Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

28. kafli

Efavirki og Unaðarfjöll

um 17 mín. lestur

Þegar nú pílagrímar voru skildir við bæjarmenn, og vinir þeirra höfðu kvatt þá, bar þá brátt þar að, er Trúr hafði verið líflátinn. Hèr námu þeir staðar, og gjörðu þakkir Honum, sem styrkt hafði Trú til þess, að bera svo vel kross sinn. Þetta var þeim því ljúfara, sem þeir fundu á sèr að í því var mikil uppörfun fyrir þá, að Trúr hafði borið píningu sína svo karlmannlega.

Síðan hèldu þeir enn áframm góðan spotta, og ræddust við um Kristin og Trú, og um samferðalag Vongóðs og Kristins, eftir það að Trúr var allr.

Nú komu þeir upp undir hæðina Ábata, þar sem silfrnáman var, er tældi Demas afleiðis frá pílagríms för sinni, og sumir halda, að Sèrhugall hafi hrapað í til dauðs. Þetta varð þeim hèr að íhugunarefni. Enn er þeir komu að hinum forna varða, er stóð gegnt Ábata, eðr að saltstöplinum er og stóð innan viðsýnis frá Sódómaborg, og hinni fúlu tjörn, fengu þeir ekki að sèr gjört að láta í ljósi undran sína yfir því, að fróðir og greindir menn skyldu nokkuru sinni geta verið svo blindir, að snúa hèr af leið sinni. Enn hins vegar duldist þeim ekki heldr það, að eðlisfar manna lætr lítið á sig bíta ófarir annarra, einkum ef það, sem þeir mæna á, hefir þá kosti við sig, er hæna að sèr heimskingjans auga.

Nú sá eg, að þeir hèldu áframm, þangað til þeir komu að ánni, er rennr hèðra megin við Unaðarfjöll; ánni, þar sem fögur trè vaxa með báðum löndum, og bera lauf, sem eru beztu lyfjar við klígju ef þau eru tekin inn; þar sem merkrnar eru iðgrænar allt árið um kring, og þeir gátu lagzt út af óhultir um sig. (Sálm 23. 2.)

Meðframm á þessarri voru um engjarnar kvíjar og rèttir fyrir sauði; þar var og hús reist til þess, að ala upp í því lömb, það er, barnunga þeirra kvenna, er leggja í pílagrímsferðir. Þar rèð fyrir sá, er börnin voru afhent og þeim var komið fyrir hjá; og hann var maðr mikillar líknar. Hann gat safnað saman lömbum þessum með armi sínum og borið þau við brjóst sèr, og mjúklega leitt þær er þungaðar eru burði. (Hebr. 5. 2; Es. 40. 11.) Kristín rèð nú dætrum sínum að afhenda þessum manni börn sín, svo að þau mætti fá húsaskjól, heimili, aðstoð og eldi hjá vötnum þessum, og ekkert þeirra skyldi skort bíða um ókomna daga. Ef nokkurt þeirra týnist eðr fer afleiðis, mun þessi maðr heimta þau heim aftr; hann mun og binda saman það sem brotið er, og styrkja þá er veikir verða. (Jer. 23. 4; Ezek. 34. 11–16.) Hèr mun þau aldri skorta fóðr, drykk eðr fatnað; hèr verða þau vernduð fyrir þjófum og ræningjum; því að þessi maðr mun deyja heldr, enn að nokkur þeirra glatist er fólginn hefir verið umsjá hans. Þar að auki má óhult treysta því, að þau fá hèr gott uppeldi, og hollar aðvaranir, og að þeim verðr kennt, að ganga hina rèttu vegu; og það vitið þið er mikils virði. Hèr fáið þið og sèð er nóg af tæru vatni, unaðlegum engjum, fögrum og yndislegum blómstrum, fjöldi ýmissa trjáa og meðal þeirra mörg, er bera heilnæma ávexti, er veita heilsu aftr þeim er hún er horfin, og lengja hana og styrkja þar sem hún er fyrir. Þær fèllust á það, að fela þessum manni börn sín, og voru þær þessa því fúsari, fyrir það, að konungr þeirra lagði framm allan kostnaðinn fyrir uppeldi barnanna; því þetta var uppeldisstofnun fyrir ung börn og munaðarlaus.

