Sjötti kafli
Höllin Fegrð
Nú þótti mèr hann hvetja sporið og halda áframm, til þess að fá þar nætrgistingu ef unt væri. Enn er hann hafði farið skamt eitt, kom hann í þröngt einstigi, er var rúmar þrjár teigslengdir frá húsi hallarvarðarins. Nú horfði hann vandlega í kringum sig, er hann gekk einstigið og varð bráðum var tveggja ljóna er voru á veginum. Nú sè eg hættuna, sagði hann við sjálfan sig, er fældi heim aftr þá Vantrausta og Huglaus. (Ljónin voru bundin, enn hann sá ekki festarnar.) Nú varð Kristinn hræddr, og datt í hug, að snúa við, og fara sömu leið og þeir fèlagar; því hann sá nú ekkert fyrir nema dauðann. Enn dyravörðrinn, er hèt Vakr, sá að Kristinn stóð við, eins og hann væri að hugsa um að snúa aftr, og kallaði til hans og sagði: Er máttr þinn svo lítill? (Mark 4. 40.) Óttastu ekki ljónin, þau eru bundin. Þau eru höfð hèr til þess, að reyna trú manna, þar sem hún er til, og til þess, að koma upp um þá, sem enga trú hafa. Farðu miðja götuna, þá er þèr engin hætta búin.
Þá sá eg, að hann hèlt áframm, enn hann skalf þó af hræðslu fyrir ljónunum. Enn hann fór í öllu að, sem dyravörðr lagði fyrir. Hann heyrði ljónin öskra, enn ekkert mein fengu þau unnið honum. Þá klappaði Kristinn lof í lófa, og gekk áframm, þangað til hann stóð við hliðið, þar sem dyravörðr var fyrir. Þá segir Kristinn við dyravörð: Herra minn, hvaða hús er þetta? fæ eg að vera hèr í nótt? Dyravörðr svaraði: Þetta hús hefir reist landsdrottinn sá er fjallið á: hefir hann reist það til þess, að vera hvíldarstaðr og sæluhús fyrir pílagríma. Dyravörðr spurði nú Kristinn, hvað manna hann væri, og hvert hann ætlaði.
Kristinn: Eg er kominn frá Glötunarborg og er á leið til Zíons fjalls. Enn nú er sól sezt, og því verð eg að beiðast gistingar hèr í nótt, ef eg má.
Dyravörðr: Hvað heitir þú?
Kristinn: Nafn mitt nú er Kristinn; enn fyrr meir hèt eg Náðarlaus. Eg er kominn af ættboga Japhets, sem Guð mun fá til að dvelja í tjöldum Shems. (1 Mós. b. 9. 27.)
Dyravörðr: Enn hvað veldr, að þú kemr svo seint? Sól er þegar gengin undir.
Kristinn: Eg hefði komið fyrr, hefði eg ekki, vesall maðr, sofnað í laufskálanum sem stendr í fjallshlíðinni. Já, og þó eg nú sofnaði, hefði eg orðið fyrri, eigi að síðr, ef eg hefði ekki týnt vitnisburðar skrá minni, og farið alla leið upp á fjalls brún án þess að taka eftir því. Þá fór eg að þreifa eftir henni, enn fann hana hvergi, neyddist því til að fara aftr með sorgmæddu hjarta alla leið, þangað sem eg hafði sofið. Þar fann eg hana aftr; og nú er eg hèr kominn.
Dyravörðr: Nú, jæja. Eg ætla að gera boð eftir einni af meyjunum sem hèr eiga heima. Ef henni gezt að tali þínu, þá fer hún með þig til heimilis fólksins, eins og fyrir er lagt í hússreglunum. Vakr dyravörðr hringdi nú bjöllu, og kom þá framm alvarleg mær og fögr sýnum, er Varhygð hèt, og spurði hverju gegndi að á sig væri kallað.
