Tólfti kafli
Sèrhugall og Demas
Rètt eftir það, að þeir fèlagar voru komnir burt af markaðinum gengu þeir framm á mann nokkurn að nafni Sèrhugall. Þeir spurðu hann, hverrar þjóðar hann væri, og hvað lengi hann ætlaði að halda þenna veg. Hann kvaðst koma frá bæ þeim er að Fagrgala hèti, og vera á ferð til hinnar himnesku borgar, enn duldi þá nafns síns.
Frá Fagrgala sagði Kristinn: Er þar nokkur maðr góðr? (Orðskv. 26. 25.)
Sèrhugall: Já, það vonar mig.
Kristinn: Má eg spyrja, hvert er nafn yðar?
Sèrhugall: Við þekkjum hvorugr annan; ef þèr farið þessa leið, verð eg feginn samfylgd yðar, enn ef þèr farið hana ekki, verð eg að láta mèr það lynda.
Kristinn: Eg hefi heyrt getið um þenna bæ, Fagrgala. Mig minnir eg hafi heyrt, að það sè auðug borg mjög.
Sèrhugall: Já, það má nú segja, þar er nógr auðr; og eg á marga auðuga ættingja þar.
Kristinn: Má eg vera svo djarfr að spyrja, hverir þessir ríku ættingjar yðar eru?
Sèrhugall: Nærri allr bæjarlýðr eru ættingjar mínir; nánastir frændr mínir eru þó þeir lávarðarnir Hverflyndr, Hagleitinn og Fagrgali, og var bærinn fyrst nefndr eftir forfeðrum hans; þá eru og þeir herrar Mjúklátr, Tvíáttungr, Altíöllu, og sóknarprestr okkar, herra Tjúgutunga, hann var hálfbróðir móður minnar að föðurnum. Eg segi yðr það satt, að eg er nú kominn í fyrirmanna röð; þó var langafi minn ekki nema rèttr og slèttr ferjukarl sem reri allt af í gagnstæða átt við þá sem hann horfði í. Meginhlutann af fasteignum mínum hefi eg fengið með sömu atvinnu.
Kristinn: Eruð þèr giftr maðr?
Sèrhugall: Já, og konan mín allra mesta dyggða kona eins og móðir hennar; hún var dóttir hinnar ágæta frúr Uppgerðar, svo hún er af mjög heiðvirðri ætt komin, og hefir fengið svo háa og ágæta menningu, að hún á jafn hægt með að umgangast alla, frá bóndanum og upp að konunginum. Í trúar málum er dálítill munr á okkr og þeim sem strangari eru í þeim efnum, þó er það ekki nema í tveimr smáatriðum, og þau eru þessi: Hið fyrra, að við sækjum aldrei móti straumi nè vindi. Hið síðara, að við erum mjög vandætingafull, þegar trúarbrögðin ganga á sílfrskóm sínum; við göngum jafnan út með þeim okkr til skemmtunar, þegar sólskin er og menn klappa þeim lof í lófa.
Þegar hèr var komið, gekk Kristinn til hliðar að Vongóðum, fèlaga sínum, og sagði: Nú kenni eg manninn, það mun vera Sèrhugall frá Fagrgala; og sè tilgáta mín rètt, þá höfum við fengið til samfylgdar einhvern hinn versta skelmir í öllu þessu bygðarlagi. Þá mælti Vongóðr: Spurðu hann, hvað hann heiti; hann skammast sín líklega ekki fyrir nafnið. Gekk nú Kristinn að honum, og sagði við hann: Eg heyri það, af því, hvernig yðr farast orð, að þèr munuð vita meira enn flestir aðrir, og ætla eg að geta mín um nafn yðar verði ekki allskökk. Er ekki nafn yðar herra Sèrhugall fra Fagrgala?
