Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

Þrettándi kafli

Efaborg og Örvænn risi

um 16 mín. lestur

Þeir fèlagar komu þessu næst að fögru fljóti, sem Davíð konungr kallar Guðs fljót, enn Johannes fljót lífsins vatns. (Sálm 65. 9; Opb. b. 22. 1; Ezek. 47. 1–9.) Vegr þeirra lá eftir fljótsbakkanum, og gengu þeir nú leið þessa í miklum fögnuði, drukku þeir vatnið úr fljótinu, og var það bæði sætt og svalandi fyrir hinn þreytta anda þeirra. Á bökkunum til beggja handa við fljótið uxu græn trè, og voru þau alsett hvers konar ávöxtum. Þeir átu blöðin af trjánum til þess að eyða klígju og öðrum kvillum, sem koma af æsíngi í blóðinu og mjög sækja að þeim, er í langferðum eru. Þá voru vallendis flatir beggja megin með fljótinu, vora þær alskreyttar liljum, og fagrgrænar allt árið í kring. Hèr lögðust þeir til svefns, því hèr var þeim óhætt að sofna. (Sálm 23. 2; Es. 14. 30.) Þegar þeir höfðu sofið um hríð, vöknuðu þeir, tíndu þeir ávöxtu af trjánum sèr til saðnings, og drukku úr fljótinu sèr til svölunar, og lögðust síðan niðr til svefns, lètu þannig berast hèr fyrir nokkura daga.

Sjá, hversu straumar silfrbjartir líða,Og svala mæddum vegfarendum hèr,Og blómskrýdd, anganfylda grundin fríðaÞeim færir hugnað! Hver sem kynnir sèrEn laufgu aldintrè um litla stund,Mun láta allt fyrir þessa sælu-grund.

Þegar þeir voru til að leggja aftr af stað, og halda ferð sinni áframm, sem enn þá var ekki meir enn hálfnuð, tóku þeir snæðing, og drukku vatnið sèr til svölunar, og lögðu af stað. Enn er þeir höfðu gengið um hríð, þótti mèr vegr og vatn stefna sitt í hvora átt um tíma; þeim þótti þetta leitt, enn þorðu þó ekki að fara út af veginum. Vegrinn gjörðist þar hrjóstugr, er hann lá frá fljótinu, enn fætr þeirra voru sárir af göngunni, svo að sálir pílagrímanna voru mjög armæddar sökum vegarins (4 Mós. b. 21. 4), og óskuðu þeir nú mjög, að vegrinn mætti batna. Nú mátti sjá skammt eitt fyrir framan þá, vinstra megin við veginn, flöt eina, og lá brú yfir um þangað frá veginum; flöt þessi hèt Afstigsflöt. Þegar þeir sáu flötina sagði Kristinn: Ef að þessi flöt liggr með framm veginum, þá skulum við fara yfir á hana. Gekk hann nú út á brúna, til að skyggnast um, og sá að vegr lá jafnhliða aðalveginum er þeir voru á, hinumegin við limgarð þann er flötina greindi og aðalveginn. Það er eins og mig grunaði, sagði Kristinn, þarna er miklu betri vegr, kondu, góði vin, við skulum fara þangað.

Vongóðr: Enn ef þessi gata leiðir okkr afvega?

Kristinn: Það er ekki líklegt, að svo fari. Sko, liggr hún ekki jafnfara veginum sem við komum? Vongóðr lèt sannfærast við orð vinar síns, og fór á eftir honum yfir brúna. Þegar þeir voru komnir á þessa götu, þótti þeim skifta til mikils batnaðar, því hún var bæði jöfn og þýð fyrir fætr þeirra. Nú sáu þeir, hvar maðr fór á undan þeim, hann var fótgangandi, eins og þeir, og nafn hans var Sjálfstrausti. Þeir kölluðu til hans, og spurðu, hvert þessi vegr lægi, hann svaraði: Til himnaríkis hliðsins. Á, sagði Kristinn, við vin sinn, hvað sagði eg þèr? nú sèrðu, að við erum á rèttri leið. Fóru nú hvorir tveggja leiðar sinnar, Sjálfstrausti á undan, enn þeir á eftir. Enn nótt datt á, og myrkr skall yfir, svo að þeir sem á eftir voru misstu sjónar á honum sem á undan fór.

Sjálfstrausti hèlt áframm leið sinni þó hann sæi ekki veginn; enn hann datt niðr í djúpa gryfju, er var á veginum og brotnaði í honum hvert bein. (Es. 9. 16.) Hafði eigandi þessarrar jarðar látið búa til gryfjuna til þess, að veiða í henni sjálfbyrgingslega gortara og hegómafífl.

