Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

Níundi kafli

Trúr

um 16 mín. lestur

Þegar nú Kristinn hafði haldið áframm um hríð, kom hann að sjónarhól einum, er hlaðinn hafði verið upp, til þess, að pílagrímar gæti sèð þaðan til vegar. Kristinn fór upp á hólinn, og litaðist um, og sá hann þá til ferða Trús. Þá kallaði Kristinn til hans, og sagði: Heyrðu, bíddu, eg ætla að verða þèr samferða. Trúr leit við, og kallaði Kristinn þá aftr til hans, og sagði: Stattu við, þangað til eg kem. Trúr svaraði honum: Nei, því um líf mitt er að tefla, og blóðhefndin er í hælunum á mèr. Við þetta svar varð Kristinn nokkuð ör, og tók nú á öllum sínum kröftum og náði Trú, og komst jafnvel framm hjá honum, svo að síðastr varð fyrstr. Þá hló Kristinn af hègómaskap yfir því, að hafa getað hlaupið framm fyrir bróður sinn; enn með því hann gætti ekki vel fótanna, hnaut hann og datt, og gat ekki staðið upp aftr, fyrr enn Trúr kom, og hjálpaði honum á fætr, og þókti mèr þeir nú halda áframm leiðar sinnar í mestu vináttu, og höfðu þeir skemmtilegar samræður um allt er við hafði borið á ferðum þeirra. Kristinn hófst fyrst máls, og sagði: Virðulegi elsku-bróðir, Trúr, mjög þykir mèr vænt, að hafa náð þèr, og að Guð hefir gjört okkr svo líka í lund, að við getum farið þenna skemmtiveg, eins og góðir fèlagar.

Trúr: Eg hafði ímyndað mèr, góði vin, að eg hefði getað orðið þèr samferða heimanað frá okkr, enn þú fórst á undan mèr, og þess vegna neyddist eg til að fara þenna veg einn minna ferða alla leið hingað.

Kristinn: Hvað lengi varstu í Glötunarborg eftir það að eg fór og þangað til þú lagðir í pílagríms ferð þína?

Trúr: Eg var þar, þángað til eg gat ekki hafzt þar við lengr. Því rètt eftir það, að þú varst farinn af stað, var um ekkert jafn tíðrætt í borginni eins og það, að hún mundi verða brend til kaldra kola í eldi af himnum.

Kristinn: Hvað segirðu? Voru nágrannar þínir að ræða um þetta?

Trúr: Já, því þeir töluðu ekki um annað um tíma.

Kristinn: Varð þá enginn þeirra til að flýa hættuna?

Trúr: Þó mikið væri talað um hana, eins og eg sagði fyrr, þá held eg samt, að enginn hafi í alvöru trúað henni; því þegar mest gekk á umtalinn, heyrði eg suma þeirra draga háð að þèr og þessari óyndisúrræðaferð þinni, því svo kölluðu menn pílagríms ferð þína. Enn eg hèlt, og held enn þá, að endalok borgar vorrar verði í eldi og brennisteini frá himnum, og þess vegna hefi eg flúið burtu.

Kristinn: Heyrðirðu ekki getið neitt um nágranna minn Táplaus?

Trúr: Jú, Kristinn, eg heyrði, að hann hefði slegizt í för með þèr allt að Sturlandíki; sögðu sumir að hann hefði dottið ofan í það, enn það vildi hann ekki kannast við, enn eg veit fyrir víst, að hann var allr út ataðr úr efjunni í því.

Kristinn: Og hvað sögðu nágrannarnir við hann?

Trúr: Hann hefir verið síhæddr síðan hann kom heim, og hafa allir gjört sèr að skyldu, að draga að honum hnjóðinn. Sumir smána hann og fyrirlíta, og verðr varla nokkur maðr til að fá honum vinnu. Hann er nú sjö sinnum verr farinn heldr enn þó hann hefði aldrei farið að heiman úr bænum.

Kristinn: Enn hví er þeim svo upp sigað við hann, er þeir einmitt fyrirlíta þann veg, sem hann gafst upp við að fara.

Trúr: Ó, þeir segja: Hengið þið þvöruna, sem ekki gat einu sinni staðið við orð sín. Eg held að Guð hafi jafnvel sett óvini sína til þess, að hæðast að honum og gjöra hann að viðundri, vegna þess hann hefir afneitað veginum. (Jer. 29. 18, 19.)

Kristinn: Fannstu hann ekki að máli áðr enn þú fórst að heiman?

Trúr: Eg mætti honum einu sinni á götu, enn hann gekk úr vegi, eins og hann fyriryrði sig fyrir það, sem hann hafði gjört, og gat eg því ekki talað við hann.

