Ellefti kafli
Hégómamarkaðr
Þegar þeir voru nærri því komnir yfir öræfin, leit Trúr við, og sá hvar maðr fór á eftir þeim, og kenndi hann manninn, og sagði við Kristinn: Nei, líttu við bróðir, hver kemr þarna? Kristinn leit við og sagði: Ó, það er minn góði vinr Fagnaðarboði.
Já, hann er minn góði vinr líka, sagði Trúr, því að hann var það, er kom mèr á veginn að hliðinu. Nú náði Fagnaðarboði þeim og kastaði kveðju á þá, og sagði: Friðr sè með yðr, elskuðu vinir, og friðr sè með öllum þeim, er yðr hjálpa.
Kristinn: Vertu marg-velkominn, góði Fagnaðarboði! Þegar eg sè ásjónu þína, minnist eg þakklátlega hinnar fornu vináttu og óþreytandi starfsemi þinnar að eilífri farsæld minni.
Trúr heilsaði honum með þessum orðum: Ó hversu marg-kærkomin er okkr ekki samfylgd þín, hjartkæri Fagnaðarboði! hversu fegnir verðum við ekki henni, fáráðir pílagrímar.
Fagnaðarboði: Hvernig hefir ykkr gengið, góðu vinir, síðan við sáumst síðast? Hvað hefir nú drifið á dagana, og hvernig hafið þið borizt af?
Nú sögðu þeir honum báðir frá öllu, sem hafði mætt þeim á leiðinni, og hvernig þeir hefði komizt áframm hingað, sem og hvaða torfærur hefði mætt þeim.
Eg er næsta glaðr, sagði Fagnaðarboði, að heyra þetta; ekki gleðst eg yfir því, að þið hafið ratað í raunir og freistingar, heldr af því, að þið hafið sigrazt á þeim, og að þið hafið haldið stöðugt áframm ferð ykkar allt til þessa dags. Eg segi það satt, að þetta gleðr mig, bæði mín og ykkar vegna. Eg hefi sáð, enn þið hafið uppskorið; og sá dagr mun koma, er báðir munu fagna samt, bæði sá sem sáir og sá, sem upp sker (Jóh. 4. 36), svo framarlega sem þið ekki gefizt upp; því á sínum tíma munum vèr upp skera, ef vèr ekki letjumst. (Gal. 6. 9.) Kórónan er yðr geymd, skundið því skeið yðar, svo að þèr náið henni. (1 Kor. 9. 24–27.) Margir fara af stað til að öðlast þessa kórónu og þegar þeir eru búnir að ganga í því skini lengi lengi, þá kemr annar að, og tekr hana frá þeim. Haldið þess vegna fast því er þèr hafið, svo enginn taki frá yðr yðar kórónu. (Opb. b. 3. 11.) Þèr eruð ekki enn þá komnir örskots fjærð frá djöflinum, þèr hafið ekki enn þá barizt blóðugri baráttu gegn syndinni. Hafið ávalt arfleifð Guðs ríkis fyrir augum, og trúið staðfastlega hinum ósýnilegu hlutum annars heims. Látið engan hlut af þessum heimi fá fangaráð á yðr. Hafið, um framm allt, gætr á hjörtum yðar og girndum þeirra, því að þau eru svikulari enn allt annað og næsta spilt. Sýnið hörku yðar og karlmennsku, því að þèr hafið með yðr allt vald bæði á himni og jörðu.
Kristinn þakkaði honum mjög þessa upphvatningu; enn tjáði honum jafnframt, að þeim þætti um framm allt æskilegt, að hann legði þeim holl ráð og þörf, er þeir gæti hagnýtt sèr, það er eftir væri af veginum, og það því heldr, sem þeir væri sannfærðir um að hann væri spámaðr, og gæti sagt þeim, hvað á daga þeirra mundi drífa, og hvernig þeir gætu komizt úr hættunum og bugað freistingarnar. Þessarri bæn Kristins samþykktist Trúr líka.
