Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

Inngangur

Ágrip af æfisögu Johns Bunyans

um 26 mín. lestur

Það sem menn vita sannast um æfi Bunyans hefir hann fært í letr sjálfr í ritgjörð, sem hann nefnir Grace abounding to the chief of sinners, eðr Náð yfirgnæfandi veitt enum mesta allra syndara.

Hann var fæddr í þorpi er Elstow hèt, skammt frá bænum Bedford á mið-Englandi, árið 1628. Um ætt sína og foreldri farast honum þannig orð: “Það er mörgum kunnugt, að eg er kominn af lágum stigum og lítilfjörlegum; því að kyn foreldra minna var brotið af bergi þeirra ætta, sem smæstar eru taldar, og í mestri óvirðingu haldnar, í öllu landinu.” Hann var í báðar ættir kominn af fólki, er mann framm af manni hafði haft fyrir atvinnu að gjöra við sprungna katla og önnur slík eldagögn. Menn þessir lifðu óþjálu og menntunarlausu lífi. Þeir fóru fótgangandi um land með tól sín, gengu fyrir dyr manna og buðu þjónustu sína. Margir voru heimilislausir, og lètu þar nótt sem nam. Því blönduðu menn þeim oft saman við hinn indverska flökkumannalýð, er lifir enn í dag ráðlausu og heimilislausu flækingslífi í flestum löndum Norðrálfunnar og víðar, og kallar sjálfan sig Rommani, enn Englendingar kalla Gipsies, Frakkar les Bohemiens, Þjóðverjar Zigeunere, Danir: Natmandsfolk og Tatere, Norðmenn Fantefolk, Taterfolk, Svíar Zigenarer, Tattarer. Ferðalög þessarra katlabæta voru mönnum kunnust fyrir hnupl, drykkjuslark og róstur; og lèk óvirðingarorð mikið á þessum mönnum um allt land.

Foreldrar Bunyans tóku mörgum stèttarbræðrum sínum framm, að því er ráða má af orðum sonarins: Þau höfðu fast heimili í Elstow, og mátu menntun svo mikils, að þau lètu son sinn ganga í skóla á barns aldri, til að læra að lesa og skrifa. Enn þetta varð Bunyan að litlum notum; því hann segist hafa týnt niðr aftr því litla, er hann hafði numið, nærri því alveg, og kennir hann um það andvaralausu gjálífi sínu.

Bunyan fer mörgum og miskunnarlausum orðum um það, hversu líf sitt hafi verið synd og djöfli ofrselt frá blautu barns beini, þangað til Drottinn náðaði hann og sneri honum til sín. Hann segir, að það hafi verið unaðr sinn, að vera bandingi djöfulsins og fullr af alls konar órèttlæti. Þetta syndalíf hafi magnazt svo í hjarta sínu, að hann hafi átt fáa sèr líka í blóti, lygum og guðlasti. Þetta líferni sitt, segir hann, hafi svo styggt Guð, að hann hafi farið að hræða sig frá því, þegar á barns aldri, með óttalegum draumum og vitrunum. Því mörgu sinni, er hann hafi eytt einum eða öðrum degi í synd, hafi sókt að sèr sofandi, nóttina eftir, djöflar og illir andar, er hafi viljað hafa sig á brottu með sèr. Um þetta skeið æfi sinnar segist hann hafa verið frábærlega sturlaðr af skelfingu fyrir hinum hræðilegu kvölum helvítis; því hann hafi jafnan gengið með ótta fyrir því, að hann mundi, að lokum, verða fundinn “meðal djöfla þeirra og ára í helvíti, er bundnir sè þar fjötrum myrkranna allt til dóms hins mikla dags.”

Þetta er Bunyans eigin lýsing á sálarlífi sínu, er hann var ungr. Framm yfir þrítugt hvíldi sama skelfingar mistr yfir honum; því þó stundum rofaði til, og ljós vonar og friðar brygði á hina sár-þjáðu sál, og veitti henni fróun og hvíld þá stundina, fèkk hann aldrei notið þessa til langframa fyrstu þrjátígi og tvö ár æfi sinnar.