Sèrhugall: Ekki er það nafn mitt; enn það er satt, að ýmsir menn hafa ímugust á mèr, og hafa þeir klínt á mig uppnefni þessu; og eg verð að hafa það eins og annað hunds bit; margr góðr maðr hefir orðið að láta sèr lynda hið sama á undan mèr.
Kristinn: Enn hafið þèr aldrei gefið mönnum átyllu til þessa uppnefnis?
Sèrhugall: Nei, aldrei nokkurn tíma. Sú eina og mesta átylla sem þeir hafa haft til að uppnefna mig, er það, að eg hefi allt af verið svo heppinn, að skoðanir mínar og álit hafa jafnan átt bæði við stað og stund, hvernig sem á hefir staðið, og hefir mèr viljað það til, að það hefir orðið mèr til hagsmuna. Eg get nú ekki álitið það annað enn hamingju, að lánið sæki þannig að mèr, og finnst mèr það tómr óþarfi, þó menn aldrei sè nema illgjarnir, að uppnefna mig fyrir það.
Kristinn: Eg vissi það, að þèr voruð maðrinn sem eg gat til og eg hefi heyrt svo margt talað um; eg skal nú segja yðr nokkuð, eg held nafnið eigi langtum betr við yðr, enn þèr vilið láta okkr halda.
Sèrhugall: Já, já, ef þið vilið ímynda ykkr það, þá er eg ekki þar maðr á milli; enn ei að síðr, skal eg verða ykkr góðr fèlagsmaðr, ef þið vilið leyfa mèr að verða ykkr samferða.
Kristinn: Ef að þèr vilið verða okkr samferða, þá verðið þèr að fara móti straumi og vindi, enn eg hefi komizt að því, að það er andstætt yðar lífsreglum; eins er og hitt, að þèr verðið í okkar fèlagi að þekkjast trúna eins fúslega, þegar hún er tötrum búin, eins og þegar hún gengr á silfrskóm; þèr verðið og að fylgja henni eins, þegar hún er fjötruð og bundin, eins og þegar hún gengr um stræti og menn klappa henni lof í lófa.
Sèrhugall: Þèr eigið ekkert með að skipa fyrir um mína trú, eða að ráða í nokkuru yfir henni. Látið þið mig njóta frjálræðis míns, og verða ykkr samferða með þeim kosti.
Kristinn: Nei, ef að þèr ekki vilið ganga að öllum kostum og kvöðum með okkr, eins og eg hefi kveðið á, þá farið þèr ekki feti lengra.
Sèrhugall: Eg geng aldrei frá mínum gömlu grundvallarreglum, því að þær eru bæði meinlausar og gagnlegar. Megi eg ekki verða ykkr samferða, þá fer eg einn minna ferða, eins og áðr enn þið genguð framm á mig, þangað til einhver annar gengr mig uppi, sem verðr fegin samfylgd minni.
Þá þótti mèr þeir fèlagar Kristinn og Vongóðr skilja við hann, og verða nokkuð á undan honum; enn skömmu síðar leit annarhvor þeirra við og sá, að þrír menn komu á eftir Sèrhugli, og þegar þeir náðu honum, hneigði hann þeim djúpt og þeir honum. Menn þessir hètu Heimsvinr, Fjársólginn, og Nyrfill; hafði herra Sèrhugall áðr verið nákunnugr mönnum þessum; því að þeir höfðu allir verið skólabræðr í æsku sinni, og lærðu hjá skólameistara einum, að nafni Gripsamr, er hafðist við í markaðsbæ nokkurum er Aurafýsn hèt, og er norðr þar í hèraði, er Ágirnd nefnist. Skólameistari þessi hafði kennt þeim þá íþrótt, að komast yfir alla hluti, er þeim lèki hugr á, hvort sem vera skyldi með ofbeldi, tálbrögðum, smjaðri, lýgi eða guðhræðslu yfirskini; höfðu menn þessir tekið miklum framförum í íþrótt meistara síns, og voru nú orðnir færir um að verða skólastjórar hver um sig í þessari menntunargrein.