Nú hèldu þeir áframm, pílagrímarnir. Og er þeir voru komnir að Afvegar-grund, að grind-hliði því er Kristinn og fèlagi hans fóru yfir, er Örvænn risi tók þá fasta og setti inn í Efavirki, settust þeir niðr, og ræddust við, hvað nú mundi bezt ráða. Hvort ekki mundi áræðandi, áðr enn lengra væri farið, er þeir voru nú svo margir og sterkir, og höfðu fyrir leiðtoga slíkan mann sem Hugprúð, að ráðast á risann, brjóta virki hans, og leysa þá pílagríma er þar kynnu sitja í varðhaldi og gefa þeim frelsi. Einn lagði þetta til, annar hitt. Einn lèt á sèr heyra efa, hvort það mundi vera löglegt, að stíga fæti á óvígða jörð; annar sagði það óhætt vera, ef tilgangrinn væri góðr. Hugprúðr sagði að þessi athugasemd væri reyndar ekki ætíð rètt, hvernig sem á stæði. Enn mèr er boðið, að veita syndinni viðnám að yfirstíga hið illa, og berjast hinni góðu baráttu trúarinnar. Og má eg spyrja, við hvern skyldi eg berjast þessarri góðu baráttu, ef ekki við Örvæn risa? Eg er því albúinn að treysta á að ráða hann af dögum og að brjóta Efavirki. Síðan mælti hann: Enn hver vill ráðast til ferða með mèr? Það vil eg, sagði gamli Ráðvandr. Það viljum vèr, sögðu synir Kristínar Matteus, Samúel, Jósef og Jakob, fjórir saman, í einu hljóði; því að þeir voru ungir menn og sterkir allir. (1 Jóh. 2. 13, 14.) Nú skildu þeir kvennfólkið eftir á veginum, þar sem það var, og þá Ístöðulausann og Bægifót með hækjunum hjá því, til þess, að vera verndarar og leiðtogar þess, þangað til þeir kæmi aftr. Enn Örvænn risi bjó svo nærri, að þeim var ekki leiðtoga vant, meðan þær voru á rettri leið, því hvert barnið gat verið leiðsögumaðr þeirra. (Es. 11. 6.)

Nú fóru þeir, Hugprúðr, gamli Ráðvandr, og enir ungu menn fjórir saman, upp að Efavirki, til þess, að skygnast um eftir Örvæn risa. Þegar þeir komu að virkisdyrunum börðu þeir allharðan að dyrum. Við barsmíðina kom enn gamli risi framm og kona hans Vantraust á eftir. Þá mælti risi: Hvað manna og hver er sa, er dirfist að ónáða Örvæn risa þannig? Hugprúðr svaraði: Það er eg, einn af mönnum konungsins er ræðr fyrir hinni himnesku borg, er kjörnir eru til þess, að vera leiðtogar pílagríma til staðar þess, er þeir ætla í; og krefst eg nú, að þú opnir dyr virkis þíns, að eg megi ganga inn. Bú þig síðan til bardaga, því eg er kominn hingað þeirra erinda, að hafa á brottu höfuð þitt, og að mölva niðr Efavirki.

Enn Örvænn risi hèlt, að það væri einskis mennsks manns að yfirstíga sig, af því, að hann var risi. Hann hugsaði með sèr: Skyldi eg hræðast Hugprúðann, eg sem hefi hingað til sigrazt jafnvel á englum? Síðan hervæddist hann og gekk út. Hann hafði stálhúfu á höfði, var girtr brjóst-verju af eldi, og gekk út á járnskóm með kylfu mikla í hendi. Nú rèðust þeir fèlagar, sex saman á hann, aftan að og framan að. Þá skarst Vantraust kona hans í leikinn til þess, að hjálpa honum; enn gamli Ráðvandr hjó hana að velli með einu höggvi. Nú börðust þeir af alefli, því um lífið var að tefla. Þar kom loks, að þeir feldu Örvæn risa til jarðar, enn hann var ekki dáinn enn, því hann var risi lífseigr mjög. Hann varðist enn lengi, því hann var eins og máltækið segir: þrálífr eins og köttr. Enn þó varð Hugprúðr bani hans á endanum, og gekk ekki frá honum fyrr enn hann hafði gengið honum milli bols og höfuðs.

