22. kafli
Hugprúðr og ljónin
Þau hèldu nú áframm ferðinni og var Hugprúðr á undan; komu þá til þess staðar, er byrði Kristins datt af baki honum og valt ofan í gröfina. Þau stóðu því hèr lítið eitt við og vegsömuðu Guð. Nú man eg, sagði Kristín, hvað sagt var við okkr við hliðið, að við skyldum fá fyrirgefningu bæði í orði og verki; í orði, það er með fyrirheitinu, í verki, það er með því móti er vèr öðlumst fyrirheitið. Eg veit nokkurnvegin hvað fyrirheitið er; enn hvað það er, að öðlast fyrirgefningu í verkinu, það vona eg að þèr, herra Hugprúðr gjörið svo vel, að skýra fyrir mèr.
Hugprúðr: Fyrirgefning í verkinu kalla menn þá fyrirgefningu, er einhver útvegar öðrum, sem er fyrirgefningar þurfi. Þessi fyrirgefning fæst ekki fyrir þann mann sjálfan, er hefir afrekað hana, heldr fæst hún fyrir þann hátt eða máta hvernig hann afrekaði hana. Enn svo að eg skýri nokkuð betr orð mín, skal eg segja ykkr, að þá fyrirgefning, sem þèr Líkn og sveinar þessir hafið öðlazt, útvegaði annar ykkr, enn þið sjálf, og það var hann, sem hleypti ykkr inn um hliðið. Hann hefir afrekað ykkr hana á tvennan hátt, því hann hefir frammfylgt rèttlætinu til þess, að hylja ykkr með því, og hann hefir úthellt blóði sínu til þess, að þvo ykkr í því.
Kristín: Enn ef hann gefr okkr sitt rèttlæti, hvað hefir hann þá eftir sjálfr?
Hugprúðr: Hann hefir meira rèttlæti enn þið þurfið á að halda eða hann sjálfr.
Kristín: Hvernin? útlistið þèr það fyrir mig!
Hugprúðr: Já, guðsfeginn. Enn áðr enn eg byrja útlistun mína, verð eg að geta þess, að hann hefir engan sèr jafnan eða einu sinni sèr líkan. Hann sameinar í einni persónu tvenns konar eðli, sem auðvelt er að greina enn engum er unt að sundrgreina. Hvoru þessu mismunanda eðli um sig fylgir þess rèttlæti, og er því samgróið eins og lífsaflið lífinu. Rèttlætið og eðlið verðr ekki sundrgreint, því að sundrgreina þetta tvennt er sama sem að nema eðlið burtu frá persónunni. Hvorugt af þessu tvennskonar rèttlæti getum vèr öðlazt, þannig, að vèr öðlumst annað hvort hvort tveggja eða hvort um sig, og verðum þannig rèttlættir eða getum þannig öðlazt lífið. Auk þessa tvenns konar rèttlætis hefir þessi eini maðr (persóna) enn þá rèttlæti sem framm kemr af því, að hvort hans eðli um sig rennr saman í eina einingu. Þetta rèttlæti er hvorki guðdómsins rèttlæti, þegar hann er greindr frá manndóminum, nè heldr rèttlæti manndómsins, þegar hann er greindr frá guðdóminum; heldr er það rèttlæti, sem frammgengr af hvoru tveggja eðlinu í einingu. Þetta rèttlæti er því í rauninni einkunn hans veru og skilyrðið fyrir hæfilegleika hans til þess, að framkvæma meðalgangara embætti það, sem Guð hafði búið hann undir og falið honum á hendr að frammkvæma. Ef hann aðgreinir frá sjálfum sèr hið fyrsta rèttlæti sitt, þá skilr hann við guðdóm sinn; ef hann aðgreinir frá sèr hið annað rèttlæti, þá skilr hann sig við manndóm sinn; ef hann aðgreinir frá sèr hið þriðja rèttlæti, þá skilr hann við þann fullkomlegleika, sem gjörir hann hæfan fyrir meðalgangara embætti sitt. Þess vegna hefir hann enn þá eitt rèttlæti, sem er fólgið í því, að frammkvæma, eða hlýða opinberuðum vilja. Þetta rèttlæti tileinkar hann syndurunum, og með þessu rèttlæti hylr hann syndir þeirra. Þess vegna segir ritningin: Eins og hinir mörgu urðu syndugir fyrir óhlýðni hins eina manns, eins munu líka hinir mörgu fyrir hlýðni hins eina manns verða rèttlættir. (Róm. 5. 19.)
