23. kafli
Í Fegrð
Þegar þau sáu dyravarðar húsið, flýttu þau sèr, allt er þau máttu, till þess, að komast þangað áðr en dimmaði, því að það er hættulegt, að vera á ferð á nætrþeli á þessum stöðvum. Þegar komið var að dyrunum, drap Hugprúðr á þær, enn dyravörðrinn kallaði inni fyrir: Hver er úti? Enn jafn skjótt og Hugprúðr hafði svarað: Það er eg, kendi dyravörðr manninn, því hann þekkti rödd hans, með því hann hafði oft fylgt pílagrímum hingað fyrr. Dyravörðr kom nú út og lauk upp hliðinu, enn sá ekki nema Hugprúð eim við hliðið, því að konurar stóðu að baki honum. Dyravörðr mælti því: Hvað kemr til, hvað er yðr á höndum, herra Hugprúðr, að þèr eruð svo seint á ferð? Eg kem, sagði Hugprúðr, með nokkura pílagríma hingað, og eiga þeir, eftir boði Drottins míns, að gista hèr í nótt. Eg hefði orðið langt um fyrri, ef eg hefði ekki tafizt við risann, sem vanr hefir verið að hjálpa ljónunum. Enn eftir langan og leiðan bardaga hefi eg unnið á honum, og færi þèr pílagrímana með öllu heilu og höldnu.
Dyravörðr: Viljið þèr ekki koma inn og hvíla af til morguns?
Hugprúðr: Nei, eg vil fara heim aftr til Drottins míns í nótt.
Kristín: Eg get varla skilið, að þú ætlir að yfirgefa okkr á pílagrímsferð okkar, þú, sem hefir verið svo tryggr og elskulegr við okkr; þú hefir barizt fyrir okkr eins og kappi; þú hefir gefið okkr svo hreinskilin og einlæg ráð, að eg skal aldrei gleyma því, hvað góðr þú hefir verið okkr.
Þá tók Líkn til orða: Ó, að við mættum hafa þig með okkr alla leið! Hvernin megum við, umkomulausar konur, fá af komizt án vinar og verndara, þar sem vegr okkar er svo alskipaðr hættum og erviðleikum?
Þá tók yngsti drengrinn, að nafni Jakob, til orða og mælti: Gjörið þèr það fyrir okkr, góði herra, að fara lengra með okkr; því við erum svo vanmegna, enn vegrinn svo hættulegr.
Hugprúðr: Eg er háðr boðum herra míns; ef hann leyfir mèr að verða leiðsögumaðr ykkar alla leið, þá skal eg vera það með mestu hjartans ánægju. Enn það var yfirsjón ykkar, að þið ekki beidduð hann að ljá ykkr mig til fylgdar alla leið, því hann hefði gjört það við hálft orð. Enn með því nú allt stendr við það sem talað var, þá verð eg að skilja við ykkr að sinni, og verið þið nú sæl, Kristín og Líkn, og þið börnin góð!
Nú spurði Vakr dyravörðr Kristínu um fóstrjörð hennar og ætt. Hún svaraði: Eg kem frá Glötunarborg. Eg er nú ekkja; maðrinn minn er dáinn, hann hèt Kristinn, og var pílagrímr. Hvað er að tarna? mælti Vakr, var hann maðrinn þinn? Já, svaraði Kristín, og þetta eru börn okkar, og þessi stúlka er úr sömu borg og eg. Nú hringdi dyravörðrinn bjöllu sinni; eins og venja hans var, er pílagrímar voru komnir, og kom til dyranna mær ein, að nafni Auðmjúk. Dyravörðr mælti, farðu inn, og segðu, að hèr sè komin Kristín, kona Kristins heitins, og börn þeirra hjóna með henni. Hún fór inn, og gjörði sem henni var boðið. Enn hvað allt komst á flug inni af gleði, þegar mærin hafði sagt þeim skilaboðin.
Nú kom allt heimilisfólkið til dyra, þar sem Kristín beið og dyravörðrinn. Sögðu þá einhverir af þeim, er alvörugefnastir voru: Kondu inn, Kristín, kondu inn, kona hins góða manns; kondu inn, blessaða kona, kondu inn með allt sem þèr er samferða. Hún fór nú inn og förunautar hennar, börnin, og Líkn á eftir. Var þeim nú vísað inn í stórt herbergi, og þau beðin að setjast niðr; þau gjörðu svo. Því næst var kallað á húsráðandann, til þess, að láta hann sjá gestina og biðja þá velkomna. Kom hann svo inn með þjóna sína og heilsuðu þeir komumönnum með kossi og mæltu: Verið þið velkomin, þið ker guðlegrar náðar, verið þið velkomin með oss!