Nú gengu þeir að verki að brjóta Efavirki, sem þeim fèll allhægt, er Örvænn risi var fallinn. Þeir voru að virkisbroti samfleytta sjö daga. Þar fundu þeir af pílagrímum að eins tvo, Þreklaus, nærri soltinn til dauða, og dóttur hans Dauðhrædd; þau voru lífs. Enn mjög mundi flesta hafa furðað, að sjá en dauðu lík er lágu á víð og dreif um virkis garðinn, og alla þá hrúgu af dauðra manna beinum er fundust í dýflissunni.

Þegar þeir Hugprúðr höfðu lokið þessu afreksverki, tóku þeir Þreklaus og dóttur hans, Dauðhrædd, undir vernd sína, því að þau voru ráðvendnis sálir þótt þau hefði hent það, að verða bandingjar Örvæns risa í Efavirki. Eins og eg vèk á fyrr, höfðu þeir nú með sèr höfuð risans (enn hræ hans höfðu þeir grafið í urð), báru það með sèr niðr á alfara veginn og komu til förunauta sinna, og sýndu þeim, hvað þeir höfðu að gjört. Þegar nú þeir Bægifótr og Ístöðulaus sáu, að þar var komið höfuð Örvæns risa, gjörðust þeir kátir og fagnandi mjög. Nú með því Kristín kunni að leika á fiðlu, ef við lá, og Líkn dóttir hennar lèk á gígju, tóku þær framm hljóðfærin, er allir voru svo kátir, og lèku fyrir pílagrímana, enn Bægifótr stè dansinn. Hann tók Dauðhrædd Þreklaussdóttur til að dansa við, og þau dönsuðu fjörlega á götunni. Reyndar fèkk hann ekki dansað, nema með því, að hafa hækju í annarri hendi, enn sporið tók hann fallega ei að síðr, það má eg segja. Þá fórst mærinni ekki miðr, því hún vatt sèr kring lètt og liðlega eftir hljóðfæra leiknum.

Enn fyrir Þreklausann var nú hljóðfæraleikrinn ekki eiginlega það sem honum lá bráðast á, honum var meira mál á mat enn dansi, því hann var nærri soltinn til dauða. Kristín rètti honum brennivínsflösku sína til þess, að hressa sig á í bráð, og bjó honum síðan til matar. Eftir skamma stund kom öldungrinn aftr til sjálfs sín, og fór svo að hressast.

Þegar þessu öllu var lokið, þótti mèr Hugprúðr taka höfuð Örvæns risa og setja það á stöng við alfara veginn andspænis stöplinum, er Kristinn hafði reist til varnaðar pílagrímum, er seinna kynnu verða á ferð, að láta sèr eigi verða gengið afleiðis inn á land risans.

Síðan risti hann á marmarahellu þessi ljóð:

Sjá höfuð þess, sem hèt því nafni, er eittHræðslu fèkk pílagrímum áðr veitt!Eydd er hans borg; að Vantraust illu vífiVega nam Hugprúðr og firra lífi.Þreklausum vann og Dauðhrædd dóttur hansDjarfr Hugprúðr þrekverk afreksmanns.Hver sem það efast, sjón hann fær að sjáSögu ríkari, ef hingað lyftir brá.Haus sá, er kring hann krypplar bregða í dans,Kennir, þeir skeyta ei lengr ógnum hans.

Þegar nú þessir menn höfðu sýnt þannig hreysti sína í niðrbroti Efavirkis, og höfðu ráðið Örvæn risa af lífi, hèldu þeir för sinni áframm, þangað til þeir komu að Unaðarfjöllum, þar sem Kristinn og Trúr höfðu endrnærzt af mergð enna mörgu gæða, er þar voru fyrir. Þeir komu sèr nú í kynni við hirðana þar, er veittu þeim allan sama beina á Unaðarfjöllum og þeir höfðu áðr veitt Kristni.