Dyravörðr svaraði: Maðr þessi er á ferð frá Glötunarborg til Zíons fjalls. Hann er aðþreyttr af ferðalagi, og náttfari orðinn, og beiddist því gistingar hèr í nótt. Eg sagði honum þá, að eg skyldi kalla á þig, svo þú gætir haft tal af honum og síðan gjört hvað þèr gott þætti, eftir því sem fyrir er lagt í hússreglunum.
Nú spurði hún Kristinn hvaðan hann væri, og hvert hann ætlaði; enn hann sagði sem var. Hún spurði hann þá hvernig hann hefði komizt á veginn, og sagði hann henni. Hún spurði hann þá hvað hann hefði sèð, og hvað hann hefði hent á veginum; hann svaraði sem var. Loks spurði hún hann að nafni. Hann kvað nafn sitt vera Kristinn; og væri mèr það því heldr ljúft að fá að vera hèr í nótt, sem eg heyri, að Lávarðr sá, er fjallið á, hefir látið reisa hús þetta til þess, að verða pílagrímum hvíldar og sælu hús. Þá brosti mærin, enn tárin stóðu henni í augum; mælti síðan: Eg ætla að kalla á tvo eða þrjá til af heimilisfólkinu. Hún hljóp þá að dyrum nokkurum og kallaði á Forsjá, Guðhrædd og Manngæzku; þær áttu stutt viðtal við Kristinn, og fóru svo með hann inn til heimilisfólksins. Margir mættu honum við dyra þreskjöldinn og sögðu: Kom þú inn, blessaði Lávarðar þíns; þetta hús var reist að fyrirsögn landsdrottins, er fjallið á, til þess, að veita þar beina slíkum pílagrímum sem þú ert. Þá hneigði Kristinn höfuð sitt og fór með þeim inn í húsið. Þegar inn var komið, var Kristni vísað til sætis, og fært að drekka; enn heimilisfólki kom saman um það, að sumir skyldu verja tímanum, þangað til kvöldverðr væri framm settr, til þess, að ræða við Kristinn um ýmisleg efni. Þær Guðhrædd, Forsjá, og Manngæzka voru settar til að skrafa við hann; og tóku þau nú tal með sèr á þessa leið:
Guðhrædd: Kondu, góði Kristinn, og fyrst okkr þykir svo vænt um þig, að við höfum tekið þig að okkr nætrlangt, þá er jafn gott þó við bætum okkr á því að ræða við þig um allt sem á daga þína hefir drifið á pílagrímsferð þinni.
Kristinn: Af öllu hjarta, og mèr þykir vænt, að yðr er þetta ljúft.
Guðhrædd: Hvað kom þèr fyrst til þess, að ráðast í pílagríms-lifnað?
Kristinn: Óttaleg rödd, sem jafnan ómaði mèr í eyrum, rak mig að heiman frá ættjörðu minni; enn röddin boðaði mèr, að mín biði óumflýanleg glötun, ef eg lèti fyrirberast þar sem eg var.
Guðhrædd: Enn hvernig atvikaðist það, að þú skyldir leggja á þessa leið, er þú fórst úr átthögum þínum?
Kristinn: Það var að Guðs vilja. Því meðan á mèr lá óttinn fyrir glötuninni, vissi eg ekkert hvert eg skyldi halda. Enn þá vildi svo til, þegar eg stóð titrandi og grátandi, að maðr kom til mín, er Fagnaðarboði hèt; og hann sagði mèr að fara að þröngva hliðinu, sem eg hefði annars aldrei fundið; og með því móti sagði hann mèr einmitt til þess vegar, er liggr beina leið að þessu húsi.
Guðhrædd: Enn komstu ekki við hjá Fræðara?
Kristinn: Jú; og þar sá eg margt, er mun loða mèr í minni meðan eg lifi. Þar sá eg það, hvernig Kristr elr á starfsemi náðarinnar í hjarta mannsins, þrátt fyrir alla djöfulsins viðleitni. Þar sá eg manninn, er syndgað hafði svo, að öll von um Guðs náð var honum horfin. Þar heyrði eg líka draum mannsins, er þótti dómsdagr vera kominn.
