Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

Fyrsti kafli

Maðrinn með byrðina

um 15 mín. lestur

Fyrri partrinn: Kristinn

Þegar eg eitt sinn var á ferð um eyðimörk þessa heims, bar mig að stað nokkurum, þar er hola ein varð fyrir mèr; og eg lagðist fyrir til svefns í þeim stað; og er eg svaf, dreymdi mig draum. Og sjá, mig dreymdi að eg sæi töturbúinn mann standa á svæði einu; hann snèri andlitinu frá húsi sínu, hafði bók í hendi og byrði mikla á baki.

Mèr varð litið upp, og sá eg, að hann opnaði bókina og las í henni; og er hann las, táraðist hann og titraði, og er hann fèkk ekki lengr af borið, hóf hann upp harma kvein mikið og sagði: Hvað á eg að gjöra?

Í þessum raunum fór hann nú heim, enn sat þó á sèr, svo lengi sem hann gat, til þess, að konan og börnin skyldu ekki taka eftir hörmung sinni; enn hann fèkk ekki þangað til lengdar, því að þjáningar hans fóru æ vaxandi. Hann lèt því konu sinni og börnum uppskátt, að lokum, hvað honum bjó innan brjósts, og hófst þannig máls við þau: Hjartkæra kona! elskuðu börn mín, þið sem eruð hold mitt og blóð, nú er eg, yðar ástfólgni vinr, hart haldinn, sökum byrðar þeirrar, er knýr mig svo harðlega; og þar á ofan hefi eg fengið fulla vissu um það, að þessi borg vor muni brend verða í eldi af himnum; í því skelfilega hruni mun eg sjálfr tortýnast hörmulega, ásamt þèr, kona mín, og ykkr, elskuðu barnúngarnir mínir! Vèr hljótum að glatast, nema eitthvert undanfæri opnist oss til bjargar (og fæ eg það þó eigi sèð enn). Við þetta urðu ástvinir hans forviða; ekki þó af því, að þeir tryðu, að nokkuð væri satt í því, er hann sagði; heldr vegna þess, að þeir voru hræddir um, að einhver æðis-veiki hefði sezt að honum. Þegar er kvölda tók, komu þau honum hið bráðasta í rúmið; því að þau ætluðu, að svefninn mundi fá sefað höfuðóra hans: enn nóttin varð honum jafn óróafull og dagrinn hafði verið; og leið hún af í stöðugum andvörpunum og tárum í stað svefnværðar. Þegar er morgnaði, daginn eftir, fóru þau til að vita, hvernig honum liði. Hann kvað sèr líða æ verr og verr, og fór að tala um fyrir þeim á nýja leik, enn nú tóku þau að gjörast harðúðug gegn ummælunum. Þau ætluðu sèr nú og að hafa úr honum geðveikina með stirðu og önugu viðmóti. Ýmist hæddu þau hann, eða atyrtu hann, eða skeyttu honum alls ekki. Fór hann því til herbergis síns, var þar einn sèr, bað fyrir þeim og aumkaði þau, og harmaði eigin eymd. Hann fór og einförum úti á víða vangi; las þar ýmist eða baðst fyrir. Fór nú þessu framm nokkura daga.

Eitt sinn, er hann, að venju, var úti á víða vangi, sá eg, að hann var að lesa í bók sinni, og var sárlega harmsfullr í huga; og er hann las, æpti hann upp yfir sig, eins og hann hafði gjört fyrr, og mælti: Hvað fæ eg gjört, svo að eg verði hólpinn? (Post. g. 16. 30, 31.)

Eg sá, að hann litaðist um í ýmsar áttir, eins og honum væri í huga að hlaupa á brottu; enn hann stóð þó kyrr; því hann vissi ekki í hverja átt hann skyldi undan halda, að því er mèr virtist.

