Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

Fimmti kafli

Krossinn og Örðugfell

um 14 mín. lestur

Nú þótti mèr veggr geyma á báðar hendr þjóðbrautar þeirrar, er Kristinn átti að fara; sá veggr var nefndr Hjálpræði. (Es. 26. 1.) Þessa braut þótti mèr Kristinn nú hlaupa þó á brekkuna væri að sækja. Enn örðug varð honum þó gangan sökum byrðarinnar er hann bar.

Þannig hljóp hann nú, þangað til hann kom þar, er fyrir varð hæð nokkur; á þessarri hæð stóð kross, og skammt þar fyrir neðan var gröf. Rètt í því að Kristinn kom upp að krossinum, þótti mèr byrðin losna af herðum hans, og detta niðr af baki honum, síðan þótti mèr hún taka á veltu, og halda áframm að velta, þangað til hún komst niðr á grafar barm; þá þótti mèr hún detta niðr í gröfina og sá eg hana aldri síðan.

Þá varð Kristinn glaðr og lèttr í bragði, og mælti af fagnandi hjarta: Hann hefir gefið mèr hvíld með sorg sinni, og líf með dauða sínum. Síðan stóð hann kyrr stundarkorn og litaðist um í undran; því hann furðaði þar á allan að hann skyldi þannig verða laus við byrði sína af því að sjá krossinn. Hann horfði og starði, og starði og horfði, þangað til lyndir þær er voru í höfði hans veittu straumum táranna niðr á kinnar hans. (Zach. 12. 10.) Er hann nú stóð, og horfði og táraðist, sjá, þá komu þrír skínandi menn til hans og heilsuðu honum og sögðu: Friðr sè með þèr! Síðan mælti hinn fyrsti: Syndir þínar eru þèr fyrirgefnar. (Mark 2. 5.) Annar færði hann úr tötrum þeim er hann var í, og færði hann í nýjan fatnað. (Zach. 3. 4.) Enn þriði setti merki á enni hans (Eph. 1. 13), og fèkk honum saman ofna innsiglaða skrá, er hann bað Kristinn lesa í, meðan hann væri á ferðinni, og afhenda við hið himneska hlið. Síðan hurfu þeir á brott. Þá stökk Kristinn þrisvar upp af fagnaði, og lagði af stað, og söng:

Hlaðinn syndum eg hingað komst á leið,Hvergi fannst hjálp, er létti minni neyðFyrri enn hèr. Ó, hver er þessi staðr?Hvað? Er minn sælu-vegr upp byrjaðr?Er byrðin fallin nú af baki mèr?Þau bönd er hana festu losnuð hèr?Bæði þinn kross og gröf eg blessa, og Þig,Er beiðzt hèr háðung saklaus fyrir mig.

Nú þótti mèr hann halda þannig áframm þangað til hann var kominn niðr af hæðinni. Þar varð hann þess var, að skammt frá veginum láu þrír menn steinsofandi og voru fjötrar á fótum þeirra. Einn hèt Einfaldr, annar Latr, þriði Sèrgóðr. Þegar Kristinn sá þá liggja þannig, fór hann til þeirra, að vita hvort hann fengi vakið þá, og kallaði hárri röddu: Þið eruð líkir þeim er sofa á siglu húna (Orðskv. 23. 34); því að hinn dauði sjór er undir, það djúp er engan botn hefir. Vaknið því, og komið hèðan; verið þið gegnir mèr, þá skal eg hjálpa ykkr úr járnunum. Hann sagði enn fremr: Ef hann sem gengr um kring eins og grenjandi ljón (1 Pet. 5. 8), fer um þenna veg, þá verðið þið vissulega tönnum hans að bráð. Við þetta litu þeir upp á hann og svöruðu hver í sínu lagi á þessa leið: Einfaldr sagði: Eg sè ekkert í hættu; Latr mælti: Láttu mig sofa enn dálítið, og Sèrgóðr sagði: Allar verða kirnurnar á eigin lögg að standa. Eftir það duttu þeir út af aftr í svefn. Enn Kristinn hèlt áframm ferðar sinnar.