Þá tók Fagnaðarboði þannig til máls: Synir mínir, þið hafið heyrt þenna sannleika náðarlærdómsins: yðr ber í gegnum margar hörmungar að innganga í himnaríki, og líka hitt, að fjötrar og pintingar bíða yðar í hverjum bæ. Þess vegna megið þið ekki búast við því, að geta farið langar leiðir á pílagrímsgöngu ykkar, án þess, að eitthvað af þessu tagi mæti ykkr. Þèr hafið þegar fengið að kenna á sannleika þessarra orða, og mun þess skammt að bíða, að fleira fari á eftir; því að nú eruð þið þegar komnir út úr eyðimörkinni, og mun ykkr brátt bera að bæ nokkurum, er þið farið nú að eygja smátt og smátt. Þar mun óvina sægr setjast að ykkr, og sæta lagi, að fá firt ykkr lífi ykkru. Þið megið búast við því, að annarhvor ykkar, ef ekki báðir þið, verði að innsigla trúarjátningu sína með blóði. Enn haldið trúnni til dauða; þá mun konungrinn veita ykkr kórónu lífsins. Hvor ykkar, sem kann að deyja þar, öðlast mikinn ávinning framm yfir hinn sem eftir lifir, hversu vofeiflegr og kvalafullr sem dauðdagi hans kann að verða. Sá ávinnr mikið, bæði vegna þess, að hann kemst fyr til hinnar himnesku borgar, sem og þess vegna, að hann sleppr við allar hinar margföldu þrautir og hörmungar sem bíða hins það sem hann á eftir af leiðinni. Enn er þið komið til bæjarins, og sjáið orð mín rætast á ykkr, þá minnist vinar ykkar. Sýnið karlmennsku af yðr, og felið sálir yðar í góðum verkum Guði, hinum trúfasta skapara ykkar.
Þegar, er eyðimörkinni lauk, þótti mèr þeir sjá borg nokkura framm undan sèr. Sú borg hèt Hegómi, þar er markaðr haldinn, er kallaðr er Hegómamarkaðr, og stendr ár og dag út, og dregr nafn af því, að borgin, þar sem hann er haldinn, er lèttari enn hègómi (Sálm 62. 9); og líka af því, að allt, sem selt er þar og þangað flyzt er hègómi, eins og spekingrinn segir: Allt, sem kemr, er hègómi. (Prèd. 11. 8; sbr. 1. 2–14; 2. 11–17; Es. 40. 17.) Markaðr þessi er ekki nýstofnaðr verzlunarvegr, heldr mjög gamall, og skal eg nú skýra nokkuð frá uppruna hans.
Fyrir hèr um til fimm þúsund árum voru pílagrímar á ferð til hinnar himnesku borgar, eins og Trúr og Kristinn nú. Enn er Beelzebub, Apollyon og Legion, og þeir fèlagar þeirra sáu, að leið pílagríma til hinnar himnesku borgar hlaut að liggja gegnum Hegóma, eftir stefnunni, tóku þeir það til bragðs, að efna hèr til markaðar, skyldi hann standa allt árið um kring, og skyldi menn láta þar falan alls konar hègóma. Á markaði þessum eru seldar alls konar verzlunarvörur; t. á. m. hús, fasteignir, verzlanir, embætti, virðingar, einkaleyfi, nafnbætr, lönd, konúngsríki, lostgæti, skemmtanir; alls konar munaðr, t. d. m. pútur, konur, eiginmenn, börn, húsbændr, þjónar, líf, blóð, líkamir, sálir, silfr, gull, perlur, gimsteinar og hvað eina.
Enn fremr má sjá stöðugt á markaði þessum kukl, óknytti, dufl og trúðara, fífl, apabíli, fanta og bófa af öllu tagi. Þá má og sjá hèr fyrir ekkert þjófnað, morð, hordóm og meinsæri, og það allt í blóðrauðum litum.
