Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

29. kafli

Sannleikshetja

um 12 mín. lestur

Þegar þeir skildu við hirðana, komu þeir bráðum þangað, er Kristinn hafði mætt Frávillingi úr borg þeirri er Fráhvarfsstaðir heitir. Hugprúðr minnti nú pílagrímana á mann þenna, og sagði: Þarna er staðrinn þar sem Kristinn mætti Frávillingi, er bar á baki sèr vottorð um þverbreytni sína, og um þenna mann verð eg að segja yðr nokkuð. Hann vildi aldri þekkjast nokkurs manns ráð, og er hann var kominn á hrunið fengu engar fortölur stöðvað hann. Þegar hann kom þangað, er krossinn og gröfin var, mætti hann manni, er beiddi hann að horfa þangað; enn hann gnísti tönnum, og stappaði fótum, og kvaðst alráðinn að halda heim aftr til sín. Áðr enn hann kom að borgar hliðinu mætti hann Fagnaðarboða, er bauðst að leggja hendr á hann og koma honum aftr á rètta leið. Enn Fráhorfinn þessi andmælti honum og er hann hafði lengi þráttað við hann, hljóp hann á brott yfir garðinn, og slapp þannig frá Fagnaðarboða.

Nú hèldu þeir áframm; og þegar þeir komu þar sem Trúarveikr hafði verið rændr, sáu þeir, hvar maðr stóð með brugðnu sverði og lagaði í blóði um andlitið. Hugprúðr spurði hann, hvað manna hann væri. Maðrinn svaraði: Nafn mitt er Sannleikshetja. Eg er pílagrímr, á leið til ennar himnesku borgar. Þegar eg kom hèr, og fór leiðar minnar í grandleysi, settust að mèr þrír menn, og gjörðu mèr þessa þrjá kosti: 1, að gjörast fèlagi þeirra. 2, að hverfa aftr þangað er kom frá. 3, eða deyja ella þar sem eg stæði. (Orðskv. 1. 11–14.) Fyrstu kvöðinni svaraði eg því, að eg hefði nú um langan tíma verið ráðvandr, og yrði því eigi búizt við því, að eg mundi nú leggja lag mitt við þjófa. Þá spurðu þeir hverju eg ætlaði að svara til næstu kvaðar. Eg sagði þeim, að eg hefði aldri farið heiman úr átthögum mínum, ef mèr hefði ekki verið ill-vært þar; enn með því eg fann, að það var staðr er átti allsendis illa við mig, og var mèr til allrar óblessunar, yfirgaf eg hann, og lèt í þessa ferð. Þá spurðu þeir, hverju eg mundi svara þriðju kvöðinni. Eg svaraði, að líf mitt væri langt um dýrara enn svo, að eg mundi selja það framm fyrir smáræði. Enda kannast eg ekki við, að þèr hafið neinn rètt til þess, að setja mèr nokkura afar kosti; og skal það á yðr bytna, ef þèr skiftið yðr að nokkuru um mína hagi. Þá rèðust þeir á mig, þrír saman, Æðikollr, Gálaus og Hnýsinn, enn eg tók á móti þeim og varðist. Nú gekk enum ójafna leik milli okkar, þriggja eins vegar, og eins hins vegar, í meira enn þrjár stundir samfleyttar. Eins og þið sjáið hafa þeir skilið eftir á mèr merki hreysti sinnar, enda hafa og borið hèðan nokkurar skeinur frá mèr. Þeir eru rètt nýfarnir hèðan. Eg held þeir sè ekki lengra undan enn svo, að þeir gætu heyrt fák þinn skella hófum, eins og máltækið segir, og fengið lagt á flótta í tíma.

Hugprúðr: Enn hèr var all-ójafnt á komið, er þrír sóktu gegn einum.

Sannleikshetja: Það er satt. Enn þann sem hefir sannleikann sín megin munar engu, hvort við fleiri eða færri er að etja. Þó hersveitir setist að mèr, segir skáldið (Sálm 27. 3), skal hjarta mitt ekki óttast; þó stríð sè hafið gegn mèr, skal eg samt vera rólegr. Enda hefi eg lesið einhvers staðar, sagði hann, að einn maðr hafi barizt gegn heilu herliði, og hvað marga vann Samson með asnakjálkanum?

Hugprúðr: Enn hví kallaðir þú ekki hátt um hjálp, til þess að vita, hvort einhver kæmi þèr ekki til liðs?

