21. kafli
Hjá Fræðara
Þær hèldu nú áframm, og ræddust þannig við um tíma, og nálguðust bráðum hús eitt, er stóð nærri veginum; var það reist þar til þess, að pílagrímar gæti átt þar hælis að leita, og má sjá nákvæmari skýrslu um það í fyrri hluta þessarrar sögu um pílagrímsferð Kristins. Þetta var hús Fræðara. Gengu þær nú áframm, og er þær komu að dyrunum, þá heyrðu þær manna mál mikið í húsinu. Þær hlustuðu á manna málið, og virtist þeim, sem nafn Kristínar væri nefnt. Það var og dagsanna, því að fregnin um það, að hún hefði lagt í pílagrímsferð með börnum sínum, var komin á undan henni. Þetta þótti þeim, er inni fyrir voru, því vænna, sem þeir höfðu heyrt, að hún væri kona Kristins, hin sama kona er fyrir skömmu ekki vildi einu sinni heyra pílagrímsferð nefnda. Þarna stóðu þær nú um tíma úti og hlustuðu, og heyrðu, að fólkið sem inni var, var einlægt að kveða lofsorði á Kristínu, og uggði sízt, að hún stæði við dyrnar. Loksins drap hún að dyrum, eins og hún hafði áðr gjört við hliðið. Eftir stundu liðna kom ung mær til dyra, lauk upp og leit út, og sjá tvær konur voru við dyrnar.
Mærin tók þegar til máls, og spurði við hvern þær vildu tala hèr?
Kristín varð fyrir svörunum og mælti: Við erum pílagrímar, og höfum heyrt, að þetta hús sè reist til skýlis og aðhlynningar fyrir pílagríma; við biðjum yðr því að ljá okkr húsaskjól, því degi er mjög farið að halla, og við treystum okkr naumlega til þess að halda lengra í kvöld.
Mærin: Gjörið þið svo vel, að segja mèr nöfn ykkar, svo eg geti sagt húsráðandanum hverir komnir sèu.
Kristín: Nafn mitt er Kristín; eg var gift pílagrími einum, er fór hèr um fyrir nokkrum árum; og þetta eru börnin okkar. Þessi kvennmaðr er förunautr minn, og hefir lagt í pílagrímsferðina með mèr.
Þegar mærin heyrði þetta, hljóp hún inn, og sagði við þá er fyrir voru: Getið þið hver komin er! Kristín, með börnum sínum og einum kvennmanni, sem öll beiðast gistingar. Við þetta stukku allir upp, og hlupu að segja húsráðandanum frá því. Kom hann þá út til dyranna, og mælti: Ertu sú Kristín er hinn sæli Kristinn skildi við, þá er hann fór í pílagrímsförina um árið?
Kristín: Já, eg er hin sama harðhjartaða kona, er virti að vettugi sálarangist bónda míns, og lèt hann fara einmana í pílagrímsferðina, og þetta eru fjögur börnin hans. Enn nú er eg komin sama veg; því eg veit, að þessi vegr er hinn eini rètti.
Fræðari: Þá er frammkomið það, sem skrifað er um föðurinn, er sagði við son sinn: Farðu og starfaðu í dag í víngarði mínum; enn sonrinn svaraði: Nei, eg vil það ekki, enn iðraðist seinna og fór. (Math. 21. 29.)
Kristín svaraði: Amen, já verði það. Guð gefi, að það megi í sannleika rætast á mèr, og að eg megi að lokum finnast í honum í friði, flekklaus og hrein.
Fræðari: Enn því stendr þú úti? Kondu inn, Abrahams dóttir, við vorum rètt núna að tala um þig; því við höfðum frètt, að þú værir orðin pílagrímr. Komið þið börn, og þú stúlka, komið þið inn. Og nú fór hann með þau öll inn.
Þegar inn var komið, voru þau beðin að setja sig niðr og hvíla sig, og komu síðan pílagríma-þjónarnir inn, til þess að sjá þau; brostu þeir allir, hver með öðrum, svo voru þeir fegnir yfir því, að Kristín hafði gjörzt pílagrímr. Þeir skoðuðu drengina hennar, og klöppuðu þeim á kinnarnar til merkis um það, hve fegnir þeir væru, að sjá þá og veita þeim allan beina; þeir tóku Líkn með sömu blíðu og báðu þau öll velkomin.