Kristín: Enn eru hinar tegundir rèttlætis hans gagnslausar fyrir okkr?
Hugprúðr: Nei. Því að þó að þær sè einkunnir veru hans og skilyrði fyrir því, að hann geti frammkvæmt embætti sitt, og þó að hann geti ekki miðlað öðrum neinu af þeim, þá er það samt fyrir þeirra kraft, að rèttlæti það, er hann miðlar os hefir fullt rèttlætingar afl. Hans guðdóms rèttlæti er lífið í hans hlýðni; manndóms rèttlæti hans leggr rèttlætandi hæfilegleika í hlýðnina, rèttlæti það, er liggr í einingu hvorutveggja eðlis hans, hins guðlega og mannlega, gjörir, að hin rèttlætandi starfsemi hvors eðlis um sig verðr eignuð að eins einni persónu. (Þess vegna eru allir Guðs eiginlegleikar í Guðmanninum Kristi Jesu, og allir mannlegir eiginlegleikar, nema syndin, í hinni sömu persónu. Þess vegna eru allar líðanir, sem eiginlega heyra manneðlinu, eignaðar persónu hans, og guð-eðlinu með, og blóð hans sem var úthelt á krossinum er kallað blóð Guðs. (Post. g. 20. 28.)
Jesús Kristr hefir því sannarlegt guðlegt rèttlæti sem sannr Guð; annað rèttlæti, sem sannr maðr; enn þá annað rèttlæti sem Guðmaðr. Enn fremr hefir hann rèttlæti sem maðr og Guðmaðr; þessa rèttlætis þarf hann ekki sín vegna, og þess vegna miðlar hann því öðrum, og það er það rèttlæti sem hann gefr yðr til rèttlætingar. Þess vegna er það kallað gjöf rèttlætisins. (Róm. 5. 17.) Með því nú að Drottinn Jesús Kristr hefir lagt sig undir lögmálið, þá verðr hann að gefa þetta rèttlæti; því þann sem er undir lögmálinu knýr það sjálft ekki einungis til þess, að gjöra það, sem rètt er, heldr líka til þess, að líkna. Þess vegna verðr eða hlýtr hann, samkvæmt lögmálinu, að gefa þeim kyrtil, sem engan hefir, ef hann hefir sjálfr tvo. Nú er það dagsanna, að Drottinn vor hefir tvo kyrtla, annan handa sèr sjálfum enn hinn til að miðla, og þann kyrtilinn gefr hann fyrir ekkert þeim, sem engan hafa. Nú sjáið þið, Kristín og Líkn, og þið öll sem hèr eruð, hvernig þið öðlizt fyrirgefningu í verki eða fyrir starfsemi annars manns. Drottinn yðar, Jesús Kristr, hefir unnið, og gefr það sem hann hefir fengið fyrir starf sitt hinum fyrsta fátæka þurfamanni, sem hann mætir.
Enn svo að við nú hverfum aftr að fyrirgefningu í verkinu, þá ber Guði borgun nokkur, um leið og það er framm lagt, er hylja skuli synd vora. Syndin hefir lagt os undir verðskuldaða bölvun hins rèttláta lögmáls. Undan þessari bölvun verðum vèr að öðlast rèttlætingu með lausnargjaldi, eða borgun, fyrir ódáðir þær, er vèr höfum drýgt. Þetta lausnargjald er blóð Jesú Krists, sem kom og gekk í yðar stað og dó yðar dauða fyrir yðar yfirtroðslur. Þannig hefir hann greitt blóð sitt fyrir yðar yfirtroðslur og hulið yðar saurguðu og afmynduðu sálir með rèttlæti. (Róm. 8. 34.) Þess vegna mun Guð og líkna yðr, og ekki áfella yðr, þegar hann kemr að dæma heiminn. (Gal. 3. 13.)