Sannleikshetja: Eg kallaði á konung minn, er eg vissi mundi heyra mig, og veita mèr ósýnilega hjálp, og það lèt eg mèr nægja.

Hugprúðr mælti þá við Sannleikshetju: Þú hefir sýnt ena ágætustu vörn; lofaðu mèr að sjá sverð þitt. Sannleikshetja rètti honum sverðið. Þegar Hugprúðr hafði skoðað það um hríð, sagði hann, já, þetta er Jórsala brandr, það má sjá.

Sannleikshetja: Það er satt. Hverjum sem þenna brand hefir, og er nógu handsterkr að halda á honum og nógu vopnfimr að fara með hann, er óhætt að ráðast á engil með honum. Hann þarf ekki að óttast, að hann dugi ekki, ef hann kann að beita honum. Eggin sljófgast aldri. Hann sníðr hold og bein, sál og anda og allt saman. (Hebr. 4. 12.)

Hugprúðr: Enn þú barðist lengi; mig furðar á því, að þú skulir ekki vera þreyttr.

Sannleikshetja: Eg barðist þangað til sverð mitt loddi mèr við hönd; og þá var sem hönd og vopn greri saman og sverðið stæði framm úr armi mèr, samgróið honum, og þegar blóðið lagaði mèr um greipar barðist eg ótrauðastr.

Hugprúðr: Þú hefir vel að unnið; þú hefir staðið gegn syndinni allt til blóðs þíns. Þú skalt vera með oss; ganga inn og fara út með oss, því að vèr erum fèlagar þínir. Síðan fóru pílagrímar með hann og þóu sár hans, og gáfu honum það sem fyrir hendi var að endrlífga hann; síðan hèldu þeir allir áframm ferðinni.

Hugprúð þótti mjög mikið koma til Sannleikshetju, því honum fannst mjög um alla er hann fann að voru afreksmenn og fullhugar. Þegar þeir því hèldu áframm ferð sinni notaði hann samfylgd Sannleikshetju til þess, að spyrja hann ýmissa hluta, með því margir voru í þessum hóp, er veikir voru og vanburða. Fyrst spurði hann hvers lands maðr Sannleikshetja væri.

Sannleikshetja: Eg kem frá Dökkheimum, þar var eg fæddr og þar er foreldri mitt enn þá.

Hugprúðr: Dökkheimum? sagði leiðtoginn, liggja þeir ekki að sömu strönd eins og endimerkr Glötunarborgar?

Sannleikshetja: Jú, svo er víst. Enn það, sem til bar að eg rèðst í pílagrímsför, var það, að maðr nokkr, að nafni Sannsögull, var á ferð þar um svæði, er við bjuggum, og hann sagði alls staðar söguna um örlög og afdrif Kristins frá Glötunarborg, er horfið hafði frá konu og börnum og ráðizt í pílagrímalifnað. Það var altalað, að hann hefði drepið dreka, er ráðizt hefði á hann til þess að gjöra hann aftrreka af pílagrímsför sinni. Og allir sögðu söguna um það, hvernig hann hafði komizt alla leið þangað er hann hafði fyrst ætlað sèr. Það frèttist líka, hvernig honum hafði verið tekið alls staðar, er hann bar að sæluhúsum Lávarðar síns, einkum þó, er hann kom að hliði hinnar himnesku borgar; því þar, sagði þessi maðr, hafði verið við honum tekið með lúðra hljómi ljómandi herskara. Hann sagði líka frá því, að öllum klukkum borgarinnar hefði verið hringt af fögnuði við komu hans, og að hann hefði verið í færðr gullnum skrúða. Margt fleira sagði hann og í frèttum um Kristinn, sem eg get ekki talið upp að svo stöddu. Í stuttu máli, hann sagði söguna um Kristinn og ferðir hans svo vel, að hjarta mitt brann af bráðri löngun að fara sömu ferð og hann, og fèkk ekki einu sinni faðir minn nè móðir aftrað mèr frá förinni. Eg fór því frá þeim, og er nú hingað kominn farar minnar.

Hugprúðr: Þú komst á leiðina inn í gegnum hliðið, er ekki svo?

Sannleikshetja: Sei, sei já. Því sami maðrinn sagði okkr að allt væri til einskis gjört, ef við ekki færum inn á veginn um hliðið.

