Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

24. kafli

Dalirnir og Hamar risi

um 20 mín. lestur

Nú þótti mèr þau halda áframm, þangað til þau komu framm á fjallsbrúnina; þegar þar var komið nam Guðhrædd allt í einu staðar, og hugsaði sig fyrst lengi um og mælti síðan: Mikil vandræði eru nú þetta; eg hefi gleymt heima því sem eg ætlaði að gefa Kristínu og förunautum hennar. Eg hleyp heim aftr og sæki það; og með það hljóp hún heim til að sækja það.

Meðan hún var burtu virtist Kristínu hún heyra í lundi þar nærri þeim til hægri handar undarlega sætan söng, heyrði hún orðin og voru þau á þessa leið:

Gefins mèr lífs um árin öllElsku þú lèzt í tè:Svo mèr dvölin í himna höllHeimil um eilífð sè.

Þegar hún hafði heyrt þessi orð, heyrði hún svar til þeirra á þessa leið:

Já Drottinn Guð vor góðr er,Hans gæzku sjám margfalda;Af ljósi hans sannleiks birtu berSem breyta ei aldir alda.

Nú spurði Kristín Forsjá hver syngi svo undarlega. (Lofkv. 2. 11, 12.) Þetta eru fuglarnir sem eiga hèr heima. Þeir syngja þannig, enn sjaldgæft er það, nema á vorin, þegar blómin eru sprottin og sólarhiti er mikill; enn þá syngja þeir allan daginn. Eg fer oft út til þess, að hlusta á þá; stundum höfum við þá heima í húsinu eins og aðra manngæfa fugla. Okkr þykir gaman að hafa þá hjá okkr þegar illa liggr á okkr, og mönnum þykir gaman að vera úti í skógum og lundum og rjóðrum til að hlusta á þá.

Nú kom Guðhrædd aftr, og mælti við Kristínu: Sko, eg fór og sókti handa þèr lista yfir allt sem þú hefir sèð hjá okkr, og getr þú leitað í honum, ef þú gleymir einhverju og rifjað þetta allt upp fyrir þèr, þèr til fróðleiks og huggunar.

Nú fóru þær að fara niðr fjallið, niðr í Niðrlægingardal. Fjallið var bratt, og vegrinn háll, enn þau fóru hægt og gætilega og komust niðr með öllu heilu og höldnu. Þegar þau voru komin niðr í dalinn, mælti Guðhrædd við Kristínu: Hèr var það, að maðrinn þinn mætti hinum leiða fjanda Apollyon, og átti hinn ógurlega bardaga við hann. Eg veit þú hefir heyrt getið um það. Enn vertu óhrædd. Meðan herra Hugprúðr fer á undan, er vonandi að þú sleppir betr enn hann gjörði. Þegar nú Forsjá og Guðhrædd höfðu falið pílagrímana leiðsögumanni þeirra, sneru þær aftr, enn hann hèlt áframm og Kristín fór á eftir með föruneyti sínu.

Nú mælti Hugprúðr þannig við þau: Við þurfum ekki að óttast neitt í dal þessum; því hèr er ekkert á ferð, sem getr unnið oss tjón nema vèr bökum oss það sjálf. Satt er það reyndar, að Kristinn mætti Apollyon hèr, og átti við hann harðan bardaga og hættan, enn sú armæða var ávöxtrinn af því, að hann skrikaði út af veginum, meðan hann var að komast ofan fjallið; því að þeir, sem fótr skrikar þar, verða að búast við baráttu hèr. Þess vegna er það, að dalrinn hefir fengið svo illt orð á sig. Því að þegar almenningr heyrir getið um, að einhver hafi orðið fyrir óttalegu atviki á einhverjum stað, þá halda menn, að þar sè fullt af fjöndum og forynjum; og þó er það, viti menn, sem mennirnir hafa ratað í, ekkert annað, enn bein afleiðing af þeirra eigin yfirsjónum. Niðrlægingardalr er allt eins fullr af blessun Drottins, eins og hver annar blettr á þessari jörð er fugl flýgr yfir, og eg er viss um það, að ef við gætum fundið hinn rètta stað, þá mundum við sjá einhvers staðar hèr í kring merki til þess, að sýna okkr, hvers vegna Kristinn varð svo hart leikinn.