Þegar þeir höfðu heilsazt með miklum virktum, eins og áðr er á minnst, þá sagði Fjársólginn við Sèrhugal: Hverir fara þar á undan oss? því þeir voru ekki komnir úr sýn, Kristinn og Vongóðr.
Sèrhugall: Það eru tveir menn, langt að komnir; þeir eru nú á pílagrímsferð, enn gjöra ferð sína hálf skrítna.
Fjársólginn: Æ, því biðu þeir ekki við, svo við gætum haft þá skemmtun að verða þeim samferða? Því eg veit ekki betr, enn að þeir, við, og þèr herra góðr, sèum allir á pílagrímsferð.
Sèrhugall: Dagsanna er það, enn menn þessir eru næsta einstrengingslegir; þeim þykir mest koma til sinna eigin skoðana, enn virða lífsreglur og skoðanir annara manna svo að vettugi, að þeir hafna hvers manns samfylgd, sem ekki segir já og amen til alls er þeir hugsa og tala, hversu guðrækinn og góðr sem hann kann að vera.
Nyrfill: Það er leiðinlegt. Enn við höfum lesið, að sumir menn eru allt of rèttlátir, og að þeim fylgir æfinlega sá einstrengingsskapr, að þeir ætla að þeir megi dæma og áfella allt, nema sjálfa sig. Enn gjörðu svo vel og segðu mèr hvað ykkr bar á milli, og í hvað mörgum atriðum?
Sèrhugall: Eitt var það, að þeir eru svo þráir, að þeir ætla að halda áframm ferðinni hverju sem viðrar, enn eg sæti straumi og vindi. Þeir vilja leggja allt á hættu vegna Guðs, og það allt í einu, enn eg vil sæta hverju tækifæri, sem býðst til að tryggja líf mitt og eigur. Þeir vilja halda framm skoðun sinni, þó hver maðr sè á móti þeim; enn eg held trú minni áframm að því er ástæður og hagsmunir mínir leyfa. Þeir vilja fylgja trúnni framm, þegar hún er í tötrum og auðvirðu, enn eg fylgi henni, þegar hún gengr út í sólskini á silfrskóm, og menn klappa henni lof í lófa.
Heimsvinr: Já, og láttu þar við sitja, kunningi góðr! Eg get ekki annað, enn álitið þann mann heimskan, er týna vill því, sem honum er frjálst að halda. Verum sèðir eins og höggormar. Heyið hirðist bezt í sólskini. Þið sjáið, að hunangsflugan liggr kyr fyrir allan vetrinn, og hreyfir sig til starfa einungis þá, er hún getr ábatast með ánægju. Guð gefr ýmist regn eða sólskin. Þó að þeir gjörist slíkir fávitar, að ferðast í regni, þá skulum við láta okkr nægja, að sæta góðviðrinu. Mèr þykir, fyrir mitt leyti, vænst um þau trúarbrögð, er ekki ríða bág við blessun Drottins; því að, úr því Guð hefir veitt oss hin margföldu gæði þessa lífs, þá getr enginn, sem gæta vill skynseminnar, annað enn ímyndað sèr, að hann vili líka að vèr höldum þeim sín vegna. Abraham og Salómon urðu ríkir fyrir trú sína, og Job segir, að góðr maðr skuli hrúga upp gulli sínu eins og moldu,* enn hann má í sannleika vera af öðru bergi brotinn enn þeir sem eru á undan okkr, ef þeir eru eins og þú hefir lýst þeim.
* Misskilningr Heimsv., því Job talar þessi orð um hina óguðlegu. (27, 16.)
Nyrfill: Eg held það þurfi ekki að fara fleirum orðum um þetta efni, því að við erum víst allir á einu máli um það.
Fjársólginn: Nei það er hreinn óþarfi, að ræða fleira um þetta. Því sá sem trúir hvorki ritningunni, nè skynseminni, hann hvorki þekkir sitt eigið frelsi, nè hirðir um að fá högum sínum vel borgið.
