Annar kafli
Herra Heimskænn
Kristinn helt nú áframm ferð sinni einn, þar til er hann sá, hvar maðr nokkur var á gangi langt burtu. Sá stefndi þvert yfir grundirnar á Kristinn, og vildi svo til, að þeir hittust einmitt þar, sem götur þeirra mættust. Maðr þessi hèt herra Heimskænn. Hann bjó í borg þeirri er Holds-hyggja heitir; sú borg var næsta mikil, og lá allskamt frá átthögum Kristins. Þegar maðr þessi mætir Kristni, rennir hann þegar grun í, hver hann muni vera; því all-tíðrætt hafði mönnum orðið um burtför Kristins, ekki einungis í Glötunarborg, þar sem hann átti heima, heldr var það nú farið að kvisast í ýmsum öðrum bæjum. Með því nú herra Heimskænn gat sèr til hálft í hvoru, hver maðrinn mundi vera, bæði af því, að hann sá að göngulagið var örðugt, og af því, að hann tók eftir stunum hans og andvörpunum, og öðru því um líku, tók hann Kristinn máli á þessa leið: Nú, nú, góði vin, ætlarðu langt að halda, er þú keifar svo örðuglega?
Kristinn: Örðuglega! já það má nú segja; eg held enginn skepna hafi nokkuru sinni átt jafnörðugt til gangs og eg á nú. Enn með því, að þèr spyrið, hvert eg ætli, þá skal eg segja yðr það. Eg ætla til þröngva hliðsins þarna framm undan mèr; því að þar verðr mèr sagt til vegar þangað, er eg fæ losast við hina þúngu byrði mína.
Heimskænn: Áttu konu og börn?
Kristinn: Já; enn eg er þeim þunga hlaðinn af þessarri byrði, að eg hefi nú engan þann unað af þeim, er eg hafði áðr; mèr er nú sem eg hvorugt ætti. (1 Kor. 7. 29.)
Heimskænn: Viltu hlýða mèr, ef eg legg þèr ráð nokkurt?
Kristinn: Já, ef það verðr gott ráð, því nú þarf eg góðra ráða við.
Heimskænn: Ráð mitt er þá, að þú hið bráðasta losir þig við byrði þína; því þú færð enga fróun huga þínum, nè getr haft nokkur not þeirrar blessunar, er Guð hefir látið falla þèr í skaut, fyrr enn þú ert orðinn laus við hana.
Kristinn: Það er einmitt það sem eg sækist eftir, að verða laus við þessa þúngu byrði. Enn eg get ekki náð henni af mèr sjálfr; og í öllu landinu er enginn sá, er geti tekið hana af herðum mèr; þess vegna fer eg þenna veg, eins og eg sagði yður, til að losast við hana.
Heimskænn: Hver rèð þèr að fara þenna veg, til þess að koma af þèr byrðinni?
Kristinn: Það var maðr, sem mèr leizt svo á, að væri bæði heiðarlegr og mikilmenni. Nafn hans var, að mig minnir, Fagnaðarboði.
Heimskænn: Manna armastr ráðleggjandi! Það er enginn hættulegri nè örðugri vegr til í heiminum heldr enn sá, sem hann hefir bent þèr á; enda muntu og fá að reyna það, ef þú ferð að hans ráðum. Mèr virðist ekki betr, enn að þú hafir þegar komizt í kreppu nokkura; því að eg sè, að á þèr er efjan úr Sturlandíki; enn fenið það er upphaf hörmunganna, sem liggja fyrir þeim, er fara þenna veg. Heyrðu mig! því eg er eldri enn þú: á þessarri leið liggr fyrir þèr, að öllum líkum, þreyta, þjáníngar, húngr, hættur, nekt, sverð, ljón, drekar, myrkr, já, í einu orði, dauðinn sjálfr, og hver veit hvað. Þetta er áreiðanlegr sannleikr, því það er margsannað með ótal rökum. Og hví skyldi nokkur maðr varpa sèr svo gálauslega í opinn dauðann fyrir orð einhvers ókunnugs manns?
Kristinn: Já, enn gætið þèr að, herra minn, byrðin, sem mèr hvílir á baki, er mèr langt um skelfilegri, enn allt þetta, sem þèr nú tölduð upp. Mèr finst eg muni ekkert hirða um, hvað mèr kann að mæta á leiðinni, ef eg að eins fæ að losast við þessa ógnar byrði.
Heimskænn: Hvernig fekkstu þessa byrði fyrst?
Kristinn: Með því, að lesa bókina sem eg held á.
