Nítjándi kafli
Kristín og Líkn
Síðari partrinn: Kristín
Góðir menn!
Fyrir nokkuru sagði eg yðr draum, er mig dreymdi um Kristinn, pílagríminn sem fór hættuförina til hins himneska lands; þetta var bæði ljúft verk fyrir mig og gagnlegt fyrir yðr. Eg sagði yðr líka þá, hvað mèr vitraðist um konu hans og börn, og gat þess, hversu treg og ófús þau voru, að leggja í pílagrímsferðina með honum; og að tregða þeirra var svo megn, að hann neyddist til að fara ferðina konu laus og barna; því hann þorði með engu móti að bíða og baka sèr þeirrar hættu, ef til vildi, að spillast meir og meir af dvölinni í Glötunarborg. Þess vegna skildi hann þau eftir, og fór burtu, eins og áðr er á vikið.
Síðan hefi eg haft miklu annríki að gegna, hefir það tafið mig, og aftrað frá hinum vanalegu ferðalögum mínum í átthögunum er Kristinn skildi við. Enda hefi eg ekki fengið færi, fyrr enn nú, að fá þá upp spurða, er hann lèt eftir, svo að eg gæti sagt yðr sögu þeirra. Nú hefi eg nýlega átt þar ýms erindi, og því fór eg ferð þangað fyrir skemmstu.
Eg lèt fyrir berast í húsi í skógi einum, hèr um bil mílu vegar þaðan, er Kristinn átti heima, og er eg svaf þar eitt sinn dreymdi mig aftr draum.
Mig dreymdi, að aldraðr maðr í heldri manna röð færi þar framm hjá, er eg svaf. Hann ætlaði að fara um tíma sama veg og eg, og þótti mèr eg spretta upp og slást í för með honum. Mèr þótti við taka tal með okkr þegar við vorum komnir af stað, eins og ferðamönnum er títt. Það æxlaðist þá svo, að talið drógst að Kristni og ferðum hans, og hófst eg þannig máls við öldunginn:
Hvaða bær er það, sem er þarna niðr frá, vinstra megin við veginn?
Herra Glöggsær (svo hèt öldungrinn), svaraði: Það er Glötunarborg, fjölmennr bær mjög; enn bæjarbúar eru fánýtt fólk og næsta gjálífir.
Þetta grunaði mig, sagði eg. Eg hefi einu sinni farið sjálfr gegnum bæ þenna, og kannast eg því við, að lýsing þín á bæjarbúum er sönn.
Glöggsær: Já hún er helzti ofsönn. Eg vildi eg gæti borið þeim betr söguna er þar búa, og þó orðið eins sannorðr og eg er nú.
Herra minn, sagði eg, eg sè á þessu, sem þèr segið nú, að þèr munuð góðgjarn maðr vera, og mun yðr þykja gaman að heyra það, sem gott er og segja frá því. Gjörið svo vel að segja mèr, hvort þèr hafið aldrei heyrt, hvað varð um mann nokkurn að nafni Kristinn; hann átti hèr heima fyrir eina tíð, enn fór hèðan pílagrímsferð upp til hinna æðri geima.
Glöggsær: Jú, eg held eg hafi heyrt getið um hann! Eg hefi líka heyrt getið um allar þær mótgjörðir, armæðu, baráttu, fjötra, óp, stunur, skelfing og ótta, sem hann rataði í, og varð að sæta á ferð sinni. Eg get líka frætt yðr um það, að hvervetna er hann á vörum landsmanna; það munu vera að eins fá heimili, er ekki hafi frètt af honum og ferðalagi hans, eða ekki hafi reynt að fá fregnir um pílagrímsgöngu hans. Já, og eg held eg megi fullyrða, að hin hættusama ferð hans hafi aflað honum margra vina. Því að þó hann væri heimskingi í hvers manns munni, á meðan hann hafðist hèr við, þá fær hann nú almanna lof, síðan hann fór í burtu. Menn segja að honum gángi vel, þar sem hann er nú; og marga, sem svarið höfðu og sárt við lagt, að leggja aldrei út í slíka tvísýnu, klæjar nú lófann eftir ávinningi hans.