Kristín: Ágætlega farast þèr orð! Nú sè eg hversu djúpr lærdómr lá fólginn í orðunum: að við skyldum fá fyrirgefningu í orði og verki. Góða Líkn, við skulum reyna að muna þetta, og þið, drengirnir mínir, munið þið það líka. Enn var ekki þetta, herra minn, það, sem leysti byrðina af baki mannsins míns, og gjörði hann svo feginn að hann stökk þrisvar sinnum upp af gleði?
Hugprúðr: Jú. Þetta var það, sem hjó á böndin, er hèldu byrðinni á baki honum, og ekki urðu leyst með neinu öðru móti, og til þess, að færa honum heim sanninn um afl þessa trúaratriðis var hann látinn bera byrðina allt að krossinum.
Kristín: Eg hèlt það; því þó að hjarta mitt væri lètt og gleðifullt aðr enn eg kom hingað, þá er það þó nú mörgum sinnum lèttara og glaðara. Og þó eg kunni að hafa sljófar tilfinningar, þá finnst mèr samt að eg vera alsannfærð um það, að sá maðr, sem hefði mesta syndabyrði að bera í öllum heimi, mundi verða glaðr í huga, og honum lètta fyrir hjarta, ef hann stæði hèr með sömu tilfinningum og eg stend nú.
Hugprúðr: Þessi lærdómr veitir oss ekki að eins lèttir og losun við byrðina, heldr kveikir hann innra í oss brennandi kærleika. Því að hver getr annað enn fyllzt heitri elsku til hans sem endrleysti oss, ef hann að eins einu sinni hugsar till þess, að vèr öðlumst fyrirgefningu syndanna ekki einungis fyrir fyrirheit heldr einnig fyrir þessa dýrmætu rèttlætingar starfsemi Krists.
Kristín: Í sannleika að segja, finnst mèr hjarta mínu blæða, að hugsa til þess, að hans blóði skyldi vera úthellt fyrir mig. Ó, blessaði, o, elskaði Jesús, þú átt það skilið, að eg sè þín, því þú hefir keypt mig. Þú átt skilið að eg tilheyri þèr öll, því þú hefir greitt tíu þúsund sinnum meira lausnargjald fyrir mig enn eg var verð. Ó, það voru engin undr, þó að þetta kæmi tárunum út á manninum mínum og hvetti hann mjög að halda áframm. Ó, eg er sannfærð um, að hann vildi hafa mig með sèr; enn eg, auðvirðilega órækja, eg lèt hann fara einan. Ó, Líkn, það vildi eg, að faðir þinn og móðir væru nú komin hingað, já, og frú Huglaus með; já, eg óska nú af öllu hjarta, að frú Lausung væri komin hingað líka. Vissulega mundu hjörtu þeirra fyllast af heilagri elsku; vissulega mundi hin fyrri sigrast á hugleysinu og hin síðari á hinum stjórnlausu girndum sínum og hvergi hirða um að snúa aftr, eða skorast undan að gjörast góðir pílagrímar.
Hugprúðr: Þèr talið nú í ákafa tilfinninganna; haldið þèr að þetta verði allt af ósk yðar hèðan af? Öllum er ekki gefin þessi náð; hún var ekki einu sinni gefin öllum þeim er horfðu á Jesúm er blóði hans var úthelt. Sumir þeirra, er við staddir voro, sáu hjarta blóð hans renna til jarðar, og voru svo fjarri því, að finna til elsku eða meðaumkunar, að þeir hlóu að honum, og hæddu hann, og í stað þess að gjörast hans lærisveinar brynjuða þeir sig gegn honum með harðýðgi hjartans. Þannig hafið þið, dætr mínar, orðið hluttakandi í þessari náð, einungis vegna sèrstaklegra áhrifa, sem guðleg íhugun minna orða hefir haft á yðr. Munið það, að, þegar hænan kallaði á ungana með sinni vanalegu rödd, gaf hún þeim ekkert. Þetta hafið þið því öðlazt fyrir sèrstaklega náð.
Nú sá eg, að þau hèldu áframm, og komu þar, er Kristinn áðr hafði mætt þeim Einfaldi, Lötum og Sèrgóðum, sofandi, og sjá þeir hèngu nú í járnum til annarar handar við veginn skammt frá.