Heimskænn: Eg hèlt það. Þèr hefir farið eins og mörgum öðrum vesalingum, sem fara að brjóta heilann í því, sem er langt fyrir ofan þá, og verða síðan allt í einu jafn frávita og þú ert nú. Þessi heilabrot gjöra þá ekki að eins að mannleysum, eins og eg sè að þú ert orðinn, heldr knýja þau þá út í háskalegar glæfrafarir, fyrir eitthvað, sem þeir sjálfir ekki vita hvað er.
Kristinn: Eg veit hvað það er, sem eg vil öðlast, það er það, að byrði þessarri verði lètt af mèr.
Heimskænn: Enn því viltu þá fara þessa leið, til að öðlast þenna lètti, er þú sèrð, að það er svo mörgum hættum bundið? Ef þú að eins hefir eirð að hlusta á mig, þá get eg leiðbeint þèr svo, að þú fáir ósk þína upp fyllta, án þess að sæta nokkurri af þeim hættum, sem þú hlýtr að lenda í á þessum vegi. Já, hjálpin er ofr nærri; og eg get bætt því við, að í stað þess, að svífa hèr í sífeldri hættu, skal þèr vera alstaðar óhætt, og þú skalt jafnan mæta vináttu og vera sí-ánægðr.
Kristinn: Æ, gjörið þèr svo vel, að fræða mig um þenna leyndardóm!
Heimskænn: Þarna sèrðu þorp eitt, það heitir Siðsemd; þar býr maðr nokkur, að nafni Lögmætr; hann er hygginda maðr mikill, og fær bezta orð; hann kann vel til að ná af baki mönnum slíkum byrðum, sem þín er; er mèr það og kunnugt, að hann hefir látið margt gott af sèr leiða með þessari greiðvikni sinni. Honum lætr og vel að lækna þá, sem sturlaðir hafa gjörzt sökum byrðar sinnar. Nú getr þú gjört eins og eg sagði þèr; farðu til hans, og muntu fá bráða bót meina þinna. Það er lök míla heim að húsi hans hèðan. Hann á ungan son, að nafni Kurteys; hann getr talað við þig, ef faðir hans skyldi ekki vera heima, öldungis eins vel eins og gamli maðrinn sjálfr. Þarna getrðu nú fengið lètt af þèr byrði þinni, og ef þú hefir ekki í hyggju að hverfa aftr þangað, er þú áðr bjóst, sem mèr í sannleika dettr sízt í hug að eggja þig á, þá gætirðu sent eftir konu þinni og börnum, og látið þau koma híngað til þorpsins; því hèr standa auð hús til íbúðar; og gætir þú fengið eitt þeirra við vægri leigu.
Matvæli eru hèr ódýr og góð. Þar getrðu verið viss um að þú lifir meðal ráðvandra nábúa, virtr og vel metinn, og get eg til, að það muni ekki hvað sízt gjöra þèr lífið ánægjusamt.
Nú var Kristinn hálfvegis á báðum áttum, hvað úr skyldi ráða. Enn hann áttaði sig brátt, og hugsaði með sèr: sè það satt, sem maðr þessi hefir sagt mèr, þá mun hyggilegast að fara að ráðum hans. Því næst tók hann þannig til máls: Herra minn, má eg spyrja yðr, hvaða leið fara menn heim til þessa góða manns?
Heimskænn: Sèrðu háu hæðina þarna?
Kristinn: Já, glöggt.
Heimskænn: Meðframm henni verðr þú að fara, og býr hann í fyrsta húsinu, sem þú kemr að.
Nú sneri Kristinn úr vegi, til þess að leita sèr liðs heima hjá herra Lögmæt. Enn, sjá, er hann var kominn fast að hæðinni, virtist honum hún svo geysi há, og sú hliðin er að veginum vissi svo yfir framm slútandi hengiflug, að hann þorði ekki að hætta sèr lengra, því hann óttaðist, að fjallið mundi þá og þegar hrynja ofan yfir sig. Nú nam hann því staðar og vissi ekki hvað gjöra skyldi. Honum fannst byrði sín miklu þýngri nú, enn á meðan hann var á hinum veginum. Eldglæringum laust líka úr fjallinu (2 Mós. b. 19. 16, 18), og varð Kristinn hræddr við, að þær mundu brenna sig. Hann svitnaði og titraði af hræðslu (Hebr. 12. 21), og iðraði þess nú mest, að hann hafði sinnt ráðleggingu herra Heimskæns. Í þessum svifum sá hann hvar Fagnaðarboði kom á móti sèr, og setti hann nú kafrjóðan af blygðun. Fagnaðarboði færðist nær og nær, og er hann kom að honum leit hann til Kristins alvarlegu og ægilegu augnaráði; og tók hann nú máli þannig: Hvað ertu að gjöra hèr, Kristinn? Enn Kristinn vissi ekki hverju hann átti að svara, og stóð nú um stund mállaus frammi fyrir Fagnaðarboða; Enn Fagnaðarboði tók aftr þannig til máls: Ertu ekki sami maðrinn sem eg fann æpandi fyrir utan veggi Glötunarborgar?