Með því nú var dagr mjög svo liðinn, enn pílagrímarnir þreyttir eftir hina örðugu dagsgöngu, og eftir sig eftir hræðsluna sem að þeim sló í bardaganum, og eftir óttann við ljónin hin hræðilegu, óskuðu þeir að mega ganga til hvílu svo fljótt, sem verða mætti. Enn heimilisfólkið sagði, að ekki mundi þeim tjá, að ganga til rekkju, fyrr enn þau hefði satt sig við kjötmáltíð, því að veitandi þeirra hafði matbúið lamb handa þeim (2 Mós. b. 12. 21; Jóh. 1. 29); því að dyravörðrinn hafði fengið njósn um ferð þeirra og sagt fólkinu frá, að þau mundu vera væntanleg. Þegar þau höfðu matazt, og lesið borðbænir sínar og sungið borðsálminn, óskuðu þau að mega fara að hátta. Enn ef eg má vera svo djörf, sagði Kristín, vildi eg mega kjósa mèr hvílurúm í herberginu, sem maðrinn minn svaf í, þegar hann kom hingað. Var nú farið með þau öll upp í herbergi þetta og sváfu þau þar. Þegar þau voru háttuð, fóru þær Kristín og Líkn að talast við, og bera sig saman um það, er nú bjó þeim ríkast í huga.
Kristín hóf þannig mál sitt: Sízt datt mèr það í hug, þegar maðrinn minn fór í pílagrímsferðina, að eg mundi nokkuru sinni fara á eftir.
Líkn: Og þèr hefir líklega eins lítið dottið í hug, að þú mundir sofa hèr í sama herbergi og sömu hvílu, eins og hann.
Kristín: Og allra sízt datt mèr í hug, að eg mundi sjá auglit hans í gleði, eða að eg mundi tigna Drottinn minn með honum; enn nú er eg fullrar vonar um það að svo muni þó fara að lokum.
Líkn: Heyrirðu ekki hljóm?
Kristín: Ó, jú, og það er hljóðfæra ómr; það er líklega gleðisöngr yfir okkar komu hingað.
Líkn: Hvílík undr! glæðværðarhljómr gellr hvervetna við, í húsinu, í hjartanu og himninum,—gleði hljómr yfir því, að við erum komnar hingað. Á þessa leið töluðust þær við um tíma, og því næst hnigu þær í sætan svefn.
Þegar þær vöknuðu, morguninn eftir, spurði Kristín, Líkn hví hún hefði hlegið svo dátt í svefninum, hvort hana hefði dreymt.
Líkn: Já, mig dreymdi unaðlegan draum. Enn ertu viss um að eg hafi hlegið?
Kristín: Já, þú hlóst hjartanlega. Enn, fyrir alla muni, segðu mèr draum þinn.
Líkn: Mig dreymdi, að eg væri einhvers staðar alein, og var að harma með sjálfri mèr yfir harðúð hjarta míns. Enn er eg hafði setið þar litla stund, þókti mèr fjöldi manna safnast kring um mig til þess, að sjá mig, og heyra, hvað eg segði. Þeir hlustuðu, enn eg hèlt harmatölum mínum áframm. Þegar þeir heyrðu orð mín, tóku sumir að hlæja að mèr, sumir kölluðu mig heimskingja og sumir tóku að hrjá mig og hrekja. Enn í þessari svipan þótti mèr eg líta upp, og sjá vængjaðan mann koma fljúgandi til mín. Hann kom rakleiðis að mèr og mælti: Hvað gengr að þèr, Líkn? Eg bar upp kvein mín og harmatölur fyrir honum; enn hann svaraði: Friðr sè með þèr; því næst þerraði hann tárin af augum mínum með líni, og klæddi mig í silfrglitaðan guðvefjar skrúða. (Ezek. 16. 8–11.) Hann lagði men um háls mèr, lèt hringi í eyrun á mèr, og setti dýrðlega kórónu á höfuð mèr. Því næst tók hann í hönd mèr og sagði: Líkn, kondu með mèr! Hann fór nú af stað, og eg með honum; gengum við saman, þangað til við komum að gullnu hliði. Hann drap á dyrnar, og þeir sem inni voru luku upp; hann fór inn, og eg með honum, unz við komum upp að hásæti einu; þar sat fyrir maðr, sem kastaði á mig kveðju og mælti: Vertu velkomin með oss, dóttir góð! Húsið var bjart og blikandi, eins og stjörnur, eða öllu heldr glóði eins og sól, og mèr þótti eg sjá þar mann þinn. Við þetta vaknaði eg. Enn var það víst, að eg hlægi?
Kristín: Því ætla þú hlægir ekki? Það var öll von, þegar þú varst í annarri eins dýrð. Eg skal nú segja þèr nokkuð, eg held þetta sè mjög góðr draumr. Fyrri hluti hans er þegar kominn framm, og eins mun seinni hlutinn rætast að lokum. Því einu sinni talar Guð og tvisvar, maðrinn gefr því ei gaum; í draumum, í sýnum á nóttum, þegar djúpr svefn fellr yfir mennina, þegar þeir blunda á beði sínum. (Job 33. 14, 15.) Við þurfum ekki að liggja andvaka í rúminu til þess, að tala við Guð, hann getr heimsókt okkr meðan við blundum, og látið oss heyra rödd sína. Hjartað vakir oft meðan við sofum, og Guð getr talað við það annaðhvort í orðum, orðskviðum, táknum eða líkingum eins vel, eins og þó vèr værum vakandi.