Þegar þau höfðu setið stundar korn, fór Fræðari með þau inn í skýringar herbergin þangað til kvöldverðr var frammborinn og sýndi þeim allt það sem bóndi Kristínar hafði sèð áðr, bæði manninn í búrinu, manninn sem dreymt hafði dómsdag, manninn sem barðist gegnum hina vopnuðu óvini og allt hitt, sem hafði orðið svo lærdómsríkt fyrir Kristinn.
Þegar nú Kristín og börn hennar og Líkn höfðu áttað sig nokkuð á öllu þessu, fór Fræðari með þau öll inn í herbergi eitt, þar er var fyrir maðr nokkur, er hvergi fèkk litið augunum nema niðr fyrir sig; hann hafði sorpkláru í hendinni. Annar maðr var þar líka fyrir; hann hèlt á himneskri kórónu í hendinni, og bauð hinum kórónuna fyrir sorpkláruna; enn kláruvaldr gjörði hvorki að líta upp nè hirða hið minnsta um boðið; hann hirti um ekkert annað, enn að raka að sèr stráum, hismi og sorpi af gólfinu.
Kristín mælti, er hún hafði sèð þenna mann: Eg held eg skili hvað þetta þýðir; því þetta hlýtr að vera ímynd af þessa heims manni. Er það ekki rètt, herra minn?
Fræðari: Þú hefir rètt mælt, og sorpklára þessi sýnir hans holdlega hugarfar. Þú sèrð, að hann er allr vakinn og sofinn í því, að raka saman stráum og hismi og öðru sorpi, sem hann finnr á gólfinu, og það svo, að hann skeytir alls ekki því, er hinn segir, er kallar til hans af hæðum og býðr honum hina himnesku kórónu. Þetta sýnir þèr, að himininn er sumum mönnum að eins hègilja ein, og að þeir álíta engan hlut nokkurs verðan nema jarðneskr sè. Þú sást líka, að maðrinn gat hvergi litið, nema niðr fyrir sig. Það sýnir þèr, að hjörtu þeirra manna, sem gagnteknir eru af elsku til jarðneskra hluta, eru horfin frá Guði.
Kristín: Ó, frelsa mig frá þessari sorpkláru. (Orðskv. 30. 8.)
Fræðari: Þetta er sjaldheyrð bæn; hún gjörist nú næsta ryðguð. Það er varla einn af þúsund sem biðr: gef mèr ei auðæfi. Nei, nú á dögum er strá, hismi, ryk og annað þess háttar, hin miklu gæði, sem menn sækjast eftir.
Þegar Kristín og Líkn heyrðu þetta, táruðust þær og sögðu, Ó, það er, því miðr, of satt.
Eftir þetta fór Fræðari með þær inn í hið fagrasta herbergi í húsinu; það var stofa ein glæsileg og mikil. Hann beiddi þær litast um og vita, hvort þær sæju nokkuð hèr, er miðað gæti þeim til lærdóms og fræðslu. Þær lituðust um, í krók og kring, enn sáu ekkert, nema geysi stóra konguló á veggnum, og þótti þeim hún ekki neinnar eftirtektar verð; og er þær höfðu litazt um, sagði Líkn: Eg sè ekkert, herra minn. Kristín þagði og var í hugsunum.
Fræðari mælti við Líkn: Líttu betr í kring um þig. Hún skimaði um að nýju, og sagði: Hèr er ekkert að sjá, nema ógnar ljóta konguló, sem hángir við múrinn á klónum. Hann svaraði: Er þá að eins ein konguló í allri þessarri miklu stofu? Þá komu tárin í augun á Kristínu, því hún var næm bæði í tilfinningum og skilningi, og mælti: Ó, nei, herra, hèr eru margar fleiri kongulær, og það þær, sem eru baneitraðri enn þessi. Fræðari leit brosandi til hennar, og mælti: Það er satt, Kristín. Við þessi orð roðnaði Líkn af feimni, og börnin huldu andlit sín með höndunum, því nú rendu allir grun í, hvað gáta þessi mundi eiga að þýða.