Þeim er óhætt að ímynda sèr það, sagði eg, ef þeir annars hugsa um nokkuð, sem satt er, að hann lifi göðu lifi, þar sem hann er nú. Hann lifir nú hjá uppsprettulynd lífsins og í henni, og fær það er hann hefir, án erfiðis og harma, því það er óblandið allri sorg. Enn segið þèr mèr, hvað menn segja um hann.
Glöggsær: Hvað þeir segja, já. Menn tala skrítilega um hann. Sumir segja, að hann gangi hvítklæddr (Opb. b. 3. 4); að hann beri gullmen á hálsi, að hann hafi á höfði kórónu alsetta dýrindisperlum. Aðrir segja, að ljósmennirnir, sem stundum birtust honum á leiðinni hafi gjörzt fèlagar hans, og að hann sè eins nákunnugr þeim þar sem hann á nú heima, eins og nábúar eru hèr hvorir öðrum. Þá fullyrða menn og, að konungr sá, er þar ræðr ríkjum sem hann er nú, hafi veitt honum til íbúðar auðugt og fagrt hús við hirð sína; menn segja, að hann eti, drekki og gangi með honum, og tali við hann, á hverjum degi, og að hann þyggi blíðu og náð hans, sem er dómari yfir öllu. (Zach. 3. 7; Lúk 14. 14, 15.) Sumir búast jafnvel við, að höfðingi þessi, konungr landsins, muni bráðum verða hèr á ferð, til þess að komast fyrir það, hvers vegna nágrannar Kristins virtu hann svo mjög að vettugi, og höfðu hann að athlægi þegar þeir sáu, að hann ætlaði að gjörast pílagrímr. (Jud. 14. 15.)
Þeir segja að hann hafi komizt í slíka kærleika hjá konunginum, að hann láti alla þá óvirðu, er menn lètu bytna á honum koma til sín, eins og hún hefði komið framm við sjálfan hann. (Lúk 10. 16.) Enn það eru engin undr, því að hann lagði sig í allar þær hættur er hann rataði í einungis af elsku til konungsins.
Eg tala ekki um það, hvað mèr þykir vænt að heyra þetta, sagði eg. Eg gleðst, vegna mannsins, að hann hefir nú fengið hvíld eftir allt sitt erfiði, og að hann hefir uppskorið í fögnuði ávöxt tára sinna, og að hann er nú kominn úr örskots nánd við óvini sína, og er svo fjarri þeim, er hata hann, að þeir ná ekki í hann. (Opb. b. 14. 13; Sálm 126. 5, 6.) Það gleðr mig líka, að fregnin um þetta gengr í almæli í landi hans, því hver veit, nema það geti að góðu orðið einhverjum þeim sem heima sitja? Enn, það er satt, meðan eg man, segið mèr, góði herra; hafið þèr heyrt nokkuð um konu hans og börn? Eg hefi opt verið að hugsa um það, hvernig þeim mundi líða, vesalingum.
Glöggsær: Hver þá? Kristínu og syni hennar? Allar eru líkur til þess, að þeim muni farnast eins vel að lokum og Kristni sjálfum; reyndar fórst þeim öllum heimskulega í fyrstu, er þau lètu sèr hvergi segjast, hvorki við tár nè grátbeiðni Kristins, enn þeim hefir skipazt undarlega hugr síðan, er þau fóru að hugsa sig betr um. Þau hafa tekið sig upp, og farið af stað á eftir honum.
Það var ágætt, sagði eg; enn eru þau öll farin, kona og börn með öllu saman?
Glöggsær: Já, það er öldungis satt. Eg get sagt yðr alla söguna, eins og hún er; því eg var sjónarvottr og nákunnugr öllu, sem gjörðist.
Það má þá reiða sig á það, að það er satt, og mèr er þá óhætt að hafa það eftir.
Glöggsær: Já, þèr megið óhult hafa það eftir, að þau eru öll farin í pílagrímsferð bæði konan og synir hennar fjórir. Eg sè að við verðum enn þá góðan spöl samferða; og ætla því að segja yðr alla söguna frá upphafi.