Eins og títt er á öðrum minni mörkuðum hafa hèr stræti og götur ýmisleg nöfn, er tákna hvað sè til sölu í þeim, og flýta nöfnin á strætum og götum og borgarhlutum, sem allt eru lönd og konungsríki, fyrir þeim er vilja kaupa vörurnar. Hèr má sjá Breta götu, Frakka götu, Ítalíu götu, Spánar götu og Þjóðverja götu, og eru ýmsar hegóma tegundir til sölu í hverri þeirra. Á öðrum mörkuðum er það títt, að ein tegund sè aðal-útsöluvara, eins er og á þessum markaði; því að vörurnar frá Róm eru hèr aðalverzlunartegund, og eru það að eins fáir, sem amast við þeim vörum.
Eins og eg sagði fyr, liggr vegrinn til hinnar himnesku borgar gegnum bæinn, þar er þessi munaðar markaðr er haldinn. Sá sem ætlar að komast til himinsins bústaðar án þess, að fara um bæ þenna, verðr að fara út úr heiminum. (1 Kor. 5. 10.) Já, jafnvel konungr konúnganna fór í gegnum þenna bæ, og það á markaðs degi, inn í ríki sitt. Það var, ætla eg, Beelzebub, yfirstjóri markaðar þessa, sem bauð honum að kaupa að sèr nokkuð af hègóma sínum, já, bauðst að gjöra hann að markaðarstjóra, ef hann að eins vildi sýna sèr hæfilega lotningu, er hann fór um bæinn; og sökum þess að þetta var konúngr þá fór Beelzebub með hann um allar götur, og sýndi honum öll ríki veraldarinnar á skömmum tíma til þess, að tæla hinn Blessaða til að leggja fölur á einhvern hègómann og kaupa hann. Enn hann girntist engar af vörum þessum, og fór því burtu, án þess, að leggja út svo mikið sem penings virði fyrir hègóma Beelzebubs. (Math. 4. 8–9; Lúk 4. 5–8.) Af þessu sjáið þið, að markaðr þessi er forn stofnun og mjög stór.
Eins og eg sagði áðr, er öllum pílagrímum nauðugr einn kostr, að fara gegnum markað þenna, og gjörðu þeir nú svo, Kristinn og Trúr. Enn jafn skjótt og þeir voru komnir inn í bæinn, varð þys mikill á markaðinum, og allr bærinn var í uppnámi og þusti utan um pílagrímana. Var það einkum þrennt er dróg bæjarbúa til þessa.
Í fyrsta lagi það, að klæðnaðr pílagrímanna var allr annar, enn nokkurs manns, er á markaðinum var í verzlunar erindum, og varð markaðs mönnum því starsýnt á þá: sumir kváðu þá vera glópa eina, aðrir sögðu að þeir væri óðir, aftr aðrir, að þeir væri erlendir menn. (Job 12. 4; 1 Kor. 4. 9.)
Annað var það, að mál pílagrímanna þótti bæjarbúum jafnkynlegt og búningrinn, því að fáir skildu, hvað þeir töluðu. Pílagrímarnir töluðu Kanaans máli, enn markaðsmenn voru allir þessa heims börn, hver með öðrum, og vora því pílagrímar og bæjar búar eins og útlendingar hver í annars augum. (1 Kor. 2. 7, 8.)
Í þriðja lagi var það, að pílagrímarnir þóttu lítilsvirða markaðar-vörurnar. Þeir virtu ekki varninginn einu sinni viðlits, og ef markaðar salar kölluðu til þeirra og beiddu þá að kaupa eitthvað, stungu þeir fingrum í eyru sèr og sögðu: Snúðu augum mínum frá því, að horfa á hegómann (Sálm 119. 37), og um leið litu þeir upp til himins, til þess, að tákna, að þar væri verzlun og viðskifti þeirra. (Phil. 3. 20, 21.)
Einn af þeim, er meðal annarra starði á gerfi og atferli pílagríma, sagði við þá í háði: Hvað vilið þið kaupa? Þeir svöruðu: Vèr kaupum sannleika (Orðskv. 23. 23), og litu með alvörusvip til spyrjanda um leið.