Þegar Bunyan var sautján vetra gamall varð hann hermaðr; og segja menn, að hann hafi farið með her þeim, er langa þingið (the Long Parliament) bauð út móti Karli konungi fyrsta. Hermannslíf hans varð honum þarfr skóli. Ímyndunarafl hans festist við hinar mörgu sviplegu sjónir er fara með hernaði og vígaferlum, og því er það, að mönnum og viðburðum, er hann lýsir í ritum sínum, bregðr til hernaðarhátta tíðar enn nokkurs annars er fyrir ber í lífinu. Meðan hann var hermaðr, bar svo við, eitt sinn, að nokkurum mönnum úr sveit þeirri, er hann var í, var skipað að fara til borgar einnar og setjast um hana. Kunningi Bunyans einn er eftir skyldi sitja beiddi hann að lofa sèr að fara förina í hans stað, og lèt Bunyan það eftir honum. Einn dag, er maðr þessi stóð á verði, var hann skotinn til bana. Þessum atburði eigna margir, er ritað hafa æfisögu Bunyans, stórkostlega breytingu í sálar- og siðferðis-lífi hans. Enn það verðr eigi ráðið af orðum hans sjálfs, og mundi hann þó sízt hafa lagt slíkt í lágina. Hann segir ekkert annað um þenna atburð enn það, að hann minnist hans þakklátlega eins og margra annarra náðarverka forsjónarinnar.

Herþjónusta Bunyans varð skammær; eflaust þess vegna, að eftir bardagann við Naseby í Northamptonskíri, þar sem lið Karls konungs beið algjörðan ósigr 1645, gat Cromwell sent heim aftr fjölda viðlögu-hermanna sinna, er hann þurfti þá ekki að halda á þeim lengr. Þá fór Bunyan heim aftr. Fáum mánuðum síðar giftist hann—hefir þá líklega verið á átjánda vetri—bláfátækri stúlku. Þau byrjuðu búskap þannig, að þau áttu ekki til í eigu sinni svo mikið sem spón eða disk. Enn konan færði í búið tvær bækr: “Veg hins einfalda manns til himins,” og “Daglega iðkun guðrækninnar.” Þetta var heimanmundr hennar, og hafði hún erft kverin eftir föður sinn. Bunyan, sem sjaldan minnist konu sinnar til ills eða góðs, segir að hún hafi verið af foreldrum komin, er talin hafi verið ráðvönd hjón og guðhrædd. Hún sagði manni sínum oft sögur um guðrækni föður síns, er verið hefði vandlætismaðr mikill um siðferði sitt og annarra, bæði heima og heiman. Bækr hennar segist Bunyan hafa lesið, enn ekki hafi þær samt komið við hjartað í sèr.

Engin breyting varð á sálarlífi Bunyans þó lífskjörum hans brygði frá heimaalnings lífi til hermannasiða, og frá hermennskunni aftr til hjúskapar lífs. Hann var hinn sami sí-örvæntandi Bunyan. Flestir er ritað hafa æfisögu hans eigna syndum hans og svall-lífi þessa örvæntingu af því hann gjörir það sjálfr. Þeir gjöra úr honum hræðilegan jötun alls konar lasta og guðleysis, og sumir með þeirri mærð, að við liggr að manni líði í brjóst. Einn þeirra, Dr. J. Ryland, er ritað hefir margt í varnar skyni fyrir kirkju-trú og siði Skýrenda, þess trúarflokks er Bunyan heyrði til, kemst þannig að orði: “Enginn maðr með heilbrigðri skynsemi og vanalegri sanngirni og sannleiks ást fær neitað því, að Bunyan bar því vott með breytni sinni, að hann var guðníðingr af sannfæringu, einskis verðr, fyrirlitlegr trúleysingi, svívirðilegr upphlaupsmaðr gegn Guði og öllu góðu, auðvirðilegr blygðunarleysingi, sál-fyrirlítandi, sál-myrðandi, sál-tortýnandi, andvaralaus mannfýla einhver en mesta er hugsazt gat ofan jarðar.—Enn verðið nú forviða, þèr himnar, um alla eilífð; undrizt nú, jörð og helvíti, meðan tíð varir! Sjá þessi maðr verðr kraftaverk náðarinnar, skuggsjá vizkunnar, gæzkunnar, heilagleikans, sannleikans, elskunnar!”

Þetta er myndin, sem fjöldinn allr af trúarbræðrum Bunyans ætla, þann dag í dag, að sè hin rèttasta og sannasta af honum. Því verðr ekki neitað að hún er sköruglega dregin. Enn það má full-yrða, að hún er afskræmi eitt; og getr hver sem les með aðgætni Bunyans eigin lýsingu á sèr, fljótt sannfærzt, að svo er, og mun þó enginn bregða honum um það, að hann beri sèr söguna of vel, eða leggi syndir sínar í lágina.

Af Grace abounding má sjá, að syndir þær, er Bunyan ber á sig, voru honum sumar ósjálfráðar, sumar sjálfráðar. Meðal hinna ósjálfráðu voru þessar verstar: blót, og guðlast; meðal hinna sjálfráðu þessar: að hringja kirkjuklukkunum í Elstow, að leika pinnaleik og að dansa.