Hann var samt órór í huga, að hugsa til þess, að menn í slíkri hættu skyldu svo lítils meta góðgirni hans, er bauðst til að hjálpa þeim fyrir ekkert, bæði með því að vekja þá, að leggja þeim heil ráð, og bjóðast til að ná af þeim fjötrum þeirra. Meðan hann var að hugsa um þetta, órór í huga, sá hann hvar tveir menn klifruðust yfir garðinn, er lá vinstra meginn ens þröngva vegar, og gengu greiðan á móti honum. Annar hèt Vanafastr, hinn Hræsnari. Komu þeir nú til hans, eins og eg sagði, og tókst með þeim þessi samræða:

Kristinn: Góðir menn, hvaðan komið þið, og hvert ætlið þið?

Báðir: Við erum fæddir í landi því er Hégómadýrð heitir, og erum á ferðinni til Zíons fjalls, að fá lofstír.

Kristinn: Hví komuð þið ekki inn um hliðið sem stendr þar sem þessi vegr byrjar? Vitið þið ekki, að skrifað er: að sá sem ekki kemr inn um hliðið, enn klifrast inn annars vegar, er þjófr og ræningi? (Joh. 10. 1.)

Vanafastr og Hræsnari svöruðu, að það þætti öllum samlöndum sínum of mikill krókr, að fara fyrst til hliðsins til að komast inn. Þessvegna væru þeir vanir að taka af sèr krókinn, og klifra yfir garðinn, eins og þeir hefði gjört.

Kristinn: Enn mun það ekki verða talið brot gegn Herra borgar þeirrar er vèr erum á leið til, að misbjóða þannig opinberuðum vilja hans?

Vanafastr og Hræsnari lètu Kristinn nú vita, að þetta væri mál sem honum ekki bæri að fást um; því þeir hefðu venjuna fyrir sèr, og eftir henni hefði þeir farið; enda gætu fært framm vitni fyrir því, að þetta hefði gengizt við í meir enn þúsund ár.

Kristinn: Enn fær venja ykkur staðizt ef til laga kemr?

Vanafastr og Hræsnari sögðu honum, að hver óvilhallr dómari mundi telja venju, er búin væri að ná meira enn þúsund ára gamalli hefð, gilda og góða að lögum. Hverju skiftir það líka, sögðu þeir, hvernig við komumst á veginn, ef við á annað borð komumst á hann? Séum við á honum, erum við á honum. Þú sjálfr, er kominn ert inn um hliðið, ert á veginum eins og við. Við erum líka á veginum eins og þú, þó við kæmumst á hann með því, að klifra yfir garðinn. Að hverju leyti er þá þínum hag betr farið enn okkar?

Kristinn: Eg fer minnar ferðar eftir reglu Herra míns; þið farið ykkar ferða eftir agalausu hugboði. Herra þessa vegar telr yðr þjófa, þegar nú, og tel eg það efalaust, að þið munið ekki reynast trúir menn í ferðalok. Þið eruð hèr inn komnir að einræði yðru, og munuð hèðan brott fara einir yðar liðs og undan þegnir miskunn hans.

Til þessa svöruðu þeir honum fáu, enn beiddu hann láta sèr lynda, að hirða um sjálfan sig. Eftir þetta þótti mèr þeir halda áframm ferð sinni; fór hver sína leið út af fyrir sig, og áttuzt lítið við, nema hvað þessir tveir lètu Kristinn vita, að þeir efuðust alls ekki um það, að þeir mundu gegna lögum og tilskipunum öllum eins samvizkusamlega eins og hann. Vèr sjáum því ekki, sögðu þeir, hver munr er á þèr og okkr, nema sá, að þú ert í kufli, sem vèr ætlum að einhver nágranni þinn hafi fært þig í, til þess að hylja blygðan þinnar nektar.