Kristinn og fèlagi hans heyrðu, er Sjálfstrausti hrapaði; og kölluðu þeir til hans, og spurðu, hvað um væri að vera; enn þar var steinhljóð; þeir heyrðu að eins djúpar stunur. Þá sagði Vongóðr: Hvar erum við nú? Enn Kristinn þagði, og sárnaði honum mjög við sjálfan sig, að hafa tælt fèlaga sinn út af rèttum vegi; nú kom líka allt í einu úrhellis rigning, það tók að þruma og leiptra óskaplega; og vextir hlupu allt í einu í öll vötn.

Vongóðr andvarpaði með sjálfum sèr, og sagði: Ó að eg hefði haldið áframm minn veg.

Kristinn: Hver gat ímyndað sèr, að þessi gata lægi í aðra átt enn vegrinn?

Vongóðr: Mig uggði þetta, þegar í öndverðu, og þess vegna varaði eg þig við þessum vegi, þó eg færi hægt í það. Eg mundi hafa talað einarðlegar, ef þú hefðir ekki verið eldri enn eg.

Kristinn: Reiðstu mèr ekki, góði bróðir. Mèr þykir mjög leitt, að hafa farið með þig út af rèttum vegi, og steypt þèr í slíka hættu sem nú vofir yfir. Fyrirgefðu mèr það, bróðir minn, eg gjörði það ekki í neinu illu skyni.

Vongóðr: Vertu rólegr, bróðir, eg fyrirgef þèr; eg ímynda mèr, að þetta verði okkr til einhvers góðs.

Kristinn: Eg er svo hjartanlega glaðr af því, að eg hefi svo sáttgjarnan fèlaga með mèr. Enn ekki tjáir okkr að standa hèr. Við skulum reyna, að snúa við aftr.

Vongóðr: Enn láttu mig fara á undan, góði bróðir!

Kristinn: Nei, góðrinn minn, láttu mig fara á undan; því ef einhver hætta mætir okkr, þá á eg að lenda í henni fyrst, því mèr er það að kenna, að við fórum báðir út úr vegi og erum nú hèr.

Vongóðr: Nei, farðu ekki á undan; því það getr vel verið, að órói sá, er í þig er kominn, leiði þig afvega á nýja leik. Enn í þessu augnabliki heyrðu þeir rödd, er sagði: Láttu hjarta þitt halda sèr við aðalveginn, snúðu aftr á þann veg sem þú hefir farið (Jer. 31. 21); og óx þeim nýr þróttr við rödd þessa. Enn nú voru öll vötn í flugvexti, og var því mjög hættulegt fyrir þá að fara aftr hinn farna veg (og datt mèr í hug í draumnum, að hægra er að fara af veginum sem vèr erum á, enn að komast á veginn aftr þegar vèr erum farnir af honum). Þeir lögðu nú samt á tvær hættur, og fóru aftr sama veg og þeir höfðu komið; enn myrkr var mikið, og vötnin svo djúp, að við sjálft lá, einum níu eða tíu sinnum, að þeir færu í þau.

Hvað sem þeir tóku til bragðs, gátu þeir ekki fundið hliðið. Loks krupu þeir í skýli nokkurt, settust niðr, og ætluðu að bíða dags; enn með því, að þeir voru að þreyttir, duttu þeir út af og sofnuðu. Skammt þaðan, er þeir lágu, var virki eitt mikið, að nafni Efaborg; hèt sá Örvænn, er átti virki þetta, og var risi mikill; sváfu nú pílagrímarnir á hans lóð. Morgunin, eftir fór risinn snemma á fætr, gekk framm og aftr um landareign sína, og fann þá Kristinn og Vongóðan sofandi á lóð sinni. Kallaði hann nú á þá illúðlegri og grimdarfullri röddu, og beiddi þá vakna; spurði hann þá síðan, hvað manna þeir væri, og hvað þeir hefði að gjöra á sinni lóð. Þeir kváðust vera pílagrímar, og vera viltir. Þá kvað risinn þá hafa brotið rètt á sèr, er þèr hafið gengið yfir lóð mína, sagði hann, og lagst hèr til svefns, og skuluð þèr nú þess vegna koma með mèr. Þeir neyddust til að gjöra sem hann mælti, því hann var sterkari enn þeir. Þeir höfðu ekkert að bera í vænginn, sèr til afbötunar, því að þeir vissu vel, að þeir höfðu rangt gjört. Rak nú risinn þá á undan sèr inn í virki sitt, og setti þá í dýflissu; var hún bæði dimm og óþrifaleg og bauð þeim fèlögum mjög við henni. Þarna láu þeir frá því á miðvikudags morgun, þangað til á sunnudags kvöld; fengu þeir hvorki bita af brauði, nè nokkurn dropa að drekka allan þann tíma; aldrei sáu þeir ljós, og enginn vitaði um þá, til að spyrja hvernig þeim liði. Þeir láu hèr í djúpri eymd, og voru nú fjarri vinum og kunningjum. (Sálm 88. 18.) Í þessum eymdarstað sókti hálfu meiri harmr á Kristinn, enn áðr, því allr þessi ófagnaðr hlauzt af fljótræði hans.