Líkn: Eg er glöð yfir draum mínum, því eg vona, að hann rætist, áðr enn langt líðr um, og verði mèr þá gleði efni.
Kristín: Eg held það sè nú komið mál að fara á fætr og vita hvað við eigum að gjöra.
Líkn: Enn ef okkr verðr boðið að vera lengr, þá blessuð þiggðu það. Mig langar svo til að dvelja hèr nokkuð, svo að eg kynnist betr þeim Forsjá, Guðhrædd og Manngæzku; því þær eru bæði vingjarnlegar og kurteysar að sjá.
Kristín: Við skulum bíða og vita, hvort okkr verðr boðið að vera.
Þegar þær höfðu klæðzt, fóru þær niðr; og er menn spurðu þær, hvernig þeim hefði sofnazt, og hvort vel hefði farið um þær, svaraði Líkn fyrir sig og mælti: Það fór svo vel um mig, að þetta er einhver hin bezta nótt, er eg hefi átt, á æfi minni.
Forsjá og Guðhrædd tóku þá undir og sögðu: Ef þið viljið þekkjast það, þá er ykkr heimilt, að vera hèr um tíma, og þygja það, sem húsið hefir að bjóða.
Já, sagði Manngæzka, ykkr er það svo hjartanlega velkomið. Þær tóku boði þessu, og dvöldu hèr allt að mánuði eða meira, og varð sú dvöl hvorum tveggja til yndis og uppbyggingar.
Vegna þess að Forsjá vildi komast eftir, hvernig Kristín hefði alið börn sín upp, beiddist hún leyfis, að mega spyrja þau út úr fræðunum. Kristín leyfði það, og Forsjá byrjaði á yngsta syni hennar; hann hèt Jakob.
Forsjá: Kondu, góði Jakob minn, getr þú sagt mèr, hver hefir skapað þig?
Jakob: Guð Faðir, Guð Sonr, og Guð Heilagr Andi.
Forsjá: Vel svarað, barnið gott! Enn getrðu sagt mèr, hver hefir endrleyst þig?
Jakob: Guð Faðir, Guð Sonr, og Guð Heilagr Andi.
Forsjá: Það er rètt svarað, barnið mitt. Enn hvernig hefir Guð Faðir endrleyst þig?
Jakob: Með náð sinni.
Forsjá: Enn Guð Sonr?
Jakob: Með rèttlæti sínu, dauða sínum, blóði sínu og lífi.
Forsjá: Enn Guð Heilagr Andi?
Jakob: Með upplýsingu, endrfæðingu og helgun.
Þá mælti Forsjá, þú átt hrós skilið, Kristín, fyrir barna uppfræðingu þína. Eg býzt við, að eg þurfi ekki að spyrja hin börnin að þessu sama, úr því sá yngsti svarar öllu rètt. Eg ætla því að hverfa til þess, sem næstr er Jakob að aldri.
Kristín: Það er Jósef.
Forsjá: Jósef, viltu að eg spyri þig út úr?
Jósef: Æ, já; fyrir alla muni.
Forsjá: Hvað er maðrinn?
Jósef: Hann er skynsemi gædd vera; Guð hefir skapað hann þannig, eins og hann bróðir minn sagði áðan.
Forsjá: Hvað þýðir orðið endrleystr?
Jósef: Það þýðir það, að maðrinn hafi með syndinni hneppt sig sjálfan í fangelsi og steypt sèr í eymd.
Forsjá: Hvað þýðir það, að guðdómleg þrenning hafi endrleyst manninn?
Jósef: Það þýðir það, að syndin sè svo öflugr harðstjóri, að enginn geti hrifið oss úr klóm hennar, nema Guð sjálfr, og að Guð sè svo góðr og ástríkr við manninn, að hann hrífi hann út úr hans eymdahag.
Forsjá: Í hvaða tilgangi frelsar Guð hina voluðu syndara?
Jósef: Í þeim tilgangi, að gjöra nafn sitt dýrðlegt, náð sína og rèttlæti, og sælu sinnar sköpuðu skepnu eilífa.
Forsjá: Hverir verða þá frelsaðir?
Jósef: Þeir, sem þekkjast hans endrlausn.
Forsjá: Þú ert gott barn, Jósef. Móðir þín hefir frætt þig vel, og þú hefir vel numið fræðslu hennar.
Nú sneri Forsjá sèr til elzta sonarins, að nafni Samúel, og mælti: Heyrðu, Samúel minn, langar þig til, að eg spyri þig út úr líka?
Samúel: Já, í sannleika, ef yðr þóknast.
Forsjá: Hvað er himininn?
Samúel: Hann er sælunnar heimkynni, því að Guð býr í honum.
Forsjá: Enn hvað er helvíti?
Samúel: Það er heimkynni eymdar og glötunar; því að þar býr syndin og djöfullinn og dauðinn.
