Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

Fimmtándi kafli

Fávís og saga Trúarveiks

um 25 mín. lestur

Eg sofnaði aftr, og þótti mèr þá pílagrímar þessir fara niðr fjöllin og ganga niðr alfaraveginn og stefndu til borgarinnar. Skammt eitt fyrir neðan fjöll þessi var, til vinstri handar, land það er Þótta-land heitir; og rann mjó, krókótt smágata frá þessu landi inn á veginn, sem pílagrímarnir fóru. Mætti þeim hèr maðr all-mikill á lofti, hann var frá landi þessu og het Fávís. Spurði Kristinn hann, hvaðan hann kæmi, og hvert hann ætlaði.

Fávís: Herra! eg er fæddr í landinu, sem þarna er lítið eitt burt til vinstri handar, og ætla eg að fara til hinnar himnesku borgar.

Kristinn: Enn hvernig ætlarðu að fara að því, að komast inn um hliðið? Því vel getr verið að einhver örðugleiki verði á því fyrir þig.

Fávís: Eg fer að eins og hinir mennirnir.

Kristinn: Enn getrðu sýnt nokkur skilríki við borgarhliðið, til þess, að því verði lokið upp fyrir þèr.

Fávís: Eg þekki vilja Drottins míns, og hefi lifað ráðvöndu lífi; eg borga hverjum manni sitt, eg biðst fyrir, fasta, borga tíundir og gef ölmusur, og hefi yfirgefið fóstrjörð mína, til þess, að fara þessa ferð.

Kristinn: Enn þú komst ekki inn um þröngva hliðið, sem er við byrjun þessa vegar; þú komst þessa mjófu krókagötu þarna, og þess vegna er eg hræddr um, að yfir því verði lýst á degi reikningsskaparins, að þú sèrt þjófr og ræningi, hversu góðan sem þú telr þig, og fáirðu þetta framan í þig, í staðinn fyrir það, að þèr verði veitt innganga.

Fávís: Enn góðir menn, eg þekki ykkr að alls engu. Eg hefi aldri sèð ykkr; látið þið ykkr nægja, að rækja trú ykkar lands, eg held við mína landstrú, og býzt við, að allt fari fullvel. Enn um hliðið, sem þið nefnduð, er það að segja, að allr heimrinn veit, að það er geysi-langan veg frá voru landi, og efast eg um, að nokkur landa minna þekki einu sinni veginn þangað, og þeir hirða heldr ekki um það, vegna þess, að við höfum hèr fallega, skemtilega og græna götu, sem er styzta leið frá okkr inn á þenna veg.

Þegar Kristinn sá, að maðr þessi þóttist mesti spekingr að viti, sagði hann við Vongóðann í lágum hljóðum: Meiri von er um heimskingjann enn um hann (Orðskv. 26. 12), og enn fremr sagði hann: Þegar hinn heimski gengr rètta leið, bregzt honum vísdómr hans, og hann segir hverjum manni, að hann sè heimskr. (Prèd. 10. 3.) Eigum við að tala meira við hann, eða fara frá honum, og láta hann einan eftir, til þess, að lofa honum að hugsa um það, er hann hefir nú heyrt, enn standa þá heldr við seinna, og bíða eftir honum, og vita hvort við ekki getum gjört hann betri smátt og smátt? Þá söng Vongóðr: Við þetta bætti hann: Eg held það sè ekki gott, að segja honum allt í einu. Við getum farið framm úr honum að sinni, ef þèr lízt svo, enn talað þá heldr við hann seinna, þegar hann er færari að skynja það sem sagt er.

Um orð vor hugsi Fávís nú um hríðSvo hollum ráðum skirrist við að neitaFramar, nè lifi fávís alla tíðUm fræði, er lífsins æðstu gæði veita.Guð (þótt fávitra gjörði menn að skapa)Greinir, sælunni hljóti þeir að tapa.