Þessi kona nefndist Kristín frá þeim degi, er hún lagði í pílagrímsförina með sonum sínum. Eftir það, að maðr hennar var kominn yfir ána gat hún ekki haft nein tíðindi af honum; enn frá þeim tíma fóru alvarlegar hugsanir að setjast að henni. Var það bæði sökum þess, að hún hafði misst hann, og þess, að þá var slitið að fullu hið viðkvæma band elskunnar, er tengdi ástvinina saman. Því að þèr vitið, að það er eðlilegt, að þungar hugsanir vakni hjá hinum eftirlifandi, er hann minnist látins ástvinar. Endurminningin um mannslátið olli því Kristínu margra tára. Enn það var nú ekki allt þar með búið. Því að Kristín fór nú að hugleiða hversu óviðrkvæmilega hún hefði breytt við mann sinn; hèlt að breytni sín hefði ollað því, að hún sæi hann nú aldrei oftar, og að hann hefði verið tekinn frá sèr, sökum breytni sinnar. Auk þessa rann upp í sálu hennar endrminningin um það, að hún hefði ótal sinnum verið óblíð, vanræktarsöm og óguðleg í atlotum við hinn dýra vin. Þetta lagðist á samvizku hennar, og hún þjáðist þunglega af meðvitundinni um synd sína. Þegar hún minntist hinna hvíldarlausu andvarpana, hinna beisku tára og kveinstafa manns síns, þá brast hún í grát; einkum þegar hún mundi til þess, hversu harðúðig hún hafði verið við allar grátbænir hans og ástríkar fortölur og tilraunir, að fá hana og syni hennar til þess, að verða sèr samferða. Já allt það, sem Kristinn annaðhvort hafði sagt við hana, aða gjörði fyrir hana allan þann tíma, er byrðin lá honum á baki, sló nú yfir hana eins og þrumuleiptri, og kramdi hjarta hennar. Enn einkum hljómuðu henni hörmulega í eyrum þessi andvörpunar orð hans: Hvað á eg að gjöra, svo að eg verði sáluhólpinn?
Einu sinni segir hún við börn sín: Synir mínir, það er úti um okkr öll saman. Með syndum mínum rak eg föður yðar í brottu, og nú er hann farinn. Hann vildi fá okkr til að verða sèr samferða, enn eg var ófáanleg til þess. Eg hefi því lokað yðr úti frá lífsins vegi. Þegar hún hafði þetta mælt fèllu allir drengirnir í grát, kölluðu hástöfum og kváðust vilja fara eftir föður sínum. Ó, að við hefðum kosið það hlutskifti fyrr, að fara með honum; þá hefði farið betr fyrir okkr enn nú horfir til. Eg var fyrr meir svo heimsk, að ímynda mèr, að sálarangist föður ykkar væri sprottin af ástæðulausri ímyndun, eða af því, að að honum hefði sezt einhver þungbúin hugarburðr; enn nú get eg ekki fengið það úr huga mínum, að annað hafi ollað sálarangist hans. Eg held nú, að sálar þjáning hans hafi verið sprottin af því, að honum hafi verið gefið lífsins ljós (Jak. 1. 23, 25; Jòh. 8. 12), og sè eg, að hann hefir umflúið snörur dauðans með hjálp þess. (Orðskv. 14. 27.) Þá grètu þau öll að nýju, og hófu háværar harmatölur.
Nóttina eftir dreymdi Kristínu draum. Henni þókti hún sjá stórt blað af bókfelli liggja opið fyrir framan sig, og þar voru allar hennar athafnir upp taldar; þótti henni afbrot sín mæna dimmum augum á sig. Þá hrópaði hún hátt í svefninum: Guð minn, vertu mèr syndugri náðugr! (Lúk 18. 13.) Þetta heyrðu börn hennar.
Eftir þetta þókti henni hún sjá tvær ófreskjur standa við rúm sitt og segja: Hvað eigum við að gjöra við konu þessa? Hún æpir og veinar vakin og sofin um náð. Ef henni leyfist að halda áframm eins og hún er byrjuð, þá rekr að því, að við missum hana eins og mann hennar. Við verðum, þess vegna, að reyna, að hafa hana með einhverjum brögðum aftr af hugsunum um það, er koma muni framm við hana á síðan; því að ella megnar enginn hlutr í heiminum að aftra henni frá því, að gjörast pílagrímr.