Hugprúðr: Skoðaðu nú, Kristín, pílagrímsferð manns þíns og allt er hann vann með þeirri ferð, hefir þegar spurzt út um önnur lönd.

Sannleikshetja: Hvað segirðu? er þetta kona Kristins?

Hugprúðr: Svo er víst. Og þetta eru synir hans, þessir fjórir saman.

Sannleikshetja: Hvað, þessir? og komnir á pílagrímsferð líka?

Hugprúðr: Svo er víst sem þèr sýnist. Þeir fara nú þar eftir, sem faðir þeirra fór fyrir.

Sannleikshetja: Þetta gleðr hjarta mitt að heyra. Ó, hve glaðr hann verðr, hinn góði maðr, að sjá þá, sem ekki vildu verða honum samferða, koma nú á eftir honum inn um dyr hinnar himnesku borgar.

Hugprúðr: Það er efalaust, að það verðr honum huggun mikil, því næst fagnaðinum að sjá og vita sig sjálfan þar verðr sú gleði að fá að heilsa konu og börnum þar.

Sannleikshetja: Enn fyrst þú hefir nú minnzt á þetta efni þá gjörðu svo vel, að láta mig heyra skoðun þína um það. Sumir efast, hvort vèr munum þekkja hvor annan er þangað er komið.

Hugprúðr: Heldr þú að þeir þekki sig sjálfa þá, eðr fagni yfir því, að sjá sjálfa sig í þeirri sælu? Ef menn nú ætla að þeir þekki sig sjálfa og hafi meðvitund um eigin sælu, hví skyldu þeir þá ekki þekkja aðra og fagna yfir sælu þeirra líka? Og með því náfrændr eru svo að kalla vor eigin helft, þó að það samband verði rofið þar, hví skyldi menn þá ekki mega ráða af þessu skynsamlega, að vèr munum fagna meira yfir því, að sjá þá þar, enn að sjá það að þeir eru þar ekki?

Sannleikshetja: Gott. Eg sè hvað þú ferð. Hefir þú nokkuð fleira að spyrja um er lýtr að því, hvernig eg rèðst í pílagrímsför mína?

Hugprúðr: Já. Var foreldrum þínum ljúft, að þú skyldir fara í pílagrímsferð?

Sannleikshetja: Nei, það var langt frá. Þau reyndu allt er þeim gat dottið í hug, að fá mig til þess, að sitja kyrr heima.

Hugprúðr: Nú hvað færðu þau þá til móti því?

Sannleikshetja: Þau sögðu, að það væri ónýtt líf og iðjulaust, enn eg væri alls ekki hneigðr á iðjuleysi og leti af eðlisfari, og mundi mèr því aldrei geðjast að hag og kjörum pílagríma.

Hugprúðr: Hvað sögðu þau fleira?

Sannleikshetja: Þau sögðu mèr, að það væri hættuvegr, já sá hættulegasti vegr í heiminum, sá er pílagrímar fara.

Hugprúðr: Sýndu þau þèr framm á hættusemi þessa vegar?

Sannleikshetja: Já, og tíndu margt til.

Hugprúðr: Nefndu mèr eitthvað af því.

Sannleikshetja: Þau sögðu mèr frá Sturlandíki, þar sem Kristinn var því nær að vera kafnaðr. Þau sögðu mèr að bogamenn stæðu síbúnir í Beelsebubs virki, að skjóta þá er berja að dyrum og beiðast inngöngu í Þröngvahliði. Þau sögðu mèr frá villi-skógunum og enum dimmu fjöllum, frá Örðugfelli, ljónunum og risunum Blóðhundi, Hamri og Góðrabana. Enn fremr sögðu þau mèr að mein-reimt væri í Niðrlægingardal og hefðist enn versti fjandi þar við, og hefði hann nærri því fengið ráðið Kristin af lífi. Enda er þèr einn kostr nauðugr, sögðu þau, að fara um Dauðansskugga-dal, þar sem fullt er af draugum og forynjum, þar sem ljósið er myrkr, og vegrinn er krökr af snörum, holum, gildrum og vèlum. Þau sögðu mèr og frá Örvæn risa í Efavirki og frá óförum þeim, er pílagrímar hefðu orðið þar fyrir. Enn fremr sögðu þau, að eg yrði að fara um Töfravelli, er væru hættusamir mjög, og eftir allt þetta mundi mig bera að brúarlausri á er rynni milli mín og hins himneska lands.