Kristinn: Jú, góði herra, sami er maðrinn.
Fagnaðarb.: Sagði eg þèr ekki til vegar yfir að þröngva hliðinu?
Kristinn: Jú, góði herra, sagði Kristinn.
Fagnaðarb.: Hví hefir þú þá svo snögglega snúið afleiðis, því þú ert nú kominn út af götunni?
Kristinn: Eg hitti mann, þegar er eg var kominn yfir fenið, sem taldi mèr trú um, að eg gæti fundið mann í þorpinu þarna, sem gæti lètt af mèr byrði minni.
Fagnaðarb.: Hver var hann?
Kristinn: Hann var fyrirmaðr að sjá; hann talaði margt við mig, og fèkk mig að lokum á sitt mál, og þess vegna kom eg hingað. Enn þegar eg sá fjall þetta, og að það slútti framm yfir veginn, stóð eg allt í einu við, því eg varð hræddr að það mundi hrynja yfir höfuðið á mèr.
Fagnaðarb.: Hvað sagði fyrirmaðr sá við þig?
Kristinn: Hann spurði mig, hvað eg væri að fara, og það sagða eg honum.
Fagnaðarb.: Hvað sagði hann þá?
Kristinn: Hann spurði mig, hvort eg ætti konu og börn, og sagði eg honum að svo væri. Enn eg er þeim þunga hlaðinn af byrði þeirri, er mèr er á baki, sagði eg, að eg hefi nú ekki þá gleði af þeim, sem eg hafði áðr.
Fagnaðarb.: Hvað sagði hann þá?
Kristinn: Hann rèð mèr, að lètta á mèr byrði minni hið bráðasta, og eg sagði honum, að það væri einmitt byrðar lèttinn, sem eg væri að leita að; og þess vegna, sagði eg, er eg á ferð yfir að hliðinu þarna, til þess, að fá þar leiðbeiningu, hvernig eg geti komizt þangað, er þenna lètti má finna. Þá sagðist hann skyldi beina mèr á betri veg, stuttan og hættuminni, enn þann veg, er þèr, góði herra, höfðuð vísað mèr á. Sá vegr, sagði hann, liggr beint heim til þess manns, sem vel kann að því, að ná þessum byrðum af baki mönnum. Eg trúði honum, sneri úr vegi, og fór yfir á þessa götu, í þeirri von, að nú mundi þessarri byrði fljótt lètta á mèr.
Enn þegar eg kom hingað og sá allt, eins og það var, þá hrökk eg á bak aftr af ótta, eins og eg sagði fyrr, fyrir hættunni. Og nú veit eg ekkert hvað eg á að gjöra.
Fagnaðarb.: Bíddu lítið við, svo að eg geti sýnt þèr Guðs orð.
Kristinn stóð kyrr og titraði. Þá sagði Fagnaðarboði: Sjáið við því, að þèr ekki útskúfið þeim, er talar, því ef þeir sluppu ekki óhegndir, er útskúfuðu þeim, sem á jörðu talaði, þá munum vèr því síðr það geta, ef vèr þversköllumst við þeim, er frá himni talar. (Hebr. 12. 25.) Hann sagði enn fremr: Sá rèttláti af trú sinni mun hólpinn verða, en dragi nokkur sig í hlè, mun sála mín enga geðþekkni á þeim hafa. (Hebr. 10. 38.) Þessi orð færði nú Fagnaðarboði þannig heim til Kristins: Þú ert maðrinn, er nú ferð hraðförum út í þessa eymd; þú hefir byrjað að óhlýðnast ráðum hins Hæsta, og farið að hörfa aftr af vegi friðarins, og nærri því steypt þèr í glötunina.
Þá fèll Kristinn honum til fóta svo sem dauðr, og hrópaði: Ó, mig auman, nú em eg glataðr! Þegar Fagnaðarb. sá þetta, tók hann í hægri hönd Kristins og sagði: Hverskyns synd og guðlastan skal mönnum fyrirgefin verða. (Math. 12. 31.) Vertu ekki vantrúaðr, heldr trúaðr! (Joh. 20. 27.) Þá lifnaði Kristinn nokkuð við, og stóð nú titrandi, eins og fyrri, frammi fyrir Fagnaðarboða.