Forsjá: Hvers vegna viltu koma í himininn?
Samúel: Til þess, að eg megi sjá Guð, og þjóna honum án afláts; að eg megi sjá Krist og elska hann eilíflega; svo að og megi hafa fyllingu Heilags Anda í mèr, sem eg get með engu móti öðlazt hèr.
Forsjá: Það er prýðilega svarað; þú hefir lært fræðin þín vel. Nú hvarf hún til Matteusar, hann var elztr bræðranna, og sagði: Á eg líka að spyrja þig út úr?
Matteus: Æ, já, fyrir alla muni.
Forsjá: Eg spyr þig þá fyrst að því: Var nokkur hlutr til á undan Guði?
Matteus: Nei, því að Guð er eilífr; enginn hlutr var til, nema Guð sjálfr, fyr enn hinn fyrsti dagr heimsins rann upp. Því að Drottinn skapaði himin og jörð á sex dögum og sjóinn og allt sem er í þeim.
Forsjá: Hvað er biflían?
Matteus: Hún er Guðs orð.
Forsjá: Skilr þú allt, sem ritað er í henni?
Matteus: Nei, það er margt, sem eg skil ekki.
Forsjá: Hvað hugsarðu, þegar þú lest þá staði, sem þú skilr ekki?
Matteus: Eg hugsa með mèr: Guð er vitrari enn eg; og bið eg hann að láta sèr þóknast að upplýsa mig um alla þá hluti, í hans orði, sem hann veit, að eru mèr til góðs.
Forsjá: Láttu mig heyra trú þína um upprisu hinna framliðnu.
Matteus: Eg trúi því, að hinir framliðnu rísi upp, eins og þeir voru jarðaðir; það er að segja, sama eðlis, enn syndlausir; og hefi eg tvær sannanir fyrir þessu atriði trúar minnar: 1, Að guð hefir heitið upprisunni frá dauðum og 2, að hann er máttugr að fullkomna heit sitt.
Þegar barnaspurningu þessari var lokið, mælti Forsjá við sveinana: Hlýðið á fræðslu móður yðar, hún getr kennt ykkr margt enn þá. Þið verðið líka að hlusta með eftirtekt á viðræður góðra manna, því yðar vegna tala þeir um þá hluti, sem eru góðir, þarfir og fræðandi. Gætið og vandlega að því, hvað himininn og jörðin kenna yðr, enn leggið einkum athyggli yðar við bók þá, sem lèt föður ykkar gjörast pílagrím. Eg, fyrir mitt leyti, verð fegin að kenna yðr allt er eg get, meðan þið standið hèr við, og þætti mèr vænt, ef þið spyrðuð mig um þá hluti, sem miða til guðlegrar uppfræðingar.
Þegar pílagrímarnir höfðu haldið kyrru fyrir hèr um bil viku á þessum stað, tók maðr nokkur, að nafni Hvatr, að heimsækja Líkn og tjá henni ást sína. Hann var allmennt aðr maðr, og þóktist vera guðhræddr, enn var í rauninni allra mesti heims maðr. Hann kom nokkurum sinnum til Líknar og vakti máls á bónorði við hana, enda var hún bæði fríð sýnum og ástúðleg. Hún varði tímum sínum til þess, að prjóna sokka og búa til önnur föt handa þurfamönnum, því hún þurfti ekki að vinna upp á sjálfa sig. Hvatr vissi ekki, hvað hún gjörði við fatnað þenna, enn varð mjög ánægðr er hann kom til hennar og fann hana aldrei iðjulausa. Hann var því ávallt vanr að segja við sjálfan sig: Tarna er nú bærilegt konuefni.
Líkn sagði nú heimilismeyjunum frá, hvar komið var máli hennar við Hvat; spurði hún þær, hvers konar maðr hann væri, því að þær þekktu hann betr enn hún. Þær sögðu henni að hann væri starfsamr ungr maðr; hann lètist vera guðhræddr, enn þær grunaði, að hann mundi hafa litla tilfinningu fyrir guðlegri gæzku.
Ó, sagði Líkn, við honum skal eg aldrei líta framar; því eg ætla aldrei að ofþyngja sál mína með óþarfa byrði. Þú þarft ekki, svaraði Forsjá, að sýna honum nein ónot, því ef að þú heldr áframm að vinna fyrir fátæka eins og þú hefir byrjað, þá uggir mig, að það verði nóg til þess, að kæla ást hans til þín.
Næsta skifti, er hann kom, hitti hann hana við vinnu sína, eins og vant var. Allt af að vinna, sagði Hvatr. Já, sagði Líkn, annaðhvort fyrir mig eða aðra. Hvað græðirðu á dag? sagði hann. Eg gjöri þessa hluti, svaraði hún, svo að eg verði rík af góðverkum, og safni mèr í fjársjóðu góðri undirstöðu til hins ókomna, svo að eg megi höndla hið sanna líf. (1 Tim. 6. 18–19.) Nei, segðu mèr satt, hvað gjörir þú við þá? mælti hann. Eg klæði hina nöktu með þeim, svaraði hún. Við þetta brá honum svo mjög, að hann hætti að koma til hennar. Menn spurðu, hví hann hætti að heimsækja hana; hann svaraði: Líkn er geðugasta stúlka, enn hún hefir fráleitar lífsskoðanir.