Nú varð mèr litið við, og sá eg, að maðr nokkur, að nafni Fagnaðarboði kom til hans og spurði: Hví æpirðu? Hann svaraði: Herra minn, mèr skilst af bókinni, sem eg held á, að eg sè dæmdr til að deyja, og síðan, að koma fyrir dóminn (Hebr. 9. 27); til hins fyrra er eg ófús (Job 16. 21, 22); til hins síðara ófær. (Ezek. 22. 14.) Þá sagði Fagnaðarboði: Mátt’ ekki verða feginn að deyja, er lífi þínu fylgir svo margföld mæða? Maðrinn svaraði: Vegna þess, að eg óttast, að byrðin, sem hvílir mèr á herðum, sökkvi mèr niðr fyrir gröfina, og eg hrapi niðr til Tophet (Es. 30. 33); og sè eg ekki því vaxinn, góði herra, að fara í dýflissuna, þá er eg enn síðr fær um það, að fara til dómsins og þaðan til hegníngarinnar. Þegar eg hugsa til alls þessa, fæ eg ekki kveinstafa bundizt.

Enn er þú ert nú þannig staddr, mælti Fagnaðarboði, því stendrðu þá kyrr? Hann svaraði: Sökum þess, að eg veit ekki hvert eg á að halda. Þá fèkk Fagnaðarboði honum rollu eina af bókfelli, og var ritað á hana innanverða: Flý þú hina komandi reiði. (Math. 3. 7.) Maðrinn las, og leit mjög áhyggjufullu auga upp á Fagnaðarboða, og mælti: Hvert get eg flúið? Þá benti Fagnaðarboði út yfir víða völlu og sagði: Sèrðu þröngva hliðið þarna? (Math. 7. 13, 14.)

Maðrinn svaraði: Nei. Þá sagði Fagnaðarboði: Sèrðu þarna skínandi ljós? (Sálm 119. 105; 2 Pet. 1. 19.) Maðrinn svaraði: Það held eg. Þá sagði Fagnaðarboði: Hafðu augað stöðugt á þessu ljósi, og gáttu beint á það, þá muntu sjá hliðið, og ef þú berð þar að dyrum, mun þèr verða sagt hvað þú átt að gjöra.

Nú þótti mèr í draumnum að maðrinn tæki til fótanna og hlypi af stað. Enn skammt eitt hafði hann hlaupið að heiman, er kona hans og börn sáu til ferðar hans, og kölluðu eftir honum, að hann skyldi snúa heim aftr. Enn maðrinn stakk fingrum í eyru sèr, hljóp allt hvað af tók og kallaði hástöfum: Líf! líf! eilíft líf! (Lúk 14. 26.) Honum varð ekki einu sinni að líta aftr. (Gen. 19. 17.) Enn flýði beint af augum út á miðjar grundirnar.

Nú komu og nábúar hans út, til að horfa á hann á þessum hlaupum. (Jer. 20. 10.) Sumir hæddust að manninum, sumir ógnuðu honum, og sumir kölluðu eftir honum, að hann skyldi hverfa aftr. Meðal þessara manna gjörðust tveir til að neyða manninn með valdi til að snúa heim aftr. Annar þeirra hèt Þrár, hinn Táplaus. Um þetta leyti var maðrinn kominn all-langan veg á undan þeim, enn þeir voru fastráðnir í að elta hann, og lögðu því af stað og fengu hlaupið hann uppi á skömmum tíma. Þá sagði maðrinn við þá: Hví eruð þèr hèr komnir, grannar góðir? Þeir svöruðu: Til þess, að fá þig til að snúa aftr heim með okkr. Hann svaraði þá: Það má með engu móti verða. Þið búið í Glötunarborg, þeim bæ, er eg er fæddr í, og ef þið dvelið þar, mun það bera að, fyrr eða síðar, að þið munuð sökkva niðr fyrir gröfina, niðr í þann stað, er vellr af eldi og brennisteini. Látið ykkr lynda, grannar góðir, að verða mèr samferða. Þá mælti Þrár: Hvað? og skilja við vini vora og heimilis hagræði? Já, sagði Kristinn (svo hèt maðr þessi); því allt það er ekki einu sinni þess virði, að það nái nokkurum samjöfnuði við lítið eitt af því, sem eg leita eftir. (2 Kor. 4. 18.) Ef þið vilið verða mèr samferða og nálgast þessi gæði, skuluð þið sæta enum sömu kostum sem eg; því eg fer þangað sem alls nægtir eru, og nóg aflögu. (Lúk 15. 17.) Komið nú og sannið orð mín.

Þrár: Hvað er það, sem þú sækist eftir, er þú yfirgefr allan heiminn til að nálgast það?