Þegar Vorkun sá þá hanga þar, mælti hún við fylgdarmann þeirra: Hvaða menn eru þetta? hvers vegna eru þeir hengdir þarna?
Hugprúðr: Þeir voru illir menn. Þeir höfðu enga löngun til að gjörast pílagrímar sjálfir, og löttu alla aðra að gjörast pílagrímar. Sjálfir voru þeir of heimskir og of latir, til að takast slíka ferð á hendr, og reyndu til að tæla aðra út í sömu leti og fásinnu, og töldu þeim trú um, að allt færi samt vel á endanum. Þegar Kristinn fór hèr um, sváfu þeir; þegar þið farið hèr um eru þeir hengdir.
Líkn: Enn gátu þeir tælt nokkurn til fylgis við sig?
Hugprúðr: Já, þeir fengu tælt nokkura afvega t. á. m. Hægfara, Andstuttann, Hjartalausann, Munaðarsjúkann og Sísyfjaðan, og stúlku eina, að nafni Sljó; og gjörðist þetta fólk þeirra fèlagar. Auk þessa, báru þeir Drottni vorum illa söguna, og töldu mönnum trú um það, að hann væri verkharðr. Eins báru þeir hinu fyrirheitna landi illa söguna, og sögðu, að það væri ekki nærri því eins gott land og sagt væri af því. Þeir gjörðu og svo lítið sem þeir gátu úr Drottins þjónum, og sögðu, að hinir beztu meðal þeirra gjörðu ekki annað, enn að blanda sèr í hvers manns mál, til þess, að óróa fèlag manna og koma illu af stað. Enn fremr kölluðu þeir brauð Guðs kjarnalaust hýði; gleði Guðs barna nefndu þeir heilaspuna, og ferðir og þrautir pílagrímanna tilgangslaust strit.
Kristín: Já, já, fyrst þeir voru af þessu tagi, þá skal eg verða manna seinust til að aumka þá; þeir hafa meðtekið verðskuldaða hegningu. Og mèr þykir vel fallið, að þeir standa svo nærri alfaraveginum, svo aðrir geti sèð þá og látið þá verða sèr að varnaði. Enn ætla það hefði ekki átt vel við, að sagan um glæpaverk þeirra hefði verið grafin á járn eða eirspjöld, og þau verið sett hèr upp, þar sem þeir frömdu óbótaverk sín; svo að aðrir mætti varast að hrata í sömu ógæfu?
Hugprúðr: Það hefir verið gjört, og muntu sjá að svo er, ef þú vilt bregða þèr þarna yfir að veggnum.
Líkn: Æ, nei, farðu ekki að gæta að þeim; láttu þá hánga í kyrð, og nöfn þeirra gleymast. Illverk þeirra munu verða langlífari og eilíft vitni gegn þeim. Mèr þykir það mikil náð, að þeir voru hengdir, áðr enn við komum hingað, því hver veit, hvað þeir hefðu gjört okkr, umkomulausum konum? Og með það sungu þær:
Hangi þeir nú, með ógn og ótta að lýsaÖllum, sem móti sannleikanum rísa,Og hver, sem hèr fer eftir óttast máAfdrif sín, ef hann förumenn vill þjá.Ó, sál mín, forðast þeirra fèlag þú,Er fjandskapast við heilagleik og trú.
Nú hèldu þau áframm, unz þau komu að Örðugfelli, og sagði Hugprúðr þeim nú, hvað komið hefði fyrir Kristinn, þegar hann var þar á ferð. Fór hann nú fyrst með þær að uppsprettunni. Sko, sagði hann, þetta er uppsprettan, sem Kristinn drakk úr, áðr enn hann lagði á brekkuna. Þá var vatnið í lyndinni tært, enn nú, er það óhreint, því einhver hefir gruggað það upp með óhreinum fótum, svo pílagrímar ekki skyldi geta svalað þorsta sínum með því. (Ezek. 34. 18, 19.) Líkn spurði: Hver getr verið svo meinlega illkvittnislegr? Fylgdarmaðr svaraði: Það má vel drekka vatnið, ef því er fyrst ausið upp í hreint ker; því að þá sezt gruggið á botninn, enn hreina vatnið verðr ofan á. Skipaði hann þeim nú að gjöra svo, og usu þær vatninu upp í hreint ker, og biðu þangað til það settist, og þá drukku þær það.