Blót teljum vèr honum ósjálfráða synd, og færum vèr þar til dæmi úr eigin æfisögu hans. “Dag einn stóð eg,” segir hann, “fyrir utan búðarglugga nágranna míns, blótandi, eins og vant var. Kona ein inni fyrir heyrði til mín, og sagði, að eg bölvaði og ragnaði svo hræðilega, að hún titraði öll og skylfi af því að heyra til mín; hún bætti því við, að eg væri sá guðlausasti blóthundr, er hún hefði nokkuru sinni heyrt á æfi sinni, og gæti með bölvi mínu spilt öllum unglingum bæjarins, ef þeim lenti saman við mig.”

“Við þessi atyrði þagnaði eg, og skammaðist mín með sjálfum mèr; mèr fannst eg standa fullr blygðunar frammi fyrir Guði á himnum. Eg stóð og hengdi niðr lotið höfuð, og óskaði, að eg væri aftr orðinn að ungbarni, til þess, að faðir minn gæti kennt mèr að tala, án þess að kenna mèr þetta óguðlega blótmál. Því eg hèlt, að það væri nú komið svo upp í vana fyrir mèr, að mèr væri ekki hugsandi til að bæta mig; það gæti aldrei orðið.”

“Enn upp frá þessu hætti eg alveg að blóta. Mig furðaði sjálfan allan, er eg tók eftir þessu. Áðr gat eg ekki talað nema eg setti inn blótsyrði fyrir framan og aftan hvað eina sem eg sagði, til þess að fá því svo sem því meiri kraft. Enn nú talaði eg óblótandi og var þó málfæri mitt miklu þægilegra og heyrilegra enn fyrri.”

Oss þykir ljóst af þessum orðum Bunyans, að blót hafi verið bernsku-óvani, er hann hafði numið að föður sínum, og öðrum, er hann um gekkst, og engum hafði orðið, fyrr enn konu þessarri, að atyrða hann fyrir. Óðar enn athygli hans er vakin að því, að þessi óvani sè synd, leggr hann hann niðr alveg. Í þessu atriði þykir oss sem æfisöguritarar Bunyans sè bærari að fráreikna, enn að tilreikna, honum syndina.

Guðlast var og freisting er sókti ósjálfrátt á Bunyan, og hann barðist gegn með öllu móti. Hann getr þess, hvað eftir annað í æfisögu sinni, að illir andar bæði hvísluðu að honum, orguðu í eyra honum, og skutu honum í hjarta guðlöstunum sem honum óaði við sjálfum. Stríðið við þenna óhugnað gjörði hann oft svo æran og vitstola, að guðlöstunin var hrotin honum yfir varir fyrr enn hann varði. Enn óðar og orðinu slapp, gagntók sál hans grimm hrelling og sárar kvalir, svo að hann vissi stundum ekki, hvað hann átti af sèr að gjöra. Þessu stríði sínu lýsir hann í sögu Kristins í Niðrlægingardal (sjá bls. 55, l. 19–32). Það er bert af æfisögu hans, að hverju sem þetta var að kenna, var það hvorki að kenna löngun hans til þess að guðlasta, nè ánægju hans af því að fremja þá synd. Og að hve miklu leyti þessi synd hafi verið honum tilreiknanleg teljum vèr æfisöguritara hans varla bæra að dæma.

Þegar Bunyan var farinn að prèdika fyrir trúarbræðrum sínum, komst hann brátt í óvináttu við presta, og þá er fylgdu máli þjóðkirkjunnar. Þá urðu ýmsir til að spinna upp þær sögur, að hann hefði lifað saurugu lauslífi á yngri dögum, og væri konu sinni ótrúr. Þessum rógi svarar hann hart og einart í æfisögu sinni (í 309.–316. greinum), og þykir oss nægja, að taka framm þessi orð hans: “Gjöri óvinir mínir allt er þeir geta, til að sanna, að nokkur kona sè til á himni, á jörðu eða í helvíti, er geti sagt, að eg hafi nokkurn tíma nokkurs staðar á degi eða nóttu einu sinni svo mikið sem sýnt mig í því, að komast að munum við hana—þeim er það velkomið! Mæli eg þannig til þess, að fá lofstír af fjandmönnum? Nei, langt frá! Í þessu efni hirði eg um einskis manns trú eðr vantrú.—Eg skoraði ekki einungis á menn, heldr og á engla líka, að sanna, að eg hefði nokkuru sinni átt holdleg afskifti af nokkurri konu nema minni eiginni. Þessa áskoran óttast eg ekki að endrtaka aftr nú, því eg veit með vissu, að í þessu efni get eg ekki styggt Drottin minn, þó eg biði hann, að vera sál minni vitni, að eg sè saklaus af öllu þessu.”