Þegar nú hirðar sáu ena miklu fylgd er fór með Hugprúði (enn hann þekktu þeir allir), sögðu þeir við hann: Góði herra, nú hefir þú all-fjölmenna fylgd með þèr hingað; hvar fannstu allan þenna söfnuð?

Þá svaraði Hugprúðr:

Sjá hèr Kristínu' og hennar sona liðOg sona-kvenna! Eins og vagnstirniðHalda þau sèr við eina og sömu átt,Undan flýjandi synd að náðar gátt.Beint eins og leiðar-steinn þeim stefnu tèrStýra þau; ella væru' ei komin hèr.Ráðvand gamla, sem rèðst í þessa ferð,Og raun-trúlyndan Bægifót þú sèrð.Ístöðulaus hèr einnig sèst við dyrEr eigi vildi heima sitja kyrr.Geta má Þreklauss og, hins góða manns,Nè gleymt skal heldr Dauðhrædd, dóttur hans.Fæst þeim hèr inni, eða skal af staðEnn haldið göngu? Làt oss vita það.

Þá mæltu hirðar: Þetta eru góðir gestir. Þèr eruð velkomnir hèr til okkar; því að vèr höfum beina búinn hinum veiku eigi síðr enn hinum styrku. Konungr vor heldr aðgætnu auga yfir því, sem enum minnstu meðal þessarra er gjört. Hrumleikr skal því engum manni í vegi standa fyrir greiða og góðum beina hjá oss. (Math. 25. 40.) Nú fóru hirðar með gestina upp að hallardyrunum, og sögðu við þá: Komið inn, Ístöðulaus, Bægifótr, Þreklaus og Dauðhrædd. Við bjóðum þessum inn með nafni, sögðu hirðar við Hugprúð pílagríma leiðtoga, af því, að þeim er hættast við að dragast aftr úr. Enn þig, og hina sem styrkvir eru, látum við vera eina um ykkar reiðu. Þá sagði Hugprúðr: Í dag sè eg, að náðin skín á andlitum yðar, og að þèr eruð sannarlega hirðar herra míns; því að þèr hafið eigi hrundið brott sjúklingum þessum, hvorki með axlar hrindingum nè olboga skotum, heldr hafið stráð veg þeirra til hallarinnar með blómstrum eins og yðr bar. (Ezek. 34. 21.)

Nú gengu hinir hrumu og veiku inn, enn Hugprúðr og hinir fóru á eftir. Þegar mönnum hafði verið skipað til sæta, spurðu hirðar hina veiku, hvað þeim mætti bjóða; því hèr verðr öllu að haga hinum veiku til bjargar, eigi síðr enn varnaðar hinum óróasömu. Nú bjuggu þeir til veizlu úr auðmeltum matvælum og gómsætum og saðsömum, og er hinir veiku höfðu matazt gengu þeir til náða, hver um sig þar sem honum var til sagt.

Morguninn eftir var dagr bjartr. Enn allt í kring voru há fjöll. Nú var það venja hirða, að sýna pílagrímum, áðr þeir kveddi þá, allt er fágætt var og sjaldsèð þar um slóðir. Þegar því pílagrímar höfðu tekið árbít, og voru búnir til útferðar, fóru hirðar með þá út á merkr, og sýndu þeim fyrst allt er þeir höfðu sýnt Kristni áðr.

Síðan fóru þeir með þá í aðra nýja staði. Hið fyrsta, er þeir sáu, var Furðufell; þegar þeir litu þangað, sáu þeir mann í fjærð all-mikilli, sem velti fjöllum um með orðum einum. Þeir spurðu hirða, hvað þetta mundi takna. Þeir sögðu, að þessi væri sonr Náðarríks þess, er þið lásuð um í fyrri hluta pílagríms sögu þessarrar. Hann er þar settr til þess, að kenna pílagrímum, hvernig þeir skuli jafna að slèttu, eða velta úr vegi með trúnni einni öllum örðugleikum, er þeim mæta á leið þeirra. (Mark 11. 23, 24.) Þá mælti Hugprúðr: Eg þekki hann; hann er maðr mörgum fremri.

