Þriðji kafli
Hliðið og Góðvili
Nú bjóst Kristinn til að snúa aftr; kyssti Fagnaðarboði hann brosandi og beiddi Guð að greiða för hans. Gekk Kristinn nú svo hraðan sem hann gat, talaði við enga er við veginn voru, nè greiddi andsvör, þó einhver yrti á hann. Hann fór alla leið eins og hann væri á ferð um forboðinn veg, og fèkk með engu móti sætt sig við, að sèr væri óhætt, fyr enn hann komst inn á þann veg, sem hann hafði snúið af eftir ráði Heimskæns. Eftir nokkurn tíma komst Kristinn nú upp að hliðinu, og stóðu rituð uppi yfir því þessi orð: Berið, og mun verða lokið upp fyrir yðr. (Math. 7. 7.)
Hann drap á dyr, oftar enn einu sinni eða tvisvar, og hafði fyrir munni sèr orð þessi:
Má eg kom’ inn? ef sá er hèr á heimaHliðið mèr opnar grátnum, þó eg sèIllsverðr þegn, þá mun eg aldri gleyma,Eilífa tign hans nafni að láta í tè.
Loks kom alvörugefinn maðr í hliðið, að nafni Góðvili spurði hann hver úti væri, hvaðan hann kæmi og hvað hann vildi.
Kristinn svaraði: Hèr er vesall þúnga hlaðinn syndari. Eg kem frá Glötunarborg og er á leiðinni til Zíons fjalls, svo eg megi frelsast frá hinni komandi reiði. Eg vildi því vita, herra minn, hvort þèr ekki vilduð gjöra svo vel og opna fyrir mèr hlið þetta, því mèr er sagt, að vegrinn liggi gegn um það.
Góðvili svaraði: Jú, það gjöri eg með mestu hjartans ánægju; og lauk upp hliðinu.
Um leið og Kristinn gekk inn úr hliðinu, kippti Góðvili honum hart að sèr. Þá sagði Kristinn: Hvað á þetta að þýða? Hinn svaraði: Örskammt frá þessu hliði er vígi nokkurt, og ræðr þar Beelsebub fyrir. Hann og sinnar hans skjóta þaðan örvum á þá, sem koma upp að hliði þessu, til þess, að fá þeim ráðinn bana, áðr enn þeir komast inn. Þá sagði Kristinn: Eg fagna, og titra þó. Þegar Kristinn var kominn inn, spurði dyravörðrinn hann, hver hefði vísað honum veginn þangað.
Kristinn: Fagnaðarboði rèð mèr að fara hingað, og drepa að dyrum, og sagði, að þèr munduð segja mèr, hvað eg skyldi gjöra.
Góðvili: Fyrir þèr eru opnar dyr, og þeim fær enginn lokað. (Opb. b. 3. 8.)
Kristinn: Nú fer eg þegar að skèra upp ávextina af áræði mínu.
Góðvili: Enn hvernig stendr á því, að þú ert einn?
Kristinn: Af því, að enginn af nábúum mínum sá sína hættu, eins og eg sá mína.
Góðvili: Vissi nokkur þeirra um ferð þína hingað?
Kristinn: Já, kona mín og börn sáu til mín, þegar eg fór af stað, og kölluðu á eftir mèr, og beiddu mig aftr hverfa; gjörðu ýmsir nágrannar mínir slíkt hið sama, enn eg stakk fingrum í eyru mèr, og fór svo ferða minna.
Góðvili: Veitti þá enginn þeirra þèr eftirför til að fá þig til að snúa aftr.
Kristinn: Jú, bæði Þrár og Táplaus. Enn er þeir sáu, að þeir fengu ekki að gjört, snèri Þrár heim aftr með flimtan; enn Táplaus varð mèr lítið eitt samferða.
Góðvili: Enn hví kom hann ekki alla leið?