Í þessu kallaði Jakob til móður sinnar og mælti: Sko, þarna er súla eða varða, og er eins og eitthvað sè ritað á hana. Við skulum koma og vita hvað það er. Þau fóru nú öll þangað, og lásu letrið á vörðunni og hljóðaði það þannig: Látið þið, sem komið á eftir Kristni, fótaskrik hans og bardaga verða ykkr að varnaði.—Á, sagði Hugprúðr, hvað sagði eg ekki? að þið munduð finna hèr einhvers staðar tilgreint, hvað til þess kom, að Kristinn varð svo hart leikinn á þessum stað. Því næst sneri hann sèr til Kristínar og mælti: Það var ekki Kristni meiri vansi enn svo mörgum öðrum, sem hafa orðið fyrir sömu hrösunum. Því að það er hægra, að fara upp þetta fjall enn ofan, og eru það fá fjöll um þessar slóðir, sem svo eru gjörð. Enn við skulum lofa hinum góða manni að hvíla í friði; hann hvílist nú vært og vann þar að auki frægan sigr yfir óvin sínum. Gefi hann, sem í hæðunum ríkir, að okkr farnist eins vel, þegar til dómsins kemr, eins og Kristni.

Enn svo að eg hverfi nú aftr til Niðrlægingardals, þá er það um hann að segja, að hann er einhver langfrjófsamasti landshluti hèr um slóðir. Jarðvegrinn er feitr og mest-megnis valllendi. Á sumrin er dalr þessi næsta fagr, og mundi hverjum þeim, er ekki hefði sèð hann fyrr, finnast allmikið um náttúrufegrðina hèr, ef honum þætti gaman að fríðu landi og fögru viðsýni. Sko, hversu fagr þessi dalr er, og alskreyttr unaðlegum liljum. (Lofkv. 2, 1.) Eg þekki marga daglaunamenn, er hafa eignast ágætar jarðir í dal þessum, því Guð mótstendr dramblátum, enn lítillátum gefr hann náð. (Jak. 4. 6; 1 Pet. 5. 5.) Það er í sannleika frjófsamr jarðvegr og launar vel yrkjuna. Sumir hafa líka óskað, að hèr væri næsti vegr til heimkynna Föðursins, svo að þeir þyrfti aldrei framar að brjótast yfir fjöll og fyrnindi; enn það tjáir ekki um það að tala; vegrinn liggr þar sem hann er lagðr.

Þannig hèldu þau nú áframm og ræddust við, unz þau mættu smaladreng, sem gætti hjarðar föður síns. Hann var ofr fátæklega klæddr, enn upplitsfríðr og sviphreinn. Hann hafði það sèr að skemmtun í einverunni að syngja. Og er Hugprúðr heyrði rödd hans, mælti hann: Heyrið þið, hvað smaladrengrinn syngr. Allir stóðu við og hlustuðu:

Aldri við falli þeim fallna er hætt,Fáráða drambið ei veiðir;Ávalt fær Guð minn hins auðmjúka gætt,Ávalt hans vegferil greiðir.

Ánægðr læt eg mèr lynda hvað hef,Lítið hvort er eða mikið;Ánægju, Drottinn minn, ávalt mèr gef!Er mèr til sælu þá víkið.

Þeim sem að pílagríms æfikjör áOfgnægð er byrði hin mesta;Enn auðs sakna hèr, og á síðan að fáSælu, er hlutskiftið bezta.

Þá mælti fylgdarmaðr þeirra: Heyrið þið? Eg þori að segja, að þessi drengr lifir glaðara lífi, og að í hans brjósti þróast betr hið dýrmæta blóm glaðværs áhyggjuleysis, enn í brjóstum þeirra, sem klæddir eru pelli og purpura.