Fræðari tók aftr til máls og sagði: Kongulóin þrífr til með höndunum, og er í konunganna höllum. (Orðskv. 30. 28.) Hvers vegna er nú þetta skráð, nema til þess, að sýna ykkr, að hversu magnað sem eitr syndarinnar er í yðr, þá getið þèr samt með hönd trúarinnar haldið yðr við og dvalið í hinu bezta herbergi, sem bæðanna konungr á.
Kristín: Eg var að hugsa um eitthvað líkt þessu, enn eg gat ekki skilið það til hlítar, eða hugsað mèr það eins ljóslega og þèr takið það framm. Eg var að hugsa um það, að við værum lík kongulóm, og værum á að sjá eins og ljót kvikindi, í hversu skrautlegum hýbýlum, sem við lifðum. Enn það gat mèr sízt dottið í hug, að við gætum lært af þessu ískyggilega eitrkvikindi, hvernig við ættum að verða trúuð; og þó sè eg, að hún hefir náð handfestu hèr, og dvelr í bezta herberginu í húsinu. Ekkert hefir Guð gjört til einskis.
Þau glöðnuðu öll við, tárin stóðu þeim í augunum, þau litu hvert til annars og hneigðu sig fyrir Fræðara.
Þessu næst fór hann með þau inn í annað herbergi, þar sem hæna ein var með unga sína, og beiddi hann þau gæta að þessari sjón. Einn af ungunum gekk þá að troginu og fór að drekka, og við hvern dropa, sem hann drakk lyfti hann upp höfðinu og leit augum til himins. Lærið nú af þessum unga, sagði Fræðari, að kannast við guðlega náð, þegar þèr verðið hennar að njótandi, og lítið til himins í hvert skifti sem þèr meðtakið hana. Þau stóðu öll enn nokkuð við og horfðu, og tóku eftir því, að hænan hafði fernskonar raddbreytingu við ungana; fyrst var hennar vanarödd, sem heyra má til hennar allan daginn; þá kom sèrstaklegt kvak, sem brá fyrir að eins við og við; því næst klak-röddin og loks hávært kall.
Berið nú, sagði Fræðari, hænu þessa saman við konung yðar, og ungana saman við hans hlýðnu þjóna. Hann kallar á lýð sinn á ýmsa vegu, eins og hún á ungana. Með hinni almennu köllun gefr hann ekkert; þegar hann kallar sèrstaklega hefir hann ávallt einhverjum gjöfum að býta út; hann lætr og heyra hina viðkvæmu líknar rödd þá sem búa undir væng hans, og hann kallar hástöfum, aðvarandi röddu, þegar óvinrinn nálgast börn hans. Mèr hefir þókt eiga bezt við, ástkæru vinir, að sýna ykkr þau herbergi, þar sem þið getið sèð þessa og þvílíka hluti, vegna þess, að þið eruð konur, enn hlutirnir auðskildir.
Kristín: Gjörið þèr svo vel, herra minn, að sýna okkr meira. Þá fór Fræðari með þær inn í slátr-húsið; þar var slátrari að skera kind, og sjá, kindin var kyrlát, og lagði sig þolinmóðlega undir dauða sinn. Þá mælti Fræðari: Af þessu lambi skuluð þið læra að þjást, og líða rangsleitni án mögls eða umkvartana. Skoðið hversu hóglega það verðr við dauða sínum. Munið það, að konúngr yðar kallar yðr sína sauði.
Þessu næst fór hann með þau inn í garð sinn. Þar uxu alls konar blóm, og hann sagði við þær: Sjáið þið öll þessi blóm? Já, svaraði Kristín. Sjáið, mælti hann, öll blóm þessi eru næsta ólík hvert öðru, bæði að vöxtum, tegund, lit, angan og kostum. Sum eru hollari enn önnur, þau standa þar, sem garðyrkjumaðrinn hefir gróðrsett þau, og eiga í engum illdeilum hvert við annað.
