Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

27. kafli

Hjá Mnasoni

um 13 mín. lestur

Þannig fóru þeir allir, pílagrímarnir, ferða sinna, unz þeir komu þar, er Fagnaðarboði hafði mætt þeim Kristni og Trú, og sagt þeim fyrir örlög þeirra, að Hègómamarkaði. Þá sagði Hugprúðr við þá: Hèr mætti Fagnaðarboði þeim vinum, Kristni og Trú, og sagði þeim fyrir, hvaða raunir þeir ættu í vændum að Hègómamarkaði.

Ráðvandr: Nei, hvað segirðu? Sú ræða hefir ekki verið allmjúk, það þori eg að segja.

Hugprúðr: Nei, hún var það ekki, enn hann hughreysti þá jafnframt. Enn hvað viljum við vera að tala um þá? Þeir voru hugaðir sem ljón, og harðir sem tinna. Þótti þèr ekki þeir vera allhugrakkir, þegar þeir stóðu frammi fyrir dómaranum?

Ráðvandr: Jú. Og Trúr varð vel við dauða sínum.

Hugprúðr: Já, hann varð það sannarlega, enda urðu og afleiðingarnar samboðnar dauðdaganum; því sagan segir, að Vongóðr, og ýmsir fleiri, hafi snúizt við dauða hans.

Ráðvandr: Æ, blessaðr segðu mèr nokkuð meira um það, því eg heyri, að þú ert vel kunnugr allri sögu þeirra Kristins.

Hugprúðr: Eftir að Kristinn komst af Hègómamarkaði mætti hann ýmsum af misjöfnu tagi, enn þó tók Sèrhugall yfir alla.

Ráðvandr: Sèrhugall, hvað manna var hann?

Hugprúðr: Hann var erkibófi og endalaus hræsnari; hann notaði trú og trúarbrögð fyrir skýlu í hverju einu, enn þó svo slæglega, að hann skyldi aldrei komast í neinn vanda fyrir það. Í hverju atviki, er honum lá á, hafði hann nýja trú, og allt hið sama konan hans. Það var hans venja, að hverfa sífelt af einni skoðun á aðra, og þykjast að betri fyrir það. Enn að því er eg hefi spurt, reiddi honum illa af fyrir alla sjálfshugulsemi sína. Enda heyrði eg og aldrei, að nokkurt barna hans væri í metum haft hjá nokkurum manni, er í sannleika óttast Guð.—Um þetta leyti voru þau þar komin vegar síns, er heim sá til Hègómaborgar, þar sem Hègómamarkaðr er haldinn. Og er þau sáu, að þau voru svo nærri bænum lögðu þau ráð með sèr um það, hvernig þau skyldu fara gegnum hann. Nú sýndist einum þetta, öðrum hitt. Loks talaði Hugprúðr, og mælti: Vita munuð þið, að eg hefi oft fylgt pílagrímum um þenna bæ. Og það ber til þess, að eg þekki mann nokkurn hèr, að nafni Mnason (Post. g. 21. 16), ættaðan frá Kypr; hann er gamall lærisveinn, og í húsi hans fáum við að vera. Ef ykkr lízt svo, förum við þangað.

Eg er ánægðr með það, sagði Ráðvandr, og eg, sagði Kristín, og eg, sagði Ístöðulaus; og hið sama sagði hver um sig. Um það leyti, sem þau voru komin heim undir borgina var komið kvöld. Enn Hugprúði var kunnug leiðin heim í hús ens gamla manns. Nú komu þau þangað, og guðaði Hugprúðr við dyrnar, enn hinn gamli maðr, er var inni, þekkti rödd hans, þegar er hann heyrði hana. Hann opnaði þá dyrnar og þau gengu öll inn. Þá sagði Mnason: Komið þið langt að í dag? Frá Gaiusi vini þínum, svöruðu þau. Það er naumast, að þið hafið lagt land undir fót, sagði hann, mig skal ekki furða, þó þið finnið til þreytu, setizt þið nú niðr. Þau gjörðu svo.

Hugprúðr, leiðtogi þeirra, mælti nú: Nú, nú, hvaða beina vilið þið hafa, góðu pílagrímar? Eg þori að fullyrða að þið eruð vini mínum velkomnir.

Mnason: Já, eg bið yðr öll hjartanlega velkomin, segið þið að eins til, hvað þið vilið hafa, og skal allt verða gjört, sem hægt er, að útvega það.

Ráðvandr: Það, sem okkr vanhagaði mest um fyrir skömmu, var hæli og góðra manna fèlag, og nú vona eg að það hvort tveggja sè fengið.

Mnason: Þið sjáið nú þegar hverju hælið er líkt. Enn hvernig fèlagið ræðst gefr reyndin að vita.