Þegar hún vaknaði, lá hún öll í svitabaði og titraði og skalf. En eftir stundar korn sofnaði hún aftr. Þá dreymdi hana, að hún þóktist sjá mann sinn, Kristinn, í sælunnar heimkynni; var hann meðal margfjölda ódauðlegra; hafði hörpu í hendi sèr; lèk á hana og stóð frammi fyrir einhverjum, sem sat í skínandi hásæti og geislaði regnbogi kringum höfuð hans. Henni þókti hann hneigja höfuð sitt og lúta niðr að hinu voðlagða gólfi undir fótum konungsins og segja: Eg þakka Drottni mínum af öllu hjarta, að hann hefir komið mèr á þenna stað. Þá hóf sveit mikil þeirra, er stóðu umhverfis, gleði óp, og lèk hörpur sínar. Enn engum lifandi manni var unt að skilja hvað þeir sögðu, nema Kristni og fèlögum hans.
Morguninn eftir fór hún á fætr, bað til Guðs og talaði við börn sín. Enn meðan hún var að því, var drepið hart á dyr. Hún talaði til þess er úti var og sagði: Ef þú kemr í Guðs nafni, þá kondu inn. Hann svaraði: Amen, opnaði því næst dyrnar og heilsaði henni með þessum orðum: Guðs frið í bæinn! Því næst sneri hann sèr að Kristínu og mælti: Veiztu, Kristín, í hvaða erindagjörðum eg er kominn? Hún roðnaði og fór að skjálfa; hjarta hennar þrútnaði, og hún fèkk heita löngun til þess, að vita hvaðan maðr þessi kæmi, og hvaða erindi hann hefði til sín. Hann segir þá við hana: Nafn mitt er Leyndardómr. Eg lifi meðal þeirra, sem búa í upphæðum. Þar sem eg bý er það almenn sögn, að þig langi til þess, að komast þangað. Það er og í mæli þar, að þú sjáir nú hversu illa þú fyrr breyttir við mann þinn, er þú sýndir ráðum hans þverúð og honum harðýðgi í því, að ala á óviti þessarra barnunga. Kristín, hinn náðugi Guð hefir sent mig til þín, til þess, að boða þèr, að hann sè fús á að fyrirgefa, og að það sè unaðr hans að fyrirgefa margfaldlega þeim er brjóta gegn honum. Hann lætr þig einnig vita, að hann býðr þèr að koma til sín, að borði sínu, og mun hann seðja þig gæðum hússins og veita þèr arfleifð Jakobs, föður þíns.
Kristinn, sem einu sinni var maðr þinn, er þar fyrir, ásamt mörgum herskörum fèlaga sinna; þeir skoða eilíflega andlit það sem gefr þeim líf er á það horfa. Þeir munu allir verða næsta glaðir, er þeir heyra hljóðið af fótaburði þínum, er þú stígr yfir þreskjöld föður þíns.
Við þetta varð Kristín undirleit og beygði höfuð sitt til jarðar. Komumaðr tók aftr til máls, og sagði: Hèr er brèf til þín, Kristín; eg kem með það frá konungi mannsins þíns. Hún tók við brèfinu og opnaði það, og lagði þá unaðlega angan innan úr því. (Lofkv. 1. 3.) Það var ritað með gullletri. Efnið í brèfinu var það, að konungrinn kvað það vera vilja sinn, að hún færi að eins og Kristinn, maðr hennar, hefði gjört, því að það væri eini vegrinn til þess, að komast til borgarinnar, og að dvelja hjá sèr í eilífum fagnaði. Við þessi orð varð konan alveg frá sèr numin. Hún kallaði upp, og sagði við komumanninn: Góði herra, vilið þèr ekki flytja mig og börnin mín með yðr, svo að við getum einnig farið og tignað konunginn?
Komumaðr svaraði, og sagði: Hið súra fyrst, enn hið sæta á eftir. Þú verðr að fara gegnum hörmungar til hinnar himnesku borgar, eins og þeir gjörðu, er á undan þèr eru farnir. Eg ræð þèr, að fara að eins og maðr þinn gjörði. Farðu að þröngva hliðinu þarna, hinumegin við grundirnar; það stendr þar, sem vegrinn hefst, er þú átt að fara, og óska eg að þèr gangi nú ferðin vel. Eg ræð þèr að stinga brèfi þessu í barm þèr, og að lesa það, bæði fyrir þèr sjálfri og börnum þínum, þangað til þið kunnið það utan að. Því að það er einn af söngvum þeim, er þú verðr að syngja, meðan þú ert í þessu pílagríms-heimkynni. (Sálm 119. 54.) Enn við næsta hlið verðr þú að afhenda brèfið.