Guðhrædd: Hvernig þá? heyrðirðu hann segja hann sjálfan?
Kristinn: Já; og hræðilegr var draumr sá, að mèr þótti; mig tók inn að hjarta, þegar hann var að segja hann. Þó þykir mèr betra enn ekki að hafa heyrt hann.
Guðhrædd: Var þetta allt sem þú sást heima hjá Fræðara?
Kristinn: Nei. Hann fór með mig þangað sem var reisug höll ein, og sýndi mèr fólkið þar, allt í gull-klæðum. Þar sá eg líka hugdjarfan mann koma, og höggva sèr braut gegnum vopnað lið, er stóð fyrir hallardyrum, til þess að banna honum aðgöngu. Þessum manni var síðan boðið að koma inn og þiggja eilífa dýrð. Eg varð frá mèr numinn af þessum hlutum. Hefði eg ekki átt þessa ferð fyrir mèr, þá skyldi eg hafa verið hjá þessum góða manni heilt ár.
Guðhrædd: Enn hvað hefir nú borið fyrir þig á leiðinni?
Kristinn: Borið fyrir mig? Margt. Þegar eg hafði skamt farið að heiman frá Fræðara, sá eg mann, sem mèr virtist hanga á trè blóðugr. Og á sama augnabliki og eg sá hann, fèll byrði mín mèr af baki; því eg stundi undir ofrþunga mikillar byrðar, enn þá datt hún laus mèr af herðum. Þetta var nýstárlegt fyrir mig, því eg hafði aldri sèð slíkt fyrr: já, og meðan eg stóð þarna með augun hafin í hæðir, því eg gat ekki annað enn hafið upp sjónir mínar, þá komu þrír skínandi menn til mín. Einn þeirra vottaði, að mèr væru syndirnar fyrirgefnar. Annar færði mig úr tötrum mínum, og færði mig í þenna sprangaða kufl, er þú nú sèrð. Enn þriði setti merkið á ennið á mèr, er þú getr sèð, og fèkk mèr þessa innsigluðu skrá. Tók Kristinn skrána nú framm úr barmi sínum.
Guðhrædd: Enn þú sást fleira enn þetta, er ekki svo?
Kristinn: Það, sem eg nú hefi sagt þèr, var merkast alls er eg sá. Eg hefi þó sèð margt fleira; eg sá, til að mynda, þrjá menn, Einfald, Latann og Sèrgóðann, liggja sofandi skammt frá veginum er eg fór, með fjötra á fótum. Enn láttu þèr samt ekki detta í hug, að eg fengi vakið þá. Eg sá líka hvar Vanafastr og Hræsnari klifruðust yfir garðinn inn á veginn, og þóttust ætla til Zíons fjalls. Enn þeir týndust fljótt, eins og eg sagði þeim fyrir, þó að þeir vildu ekki trúa mèr. Enn aldrei hefi eg komizt í krappari raun, enn að komast upp á þetta fjall og framm hjá gini ljónanna. Og satt að segja, hefði ekki dyravörðrinn verið, sem stendr við hliðið, þá veit eg ógjörla nema eg hefði horfið aftr eftir allt saman. Enn nú þakka eg Guði mínum, að eg er hèr kominn, og ykkr fyrir það, að hafa lofað mèr að vera.
Nú vildi Forsjá spyrja hann nokkurra hluta og vildi heyra andsvör hans.
Forsjá: Hugsarðu ekki stundum heim í átthága þína?
Kristinn: Jú. Enn það gjöri eg blygðunarfullr og með viðbjóði miklum. Því eg segi þèr satt, að hefði eg þráð land það er eg fyrirlít, þá hefði mig sízt skort færi á að hverfa heim aftr. Enn nú þrái eg betra land—ið himneska. (Hebr. 11. 15, 16.)