Enn við skulum ekki láta þetta draga okkr frá efninu. Í þessum dal átti konungr vor, að fornu fari, landbústað einn, og var hann mjög elskr að þessu hèraði. Einkum undi hann við það, að ganga um valllendis grundirnar, því að loptslagið var svo heilnæmt. Enda geta menn og losast hèr við glaum og skarkala lífsins. Allir bæir eru fullir óróa, enn Niðrlægingardalr er vær og hljóðr. Hèr hafa menn næði og geta hugsað, án þess að verða truflaðir; það fæst ekki annars staðar. Í þessum dal eru engir aðrir á ferð, enn þeir, sem unna pílagrímsferðum. Þó að Kristinn yrði fyrir þeim hörðu örlögum að mæta Apollyon hèr og berjast við hann, þá skal eg geta þess, að á fyrri dögum hafa menn mætt hèr englum (Hós. 12. 4, 5); þeir hafa fundið hèr dýrmætar perlur (Math. 13. 46), og heyrt hèr orð lífsins. (Orðskv. 8. 35.)

Sagði eg ykkr ekki, að konungrinn hefði átt hèr skemmtigarð og hefði unað vel við að ganga hèr skemmtigöngur? Eg verð að bæta því við sögu mína, að hann hefir áskilið þeim mönnum, sem elska þessar grundir og leggja í vana sinn að ganga um þær, árleg laun, sem þeim eru borguð á vissum tímum; er þeim veitt fè þetta til viðrværis á veginum og til þess, að hvetja þá því heldr að halda áframm pílagrímsferð sinni.

Þegar þau höfðu nú gengið um hríð sneri Samúel sèr að Hugprúð og mælti: Herra minn, mèr skilst að faðir minn og Apollyon hafi barizt í dal þessum, enn getið þèr sagt mèr hvar bardaginn stóð? Því dalrinn er svo stór.

Hugprúðr: Þeir börðust þarna í þrengslunum frammundan okkr, hinumegin við Gleymskuvelli. Sá staðr er hinn lang-hættulegasti hèr um slóðir. Því að ef pílagrímar rata nokkurn tíma í ófærur, þá er það vegna þess, að þeir hafa gleymt þeirri náð, er þeir hafa þegið, og hversu óverðugir þeir voru fyrir hana. Á þessum stað hafa og margir aðrir orðið hart úti. Enn eg skal fræða ykkr betr um staðinn þegar við komum þangað; því eg ímynda mèr, að enn þá megi sjá annaðhvort vegs ummerki eftir bardagann, eða að einhver minnisvarði sè reistr þar, til vitnis um það, að bardaginn hafi verið háðr.

Þá mælti Líkn: Eg held eg hafi aldrei alla leiðina unað hag mínum betr enn síðan eg kom í þenna dal; hann á svo vel við mig. Eg uni mèr bezt þar sem ekki heyrist neitt vagna skrölt nè hjóla glamm. Mèr finnst menn geti hèr hugleitt í kyrð og ró hvað þeir eru, hvaðan þeir koma, hvað þeir hafa gjört og til hvers konungr þeirra kallar þá. Hèr getr andinn notið sín, hjartað viknað og bráðnað og augun orðið sem fiskivötnin í Hesbon. (Lofkv. 7. 4.) Þeir sem rèttlátir ferðast um þenna táradal, gjöra hann að uppsprettu, og regnið sem Guð sendir frá himnum yfir þá sem hèr búa fyllir einnig tjarnirnar. Þessi er dalrinn þar sem Drottinn mun gefa sínum lýð víngarðana og þeir sem fara um hann skulu syngja glaðværir eins og Kristinn eftir alla hættuna sem hann rataði í við Apollyon. (Sálm 84. 5–7; Hós. 2. 15.)

Hugprúðr: Það er mála sannast, að eg hefi oft farið um þenna dal, enn hvergi uni eg mèr eins vel eins og hèr. Eg hefi líka verið fylgdarmaðr ýmissa pílagríma og hafa þeir allir sagt hið sama. Eg vil renna augum mínum til hins volaða, segir konungrinn, til þess sem hefir harmsfullt hjarta, til þess, sem óttast mín orð. (Es. 66. 2.)

