í þær snörur, sem varða alla vora velferð, tímanlega og eilífa; og í sama vetfangi æptu þær báðar upp og kölluðu: Morð, morð! og skutu sèr þannig undir lög þau, er til verndar konum hafa verið sett. (5 Mós. b. 22. 25-27.) Enn menn þessir gjörðust æ nærgöngulari, og lá við fremsta hlunn, að þeir beittu ofríki við þær, enn þær hèldu áframm að kalla um hjálp.
Með því, að þær voru ekki all-langt frá hliðinu sem þær höfðu komið inn um, þá heyrðust köllin úr þeim þangað, og svo vildi til, að einhver kom út úr húsinu við hliðið, og er þeir heyrðu málróm Kristínar, hlupu þeir af stað til þess að bjarga henni. Enn áðr enn þeir komu, var komið í fullt óefni fyrir þeim Kristínu, og börnin stóðu grátandi í kring. Enn er hjálparmennirnir komu, kölluðu þeir upp og sögðu: Blygðunarlausu varmenni, hvað eruð þið að hafast að? eruð þið svo ósvífnir, að tæla þjóna herra míns til syndar? Þeir ætluðu að reyna að taka þá höndum, enn kolapiltar þessir hlupu yfir múrinn inn í garðinn til hans sem átti stóra hundinn, og varð hann nú skjöldr og verja þeirra. Þegar hríð þessi var af staðin, spurði maðrinn sem hjálpaði þeim, hvernig þeim liði; þær svöruðu, vèr þökkum yðr, herra, allvel, nema hvað við urðum hræddar; vèr þökkum yðr mikið fyrir það, að þèr komuð, og hjálpuðuð okkr; því að ella hefðum við orðið yfirbugaðar af þessum illmennum.
Nú fóru þeim ýms orð á milli, unz hjálparinn mælti þannig: Mig furðaði það mjög, að þið skylduð ekki biðja dyravörðinn um leiðsögumann meðan þið stóðuð við hjá hliðinu, þareð þið þó máttuð vita, að þið voruð að eins veikar konur. Ef að þið hefðuð gjört það, þá hefðuð þið getað komizt hjá allri þessarri hættu og ófögnuði, því að hann hefði ugglaust lèð ykkr fylgdarmann við hálft orð.
Ó, svaraði Kristín, við vorum svo gagnteknar af gleði yfir hamingju okkar, að við hugsuðum um engar ókomnar hættur. Hver gat líka ímyndað sèr, að aðrir eins voðagestir væru á læðum hèrna, rètt fyrir framan hallarglugga konungsins? Það er auðvitað, að það hefði verið betra fyrir okkr, ef við hefðum beðið konunginn, að ljá okkr fylgdarmann, enn mig furðar það, að hann skyldi ekki af sjálfs dáðum bjóða okkr mann til fylgdar, úr því, að hann vissi, að okkr var þannig óhættara.
Hjálpari: Það er ekki sagt, að það eigi ávallt við, að bjóða mönnum þá hluti, sem menn ekki beiðast, því að þá finnst mönnum minna koma til þeirra. Enn þegar menn finna til þess, að þá vantar hlutinn, þá er hann metinn eins og hann á skilið, og menn hagnýta sèr hann jafnan úr því þeir hafa öðlazt hann. Hefði konungrinn fengið ykkr fylgdarmann, þá hefðuð þið ekki sèð eins mikið eftir því, að þið vanræktuð að biðja um hann, eins og þið gjörið nú. Þannig miðar allt ykkr til góðs, og gjörir ykkr varari um ykkr.
Kristín: Eigum við að snúa aftr til konungsins og biðja hann fyrirgefningar á athugaleysi okkar, og biðja hann að ljá okkr fylgdarmann?
Hjálpari: Eg skal tjá honum athugaleysi ykkar; enn ekki skuluð þið snúa aftr; þið þurfið þess ekki með, því hvar sem þið komið, mun ykkr alls ekkert vanta; því að í öllum þeim hýbýlum, er konungrinn hefir látið búa til handa pílagrímum, er nóg af öllu tagi handa þeim, til þess að búa sig út gegn freistingum og snörum. Enn þeir verða að biðja hann um allt þetta, ef þeir eiga að öðlast það. (Ezek. 36. 37.) Enda er það og aumr konungr, sem ekki er virtr svo mikils, að biðja hann. Að svo mæltu sneri hann burt frá þeim heim til sín, enn þær hèldu áframm.
Nú tók Líkn til orða og mælti: Þetta var næsta óvænt atvik. Eg hèlt við værum komnar úr allri hættu, og að við mundum aldrei rata í neina mæðu framar.
Kristín: Sakleysi þitt er þèr full afbötun, elsku systir, enn það er allt öðru máli að gegna um mig; því eg sá hættuna fyrir, áðr enn eg fór af stað, enn bjó mig þó ekki út gegn henni, þó að eg gæti fengið nægan og óhultan útbúnað. Mín er því öll skuldin og eg er sú álassverða í þessu efni.
Líkn: Enn hvernig vissir þú þetta þegar þú fórst af stað? Ráddu mèr þá gátu.
Kristín: Það skal eg gjöra. Áðr enn eg fór að heiman dreymdi mig fyrir þessu, um það leyti sem eg var í þungum hugsunum um sáluhjálp mína. Mèr þótti eg sjá tvo menn standa við rúmið mitt, og vera að taka ráð sín saman, hvernig þeir ættu að fara að, að koma í veginn fyrir sáluhjálp mína. Þeir voru lifandi eftirmynd þessara manna. Eg skal segja þèr hvað þeir sögðu, því eg man það, eins og það hefði borið að í dag. Þeir sögðu: Hvað eigum við að gjöra við þessa konu? Hún æpir vakin og sofin um fyrirgefningu, og ef henni verðr leyft, að halda áframm eins og hún byrjaði, þá rekr að því, að við missum hana eins og manninn hennar. Þú sèrð nú, að þetta mátti vera mèr næg hugvekja, og hefði það átt að gjöra mig varkára, og þess vegna átti eg að búa mig út þegar nægan útbúnað var að fá.
Líkn: Eg sè það, að með þessari vanrækt er okkr gefið efni til þess, að hyggja betr að ófullkomlegleika okkar; og jafnframt hefir Drottinn okkar sýnt okkr með þessu atviki náðarnægð sína. Því hann hefir haft gætr á okkr, þó við ekki beiddum hann þess, og hefir náðarsamlega af eigin góðum vilja frelsað okkr frá þeirra höndum, sem voru okkr yfirsterkari.