Kristinn: Eg leita arfleifðar, sem er óþrotleg, ósaurguð og aldrei fölnar (1 Pet. 1. 4); sem geymd er og fyrirbúin á himnum (Hebr. 11. 16) og veitt verðr á vissum tíma þeim, sem leita hennar kostgæfilega. (Ef þú vilt getrðu lesið þetta í bókinni minni.)

Þrár: Hættu, hættu, burt með bók þína! Villtu snúa aftr með okkr eða ekki?

Kristinn: Nei, aldrei! því nú hefi eg lagt hönd mína á plóginn. (Lúk 9. 62.)

Þrár: Heyrðu, Táplaus, kondu granni, við skulum snúa aftr heim án hans. Það er nóg til af þeim þessum hèrviltu glópöldum; þegar þeir eru búnir að ná í endann á einni sèrvizku, þá þykjast þeir hyggnari enn sjö aðrir með fullu viti.

Táplaus: Átyrtu ekki manninn. Sè það satt, sem okkar góði Kristinn segir, þá er það, sem hann hefir auga á, betra enn vor hagr. Mèr er helzt í hug, að verða granna mínum samferða.

Þrár: Hvað! fleiri fífl enn? Æ láttu mig nú ráða fyrir þèr, og snúðu aftr. Hver kann að vita hvert þetta höfuðsóttar fífl kann að fara með þig? Snúðu við, snúðu við, og sýndu að þú sèrt maðr með viti.

Kristinn: Kondu með mèr, Táplaus góðr; þú mátt trúa mèr, að þeir hlutir, sem eg talaði um, eru fáanlegir, og margföld dýrð þar að auki. Ef þú ekki trúir mèr, þá líttu í bókina þá arna, og sjá, höfundr hennar hefir staðfest með blóði sínu sannleika alls þess, sem í henni er skráð. (Hebr. 9. 17–21.)

Táplaus: Heyrðu Þrár, eg er búinn að afráða, hvað eg gjöri; eg er fastráðinn að verða þessum góða manni samferða og láta eitt ganga yfir okkr báða. Enn eru þèr leiðir kunnar, goði fèlagi, til þessa þráða staðar?

Kristinn: Maðr nokkur, að nafni Fagnaðarboði, sagði, að eg skyldi flýta mèr að þröngu hliði sem þarna er framm undan okkr; þar verðr okkr sagt til vegar.

Táplaus: Kondu þá, granni góðr, við skulum nú fara. Síðan fóru þeir báðir saman.

Og eg fer þá heim aftr til mín, sagði Þrár, eg er ekki að leggja lag mitt við slíka villuráfandi ofvita.

Þegar Þrár var farinn, þótti mèr þeir félagar, Kristinn og Táplaus fara leiðar sinnar yfir vellina, og taka tal með sèr á þessa leið:

Kristinn: Hana nú, granni Táplaus, hvernig líðr þèr? Það gleðr mig, að þú rèðst í það, að verða mèr samferða. Og hefði Þrár aðeins tekið annað eins út og eg hefi gjört, af ótta fyrir ógnum þeim og skelfíngu, sem enn þá eru ósèð, þá mundi hann naumlega hafa snúið svo brátt við oss bakinu.

Táplaus: Fyrst við erum nú orðnir tveir einir, Kristinn minn, þá segðu mèr nú nokkuð ýtarlegar, hvað það er, sem við förum að nálgast, og hvernig við fáum notið þess.

Kristinn: Mèr er hægra að skynja það með huganum, enn að skýra frá því með túngunni. Enn með því þig langar til að þekkja það, þá ætla eg að lesa þèr nokkuð um það í bókinni minni.

Táplaus: Og heldrðu að orð þeirrar bókar sè sönn og áreiðanleg?

Kristinn: Já, sannarlega. Því sá er höfundr hennar, sem ekki getr logið.

Táplaus: Það er gott; enn hverir eru nú þessir góðu hlutir?

Kristinn: Þar lifum vèr í konungs ríki, sem engan enda hefir; þar veitist oss eilíft líf, svo vèr megum byggja það ríki um alla eilífð. (Es. 45. 17; Joh. 10. 27–29.)

Táplaus: Vel er nú mælt. Hvað er meira?

Kristinn: Þar verða oss gefnar kórónur dýrðarinnar; og þar verða gefin oss klæði, er láta munu oss skína sem sólina á festíngu himinsins. (2 Tim. 4. 8; Opb. b. 22. 5; Math. 13. 43.)