Kristinn: Þegar eg fór að heiman, hafði eg von um hann, enn nú er eg hræddr um, að hann tortýnist í hruni bæjarins. Það hefir rætzt á honum sannmælið forna: Hundrinn snýr aftr til spýju sinnar, og þvegið svín til leirveltunnar. (2 Pet. 2. 22.)

Trúr: Eg er ógn hræddr um hann líka, enn hver getr spornað við örlögunum?

Kristinn: Við skulum nú ekki tala meira um Táplaus, góði fèlagi, enn hverfa heldr að þeim málum, er okkr varða sjálfa beinlínis. Segðu mèr nú, hvað drifið hefir á daga þína á leiðinni; því að það má undrum sæta hafirðu engu mætt.

Trúr: Eg slapp við fenið, sem eg heyri nú að þú dattst í, og komst framm hjá þeirri hættu upp að hliðinu. Það eina, sem við lá, að yrði mèr að meini, var kvennmaðr nokkur, að nafni Gjálíf, sem eg mætti á leiðinni.

Kristinn: Hamingju maðr varstu, að flækjast ekki í hennar neti. Jósep komst einu sinni í hann all krappan hjá henni, enn slapp þó eins og þú, enn það lá við, að það kostaði hann lífið. (1 Mós. b. 39. 11–13.) Enn hvað gjörði hún þèr?

Trúr: Hafirðu aldrei heyrt til hennar áðr, þá getrðu ekki ímyndað þèr, hvílík smjaðrtúnga hún er. Hún beitti öllum brögðum til þess að fá mig með sèr, og hèt mèr allskonar munaði, ef eg gjörði það.

Kristinn: Eg er þó viss um það, að hún hèt þèr ekki þeim unaði, er góð samvizka veitir.

Trúr: Þú skilr það, að eg á við alls konar líkamlegan munað og holdlegt yndi.

Kristinn: Þakkaðu Guði, að þú slappst. Sá, sem Drottinn er ónáðugr, mun falla í gröf sína. (Orðskv. 22. 14.)

Trúr: Eg veit, satt að segja, ekki, hvort eg slapp undan henni að öllu leyti.

Kristinn: Hví svo? Eg er þó sannfærðr um það, að þú sinntir ekki óskum og girnd hennar.

Trúr: Nei, svo auðvirðilegan vildi eg ekki gjöra sjálfan mig; því eg mundi eftir hinni fornu ritningu, er eg hefi lesið, sem segir: Fet hennar stefna til heljar. (Orðsk. 5. 5.) Eg lokaði augum mínum, því að eg vildi ekki verða töfraðr af augnaráði hennar. (Job 31. 1.) Þá hæddist hún að mèr, enn eg fór burt hið bráðasta.

Kristinn: Mættirðu engum árásum á leiðinni?

Trúr: Þegar eg kom upp undir fjall það, er Örðugfell heitir, þá mætti eg háöldruðum manni, og spurði hann mig, hver eg væri, og hvert eg ætlaði.

Eg sagði honum, að eg væri pílagrímr, og væri á leiðinni til hinnar himnesku borgar. Þá mælti öldungr þessi: Mèr lízt, sem þú munir vera góðr drengr; ætli þú vildir ekki ráðast til mín, og láta þèr lynda laun þau, er eg vil gefa þèr? Eg spurði hann þá að nafni og hvar hann ætti heima. Hann kvaðst heita Adam gamli, og búa í borg þeirri, er Tál heitir. Spurði eg hann nú, hver væri starfi hans, og hvað hann mundi vilja gefa mèr í laun. Hann sagði mèr, að störf sín væri að veita margs konar unað, enn launin væri þau, að eg skyldi erfa sig að lokum. Eg spurði hann, enn fremr, um heimilisbrag hans og hvernig þeir þjónar hans væri. Sagði hann mèr, að í húsi sínu væri alls nægtir af öllum heimsins munaði, og að þjónar sínir væri getnir af sínu eigin eðli. Spurði eg hann þá, hvað mörg börn hann hefði; hann kvaðst eiga alls þessar þrjár dætr, Holdslyst, Augnafýst og Dramblífi (1 Joh. 2. 16), og bauð mèr, að giftast þeim, ef eg vildi. Þá spurði eg hann, hvað lengi hann ætlaðist til, að eg væri hjá sèr, og kvaðst hann ætlast til, að eg yrði eins lengi og hann lifði.

Kristinn: Já, já; hvernig samdist með ykkr gamla manninum að lokum?