Þegar öldungrinn sagði mèr þenna kafla sögunnar, þótti mèr hann komast mjög við af henni. Síðan hèlt hann áframm, og sagði: Eftir þetta kallaði Kristín sonu sína saman, og ávarpaði þá þessum orðum: Synir mínir, þið hafið líklega orðið varir við það, hvílíkri sálarangist eg hefi þjáðzt síðan faðir ykkar dó; og er þó langt frá því, að eg efist um farsæld hans; því að eg er þess fullviss, að hann er alsæll. Það, sem hefir þjáð mig, er hugsunin um hag minn og yðar, sem eg sè að er ófarsældarinnar hagr. Hegðun mín við föður yðar í hrellingu hans var ljót; nú er hún þung byrði á samvizku minni; því að eg bæði gjörðist köld og óþýð í hjarta við hann, og fèkk ykkr til hins sama, og ofan á allt annað neitaði eg honum um samfylgd okkar á pílagrímsferð hans.
Ef mig hefði ekki dreymt í nótt eins og mig dreymdi, og hefði ekki ókunnugi maðrinn komið til mín í morgun mèr til hugstyrkingar, þá mundu þessar kvalir gjöra út af við mig. Komið börn mín, við skulum búast til ferða, og halda til hliðsins sem gætir vegarins til hins himneska lands; svo að við getum sèð föður yðar, og lifað með honum og samfèlögum hans í friði eftir landslögunum.
Þegar börnin heyrðu þetta, grètu þau öll af gleði yfir því, að hjarta móður þeirra hafði snúizt. Komumaðr kvaddi þau nú. Enn þau tóku sig til, og fóru að búast til ferðarinnar.
Enn á meðan þau voru að búa sig af stað heimsóktu tvær nágranna konur Kristínar hana og drápu að dyrum. Hún svaraði eins og fyrr: Ef þið komið í Guðs nafni, þá komið þið inn. Konunum hnykkti við, því þær voru ekki vanar að heyra Kristínu mæla svo að undan förnu; þær komu samt inn; enn sjá, þær hittu hina góðu konu á förum að heiman frá sèr.
Konurnar sögðu við hana þegar: Heyrðu, góða vinkona, hvað ætlarðu þèr með öllum þessum ferðaviðbúnaði?
Kristín svaraði eldri konunni, sem hèt frú Huglaus, og sagði: Eg er að búa mig af stað í ferð.
Frú Huglaus var dóttir mannsins, sem mætt hafði Kristni á Örðugfelli, og vildi fá hann til að hverfa aftr of ótta fyrir ljónunum. Hún spurði nú Kristínu: Í hvaða ferð ertu að búa þig?
Kristín: Eg er að búa mig út, að fara sömu ferðina og maðrinn minn sálugi fór, og grèt hún um leið.
Huglaus: Ekki skal eg þó trúa þèr. Nei blessuð gjörðu það fyrir mig að fara hvergi, mundu til barnanna þinna og vertu ekki svo ræktarlaus, að strjúka þannig brott frá þeim.
Kristín: Börnin skulu fara með mèr; ekkert þeirra vill vera eftir.
Huglaus: Nú gengr hreint framm af mèr; hver eða hvað hefir komið þèr til þessa?
Kristín: Ó, grannkona góð, ef að þú vissir allt sem eg veit, þá efast eg ekki um, að þú mundir vilja verða mèr samferða.
Huglaus: Æ, láttu mig heyra hvaða nýja þekkingu þú hefir öðlazt; hver sem hún er, þá snýr hún huga þínum frá vinum þínum, og freistar þín að fara eitthvað út í bláinn, enginn veit hvert.