Þá fóru hirðar með pílagríma í annan stað, er Sýknarfell nefndist; þar sáu þeir mann al-klæddan hvítum skrúða, og tvo aðra menn, Hleypidóm og Illvilja, er sífelt lètu ganga skarnhríð á hann. Enn, sjá, skarnið sem þeir urpu á hann datt innan skamms aftr af skrúða hans, er þá varð jafnhreinn eins og aldrei hefði saur á hann fallið. Þá mæltu pílagrímar: Hvað þýðir þetta? Hirðar svöruðu: Þessi maðr heitir Guðrækinn; enn skrúðinn á að tákna sakleysi lífs hans. Þeir sem saurnum varpa á hann, eru þeir, sem hata hið góða líferni hans. Enn eins og þið sjáið að saurinn festir ekki á fatnaði hans, eins mun þeim ganga er saklaus lifir í þessum heimi. Hver svo sem reynir að fá slíka menn saurgaða mun vinna fyrir gýg; því þegar lítið líðr frá, mun Guð haga því svo, að sakleysi þeirra bregði upp sem ljósi, og rèttlæti þeirra verði skínandi sem hábjartr dagr.

Síðan fóru þeir með þá til Líknarfells. Þar sáu þeir mann, sem hafði klæðisstranga fyrir framan sig, er hann skar úr fatnað handa fátæklingum sem stóðu kring um hann, enn klæðisstranginn þvarr ei að heldr. Þá spurðu pílagrímar: Hvað mundi nú þetta þýða? Þetta á að sýna yðr, að þann, sem hefir örlyndi til þess, að gefa fátækum skerf af handafla sínum, skuli aldri henda viðrværis þurð. Þeim, sem vatnar, skal vatnað verða. Kakan, sem ekkjan gaf spámanninum, fèkk ekki orkað því, að hana þryti að heldr brauð úr krukku sinni.

Eftir þetta fóru hirðar með gestina þangað, er þeir sáu tvo menn, Glóp og Fábjána, að nafni; þeir stóðu í að þvo blökkumann í því skyni, að fá hann hvítan; enn því lengr sem þeir þóu, þess svartari varð blökkumaðrinn. Nú spurðu þeir hirða hvað þetta ætti að þýða. Þeir svöruðu: Þetta sýnir yðr hvernig enum illu er farið, hvað sem til bragðs er tekið að fegra orðstír þeirra, miðar að eins til þess, að gjöra þá enn viðbjóðslegri. Þannig fór með Farísea, og á sama hátt mun öllum hræsnurum fara.

Þá mælti Líkn, kona Matteusar, við Kristínu móður sína: Móðir mín, mig langar, ef það fæst, að sjá holuna í fjallinu, sem almennt er kölluð afleiðin til vítis. Móðir hennar sagði hirðunum bæn dóttur sinnar, og fóru þeir þá að holumunnanum, er var í fjallshlíðinni; þeir opnuðu hann, og beiddu Miskunn hlusta stundarkorn hvort hún heyrði nokkuð. Hún lagði við hlustirnar, og heyrði þá, að sagt var í djúpinu: Bölvaðr veri faðir minn fyrir það, að hafa haldið fótum mínum aftr af vegi friðarins og lífsins. Annar sagði: Ó að eg hefði verið rifinn sundr, áðr enn eg tortýndi sál minni til þess að frelsa líf mitt. Enn annar sagði: Fengi eg að eins lifað aftr, ó hve fúslega mundi eg þá ekki heldr leggja á mig sjálfs afneitun, heldr enn að koma í þenna stað. Þá var sem jörðin riði á reiðarskjálfi undir fótum ennar ungu konu af skelfingu. Hún varð föl og kom aftr frá munnanum skjálfandi, og sagði: Sæll er sá og sú, er lausn þiggja frá þessum stað.