Risinn var kvæntr; hèt kona hans Vantraust. Þegar þau voru háttuð, hjónin, sagði risinn konu sinni, hvað hann hefði gjört, að hann hefði tekið tvo menn fasta fyrir það, að þeir hefði í óleyfi farið inn á lóð sína. Spurði hann hana nú, hvað bezt mundi að taka til bragðs við þá frammvegis. Þá spurði hún hann, hvaða menn þetta væri, hvaðan þeir kæmi, og hvert þeir ætluðu, og sagði hann henni allt hið sanna. Hún gaf honum það ráð, að hann skyldi berja þá miskunnarlaust í fyrra málið, er hann kæmi á fætr. Þegar hann kom á fætr, fèkk hann sèr þungt barefli úr rótarhnyðju af viltum eplavið, og gekk niðr að dýflissunni til þeirra, og það fyrsta sem hann gjörði var það, að sveija þeim eins og hundum, og töluðu þeir þó ekki eitt einasta styggðaryrði við hann; og í sömu svifum þaut hann í þá, barði þá vægðarlaust, og gekk svo framm af þeim, að þeir hvorki voru sjálfbjarga, nè gátu einu sinni snúið sèr, þar sem þeir láu á gólfinu. Að þessu búnu fór hann frá þeim og lèt þá eina eftir í öngum þeirra; láu þeir nú þarna í djúpri hryggð yfir eymd sinni, og hörmuðu sárlega böl sitt. Um kvöldið tóku þau hjónin tal með sèr um fangana, og er konan heyrði, að þeir væri enn á lífi, gaf hún manni sínum það ráð, að fara til þeirra og eggja þá á að fyrirfara sjálfum sèr. Um morguninn fór hann til þeirra, og var eins styggr í bragði og fyrri, og er hann sá, hversu hart þeir voru haldnir, af höggum hans og barsmíð frá deginum áðr, sagði hann þeim, að hið eina úrræði, sem nú væri fyrir þá, væri það, að taka sig sjálfir af lífi, því engar líkur væri til, að þeir nokkurn tíma kæmist hèðan; og gætu þeir ráðið sèr bana, annaðhvort með hníf, hengingaról eða eitri; því að, hvað vilið þið með lífið, sagði hann, úr því að það er svo frábærlega beiskjuborið? Enn þeir beiddu hann láta sig lausa. Þá gaut hann illilegum augum til þeirra, og stökk á þá; og mundi efalaust hafa ráðið þeim bana sjálfr, ef hann hefði ekki í sama vetfangi fengið taugateygju-flog, svo hann gat ekki neytt handa sinna; hann fær köst þessi stundum í sólskini og góðviðri; við þetta atvik hörfaði hann undan, og lèt þá eftir eina, til þess að hugsa um hvað til ráða mundi bezt að taka. Nú fóru bandingjar að ráðgast sín á milli um það, hvað bezt mundi til úrræða, hvort þeir ætti að fara að ráðum hans eða ekki; og tóku nú þannig tal með sèr um þetta efni.

Kristinn: Heyrðu, bróðir, hvað eigum við að gjöra? Þetta líf okkar er ekki annað enn eymdin sjálf, og veit eg, satt að segja, ekki hvort betra er, að lifa lengr eða deyja þegar í stað. Sál mína fýsir að kafna heldr enn að lifa, og gröfin er mèr lettbærari enn prísund þessi. (Job 7. 15.) Eigum við að fara að ráði risans?