Nú hèldu báðir áframm, enn Fávís á eftir. Þegar þeir voru komnir skammt eitt framm úr honum, komu þeir inn í þrönga götu og dimma mjög, þar mættu þeir manni, er sjö djöflar höfðu bundið með sjö sterkum fjötrum, og höfðu hann með sèr aftr af vegi þessum til dyranna sem þeir pílagrímar höfðu nýlega sèð á hæðinni. (Math. 12. 45; Orðskv. 5. 22.) Nú tók hinn góði Kristinn að skjálfa, og það gjörði Vongóðr fèlagi hans líka; enn um leið og djöflarnir teymdu manninn frammhjá, leit Kristinn við, til þess að vita, hvort hann þekkti hann; og virtist honum ekki betr, enn það vera Frávillingr, er eitt sinn bjó að Fráhvarfsstöðum. Enn hann sá ekki glöggt andlit hans, því hann hengdi niðr höfuðið og var álútr eins og þjófr, sem staðinn hefir verið að stuldi. Þegar hann var kominn svo langt framm hjá þeim, að bakið horfði við þeim, sá Vongóðr seðil á bakinu á honum, og voru rituð á hann þessi orð: Lèttúðigr trúar-játandi og fyrirdæmingarverðr trúníðingr.

Kristinn tók nú til máls, og sagði við fèlaga sinn: Nú dettr mèr í hug saga ein, sem mèr hefir verið sögð, um mann nokkurn í þessu bygðarlagi, að nafni Trúarveikr; hann var annars valmenni og bjó þar er heitir að Einlægni. Sagan er þessi: Þegar farið er inn á þenna veg, þá liggr frá Breiðavegar-hliði mjó gata sem kölluð er Dáins-tröð, og er svo nefnd sökum hinna mörgu manndrápa, er framin eru þar. Trúarveikr fór í pílagrímsferð eins og við, og fleiri gjöra, og vildi honum það óhapp til, að hann settist niðr þar og sofnaði. Nú stóð svo á, að einmitt um þetta leyti komu þrír ræningjar niðr tröð þessa frá Breiðavegar-hliði; voru þeir bræðr, og hètu: Mannskræfa, Tortryggr og Sekr. Þegar þeir komu auga á Trúarveikann, þar sem hann var, tóku þeir til fótanna og þutu að honum. Rètt um sama leyti hafði hann vaknað, og var staðinn upp, og ætlaði að halda áframm ferð sinni. Enn þeir komu allir á móti honum, og hótuðu honum öllu illu, ef hann ekki stæði kyrr. Trúarveikr varð fölr sem nár, og hafði engan mátt, hvorki til þess að berjast, nè flýja. Þá kallaði Mannskræfa: Fáðu okkr pyngjuna þína. Enn Trúarveikr færðist undan áskorun þessarri (því hann vildi nauðuglega verða af fè sínu), enn þá rann Tortryggr að honum, rak hönd í vasa hans, og dróg upp úr honum stóran sjóð af silfri. Þá kallaði Trúarveikr hástöfum: Þjófar, þjófar! Enn þá drap Sekr svo hörðu höggvi utan á höfuð honum með kylfu, er hann hafði í hendinni, að hann felldi hann flatan til jarðar við höggið, og tók hann geysi-blóðrás eins og mann, er blæðir til ólífis. Meðan þessu gekk, stóðu þjófarnir hjá. Enn loks heyrðu þeir, að farið var um veginn, og tóku þá til fótanna, og hlupu yfir háls og höfuð, því að þeir hèldu, að það kynni að vera Náðarríkr frá Nægu-Vernd, og lètu hinn góða mann einan um sína reiðu. Eftir stundar-korn kom Trúarveikr til sjálfs sín, stóð upp, og tók að dragast áframm leið sína. Þetta er nú sagan.

Vongóðr: Enn náðu þjófarnir öllu frá honum sem hann átti?

Kristinn: Nei; þeir grófust aldrei eftir gimsteinunum hans, svo að hann hafði þá eftir. Enn hann tók sèr mjög nærri missi sinn, því að þjófarnir náðu mest öllu skotsilfri hans. Það sem þeir ekki náðu voru, eins og eg sagði fyrr, gimsteinar hans, og nokkuð í smápeningum, enn þó tæplega nóg til þess, að borga með allan ferðakostnað; og mun það ekki allskostar ósönn saga, er eg hefi heyrt, að hann hafi neyðzt til þess, að gjörast beiningamaðr, og hafi lifað á bónbjörgum á ferðinni, því hann hafi ekki mátt selja gimsteina sína; enn þó að hann beiddist brauðs og gjörði allt er hann mátti, til að bjarga framm lífi sínu, er sagt, að hann hafi haft oft og tíðum hungraðan maga, það er eftir var ferðarinnar. (1 Pet. 4. 18.)

Vongóðr: Enn það gengr yfir mig, að þeir skyldu ekki ná frá honum leiðarbrèfi hans, er átti að veita honum inngöngu inn um Himnahliðið.