Þá svaraði Kristín: Eg hefi ekki litið glaða stund síðan maðrinn minn fór frá mèr; enn einkum hafa þó harmar mínir sezt að mèr síðan hann fór yfir um fljótið. Enn það sem pínir mig lángmest er það, að eg var svo óþýð og vond við hann, meðan hann var í öngum sínum. Nú er eg að öllu leyti eins og hann var þá; ekkert fær bjargað mèr, nema pílagrímsgangan. Mig dreymdi í nótt að og sæi hann. Ó að sál mín væri hjá honum. Hann dvelr hjá konungi landsins; hann sitr til borðs með honum, og etr með honum; hann er orðin fèlagi hinna ódauðlegu; honum hefir verið gefið hús til íbúðar, og er það svo fagrt, að hin bezta höll á þessarri jörðu, er í mínum augum eins og kot í samanburði við það. (2 Kor. 5. 1-4.) Konungr hefir og sent eftir mèr, og boðizt til þess að taka mig, ef eg kæmi til hans. Sendiboði hans var hèr hjá mèr rètt núna; hann færði mèr boðsbrèfið. Tók hún nú brèfið úr barmi sínum, las þeim það, og sagði: Hvað segið þið nú?
Huglaus: Mikil dómadags vitleysa er það, sem eltir ykkr hjónin; að þið skulið steypa ykkr í þessa tvísýnu. Eg er viss um það, Kristín, að þú hefir heyrt, hvað dreif á daga mannsins þíns allt frá hinu fyrsta feti er hann steig á þessari ferð sinni. Eg held að Þrár, granni okkar geti bezt borið um það; hann varð manninum þínum samferða; eða þá hann Táplaus? þangað til þeir lètu sèr segjast, og urðu hræddir við að halda lengra áframm. Við heyrðum hverja söguna á fætr annari, um það sem mætti honum; bæði um ljónin, Apollyon, dauðans-skugga-dal, og margt fleira. Þá ættirðu ekki heldr að gleyma hættunni sem hann rataði í á Hègómamarkaði. Því ef hann, þvílíkt karlmenni sem hann var, var svo hart leikinn, hvað ætli verði þá um þig, umkomulausa konu? Gættu líka að því, að þessir fjórir blessaðir barnungar eru afkvæmi þín, hold þitt og bein. Þó að þú því vilir sjálf rasa fyrir ráð framm í ógæfuna, þá láttu þèr nú segjast og seztu aftr sökum barnanna þinna.
Enn Kristín svaraði: Freistaðu mín ekki, grannkona góð! Nú stendr mèr til boða að ná miklum verðlaunum, og eg mætti heita heimskingi í meira lagi, ef eg hefði ekki huga til að nota tækifærið. Þú talar um allar þær þrautir og hættur, er eg muni mæta á leiðinni, enn það er svo langt frá, að þær hræði mig, að þær sýna mèr, að eg hefi á rèttu að standa. Hið súra verðr að koma á undan hinu sæta, því að þess sætara verðr hið sæta. Þess vegna verð eg að biðja þig, að hafa þig á brottu úr mínu húsi, svo að þú ekki gjörir mèr meiri óróa; því að þú ert ekki komin hingað í Guðs nafni.
Huglaus hæddist nú að Kristínu, og sagði við lagskonu sína: Kondu Líkn, við skulum láta hana vera eina um sína reiðu; því að hún fyrirlítr ráð og fèlagsskap okkar.
Enn Líkn stóð kyr, og gat ekki samþykkzt grannkonu sinni allt í einu; var það tvennt er til þess bar: Hjarta hennar brann af meðaumkun yfir Kristínu. Hún sagði því við sjálfa sig: Ef að grannkona mín fer, hvað sem hver segir, þá ætla eg að fylgja henni á leið, og hjálpa henni. Í öðru lagi brann hún af innilegri áhyggju um sinn eigin sálarhag; því orð Kristínar höfðu fengið mjög á sálu hennar. Hún hugsaði því með sjálfri sèr: Eg vil tala meira við Kristínu, og finni eg líf og sannleika í orðum hennar, þá finn eg mig knúða af eigin hvöt til þess, að fara með henni. Vegna þessa svaraði nú Líkn grannkonu sinni, Huglausri þannig:
Heyrðu, grannkona góð, eg er nú komin hingað með þèr til þess, að heimsækja Kristínu. Enn nú sèrðu, að hún er að kveðja fóstrjörð sína fyrir fullt og allt, svo að eg ætla að hjálpa henni af stað, og ganga á leið með henni, fyrst það er gott veðr og sólskin. Enn hún gat ekki um, hver var hin önnur hvöt til þessa, heldr geymdi hún hana hjá sjálfri sèr.