Sèrhugall: Bræðr mínir! við erum allir á pílagrímsferð. Við skulum því lyfta huga vorum frá þessum leiðinlegu hlutum, og skemta okkr dálítið; og vildi eg því mega leggja fyrir yðr eina spurningu.
Eg tek til dæmis prest, eða verzlunarmann, eða hvern sem vera skal, og set svo, að við honum blasi öll tímanleg farsæld, enn henni verði ekki náð með neinu móti nema því að eins, að hann gjörist, að minnsta kosti að yfirborðinu, vandlátr mjög í ýmsum trúaratriðum, er hann hefir ekki hirt um fyr. Getr hann ekki beitt þessu bragði til að ná tilgangi sínum, og þó verið allskostar heiðvirðr maðr?
Fjársólginn: Eg skil spurninguna mjög vel, og skal eg reyna að svara henni, ef þið leyfið, góðir hálsar. Eg leysi fyrst úr spurningunni um prestinn. Setjum að heiðvirðr prestr sæti á mjög litlu og ríru brauði, og hefði augastað á öðru stærra og langt um betra. Nú getr hann fengið það, enn þó með því eina móti, að gefa sig meira við lærdómi, að prèdika oftar enn fyrr, og hafa frammi meiri vandlætíngarsemi enn venja hans hefir verið, og með því, að breyta skoðunum sínum, af því biskupslundin býðr það. Hví skyldi nú þessi maðr eigi neyta alls þessa, til að koma framm vilja sínum, og mundi hann ekki jafnheiðvirðr eftir sem áðr?
Því að, fyrst og fremst, er það löglegt, að hann girnist stærra brauð, sem forsjónin hefir lagt í veginn fyrir hann. Þetta verðr ekki hrakið. Þess vegna segi eg: Taki hann það, og gjöri sèr enga samvizku af, ef hann getr náð því.
Í öðru lagi er þess að gæta, að vegna þess, að honum leikr hugr á öðru brauði, gjörist hann meiri lærdómsmaðr og vandlætingasamari prèdikari, o. s. frv.; þetta gjörir hann að betri manni, og æfir hann þannig hæfilegleika sína og fullkomnar þá, og það er einmitt vili Guðs.
Að hann gjörist biskupsvin með því, að laða sig eftir vild biskupsins, og hverfa frá ýmsum skoðunum sínum, sannar það, að hann hefir sjálfsafneitun, að hann er maðr mjúklátr og þýðr í lund, og að því skapi hæfari fyrir prestslega stöðu.
Fyrir því skilst mèr, að ekki sè það ágirndar merki, þótt prestr á litlu brauði sæki um stærra brauð og fái það; nei, mèr sýnist hann ekki gjöra annað, enn gegna köllun sinni, og sæta tækifærinu, er það býðst, til þess, að gjöra gott; því að hann eflir og fullkomnar hæfilegleika sína með þessu móti, og gjörist um leið iðnismaðr.
Nú sný eg mèr að síðara hluta spurningarinnar, um verzlunarmanninn, sem þú nefndir. Eg set, að hann hafi næsta ríra atvinnu í heiminum, enn geti bætt stöðu sína með því, að gjörast guðhræddr; t. á. m. komizt að auðugu kvonfangi, eða hænt fleiri og betri skiftavini í búð sína. Eg, fyrir mitt leyti, fæ nú ekki betr sè, enn að þetta sè honum fullkomlega lögheimilt. Fyrst vegna þess, að það er dyggð, að gjörast guðhræddr, hvernig sem guðhræðslan er undir komin. Í öðru lagi þess vegna, að hvorki er það ólöglegt að ganga að eiga ríka konu, eða fá fleiri skiftavini í bók hjá sèr.
Í þriðja lagi er það, að með þessu móti fær maðrinn gott af góðum, og verðr sjálfr að betri maðr; hann fær góða konu, góða skiftavini og góðan ábata, og það allt með því, að gjörast guðhræddr, sem er í sjálfu sèr gott. Það er því góðr og ábatasamr tilgángr, að gjörast guðhræddr, til þess, að öðlast allt þetta.