Engum manni, er les með eftirtekt lýsingu Bunyans á sjálfum sèr í öðrum greinum, getr vafizt hugr um það, að í þessu efni eigi hann sakleysingjans málstað að verja.

Hinar sjálfráðu syndir teljum vèr, eins og áðr er á vikið, klukkuhringinguna, dansinn og pinnaleikinn. Um aðrar ásetnings syndir finnum vèr ekki að Bunyan saki sig; að minnsta kosti ekki svo, að hann nefni þær á nafn sèrstaklega. Við pinnaleiks syndina lèt hann skilið framm úr því, að hann heyrði, einn dag er hann var að leik þessum, rödd kalla til sín frá himnum segjandi: “Viltu láta af syndum þínum, og fara til himnaríkis, eða viltu halda við syndir þínar, og fara til helvítis?” Hann segist hafa staðið með pinna trèð höggdofa og horft til himna; hafi þá sèð andlit Jesú Krists líta niðr til sín með reiðisvip miklum fyrir það, að hann skyldi gefa sig allan við þessu og öðru jafn-óguðlegu gjálífi. Bunyan gekk heim skjálfandi. Hin dauðlega pinnaleiks freisting var buguð; framm úr þessu fækkuðu ferðir hans til þessa synduga leiks óðum, unz þær tókust af með öllu.

Þessu næst tók við stríðið við hringingar freistinguna. Enn þar varð sigrinn torsóktari, enn í pinnaleiknum. Það hafði lengi verið venja Bunyans að fara upp í kirkjuturninn í Elstow til að hringja klukkunum. Margir unglingar frá Elstow slógust jafnan í förina með honum. Ekki vita menn að drengjum þessum hafi gengið annað til enn unggæðisleg löngun að heyra klukknahljóminn. Enn það er víst, að hreintrúar mönnum (Púritönum) í Elstow þótti klukkuhringing utan tíða háskaleg stórsynd. Á Íslandi hafa menn sumstaðar ennþá áþekka trú á hversdagslegri klukknahringingu. Bunyan ásetti sèr, að leggja þessa synd niðr. Fyrst hætti hann að leggja hönd á verkið sjálfr, enn gat þó ekki að sèr gjört, að ganga ekki í kirkjuturninn til þess, að horfa á hina piltana, meðan þeir hringdu klukkunum. Enn hann sannfærðist bráðum um það, að þetta væri lítil og óveruleg lifnaðarbót, og þyrfti meira til, til þess, að geta heitið syndlaus í þessu efni. Hann styrktist í ásetningi sínum við þá hugsun er dag einn fór eins og þrumuhreimr um sál hans: “Enn ef klukkurnar skyldi detta niðr og ofan á mig, og eg skyldi deyja í syndinni?” Nú hopaði hann á hæl; þó ekki lengra enn undir bitann, er lá þvert um turninn fyrir neðan klukkurnar. Þar hlustaði hann á hljóminn, og þar hèlt hann lífi sínu yrði borgið, þó ofan kæmi klukkurnar. Enn þetta var skammgóðr vermir. Bitinn skýldi vel, ef klukkurnar skyldi detta beint niðr. Enn ef þær skyldi slöngvast, um leið og þær dyttu, yfir í vegginn, og hrökkva svo úr veggnum yfir á Bunyan, hvað þá? Undir þessu vildi hann ekki eiga. Lagði því á flótta út í turn-dyrnar. Þar hèlt hann nú að sèr væri vel borgið. Þó fèkk hann hèr ekki nema stundar frið. Hví skyldi ekki turninn geta hrunið ofan á hann? Þá kom hin síðasta hríð milli sjálfsafneitunar hans og hringingar freistingarinnar, og var all-snörp, enn endaði með því, að hann kom aldri nærri þessum freistingarinnar töfra-turni framar, er hinn guðlausi drengjalýðr í Elstow skemmti þar freistaranum með þessu guðsreiðiverki, hringingunni.

Barátta Bunyans við dansfreistinguna var þessarri svipuð. Þorpinu Elstow fylgdi bali, eins og öllum öðrum þorpum í Englandi jafnan fylgir (village green), þar er þorpsbúar voru vanir að lètta sèr upp eftir dagsins erfiði með dans og leik. Bunyan hafði lagt í vana sinn að fara þangað, og dansa með unglingunum frá Elstow. Nú þótti honum tími til kominn að leggja þá synd niðr líka. Enn það tók hann heilt ár, áðr enn hann gat staðið af sèr, að hverfa á hlýjum vor- og sumarkvöldum út á hinn græna bala. Þó bar hann fullan sigr úr býtum yfir þessarri freistni á endanum.