Trúr: Í fyrstu var eg hálfgjört á því, að gjörast hans maðr, því mèr leizt svo, sem kostir hans væri aðgengilegir. Enn þá varð mèr litið framan í hann, og sá eg þá, að skrifað var á enni hans: Afleggið gamla manninn og verk hans.

Kristinn: Og hvað þá?

Trúr: Þá kom logandi ótti yfir sál mína, að hann mundi þrátt fyrir öll loforð og allt smjaðr sitt, selja mig í ánauð, þegar hann væri búinn að tæla mig heim til sín. Eg beiddi hann nú að hætta öllu tali, og kvaðst ekki mundi koma nærri húsdyrum hans. Þá smánaði hann mig, og kvaðst mundi senda þann á eftir mèr, sem gæti gjört mèr veginn full-örðugan. Þá hvarf eg hið bráðasta frá honum; enn um leið og eg sneri við, fann eg að hann þreif í mig, og lagði svo óþirmilega greipar að mèr, að eg hèlt, að hann hefði haft með sèr hold mitt, þar sem hann festi á mèr. Þá kallaði eg hástöfum: Eg vesall maðr! (Róm. 7. 24.) Fór eg síðan áframm upp fjallið.

Enn þegar eg var kominn hálfa leið upp, þá leit eg aftr, og sá, að maðr kom á eftir mèr, og var hann skjótr sem vindr, og náði mèr, þar sem sætið er á fjallinu.

Kristinn: Einmitt þar settist eg niðr til að hvíla mig; enn svefninn sigraði mig, og eg misti þar þessa skrá úr barmi mínum.

Trúr: Lofaðu mèr, góði bróðir, að segja þèr alla söguna. Jafnskjótt og maðrinn náði mèr, skifti það engum orðum nè togum, fyr enn hann hafði slegið mig það fjarska högg, að eg lá sem dauðvona. Eg komst samt til sjálfs mín aftr nokkuð, og spurði eg hann, hví hann lèki mig svo hart. Hann svaraði: Það gjöri eg sökum þess, að þú blótar Adam gamla á laun. Í sama augabragði og hann hafði mælt þessi orð drap hann þvílíku höggi á brjóst mèr, að eg fèll aftr á bak, og lá eg nú aftr sem örendr fyrir fótum hans. Þegar af mèr brá öngvitinu, beiddi eg hann náðar, enn hann svaraði: Eg hefi enga náð að veita, og nú laust hann mig að nýju. Hann hefði ugglaust gengið þarna framm af mèr, hefði ekki manni nokkurum orðið gengið framm hjá, sem beiddi hann að hætta.

Kristinn: Hver var það?

Trúr: Eg þekkti ekki manninn í fyrstu. Enn þegar hann fór framm hjá mèr, sá eg naglaförin á höndum hans, og sverðssárið í síðu hans, og rèð eg af því, að það væri Drottinn minn. Síðan fór eg upp hæðina.

Kristinn: Maðrinn, sèm náði þèr, var Móses. Hann hlífir engum manni, og getr ekki auðsýnt neinum náð, sem brýtr lög hans.

Trúr: Já, eg veit það; þetta var ekki í fyrsta skiftið sem hann hefir mætt mèr. Það var hann, sem kom til mín, þegar eg var heima og uggði ekki um mig, og kvaðst mundi brenna húsið yfir höfði mínu, ef eg væri þar lengr.

Kristinn: Enn varstu ekki var við húsið, sem stendr uppi á hæðinni, þar sem Móses mætti þèr?

Trúr: Jú, eg varð var bæði við það, og við ljónin líka, áðr enn eg komst að því; enn eg held að þau hafi sofið, því að sól var í miðdegis stað, og af því eg hafði svo mikið af deginum fyrir mèr, gekk eg framm hjá dyraverðinum, og komst ofan af fjallinu.

Kristinn: Já, hann sagði mèr það. Enn eg vildi að þú hefðir komið inn í húsið, því að þar hefðu menn sýnt þèr marga hluti, svo frábæra og fásèða, að þú mundir ekki hafa gleymt þeim til dauðadags. Enn, eftir á að hyggja, segðu mèr nokkuð, mættirðu engum í Niðrlægíngardal?

Trúr: Jú, eg mætti manni nokkurum, að nafni Óánægðr. Hann vildi með öllu móti fá mig til þess, að snúa aftr með sèr. Óánægja hans kom af því, að í dalnum væri alls engrar frægðar nè heiðrs að vænta. Hann sagði mèr, að eg kæmi mèr út úr húsi við þá vini og frændr mína: Dramb, Hroka, Sjálfs-þótta, Hègómagirnd og aðra fleiri, er hann kvaðst vita mundu leggja þunga þykkja á mig, ef eg yrði sá heimskingi, að fara að brjótast yfir dalinn.