Kristinn: Já, það er öll furða; og því meir gengr það yfir mig, sem það var alls ekki hyggni hans að þakka, að þeir ekki náðu því. Því hann var að öllu leyti utan við sig, þegar þeir rèðust á hann, og hafði hvorki mátt nè vit til þess, að koma nokkurum hlut undan; svo að það var miklu fremr vernd forsjónarinnar að þakka, enn hans viðleitni, að þeir misstu þessa góða hlutar. (2 Tim. 1. 12, 14; 1 Pet. 1. 5, 9.)

Vongóðr: Það má sannarlega vera mikil huggun fyrir hann, að þeir náðu ekki gimsteinum hans frá honum.

Kristinn: Það hefði mátt verða honum mesta huggun, ef hann hefði kunnað til að gæta. Enn sá er mèr sagði sögu þessa, sagði, að hann hefði ekki haft þessarrar huggunar hin minnstu not það er eftir var ferðarinnar, allt sökum hugleysis þess; er kom yfir hann, er þeir tóku fèð af honum. Hann fór svo, lengi vel, áframm ferð sinni án þess, að honum dytti nokkuð í hug um gimsteinana, enn þó hann reyndi að hugga sig, þegar hann mundi eftir þeim, við það, að hann ætti þá þó enn þá, setti að honum söknuð, ei að síðr, og eftirsjón eftir hinum glataða sjóði, og þessi saknaðarhugr kæfði allar aðrar hugsanir hans.

Vongóðr: Vesalings maðrinn, mikið hefir þetta hlotið að ganga nærri honum.

Kristinn: Já, eg held það hafi hlotið að ganga nærri honum; ætli ekki hefði farið eins fyrir hvorum okkar fyrir sig, ef við hefðum sætt sömu atförum og hann, að verða ræntir eigum vorum og særðir, og það á ókunnum stað, eins og hann var á? Mig furðar á því, að hann skyldi ekki deyja, vesalingr. Mèr var sagt, að ekki hefði gengið á öðru fyrir honum, það er eftir var leiðarinnar, enn sárum og hörmulegum kvörtunum; og sagði hann hverjum manni, er hann hitti, eða honum náði, hvar hann hefði verið ræntr, og hvernig ránið hefði verið framið, hverir unnið hefði verkið, og hvað hann hefði misst, hversu sár hann hefði orðið, og að hann hefði sloppið nauðuglega undan með lífi.

Vongóðr: Enn það þykir mèr undarlegt, að neyðin skyldi ekki minna hann á það, að selja eða veðsetja einhverja af gimsteinum sínum, svo að hann gæti með því móti borgað fararbeina sinn.

Kristinn: Þú mælir eins og maðr, sem gengið hefði með höfuð hulið skel framm á þenna dag. Fyrir hvað átti hann að veðsetja þá? eða hverjum átti hann að selja þá? Í öllu landinn, þar er hann var ræntr, var enginn, er mat gimsteina hans að neinu, og hins vegar þurfti hann ekki þess lèttis, er menn gátu veitt honum í þessu landi; þar að auki vissi hann það vel, að hann hefði orðið af erfð himnaríkis, ef hann hefði komið gimsteinalaus að Himinborgarhliði, og mundi það hafa riðið honum nær, enn þótt hann sæi og sætti varmennsku tíu þúsund þjófa.

Vongóðr: Hvað er að, hví ertu svo æfr bróðir? Esau seldi frumburðarrètt sinn, og það fyrir einn málsverð af linsum (Hebr. 12. 16); og frumburðarrèttrinn var hinn fagrasti gimsteinn hans; nú með því hann gjörði þetta, hví skyldi þá Trúarveikr ekki mega gjöra hið sama?