Þetta voru þá stór-syndir Bunyans. Það mun flestum með heilbrigðri skynsemi vera ljóst, hvað þeir hafa, til síns máls, er gjöra þann mann að guðleysingja og enum versta glæpa-manni, sem ekki er ofrseldari ásetnings syndum sínum, og það þessum, enn svo, að hann fær sigrað þær, hverja af annarri, meðan æskublóðið rann örast í æðum hans, og hjartað, að almennri reynslu, var heiminum háðast. Þegar hann nú hafði lagt þær niðr, var hann, satt að segja, það sem menn almennt kalla einstakr reglu, siðsemdar og guðhræðslu piltr, og það þó hann væri dæmdr eftir mælikvarða hinna einstrengingslegu siðavendnis og hreintrúarmanna á þeirri öld er hann lifði.

Bunyan var, að því er ráðið verðr af Grace abounding, að öllum líkum fyrir innan tvítugt, er hèr var komið sögunni.

Þó hann hefði nú þannig sigrast á enum verstu syndum sínum, var hann að sjálfs síns dómi, engu betr farinn enn fyrr. Því fleiri syndir sem hann lagði niðr, því syndugri varð hann í eigin augum og óverðugri Guðs náðar. Dags daglega var freistarinn á tali við hann, og því oftar sem hann freistaði Bunyans, því örvæntingarfyllri varð sál hans. Nú beindi hinn vondi freistni sinni helzt að efa um Guðs náð, og sannleika fagnaðarlærdómsins, sem Bunyan sárkvaldist af að ná ekki þeirri huggun og friði fyrir sál sína úr, er hann þráði “heitar og örar enn orð fá lýst.” Hann fór nú að reyna að koma því heim, að Englendingar væri Gyðingar, til þess að geta skotið sèr inn undir útvalningar staf gamla sáttmála. Enn einhver varð til að sneypa hann fyrir þessa vitleysu, og enduðu þar tilraunir hans að ættfæra sig til Gyðinga. Þá lenti hann í löngum og mæðulegum heilabrotum um það, hvort kóranin, trúarbók Tyrkja, mundi ekki færa sáluhjálplegri lærdóm enn Biblia Kristinna manna, einkum um það, að Múhammed væri heimsins sanni lausnari. Þar kom jafnvel, að hann hèlt, að heiðingjar mundu hafa hina sönnu sáluhjálplegu trú. Þegar flog þessarra heilabrota höfðu pínt hann og ært um tíma, lètti þeim frá aftr og brá þá stundarværð á hina lúðu sál. Enn ró hjartans varð ekki langvinn. Þar var freistarinn sífelt heima, að Jón hèlt, og lèt hann aldrei í friði, er hann fèkk við komið. Hann bað Guð að hjálpa sèr að verða hans barn. Enn bæn hans fekk ekkert svar. Þá fylltist hann örvæntingar. Hann reyndi að leyta sèr svölunar í því, að tilbiðja stokka og steina, sófla, trè, og jafnvel hreppsnautið. Enn huggunin fór eftir guðunum. Því fleira er hann reyndi til þess, að brjóta sèr leið til sælunnar höfundar, því fjær fannst honum hann færast frá hinum þráða stað, og því dimmra lagðist myrkr örvæntingarinnar um sál hans. Enn eiruleysið og óþreyjan undir oki óvissunnar, og löngunin að vita vissu sína um guðsbarna rètt sinn, og hin sístarfandi andi hans lètu hann aldrei hafa hvíld. Ef leitir hans eftir þessarri vissu enduðu í örvæntingu einn daginn, hóf hann þær enn næsta dag með sama eldlega áhuga og sömu brennandi von sem fyrri. Einu sinni ásetti hann sèr, að ganga úr skugga um þetta fyrir fullt og allt. Hann var þá á ferð, margs hugsi, milli Elstow og Bedford. “Ef eg hefi trú, sagði hann, get eg gjört kraftaverk; enn geti eg ekki gjört kraftaverk, þá hefi eg enga trú.” Nú var þá að fá óræka vissu fyrir því, hvort hann hefði trú, og yrði þá hólpinn, eða væri trúarlaus, og yrði að tortýnast eilíflega. Áðr enn hann legði út í skýrslu þessa fór hann og kraup á knè við limgarð er lá með veginum, og bað lengi og heitt. Stóð hann síðan upp, gekk að götunni og leit á leir pollana í hófsporun hesta er um veginn höfðu gengið, og sagði: “Verðið þið þurrir!” Pollarnir þornuðu ekki upp. Hann hafði enga trú. Nú var hann eilíflega glataðr. Hjarta hans sè örmagna saman í honum, og var nú örvilnan hans hin miskunnarlausasta.