Hugprúðr: Nú, viltu þá gjöra svo vel, að sýna þessum pílagrímum herbergin, sem þeir eiga að vera í?

Mnason: Það vil eg; og fór hann nú með hvern um sig þangað, er hann átti að vera; hann sýndi þeim og matstofuna þar er allir skyldu taka kvöldverð saman og hafast við til háttatíma.

Þegar nú allir voru seztir, hver í sínu sæti, og höfðu hresst sig eftir ferðina, spurði Ráðvandr húsráðanda hvort margt góðra manna væri í þessum bæ.

Mnason: Hèr eru fáeinir; enn þeir eru fáir einir í samanburði við grúann hinn.

Ráðvandr: Hvernig getum við fengið að komast í kynni við einhverja þeirra? Því þeim er fara í pílagrímsgöngur er eins þægt að sjá gott fólk, eins og þeim, er um sæ sigla, er ljúft, að sjá tungl og stjörnur.

Mnason: Nú stappaði Mnason fæti í gólfið, og kom dóttir hans, Þekk, framm. Farðu, Þekk, sagði hann, og segðu vinum mínum, Iðranda, Heilag-menni, Góðravin, Oljúgmálum og Lífvöndum, að hèr sè kominn vinr minn, er langi til þess, að fá að sjá þá í kvöld. Þekk fór að kalla þá saman, og þeir komu, og er menn höfðu heilsazt settust allir saman að borði.

Þá mælti húsbóndinn, Mnason: Þið sjáið nú, grannar góðir, að eg hefi fengið gesti í húsið; þeir eru pílagrímar, eru langt að komnir, og eru á ferð til Zíons fjalls. Enn hver haldið þið sè þarna komin? og benti hann á Kristínu. Þetta er nú Kristín, kona Kristins, ens fræga vallara, er varð fyrir verstri meðferðinni, ásamt bróður sínum, Trú, hèr í bæ vorum. Við þetta urðu nágrannar hans forviða, og sögðu: Það datt okkr sízt í hug, að við mundum sjá Kristínu hèr, er Þekk kom að bjóða okkr. Þetta var óvænt ánægja. Þeir spurðu hana nú hvernig henni liði, og hvort enir ungu menn, er með henni voru, væru synir manns hennar. Og er hún hafði sagt þeim, að svo væri, mæltu þeir: Megi konungrinn, er þið elskið og þjónið, gjöra yðr líka föður yðar, og koma yðr þangað er hann dvelr í friði.

Ráðvandr spurði þá Iðranda, er allir voru seztir niðr, hvernig bæjar brag horfði nú við.

Iðrandi svaraði: Þú mátt trúa því, að hèr er allt á flugi er markaðar tíðin stendr yfir. Það er all-erfið þraut, að vernda huga og hjarta sitt, þegar öllu ægir hèr saman. Sá sem lifir í öðrum eins stað og þessi er, og verðr að eiga viðskifti við aðra eins menn og við verðum að umgangast, þarf sannarlega að hafa varúðar áminningu við hendina, til þess, að geta haft varhuga við á hverju augnabliki dagtíðarinnar.

Ráðvandr: Enn hvernig gengr það nú með spektir bæjarmanna?

Iðrandi: Þeir eru nú langt um skaplegri enn áðr. Þú munt vita, hvernig farið var með Kristinn og Trú hèr í bænum. Enn nú á síðari tímum, má eg segja, hafa bæjarbúar verið miklu spakari. Eg held, að blóð Trús liggi enn, til þessa dags, eins og drápsbyrði á þeim. Því að síðan þeir brendu hann hafa þeir skammazt sín svo, að þeir hafa engan annan brent. Í þá daga vorum við svo hræddir, að við þorðum ekki að láta sjá oss á bæjar götunum, enn nú getum við þó látið sjá okkr. Þá var það mönnum viðrstygð, að heyra nafn trúaðs manns nefnt; enn nú er trúin talin mönnum til heiðrs í sumum hlutum borgarinnar—enn borg vor er stór, eins og þèr mun vera kunnugt. Síðan mælti Iðrandi: Enn segið mèr, hvernig gengr ykkr pílagrímsförin og hvernig er viðmót landsmanna við ykkr?

Ráðvandr: Oss fer eins og ferðamönnum er títt: stundum er vegrinn greiðr, stundum illfær, stundum er á brekkuna að sækja, stundum niðr hallann að fara, og sjaldan vitum við með vissu hvað við tekr næst. Vindrinn stendr ekki æfinlega í bakið; ekki eru þeir heldr allir vinir er vèr hittum á leið vorri. Við höfum komizt í hann allkrappan þegar, og vitum enn lítt, hvað að höndum kann að bera. Enn að öllu samtöldu reynist oss hið fornkveðna satt að vera: Góðr maðr verðr þrautir að bera.