Kristinn: Esau seldi frumburðarrètt sinn, að sönnu, og hið sama gjöra margir aðrir, enn með því loka þeir sig úti frá blessuninni eins og þessi ódrengr gjörði. Enn þú verðr að gjöra glöggva grein á Esau og Trúarveikum, og allt eins á eign þeirra hvors um sig. Frumburðarrèttr Esaus var að eins líkingar fyrirmynd, enn gimsteinar Trúarveiks voru það ekki. Magi Esaus var guð hans; enn maginn var ekki guð Trúarveiks. Þörf Esaus var falin í holdlegri girnd, enn það var allt öðru máli að gegna um Trúarveikann; þar á ofan hafði Esau ekkert annað æðra augnamið enn það, að seðja girndir sínar; því eg á svo að deyja, sagði hann, hvað ætli eg hafi gott af frumburðarrèttinum? (1 Mós. b. 25. 32.) Enn þó það væru nú forlög Trúarveiks, að hafa að eins veika trú, þá var trú hans samt nógu styrk til þess, að aftra honum frá slíkri fásinnu, og opnaði augu hans og huga, svo að hann mat gemsteina sína meira, enn svo, að hann færi með þá, eins og Esau fór með frumburðarrèttinn, að hann seldi þá. Þú munt hvergi hafa lesið það, að Esau hafi verið trúaðr; nei hann hafði ekki hinn minnsta neista af trú. Það eru því engin undr, þó að sá maðr, er enga trú hefir til að veita holdinu viðnám, er það eitt ræðr öllu hans lífi, seli frumburðarrètt sinn, sál sína og allt er honum viðkemr, jafnvel djöflinum í helvíti, því slíkir menn eru eins og asnan í girndarbruna, sem enginn fær við ráðið. (Jer. 2. 24.) Þegar hugr þeirra hefir fest auga á einhverri girnd, þá vilja þeir hafa hana sadda, hvað sem það kostar. Enn Trúarveikr var alls annars hugar. Hans hugr stefndi að guðlegum hlutum, hans fjöruga löngun stefndi að andlegum hlutum og æðri, og hvers vegna ætti sá maðr, sem eins er skapi farinn og hann, að selja gimsteina sína, þó einhver hefði viljað kaupa þá, til að seðja huga sinn á hègómlegum hlutum? Ætli nokkur maðr vildi gefa skildings virði fyrir málung af heyi? eða getr þú fengið dúfu til þess, að lifa á hræi eins og kráka? Þó að guðleysingjar geti veðsett, lánað upp á, og selt, allt sem þeir hafa, og þar á ofan sjálfa sig, fyrir holdlegar girndir, þá geta þó hinir, sem hafa trúna, hina sáluhjálplegu trú, alls ekki gjört það, ekki einu sinni þó að þeir hafi að eins lítinn neista af henni.

Vongóðr: Eg er þessu samdóma. Enn þú varst svo alvarlegr og harðr í athugasemd þinni, að mèr lá við að þykkjast við þig.

Kristinn: Hversvegna? Eg líkti þèr að eins saman við vissa fjöruga fugla, sem vappa aftr á bak og áframm um gengnar brautir með skelina á höfðinu; enn sleppum nú því, og gefum okkr heldr við því sem er umræðu efni okkar, og verum jafn-góðir vinir og áðr.

Vongóðr: Eg er sannfærðr, Kristinn, um það, að þessir þrír fèlagar eru sannar mannskræfur; eða heldr þú að þeir mundu annars hafa tekið svo hræddir til fótanna, þó að þeir hefði heyrt skóhljóð einhvers á veginum? Enn hví reyndi Trúarveikr ekki, að sýna af sèr dálítið meiri karlmennsku? Mèr sýnist hann hefði getað farið í eina við þá; það var þá ekki annað enn að gefast upp, er ekkert tjáði lengr.

Kristinn: Margr segir, að þeir sè mannskræfur, enn fáum hefir virzt svo, þegar á hefir átt að herða. Enn um karlmennsku Trúarveiks er það eitt að segja, að hann hefir alls enga; enda sè eg, bróðir, að þú mundir hafa lagt út í ryskingar og síðan gefizt upp, ef þú hefðir verið í Trúarveiks sporum. Enn það er vel, að þú ert svo hugaðr, því þeir eru, nú sem stendr, ekki all-langt frá okkr; enn verið getr, að þeir gætu komið þèr á aðra hugsun, ef að þeir væðu eins að þèr, eins og þeir vóðu að honum.

Enn gættu nú að einu, þessir þjófar ræna einungis ferðamenn; þeir þjóna konungi hins botnlausa díkis, og hann kemr sjálfr þeim til hjálpar, ef þeim liggr mikið á, og rödd hans er eins og ljónsöskr. (1 Pet. 5. 8.) Eg hefi sjálfr komizt í sömu kreppu og Trúarveikr, og þótti mèr það óttalegt. Þessir þrír fantar settust að mèr, og er eg tók að verjast eins og kristnum manni sómdi, þá gjörðu þeir ekki annað enn orguðu upp, og þegar kom meistari þeirra framm. Eg hefði, eins og máltækið segir, gefið líf mitt fyrir skilding, hefði Guð ekki hagað því svo, að eg var búinn margreyndum herklæðum. Já og þó að eg væri svo vel hervæddr eins og eg var, þá fannst mèr þó að það vera fullkomin mannraun að sleppa með heilu og höldnu af þeim fundi. Enginn getr lýst því, hvað mæta kann í slíkum bardögum, nema sá, sem sjálfr hefir komizt í þá raun.