Þegar nú Hvatr var farinn, sagði Forsjá við Líkn: Sagði eg ekki, að herra Hvatr mundi bráðum yfirgefa þig? nú, enn það er nú ekki nóg með því, heldr ber hann óhróðr út um þig. Því þó hann látist vera mesti guðræknismaðr, og lèti í veðri vaka, að hann elskaði þig, þá eruð þið þó svo ólík í lund og geðslagi, að eg held ykkr hefði aldrei samið.
Líkn: Mèr hefir staðið til boða að giftast fyrr enn nú, þó eg hafi aldrei haft það á orði við nokkurn mann. Enn lund mín og geðslag hafa ávallt staðið í veginum, þó að ekkert hafi verið að finna að útlitinu eða frammgöngunni. Það hefir því allt af endað við það eina, að okkr hefir ekki samið.
Forsjá: Vorkunsemi og líkn eru nú á dögum ekki mattar allmikils, nema að nafninu einu, og fáir unna líknandi starfsemi í heiminum nú orðið.
Líkn: Það er satt; og vili enginn eiga mig, þá ætla eg að deyja ógipt; eða eg giftist lundinni í mèr; því eg get ekki breytt skapferli mínu; og hver sem er mèr á móti í þessu skal ekki koma nærri mèr, svo lengi sem eg lifi. Eg átti systur, að nafni Örlát, hún giftist einum af þessum svíðingum, enn þeim kom aldrei saman; enn vegna þess, að systir mín hèlt þar áframm, sem hún hafði byrjað, að liðsinna fátækum og þurfandi, þá rægði maðr hennar hana fyrir þrjózku og rak hana síðan frá sèr.
Forsjá: Og þó þori eg að fullyrða, að hann lèzt vera góðr maðr og vel Kristinn.
Líkn: Ó já; enda er nú heimrinn fullr af öðrum eins mönnum og hann var, enn eg skal aldrei binda mig við neinn þeirra.
Um þetta leyti varð Matteus, sonr Kristínar veikr; lagðist veikin næsta þungt á hann, og einkum tók hann mikið út innvortis. Enn svo vildi vel til, að gamall og margreyndr læknir bjó skammt þaðan, að nafni Hæfr. Kristín vildi láta sækja hann til sonar síns, og svo var gjört, og hann kom. Þegar hann hafði skoðað piltinn, sagði hann, að það væri hættuleg iðraveiki, sem gengi að honum, og spurði móður hans, hvernig mataræði Matteus hefði haft að undanförnu. Hann hefir ekki nærzt öðru, sagði Kristín, enn heilnæmri fæðu. Læknirinn svaraði: Eg má fullyrða, að piltrinn hefir borðað eitthvað, sem liggr ómelt í maganum og verðr því ekki komið burtu án meðala. Hann verðr að taka inn hreinsandi lyf, ef hann á ekki að deyja.
Samúel hófst þá upp úr eins manns hljóði og mælti: Heyrðu, móðir mín, hvað var það, sem hann bróðir minn tíndi og át á leiðinni, rètt þegar við vorum komin gegnum hliðið, þar sem þessi vegr okkar byrjar? Manstu ekki? Það var eplagarðr til vinstri handar, hinu megin við múrinn, enn sum trèn hèngu yfir fyrir múrinn og hann bróðir minn tíndi þar epli og át þau.
Kristín: Já, satt er að tarna, sonr minn! Hann var óhlýðinn og tíndi þar nokkur epli og át þau; eg atyrti hann, enn hann gegndi mèr ekki.
Hæfr: Eg vissi það, að hann hafði borðað eitthvað ekki sem hollast; enn þessi fæða, ávöxtrinn sem þið talið um, er þó allra hluta óhollust. Það er ávöxtr úr Beelsebubs urtagarði. Mig furðar, að enginn skyldi verða til að vara ykkr við ávexti þessum; því hann hefir orðið mörgum manni að bana.
Kristín tók nú að gráta og bera sig illa og mælti: Ó, óhlýðni sonr! ó mig hirðulausa móður! hvað á eg að gjöra fyrir son minn?
Hæfr: Kondu, vertu ekki svo huglaus! drengnum getr batnað, enn hann verðr að taka hreinsandi lyfjar og selja upp.
Kristín: Ó, blessaðir, gjörið þèr allt, sem þèr getið, til að lækna hann; hvað sem það kostar.