Táplaus: Þetta er ágætt, enn hvað meira?

Kristinn: Þar mun aldrei framar verða harmr nè sorg, því sá sem á staðinn mun þerra öll tár af augum vorum. (Es. 25. 8; Opb. b. 7. 16, 17; 21. 4.)

Táplaus: Með hverjum eigum við að lifa þar?

Kristinn: Þar verðum við með Seröfum og Kerúbum (Es. 6. 2; 1 Thess. 4. 16, 17; Opb. b. 5. 11); og verum, sem mannlegt auga fær ekki horft á sökum ljóma þess, er af þeim stendr. Þar munum vèr og hitta þá þúsundum og tíu þúsundum saman, sem farnir eru til þessa staðar á undan oss; enginn þeirra vinnr öðrum mein; allir eru þeir heilagir og fullir elsku; sèrhver þeirra gengr frammi fyrir augliti Guðs, og auga hans hvílir á þeim með eilífri velþóknan. Í stuttu máli: þar munum við sjá öldungana með hinar gullnu kórónur (Opb. b. 4. 4); þar munum við sjá hinar helgu meyjar með hinar gullnu hörpur sínar (Opb. b. 14. 1–5); þar munum við sjá þá menn, sem höggnir hafa verið í heimi þessum, sem brendir hafa verið á eldi, sem rifnir hafa verið sundr af óarga dýrum, sem drukknað hafa í sjó, sökum elsku þeirrar er þeir höfðu á lávarði þessa staðar (Joh. 12. 25); öllum mun þeim vel vegna, og allir munu þeir vera íklæddir ódauðleikanum eins og fati. (2 Kor. 5. 2, 3, 5.)

Táplaus: Menn þurfa ekki annað, enn að heyra þetta, til þess, að hjartað fyllist unaði. Enn getum við notið þessarra hluta? Hvernig getum við orðið hluttakar þeirra?

Kristinn: Lávarðr sá, er landinu ræðr, hefir tekið það framm í þessarri bók (Es. 55. 1, 2; Joh. 6. 37; 7. 37; Opb. b. 21. 6; 22. 17); því aðalkjarninn í henni er það, að hann muni veita oss allt þetta gefins, ef vèr með einlægni og fúsum vilja leitum þess.

Táplaus: Mikil gleði er mèr að heyra allt þetta; góði vin, kondu, við skulum hvetja sporið.

Kristinn: Eg get ekki gengið eins hratt og mig langar til, sökum byrði þessarrar er eg hefi á baki mèr.

Rètt um sama leyti og þeir höfðu lokið tali þessu, þótti mèr þeir nálgast fen nokkurt, djúpt og blautt mjög; og var það rètt á miðjum grundunum. Þeir gengu áframm og uggðu ekki að sèr, og duttu svo báðir í einu ofan í það. Fen þetta var kallað Sturlandíki. Í þessu díki bröltu þeir um tíma og ötuðu sig hörmulega á leirnum. Kristinn tók að sökkva dýpra og dýpra í fenið sökum byrðar þeirrar, er hann hafði á baki. Þá mælti Táplaus: Heyrðu, Kristinn minn, hvar ertu nú? Satt að segja, sagði Kristinn, veit eg það ógjörla sjálfr. Nú tók Táplaus að þykkjast, og mælti bræðilega við fèlaga sinn: Er þetta sælan, sem þú hefir verið að segja mèr frá alla leiðina? Þegar ferðin byrjar ekki betr enn þetta, hvernig mun þá frammhaldið verða og ferðalokin? Auðnist mèr að komast lífs hèðan, þá mátt þú eiga hið dýrðlega land einn saman mín vegna. Þegar hann hafði þetta mælt, brauzt hann nokkurum sinnum um, sem óðr væri, og brölti upp úr feninu, þeim megin, er skemmst var heim til hans; lagði síðan á rás heim, og sá Kristinn hann ekki upp frá því.

Nú var Kristinn þá einn síns liðs að brjótast um í Sturlandíki; enn hann kepptist við, af öllum mætti, að komast að þeim fen-barminum, er fjærstr var húsi hans og næstr hinu þröngva hliði.

Enn er hann kom að bakkanum, fèkk hann með engu móti komizt upp úr feninu, vegna byrðarinnar, er hann hafði á bakinu. Enn þá þótti mèr, maðr nokkur, að nafni Hjálpráðr, koma til hans, og spyrja, hvað hann hefðist að á þessum stað.