Vongóðr: Já, enn hvernig stendr þá á því, að þeir lögðu á flótta, er þeir heyrðu að Náðarríkr var á veginum.

Kristinn: Af því, að þeir hafa oft lagt á flótta, og meistari þeirra líka, þegar þeir að eins hafa eygt Náðarríkan einhversstaðar, og er það engi furða, því að hann er einn hinn ágætasti hermaðr Drottins, og vona eg þú gjörir glöggan mun á Trúarveikum og slíkum kjörnum hermanni konungsins. Ekki eru allir þegnar konungsins hermenn hans, enda mundu þeir ekki ljúka af öðrum eins afreksverkum og hann, þó að til kæmi. Heldr þú, að hvert barnið gæti farið með Goliath eins og Davíð gjörði, eða að músarbróðir skyldi hafa uxa-afl? Sumir eru sterkir, sumir veikir; sumir hafa mikla trú, sumir litla. Þessi maðr var einn af hinum veiku, og þess vegna beið hann og bráðlega lægra hlut.

Vongóðr: Ó, eg vildi þeir hefði mætt Náðarríkum í stað Trúarveiks.

Kristinn: Þó að það hefði verið Náðarríkr sjálfr, mundu þeir hafa fengið honum nóg að gjöra; því eg skal segja þèr það fyrir víst, að þó að Náðarríkr sè ágætlega vel að verjum búinn og hinn fimasti við vopnaburð meðan hann hefir menn fyrir oddi, þá mundi hann hafa fullt í fangi, ef að þeir Mannskræfa, Tortryggr og hinir piltarnir kæmust að honum, að verjast því, að þeir kæmu honum ekki af fótunum. Enn þegar sá, sem verst, er fallinn, veiztu hverju hann fær orkað úr því.

Hver sem gætir vel að andliti Náðarríks, mun einnig sjá ör þau og skræmur, er sanna að fullu mitt mál. Já eg hefi heyrt haft eftir honum, að hann hafi átt að segja, þegar hann var í einum bardaganum: Við vorum jafnvel farnir að örvænta um lífið. Já, hve þungt varð ekki Davíð að harma, stynja og andvarpa undan þessum illu varmennum og fèlögum þeirra! Heman og Hezekias urðu jafnvel að hafa sig alla við, þegar þessir ódáðamenn rèðust á þá; og voru þeir þó gildir hermenn á sinni tíð; enn samt sem áðr fengu þeir fyllilega að kenna á þeim. Einhvern tíma ætlaði Pètr líka að gjöra sitt hið bezta; enn þó hann væri fremstr og fyrstr postulanna, eins og sumir segja, þá lúðu þeir hann samt að lokum svo, að hann varð hræddr við ambátt eina.

Þar að auki er þess að gæta, að konungr þeirra er viðbúinn þeim til hjálpar, þegar er þeir kalla, og er hann aldrei svo fjarri, að hann ekki heyri til þeirra; þegar þeir komast í mesta raun, þá kemr hann jafnan og veitir þeim lið, ef þess er nokkur kostr; enda er og sagt um hann: Þegar lagt er til hans með sverði þá dugir það ekki, nè heldr örfar, spjót eðr lensa. Hann metr járnið sem strá, eirið sem fúastaur. Bogans son mun ei snúa honum á flótta. Slöngusteinar verða honum að ögnum. Kylfan er fys, og hann hlær að spjótsins hvin. (Job 41. 17-20.) Hvað geta menn tekið til bragðs þegar svo vill til? Það er satt, að hver sem hefði Jobs hest ávallt við hendina, er á lægi, og bæri bæði hugrekki og kunnáttu til að ríða honum, fengi framm komið afreksverkum. Því að háls hans er íklæddr þrumu; hann verðr ekki skelfdr eins og engisprettan. Fagrlega og ægilega frýsar hann. Hann stappar niðr í jörðina, og gleðr sig við sinn styrkleika. Hann fer út á móti hinum hertýgjaða. Hann hlær að hræðslunni, og óttast ekki, og hopar ekki fyrir sverðinu. Á baki hans glamrar í örfamælinum og spjót og lensa leiftra. Fjörugr og frýsandi rífr hann upp jörðina og skeytir ekki um herlúðrsins þyt. Þegar herlúðrinn gellr hátt, segir hann: Hví! Langt frá finnr hann þef af bardaganum og höfðingjanna óp og háreysti. (Job 39. 22-28.)

