Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

Fjórtándi kafli

Unaðarfjöll

um 7 mín. lestur

Þeir fèlagar hèldu áframm ferð sinni, allt þangað til þeir komu til Unaðarfjalla; þau eru eign sama landsdrottins, sem hæðina á, er vèr höfum talað um áðr. Gengu þeir nú upp í fjöllin til þess, að skoða kálgarða, eplaplantanir og vínekrur og vatnslyndir; þar drukku þeir hið tæra vatn, þvoðu sèr, og neyttu allríflega eplanna úr eplagörðunum. Upp um hjallana á fjöllunum voru smalamenn og hèldu þar hjörðum sínum á beit, og voru hjá alfaraveginum. Pílagrímarnir fóru því til þeirra, hölluðust framm á göngustafi sína eins og venja er pílagríma, þegar þeir standa, og ræða við einhvern hjá veginum, og spurðu þá, hver væri eigandi þessarra unaðlegu fjalla, og hver ætti sauða-hjarðir þær, er væri á beit um þau.

Hirðir: Þessi fjöll eru Emmanúels land, og má sjá þau frá borg hans, og sauðirnir eru hans eign, og lèt hann lífið fyrir þá.

Kristinn: Er þetta leiðin til hinnar himnesku borgar?

Hirðir: Já, þið eruð á rèttum vegi.

Kristinn: Hvað er lángt þangað?

Hirðir: Það er of lángt þangað fyrir alla nema þá sem þangað eigu að komast.

Kristinn: Er vegrinn greiðfær eða hættulegr?

Hirðir: Hann er greiðr fyrir þá, sem hann á að vera óhultr fyrir, enn afbrotamenn skulu á honum farast. (Hós. 14. 9.)

Kristinn: Er nokkur hvíldarstaðr hèr fyrir pílagríma, sem þreyttir gjörast og máttfarnir á leiðinni?

Landsdrottinn vor hefir boðið oss, að gleyma ekki gestrisninni, því að hennar vegna hafi sumir sèr óafvitandi hýst englana. (Hebr. 13. 2.) Þess vegna stendr ykkr allt til boða sem til er.

Eg sá nú í svefninum, að þegar hjarðmennirnir urðu þess vísari, að þetta voru pílagrímar, þá lögðu þeir ýmsar spurningar fyrir þá, og svöruðu pílagrímarnir þeim hèr eins og annarstaðar. Spurningarnar voru þessar: Hvaðan komið þið? Hvernig komuzt þið á veginn? Hvernig hafið þið getað haldið áframm? Við spyrjum ykkr að þessu, vegna þess, að næsta fáir, sem leggja upp á veg þenna, láta sjá sig á fjöllum þessum. Pílagrímarnir leystu greiðlega úr öllum spurningum hirðanna, og er þeir höfðu heyrt svörin, litu þeir blíðlega til þeirra, og sögðu við þá: Verið þið velkomnir til Unaðarfjalla.

Hirðarnir voru fjórir alls, hètu þeir Greindr, Reyndr, Árvakr og Hreinskilinn; þeir tóku í hönd pílagrímanna og höfðu þá með sèr til tjalda sinna, og beiddu þá neyta þess, er fyrir hendi væri. Við vildum, sögðu þeir, að þið tefðuð lítið eitt hjá okkr, til þess, að þið gætuð kynnzt okkr, enn þó einkum til þess, að þið gætuð gjört ykkr til góða hèr, og notið gæða þeirra, er Unaðarfjöll bjóða. Kváðust pílagrímar alls hugar fegnir að dvelja hèr um hríð. Gengu þeir svo til hvílu, því langt var liðið á nótt.

Um morguninn þókti mèr hirðarnir vekja þá Kristinn og Vongóðan, og bjóða þeim, að ganga með sèr um hin unaðlegu fjöll. Fóru þeir nú út með þeim hjarðmönnum, gengu skemmtigöngu, og höfðu fagrt viðsýni í allar áttir. Þá mæltust hirðarnir við sín á milli: Eigum við að sýna pílagrímunum nokkur furðuverk? Kom þeim saman um að gjöra þetta, og fóru síðan með þá fyrst upp á hæð eina er Villa heitir; hún var snarbrött þeim megin er vissi frá þeim, og beiddu hjarðmennirnir þá fèlaga líta niðr fyrir snarbrattann niðr á jafnslèttu. Nú litu þeir Kristinn og Vongóðr niðr fyrir, og sáu ýmsa menn liggja niðri á jafnslèttu, er höfðu hrapað ofan af hæð þessari, þar er hún var hæst, og brotið í sèr hvert bein. Þá mælti Kristinn: Hvað þýðir þetta? Hirðarnir svöruðu: Hafið þið ekki heyrt getið um þá, er rötuðu í trúarvillu, af því, að þeir þekktust kenningu Hymeneusar og Philetusar um upprisu líkamans? (2 Tim. 2. 17, 18.) Þeir svöruðu: Jú. Þá sögðu hirðarnir: Það eru mennirnir, sem þið sjáið hafa hrapað þarna niðr af fjallinu til bana; þeir hafa legið þarna ójarðaðir allt framm á þenna dag, eins og þið sjáið, öðrum til viðvörunar, að þeir varist að klifra of hátt, eða tildra sèr of tæpt framm á fjalls brún þessa.