Þetta atvik varð til þess, að pílagrímunum var sýnd enn meiri fyrirlitning; sumir hæddu þá, sumir smánuðu þá, sumir ögruðu þeim, og sumir æstu aðra til þess, að berja á þeim. Loksins komst ys og þys á alla, og markaðrinn komst allr í það uppnám, að engri reglu varð á haldið. Nú gjörðu menn orð enu mikla yfirvaldi markaðarins, og brá hann skjótlega við, og fól nokkurum af vinum sínum, þeim er hann trúði bezt, að rannsaka mál þessara manna, er hleypt hefði slíku uppþoti í markaðinn. Voru nú pílagrímarnir dregnir fyrir rannsókn, og spurðu þeir, er að rannsókn sátu, hvaðan þeir kæmi, hvert þeir ætluða, og hvað þeim væri þar á höndum í þessum óvanalega fatnaði. Þeir kváðust vera pílagrímar og ókunnugir í heiminum, og væri þeir á ferð til fóstrjarðar sinnar, hinnar himnesku Jerúsalem (Hebr. 11. 13–16), kváðust þeir hvorki hafa gefið bæjarbúum nè kaupmönnum neina átyllu til að fara illa með sig, eins og þeir hefði gjört, eða gjöra sèr farartalma, nema ef það væri talið átylla, að þeir höfðu sagt við einhvern, að þeir keypti sannleika, þegar hann spurði þá, hvað þeir vildi kaupa. Enn þeir, er til rannsóknar voru settir, gátu ekki trúað öðru, enn að þeir væri ærir og frávita, eða þá, að öðrum kosti, væri komnir til þess, að koma öllum markaðinum á ringulreið. Þess vegna tóku þeir þá, og börðu þá, mökuðu þá í saur, og settu þá í gapastokk, svo að allr markaðar lýðr gæti haft þá að augna gamani. Þar sátu þeir um tíma, og urðu að sæta gabbi hvers manns, og atförum þeirra, er skeyttu á þeim illmennsku sinni og bræði; enn yfirvaldið mikla hló að öllum misþirmingunum. Pílagrímarnir voru hógværir, og guldu ekki illyrði gegn illyrðum, enn blessuðu þá er bölvuðu þeim, svöruðu jafnan góðu til ills, og tóku rangsleitni með hógværð, og gjörðust þá ýmsir, er á markaði voru, og aðgætnari voru og ekki eins hleypidómafullir eins og skríllinn, til þess, að stöðva hann og átelja hann harðlega, fyrir misþirmingar hans á pílagrímunum. Við það snerist skríllinn að mönnum þessum í mikilli bræði; töldu þeir þá jafningja hinna er í gapastokknum voru, og fèlaga þeirra, og hètu þeim jafnhörðu og pílagrímunum. Mennirnir svöruðu nú skrílnum aftr að, að því, er þeir fengju sèð, væri pílagrímarnir stillingarmenn og hóglátir, og byggi þeim ekki illt í skapi við nokkurn mann; sögðu þeir, að margir markaðsmenn ætti fremr skilið að slegið væri utanum þá, já, jafnvel að koma í gapastokk, heldr enn þessir tveir meinleysis menn, er þeir hefði farið svo illa með. Út úr þessu lenti nú í orðakasti meðal manna, og fórust hinum greindari mönnunum mjög vitrlega og stillilega orð við skrílinn, enn þar kom þó að, að í áflogum lenti með hvorum tveggja, og gjörðu hvorir öðrum það mein er þeir máttu. Voru nú pílagrímarnir aftr teknir í rannsókn og dæmdir sekir fyrir það, að hafa ollað þessum síðustu áflogum og róstum á markaðinum. Nú voru þeir barðir hörmulega, og hnepptir í járn, og færðir í fjötrum framm og aftr um allan markaðinn, öðrum til viðvörunar og skelfingar, svo að enginn skyldi voga að mæla þeim bót, eða ráðast í lið með þeim. Enn svo voru þeir Kristinn og Trúr vitrir, að þeir tóku háðungum þessum og hinni smánarlegu meðferð með slíkri hógværð og þolinmæði, að þeir áunnu sèr með því hylli ýmissra markaðsmanna, og voru þeir þó fáir einir, móti öllum hinum fjöldanum. Enn við það varð skrílflokkrinn svo uppvægr, að hann gjörði fast ráðin samtök, að drepa menn þessa. Hann hótaði þeim því, að það skyldi hvorki nema við gapastokk nè fjötra fyrir þeim, heldr skyldu þeir láta lífið fyrir óspektir sínar, sem og fyrir það, að hafa orðið markaðarmönnum að táli. Nú voru þeir færðir aftr í gapastokkinn og skyldu þeir vera þar, þangað til önnur ráðstöfun yrði gjörð; og voru fætr þeirra hnepptir milli stokkanna.