Kristinn: Engin lög nè tilskipanir fá yðr sælu úr því að þèr komuð eigi inn um dyrnar. (Gal. 2. 16.) Enn kuflinn sem eg er í gaf mèr Lávarðr borgarinnar sem eg er á leið til, til þess, að hylja nekt mína, eins og þèr segið. Þetta þykir mèr vottr um gæzku hans, því áðr var eg að eins tötrum hulinn. Þetta fær mèr líka huggunar meðan eg er á ferðinni. Því að eg hugsa með mèr: Vissulega mun Lávarðr borgarinnar kannast við mig, þegar eg kem að borgarhliðinu, fyrst eg er í færðr þenna kufl—þann kufl er hann gaf mèr af örlæti sínu daginn sem hann fletti mig tötrunum. Eg hefi, þar að auki, merki á enni, sem þið hafið ekki tekið eftir, ef til vill. Það merki setti þar einn enna handgengnu Lávarðarins daginn sem byrði mín fèll mèr af baki. Eg get enn fremr frætt ykkr um það, að mèr var þá fengin innsigluð skrá, til þess, að lesa mèr til huggunar á ferð minni; var mèr sagt að sýna hana við hlið ennar himnesku borgar, til merkis um það, að þá væri mèr inn koman heimil á eftir. Allt þetta uggir mig að yðr vanti, og að yðr vanti það af því, að þið komuð ekki inn gegnum hliðið.

Við þessu guldu þeir honum engin andsvör; enn gáfu hvor öðrum gotu, og hlógu. Síðan þótti mèr þeir halda áframm ferðinni allir saman, nema hvað Kristinn var á undan; hafði hann nú engar viðræður við þá framar; enn talaði við sjálfan sig, ýmist stynjandi eðr huggaðr. Oft tók hann upp skrána, er einn enna skínandi manna gaf honum, og las í henni, og brá honum þá jafnan til gleði og fagnaðar.

Þá sá eg, að þeir hèldu allir áframm leiðinni, unz þeir komu upp undir fjall eitt er Örðugfell hèt. Fyrir neðan fjall þetta var lynd ein. Hèr mátti nú og sjá tvo aðra vegi, enn þann sem kom beint frá hliðinu. Annar vegrinn lá til hægri, hinn til vinstri, fyrir neðan fjallið, með framm því. Enn mjói vegrinn lá beint upp fjallið, og er förin yfir fjall þetta nefnd örðugganga. Kristinn gekk nú að lyndinni (Es. 49. 10), og drakk þar sèr til hressingar og lagði síðan á fjallið og söng:—

Upp skal eg halda hátt þó fjallið standi,Nè hopa skal þeim örðugleika á bug;Því veginn sè eg stefna lífs að landi.—Látið ei, drengir, bila hug nè dug.—Far heldr rètt, þótt reynist erfið gatan,Enn rangt, um hægan veg, í fár og glatan.

Nú komu hinir tveir upp undir fjallið; enn er þeir sáu, að það var bæði hátt og bratt, og að tveir aðrir vegir láu fyrir neðan það, er fara mátti, og þeir gátu ímyndað sèr, að mættu aftr vegi þeim er Kristinn fór, hinumegin við fjallið, réðu þeir af að fara heldr þessa vegi. Annarr þessarra vega hèt Hætta, hinn Glötun. Nú fór annar þá leiðina er Hætta hèt, enn sá vegr lá út í þykkan skóg; hinn fór þann veginn er Glötun var nefndr; sá vegr lá út í auðnir miklar, þar er allt var fult af svörtum fjöllum; þar hrapaði hann og fèll, og reis aldri upp síðan.