Kristinn: Enn hverju svaraðir þú honum?

Trúr: Eg sagði honum, að þó að allir þessir, sem hann hefði nefnt, vitnuðu til vináttu minnar og frændsemi, þá hefði enginn þeirra kannazt við mig síðan eg varð pílagrímr, enda hefði eg og hafnað þeim að öllu leyti, og væri þeir mèr nú, og eg þeim, eins og þeir aldri hefði verið í ætt við mig. Enn dalnum sagði eg hann hefði lýst alveg rangt, því að auðmýkt væri fyrir upphefð, og dramb fyrir falli. Þess vegna kvaðst eg vilja heldr fara dalinn, og leita þess, er alvizkan kallaði heiðr, heldr enn að kjósa það, sem hann áliti að öll mannleg ástundan ætti að stefna að.

Kristinn: Mætti þèr ekkert fleira í dalnum?

Trúr: Jú, eg mætti manni að nafni Blygðunarlaus; sem að mínu áliti ber láng-bezt nafn með rentu af öllum þeim, er eg mætti á pílagrímsferð minni. Allir hinir lètu sèr þó segjast nokkuð, þegar talið var um fyrir þeim, enn þessi ósvífni Blygðunarlaus lèt sèr hvergi segjast.

Kristinn: Hvað sagði hann við þig?

Trúr: Hvað heldrðu? Hann neitaði jafnvel sjálfri trúnni. Hann sagði, að það væri vesöl, aumkunarleg og auðvirðileg athöfn, að vera að fást um trúarbrögð. Hann sagði, að viðkvæm samvizka væri æði ódrengileg tilfinning; enn að vaka yfir orðum og gjörðum sínum, og rígbinda sig, og synja sèr um hið glæsilega frelsi, sem hinar hraustu sálir þessarra tíma temdu sèr, væri einungis til þess, að gjöra sig að athlæi aldarinnar. Hann fullyrti, að mjög fáir hinna voldugu, vitru og auðugu færu nokkuru sinni að mínu ráði; og enginn þeirra, sagði hann, bæri það við, fyrr enn þeir væri búnir að láta gjöra sig að viðundrum, og sviftu alla menn fèlagi sínu af eintómri löngun til þess, að eiga líf sitt á tveim hættum fyrir eitthvað, sem enginn annar vissi hvað væri. (1 Kor. 1. 26; 3. 18; Phil. 3. 7–9; Joh. 7. 48.) Hann færði og það til, að fáir aðrir gjörðust pílagrímar, enn þeir, sem við bágborna vesaldar hagi ættu að búa, og fáfróðir væru mjög, og skilningslausir á öll náttúru vísindi. Og þessu lèt hann nú vaða um margt fleira enn nú er nefnt. Hann sagði, t. á. m., að það væri ljóta minkunin, að sitja grátandi og harmandi undir nokkurri ræðu, og skömm, að koma heim með stunum og andvörpum frá henni; hann sagði, að það væri ljóta minnkunin, að kannast við yfirsjón sína, eða biðja nokkurn mann fyrirgefningar, þó menn gjörðu á hluta þeirra, eða að bæta þeim upp, er menn hefði tekið eitthvað frá. Hann sagði líka, að trúin fældi menn frá höfðíngjum, af því, að þeim væri, ef til vildi, einstaka lestir tamir, og það leiddi til þess, að menn yrði að leggja lag sitt við lágborna alþýðu, af því, að hún hefði sömu trúarskoðanir. Er nú ekki þetta skammarlegt? sagði hann svo.

Kristinn: Hverju svaraðirðu honum?