Nú fóru þeir að rifja upp fyrir sèr, hvað hinn trúlyndi vinr þeirra, Fagnaðarboði, hafði sagt, og urðu enn þá einbeittari að bera með staðfestu píningarnar, er þeir mundu eftir, hverju hann hafði spáð um örlög þeirra. Þeir hugguðu hvor annan með því, að sá væri betr farinn, er biði píslarvættisdauða hèr; og óskaði hvor þess með sjálfum sèr, að honum mætti auðnast að verða fyrir þeim örlögum. Fólu þeir sig nú á vald hinni álmáttugu forsjá Hans, sem öllu ræðr; voru ánægðir með kjör sín, og biðu þolinmóðir þess tíma, að öðruvísi skipaðist um hag þeirra.
Nú var á kveðinn hæfilegr tími, er þeir skyldi mæta í ransóknar rèttinum og verða dómfelldir. Þegar sá tími kom, voru þeir fluttir í rèttinn, settir öndvert óvinum sínum, og voru nú bornar kærur á þá. Dómarinn hèt Góðum-illr, og var lávarðr að tign. Ákæruefnið var hjá öllum eitt og hið sama, þó að ýmsir tæki það framm á ýmsa vegu. Ágripið af því var þetta: Að pílagrímarnir væri óvinir verzlunarinnar, og gjörðu verzlunarglöp, að þeir hefði vakið æsíngar og flokkadrætti í bænum, og hefði fengið flokk manna til að þekkjast skoðanir sínar, er væri mjög hættulegar, er þær lýstu fyrirlitningu fyrir lögum konungsins.
Trúr tók til máls, og kvaðst einungis hafa hafizt gegn því, er hefði verið andstætt vilja þess, er æðstr væri alls ens æðsta; enn róstur gjöri eg engar, því eg er friðar maðr; enn þeir, sem urðu til að draga taum vorn gjörðu það af því, þeir sáu að sannleiki og sakleysi var okkar megin, og hefir sá flokkr að eins snúizt frá illu til góðs. Enn fyrir konunginum, er þèr talið um læt eg aldri hlut minn nè fyrir neinum af englum hans, því hann er Beelzebub, og andskoti Drottins vors.
Nú lèt rèttrinn boð ganga út, að þeir skyldi koma framm og bera vitni, er hefði einhverja kæru framm að færa fyrir konúng sinn gegn bandingjanum við rèttar vèböndin. Komu þá framm þrjú vitni, Öfundr, Hjátrúi, og Hólsníkir. Vitnin voru spurð, hvort þau þekktu bandingjann, og hvaða kærur þau bæri framm gegn honum fyrir hönd konungs síns.
Nú gekk Öfundr framm, og sagði: Herra dómari, þenna mann hefi eg lengi þekkt, og skal eg sanna það með eiði fyrir þessum heiðarlega dómi, að hann er—
Dómarinn: Bíddu við—takið eiðinn af vitninu.