Forsjá: Loðir nú þó ekki við þig, ýmislegt, er þèr var tamt meðan þú varst heima?
Kristinn: Jú; og er mèr þó mjög á móti skapi. Helzt þó huldar holdlegar hugrenningar, sem öllum samlöndum mínum og mèr með voru kærstar. Enn nú er mèr allt þetta sorgar efni eitt. Og gæti eg að eins á kosið, vildi eg helzt að mèr aldri dytti neitt slíkt í hug. Enn þegar eg vil gjöra hið góða, þá er hið illa í mèr. (Róm. 7. 15–21.)
Forsjá: Enn finnst þèr ekki stundum að þú hafir yfirstigið það, sem aðra stundina kemr þèr í vöflur og vafa?
Kristinn: Jú. Enn sjaldan er það. Enn þegar svo ber undir, eru þær stundir mèr gulls ígildi.
Forsjá: Getrðu munað með hvaða móti það atvikast, er þèr finnst stundum þú hafa yfirstigið það er stríðir á þig?
Kristinn: Já. Það verðr með því móti, að eg hugsi um það, sem eg sá við krossinn; það verðr og, er eg horfi á kufl minn, enn glitaða; það verðr og enn, er eg lít í skrána, sem eg ber í barmi mèr; það verðr líka, er hjartað hitnar af tilhugsuninni um það, hvert ferð minni er heitið.
Forsjá: Og hvað er það, er ollir þráa þínum að komast til Zíons fjalls?
Kristinn: Hví spyrðu? enn það, að fá að sjá hann þar lifandi, sem hèkk dauðr á krossi; og það, að þar vona eg að fá losast við allt er hingað til hefir verið mèr til ama og hrellingar. Þar segja menn sè enginn dauði. (Es. 25. 8; Opb. b. 21. 4.) Þar fæ eg dvalið í þeirra felagi, er eg ann bezt. Því, þèr satt að segja, elska eg hann, vegna þess, að það var að hans völdum, að eg losaðist við byrði mína; og eg er þreyttr á eymd míns innra manns. Eg vil feginn vera þar, sem eg dey ekki framar, og í felagi þeirra, er sífelt kalla: Heilagr, heilagr, heilagr.
Þá mælti Manngæzka við Kristinn: Áttu börn? Ertu giftr?
Kristinn: Eg á konu og fjögur ung börn.
Manngæzka: Hví lèztu þau ekki verða þèr samferða?
Kristinn: Þá grèt Kristinn, og sagði: Ó það hefði mèr verið allra hluta kærst! enn þeim var það öllum alsendis þvert um skap, að eg tækist pílagríms ferð á hendr.
Manngæzka: Enn þú hefðir átt að tala um fyrir þeim, og sýna þeim framm á það, hvað hættulegt var fyrir þau að vera eftir.
Kristinn: Eg gjörði það. Eg sagði þeim líka, hvað Guð hefði opinberað mèr um tortýningu borgarinnar. Enn það var eins og eg væri að fara með gabb við þau, og þau trúðu mèr ekki.
Manngæzka: Og beiddirðu Guð að leggja blessan sína á fortölur þínar?
Kristinn: Já, og bað þess heitt; því þú skalt vita, að eg elskaði innilega konu mína og börn.
Manngæzka: Enn sagðir þú þeim þá þína eigin sorg, og ótta fyrir glötuninni? Því eg þykist vita, að þú hafir sèð glötunina full glöggt fyrir.
Kristinn: Já, hvað eftir annað. Enda gátu þau sèð hræðslu mína í andlitinu á mèr, í tárum mínum, og af titringnum sem í mèr var, sökum þeirrar hræðslu, er eg hafði fyrir dómnum, er vofði yfir höfðum vorum. Enn allt þetta var árangrslaust að fá þau til að verða mèr samferða.
Manngæzka: Enn hvað báru þau fyrir sig, er þau vildu ekki fara með þèr?