Nú voru þau komin þangað, er þeir börðust, Kristinn og Apollyon. Þá mælti Hugprúðr: Þetta er staðrinn; á þessum velli stóð Kristinn enn Apollyon kom þarna að neðan móti honum; hvað sagði eg ykkur? Sko, Kristín, hèr má enn þá sjá blóð mannsins þíns á steinunum; ef þið gætið að, þá má sjá enn þá hèr og hvar um völlinn brot af skeytum Apollyons; og að jörðin hefir gengið upp undan fótum þeirra, er þeir spornuðu hana, og þarna sjáið þið grjótmulið eftir höggvopnin, þegar þeir misstu hvor annars. Kristinn barðist sannarlega með miklum drengskap, og hefði Herkúles sjálfr ekki getað gengið rammlegar framm. Þegar Apollyon hafði beðið lægra hlut, lèt hann síga undan niðr í næsta dal, sem kallaðr er Dauðans-skugga-dalr, og komum við bráðum þangað. Sjáið þið, þarna er reistr varði, og er grafið á hann letr, sem greinir frá bardaganum og sigri Kristins, og mun það halda á lofti frægð hans um allar aldir. Varði þessi stóð fast við veginn fyrir framan þau, og gengu þau nú öll þangað og lásu letrið, og var það þannig orð fyrir orð:

Sjá, ferlegrar orrustu er þetta svið—Og inni eg viðburð þann sannan—Því Kristinn og Apollyon áttust hèr við,Og ætluðu að sigra hvor annan.

Enn fjandanum hraustmennið framri með lundÁ flótta gat vikið um síðir;Og vitni þess stend eg hèr varði á grundOg vottr um ókomnar tíðir.

Eftir þenna dal tók við Dauðans-skugga-dalr. Þessi dalr var lengri, enn hinn. Þar er nægst af öllu illu, forynjum og öðru því um líku, og eru margir til frásagna um það. Enn Kristínu og föruneyti hennar gekk ferðin allvel, því að bæði höfðu þau dagsbirtuna og Hugprúðr fór á undan.

Þegar þau komu í dalmynnið, virtist þeim sem stunur deyjandi manna bærust þeim til eyrna, og voru stunur þessar þungar næsta. Þeim virtist líka þau heyra kvalaraddir manna, og orð, er mælt væru í ýtrustu harmkvælum. Þegar drengirnir heyrðu þetta, tóku þeir að titra, og konurnar urðu náfölar og bleikar af hræðslu. Enn Hugprúðr hughreysti þær og beiddi þær að láta ekki á sig fá.

Þegar þau höfðu gengið enn þá um hríð, virtist þeim sem jörðin skjálfa undir fótum sèr, eins og holt væri undir niðri; þau heyrðu, að hvíslandi raddir voru einhverstaðar ekki langt frá þeim, líkt og höggorma blístr, enn ekkert sást enn þá. Drengirnir urðu óróir, og mæltu: Erum við ekki bráðum komnir út úr þessum hörmungadal? Enn Hugprúðr beiddi þá að hressa upp hugann, og gæta vandlega að, hvar þeir stigju til fæti; því annars kynni þeir að verða fastir í einhverri snörunni.

Nú varð Jakobi illt, líklega af hræðslu. Enn móðir hans gaf honum að drekka úr vínflöskunni, sem Fræðari hafði gefið henni, og síðan gaf hún honum einn skammt af læknis lyf þeirri, er herra Hæfr hafði búið til fyrir hana; og við það hresstist hann. Þegar þau voru komin hèr um bil miðja vega í dalinn, mælti Kristín: Mèr sýnist eg sjá eitthvað þarna á veginum framm undan okkr; og er það eitthvað annarlegt, því eg hefi aldrei sèð þess líki fyr. Þá varð Jósef hræddr og sagði: Æ, hvað er það, móðir mín? Einhver ófreskja, sonr minn, sagði hún. Enn hverju er það líkt, móðir mín? Það er líkt, eg veit ekki hverju, og nú er það hèrna rètt skammt frá okkr; og nú er það komið næstum fast að okkr.

Hugprúðr mælti: Komið þið, sem hrædd eruð, fast að mèr. Nú kom óvættr þessi nær, og fylgdarmaðr Kristínar mætti henni, enn í sama augabragði og Hugprúðr mætti henni, hvarf hún og sást eigi framar. Þá minntust þau þess, er skrifað er: Veitið djöflinum viðnám og mun hann flýja yðr. (Jak. 4. 7.)