Var nú Öfundr eiðfestr. Þegar því var lokið, sagði hann: Herra dómari, þessi maðr er eitthvert hið versta fúlmenni í öllu voru ríki, þó nafnið sè nógu fallegt. Hann hefir að engu konung og þjóð, lög og landsvenjur; og gjörir allt er hann getr, til þess, að innræta landslýðnum uppreistar skoðanir sínar, sem hann almennt kallar kenningu trúar og heilagleika. Eg hefi eigin eyrum heyrt hann leiða rök að því, að kristni og háttsemi Hegómaborgar væri hvor annarri beinlínis gagnstæðar, og yrði með engu móti samrýmdar. Með slíkum orðum níðir hann, herra lávarðr, ekki að eins hin loflegu verk vor og athafnir, heldr einnig oss sjálfa um leið.
Þá sagði dómarinn við hann: Hefir þú nokkuð fleira framm að færa?
Öfundr: Ó, dómari góðr! margt er nú fleira til frásagnar, enn eg vil ekki láta rèttinum leiðast að hlusta á mig. Enn þegar hinir mennirnir eru búnir að bera framm vitnisburð sinn, mun eg bæta við frammburð minn, ef þurfa þykir, heldr enn að láta sannanir skorta fyrir dómsáfelli hans. Að þessu mæltu var honum vikið frá rètti.
Nú var Hjátrúi kallaðr framm, og beðinn að gæta að fanganum, og var skorað á hann að taka framm kærur þær er hann hefði að bera á hann fyrir hönd konúngs síns. Var tekinn eiðr af honum og mælti hann síðan þannig:
Herra lávarðr, ekki get eg sagt eg sè nákunnugr manni þessum, enda hirði eg heldr ekki um að gjörast honum kunnugri enn eg er. Enn svo mikið þekki eg til hans, að hann er háska maðr mikill; og get eg borið um það síðan hèr á dögunum, að eg átti orðastað við hann hèr í bænum; því að hann sagði, að trú vor væri einskis virði, og gæti enginn maðr, er slíka trú hefði, með neinu móti þóknazt Guði. Þèr sjáið, herra lávarðr, bezt sjálfr, hvað liggr í þessum orðum hans; það er hvorki meira nè minna enn það, að guðsþjónusta vor sè þýðingarlaus, að vèr sèum ennþá í syndum vorum og hljótum að lokum fyrirdæminguna. Meira hefi eg ekki að færa framm.
Þessu næst var Hólsníkir tekinn í eið, og skorað á hann, að bera framm það, er hann vissi, konungi sínum til málsbóta gegn bandingjanum.
Hólsníkir: Herra lávarðr, og þið heiðrsmenn allir, þenna kall hefi eg lengi þekkt; og eg hefi heyrt hann tala þeim orðum, er enginn skyldi tala. Hann hefir fært að hans hátign konungi vorum Beelzebub, og talað fyrirlitlega um hina tignu vini hans, lávarð Adam hinn gamla, lávarð Holdsmunað, lávarð Sælkera, lávarð Hegómafífl, lávarð Saurlíf og lávarð Fègráðg og allt annað göfugmenni vort; hann hefir sagt jafnvel að ef allir væru eins lyntir og hann, þá skyldi þessum góðum göfugmennum ekki verða framar vært í bænum, ef nokkur vegr yrði til, að bola þeim burtu. Ofan á allt þetta bætist það, að hann hefir ekki hlífzt við, að níða yðr, herra lávarðr, sem nú eruð settr til að verða dómari hans; hefir hann kallað yðr guðlausan fant, og mörg smánaryrði þessu lík hefir hann valið yðr og fyrirmannalýð borgar vorrar.
Þegar Hólsníkir hafði lokið tölu sinni, vèk dómarinn máli sínu að bandingjanum, og sagði: Þú trúníðingr, villumaðr, og drottins sviki, hefirðu heyrt hvað þessir heiðvirðu menn hafa vitnað um þig?
Trúr: Má eg mæla fáein orð mèr til varnar?