Kristinn: Konan mín var hrædd um það, að hún mundi verða af þessum heimi, enn börnin voru sokkin niðr í enar fánýtu unaðsemdir gjálífrar æsku. Og þannig varð því hitt og þetta til þess, að þau lètu mig fara þessarra ferða minna einn míns liðs.
Manngæzka: Enn dróg þá ekki hègómlegr lifnaðr þinn allan mátt úr orðum þínum, er þú taldir um fyrir þeim að verða þèr samferða?
Kristinn: Ekki get eg reyndar hrósað lifnaði mínum, því eg veit bezt sjálfr, að honum er í mörgu ábóta vant. Enda veit eg vel, að dagfar manns getr ónýtt það, sem hann reynir að fá fest í huga annarra þeim til lífernis bóta með röksemdum og fortölum. Enn það má eg fullyrða, að eg var mjög varkár, að láta þau verða vör við nokkura ósæmilega athöfn í fari mínu, er gæfi þeim efni til þess, að verða fráhverf því, að fara pílagríms ferðina með mèr. Já, og það var einmitt fyrir þetta, að þau lètu það heyrast, hvað eftir annað, að eg væri allt of vandfísinn, og synjaði mèr um marga hluti—það gjörði eg þeirra vegna—er þau sæju ekkert illt í. Og eg held mèr sè óhætt að segja það, að hafi þau sèð nokkuð í fari mínu, er aftraði þeim frá, að fara með mèr, þá hafi það verið það, að eg var svo ýtarlega varúðarsamr, að syndga ekki gegn Guði, eða gjöra náunga mínum nokkurt mein.
Manngæzka: Svona er það. Kain hataði bróður sinn, af því, að hans eigin verk voru vond, enn verk bróður hans voru verk rèttlætisins; og hafi kona þín og börn styggzt við þig af sama efni, þá sanna þau og sýna með því, að þau vilja ekki sátt vera við það sem gott er. Þú hefir leyst sál þína af blóði þeirra. (Es. 3. 19.)
Mèr þótti þau nú ræðast þannig við, þangað til að kvöldverðr var frammborinn. Og er allt var til búið settust þau að máltíð. Borð var búið feitum krásum, ágætum vínum, og allar borðræðurnar voru um Lávarð þeirra, eiganda fjallsins; svo sem um verk þau, er hann hefði gjört, og hví hann gjörði það sem hann gjörði, og hví hann hefði reist hús þetta. Af viðræðum þeirra fèkk eg ráðið, að Lávarðr þessi hefði verið mikill og frægr í hernaði, og hefði barizt við þann, er hafði vald dauðans, og lagt hann að velli. (Hebr. 2. 14, 15.) Enn sjálfr hafði hann ratað í mikla hættu í þeim bardaga, og fyrir það lagði eg enn meiri ást á hann.
Því að hann vann þenna sigr, að því er þau sögðu, og eg ætla að Kristinn segði líka, með miklu blóðláti. Enn úr öllu er hann gjörði skein dýrð náðarinnar, því hann gjörði það af einskærri elsku til lands síns. Enn fremr þótti mèr sumir af heimilisfólkinu segja, að þeir hefðu talað við hann síðan hann dó á krossinum, og þeir enir sömu fullyrtu, að þeir hefðu það frá honum sjálfum, að hann bæri þá elsku til umkomulítilla pílagríma, að hennar líka mætti hvergi finna milli heimsskauta jarðar. Til sönnumar því, sem þeir fóru með, færðu þeir það dæmi framm, að hann hefði affærzt eigin dýrð, til þess, að hann gæti látið enum voluðu miskunnar verk sín í tè; og að þeir hefðu heyrt hann segja, að hann vildi ekki dvelja einmana á Zíons fjalli. Enn fremr sögðu þeir, að hann hefði gjört marga pílagríma að prinzum, þó að þeir hefðu verið beiningamenn bornir, og sorphaugr verið fæðingarstaðrinn. (1 Sam. 2. 8; Sálm 113. 7.)