Þessu næst sýndi Hugprúðr þeim aukavegina, sem láu neðanundir hæðinni hvor til sinnar handar, þar sem þeir Vanafastr og Hræsnari villtust. Á þessum vegum týndust þeir, þegar Kristinn var á ferð, sagði hann, og þó búið sè síðan að loka þessum vegum með keðjam, slagbröndum og görðum, þá vilja þó sumir heldr freista, að fara þessa vegu, enn að leggja á sig að fara upp brekkuna.
Kristín: Vegr yfirtroðslumannanna er hrjóstugr. Það er öll furða, að þeir skuli ekki hrapa til dauðs þegar þeir eru að fara þessar leiðir.
Hugprúðr: Þeir vilja eiga það á hættu. Já, og ef svo ber undir, að þjónar konungsins sjá þá, og kalla til þeirra, og segja þeim, að þeir sèu á röngum vegi, og vara þá við hættunni, þá svara þeir út af og segja: Það, sem þú hefir talað við oss í nafni Drottins, þar í gegnum vèr þèr ekki, heldr munum vèr gjöra allt sem vor munnr hefir talað. (Jer. 44. 16, 17.) Ef þið gætið að vegunum lengra burtu, þá munuð þið sjá, að ekki vantar það, að menn sè varaðir við að fara þá, því auk þessarra slagbranda og keðja og garða við vega mótin er búið að setja limgarð báðumegin við leiðina, til þess, að varna mönnum inngöngu, enn það kemr allt fyrir ekkert, því þeir vilja fara hann samt.
Kristín: Þeir eru latir, þeir nenna ekki að leggja neitt á sig; það á ekki við þá að ganga á brekkuna. Það rætist því á þeim sem skrifað er: Vegr hins lata er sem þyrnigerði. (Orðskv. 15. 19.) Já, þeir vilja heldr ganga í snöruna, enn fara upp brekkuna og komast svo klakklaust alla leið til Himinborgar.
Nú fóru þau frá lyndinni og upp brekkuna; enn áðr enn þau voru komin upp alla leið tók Kristín að mæðast mjög, og sagði: Þetta er mæðandi ganga, og ekki furðar mig þó að þeir, sem elska hægð og næði meira enn sál sína, kjósi heldr annan hægri veg. Líkn mælti: Æ, eg má til að setja mig niðr, og börnin tóku að gráta af þreytu. Komið þið, komið þið, sagði Hugprúðr, hèr er enginn hvíldarstaðr; því að konungs laufskálinn er lítið ofar; og tók hann í hendina á yngsta drengnum og fór með hann upp alla leið.
Þegar þau voru komin upp í laufskálann urðu þau fegin að setjast niðr, því allir voru heitir og þreyttir. Þá mælti Líkn: Ó, hversu hvíldin þó er sæt þeim er erfiða (Math. 11. 28), og hversu góðr er ekki konungr pílagrímanna, að sjá þeim fyrir öðrum eins hvíldarstað og þessi er. Eg hefi heyrt margt sagt um þenna laufskála, enn eg hefi nú fyrst sèð hann. Enn nú skulum við samt varast að sofna; því eg hefi heyrt, að blundrinn sem Kristinn tók hèr yrði honum full dýr.
Þessu næst tók Hugprúðr sveinana til sín og mælti: Komið þið hèrna, góðu drengirnir mínir, hvernig líðr ykkr? hvað segið þið nú um pílagrímsferðina? Hinn yngsti varð fyrir svörunum og mælti: Eg var nærri því kominn að niðrlotum; enn eg þakka yðr hjartanlega fyrir það, að þèr rèttuð mèr hönd yðar, þegar mèr lá mest á. Eg man nú, að hún móðir mín hefir sagt mèr, að vegrinn til himins sè eins og stigi, enn vegrinn til helvítis eins og niðr í móti; enn eg vil heldr fara upp stigann til lífsins, heldr enn niðr í móti til helju.