Vongóðr: Mála sannast er það, að nú eru kjör vor óbærileg, og dauðinn mundi verða mèr miklu kærkomnari enn líf við þessa eymd alla daga. Enn gætum eins: Drottinn lands þessa hefir sagt: Þú skalt ekki mann vega. Enn úr því oss er bannað að vega að öðrum, þá er oss um leið bannað að þekkjast ráð hans og vega að sjálfum oss. Þar að auki er þess að gæta, að sá, sem vegr annan mann, sviftir hann að eins líkamans lífi; enn sá sem myrðir sjálfan sig, týnir lífi líkama og sálar undir eins. Þú talar, bróðir minn, um værð í gröfinni, enn hefirðu gleymt helvíti, samastað morðingjanna? “Því enginn morðingi öðlast Guðsríki.” Við skulum muna eftir því, að risi þessi hefir ekkert allsherjar vald við að styðjast; ef mig minnir rètt, þá hafa fleiri enn við komizt í klær honum, og þó síðan gengið honum úr greipum. Hver veit nema að Guð, skapari heimsins, sjái svo um, að risi þessi deyi, eða að hann gleymi einhvern tíma að loka af, eða hann fái einhvern tíma aftr taugateygju-flog, svo hann geti ekki neytt handa sinna. Ef þetta síðast talda skyldi bera að hendi, þá hefi eg ásett mèr, að neyta karlmennsku og áræðis, og gjöra mitt hið ýtrasta til þess, að sleppa frá honum, og heimskr var eg, að reyna það ekki fyr. Enn hvað sem um það er, skulum við reyna, góði bróðir, að gjörast þrautgóðir, og standast með þolgæði nokkra stund enn þá; sá tími getr komið, er vèr frelsumst farsællega; og skulum vèr forðast að leggja drápshönd á líf vort. Með þessum orðum fèkk Vongóðr sefað ofsa bróður síns, og sátu þeir við illt viðrværi þann dag allan til kvölds í hinni dimmu prísund.

Um kvöldið gekk risinn niðr að dýflissu sinni, til þess, að gæta að, hvort bandingjar hefði farið að ráði sínu. Enn er hann kom þangað, fann hann þá á lífi aðeins; meira mátti það ekki heita, enn að þeir væru á lífi; því þeir gátu lítið meira enn dregið andann, og dróg til þessa skortr bæði á mat og drykk, og svo líka hin mörgu sár, er þeir höfðu fengið af barsmíð hans. Enn hann fann þá á lífi, eins og fyrr segir, og varð afar reiðr, og kvaðst mundu láta þá kenna svo harðlega á óhlýðni sinni, að þeir mættu óska sèr, að hafa aldrei fæðzt.

Þegar þeir heyrðu þessa hótun, titruðu þeir, og skulfu, og eg ætla að Kristinn liði í öngvit. Enn er þeir höfðu jafnað sig, og voru komnir til sjálfs sín aftr, tóku þeir að ráðgast um, hvort þeir ættu að hlíta ráði risa eða ekki. Kristinn var nú aftr á því, að ráða sèr bana, enn þá svaraði Vongóðr honum þannig:

Heyrðu góði bróðir, ertu búinn að gleyma, hvað hraustr þú hefir verið að undanförnu? Apollyon gat ekki gjört út af við þig, nè heldr öll þau fyrn og undr er þú sást og heyrðir í Skuggadal dauðans. Hvílíkum þrautum, skelfingum og undrum hefir þú ekki mætt? og þó sinnir þú nú engu nema ógn og kvíða. Þú sèrð, að eg er líka í dýflissu með þèr, og er eg þó töluvert veikari maðr fyrir enn þú. Risi þessi hefir sært mig fullt eins mikið og þig; hann hefir synjað mèr um mat og drykk eins og þèr, og hèr er eg og samhryggist þèr í myrkrinu. Enn örvæntum ekki; æfum okkr dálítið enn þá í þolinmæði. Mundu eftir hversu karlmannlega þú barst þig í Hègómaborg; þar varstu hvorki hræddr við fjötra, nè dýflissu nè blöðugan dauða. Við skulum berast af þolinmóðlega, og svo vel, sem okkr er unt, að minnsta kosti til þess, að firrast þá minnkun, sem óhæfa er hverjum Kristnum manni.

Þegar kvöld var komið, og þau voru háttuð hjónin, risinn og kona hans, spurði hún hann, hvort bandingjarnir hefði farið að ráði hans, og svaraði hann: Þeir eru þrjózkir bófar, og vilja heldr sæta öllum pínslum, enn ráða sjálfum sèr bana. Þá sagði konan: Farðu á morgun með þá inn í virkisgarðinn, og sýndu þeim beinagrindrnar og hauskúpurnar af þeim, sem þú hefir þegar sent til heljar; og láttu þá skilja, að þú munir innan viku rífa þá í sundr eins og þá, er á undan þeim eru farnir.