Nú fór hann með þau út á akr sinn; þar hafði hann sáð hveiti og korni. Enn er þau komu þar, er axið var afhöggvið, enn stöngin stóð ber eftir, sagði Fræðari: Þessi akr hefir fengið áburð, hefir verið plægðr og í hann sáð, enn hvað eigum við nú að gjöra við ávöxtinn? Brenna sumt, sagði Kristín, enn nota hitt í áburð. Nú, það er þá avöxtr, sem þið ætlizt til að fá, enn ef ávöxtinn vantar, þá dæmið þið allt á bálið, eða til þess, að verða fótum troðið af mönnum. Gætið að, að þið ekki leggið með þessum dómi áfellisdóm á ykkr sjálfar.
Þegar þau komu heim af akrinum, sáu þau maríu-ertlu með stóra konguló í nefinu. Fræðari benti þeim á fuglinn, og fóru þau nú að skoða hann, þar sem hann var með ókindina í nefinu, og dáðist Líkn að þessari sjón. Enn Kristín sagði: Nei þetta klóakvikindi er ljótt lýti á jafn fallegum fugli og maríu-ertlan er; hún sem er einhver hinna fegurstu fugla, og heldr sèr oft nærri hýbýlum manna. Eg hèlt hún mundi lifa á brauðmolum og öðru meinlausu fóðri. Æ, mèr er ekki eins mikið um hana nú, eins og mèr var áðr.
Fræðari svaraði: Ertla þessi er tilvalin ímynd þeirra, sem játa trú sína með vörunum, því þeir eru, eins og hún, raddfagrir, skrautlitir og látprúðir, og svo er að sjá, sem þeir unni mjög hinum sönnu trúar-játendum og öllum hlutum fremr leitast þeir við, að gjörast fèlagar hinna sönnu játenda og halda stöðugt með þeim, eins og þeir gæti lifað af molum hinna góðu. Þessir menn þykjast og þurfa fyrir molanna sakir að heimsækja hús hinna guðhræddu, og samkomur manna til guðsþjónustugjörðar. Enn þegar þeir eru orðnir einir sèr, þá geta þeir svelgt eitraðar kongulær, eins og erlan þarna. Þeir geta breytt um lifnaðarhátt allt í einu, og drukkið ranglætið og slokað syndina eins og vatn.
Nú snèru þau heim að húsinu, enn með því að kvöldverðr þeirra var ekki enn þá til, þá beiddi Kristín Fræðara að sýna þeim fleira er þær gæti fræðzt af, eða þá segja þeim eitthvað nýtt til fróðleiks og frama.
Þá mælti Fræðari: Því feitara sem svínið er, því betr unir það sèr í mykjunni; því spikaðri sem uxinn er, þess viljugri gengr hann að slátrstaðnum; og því hraustari sem óreglumaðrinn er, því hneigðari er hann fyrir hið illa.
Konum er meðfædd löngun til þess, að ganga þokkalega og skrautlega til fara; hvað er fagrara, enn það, að vera skrýddr þeim hjúp, sem Guð lítr á með velþóknun?
Það er auðveldara að vaka eina eða tvær nætr heldr enn heilt ár. Eins er auðveldara fyrir manninn að byrja betrun sína, enn að halda henni vel áframm til enda.
Í óveðri verðr hverjum skipstjóra fyrst fyrir, að varpa því fyrir borð, sem ónýtast er og minnst í varið innan borðs. Enn sá einn varpar fyrst fyrir borð hinu dýrmæta, sem ekki óttast Guð.
Einn lekastaðr nægir til þess að sökkva skipi; og ein synd nægir til þess að koma manni í glötun.
Sá sem gleymir vin sínum, er honum ótryggr; enn sá, sem gleymir Frelsara sínum er miskunnarlaus við sjálfan sig.
Sá, sem lifir í synd, enn væntir þó sælunnar seinna meir, er líkr þeim, er sáð hefir illgresi, enn ætlast þó til að geta fyllt hlöðu sína með hveiti.
Sá, sem vill lifa rèttlátu og guðrækilegu lífi, hafi sèr jafnan í huga og taki sèr til fylgdar seinasta dag æfi sinnar.
Þegar menn hvíslast á, og breyta hugsunum sínum er stutt, enn glögg, sönnun fyrir því að synd er í heiminum.