Líkn tók framm í og sagði: Enn máltækið segir: Hægt er jafnan undanhaldið. Enn eg held nú, sagði drengrinn, að dagrinn sè kominn fyrir okkr, til að sanna, að undanhaldið undan brekkunni sè verst af öllu. Það var vel svarað, mælti Hugprúðr. Líkn brosti, enn drengrinn roðnaði við.
Kristín: Komið þið, börn, viljið þið ekki taka ykkr dálítinn bita, til að bæta ykkr í munni, meðan þið standið við, og látið lúan líða úr fótunum. Eg hefi hèr bita af gulepli sem Fræðari lagði í lófann á mèr, rètt þegar eg var að fara út úr dyrunum hjá honum; hann gaf mèr líka hunangsköku, og svo er hèr dálítil flaska full af víni, sem hann gaf mèr líka. Eg vissi, að það mundi hafa verið til að gefa þèr eitthvað, að hann kallaði þig afsíðis, sagði Líkn. Já hann gjörði það líka, svaraði Kristín, og skaltu, eins og eg lofaði þèr, þegar eg fór að heiman, njóta alls, er eg hefi, til jafns við mig sjálfa, því þú átt það aldrei nema skilið fyrir það, að þú gjörðist svo greiðlega förunautr minn. Skifti nú Kristín upp nestinu milli sín, Líknar og barnanna; enn mælti fyrst við Hugprúðan og sagði: Viljið þèr ekki, herra, vera með okkr? Hann svaraði: Þið eruð á ferð, enn eg sný bráðum heim aftr; nestið ykkar er góð hressing fyrir ykkr, enn eg hefi það dags daglega.
Þegar þau höfðu snætt, og hresst sig á víninu og samrætt dálítið eftir máltíð, sagði Hugprúðr við þau: Dagrinn líðr óðum; þegar þið eruð tilbúin, væri æskilegt að halda af stað. Nú stóðu þau því upp og fóru af stað, enn Kristín gleymdi vínflöskunni, og mundi það ekki fyrr, enn þau höfðu gengið um hríð; sendi hún því einn af drengjunum til þess, að sækja hana. Eg held það sè álög á þessum stað, sagði Líkn, að hver maðr týni þar einhverju; hèr týndi Kristinn vegabrèfinu, og Kristín vínflöskunni. Hvað kemr til þess, herra Hugprúðr? Leiðtogi svaraði svefn, eða gleymska; sumir sofna þegar þeir eiga að vaka, enn sumir gleyma, þegar þeir eiga að muna; og þetta ber einmitt til þess, að pílagrímar missa ýmsa hluti á ýmsum áfangastöðum. Pílagrímum ríðr á að vaka, og muna til þess með fögnuði, hvað þeir hafa þegið, svo að þeir ekki glati því. Enn ef þeir ekki gjöra það, endar fögnuðrinn oft í tárum, og sólskinið í þykku skýi, og sannar saga Kristins bezt orð mín.
Þegar þau komu, þar sem Vantrausti og Huglaus mættu Kristni, og höfðu fortölurnar fyrir honum að hverfa aftr af ótta fyrir ljónunum, sáu þau að þar var timbr reist upp eins og trönur að sjá; og var breiða fjöl að sjá framan á trönum þessum, þeim megin, er sneri að veginum; á fjöl þessa var ritað vers eitt, og greint frá, neðan undir versinu, hvers vegna trönur þessar hefði verið reistar hèr. Versið hljóðaði þannig:
Hver sem þær trönur gjöir líta gætiSá geðs og tungu sinnar litla hríð,Áðr enn brott í æðru hann hvati fæti,Eins og þá henti suma á fyrri tíð.
Enn neðan undir vessinu stóðu þessi orð: Þessar trönur voru reistar til þess, að hegna þar þeim pílagrímum, sem vegna vantrausts eða hræðslu hverfa frá að halda lengra áframm ferð sinni. Við þessar trönur voru tungur þeirra Vantrausta og Huglauss brendar með glóandi járni, er þeir reyndu til að aftra Kristni frá því, að halda för sinni lengra áframm.