Kristinn: Herra minn, maðr nokkur, að nafni Fagnaðarboði, sagði mèr hèr til vegar, og hann sagði eg skyldi halda þessa leið, að hliðinu þarna, svo eg mætti fá umflúið hina komandi reiði. Enn á leiðinni þangað datt eg hèr ofan í.

Hjálpráðr: Enn hví hafðirðu ekki augun á stýflunum?

Kristinn: Ótti lá mèr svo hart í hælum, að eg flúði hinn beinasta veg og datt ofan í.

Hjálpráðr mælti: Rèttu mèr höndina! Þá rètti Kristinn upp hönd sína, og Hjálpráðr dróg hann upp úr. (Sálm 40. 2.) Og er Hjálpráðr hafði komið honum upp á þurt, beiddi hann Kristinn fara leiðar sinnar.

Eg gekk nú að manninum, sem hafði dregið Kristinn upp úr, og sagði: Því er þetta díki ekki gjört greiðfærara, svo að fáráðir ferðamenn geti farið hèr óhultir ferða sinna, úr því að leiðin frá Glötunarborg yfir að hliðinu þarna liggr um fenið? Hann svaraði: Svo er þessu feni farið, að með engu móti verðr það greiðfærara gjört. Því að í þetta díki rennr stöðugt sorp það og saur, sem fylgir viðrkenningu manna um synd sína. Enn Sturlandíki er það kallað þess vegna, að þegar syndarinn raknar við, og finnr að hann er ofrseldr glötuninni, þá vaknar í sálu hans margfaldr ótti, efi og víl, er allt lamar þrek hans; og þetta safnast allt saman og rennr híngað. Þetta ber til þess, að jarðvegr er hèr svo illr.

Það er lángt frá vilja eða velþóknan konungsins, að þessi staðr skuli jafnan vera svo illr yfirferðar. (Es. 35. 3, 4.) Landmælendr hans hátignar hafa nú, meir en átján hundruð ár, verið að gefa verkamönnum konúngs leiðbeiningar til þess, að gjöra þenna landsskika færan, ef unt væri. Já, og eg veit, að það er búið að færa ofan í þenna stað mörg hundruð þúsund vagnbyrðar, já margar milliónir, af hollum og skynsamlegum lærdómum og kenningum; hefir þetta allt verið flutt hingað stöðugt árið um kring allan þenna tíma hvervetna að úr öllu konungsríkinu, til þess, að bæta jarðveginn; og segja þeir, er vit hafa á, að þetta sè bezta efni til þess, að gjöra góðan jarðveg úr þessu feni. Enn enn þá er Sturlandíki samt og fyrr, og mun lengst af verða, hvað sem tekið verðr til bragðs.

Reyndar hafa nú verið lagðar stýflur, að fyrirsögn löggjafans, jafnvel um mitt fenið, og eru þær bæði traustar og tryggvar. Enn það er illt að greina stíga þessa, þegar efjan í díkinu ylgist upp, sem oft ber við, einkum fyrir veðra brigðum; og þó að stýflurnar verði greindar, þá verðr mönnum hèr svo sundlhætt, að þeir fara út af stýflunum, og verða herfilega ataðir af saurnum í díkinu, þó að þeir kunni að vera fast hjá stígunum. Enn úr því komið er yfir fyrir hliðið, tekr við góðr jarðvegr. (1 Sam. 12. 23.)

Nú þótti mèr Táplaus vera kominn heim til sín. Komu þá grannar hans og heimsóktu hann; töldu sumir þeirra hann mann hygginn, að hafa snúið aftr; aðrir kölluðu hann fífl, fyrir það, að hafa hætt lífi sínu með Kristni; aftr aðrir drógu dár að bleyðiskap hans, og sögðu: Sannarlega, úr því þú lagðir á tvær hættur á annað borð, þá hefði eg ekki orðið það vesalmenni að gefast upp við fáa erfiðleika.

Í fyrstu sat Táplaus með ólund meðal þeirra, enn síðan gjörðist hann ókærinn og einarðlegri í svörum. Þá sneru allir við blaðinu, og tóku að hæða vesalings Kristinn á bak. Og er nú Táplaus úr sögunni.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

1. kafli af 31 · 15 mín. eftirMaðrinn með byrðina