Ef mennirnir meta mikils heiminn, sem Guð metr svo lítils; hversu mikils virði má þá ekki himininn vera, sem hann kallar þá til?
Þetta líf er fullt armæðu og harma, og þó höldum vèr dauðahaldi í það; hvað megum vèr þá ekki gjöra við hið eilífa líf?
Allir kveða lofsorði á manngæzkuna, enn hver er svo gagntekinn af Guðs gæzku, sem vera ber?
Sjaldan neytum vèr máltíða vorra án þess að leyfa. Þannig hefir og Jesús Kristr afrekað heiminum meira rèttlæti enn hann getr allr saman tekið á móti.
Eftir þessa ræðu fór Fræðari með þær aftr út í garð sinn og sýndi þeim trè eitt, sem allt var fúið í mergnum, enn skaut þó greinum og grænum blöðum. Hvað þýðir þetta? sagði Líkn. Þetta trè er allt fúið innan, svaraði Fræðari, enn að utan er það álitlegt. Það má vel bera það saman við marga, sem eru í aldingarði Guðs, sem eru hátalaðir um Guð, enn vilja ekkert gjöra fyrir hann. Þeirra blöð eru fríð sýnum, enn hjartað er til einskis nýtt, nema til þess, að verða djöfulsins eldkveikja.
Nú var þá kvöldverðr búinn og matrinn borinn á borð; settust menn nú til máltíðar, og er búið var að lesa borðsálminn, tóku menn til snæðings. Fræðari var vanr að skemmta gestum sínum með sönglist meðan þeir sátu yfir borðum, þess vegna lèku nú þjónar á hljóðfæri, og söng sá, er beztr var raddmaðr meðal þeirra, þetta vers:
Drottinn er einn mín stoð og stytta,Stöðugt uppeldi og fæðu lèr;Aldrei skal mig því skortr hittaSkaparinn jafnan líknar mèr.
Þegar söngrinn var hættr og hljóðfærin þögnuð, spurði Fræðari Kristínu, hvað hefði upprunalega dregið hana til þess, að leggja í þessa pílagrímsferð hennar. Kristín svaraði: Það var fyrst eftirsjónin að hafa misst manninn minn; því missirinn gekk mèr til hjarta; enn þessi harmr var að eins eðlileg saknaðar tilfinning. Því næst fór eg að hugsa um sálarþjáning hans og pílagrímsferðina, og það, hversu þurlega eg tók undir andvörp hans og bágindi. Eftir þetta settist að mèr þúngbúin hugsun um þá synd, er eg hafði framið með breytni minni við hann, og mundi sú tilhugsun hafa steypt mèr í örvæntingu, ef ekki hefði viljað svo vel til, að mig dreymdi, að manninum mínum liði vel, og hins vegar, að eg fèkk boðsbrèf frá konunginum, sem ræðr ríkjum þar sem hann er, að koma til hans. Draumrinn og brèfið höfðu þau áhrif á mig, að eg neyddist til að fara af stað.
Fræðari: Enn mættir þú engri mótspyrnu, áðr enn þú fórst af stað?
Kristín: Jú. Ein af nábúakonum mínum, að nafni Huglaus, frændkona Huglauss þess, sem ætlaði að fá manninn minn til að hverfa heim aftr af ótta fyrir ljónunum, kom til mín og kallaði mig heimskingja, eins og hún kvað að, að fara að fíflast út í þessa hættuför; hún lýsti þrautum þeim og armæðu er maðrinn minn rataði í á leiðinni svo voðalega sem henni var unt, til þess, að hræða mig frá förinni. Enn eg stóð þetta allt af mèr og sat föst við minn keip. Enn mig dreymdi draum, sem óróaði mig mjög. Mig dreymdi eg sæi tvo illilega menn, sem mèr þótti vera að ráðgast um það, hvernig þeir gætu villt mig á leiðinni. Þessi draumr vakir allt af svo lifandi fyrir mèr, að hvenær sem eg mæti nokkurum manni, verð eg dauðhrædd, að hann muni gjöra mèr illt, eða tæla mig út af rèttri leið. Enda get eg líka, hèrna okkar á milli, frætt yðr, herra minn, um það, að á leiðinni hingað frá hliðinu, sem við fórum um inn á þenna veg, mættum við svo illri atsókn af tveimr mönnum, að við urðum loks að æpa upp: Morð, morð; og þessir menn voru alveg lifandi eftirmynd þeirra, er eg hafði áðr sèð í draumnum.