Þegar þau höfðu lesið þessi orð, mælti Líkn, þetta er mjög líkt orðunum í 120 sálmi Davíðs, þar sem segir: Hvað á að gefa þèr, eða gjöra við þig, tálsama túnga? Hermannsins hvössu örvar og glæður einiberja trèsins. (3. 4 vers.)
Nú hèldu þau áframm, þangað til þau sáu ljónin. Hugprúðr var ramr að afli og hinn ódeigasti, og var því ekki hræddr við ljón. Enn þegar nær dróg ljónunum, urðu sveinarnir, sem hingað til höfðu farið á undan fegnir að draga sig aftr fyrir, því þeim skaut fljótt skelk í bríngu, er þeir sáu þau. Þeir fóru því aftr fyrir og gengu á eftir hinu fólkinu. Við þetta brosti fylgdarmaðr þeirra og mælti: Nei hvað er þetta, drengir? Þið viljið vera á undan meðan engin hætta vofir yfir, enn hverfið aftr úr, þegar þið sjáið ljónin.
Eftir þetta dróg Hugprúðr sverð sitt úr slíðrum, til þess, að höggva pílagrímunum brautina milli ljónanna. Enn þá mætti þeim maðr nokkur, sem virtist ætla sèr að hjálpa ljónunum; hann spurði Hugprúðan: Hvað viljið þið hingað? Þessi maðr hèt Grimmr, eða Blóðvargr öðru nafni, sökum þess, að hann hafði unnið svo mörg víg á pílagrímum. Hann var líka af þursa-kyni.
Hugprúðr svaraði honum: Konur þessar og börnin eru pílagrímar, og verða þau að fara þenna veg; enda skulu þau og fara hann þrátt fyrir mótstöðu þína og ljónanna.
Grimmr: Þetta er ekki þeirra gata, enda skulu þau ekki fara lengra. Eg er hèr kominn til þess að banna þeim götuna og hjálpa ljónunum.
Satt að segja hafði vegr þessi lagzt niðr að mestu áðr enn hèr var komið sögunni, og var nú nær því alls staðar grasi gróinn; var það bæði sökum hinna grimmilegu ljóna og tröllskapar þess sem hjálpaði þeim.
Þá mælti Kristín: Þó ekki hafi hingað til verið farið um þjóðveguna, og þó að ferðamennirnir hafi orðið að fara krókóttar götur, þá má eigi lengr svo ganga; nú er eg risin upp, nú er eg risin upp, sem móðir í Israel. (Dóm. 5. 6, 7.)
Nú sór Grimmr við ljónin, að það skyldi standa við það, sem hann hafði sagt, og beiddi þær nú að snúa við aftr, því hann kvaðst ekki mundu leyfa þeim neina umferð hèr.
Enn Hugprúðr gekk framm, og hjó svo rammlega til jötunsins, að hann varð að hörfa undan.
Enn ljóna sinni þessi mælti: Hvað, ætlarðu að vega mig á minni eigin lóð?
Hugprúðr svaraði: Við erum á þjóðbraut konungsins, enn þú hefir sett ljónin í veginn; enn þó að konur þessar og börnin sè veik, þá skulu þau samt fara þenna veg og engan annan, þrátt fyrir ljón þín. Og er hann hafði þannig mælt, lagði hann til hans að nýju, og var það högg svo mikið, að Grimmr fèll á bæði knèn; kom höggið á hjálminn og klauf hann, og í næsta höggi tók af handlegg risans. Enn þá orgaði hann svo ámátlega, að konurnar urðu dauðhræddar, þótt þær gleddust við að sjá hann liggja og veltast á jörðunni. Ljónin sjálf voru hlekkjuð og gátu ekkert mein unnið. Grimmr lèt nú líf sitt þarna, og er hann var fallinn kallaði Hugprúðr til pílagrímanna og beiddi þá fylgja sèr, því ekkert væri illt að óttast af ljónunum. Fóru þau nú öll áframm, enn konurnar titruðu af ótta, er þær smeygðu sèr framm milli ljónanna og drengirnir urðu náfölir, enn allt lánaðist vel, og þeim varð ekkert að meini.