Þegar herra Fjársólginn hafði þannig svarað spurningu Sèrhugals, gjörðu þeir allir góðan róm að máli hans; og kom saman um það, að breytni slík sem þessi mundi vera hin heillaríkasta og ábatamesta fyrir hvern mann. Þeir hèldu, að engum manni væri unt að hrekja svar þetta, og kom þeim því í einu hljóði ásamt um, að ráðast á Vongóðan og Kristinn með spurninguna, þegar er þeir hefði náð þeim; einkum vegna þess, að þeir höfðu rekið Sèrhugal svo illa í vörðurnar áðr; enn þeir fèlagar voru enn þá svo nærri, að þeir gátu heyrt er hinir kölluðu. Enda kölluðu þeir nú til þeirra, og stóðu þeir við, þangað til Sèrhugall og fèlagar hans náðu þeim. Nú var ákveðið, að herra Sèrhugall skyldi ekki bera upp við þá spurningu þessa, heldr herra Heimsvinr; því menn ímynduðu sèr, að svar þeirra Kristins mundi með því móti verða laust við hitann, er kviknað hafði milli Sèrhugals og þeirra, er þeir skildu fyrir skemmstu.
Nú fundust þeir, og eftir skammar kveðjur lagði herra Heimsvinr spurningu sína fyrir Kristinn og fèlaga hans, og beiddi þá svara henni ef þeir gæti.
Kristinn svaraði og sagði: Hvert barnið í trúarbrögðunum getr svarað þúsund spurningum af þessu tagi. Því ef það var óleyfilegt, að fylgja Kristi, vegna brauðanna, eins og stendr hjá Jóh. 6. 26, þá er hitt allskostar viðbjóðslegt, að skjóta Kristi og trúnni eins og verju fyrir sig til að njóta heimsins. Enda dettr engum í hug að halda þessari skoðun framm, nema heiðingjum, hræsnurum, djöflum og galdranornum.
Heiðingjar halda þessari skoðun framm, því að þegar Hamor og Shechem lögðu hug á dóttur Jakobs og fè hans, og sáu, að enginn vegr var til að nálgast þetta hvorttveggja, nema þeir lètu umskerast, þá sögðu þeir við fèlaga sína: ef allt karlkyn vort lætr umskerast eins og þeir eru umskornir, mun þá ekki fè þeirra og eigur og hver skepna, sem þeir eiga, verða eign vor? Það sem þeim lèk hugr á að nálgast voru dætur þeirra og fènaðr, og trúarbrögð þeirra var skálkaskjólið, sem þeir höfðu til þess, að nálgast þau. Lesið söguna alla í 1 Mós. b. 34. 20–24.
Hinir hræsnisfullu Farísear höfðu og þessa trúarskoðun. Blæja þeirra voru langar bænir, enn þeir lugu út hús ekknanna, og fengu þeir að harðari refsingu fyrir með Guðs dómi. (Lúk 20. 46, 47.)
Trú Júdasar djöfuls var og þessu lík; hann lèzt vera guðhræddr, og gjörði hann það vegna pyngjunnar, svo að hann gæti slegið eign sinni á það, er inn kom í sjóðinn; enn hann týndist, honum var útskúfað og hann varð sannr glötunarsonr.
Símon töframaðr var og þessarrar trúar; því hann vildi feginn hafa Heilagann Anda til þess, að vinna sèr inn fè, enda fór dómr Pètrs yfir honum eftir því (Post. g. 8. 19–22.)