Á þenna hátt ræddust menn við framm á nótt, og gengu til hvíldar, er þeir höfðu falið sig vernd Drottins síns. Pílagrími var vísað til sængr í stóru lofthúsi, þar er gluggar horfðu við sólar upprás. Þetta herbergi hèt Friðr. Kristinn svaf, þangað til dagr ljómaði; þá vaknaði hann, og söng:—
Hvar em eg nú? Er slík þín elska trú,Ó Jesú, viðr Zíonsferla þjáða,Að hafa þannig rètt minn hag, að núEg hvíldar nýt og tekinn er til náða,Og dvöl má eiga friðþægðr hèr fyr,Enn fèkk eg vonað, næst við himins dyr?
Morguninn eftir, er farið var á fætr, hèldu þau áframm um tíma líku viðtali og kvöldið áðr. Síðan sögðu þau Kristni, að hann fengi ekki að fara, fyrr enn þau væru búin að sýna honum það, er fásèð og dýrligt væri í húsinu. Fyrst fóru þau með hann inn í bókasafnið. Þar sýndu þau honum ýkja-forn skjöl og skrár. Þar, meðal annars, minnir mig mèr þætti þau sýna honum ættartölu Lávarðarins, fjalls eigandans, er sýndi, að hann var Sonr Daganna Öldungs, og var kominn af eilífu langfeðga tali. Hèr mátti og sjá færð í sögur mörg afreksverk hans, og nöfn margra hundraða, er hann hafði þegið í þjónustu sína; það var og skráð, að hann hefði fengið þeim hýbýli, er hvorki dagalengd nè nokkur hrörnan fær unnið á.
Síðan lásu þau honum sögur um lofleg verk, er ýmsir þjóna hans höfðu unnið, er höfðu yfirunnið konungaríki, framið rèttvísina, öðlast fyrirheitin, byrgt gin ljóna, slökkt eldsins afl, um flúið sverðs eggjar, orðið styrkvir eftir veikindi, öflugir í stríði, rekið her óvinanna á flotta. (Hebr. 11. 33, 34.)
Þau lásu honum enn úr öðrum skjölum hússins sögur, er sýndu, hversu fús Lávarðr þeirra væri, að taka aftr í náð jafnvel þá sem áðr höfðu óvirt hann og unnið starfsemi hans allt það mein, er þeir máttu. Hèr mátti og lesa margar merkis sögur um mikla viðburði, og gat Kristinn litið yfir þá alla, eins hina fornu eins og hina nýrri; þar á meðal voru spádómar og fyrirboðanir um ýmsa þá hluti, sem eflaust rætast, óvinunum til ótta og skelfíngar, enn pílagrímum til huggunar og gleði.
Daginn eftir fóru menn með hann inn í herklæða búrið; þar var að sjá allar vopnategundir; og hafði Drottinn þeirra ætlað vopu þessi handa pílagrímum. Þar voru sverð og skildir, hjálmar og brjóstverjur og bænabækr. Þar voru og skór, sem aldrei gatslitna. Af öllum þessum herbúnaði var hèr svo mikil gnægð fyrir, að búa mátti út í þjónustu Lávarðar hússins eins marga menn og margar eru stjörnur á himninum.
Nú sýndu menn Kristni áhöld, er ýmsir af þjónum herra hans höfðu haft og frammkvæmt þrekvirki mörg með. Sýndu menn honum staf Mósis; hamarinn og naglann, er Jael vann á Sisera með; krukkurnar, lúðrana og blysin, sem Gídeon rak með á flótta her Midiumanna. Þá sýndu menn honum atgeirinn, er Shamgar vann með á sex hundruðum manna, þá asna kjálkann, er Samson vann hin miklu stórvirki með; honum var sýnd, enn fremr, slángan og steinninn sem Davíð drap Goliat með, þa sýndu menn honum og sverð það, er Drottinn mun deyða syndarana með á hinum mikla degi dómsins. Auk þessa sýndu þeir honum marga aðdáanlega hluti, og fengu þeir Kristni mikils unaðar. Að því loknu lögðust þeir til hvíldar aftr.