Morguninn eftir kom risi enn einu sinni til þeirra, og fór með þá inn í virkisgarðinn, eins og kona hans rèð honum, og sýndi þeim hann. Þetta voru einu sinni pílagrímar, eins og þið eruð nú, sagði hann, og þeir fóru í leyfisleysi inn á landareign mína, eins og þið gjörðuð. Þegar minn tími var kominn, og mèr þótti það eiga við, reif eg þá í sundr þarna; eins ætla eg að fara með ykkr eftir tíu daga: farið þið nú niðr í svartholið ykkar aftr. Að svo mæltu rak hann þá með höggum alla leið til svartholsins. Nú láu þeir allan laugardaginn við grátlega bágan kost eins og fyr. Þegar kvöld var komið, og þau voru komin í rekkju, húsfreyja Vantraust og bóndi hennar, risinn, tóku þau mál með sèr um fanga sína; gjörði hinn gamli jötunn einkum orð á því, að enginn vegr væri til þess, að fyrir koma þessum föngum hvorki með barsmíð nè brögðum. Þá svaraði kona hans: Eg er hrædd um, heillin mín, að þeir lifi við vonina um það, að einhver komi og líkni þeim; eða, að þeir hafi hjá sèr tól til að stinga upp skrár með, og geti með því móti flúið á brottu. Heldrðu það, gæzka? sagði risinn; jeg ætla að gjöra gangskör að því á morgun.

Laugardagsnóttina hèr um bil um miðnætti lögðust bandingjar á bænir, og báðust fyrir framm undir aftrelding.

Rètt fyrir dögun hófst Kristinn allt í einu upp úr eins manns hljóði, og sagði í fjörglöðum ákafa: Mikill dæmalaus heimskingi er eg, að liggja hèr í viðbjóðslegri dýflissu, þar sem eg þó get farið ferða minna frjáls hvert er eg vil. Eg ber á brjóstinu lykilinn góða, er Fyrirheiti nefnist, sem gengr að hverri skrá í Efavirki.—Tarna voru betri frèttirnar, mælti Vongóðr, dragðu hann út, góði bróðir, úr barmi þínum og reyndu, hvort hann gengr að skránni hèrna?

Kristinn bar lykilinn að dýflissuskránni og sneri honum við, og hljóp þá læsingar járnið frá, og hurðin gekk upp fyrirhafnarlaust og Kristinn og Vongóðr komust út hvor með öðrum. Þessu næst komu þeir að útidyrunum, er ganga að virkisgarðinum og opnaði Kristinn þær líka með lykli sínum. Þessu næst bar þá að járnhliðinu sem líka verðr að opna; sú skrá, er þar var fyrir, var ákaflega harðlæst, enn þó fengu þeir opnað hliðið. Hrundu þeir nú hliðinu upp á gátt, og hlupu hið bráðasta á brottu. Enn er hliðið gekk upp, brakaði svo í hjörunum, að risinn vaknaði við; rauk hann í ofboði á fætr til þess, að elta bandingja sína, enn þá biluðu hann allt í einu fætr hans, því hann fèkk sinadráttarflog, svo hann gát með engu móti veitt þeim eftirför. Fóru þeir fèlagar nú leiðar sinnar, og komu aftr á alfaraveg konúngsins, og var þeim nú vel borgið, með því þeir voru út úr þinghá hins illa risa.

Þegar þeir voru búnir að klifrast yfir hliðið, fóru þeir að bera ráð sín saman um það, hvaða mark þeir ættu að búa til á hlið þetta, til þess, að vara pílagríma, þá er kæmu á eftir þeim, við að lenda ekki í höndum risa þessa. Kom þeim þá saman um, að reisa þar vörðu, og setja á hana þetta letr: Yfir þetta hlið klifra menn til Efavirkis; ræðr þar fyrir risi nokkur að nafni Örvænn, fyrirlítr konung hins himneska ríkis, og leitast við, að tortýna lífi hinna helgu pílagríma hans. Margir af þeim, er seinna komu, lásu orð þessi og flýðu því hættuna. Þegar þeir felagar höfðu lokið vörðusmíðinu, sungu þeir þannig:

Af leið hèr fórum villir vèr,Enn vonum bráðar máttum sanna,Hve föru-mönnum fárlegt erHinn fyrirbona stig að kanna.Hver sem hèr fer um farinn vegSkal forðast út úr leið að víkja;Því Örvílnan þann ægilegOg efi mun í varðhald svíkja.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

13. kafli af 31 · 16 mín. eftirEfaborg og Örvænn risi