Ekki get eg heldr varizt þeirri skoðun, að sá, er tekr trú heimsins vegna, muni og ganga af trúnni heimsins vegna; því eins og það er víst, að Júdas gjörðist guðrækinn heimsins vegna, eins víst er og hitt, að hann seldi trú sína og meistara sinn fyrir heiminn. Að gjalda þessari spurningu jákvæði, eins og eg heyri, að þið hafið gjört, og að ætla að slíkt svar sè óyggjandi og órækt, er heiðinglegt, hræsnisfullt og djöfullegt; enda mun og endrgjald yðar fara eftir verkum yðrum.
Nú stóðu þeir og störðu hver á annan, enn vissu ekki hverju þeir áttu að svara Kristni. Vongóðr tók undir með Kristni, og kvað svar hans eiga í alla staði við gild rök að styðjast. Nú varð mikil þögn með þeim; þeim Sèrhugal og fèlögum hans var nú fallinn allr ketill í eld; þeir drógu sig aftr úr, til þess, að þeir Kristinn og Vongóðr kæmust á undan þeim. Þá mælti Kristinn við fèlaga sinn: Hvernig hugsa þessir menn til, að geta staðizt fyrir Guðs dómi, er þeir fá ekki staðizt manna dóm? Og fyrst þeir verða orðlausir, er þeir eiga við leirkerin, hvar munu þeir þá fá til þrifið, þegar þeir sæta logandi ofanígjöf hins brennanda elds?
Þeir félagar, Kristinn og Vongóðr, urðu nú á undan þeim, og fóru ferða sinna, þangað til að þeir komu á fagrar flatir, er Náðir hètu; var þeim hin mesta ánægja í að ganga um grundir þessar. Enn þær voru mjóar og var fljótfarið yfir þær.
Í jaðrinum á grundum þessum var hóll nokkur, að nafni Ábati, og var silfrnámi í hólnum, og höfðu ýmsir, er áðr höfðu farið um þenna veg, gjört sèr ferð til að skoða náma þenna, með því hann var fásèð afbrigði; enn sumir höfðu farið of nærri náma-barminum, enn jarðvegrinn gljúpr og ótryggr, svo bakkinn hafði hrunið með þá, og þeir hrapað til dauðs; sumir höfðu breinbrotnað svo meinlega, að þeir urðu aldri menn aftr til dauðadags.
Nú þótti mèr eg sjá mann standa nokkuð út frá veginum andspænis silfrnámanum, og kallaði hann á ferðamennina, að koma og sjá hann; þessi maðr hèt Demas; hann kallaði til Kristins og fèlaga hans og sagði: Heyrið þið, komið þið hingað, eg skal sýna ykkr nokkuð. Kristinn varð fyrir svörum og mælti: Hvað er það? er það nokkuð þess vert, að við snúum af leið til að sjá það?
Demas: Hèr er silfrnámi, og eru menn að grafa þar eftir auðæfum. Ef þið vilið koma, þá getið þið fengið auð nægan með lítilli fyrirhöfn.
Vongóðr mælti: Kondu, við skulum fara og sjá námann.
Kristinn: Nei, eg fer ekki eitt fet. Eg hefi heyrt áðr nógar sögur af þessum stað, og þeim mörgu, er þar hafa verið drepnir; og auk þess, er silfrið snara þeirra, sem fara að leita þess, því að það tefr þá frá pílagrímsferð þeirra.
Þá kallaði Kristinn til Demasar og sagði: Er þetta ekki hættustaðr? hefir hann ekki tafið marga frá pílagrímsferðum þeirra? (Hós. 4. 16–19.)
Demas: Ó, nei, ekki má hann það heita mjög, nema fyrir þá, sem fara ógætilega; enn er hann sagði þetta, roðnaði hann við. Því næst sneri Kristinn sèr til Vongóðs og mælti: Við skulum ekki hreyfa okkr eitt fet þangað, heldr halda áframm ferð okkar.
Vongóðr: Eg þori að ábyrgjast, að Sèrhugall gengr út úr vegi, til að skoða þetta, ef á hann verðr kallað eins og okkr.