Byrjunin er góð fyrir þèr, mælti Fræðari, enn endirinn mun þó verða enn betri. Því næst sneri hann sèr til Líknar og mælti: Enn hvað dróg þig til þessarrar farar, góða mín?
Líkn roðnaði og titraði; leit niðr og þagði um stund.
Fræðari: Vertu ekki hrædd; trúðu einungis og talaðu eins og þèr býr í skapi hispurslaust.
Líkn tók þá til máls og sagði: Æ, herra minn, það er mála sannast, að eg get ekki sagt, hvað dróg mig til þessarar ferðar; þess vegna vil eg líka heldr þegja enn tala nokkuð; enda er eg og hrædd um, að eg verði að lokum gjörð aftrreka. Eg get ekki sagt frá neinum vitrunum nè draumum, eins og vina mín, Kristín; eg veit heldr ekkert hvað það er, að harma yfir því, að hafa slegið skolleyrum við ráðleggingu dýrra ástvina.
Fræðari: Hvað var það þá, sem dróg þig til þess, að fara ferð þessa?
Líkn: Eg skal segja yðr söguna eins og hún gekk. Þegar Kristín var að taka saman föggur sínar og búa sig af stað, kom eg til hennar af hendingu, og var kona með mèr. Við börðum á dyr og fórum inn. Þegar inn var komið, sáum við hvað hún var að gjöra, og spurðum hana, hvað stæði til. Hún sagði, að það hefði verið sent eftir sèr, til þess, að koma til mannsins síns; sagði hún okkr því næst að sig hefði dreymt hann, og hefði hún sèð hann og hinn undarlega stað er hann lifði í meðal allra ódauðlegra; hann hefði kórónu á höfði, lèki hörpu, æti og drykki við borð konungsins, og kvæði honum stöðugt lof fyrir það, að hann hefði komið sèr þangað, o. s. frv. Meðan hún var að segja okkr þetta, fannst mèr hjarta mitt brenna í mèr. Eg sagði þá við sjálfa mig: ef þetta er satt, þá vil eg yfirgefa föður og móður, og fóstrjörð mína og fara með Kristínu, ef eg get. Eg inti hana því næst eftir því, hvort þetta væri allt satt, og spurði hana, hvort eg mætti ekki koma með henni; því að eg sá, að hætta glötunarinnar vofði yfir hverjum þeim, er búa vildi lengr í bæ vorum. Nú fór eg þá af stað með Kristínu; enn eg var svo harmsfull í hjarta; yfir því, að svo margir ættingjar mínir og ástvinir voru eftir; enn fyrir ferðinni kveið eg ekki. Nú er eg hingað komin og hefir það verið mín einasta ósk og bæn, bæði að komast hingað, og svo að mega verða Kristínu samferða til konungsins þar sem maðr hennar er.
Fræðari: Þèr hefir sagzt vel, því þú hefir þrætt sannleikann í sögu þinni. Þèr fer eins og Rút, sem elskaði Naomi og Drottinn, sinn Guð, svo heitt, að hún yfirgaf föður sinn og móður sína og land síns heimkynnis til þess, að fara til þess fólks, er hún ekki þekkti áðr. (Rút 2. 11, 12.) Drottinn umbuni þèr verk þitt, og verði laun þín fullkomin af Drottni, Israels Guði, undir hvers vængi þú ert nú komin að leita hælis.
Þegar menn höfðu matazt, voru komumenn leiddir til hvílu. Þær Kristín og Líkn sváfu sèr; enn sveinarnir sèr.
Þegar Líkn var háttuð, gat hún ekki sofið fyrir gleði; því nú var hræðslan um það að hún mundi verða ræk að lokum fjær henni en nokkuru sinni fyrr. Lá hún þannig andvaka og var stöðugt að lofa Guð sinn og vegsama fyrir þá náð, er hann hafði auðsýnt henni.