Enn rètt á eftir sá hann sýn, er færði honum huggun nokkura. Hann sá Bedfordbúa á sólbjartri fjallshlíð, baðandi sig í hlýjum sólargeislum; enn hann stóð sjálfr álengdar skjálfandi og titrandi af kulda í frosti og snjó og dimmu hreggskýjadrifi. Milli hans og Bedfordmanna var veggr, er hann gat ekki komizt yfir. Hann kvaldist af sárri þrá að komast til hinna sólskins sælu fjallshlíðarbúa. Enn hèr elti hann sama fyrirmununin eins og í lífinu. Hann gekk aftr og framm með garðinum, til að leita færis að komast yfir hann, mændi á hina sælu, kvaldist af eigin ófarsæld, og þetta gjörði hann hálfæran. Loks fann hann þó hlið á veggnum, var það svo mjó smuga, að hann komst gegnum það fyrst eftir langa þraut; og naut sólar og ils. Þannig er með hverja örvæntingarhviðu Bunyans, hún endar sífelt í einhverjum vonargeisla. Enn óðar og honum bregðr upp, er hann hrakinn brott með dimmri skýjum enn nokkuru sinni fyr. Óvissan um hag sálar sinnar á síðan gjörir hann æ hrelldari, og miskunnarlausari við sjálfan sig. Þessi barátta um líf og dauða ollir honum guðlöstunarfloga, sem hann fær með engu móti staðið í gegn. Djöfullinn freistar hans dögum saman, að tilbiðja sig; og Bunyan freistast að lokum. Þá skýtr hinn vondi honum í brjóst, að drýgja hina ófyrirgefanlegu synd, syndina móti Heilögum Anda. Gegn þessarri freistni barðist Bunyan lengi. Enn að lokum varð baráttan of hörð. Freistararnir kölluðu stöðugt til hans: “Seldu’ hann, Seldu’ hann!” (þ. e. Krist). Bunyan æpti aftr hástöfum til þeirra: Aldrei, aldrei! ekki fyrir þúsunda-þúsunda-þúsundir af heimum sel eg hann! þá skaut Bunyan óðum sjónum í ýmsar áttir, barði og lamdi í kringum sig, og stökk upp eftir fjöndunum til að fá handsamað þá og refsað að gagni fyrir ósvífni þeirra. Þessu gekk lengi, í vöku, við vinnu, við máltíðir, hvernig sem á stóð, og hvar sem Bunyan var. “Enn andskotinn er þrá-iðinn og þaul-sætinn,” segir Bunyan, og að lokum lúði þessi freistarans áreitni hann svo, að honum hèlt við óviti í þessu helstríði, og hið dauðlega orð slapp honum af vörum: “Fari hann þá, ef hann vill!” Nú var þá synd ennar eilífu fordæmingar drýgð. Nú var öll von úti. Bunyan hafði nú engan frið á sèr, dag nè nótt. Hann fór til guðhrædds manns í Bedford, að reyna að fá fróun í þessum andköfum örvæntingar sinnar. Hann tjáði manninum, að hann væri hræddr um að hann hefði drýgt syndina, er aldrei yrði fyrirgefin. “Jæja, ja, eg er nú hræddr um það líka,” sagði guðsmaðrinn, og við það fór Bunyan, verri enn hann kom. Nú var hann í sömu fordæmingu og Júdas svikari. Báðir höfðu selt meistara sinn—að Bunyan hèlt.—Eldr vonlausrar iðrunar brenndi hann þeim kvölum, er hann segist ekki fá lýst. Heilsa hans lèt nú undan þessu hvíldarlausa sálarstríði, og hann hèlt við rúmið öðru hvoru. Þessu hèlt framm þangað til líknin kom, er hann þráði, þó hún hvorki kæmi þaðan er hann bjóst við henni, nè væri að því skapi mjúk, sem hún varð honum holl.

Hann hafði nú verið prèdikari meðal Skýrenda í fimm ár, og var að eins tuttugu og tveggja vetra, er hann hóf þann starfa. Þau árin var sálarstrið hans hvað harðast, og svo var hann utan við sig af því, oft og tíðum, að hann gat ekki að sèr gjört, að láta hryllilegar guðlastanir líða sèr um munn jafnvel í stólnum. Ræður hans hrifu Skýrendr djúpt, ei að síðr, og orðstír hans spurðist fljótt meðal Skýrenda safnaðanna umhverfis Bedford.