Enn við, slíkir fótgöngumenn eins og við erum, skulum aldrei æskja eftir því, að mæta nokkurum óvin; við skulum ekki heldr hælast mjög um það, að vèr getum meira enn þeir, er vèr höfum heyrt að hafi verið sigraðir; eðr gjörast oflátar miklir af hugrekki voru. Því þess konar menn reynast oftast nær deigastir, þegar í raunirnar rekr. Þetta sannar Pètr, eins og eg áðr hefi sagt. Hann hældist um, það vantaði ekki, og gortaði; já hann kvaðst í hinum hjegómafulla huga skyldu standa öflugar og veita meistara sínum fremra fylgi enn allir aðrir. Enn hver hefir beðið meiri ósigr gegn óvinum þessum enn hann? hver hefir sætt verri byltu hjá þeim?

Það er því tvennt, sem við verðum að gjöra, þegar vèr frèttum til ránsmanna þessarra á aðalvegi konungsins.

1. Við verðum að ganga með alvæpni; og ríðr oss einkum á því, að gleyma ekki skildinum; því það var einkum vegna skjaldarleysisins að sá gat ekki yfirunnið Leviathan sem rèðst á hann svo karlmannlega og hreystilega; því þegar skjöldinn vantar, þá hræðist hann oss ekki hið minnsta. Því er það, að margæfðr hermaðr einn hefir sagt: Umframm allt, grípið skjöld trúarinnar, með hverjum þèr munuð útslökkt fá öll eldleg skeyti þess vonda. (Eph. 6. 16.)

2. Er það einnig gott, að vèr biðjum konunginn um leiðarbrèf, já og hann fari með oss sjálfr. Þetta var það, sem gjörði Davíð konung glaðan, jafnvel í dauðans dal og dimmum skugga; og Móses kaus heldr að deyja í sömu sporum, enn að fara einu feti lengra án þess, að hafa Guð sinn með sèr. (2 Mós. b. 33. 15.) Ó, bróðir minn; ef hann sjálfr fer með oss, hvað þurfum vèr þá að hræðast þau tíu þúsund, er að oss setjast? (Sálm 3. 5-8; 27. 1-3.) Enn án hans falla hinir mikillátu hjálparmenn undir hina drepnu. (Es. 10. 4.)

Eg, fyrir mitt leyti, hefi komizt í bardaga fyrr enn nú; og þó eg sè enn á lífi, eins og þú sèrð, fyrir gæzku Hans, sem beztr er, þá get eg samt ekki hælzt um hugrekki eða karlmennsku mína. Mèr skyldi þykja næsta vænt, ef eg aldrei þyrfti að mæta slíkum árásum oftar; og er eg þó hræddr um að við sèim ekki komnir framm úr öllum hættum enn þá. Enn með því hvorki ljón nè birnir hafa enn þá gleypt okkr, þá vona eg, að Guð frelsi oss frá hinum næsta óumskorna Filistea.

Ó, aumi Trúarveikr, varstu hèrAf vondum þjófum ræntr? Látið þèr,Sem trúið, yðr atburð þenna núÍ minni loða, og styrkizt nýrri trú.Þá munuð, trú mèr, tíu þúsund fáTítt sigrað, ella naumast unnið þrjá.

Þannig hèldu þeir nú áframm, enn Fávís á eftir. Þeir gengu þangað til þeir komu þar að, er aukavegr nam saman við þann, er þeir gengu, og virtist liggja allt eins beint við, að fara hann eins og þann, er þeir áttu að halda. Nú voru þeir alveg óráðnir hvorn veginn þeir skyldu ráðast inn á, því báðir láu jafnbeint við. Stóðu þeir nú og hugsuðu sig um. Og er þeir stóðu í þessum heilabrotum kom maðr að þeim, dökkr mjög á hörund, hvít-klæddr, og spurði þá, hví þeir stæðu hèr. Þeir kváðust vera á ferð til hinnar himnesku borgar, enn kváðust ekki vita hvorn veginn þeir ættu að fara. Komið þið á eftir mèr, sagði maðrinn, eg er á leiðinni þangað. Nú fóru þeir á eftir honum, og fóru leiðina sem lá út frá veginum er þeir höfðu komið; vatt þessi vegr þeim smátt og smátt svo frá borginni, er þeir ætluðu að komast til, að þeir snèru andlitum sínum frá henni eftir skamma stund; samt sem áðr fóru þeir enn á eftir manninum. Enn smátt og smátt fór hann með þá, áðr enn þá varði, í netbug nokkurn, og urðu þeir svo flæktir þar, að þeir vissu ekki, hvað þeir áttu að taka til bragðs; og rètt í þessu datt hvíti búningrinn af hinum svarta manni. Nú sáu þeir hvar þeir voru komnir. Þarna láu þeir nú með hljóðum um tíma, sökum þess, að þeir gátu ekki bjargað sèr brott.