Kristinn: Já, það gjörir hann efalaust, því það er honum líkt. Enn eg þori að leggja hundrað gegn einum, að hann ferst þar. Í þessu kallaði Demas enn þá einu sinni til þeirra, og sagði: Er það alvara ykkar, að ætla ekki að koma hingað og skoða námann?
Kristinn svaraði honum óðar og sagði: Heyr þú, Demas, þú ert fjandmaðr þess Drottins, er ræðr yfir þessum vegi, og hefir einn af dómendum hans hátignar þegar kveðið upp áfellisdóm yfir þèr fyrir það, að þú vèkst úr vegi sjálfr (2 Tim. 4. 10); hví leitast þú við, að koma oss í sömu fyrirdæminguna? Þar að auki mun konungrinn, herra vor, vissulega frètta, ef vèr hverfum út úr vegi, og munum vèr þá standa þar fullir minnkunar, er vèr annars hefðum getað staðið með djörfung.
Nú kallaði Demas til þeirra, og kvaðst vera vinr þeirra, og fèlagsbróðir, og beiddi þá að bíða dálítið, þangað til hann kæmi; kvaðzt ætla að verða þeim samferða.
Þá svaraði Kristinn honum: Hvað heitirðu? hefi eg ekki nefnt þig rèttu nafni?
Demas: Jú, nafn mitt er Demas, og eg er Abrahams son.
Kristinn: Eg þekki þig. Gehazi var langafi þinn, og Júdas var faðir þinn, og þú hefir fetað í þeirra spor. Þú ferð með djöfullegar vèlar; faðir þinn var hengdr fyrir drottins svik, og þú ert ekki betri launa verðr. (2 Kon. 5. 20–27; Math. 26. 14, 15; 27. 3–5.) Vertu öldungis viss um það, að við skulum segja konungi vorum frá háttum þínum þegar við finnum hann. Þessu næst fóru þeir leiðar sinnar.
Nú komu þeir fèlagar og Sèrhugall áframm veginn, og jafnskjótt og Demas benti þeim, sneru þeir við, og fóru til hans; enn hvort þeir hröpuðu ofan í gryfjuna, er þeir litu yfir gryfju-barminn, eða þeir fóru niðr að grafa, og köfnuðu í illum gufum, sem oft leggja upp af málm-grefti, er mèr ókunnugt; enn það er víst, að aldrei sázt til ferða þeirra úr þessu.
Sèrhugulum og Demas silfri fjáðumSemr: ef annar kallar, hleypr hinn,Að hluta með sèr hag og arði; enn báðumHeims nægir dvöl; þar endar vegrinn.
Nú þótti mèr eg sjá andspænis mèr og hinumegin við grundirnar mjög fornan minnisvarða fast hjá aðalveginum; og er pílagrímarnir komu að honum, fannst þeim mjög um smíði minnisvarða þessa, því hann var eins og kona, er orðið hefði að súlu. Þeir stóðu og störðu, skoðuðu varðann í krók og kríng enn gátu þó ekki komið því fyrir sig, hvað þetta væri. Loks kom Vongóðr auga á letr nokkurt ofan til á stöplinum og var það ritið með óvanalegum stöfum; Vongóðr var ólærðr maðr, og þekkti ekki letrgjörðina, enn hann kallaði á Kristinn, sem var skólagenginn og lærðr vel, og spurði hann, hvort hann gæti komizt að þýðingunni í þessu letri; og er Kristinn hafði tekið saman stafina las hann þessi orð: Munið eftir konu Lots! (Lúk 17. 32.) Hann las fèlaga sínum orð þessi, og þóttust þeir nú vita fyrir víst, að þetta væri salt-stöpullinn, sem Lots kona varð að, fyrir það að hún leit aftr girndarfullu auga til Sódóma, er hún flýði þaðan. (1 Mós. b. 19. 26.) Þessi sjón er bæði varð svo sviplega og óvænt fyrir þeim, og var svo furðanleg, vakti mál þeirra fèlaga á þessa leið:
Kristinn: Bróðir góðr! þessi sjón kom í rèttan tíma, rètt á eftir það, að Demas bauð okkr, að koma út úr vegi til sín, til þess að skoða Ábata hól. Ef við hefðum farið út úr vegi vorum og yfir um til hans, eins og þú rèðst til, bróðir góðr! þá hefðum við líklega orðið eins og stöpullinn þarna, að viðvörunar merki fyrir alla þá, er komu á eftir oss.