Huglaus: Hana nú, eg sè þá, að þú hefr líka í hyggju að fíflast út í foræðin. Enn sjáðu að þèr í tíma, og hafðu vit fyrir þèr. Því meðan við erum fyrir utan hættuna, þá erum við fyrir utan hana, enn þegar við erum dottnar í hana, þá erum við líka í henni.
Að svo mæltu fór frú Huglaus heim aftr, enn Kristín týjaði sig til ferðar sinnar. Enn þegar frú Huglaus var heim komin sendi hún eftir nábúakonum sínum, þeim frúm Dimmeyg, Gálaus, Lèttúð og Vankunn. Þegar húsfreyjur þessar voru komnar saman hjá henni, tók hún að fitja upp söguna um Kristínu og ferðahyggju hennar, og hóf hana þannig:
Af því mèr var á milli verka í morgun, fór eg til Kristínar og heimsókti hana. Eg drap á dyr hjá henni, eins og við erum vanar; hún svaraði inni: Ef þú kemr í Guðs nafni, þá kondu inn. Eg fór inn og bjóst við, að allt væri með feldi, jæja eg sè þá hvar hún er í asa að búa sig burtu úr bænum, og börn sín. Eg spurði hana, hvað stæði til, og hún svaraði stutt og greitt, að hún hefði nú í hyggju að fara sömu pílagrímsferðina og maðrinn sinn fór. Hún sagði mèr draum, sem sig hefði dreymt, og það var þá að konungr sá, er ríkjum ræðr þar sem maðr hennar er nú, hefði sent sèr boðsbrèf og boðið sèr að koma þangað.
Frú Vankunn tók framm í og sagði: Nei, nú er eg hissa! heldrðu hún fari?
Huglaus: Já, ójá. Hún fer, hvað sem sker og eftir fer. Eg ræð það einkum af því, að þegar eg ætlaði að kyrsetja hana með þeirri aðal-mótbáru, að hún hlyti að rata í svo margar þrautir og hættur á leiðinni, þá bar hún það aftr í vænginn, að þetta væri einmitt aðalhvöt fyrir sig til þess, að fara ferð þessa. Og hafði síðan þessi orð við mig: Hið súra verðr að ganga undan hinu sæta, og yrði með því móti hið sæta enn sætara.
Frú Dimmeyg: Hvað hugsar konan, er hún bæði blind og vitlaus? Ætlar hún ekki að láta þrautir mannsins síns verða sèr að varnaði? Já, eg veit þó svo mikið, að ef hann væri kominn hingað aftr, mundi hann þakka sínum sæla, að vera sloppinn með heilt skinn, og hætta að leggja sig hvað eftir annað í hættur og tvísýnu fyrir ekkert.
Nú tók frú Gálaus til máls og sagði: Burt með þetta ímyndunarfífl úr bænum. Eg, fyrir mitt leyti, verð alls hugar fegin að losast við hana. Hverjum mundi geta lynt við hana, ef hún dveldi þar sem hún er nú, og hefði sömu heilabrot? Hún yrði annaðhvort önuglynd og ómannblendin, eða hún hefði að eins fyrir umræður þess konar efni, sem enginn skynsamr maðr gæti setið og hlustað á. Þess vegna skal eg aldrei harma hana úr garði. Fari hún. Það kemr einhver önnur betri í hennar stað. Hinir góðu gömlu dagar eru gengnir, síðan þetta dutlunga fólk fór að búa í heiminum.
Frú Lèttúð bætti við þessu: Komið þið, við skulum nú hætta að tala um þetta. Í gær sá eg frú Gjálíf; þar var glatt á hjalla; við lifðum eins og yngismeyjar. Getið þið, hverir voru þar fleiri—o, það voru, auk mín, frú Holdselska, og einar þrjár eða fjórar aðrar. Herra Saurlífr var þar með okkr, frú Fúllíf, og nokkurar fleiri. Við höfðum þar söng og dans og margt annað gaman okkr til skemmtunar. Enn hvað frúin er vel að sèr, og kann sig dæmalaust vel! enn ekki er að tala um hvaða nettmenni herra Saurlífr er.