Morguninn eftir fóru þau á fætr með sólu og bjuggust til burtfarar. Enn Fræðari beiddi þær að dvelja dálítið enn þá; því að þið verðið að skilja sómasamlega við okkr. Kallaði hann þá á mærina, sem fyrst hafði farið til dyra, þegar þau komu, og mælti: Farðu með þau út í garðinn að lauginni og þvoðu af þeim og hreinsaðu allt rikið og óhreinindin, sem sezt hafa á þau á leiðinni. Mærin fór með þau út í garðinn í laugina, og sagði þeim að þvo sèr þar og hreinsa sig; því húsbóndinn, sagði hún, vill að allar konur, sem koma hingað á pílagrímsferðum sínum, gjöri það, áðr enn þær fara burtu. Þær fóru nú í laugina og þvoðu sèr sjálfar og sveinunum líka, og komu þær út úr henni bæði hreinar og þokkalegar og líka allar eins og endrlifnaðar og styrkvari enn áðr. Og þegar þær komu inn voru þær allt fegurri sýnum enn áðr enn þær fóru í laugina.
Þegar þær komu úr lauginni út úr garðinum tók Fræðari þær, skoðaði þær og mælti: Fagrar sem máni í heiði! Því næst bað hann að fá sèr innsiglið, sem þeir eru merktir með, er lauga sig hjá honum. Tók hann innsiglið og merkti þær, svo að þær skyldu þekkjast, hvar sem þær kæmu á leiðinni. Innsigli þetta var ímynd og einkunn páskalambsins, sem Israels menn neyttu (2 Mós. b. 13. 8–10), þegar þeir komu út úr Egyptalandi, og var merki þess sett á enni þeirra. Þetta merki gjörði þær enn þá fagrari enn fyrr, því það var sannarleg prýði á andlitum þeirra; varð allr svipr þeirra tignarlegri og yfirbragðið líkast englum.
Þessu næst beiddi Fræðari mærina er þjónaði þeim að fara inn í fatabúrið og sækja ný föt handa þeim að fara í. Hún fór, og kom aftr með hvít skrúðklæði og lagði þau fyrir fætr Fræðara, enn hann bauð þeim Kristínu að fara í þau. Klæði þessi voru úr smáofnu líni, hvítu og fögru. Þegar þær voru nú búnar að skrýða sig, voru þær hvor í annarrar augum næstum geigfagrar; því þær gátu ekki sjálfar sèð sína eigin dýrð, enn sáu að eins hvor í sínu lagi hversu hvor um sig var fögr sýnum. Þær tóku því að meta hvor aðra meir enn þær sjálfar möttu sig; því önnur sagði: Þú ert fríðari enn eg; og hin sagði: Þú ert lángt um fegri enn eg. Börnin stóðu höggdofa, og störðu á þenna skrúða er þær voru nú komnar í.
Fræðari kallaði nú á einn af þjónum sínum, að nafni Hugprúðr, og bauð honum að taka sverð og hjálm og skjöld, og fylgdu, sagði hann, þessum dætrum mínum til næsta náttstaðar, það er að Unaðar-felli. Þjónninn gjörði sem honum var boðið, tók vopn sín og fór á undan. Fræðari kvaddi þær nú og beiddi Guð að vera með þeim, og allt heimilis-fólkið beiddi þeim allra faraheilla. Fóru þær nú af stað, og sungu:
Afangastað vèr áttum hèr í ranniAnnan, og sáum þeirra hluta fjöldOg heyrðum, sem að duldir hverjum manniHafa svo lengi verið öld af öld.
Sorpið og kláran, kóngulóin, hænan,Og kjúklingarnir hennar skjóli í,Lásu, hvert um sig, lærdóm næsta vænan,Að laga vèr oss skyldim eftir því.
Slátrarinn, lambið, ekran, erlan fríða,Sem eitr-pöddu hafði að sætri bráð,Mergfúna trèð og mörkin lètu oss hlýðaMerkri kenningu, ef fengim hennar gáð.
Allt þetta bendir oss að biðja og vaka,Að bæta ráð vort, já það kennir oss,Daglega á herðar Drottins ok að taka,Í Drottins ótta að bera lífsins kross.