Við þetta lètti þeim öllum, og hèldu þau nú áframm. Enn er þau höfðu haldið áframm litla stund varð Líkn litið aftr, og sá hún þá á eftir sèr koma eitthvað í ljóns líki, og stikaði stórum; öskraði ókind þessi með dimmu orgi, og gall hvert öskr við í öllum dalnum, og hjörtu pílagrímanna titruðu af ótta. Hugprúðr var sá eini, er brá hvergi. Þegar óskepnan nálgaðist, lèt Hugprúðr alla pílagrímana fara framm fyrir sig, enn varð sjálfr aftastr. Þegar nú ljónið var komið nærri því fast að þeim, bjóst Hugprúðr til bardaga við það. (1 Pet. 5. 8, 9.) Enn er það sá, að hèr var einbeittri mótstöðu að mæta, snautaði það undan og sást ekki úr því.

Nú fór Hugprúðr framm fyrir pílagrímana aftr, og hèldu þeir áframm, unz þeir komu þar að, er díki mikið varð fyrir þeim; tók það yfir allan veginn, eins og hann var breiðr; bjuggust nú pílagrímarnir, að komast yfir um díki þetta, enn þá skall yfir þoka og niðmyrkr, svo að þeir sáu ekki veginn frá sèr. Þá urðu pílagrímarnir skelfdir og æptu upp: Æ, hvað eigum við nú að gjöra? Enn fylgdarmaðr þeirra svaraði og sagði: Ottizt ekki; bíðið við, og sjáið hvernig allt ræðst. Nú stóðu allir kyrrir, því vegrinn var þeim lokaðr. Enn á meðan þeir stóðu við, virtist pílagrímunum þeir heyra enn glöggvar enn áðr ys og þys óvinanna, og gátu nú enn betr greint eldinn í díkinu og reykinn, er lagði upp af honum. Þá varð Kristínu að orði: Nú sè eg, Líkn, hvað maðrinn minn varð að ganga gegnum. Eg hefi heyrt mikið og margt sagt um stað þenna, enn aldrei komið hèr fyr. Hann ferðaðist hèr einmana á nætrþeli, vesall maðr; náttmyrkr grúfði yfir honum nærri því alla leiðina, og óvinirnir, sem nú þjóta í kringum okkr, lètu hann aldrei í friði, og var honum sem þeir mundu rífa hann í sundr á hverri stundu. Margir hafa talað um Dauðans-skugga-dal, enn enginn þeirra veit, hvað þetta nafn þýðir, fyr enn þeir hafa verið hèr. Hjartað þekkir eigin beiskju og í þess fögnuð getr enginn óviðkomandi blandað sèr. (Orðskv. 14. 10.) Enn að vera hèr er óttaleg dvöl.

Hugprúðr: Það er eins og að eiga við ófær vötn, eða að ferðast á mararbotni. Það er eins og fara niðr á sjáfar botn, eða steypa sèr af tindum ofan niðr í iðr jarðarinnar; því nú stöndum við hèr, eins og jörðin væri búin að svelgja oss að fullu og öllu. Enn sá, sem í myrkrunum gengr og sèr enga skímu, treysti á nafn Drottins, og reiði sig á Guð sinn. Eg hefi oft farið um dal þenna, eins og eg hefi áðr sagt ykkr, og oft komizt hèr í meiri kröggur enn nú, og þó sjáið þið, að eg er lífs enn þá og heill heilsu. Eg segi þetta ekki af stærilæti; því eg er ekki minn eiginn frelsari, heldr vegna þess, að eg býzt við, að við munum frelsast hèðan með góðu. Komum, biðjum Hann um ljós, sem máttugr er að snúa myrkri voru í ljós, er megnar að snúa á flótta ekki að eins þessum óvinum heldr öllum helvítis árum.

Nú báðu þeir til Guðs; og hann sendi þeim ljós og lausn; því að þar sem áðr vall hið voðalega díki var nú slètt gata. Enn þau voru nú ekki komin úr dalnum fyrir þetta. Því þegar þau höfðu haldið áframm um hríð, lagði móti þeim leiðr ódaun eg hin versta fýla. Þá mælti Líkn: Það er mikill munr á að vera hèr, eða þar, sem við höfum áðr gist.

Já, sagði einn af drengjunum, enn hvað er það þó, að fara hèr um, hjá því, að búa hèr að staðaldri? Við erum látin fara þessa leið til hins fyrirheitna bústaðar, ímynda eg mèr, til þess, að við verðum honum því fegnari þegar þangað er komið.