Þá mælti Kristinn við fèlaga sinn: Nú sè eg, að eg er viltr. Beiddu hjarðmennirnir okkr ekki að varast Smjaðrarann? Við höfum fengið að sanna það í dag, sem spekingrinn sagði: Að maðr sem smjaðrar fyrir nábúa sínum leggr net fyrir fætr hans. (Orðskv. 29. 5.)

Vongóðr: Þeir gáfu okkr líka vegsögubók til þess, að við yrðum því vissari að finna rèttan veg; enn við höfum jafnvel gleymt, að lesa bókina, og ekki varazt vegu eyðileggjandans. Í þessu var Davíð hyggnari enn við, því hann sagði (Sálm 17. 4): Með tilliti til mannanna hefi eg varazt veg ofbeldismannsins fyrir orð þíns munns. Þannig láu þeir í netinu og bárust hörmulega af. Að lokum sáu þeir að maðr nokkur, allr ljómandi, kom til þeirra, og hafði, snæris svipu í hendinni. Þegar hann var kominn þangað, er þeir láu, spurði hann þá, hvaðan þeir væri, og hvað þeir hefði hèr að sýsla. Þeir kváðust vera úmkomulausir pílagrímar og ætla til Zíons fjalls, enn svartr maðr í hvítum klæðum hefði leitt þá afvega, og beiddi hann oss, sögðu þeir, að fara á eftir sèr, því að hann kvaðst vera á leið þangað líka. Þá mælti sá, er á svipunni hèlt: Það er Smjaðrari, falskennarinn, sem hefir gjört sjálfan sig að ljóssins engli. (Dan. 11. 32; 2 Kor. 11. 13, 14.) Því næst reif hann netið, og leysti þá fèlaga úr flækjunni, og mælti við þá: Farið á eftir mèr, svo eg geti komið ykkr aftr á rèttan veg. Kom hann þeim nú aftr á veginn, sem þeir höfðu horfið af til þess að fylgja Smjaðrara. Því næst spurði hann þá, og sagði: Hvar láuð þið við í nótt? Þeir svöruðu: Hjá hirðunum á Unaðarfjöllum. Spurði hann þá síðan, hvort þeir hefðu ekki fengið leiðsögu-blað hjá þeim. Þeir kváðu svo vera. Enn tókuð þið ekki þessa leiðbeiningu upp, sagði hann, þegar þið stóðuð við, til þess að lesa hana? Þeir kváðu nei við. Spurði hann þá, hvers vegna þeir hefði ekki gjört það. Þeir sögðust hafa gleymt því. Enn spurði hann þá, og sagði: Beiddu hjarðmennirnir ykkr ekki að varast Smjaðrarann? Þeir sögðu: Jú; enn við gátum ekki ímyndað oss, að hann væri þessi maðr, því hann var svo blíðmáll. (Róm. 16. 17, 18.)

Nú þótti mèr hann skipa þeim, að leggjast niðr; og er þeir höfðu gegnt skipun hans, flengdi hann þá all-fastan, til þess, að kenna þeim hinn góða veg, er þeir skyldu fara (5 Mós. b. 25. 2; 2 Kron. 6. 27); og sagði um leið og hann hirti þá: Eg aga og vanda um við þá, sem eg elska; legg því allt kapp á, að bæta ráð þitt. (Opb. b. 3. 19.) Að þessu búnu beiddi hann þá fara leiðar sinnar, og gæta vandlega allra ráðlegginga hirðanna. Nú þökkuðu þeir honum allan hans góðleik, og fóru hina rèttu leið í hægðum sínum og sungu:

Þú, sem hèr ferð um farinn veg, mátt sjá,Hve förumönnum viltum hlekkist á:Í flókið net þeir veiddir verða bráðumVíst, ef þeir gleyma af lèttúð hollum ráðum.Þeim reyndar hjálpað var, enn hirting stinnÞá hremmdi báða: Sjá hèr varnað þinn!