Iðrandi: Þú talar um þrautir; hvaða þrautir hafið þið komizt í?

Ráðvandr: Spurðu Hugprúðan, leiðtoga okkar, því hann getr bezt sagt þèr söguna um þær.

Hugprúðr: Við höfum orðið þegar fyrir fyrirsátrum einum þrisvar eða fjórum sinnum. Fyrst settust varmenni að Kristínu og börnum hennar, og óttuðust þau, að þeir mundi firra þau lífi. Við lentum í fyrirsátri þeirra risanna Blóðhunds, Hamars og Góðrabana. Enn í rauninni er það þó sannar, að við settumst að þessum síðast nefnda, fremr enn hann að oss. Og þetta bar til, eins og eg skal nú segja þèr. Þegar við höfðum dvalið um hríð hjá Gaiusi, gestvini vorum og allrar kirkjunnar, tókum við okkr saman einu sinni, og klæddumst vopnum, og fórum út, til þess, að vita, hvort við ekki gætum fundið einhvern, er legði í vana sinn að fjandskapast við farandi pílagríma; því að við höfðum heyrt að þar um svæði væri einn slíkr alræmdr pílagrímadólgr. Enn Gaiusi var kunnugra um vegi hans enn mèr, því hann hafðist við þar í nágrenninu. Við fórum nú og skygndumst og leituðum, þangað til við fundum munnann á helli hans; þá glöddumst við, og fyltumst hugmóði miklum. Við gengum nú nær bæli hans; og er við komum þangað: Sjá, þá hafði hann veitt með ofbeldi í net sitt aumingja manninn þarna, hann Ístöðulítinn, og var að búa sig til að lífláta hann. Enn er hann sá oss, þóttumst vèr mega ráða það af atferli hans, að hann ætlaði að hèr hlypi honum í hendr önnur bráð, því hann skildi aumingja manninn eftir í húsi sínu og kom nú út. Nú rèðumst vèr á hann, allt er vèr máttum, enn hann lèt ekki heldr skorta vígmannlega vörn. Enn svo lauk þeim leik, að hann var lagðr að velli, og höfuðið höggvið af honum, og var sett upp á stöng við veginn þeim til skelfingar er síðar kynnu vilja fremja sama guðleysi og hann. Hèr er maðrinn til vitnis um það, að eg segi þèr satt, er tekinn var eins og lamb út úr ljóns kjafti.

Ístöðulaus: Já, satt er það, þar á mátti eg kenna mèr til meins og ógnar, þó farsællega rættist úr því öllu. Eg segi mèr til ógnar, því hann hótaði mèr, að hann mundi á hverju augnabliki naga bein mín; enn farsællega, segi eg, rættist úr því öllu, er eg sá herra Hugprúð og vini hans í alvæpni komna á næstu grös, mèr til lausnar og frelsis.

Heilagmenni: Það eru tveir kostir, er þeir verða að vera búnir, er fara í pílagrímsferð: hugrekki og óflekkað líf. Ef þá skortir hugrekki, geta þeir aldrei haldið sèr við veginn, og sè þeir lauslífir gjöra þeir jafnvel nafn pílagríma að óþef einum.

Góðravinr: Eg ætla að vona, að enginn meðal yðar þurfi þessarrar aðvörunar. Enn sannast sagt fara margir um farinn veg, er sýna, að þeir eru því miklu ókunnari, hvað það er, að leggjast í pílagríms lifnað, enn að vera útlendingar og pílagrímar á þessarri jörð.

Oljúgfróðr: Þetta er satt. Þeir hafa hvorki pílagríma gerfi, nè pílagríma hugrekki. Þeir ganga ekki upp rèttir; heldr á bognum, öfugvöxnum fótum; annar fótr horfir inn, annar út; hosur þeirra eru rifnar; á einum stað flakir dula, á öðrum gapir rifa, sem allt er Drottni þeirra til óvirðingar.

Lífvandr: Slíkt ætti að afla þeim sálar óróa; enda er ekki líklegt, að pílagrímar eðr far þeirra eigi þeim þokka að fagna er þeir æskja eftir, fyrr enn úr vegi er hrundið slíkum blettum og lýtum.

Þannig sátu þeir og samræddu og eyddu tímanum, þangað til kvöldverðr var borinn á borð. Tóku þeir þá til snæðings, hresstu þreytt hold, og gengu síðan til náða.

Þeir lètu hèr fyrir berast meðan markaðr stóð, og voru í húsi Mnasons. Og er tími leið framm gifti hann dóttur sína, Þekk, Samúel Kristins syni, og Mörtu, dóttur sína Jósef.