Það var fallega sagt, Samúel, mælti Hugprúðr; nú hefir þú talað eins og manni hæfir. Já, eg segi fyrir mig, mælti drengrinn, ef mèr auðnast nokkuru sinni að komast út hèðan, þá skal eg verða fegnari góðum vegi enn eg hefi verið nokkuru sinni fyrr. Hugprúðr mælti: Við komumst nú út hèðan smám saman.

Þegar þau höfðu nú enn farið um tíma, mælti Jósef: Sèst ekki enn þá fyrir endan á dalnum? Hugprúðr svaraði: Hafið gát á fótum ykkar, því bráðum komum við inn í snörurnar. Þau gjörðu svo, og hèldu áframm, enn varð all-torgengt, vegna snaranna. Á snöru-vegi þessum sáu þau hvar maðr nokkur lá til vinstri handar við götuna; lá hann þar niðri í djúpri gryfju, og var allt hold hans sundr marið og kramið. Þá mælti Hugprúðr: Þarna liggr Ógætinn; hann var hèr á ferð, og hefir legið þarna langan tíma. Aðgætinn var með honum, þegar hann var tekinn og laminn svo hörmulega eins og hann ber með sèr, enn Aðgætinn slapp úr höndum óvinanna. Þið getið ekki ímyndað yðr, hversu margir hèr eru vegnir, og þó leggja menn í pílagrímsferðir eins og ekkert sè í húfi, og fara hèr um fylgdarlaust. Vesalings Kristinn! Það var öll furða, að hann skyldi komast klakklaust af hèr; enn Guð elskaði hann, og var með honum; hann var líka vel hugaðr, því ella hefði hann aldrei lagt ferðina upp. Nú voru þeir komnir á vegar enda, þangað sem Kristinn sá hellinn, er hann var hèr á ferð. Þegar Hugprúðr og föruneyti hans kom að hellinum, gekk út úr honum risi einn móti þeim að nafni Hamar.

Það var venja risa þessa, að spilla ungum pílagrímum með því, að rangsnúa sannleikanum með sèrvizkulegum viðræðum, og að spyrja þá í þaula. Hann kallaði á Hugprúð, og nefndi hann með nafni, og sagði: Hvað er oft búið að leggja forboð fyrir þig að gjöra þetta? Hvað þá? svaraði Hugprúðr. Hvað þá? kvað risinn við, þú veizt, hvað eg á við, enn eg skal nú gjöra enda á atvinnu þinni.

Má eg biðja þig eins, sagði Hugprúðr, að láta mig vita, áðr enn að því rekr að við berjumst, hvers vegna við eigum að berjast? Konurnar og börnin tóku að skjálfa af ótta, og vissu ekki hvað þau áttu að gjöra af sèr. Enn risinn svaraði: Þú ferð um landið með ránskap, og fremr þjófnað, sem verstr er alls þjófnaðar. Þetta er nú sagt undan og ofan af, svaraði Hugprúðr, enn færðu til dæmi, ef þú getr.

Þú fremr manna þjófnað, þú safnar konum og börnum, og ferð með þau inn í ókunnugt land, til þess, að veikja ríki konungs míns. Hugprúðr svaraði: Eg er þjónn Guðs míns í himninum; starf mitt er að leiða syndara til iðrunar; mèr er boðið, að leggja allt kapp á að snúa mönnum, börnum og konum frá myrkrinu til ljóssins, og frá valdi Satans til Guðs; og ef þèr þykir þetta ástæða til þess, að eiga bardaga við mig, þá berjumst. Eg er til þegar þú vilt.

Hamar gekk nú framm, og Hugprúðr fór móti honum; hafði hann brugðið sverð í hendi, enn risinn kylfu; lögðu þeir jafnskjótt til einvígis, og fèkk risinn komið Hugprúðum á annað hnèð, þegar við fyrsta högg. Þegar konurnar sáu það, æptu þær upp í ofboði. Enn Hugprúðr spratt upp jafn skjótt, og hjó svo títt, að ekki festi auga á, og særði nú risann í handlegginn. Þeir börðust hèr um bil eina stund, og svo snarplega sóktust þeir á, að blástrinn úr nösum risans var eins og gufa úr vellandi katli.