Kristinn: Við urðum reyndar samferða þangað til við komum að Sturlandíki og duttum allt í einu báðir ofan í það. Þá hvarf Táplausum hugr, og vildi hann ekki leggja meira á hættu. Hann komst upp úr feninu þeim megin, er skemmst var heim til hans, og sagði að eg mætti eiga einn sín vegna þetta góða land. Síðan fór hann leiðar sinnar og eg minnar; hann á eftir Þrá, enn eg að þessu hliði.
Góðvili: Ó, vesæll maðr! er himnesk dýrð svo lètt á metunum hjá honum, að honum þyki hún ekki verð þess, að leggja á tvísýnu við fáa örðugleika til að öðlast hana?
Kristinn: Í sannleika, sagði Kristinn, nú er sönn saga sögð af Táplaus; og ef eg ætti að segja hið sanna um sjálfan mig, mundi það verða ofan á, að enginn munr yrði á honum og mèr sjálfum. Það er reyndar satt, að hann snèri heim aftr; enn eg snèri líka út úr leið, og lagði upp á dauðans braut, með því, eg var hvattr þess af holdlegum röksemdum manns, er Heimskænn heitir.
Góðvili: Æ! mætti þann þèr? hvað? hann hefir víst viljað, að þú leitaðir lèttis hjá herra Lögmæt. Báðir eru svikarar, og það að gagni. Enn hlýddir þú ráði hans?
Kristinn: Já, það sem eg þorði. Eg fór að hitta herra Lögmæt, og hèlt áframm þángað til eg hèlt að fjallið fyrir ofan bæ hans mundi hrynja yfir höfuðið á mèr; eg neyddist því til að nema þar staðar.
Góðvili: Það fjall er orðið margs manns bani, og mun verða margra manna bani enn. Enn heppnin, að sleppa, svo það merði ekki í þèr hvert bein!
Kristinn: Satt að segja veit eg ekki hvað hefði orðið af mèr þar, ef Fagnaðarboði hefði ekki, til allrar hamíngju, mætt mèr þarna aftr, þar sem eg stóð ráðalaus í öngum mínum. Enn, það var Guðs náð að þakka, að hann kom þar til mín aftr, því annars hefði eg aldri hingað komizt. Enn nú er eg kominn eins og eg er; eigandi miklu fremr skilið dauðann undir fjallinu, enn að standa hèr, á tali við Drottinn minn. Enn hvílík náð er það ekki sem eg hefi orðið fyrir, að hafa fengið hèr inngöngu!
Góðvili: Vèr ömumst við engum, hvað sem þeir kunna að hafa gjört fyrir sèr, áðr enn þeir komu hingað. Þeir verða alls eigi út reknir. (Joh. 6. 37.) Enn kondu nú, góði Kristinn, spölkorn með mèr; eg ætla að segja þèr til vegar. Líttu framm undan þèr, sèrðu þröngva veginn þarna? Það er þín gata. Það er vegr sem feðrnir, spámennirnir, Kristr og postular hans hafa lagt, og er eins beinn eins og línu stika fær gjört hann.
Kristinn: Enn eru þá engir krókar eða hlykkir á leiðinni, sem geta villt ókunnuga?
Góðvili: Jú, það eru margir vegir, sem liggja saman við þenna veg; þeir eru krókóttir allir og breiðir mjög, og getr þú þekkt hinn rétta veg frá þeim röngu, á því, að hann einn er beinn og þröngr. (Math. 7. 14.)
Nú þótti mèr Kristinn spyrja hann, hvort hann gæti ekki lètt af sèr byrði þeirri, er hann bæri á bakinu; því enn hafði hann ekki fengið hana losaða af sèr, nè gat heldr náð henni af sèr með nokkuru móti hjálparlaust. Hinn svaraði: Þú verðr að láta þèr lynda, að bera byrði þína, þangað til þú kemst þangað, er henni verðr lètt á þèr; því þar mun hún detta af baki þèr sjálfkrafa.