Trúr: Svaraði eg? Eg vissi, í fyrstu, ekki, hvað eg átti að segja. Hann gekk svo framm af mèr, að blóðið stè mèr til höfuðs, enda var hann nærri því búinn að slá mig alveg af laginu. Enn þá fór eg að hugsa mig um, og mundi eftir þessum orðum: Það sem er að ágætum haft hjá mönnum, er oft viðbjóðr fyrir Guði. (Lúk 16. 15.) Og enn fremr datt mèr það í hug: Blygðunarlaus segir mèr, hvernig mennirnir eru; enn hann segir mèr ekkert um það, hvað Guð, eða Guðs orð, sè. Eg hugsaði líka til þess, að á degi dómsins verðum vèr ekki dæmdir til dauða eða lífs eftir mælikvarða hinna miklu manna í þessum heimi, heldr eftir lögum og speki hins Hæsta. Þess vegna hugsaði eg með mèr: Þó allir menn í heiminum sè móti Guðs orði, þá er það ei að síðr hið bezta. Eg sagði nú við hann: Eg sè það, að Guð býðr oss, að trúa sèr; Guð býðr oss, að hafa hreina samvizku. Eg sè það, að þeir, sem gjörast heimskir fyrir Guðs ríki, eru hinir vitrustu, og að hinn fátækasti maðr, sem elskar Krist, er langtum ríkari, enn hinn mesti auðmaðr þessa heims, sem hatar hann. Fyrir því býð eg þèr, Blygðunarlaus, snáfaðu burtu, því að þú ert fjandmaðr sáluhjálpar minnar! Hvernig ætti eg að geta litið andlit konungs míns, þegar hann kemr, ef eg hlýðnaðist þèr fremr enn honum? (Mark 8. 38.) Ef að eg fyriryrði mig nú fyrir hans vegu og hans lærisveina, hvernig ætti eg þá að geta meðtekið blessunina? Enn Blygðunarlaus þessi var ósvífinn fantr. Eg ætlaði varla að geta haft hann af mèr. Hann elti mig í sífellu, og var allt af að hvísla mèr í eyra hinum og þessum vankostum sem trúnni fylgdu. Enn að lokum sagði eg honum, að það væri til einskis fyrir hann, að halda þessu starfi lengra, því eg sæi hina mestu frægð fólgna í þeim hlutum, er hann legði mesta óvirðing á, og varð eg þá loks laus við þenna nærgöngula þrjót. Þegar eg var búinn að hafa hann af mèr, söng eg:

Raunirnar sem ráðnar eru þeim,Er rækja köllun Drottins hèr í heim,Margar eru, og mannsins eðli hæfa,Og magnast, vakna, koma hvaðanæfa,Að fyrr eða síðar fái þær oss tekið,Fyrirkomið og beint í glötun rekið.Verið því, Pílagrímar, verið ennVakandi, og sýnið, að þèr eruð menn.

Kristinn: Hafðu þökk fyrir það, góði bróðir, að þú veittir varmenni þessu svo öfluga mótstöðu. Eg sè af öllu þessu, er þú hefir nú sagt mèr, að hann ber rètt-nefni með fullri rentu, er hann gjörist svo ósvífinn, að leggja oss í einelti á opnum vegum, og reynir til að leggja oss háðungar til, svo að sem flestir sjái; allt til þess, að koma okkr til að skammast okkar fyrir hið góða. Ef hann væri ekki sjálfr svo ósvífinn og hann er, þá breytti hann ekki eins og hann gjörir. Enn við skulum veita honum viðnám; því þrátt fyrir allan hans hroka og vaðal, mun hann að eins hefja heimskingja til frægðar sinnar, enn enga aðra. Hinn vitri skal erfa frægðina, sagði Salómon, enn skömm mun verða upphefð hinna heimsku. (Orðsk. 3. 35.)

Trúr: Okkr mun bezt henta, að á kalla Hann um aðstoð gegn Blygðunarlausum, sem vill, að vèr sèim sannleikans öruggu forvígismenn í heiminum.

Kristinn: Það er satt. Enn mættir þú engum öðrum í dalnum?

Trúr: Nei, engum. Eg fekk blíða sólskin alla leið úr þessu, og eins um Dauðans-skugga-dal.

Kristinn: Mikill hamingju maðr varstu. Það var sannarlega öðru máli að gegna um mig; því jafnskjótt, að kalla, og eg kom í dalinn, sló í langan og harðan bardaga með mèr og hinum illa fjanda Apollyon. Eg hèlt fyrir fullt og fast, að hann mundi vinna á mèr; helzt þegar hann var búinn að koma mèr undir. Hann knúði mig þá niðr og ætlaði eg, að hann mundi kremja hold frá beini. Þegar hann felldi mig, hrökk sverðið úr hendinni á mèr, og þá öskraði hann upp yfir sig, að nú ætti hann alls kosti við mig. Enn eg ákallaði Guð, og hann heyrði bæn mína, og frelsaði mig úr allri hættu. Því næst kom eg inn í Dauðans-skugga-dal og gekk í ljósleysu næstum hálfan veginn. Eg hèlt, að dauðinn mundi taka þar við mèr við hvert fótmál; enn að lokum ljómaði dagr og sólin rann upp, og fór eg svo það sem eftir var af dalnum í miklu meiri gleði og rósemi.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

9. kafli af 31 · 16 mín. eftirTrúr