Vongóðr: Eg sár-iðrast eftir fásinnu mína, og furðar mig að sömu örlög skuli ekki vera þegar gengin yfir mig, eins og yfir konu Lots; því hvaða munr var á synd hennar og minni yfirsjón? Hún leit að eins aftr, enn mig langaði að fara og skoða tálið. Eg má sannarlega vegsama Guðs náð, og fyrirverða mig fyrir það, að slíkt skyldi nokkurn tíma detta mèr í hug, sem þetta.
Kristinn: Við skulum athuga það, sem við sjáum hèr, svo að það geti orðið okkr til hjálpar seinna meir. Þessi kona komst hjá einum dómi, því hún lenti ekki í hruni Sódómaborgar; enn hún sætti öðrum dómi, eins og við sjáum; hún var dæmd til að verða að salt-stöpli.
Vongóðr: Það er satt, og hún getr því verið okkr bæði til viðvörunar og fyrirmyndar. Hún varar okkr við, að drýgja sömu syndina og hún drýgði; og hún er okkr fyrirmynd og merki um þann dóm, er á þeim skuli skella, er ekki láta víti þessarrar fyrirmyndar verða sèr að varnaði; þannig var með þá Kóra, Datan og Abíram og þau 250 manna er týndust í syndum sínum, þeir urðu viðvörunar dæmi fyrir aðra. (4 Mós. b. 16. 31, 32; 26. 9, 10.) Enn það furðar mig mest, að Demas og fèlagar hans skuli standa svo sjálfbyrgingslega þarna, og grafa eftir auðnum, úr því þessi kona varð að salt-stöpli einungis fyrir það, að líta aftr (því þess er ekki getið, að hún hafi stigið feti framar til að snúa við); enn mest furðar mig að sjá til þeirra, vegna þess, að þeir sjá jafnan fyrirmynd, og hafa þannig fyrir augum sèr refsidóm, hennar; en þeir geta ekki annað enn hlotið að sjá hana, ef þeir að eins lyfta upp augunum.
Kristinn: Það er öll furða, og sýnir það, að hjörtu þeirra eru orðin ofrseld vonlausri harðýðgi í þessu efni; og eru þeir engu líkari, enn þjófum, er stela úr vösum manna frammi fyrir dómaranum, eða ræna pyngjum manna undir gálganum. Það er sagt um íbúa Sódóma-borgar, að þeir væri mjög miklir syndarar, því að þeir voru syndarar “frammi fyrir Drottni” þ. e. í augliti hans, þrátt fyrir allt það gott, er hann hafði látið þeim í tè (1 Mós. b. 13. 10–13), því að land Sódóma var um þær mundir líkt hinum fornu aldingörðum Edens. Þess vegna varð reiði Drottins því bráðari, og refsidómr þeirra eins heitr, eins og eldr Drottins af himnum gat gjört hann. Það er því mjög skynsamlegt, að álykta, að þeir verði fyrir hinni alvarlegusta refsingu, er fara að ráði sínu eins og þessir menn, er syndga vísvitandi, já og það þó þeir hafi önnur eins dæmi eins og varðann stöðuglega fyrir augum til viðvörunar.
Vongóðr: Já, það er eflaust satt, er þú segir. Enn hvílík náð er það ekki, að hvorki þú, nè eg höfum verið gjörðir að þessari fyrirmynd, og hafði eg þó einkanlega maklega til þess unnið. Þetta mætti vera okkr full ástæða til þess, að þakka Guði, að óttast hann, og að muna jafnan eftir konu Lots.