Eins og eg sagði, dvöldu þeir hèr langa hríð, því nú voru tímarnir aðrir orðnir enn fyrri. Pílagrímar komust því í kynni við marga góða bæjarbúa, og gjörðu þeim allt til greiða, er þeir gátu. Líkn brá ekki af vananum, enn gjörði allt er hún gat fátækum til hugnaðar. Enda blessaði margr aumingi hana fyrir fæddan maga og klæddan kropp; og hún var þar sómi trúarjátningar sinnar. Og um Þekk, Febe, og Mörtu má það með sanni segja, að þær voru konur mjög hjartagóðar, og lètu mikið gott af sèr leiða hver í sinni stöðu. Allar voru þær og kynsælar konur, svo allar líkur voru til þess, eins og fyrr var sagt, að nafn Kristins mundi lengi uppi vera í heiminum.

Meðan pílagrímar lágu hèr við, kom skrímsli mikið út úr skógunum, og drap marga af bæjarmönnum. Það sat og um það, að stela börnum og láta þau sjúga hvolpa sína. Enginn bæjarmanna hafði hug til að veita skrímsli þessu viðnám, enn allir flýðu þegar er þeir heyrðu til þess.

Skrímsl þetta var engu jarðnesku kvikindi líkt. Skrokkrinn var líkr dreka, og það hafði sjö hausa og tíu horn. Það gjörði usla mikinn einkum meðal barna, og þó var það undir stjórn konu einnar. (Opb. b. 17. 3.) Skrímslið gjörði mönnum ýmsa kosti, og þeir sem unnu meira jarðnesku lífi sínu enn sálu sinni genga að kostum þess. Enn þeir fórust allir.

Nú gjörði Hugprúðr og þeir, er heimsóktu pílagrímana í húsi Mnasons, ráð með sèr, að fara út og ráðast á ófreskju þessa, og treysta hvort þeir ekki fengi frelsað bæjarmenn frá klóm og kjafti þessa mannsólgna dreka.

Þeir Hugprúðr, Iðrandi, Heilagmenni, Óljúgmáll og Lífvandr tóku nú vopn sín og fóru út, til þess, að ráðast á skrímslið. Í fyrstu var ófreskjan hnarreist mjög, og horfði með miklum fyrirlitningar svip á fjanda sína; enn þeir lèku það svo hart, með því þeir voru allir enir ótrauðustu menn til vopnaburðar, að það lèt undan síga að lokum. Síðan snèru þeir á brott og komu heim aftr til Mnasons.

Eg verð að geta þess, að skrímsli þetta kom framm á vissum tímamótum, er það lagðist á börn bæjarmanna. Þá sættu þessir hraustu drengir lagi og sátu fyrir því, og veittu því atsókn hvað eftir annað. Og svo lauk, er tímar liðu framm, að það varð ekki einungis sárt, heldr halt. Enda hefir það síðan aldri gjört þann usla meðal barna bæjarmanna er það gjörði áðr. Og margir hafa það fyrir satt, að skrímsli þetta muni deyja af sárum sínum.

Fyrir þetta varð Hugprúðr og fèlagar hans all frægr í bænum; svo að margir bæjarbúa, er þó voru þeim alls ólíkir að lundarfari báru mikla virðingu og lotningu fyrir þeim. Fyrir þessar sakir rættist svo úr fyrir pílagrímum, að þeir urðu ekki fyrir mjög miklum óskunda. Enn þó er satt bezt sagt, að sumir enna auðvirðilegri af bæjarmönnum, er ekki sáu glöggvar enn moldvarpa, nè höfðu greind framm úr grips viti, báru enga virðingu fyrir þessum mönnum, og lètu sèr hvergi finnast um hreysti þeirra nè afbragðsverk.

Nú leið að þeim tíma, er pílagrímar urðu að halda framm ferð sinni, og bjuggust því til burtfarar. Þeir boðuðu vini sína á fund, og báru ráð sín og hag undir þá, og vörðu þeir til þess nokkurum tíma, að fela hvorir aðra vernd Lávarðar síns. Sumir færðu þeim gjafir, af því er fyrir hendi var, bæði þær er gagna máttu veikum og styrkum, konum sem körlum, og hlóðu þá nauðsynja-vistum. (Post. g. 28. 10.) Síðan lögðu þeir af stað, og fylgdu vinir þeirra þeim úr garði eins langt og þeir fengu við komið. Því næst fólu þeir hvorir aðra vernd konungs síns, og skildu síðan.

Nú hèldu pílagrímar sinn hóp, og fóru leiðar sinnar, og Hugprúðr á undan. Konur og börn, er veikari voru enn karlmennirnir urðu að ráða ferðinni, svo að Bægifótr og Ístöðulítill höfðu nú fleiri með sèr, er vorkent gátu þeim vesæld þeirra.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

27. kafli af 31 · 13 mín. eftirHjá Mnasoni