Þegar nú hirðarnir höfðu sýnt þeim alla þessa hluti, fóru þeir með pílagríma aftr heim til hallarinnar og veittu þeim beina af því er fyrir hendi var. Enn Líkn er var nýgift kona, munaði í nokkuð er hún sá þar, enn fyrirvarð sig að biðja um það. Móðir hennar spurði hana þá, hvað gengi að henni, því hún leit út eins maðr sem ógleði hefir tekið. Þá sagði Miskunn: Í matstofunni hangir skuggsjá, og fæ eg ekki haft af henni augun; og fái eg hana ekki er eg hrædd að mèr leysist höfn. Eg skal nefna löngun þína við hirðana, og býst eg við, að þeir neiti þèr ekki um bæn þína. Enn eg blygðast mín fyrir það, að það skuli koma til eyrna þessarra manna, að mig hafi hent þunga-þrá, sagði Líkn. Nei, dóttir mín, sagði Kristín, það er engin skömm heldr sómi að þrá annan eins hlut og þessi er. Spurðu þá, móðir mín, hirðana, sagði Líkn, hvort þeir vili selja skuggsjána.

Þessi skuggsjá var slík, að varla getr eina því líka af þúsundi. Öðrumegin sýndi hún mann með svip öllum og andlitsfari. Enn ef henni var að eins snúið við sýndi hún eftirmynd og auglit konungs pílagrímanna. Já, eg hefi átt tal við þá, er sagt hafa mèr, að þeir hafi sèð jafnvel sjalfa þyrnikórónuna á höfði hans, er þeir litu í þessa skuggsjá; þeir hafa og sèð í henni förin í höndum hans, síðu og fótum. Já, slíkt er ágæti þessarrar skuggsjár að hún sýnir mönnum hann, hvar sem þeir vilja sjá hann, lifandi eðr látinn, á himni eða jörðu, í niðrlægingu eða upphefð, í písl eðr veldi sínu. (Jak. 1. 23; 1 Kor. 13. 12; 2 Kor. 3. 18.)

Kristín fór því til hirðanna einslega; enn nöfn þeirra voru Kunnr, Reyndr, Andvari og Hreinskilinn, og mælti: Dóttur mína, gifta konu, langar, að eg ætla, í hlut einn, er hún hefir sèð hèr í húsi, og hún er hrædd um að sèr muni leysast höfn ef þèr synið henni bænarinnar.

Reyndr: Kallaðu hana hingað fljótt; hún skal vissulega fá það er hana fýsir ef vèr getum án þess verið. Nú var kallað á hana, og sögðu hirðar við hana: Miskunn, hvað er það, sem þèr leikr hugr á? Þá roðnaði Miskunn og mælti: Stóra skuggsjáin sem hangir í matstofunni. Þá hljóp Reyndr til og sókti skuggsjána, og gáfu þeir henni hana með ljúfu geði. Síðan hneigði hún sig, og gjörði þakkir, og mælti: á þessu fæ eg sèð, að eg hefi unnið mèr þokka í yðar augum.

Hirðar gáfu og hinum ungu konunum þær gjafir er þær fýsti í, enn mönnum þeirra orðstír mikinn fyrir það, að þeir höfðu gjört fèlag við Hugprúð til að fá Örvæn risa ráðinn af lífi, og borg hans brotna í grunn.

Hirðar lögðu men um háls Kristínu og dætrum hennar þeir lètu og eyrnagull í eyru þeim, og djásn um höfuð þeim.

Þegar pílagrímum þótti brottfarar mál komið lètu hirðar þá fara brott í friði, enn gáfu þeim engar þær viðvaranir og varúðarreglur, er þeir höfðu áðr gefið þeim Kristni og fèlaga hans. Enn það bar til, að þessir áttu að traustan leiðtoga í Hugprúð, er öllu var vel kunnr og gat gefið þeim aðvaranir sínar, er bezt átti við, einmitt þegar hættuna bar að hendi. Enda höfðu þeir Kristinn og fèlagi hans glatað aðvörunum þeim er þeir þágu af hirðum þegar sú stund kom, er þeir þurftu á þeim að halda. Þessir stóðu því betr að enn hinir.

Nú fóru þeir brott og sungu:

Hve áföngum hèr skipar haganlegaTil hvíldar fyrir pílagríma lið!Hve ljúft þeir greiða úr götu allan tregaSem gjöra annað líf vort mark og mið!

Allt hið nýjasta eigu sinnar gefaÞeir oss, svo lífið verði' oss glatt og lètt.Þeir minjar veita er taka' af allan efa,Að á oss pílagríms sè merki sett.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

28. kafli af 31 · 17 mín. eftirEfavirki og Unaðarfjöll