Þeir sáu nú, hvar maðr kom móti þeim, langt í burtu; var hann einn, og fór í hægðum sínum. Þá mælti Kristinn: Sko', þarna er maðr á ferð, og ætlar að mæta okkr. Hann snýr bakinu að Zíon.

Vongóðr: Já, eg sè hann; nú er bezt að við höfum gát á okkr. Hver veit, nema hann sè Smjaðrari líka? Maðr þessi færðist nú nær og nær og mætti þeim að lokum. Hann hèt Guðlaus, og spurði þá, hvert þeir ætluðu.

Kristinn: Við erum á leiðinni til Zíons fjalls.

Guðlaus rak upp skellihlátr.

Kristinn: Hvað á þessi hlátr yðar að þýða?

Guðlaus: Eg hlæ að því, hvaða dómadags vitleysingjar þið eruð, að vera að fara í svo leiðinlega langferð, og hafa ekkert annað úr býtum fyrir allar fararþrautirnar, enn ferðalagið eitt.

Kristinn: Hvað er nú, heldrðu að ekki verði tekið við okkr?

Guðlaus: Tekið við ykkr? í öllum heiminum finnst ekki sá staðr, sem ykkr dreymir um.

Kristinn: Nei, ekki í þessum heimi, heldr hinum ókomna.

Guðlaus: Þegar eg var heima á fóstrjörðu minni, þá heyrði eg þetta sama, sem þið farið með nú; þegar eg heyrði það, fór eg af stað, viti menn, til að skyggnast um; nú hefi eg verið að leita þessa staðar í þessi síðustu tuttugu ár, enn eg er enn þá engu nær, að finna hann, enn eg var, þegar eg lagði af stað, að heiman. (Prèd. 10. 15; Jer. 17. 15.)

Kristinn: Enn við höfum báðir heyrt, og trúum því, að finna megi stað þenna.

Guðlaus: Hefði eg ekki trúað, þegar eg var heima, þá hefði eg ekki farið í jafn-langa leit og nú hefi eg farið. Hefði nokkur slíkr staðr verið til, mundi eg hafa fundið hann; því eg hefi leitað hans víðar, enn þið hafið gjört; enn af því, að eg hefi ekki fundið hann, þá er eg nú snúinn heim í leið aftr, og ætla að reyna að endrnæra mig á því er eg þá hafnaði fyrir vonina um það, sem eg nú sè, að er ekki til.

Þá sagði Kristinn við fèlaga sinn Vongóðan: Er það satt, er þessi maðr segir?

Vongóðr: Varaðu þig; hann er einn smjaðrarinn. Mundu eftir því, hvað það hefir kostað okkr einu sinni, að hlusta á þessa kalla. Eins og Zíons fjall sè ekki til! Sáum við ekki borgarhliðið frá Unaðarfjöllum? Verðum við ekki að ganga enn þá í trúnni? (2 Kor. 5. 7.) Við skulum halda áframm, því ella kemr Svipumaðrinn aftr og gefr okkr þokkalega ofanígjöf. Þú hefðir átt að kenna mèr orðin sem eg nú skal láta þèr í eyrum hljóma: Hættu, sonr minn, að hlusta á fræðslu þá, er leiðir til þess, að villast frá orðum þekkingarinnar. (Orðskv. 19. 27.) Eg ítreka það, hættu, góði bróðir, að hlusta á hann, enn við skulum trúa því, að sál okkar frelsist. (Hebr. 10. 39.)

Kristinn: Góði bróðir, eg spurði þig ekki þess vegna, að eg efaðist um sannleika trúar vorrar, heldr til þess, að reyna þig, og fá að sjá vott um einlægni hjarta þíns. Enn eg veit það, að þessi maðr er blindaðr af guði þessa heims. Við skulum báðir halda áframm, og vera sannfærðir um það, að við trúum sannleikanum, og að lýgin á ekkert skylt við sannleikann. (1 Joh. 2. 21.)

Vongóðr: Ó nú gleðst eg sannarlega í voninni um Guðs dýrð. Fóru þeir síðan frá manni þessum, og hann fór sinnar leiðar og skellihló að þeim.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

15. kafli af 31 · 25 mín. eftirFávís og saga Trúarveiks