Þá varð mèr litið eftir Kristni; vildi eg sjá hvernig honum gengi að komast upp fjallið. Eg sá þá að hann hætti bráðum að hlaupa, og fór að ganga í hægðum sínum; þar næst tók af göngu fyrir honum og hann fór að skríða á höndum og fótum, sökum bratta fjállsins. Enn miðja vega milli fjallsróta og eggjar var unaðlegr laufskáli, er Lávarðr sá, er fjallið átti hafði látið reisa þreyttum ferðamönnum til endrnæringar. Þegar Kristinn komst þangað, settist hann niðr og tók hvíld þar. Þá tók hann framm úr barmi sèr skrána og fór að lesa, sèr til huggunar. Einnig leit hann enn einu sinni eftir kuflinum, eðr skikkjunni sem honum var gefin, er hann stóð við krossinn. Með þessu stytti hann sèr nú stundir um tíma; að síðustu rann blundr á hann, og þar eftir datt hann út af í djúpan svefn. Svefninn hèlt honum þarna nærri því framm undir náttfall; og meðan hann svaf, datt skráin úr hendi hans. Þannig svaf hann þangað til einhver maðr kom til hans og vakti hann og sagði: Farðu til maursins, þú letingi, og hygðu að atferli hans og háttum. (Orðskv. 6. 6.) Þá hrökk Kristinn upp, og tók á hraða ferð, og hèlt greiðan alla leið, þangað til hann komst upp á fjalls brún.

Þegar hann var þar kominn, komu tveir menn hlaupandi á móti honum í ósköpum. Annar þeirra hèt Huglaus hinn Vantrausti. Kristinn kastaði á þá orðum og sagði: Góðir menn, hvað er að? Þið hlaupið rangan veg. Huglaus svaraði, að þeir hefðu verið á leið til Zíons borgar og hefðu verið komnir alla leið upp að þessu erfiða einstigi; enn þess lengr sem við göngum, þess fleiri verða fyrir okkr hætturnar. Við snerum því við og höldum nú heim aftr.

Já, sagði Vantrausti, því rètt fyrir framan okkr liggja tvö ljón á veginum; hvort þau sofa eða vaka vitum við ekki. Enn okkr þótti ekki annað sýnt, ef við kæmum innan klófesti þeirra, enn að þau mundu á svipstundu rífa okkr í sundr.

Kristinn mælti þá: Þið hræðið mig; enn hvert fæ eg flúið, svo að mèr verði borgið? Fari eg aftr heim í ættland mitt, þá er það fyrir ætlað eldi og brennisteini, og eg hlýt að tortýnast þar. Enn komist eg til ennar himnesku borgar, þá er eg viss um, að þar er mèr óhætt. Eg verð að leggja á tvær hættur. Aftrhvarf er opinn dauði. Áframmhaldið er ótti fyrir dauðanum, enn eilíft líf þar á bak við. Eg ætla að halda áframm enn. Vantrausti og Huglaus hlupu nú alla leið ofan fjallið, enn Kristinn hèlt áframm ferð sinni upp. Nú, er hann fór að hugleiða orð þeirra Huglauss og Vantrausta, þreifaði hann í barm sèr eftir skrá sinni, til þess að lesa hana sèr til huggunar. Hann þreifaði og þreifaði, enn fann ekki skrána. Nú varð Kristinn sármótlættr og vissi ekki, hvað við mundi taka. Hann var nú sviftr því, er verið hafði hugfró hans, og verða átti aðgöngu heimild hans inn í ena himnesku borg. Hann var nú raðálaus og vissi ekki hvað gjöra skyldi. Loks rann honum í hug, að hann hafði sofnað í laufskálanum í fjalls hlíðinni. Hann fèll þá framm á knè sín, og beiddi Guð fyrirgefningar fyrir þetta glópsku verk sitt; fór síðan aftr alla leið að skygnast eftir skrá sinni. Enn hver fær hæfilega lýst hjartasorg Kristins alla þessa leið? Hann andvarpaði ýmist eða grèt, og ávítaði sjálfan sig, hvað eftir annað, fyrir glópsku sína, að hafa dottið út af í svefn í laufskálanum, er reistr hafði verið að eins til þess, að menn tækju þar litla hvíld, er þá bæri að þreytta. Þannig fór hann aftr alla leið, og skygndist um á báðar hendr nákvæmlega eftir skrá sinni, er verið hafði fögnuðr hans svo oft á ferðinni. Hann hèlt áframm þangað til hann fèkk augastað á laufskálanum, þar sem hann hafði setið og sofnað útaf. Enn sú sjón varð honum nýtt sogarefni; því hún vakti upp fyrir honum, að nýju, óhapp hans, að hafa dottið andvaralaus út af í svefn. (Opb. b. 2. 4; 1 Thess. 5. 6–8.) Hann hèlt áframm, enn sem fyrr, harmandi syndasvefn sinn, og mælti: Ó, mig vesælan! að eg skyldi sofna um hábjartan dag; að eg skyldi sofna út af mitt í mannraun minni; að eg skyldi láta það eftir holdinu, að hafa þann stað fyrir hvílu þess, er landsdrottinn hefir reist að eins til þess, að pílagrímar endrstyrki þar anda sinn. Hvað mörg spor hefi eg nú ekki gengið til óþarfa! Hið sama hendi Israelsmenn; vegna synda sinna voru þeir sendir aftr Rauðahafs leiðina; og eg verð að ganga þessi spor sorgmæddr, er eg hefði getað gengið fagnandi, ef mig hefði ekki hent þessi syndasvefn. Hversu langt hefði eg ekki getað verið kominn nú! Eg verð að stíga þessi spor þrisvar sinnum, sem eg ekki hefði þurft að ganga oftar enn einu sinni. Og svo verð eg líklega að fara leið mína náttfari, því dagr er þegar bráðum þrotinn. Ó, að eg hefði aldri sofnað!