Nú höfðu hirðarnir pílagrímana með sèr upp á annað fjall, Viðvörunarfell, og beiddu þá líta langt út yfir landið; þeir gjörðu svo, og sáu þá í allmiklum fjarska mörg leiði frammliðinna, og virtist þeim margt manna vera á gangi innan um þau; sáu þeir og að menn þessir mundu blindir vera, því að bæði hnutu þeir stundum um leiðin, og svo gátu þeir ekki heldr komizt út úr hringsóli sínu þar. Þá mælti Kristinn: Hvað þýðir þetta?

Hirðarnir svöruðu og sögðu: Sáuð þið ekki hlið nokkurt spölkorn fyrir neðan fjöll þessi, vinstra megin við veginn, og hinumegin við það valllendisflatir? Þeir svöruðu: Jú. Þá sögðu hirðarnir: Þaðan liggr vegr beint yfir að Efavirki, og ræðr risi þar fyrir, er Örvænn nefnist. Mennirnir, sem þið sjáið þarna (og bentu á mennina sem voru að svingla innan um leiðin) fóru einu sinni í pílagrímsferð, eins og þið hafið nú gjört, og hèldu ferð sinni áframm þangað til þeir komu að tèðu hliði. Enn með því, að alfaravegrinn var allhrjóstugr á svæði þessu, kusu þeir heldr, að fara út af veginum og inn á valllendisflatirnar; enn þar tók risinn þá fasta, og setti þá í dýflissu í Efavirki. Þegar hann hafði haldið þeim í dýflissu þessari um tíma, stakk hann úr þeim augun, og fór með þá inn á milli þessarra leiða, lèt þá vera þar eina um sína reiðu, og hafa þeir verið á flakki, framm og aftr innan um leiði þessi síðan, allt framm á þenna dag, svo að orð spekingsins rætist: Sá sem fer af vizkunnar vegi, mun hvílast með sæg enna dauðu. (Orðskv. 21. 16.) Kristinn og Vongóðr litu hvor til annars, og stukku þeim tár af augum, enn þó sögðu þeir ekkert við hjarðmennina.

Nú þótti mèr hjarðmennirnir fara með þá fèlaga, Kristinn og Vongóðan, niðr af fjallinu og niðr á jafnslèttu, leiddu þeir þá þar að, er dyr voru á hóli einum, opnuðu dyrnar og beiddu þá líta inn fyrir. Þeir gjörðu svo; var þar inni dimt mjög, og allt fullt af svælu, barst þeim og að eyrum rymjandi dynr sem af eldi væri, og óp kvalinna manna, og fannst þeim þeir finna brennisteinslykt. Kristinn mælti: Hvað er þetta? Hjarðmennirnir svöruðu: Þetta er aukavegr einn til helvítis; þenna veg fara hræsnarar allir, allir þeir er selja frumburðarrètt sinn, eins og Esau gjörði, allir þeir er selja meistara sinn, eins og Júdas, þeir er lasta fagnaðarboðskap Jesú Krists, eins og Alexander, og þeir er ljúga og svíkja, eins og Ananías og kona hans Safíra.

Þá mælti Vongóðr: Og allir þessir menn höfðu, skilst mèr, pílagríms gervi eins og við núna, var ekki svo?

Hirðir: Jú, og höfðu það lengi vel.

Vongóðr: Hvað langt skyldi þeim tjá að halda áframm pílagrímsför sinni, og vera þó aumkunarlegir glötunar synir ei að síðr?

Hirðir: Sumir komast lengra enn að fjöllum þessum, enn sumir skemmra.

Þá sögðu pílagrímarnir hver við annan: Vèr þurfum að ákalla hinn Sterka um styrk.

Hirðir: Já, og þið þurfið sannarlega að halda á honum þegar þið hafið öðlazt hann.

Þegar hèr var komið, var pílagríma farið að langa til að halda af stað og hjarðmennirnir óskuðu, að þeir gjörðu svo, og fóru þeir nú allir samt þangað til er fjöllin þraut. Þá sögðu hjarðmennirnir sín á milli, við skulum sýna pílagrímunum hlið hinnar himnesku borgar, ef þeir hafa kunnáttu og lag á að horfa í sjónauka-gler vort. Tóku pílagrímarnir boði þessu feginsamlega og fóru hjarðmennirnir með þá upp á háa hæð, sem Björt nefndist, og fengu þeim sjónaukagler sitt að horfa í.

Nú fóru þeir að reyna að horfa í sjónaukann, enn af endrminningunni um það, er hirðarnir höfðu sýnt þeim síðast, voru þeir skjálfhentir, og sökum þessa gátu þeir ekki haft stöðvun á sjónaukanum, er þeir horfðu í hann; þó virtist þeim þeir sjá eitthvað, er líktist hliðinu, og gátu skimað í eitthvað af þeirri dýrð er þar var fyrir. Fóru þeir, að svo búnu, af stað, og sungu:

Ið hulda mál er hirðum veitt að tjá,Er hverjum öðrum jafnan reynist dulið:Far því til hirða, er þig fýsir sjáHið fólgna og djúpa, leyndardómum hulið.

Þegar þeir kvöddu hirðana, sagði einn þeirra þeim glöggt til vegar, annar þeirra beiddi þá vara sig á Smjaðrara, hinn þriði beiddi þá að varast að sofna á Töfravöllum og hinn fjórði beiddi Guð að greiða för þeirra. Og við það vaknaða eg.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

14. kafli af 31 · 7 mín. eftirUnaðarfjöll