Morguninn eftir, er hann kom á fætr, þótti mèr hann ætla að leggja af stað, en þá komu heimilismenn að, og lögðu að honum að vera til næsta dags. Ef að veðrið verðr heiðríkt á morgun, sögðu þeir, ætlum við að sýna þèr Unaðarfjöll; sögðu þeir, að þau mundu auka á ánægju hans, með því, að þau væri nær hinni þráðu höfn, enn sá staðr, er hann væri nú á. Þetta leizt Kristni gott ráð, og varð hann þar um daginn.
Morguninn eftir fóru þeir með Kristinn upp á mæninn á húsinu, og beiddu hann horfa til suðrs. Hann gjörði svo, og sá í allmikilli fjærð unaðfagrt fjall-lendi, skreytt skógum, víngörðum, allskonar ávöxtum, blómum, gosbrunnum og vezlulyndum. Var þetta undrfagrt viðsýni. (Es. 33. 16, 17.) Því næst spurði hann, hvað land þetta hèti; þeir nefndu það Emanúels land, og er það ætlað pílagrímum til almennra afnota, eins og fjallið. Þegar þú kemr þangað, sögðu þeir, þá sèrðu glöggt hlið hinnar himnesku borgar, og munu hirðar þeir, er þar hafast við sýna þèr það.
Nú fór Kristinn að hyggja til ferðar, og vildu heimilismenn ekki halda honum lengr. Enn áðr enn hann færi af stað, beiddu þeir hann koma aftr inn í vopnabúrið; klæddu þeir hann þar frá hvirfli til ilja í margreynd hertýgi úr málmi, svo hann hefði hlífar traustar, ef einhver kynni að ráðast á hann á leiðinni. Með þessu alvæpni rèðst hann nú til ferðar, og fylgdu vinir hans honum til dyra. Hann spurði nú dyravörðinn, hvort hann hefði sèð för nokkurra pílagríma um veginn, og kvaðst hann, hafa sèð einn fara hjá.
Kristinn: Segðu mèr, góði vin, þekktirðu hann?
Dyravörðrinn: Eg spurði hann að nafni; enn hann kvaðst Trúr heita.
Kristinn: Æ, er það hann. Eg þekki hann. Hann var sambýlismaðr minn og nágranni. Hann kemr frá fæðíngarbæ mínum. Hvað langt heldrðu hann sè kominn á undan mèr?
Dyravörðrinn: Hann er núna kominn hèr um bil niðr af fjallinu.
Kristinn: Gott.—Guð veri með þèr, góði dyravörðr, og auki og margfaldi hamíngju þína fyrir velvilja þann allan, er þú hefir sýnt mèr.
Nú fór hann af stað. Enn Varhygð, Guðrækni, Manngæzka og Forsjá fylgdu honum úr garði niðr fjallið. Urðu þau nú öll samferða, og hófu samræður sínar um sama efni og fyrr við borðið, og ræddust þannig við, þangað til snarbrekkan tók við. Þá sagði Kristinn: Hættulegt var að komast hèr upp, enn ekki er minni hætta að komast niðr, að því er eg fæ sèð. Það er satt, sagði Forsjá, því það er mannsins eitt hið versta verk, að fara leiðina sem þú ferð núna, niðr í Niðrlægíngardalinn, án þess að skrika út af veginum, og þess vegna förum við allar með þèr, til að fylgja þèr niðr af fjallinu.
Tifaði Kristinn nú hægt og hægt niðr eftir brekkunni og rann honum þó fótr af og til.
Nú þótti mèr hinir góðu leiðsögumenn Kristins gefa honum brauðhleif, vínflösku og aldini, þegar hann var kominn niðr á jafnslèttu; og fór hann svo ferða sinna einn.