Árið 1660 leið ríki Cromwells undir lok, enn Karl konungr Karlsson konungs fyrsta kom til ríkis. Einhver hin fyrsta stjórnarathöfn þessa konungs var sú, að heimila vildarmönnum sínum og þjóðkirkjuprestum um allt land, að ofsækja hina svo kölluðu Dissenters, eðr þá er með þverbreytni höfðu tekið sig út úr byskupa kirkjunni og stofnað söfnuði og kirkjufèlög út af fyrir sig. Enn af öllum Dissenters var enginn harðar ofsóktr enn Bunyan. Eins og margir aðrir var hann tekinn fastr og lögsóktr fyrir það, að halda ólöglega fundi, og að semja sig ekki að háttum og stjórn þjóðkirkjunnar. Hann stóð við orð sín og verk, og var dæmdr og hnepptr í varðhald í Bedford eins og við var að búast. Menn reyndu margt til þess, að fá hann ofan af prèdikunar starfi sínu; enn hvorki hótanir, ne hól, nè mjúkmæli nè loforð fengu annað svar hjá Bunyan enn þetta: “Gjörið þið hvað ykkr lízt. Ef þið látið mig lausan í dag, prèdika eg á morgun.” Honum var þá sagt að hann mætti búast við, að ala aldr sinn í varðhaldi það er eftir væri lífsins. “Verði Guðs vili,” svaraði Bunyan.—Það er ótrúlegt, enn þó satt, að þetta ofsóknar stríð varð Bunyan til andlegrar heilsu. Frá því, að ofsóknin hefst gegn honum, og alla æfi úr því, telr hann sig Guðs náðað barn. Enn öll lækningin er þar í fólgin, að orrustu svæðið er flutt úr hans eigin hjarta út í heiminn fyrir utan hann. Hingað til hefir hann verið að berjast með ímynduðu leiguliði helvítis við sína armæddu sál. Nú rís gegn þeim báðum sameiginlegr óvinr í mynd ofsækjandi þjóðkirkju. Þau sættast og ganga saman í bardagann við hann, og gleyma fornum sárum og sviða, verða bæði hraustari að sama skapi sem striðið nú verðr eðlilegra og áþreifanlegra. Það gegnir furðu að sjá hversu honum vex sálarþrek og sálar ró, því lengri sem varðhalds tíð hans verðr. Þetta er því furðanlegra, sem hann var frábærlega ör í lund, næmr að tilfinningu og elskr að heimili sínu, konu og börnum, er urðu alveg forstöðulaus er hans naut ei lengr við. Hann velti því oft fyrir sèr, hvort það mundi ekki vera synd, að fara þannig með konu og börn, er hann gæti með einu orði orðið frjáls og farið að vinna fyrir þeim. Sárast tók hann til dóttur sem hann átti og var fædd blind. Honum þótti svo vænt um þetta raunabarn sitt, að hann kvaðst ekki einu sinni geta vitað að nokkur andvari af lofti kæmi nærri henni. Nú verðr hún að þola hungr og kulda, biðja beininga og bíða högg og illa meðferð! sagði Bunyan við þá, er reyndu að telja um fyrir honum. Enn hvað um gildir, eg verð að gjöra það sem eg gjöri, eg get ekki annað. Til þess að hafa ofan af fyrir hyski sínu það er hann gat, lærði hann að búa til kniplinga og lèt allt er hann fèkk fyrir þá ganga til konu og barna. Hann sat í varðhaldi í tólf ár að kalla. Þó var hann ekki allan þann tíma jafn hart haldinn; og seinni ár bandingja æfi hans mátti fremr heita að hann væri frjáls maðr undir lögreglu eftirliti, enn reglulegr fangi. Því honum var leyft að lifa utan varðhalds með þeim skildaga, að hann stigi hvergi fæti út fyrir takmörk Bedfordbæjar. Sagt er að hógværð hans, þolgæði, jafnlyndi, guðhræðsla og trúræknis dæmi er hann hafði fyrir sambandingjum sínum hafi ollað því mest og bezt, að ofsækjendr hans fóru svo mannúðlega með hann, enda eigna sumir það byskupi þeim er þá var í stiftinu.

Árið 1671 varð Bunyan aftr frjáls að fullu og öllu. Karl konungr annar hafi bundizt eiði um það, að gjöra rómakaþólsku aftr að kirkjutrú á Englandi. Lög voru gefin út, er námu úr gildi allar hegningar statútur, er settar höfðu verið áðr gegn rómakaþólskum ríkisþegnum. Enn Dissenters nutu þessa um leið, þó líknin við þá væri fyrirsláttr einn af klæki konungs og ráðaneytis hans, og hefði endað líf margra þeirra á báli, hefði ætlun konungs orðið frammgengt. Bunyan færði saman þakkar- og lof-ritgjörð um konung fyrir gæzkusemi hans og mannúðlega löggjöf; enn hefði líklega annað hvort ekki skrifað, eða þá öðruvísi, hefði hann sèð gegnum flækju Karls konungs og Cabal-stjórnar hans.