Nú var hann kominn aftr að laufskálanum. Þar settist hann niðr, sat um tíma og grèt. Að lokum litaðist hann um grátnum augum, og varð litið undir setið, og sá þar skrá sína: og þreif hann hana upp í skyndi titrandi og stakk henni í barm sèr. Enn hver fær skýrt gleði þessa manns, er hann hafði fundið skrá sína aftr? Því þessi skrá var ábyrgðar skjal lífs hans, og lausnarbrèf hans er hinni þráðu höfn var náð. Hann braut hana því saman og lagði á brjóst sèr, og gaf Guði þakkir, er hafði stefnt auga hans á staðinn, þar sem hún lá, og nú lagði hann aftr af stað með fagnaðar tárum. Enn hvað hann var nú lèttr í spori upp fjallið það sem eftir var! Enn áðr enn hann komst upp á brún gèkk sól undir og rökkrið fèll yfir Kristinn, og þetta vakti að nýju endrminningu hans um hinn fánýta svefn. Hann kvartaði enn að nýju og sagði: Ó, þú synda svefn, þín vegna verð eg nú líklega að halda áframm ferð minni náttfari. Eg verð að ganga sviftr ljósi sólar, enn myrkr mun hylja stig fóta minna, og eg verð að hlusta á ýlfr hinna ömurlegu náttdýra, vegna míns syndsama svefns. Nú mundi hann einnig eftir sögu þeirra Vantrausta og Huglauss, um hræðslu þeirra við ljónin. Þá sagði Kristinn aftr við sjálfan sig: þessi dýr fara um fjöll og fyrnindi á nætr þeli eftir bráð, og ef eg skyldi verða fyrir þeim, hvernig má eg þá komast undan þeim? hvernig skyldi eg fá hjá komizt að þan rifi mig í sundr? þannig fór hann nú leiðar sinnar. Enn meðan hann kvartaði þannig yfir óhappi sínu, varð honum litið upp, og sjá, höll ein háreist, stóð fyrir framan hann, er Fegrð hèt, og var fast við þjóðveginn. (Opb. b. 3. 2; 1 Thess. 5. 7, 8.)

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

5. kafli af 31 · 14 mín. eftirKrossinn og Örðugfell