Eftir það gjörðu þeir hlè á sókninni, og settust niðr að hvíla sig, enn Hugprúðr bænaði sig. Konurnar og börnin gjörðu ekki annað enn andvarpa og gráta, alltaf meðan stóð á bardaganum.

Þegar þeir höfðu kastað mæðinni, hófu þeir einvígið að nýju, og lagði Hugprúðr nú risann til jarðar með einu höggi. Hann orgaði þá upp og mælti: Nei, nei, láttu mig komast á fætr aftr. Hugprúðr var svo drenglyndr, að hann leyfði honum það; komst hinn á fætr, og lögðu þeir til bardaga að nýju, og í þeirri atrennu vantaði lítið á, að risinn hefði hæft Hugprúð í höfuðið með kylfu sinni.

Enn Hugprúðr vatt sèr undan högginu, og renndi í vígamóð miklum að risanum og hjó til hans, kom lagið á síðuna, og rendi inn á milli rifjanna á hol. Nú dróg brátt af risanum, og gat hann naumlega loftað kylfunni, enn Hugprúðr hjó til hans aftr, og tók af höfuðið við herðarnar. Þá glöddust konurnar og börnin, og Hugprúðr lofaði Guð fyrir það, að honum hafði unnizt, að gjöra slíka landhreinsun.

Að afloknum bardaganum reistu þau upp vörðu, og festu höfuð risans ofan á hana, og rituðu minnis letr meðan undir, svo að aðrir pílagrímar gætu lesið það:

Af honum, sem að haus þann áðr bar,Hrellingu margr pílagrímr sætti;Hann byrgði tíðum vegu þeirra, og varVábeiða ferlig hverjum sem hann mætti:Unz eg, Hugprúðr, fór að fylgja heimFlokkum umkomulausra pílagríma,Unz eg áræddi, að veita viðnám þeim,Sem var þeim fjandsamlegr langa tíma.

Frá þessum stað hèldu þau nú leið sína, þangað til þau komu á hól einn, skamnt hèðan, sem hlaðinn var upp til þess, að vera sjónarhóll fyrir pílagríma. Á þessum hól stóð Kristinn þegar hann sá fyrst til ferða Trús. Hèr settist nú Hugprúðr og föruneyti hans niðr, og hvíldu sig. Nú var nestið tekið upp; snæddu þau og drukku, og gjörðust nú glöð, er þau voru svo farsællega sloppin úr höndum svo ills fjanda. Meðan þau sátu að snæðingi, spurði Kristín Hugprúðan, hvort hann hefði ekki orðið sár í bardaganum. Hann svaraði: Nei, nema hvað eg hefi fengið litla holdskeinu; og er svo langt frá því, að hún verði mèr að meini, að hún að eins er sönnun fyrir elsku minni til Guðs míns og yðar, og mun á endanum miða til þess, að Drottinn minn umbuni mèr ríkuglega af náð sinni.

Kristín: Enn voruð þèr ekki hræddr, herra minn, þegar þèr sáuð hann koma með kylfuna í hendinni?

Hugprúðr: Það er skylda mín, að reiða mig ekki á minn eigin mátt, heldr á mátt Hans, sem er öflugri enn allir aðrir.

Kristín: Enn hvað hugsuðuð þèr, þegar hann fèkk komið yðr á annað hnèð við fyrsta högg?

Hugprúðr: Eg hugsaði um ekkert annað enn það, að eins fór fyrir Drottni mínum, enn hann vann þó dýrðlegan sigr að lokum. (2 Kor. 4. 10, 11; Róm. 8. 37.)

Matteus: Hvað sem þið hugsið, þá held eg nú að Guð hafi verið undrunarlega gæzkuríkr við okkr, er hann hefir fyrst bjargað okkr öllum út úr dalnum, og þar næst frelsað oss frá hinum bölvísa jötni. Mèr virðist ekki við hafa minnsta efni til þess, að vantreysta Guði vorum nokkuru sinni framar; því hann hefir gefið oss hèr of órækan vitnisburð um elsku sína til þess. Að svo mæltu stóðu allir upp og hèldu áframm.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

24. kafli af 31 · 20 mín. eftirDalirnir og Hamar risi