Hæfr: Ó, eg held eg verði ekki svo harðr á borguninni. Bjó hann nú sveininum hreinsunar meðal og gaf honum; enn það reyndist of veikt. Enda var það til búið úr geitarblóði, ösku brendrar kvígu og isópslegi. (Hebr. 9. 13, 19; 10. 1–4.) Enn er herra Hæfr sá, að þessi lyf var of veik, bjó hann til aðra, er duga skyldi. Hún var til búin ex carne et sanguine Christi.* Þið vitið, að læknar hafa stundum við undarlegar lækningar. Þessa lyf skyldi hann taka í skömtum með tilsvarandi jöfnuði af salti. (Mark 9. 49.) Þetta meðal skyldi hann taka fastandi, þrjá skamta í einu í fjórðungs máli af iðrunar tárum. (Zach. 12. 10.)
* þ. e. úr holdi og blóði Krists.
Þegar lyfin var til og sveininum var borin inntakan, var hann all ófús á að taka hana, jafnvel þó hann engdist sundr og saman af sárum verkjum. Kondu, sagði læknirinn, þú verðr að taka það, það hjálpar ekki annað.—Ó, mèr býðr svo við því, sagði pilturinn. Þú hlýtr að taka það, sagði móðir hans. Eg sel því upp aftr jafnóðum, svaraði sveinninn. Hvernig er það á bragðið, herra minn? sagði Kristín. Það er öldungis ekki bragðslæmt, svaraði herra Hæfr. Hún drap nú tungubroddinum við meðalinu og jafnskjótt kallaði hún til sonar síns, og sagði: Matteus! það er sætara enn hunang. Ef þú elskar móður þína, bræður þína, Líkn, og líf þitt, þá gjörðu það fyrir okkr, taktu það inn. Eftir mikið stímabrak lèt hann til leiðast, og tók það inn, og bað Guð að blessa sèr það. Það hafði beztu áhrif; því eftir að hann hafði tekið það inn datt hann út af í svefn og svaf vært; honum hitnaði öllum af því, svo hann svitnaði vel, og er hann vaknaði, kendi hann sèr engra meina. Skömmu seinna fór hann á fætr, og gekk þá við staf fyrst í stað, og fór nú frá einu herbergi til annars og skrafaði við þær Forsjá, Guðhrædd og Manngæzku, og sagði þeim frá sjúkleik sínum og aftrbata.
Þegar piltinum var albatnað, mælti Kristín við lækninn, og sagði: Herra minn, hvað má eg bjóða yðr fyrir allt yðar umstang, fyrirhöfn og umhyggjusemi fyrir barninu mínu?
Hann svaraði: Borgaðu yfirlækninum (Heb. 13. 11–15), því svo er fyrir mælt, þegar svo stendr á, eins og hèr á sèr stað.
Kristín: Enn, herra minn, verðr þessi lyf ekki notuð við öðrum kvillum?
Hæfr: Jú, hún er aðallæknisdómr við öllum kvillum, sem sækja á pílagríma, og þegar hún er vel til búin má geyma hana furðu lengi.
Kristín: Gjörið þèr svo vel, að láta mig fá tólf öskjur af henni, því eg ætla aldrei að hafa aðra læknisdóma við enn þenna ef eg fæ lyfina.
Hæfr: Þessi lyf er eins góð til þess, að fyrir byggja sjúkdóma, eins og að lækna þá, er veikir hafa orðið. Já, eg fullyrði það, og þori að standa við það, að ef að maðrinn vil að eins nota lyf þessa eins og hann á að nota hana, þá veitir hún honum eilíft líf. (Jóh. 6. 58.) Enn, góða Kristín, þú mátt ekki gefa þetta meðal öðru vísi enn eg hefi lagt fyrir, því annars verðr það að engu liði. Að svo búnu gaf hann Kristínu læknisdóm handa henni sjálfri, sonum hennar og Líkn, og beiddi Matteus að varast, að eta oftar óþroskaða ávexti; og að skilnaði mynntist hann við þau.
Þið munið, að þess er getið áðr, að Forsjá bauð sonum Kristínar að spyrja sig hvers er þeir vildu fræðast um; og þegar Matteus var orðinn albata, notaði hann sèr boð hennar og spurði hana, hvað kæmi til þess, að flestir læknisdómar væri svo gómleiðir.
Forsjá: Það er til þess, að sýna hversu hvumleitt Guðs orð og áhrif þess eru fyrir hið holdlega lundaða hjarta vort.
Matteus: Hvað kemr til þess, að læknisdómrinn hefir hreinsandi áhrif með uppköstum, ef hann hrífr?
Forsjá: Það sýnir, að orðið hreinsar hjartað og hugann, þegar það hefir full áhrif. Því að þú mátt vita það, að orðið hefir sömu áhrif á sálina eins og læknislyfin á líkamann.
Matteus: Hvaða lærdómr er fólginn í því, að logann af vorum eldi leggr upp, enn geisla sólarinnar og hin mjúku áhrif sólarilsins leggr niðr á við?
Forsjá: Eldsloginn, sem leggr upp, kennir oss, að hefja oss til himna með heitri elsku og brennandi bænum. Enn sólin, er sendir hina hlýju geisla og áhrif ilsins niðr á við, kennir oss, að frelsari heimsins nær niðr til vor, er búum hina lágu jörð, með áhrif náðar sinnar, þó hann sè sjálfr í hæðunum.