Dómari: Heyrðu, ófyrirlátssami þrjótr! þú átt ekki skilið, að lifa stundu lengr, heldr að verða líflátinn þar sem þú ert. Enn til þess, að öllum verði kunnug linkind vor við þig, þá láttu oss heyra vörn þína.
Trúr: Eg segi þá, því til svars, er herra Öfundr hefir mælt, að eg hefi aldrei sagt annað enn þetta, að öll lög og lagasetning, landsvenjur og þjóðir, sem gagnstæðar eru boðum og vilja Guðs, eru beinlínis andstæðar kristindóminum. Hafi eg rangt fyrir mèr í þessu, þá sannfærið mig um villu mína, og skal eg þess þá albúinn, hèr frammi fyrir yðr, að taka orð mín aftr.
Að því er snertir kæru herra Hjátrúa, þá sagði eg einungis það, að til sannrar guðsdýrkunar heyrði trú á Guð, enn engin sönn trú á Guð er til án þess, að vili hans sè opinberaðr manninum á guðdómlegan hátt; þess vegna er það allt mannleg trú sem hleypt er í dýrkun Guðs enn ekki verðr samrýmt guðdómlegri opinberun; enn mannleg trú stoðar alls ekkert til eilífs lífs.
Í þriðja lagi er að svara því, er herra Hólsníkir bar á mig. Að slepptum öðrum eins orðum eins og því, að eg hafi átt að hafa uppi illyrði, verð eg að segja, að konungr þessa staðar, og allt ruslið, þjónar hans, sem þessi maðr nefndi með nöfnum, eru hæfari til þess, að vera í helvíti enn í þessum stað og þessu landi. Og bið eg nú Guð að vera mèr náðugan.
Nú kallaði dómarinn til dómsnefndarinnar, sem hafði staðið hjá til þess að hlusta á og taka eftir framburði bandingja, og sagði: Góðir herrar, dómsnefndar menn, þèr sjáið nú manninn sem svo mörg uppþot og róstur hafa staðið af í bænum; þèr hafið og heyrt, hvað þessir virðulegu menn hafa borið á hann; þèr hafið og heyrt svar hans og játningu. Nú er það á yðru valdi og yðvarrar sannfæringar, hvort hann skuli hengdr verða, eða dæmdr sýkn saka. Enn áðr enn dómr er feldr þykir mèr eiga við að skýra yðr lög vor.
Á dögum Faraós hins mikla, sem var þjón konungs vors, voru gefin út þau lög: að í fljótið skyldi kasta öllum börnum karlkyns þeirra, er játuðu aðra trú, enn lands trúna, til þess að þeir ekki fjölguðu svo, að þeir gæti orðið honum að ofrefli. (2 Mós. b. 1. 22.) Á dögum Nebukadnezars mikla, sem og var þjón konungs vors, voru gefin út líka lög, að hverjum, sem ekki fèlli framm og tilbiði gullkálf hans, skyldi verða kastað í brennandi ofn. (Dan. 3. 6.) Og á dögum Daríusar var það gjört að lögum, að í ljónagryfju, skyldi orpið hverjum, er tignaði annan Guð, enn hann. (Dan. 6. 7.) Nú hefir óróaseggr þessi brotið grundvallarreglu laga þessarra, ekki einungis í hugsunum, sem er full illt, heldr líka í orðum og verkum, sem með engu móti má haldast honum uppi. Lög Faraós voru sett við ímynduðu atviki, í þeim tilgangi, að varna afglöpum, þó að ekkert lagabrot væri þá framm komið, er lagaboðið var gefið, enn hèr er framm komið beint lagabrot. Þið sjáið glöggt, að hann hefir brotið gegn grundvallarreglu annars og þriðja lagaboðsins, með því, að hann hefir ráðizt á trú vora, og fyrir því, að hann hefir játað á sig drottins svik, á hann skilið dauða að deyja.