Um það leyti er Bunyan komst úr varðhaldi hafði hann byrjað á För Pílagrímsins. Fyrir það rit er Bunyan orðinn frægri enn nokkur annar maðr hefir orðið fyrir sams konar rit. Það er saga sem lýsir mannlegu trúar og siðferðislífi í athöfnum og orðum ímyndaðra manna. Það er hin bezta líkingarsaga (Allegori) trúarlegs efnis, er nokkurn tíma hefir verið færð í letr, og því undrunarverðari sem höfundrinn var ómenntaðri. Hann segir svo sjálfr frá, að hann hafi verið að semja annað rit um kristinna manna pílagrímsferð, er hann hafi allt í einu, og áðr enn hann varði, byrjað á För Pílagrímsins. Óðar enn hann hafi farið að rita sögu þessa hafi myndir og ímyndanir streymt sèr í huga svo ótt og títt að hann hafi varla haft undan að skrifa. Hafi sèr því dottið í hug, að taka þenna hugmyndasveim saman í bók sèr. Honum fór nú eins og áðr í freistingar stríði sínu: Hann gat ekki að sèr gjört að rita, það varð freisting sem hann fèkk ekki af staðið. Segist hann því hafa ritað söguna sèr til skemmtunar, enn hafi aldrei dottið í hug, fyrr enn hún var alrituð, að láta hana koma fyrir almennings sjónir. Þegar sagan var rituð sýndi Bunyan hana ýmsum kunningjum sínum. Sumir dáðust að henni, sumir efuðust um ágæti hennar, sumir eggjuðu hann á að gefa hana út, aðrir rèðu honum frá því. Loks skar hann úr sjálfr og rèðst í að láta prenta hana. Ekki vita menn hvenær fyrsta útgáfan var prentuð, því engin rytja er nú til af þeirri útgáfu svo kunnugt sè. Enn árið 1678 kom út önnur útgáfa og síðan hver af annarri svo að 1685 voru komnar út tíu útgáfur í Englandi, enn nú er þessi bók komin út í fleiri útgáfum enn nokkur önnur ensk bók að frá tekinni biflíuþýðing Breta, og er þýdd á fleiri mál enn nokkur önnur ensk bók frumritin. Oss þykir ekki eiga við hèr að fara að liða sundr rit þetta til að sýna kosti þess. Um það látum vèr lesarann einan. Enn geta má þess, að menn mega ekki gleyma því, er þeir lesa það, að það er samið fyrir tvö hundruð árum og á þeim tíma, er hin miskunnarlausa og einstrengingslega hreintrúarstefna (Puritanismus) gekk með mestum og beiskustum ofsa yfir England. Það var eðlilegt að ofstæki þessarrar stefnu kendi mest hjá þeim, er harðast voru ofsóktir; enn allra utankirkju flokka urðu Skýrendr fyrir harðastri ofsókn landskirkjunnar og lögstjórnarinnar. Hafi menn þetta í huga, skilst betr margt, er hart og óþjálft virðist fyrst í stað í För Pílagrímsins. Um ljóðmæli þau er koma á stangli framm í riti þessu er það að segja, að þau eru af allra fátækasta tagi; því Bunyan var ekki skáld, þó hann yrkti. Í þýðingunni er farið svo nærri frummálinu sem oss var unt; enn kveðandi og rími höfum vèr breytt eins og oss þótti bezt eiga við efnið í hvert skifti. Í vísunum á 288 bls er frumkveðandi haldið.

Það leið ekki á löngu, er För Pílagrímsins var komin út, að Bunyan komst til virðingar og metorða meðal trúar bræðra sinna. Hann var nú frægastr rithöfundr meðal þeirra, og naut þeirrar lotningar er andlegum yfirburðum er alls staðar veitt. Enn hann var þar að auki djúpsettr skynsemdar og ráðdeildar maðr, og enn mesti skörungr er tillaga hans var leitað. Því var hann almennt kallaðr byskup Bunyan meðal Skýrenda. Hann hèlt á hverju ári kirkjulega yfirreið meðal safnaða Skýrenda, prèdikandi, ráðleggjandi, og hvetjandi þá til staðfestu í trú og góðum verkum. Jafnframt þessu hèlt hann áframm ritstörfum sínum, og liggr fjöldi rita eftir hann er hèr yrði of langt að telja.

Sumarið 1688 á yfirreið sinni tókst hann á hendr að koma syni í sátt við reiðan föður, er ráðið hafði að gjöra hann arflausan. Á leiðinni hreppti Bunyan rigningu og varð holdvotr, og sló að honum köldu er hann kom heim, sem leiddi hann til bana fullra sextígi ára að aldri. Þar hnè einn hinna merkustu rithöfunda og beztu manna er lifðu á sautjándu öld.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

Inngangur · 26 mín. eftirÁgrip af æfisögu Johns Bunyans