Matteus: Hvaðan kemr vatnið sem er í skýjunum?
Forsjá: Úr sjónum.
Matteus: Hvað getum við lært af því?
Forsjá: Að kennimenn Guðs eiga að taka kenningu sína frá Drottni.
Matteus: Enn hvers vegna tæma skýin sig og hella vatninu til jarðar?
Forsjá: Til þess, að sýna, að kennimaðrinn á að miðla heiminum þekkingu sinni um Guð.
Matteus: Hvers vegna myndar sólin regnbogann?
Forsjá: Til þess, að sýna það, að Kristr hafi staðfest oss náðarsáttmála Guðs.
Matteus: Hvers vegna koma uppspretturnar til okkar gegnum jörðina?
Forsjá: Til þess, að sýna oss, að Guðs náð kemr til vor gegnum líkama Krists.
Matteus: Hvers vegna spretta sumar lyndir upp á háum fjöllum?
Forsjá: Til þess, að sýna, að andi náðarinnar skuli kvikna eins hjá þeim, sem eru miklir og voldugir, eins og hjá hinum, sem eru auðvirðulegir og volaðir.
Matteus: Hvers vegna tekr eldrinn kveikinn?
Forsjá: Til þess, að sýna, að ljós hins sanna lífs sè ekki í oss, nema logi náðarinnar kvikni á hjartanu.
Matteus: Hvers vegna eyða menn kveyk og tólg og öllu sem þar til heyrir, til þess að láta kertaljósið loga?
Forsjá: Til þess, að sýna, að sál og líkami og allt, er þeim fylgir, skuli þjóna að því, og verja sjálfum sèr til þess, að glæða og halda við þeirri náð Guðs, sem í oss er.
Matteus: Hvers vegna særir pelíkaninn sig í brjóstið með nefinu á sèr?
Forsjá: Til þess, að næra ungana sína á blóðinu úr sèr. Það sýnir, að Kristr, hinn blessaði, elskaði svo heitt börn sín, að hann frelsaði þau frá dauða.
Matteus: Hvað getum vèr lært af því, að heyra hanann gala?
Forsjá: Vèr getum lært af því, að muna eftir synd Petrs. Hanagalið minnir líka á það, að dagr sè runninn; láttu því hanagalið ætíð vera þèr áminningu um hinn síðasta og óttalega dag dómsins.
Þegar þær höfðu nú haldið hèr kyrru fyrir, hèr um bil í mánuð, kváðust þær vera albúnar, að taka sig upp, og halda af stað. Enn áðr enn þau fóru, sneri Jósef sèr til móður sinnar og sagði: Eg held það sè bezt, móðir mín, að þú gleymir ekki, að senda til Fræðara, og biðja hann, að lofa Hugprúðum að fylgja okkr, það sem eftir er af leiðinni. Hafðu blessaðr minnt mig á það, sagði móðir hans, eg var nærri búin að gleyma því. Nú skrifaði Kristín bónarbrèf í þessu skyni og beiddi herra Vakran, dyravörðinn, að senda einhvern áreiðanlegan mann með það til síns góða vinar herra Fræðara. Svo var gjört. Sendimaðr skilaði bónarbrèfinu, og er Fræðari hafði sèð efni þess, mælti hann við sendimann: Farðu og segðu þeim, að eg skuli senda manninn.
Þegar heimilsfólkið sá nú, að þær Kristín voru alráðnar í að halda áframm ferð sinni, var hvert manns barn á heimilinu kallað saman, til þess, að færa konungi þeirra þakkir fyrir það, að hann hefði sent þeim eins uppbyggilega gesti eins og Kristínu og hennar föruneyti. Eftir það mæltu menn við hana: Eigum við ekki að sýna þèr ýmsa hluti, sem við erum ávallt vön að sýna pílagrímum? þú getr hugsað um þá á leiðinni. Að svo mæltu fóru þau með pílagrímana inn í herbergi eitt, og sýndu þeim eitt af eplunum, sem Eva hafði etið af og gefið manni sínum að eta, sem varð til þess, að þau voru rekin út úr Paradís. Þeir spurðu Kristínu hvað hún hèldi þetta væri. Kristín kvaðst ekki kenna glöggva grein á því, enn hèlt þó, að það mundi vera annaðhvort æti eða eitr. Enn þeir sögðu henni, hvað það væri, og hún fórnaði upp höndum af undrun. (1 Mós. b. 3. 6; Róm. 7. 24.) Því næst fóru menn með pílagrímana þangað, er Jakobs stigi var. (1 Mós. b. 28. 12.) Englar Guðs voru að fara upp stigann, og varð Kristínu og öllum hinum starsýnt á þessa sjón. Þegar sýningamennirnir ætluðu að fara hèðan burt með Kristínu, til þess að sýna henni einhvern annan stað, mælti Jakob við móður sína: Heyrðu, mamma, biddu þá að bíða dálítið hèrna, því þetta er svo undarleg sjón. Hún gjörði svo, og sneru allir aftr, og horfðu stundar korn með unaði á þessa miklu sjón. (Jóh. 1. 15.)