Nú gekk dómnefndin á brottu; í henni voru þessir höfðingjar: Blindr, Fánýtr, Illvili, Lostgefinn, Lauslífr, Flumúsi, Ofmetnaðr, Fjandskapr, Lygari, Grimmuðgr, Ljósfælinn, og Langrækinn; höfðingjar þessir gáfu nú atkvæði, hver um sig sín á milli gegn kærða, og kom þeim síðan saman um það, að bera þann kvið í einu hljóði fyrir dómarann, að hann væri sekr. Fyrst gaf formaðr nefndarinnar, herra Blindr kvið og mælti: Eg sè glöggt, að þessi maðr er trúarvillingr. Þá herra Fánýtr: Burt með varmenni þetta af jörðunni. Illvili: Já, því eg hatast við að líta hann augum. Lostgefinn: Eg hefi allt af haft viðbjóð á honum. Eg líka, sagði Lauslífr: Því hann gat aldrei látið mig hlutlausan um breytni mína. Flumúsi: Hengið hann, hengið hann! Ofmetnaðr: Þetta er hrak og dóni. Fjandskapr: Mig velgir við honum. Lygari: Hann er mesti fantr. Grimmúðgr: Henging er of vægr dauðdagi fyrir hann. Ljósfælinn: Við skulum koma manninum fyrir. Lángrækinn rak á endahnútinn og sagði: Þó að mèr væri gefinn allr heimrinn til þess, þá gæti eg aldrei sætzt við hann. Við skulum því ekki fresta, að lýsa yfir því, að hann sè dauða sekr.
Nú var dómrinn kveðinn upp; og var áskilið, að hann skyldi flytjast tafarlaust þaðan sem hann var nú til þess staðar, er hann kom frá, og skyldi hann bíða þar hinn kvalafyllsta dauðdaga, er fundinn yrði.
Hann var því næst fluttr burt til að taka út hegningu laganna. Fyrst var hann strýktr svipum, þá lostinn hnefum, því næst flettu þeir sundr holdi hans með hnífum, og lögðu hann með sverðum, þá grýttu þeir hann, og loksins stegldu þeir hann og brenndu til ösku. Lèt Trúr þannig æfi sína.
Á bak við manngrúann, sem var við staddr aftöku hans, stóð vagn með tveim hestum fyrir, er beið eftir honum, og þegar er fjandmenn hans höfðu tekið hann af lífi, var hann numinn inn í vagn þenna, og honum ekið við lúðrhljóm gegnum skýin beint að hliði hinnar himnesku borgar. Enn dómi Kristins var skotið á frest og var hann settr í dýflissu um tíma. Enn Hann, sem ræðr öllum hlutum, og hafði bræði þeirra í valdi sèr, stjórnaði því svo, að Kristinn slapp í þetta skifti, og hèlt áframm leið sinni. Þegar hann var sloppinn, söng hann:
Vel sè þèr Trúr, er trúna geymdir þú,Og tekr sælu í laun hjá Drottni nú;Þá fánýts munaðar er mæld út dvölMunu trúlausir æpa í vítis kvöl.Enn fagna Trúr, þitt nafn skal þjóðum tamt,Því lífi sviftr lífs þú nýtr samt!
Mèr þótti nú Kristinn fá nýjan samfylgdar mann. Maðr var þar, er nefndist Vongóðr, hann hafði sèð, hversu Trúr og Kristinn bárust af, og hafði heyrt mál þeirra, þegar hörmungarnar dundu yfir þá á markaðinum, og hafði það fengið honum vongæði. Hann rèðst nú til samfylgdar við Kristinn, og kvaðst hann vilja verða fèlagi hans; gjörðu þeir þá fóstbræðralag með sèr. Þannig dó einn fyrir vitnisburð sannleikans enn hinn reis úr ösku hans til að gjörast samfylgdarmaðr Kristins á pílagrímsferð hans. Vongóðr sagði Kristni, að margir væri þeir fleiri á markaðinum, sem mundu koma á eftir þó seinna yrði.