Hugprúðr: Er nú öll sagan sögð?

Sannleikshetja: Þau sögðu mèr líka, að vegrinn væri alskipaðr svikurum og mönnum, er sætu þar launsátrum til þess fá góða menn leidda afvega.

Hugprúðr: Hvað höfðu þau fyrir sèr í því?

Sannleikshetja: Þau sögðu mèr að Heimskænn lægi þar í leyni til að draga pílagríma á tálar. Þau sögðu líka að Hrænsari og Vanafastr væru þar einlægt á vegi. Enn fremr gátu þau þess til, að Sèrhugall, Málugr og Demas mundu sitja um það, að fá handfestu á mèr, að Smjaðrarinn mundi fá mig veiddan í net sitt; eðr og, að eg mundi fara með grænhöfðuðum Fávís að hliðinu, er honum var vísað frá í holuna í fjallshlíðinni og mundi þannig verða sendr aukaveginn til vítis.

Hugprúðr: Það er þó satt að segja, að þetta var nóg til að hræða þig frá ferðinni. Enn lètu þau nú hèr við nema?

Sannleikshetja: Ó, nei; bíddu við! Þau sögðu mèr frá mörgum, er að fornu hefðu reynt að fara þessa leið, og hefði gengið lengi, lengi, til þess, að vita, hvort þeir fengi öðlazt nokkuð af allri þeirri dýrð, er svo mörgum hafði orðið svo langmælt og fagrmælt um hvað eftir annað, enn að þeir hefði orðið að hverfa heim aftr, og hefði þótt verða að viðundri fyrir það, að hafa stigið fæti á þann veg, enn allt landið hefði hlakkað yfir afdrifum þeirra. Ýmsa nefndu þau til þessa; svo sem Þrá, Táplausann, Vantrausta, Hræddann, Frávilling, Guðlaus enn gamla, og enn aðra fleiri. Sumir þessarra, sögðu þau, hefði farið langa leið til þess að vita hvers þeim yrði auðið; enn enginn þeirra hefði borið úr býtum eftir allt ferðalagið svo mikið sem svaraði fjaðrar vigt.

Hugprúðr: Sögðu þau nú nokkuð meira til þess að hræða þig frá ferðinni?

Sannleikshetja: Já. Þau sögðu mèr frá manni, er Síhræddr hèt, er var pílagrímr og þótti leiðin svo einmanaleg, að hann undi sèr aldri á henni stundu lengr; og að Þreklaus hefði nærri því verið soltinn til dauðs; já, og því var eg nærri því búinn að gleyma, að Kristinn sjálfr, er mönnum hefði orðið svo tíðrætt um, hefði drukknað í Svartá, eftir allar þær þrautir, er hann hafði ráðizt í fyrir kórónu dýrðarinnar, og hefði aldri stigið fæti sínum framar á leið. Þetta væri hið sanna, hvernig sem fólk reyndi að drepa því niðr.

Hugprúðr: Dróg engin af öllum þessum sögum úr þèr hugann til ferðarinnar?

Sannleikshetja: Nei. Mèr þótti þær allar þýðingarlausar.

Hugprúðr: Hvernig vèk því við?

Sannleikshetja: Þannig, að eg trúði öllu, er Sannsögull hafði sagt, og það dróg mig lengra enn allar hinar sögurnar.

Hugprúðr: Sigr þinn var þá trú þín.

Sannleikshetja: Einmitt hún, og ekkert annað. Eg trúði, og lagði af stað, komst á veginn, barðist við hvern er stemma vildi stig minn. Og fyrir trúna er eg hingað kominn.

Hver sem vill hreysti sjá,Hèr komi tíðum.Staðfast mun standa sáÍ storma hríðum.Ekkert fær eytt hans dug,Aldri hann flýr á bug,Frá vendir von nè hugVegferla lífi.

Sveit, þá að honum seztMeð sögur ljótar,Í villu veðr mest,Vex afl hans skjótar.Ljóns æði hann tekr lètt,Lemr á jötnum þètt,Virðir sinn vera rèttVegferla lífið.

Draugar nè djöfla sveitFá dirfð hans bugað;Að loknum leik hann veitSèr líf er hugað.Áhyggjum eyðir hann,Óttast ei nokkurn mann,Vakinn og sofinn annVegferla lífi.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

29. kafli af 31 · 12 mín. eftirSannleikshetja