Þessu næst var farið með þau þangað, er gull-akkeri hèkk. Þeir beiddu Kristínu að taka það niðr, og sögðu: Taktu það með þèr; því að það er allsendis nauðsynlegt fyrir þig, að hafa eitthvað óbifanlegt og stöðugt að halda þèr við, sem eins og læsi sig inn í hið allra helgasta (Hebr. 6. 19, 20), og sè fast fyrir, ef óveðr skyldi skella yfir þig. Þetta þá hún með mestu þökkum.
Þessu næst fóru þeir með þau upp á fjallið, þar sem Abraham ætlaði að fórna syni sínum, Ísaak, og sýndu þeim altarið, viðinn, eldinn og hnífinn; því þetta er allt til sýnis þann dag í dag. (1 Mós. b. 22. 9.) Þegar þau höfðu skoðað allt þetta, hófu þau upp hendr sínar, og töldu sig sæl, að hafa sèð það, og mæltu: Hvílíkr maðr var Abraham! hvílíka elsku bar hann ekki til herra síns! hvílík fyrirmynd í sjálfsafneitum!
Þegar búið var að sýna þeim alla þessa hluti, fór Forsjá með þau inn í matsalinn. Þar stóðu tvær ágætar ungmeyja hörpur; tók hún að leika á þær, og tók upp aftr allt það er hún hafði sýnt pílagrímunum í þessum ágæta söng:
Munið, að Evu eplið viðYður sýndum, og kannizt við,Að Jakobs stigann einnig þèrMeð engla fjöldann sáuð hèr;Yðr er líka afhent núAkkerið gullna, er heitir trú;Þó fær allt þetta ekkert liðYðr veitt, nema fórnið þið,Að Abrahams dæmi, öllu þvíEr unnið dýrast veröld í.
Um þetta leyti var drepið á dyr. Dyravörðrinn lauk upp, og sjá, þar var kominn herra Hugprúðr. Enn gleðin og ánægjan, þegar hann var kominn inn! Því nú vakti svo lifandi fyrir pílagrímunum endrminningin um það, er hann lagði risann, Grimm, hinn leiða blóðhund að velli, og frelsaði þá frá ljónunum.
Hugprúðr mælti, er hann kom inn: Eg kem hèr, Kristín og Líkn, með tvær flöskur af víni, sem herra minn sendir ykkr, og eitthvað af bökuðu tagi og tvo gulepli. Hann hefir líka sent drengjunum nokkuð af fíkjum og rúsínum. Þetta eigið þið að hafa til hressingar á leiðinni.
Nú bjuggust pílagrímarnir af stað, og fylgdu þær Forsjá og Guðhrædd þeim á leið. Þegar þau komu að hliðinu, spurði Kristín dyravörðinn, hvort nokkur hefði verið nýlega á ferð. Hann svaraði: Nei; ekki nema allsendis einn, og er nokkuð langt síðan; og hann sagði mèr að höfuðmikið rán hefði verið framið á þjóðbrautinni, sem þið farið nú. Enn þjófunum hefir verið náð; málsókn er hafin gegn þeim, og verða þeir líklega bráðum dæmdir til dauða. Við þessar frèttir urðu þær Kristín og Líkn hræddar. Enn Matteus sagði: Óttastu ekkert, móðir mín, meðan herra Hugprúðr er með okkr og ræðr ferðinni.
Þá mælti Kristín við dyravörðinn: Góði herra, eg þakka yðr nú hjartanlega fyrir allan góðvilja yðar við mig síðan eg kom hingað, sem og fyrir það, hvað góðr og alúðlegr þèr hafið reynzt börnunum mínum. Eg ætla því að biðja yðr, að þyggja þetta lítilræði, sem vott um virðingu mína og þakklátssemi. Um leið og hún mælti þetta lagði hún gull-engil* í lófa hans. Hann hneigði sig djúpt og mælti: Láttu klæði þín ávallt vera hvít, og láttu ekki höfuð þitt vanta smyrzli. (Prèd. 9. 8.) Lát Líkn lifa og ekki deyja, og lát verk hennar ekki verða fá. (5 Mós. b. 33. 6.) Og við sveinana sagði hann: Forðizt þið æskunnar girndir, enn stundið rèttvísi, trú, kærleika, frið við alla þá, sem ákalla Drottin af hreinu hjarta (2 Tim. 2. 22); þá munuð þið gleðja hjarta móður yðar og hljóta lofstír allra skynsamra manna. Þau þökkuðu dyraverðinum öll ummæli hans, og fóru síðan brott.
* Enska nafnið á gullpeníngi þessum er gold angel (gull engill) forn peningr sem gilti 10 shillings; enn sem samgildir, að minnsta kosti, guinea nú á dögum eða 21 shillings í enskri mynt, hèr um bil 9 rd. dönskum.