Nú hèlt Fagnaðarb. áframm tali sínu, og sagði: Legðu alvarlega athyggli við það sem eg nú segi þèr. Nú skal eg sýna þèr, hver maðrinn var, sem tældi þig, og, hver sá var er hann sendi þig til. Maðrinn, sem mætti þèr, heitir Heimskænn og er hann rètt kallaðr svo; bæði vegna þess, að hann skynjar einungis lærdóm þessa heims (1 Joh. 4. 5); (fer því og jafnan til kirkju í Siðsemdarþorpi), og líka vegna þess, að hann elskar þenna lærdóm mest, því hann frelsar hann frá krossinum (Gal. 6. 12); og vegna þess, að hann er svo holdlega lundaðr, reynir hann jafnan að villa menn af mínum vegum, þó þeir sè þeir einu rèttu. Það er nú þrent í ráði þessa manns, sem þú hlýtur að hafa allan viðbjóð á:
1. Það, að hann snèri þèr af leið þinni.
2. Það, að hann reyndi að vekja óbeit þína á krossinum.
3. Það, að hann sagði þèr til þess vegar, er leiðir í dauðann.
Í fyrsta lagi mátt þú hafa andstygð á því, að hann færði þig afvega, já, og á sjálfum þèr, fyrir það, að hafa þekkzt það; því þetta er hið sama sem að hafna ráði Guðs fyrir ráð slíkra sem Heimskænn er. Drottinn segir: Keppizt að komast gegnum hið þröngva hlið (Lúk 13. 24), hliðið, sem eg sendi þig til; því að þröngt er það hlið, og mjór sá vegr, sem til lífsins leiðir, og fáir eru þeir, sem hann rata. (Math. 7. 13, 14.) Þessi Guðleysingi hefir snúið þèr frá þessu þröngva hliði; og af veginum, er þangað liggr, og þannig nærri því komið þèr í glötunina. Hafa máttu því andstygð á tilraun hans, að snúa þèr afleiðis, og á sjálfum þèr fyrir það, að þú hlýddir honum.
Í öðru lagi máttu hafa andstygð á honum fyrir það, að hann reyndi að vekja óbeit þína á krossinum. Því hann á að vera þèr dýrari enn öll Egyptalands auðæfi. (Hebr. 11. 25, 26.) Enda hefir konungr dýrðarinnar sagt þèr: að sá sem frelsa vili líf sitt, skuli týna því; og hver sem honum vili fylgja, og hati ekki föður og móður, og konu og börn, og bræðr og systr, já jafnvel sitt eigið líf, sá geti ekki orðið hans lærisveinn. Því segi eg þèr, þegar menn leitast við að sannfæra þig um það, að það sè dauði þinn, sem sannleikrinn segir sè hinn eini vegr til eilífs lífs, þá haf þú viðbjóð á slíkri kenningu.
Í þriðja lagi hlýtr þú að hafa andstygð á honum fyrir það, að hann setti fætr þína á þá götu sem leiðir í dauðans þjónkan, og því skaltu nú hyggja að á hvern hann vísaði þèr, og hve allsendis óhæfr sá maðr er til að lètta af þèr byrði þinni.
Maðr sá, sem þú áttir að fara til og fá lèttir hjá, heitir Lögmætr; hann er sonr Þræl-konunnar-sem-nú-er, sú er ánauðug er með börnum sínum (Gal. 4. 21–27), og er á leyndardómsfullan hátt þetta fjall Sínaí, er þú óttaðist, að hrynja mundi yfir höfuð þèr. Fyrst nú hún er ánauðug með börnum sínum, hvernig getrðu þá búizt við, að þau fái gjört þig frjálsan? Lögmætr þessi getr því ekki losað þig við byrði þína. Enginn maðr hefir að hans völdum nokkuru sinni enn losazt við byrði sína; nei, enda eru engar líkur til, að svo fari nokkurn tíma: þèr getið ekki rèttlættir orðið af verkum lögmálsins; því að verk, lögmálsins fá engan lifandi mann losað við byrði sína. Herra Heimskænn er því fjandmaðr, og herra Lögmætr er svikari; enn Kurteys, sonr hans, er, með öllu dálætinu, ekkert annað enn hræsnari, og má þèr enga hjálp veita. Trúðu mèr, það býr ekkert annað undir öllu því gumi, sem þú hefir heyrt um þenna heimskingja, enn viðleitni, að tæla þig frá sáluhjálp þinni, með því, að snúa þèr af þeirri leið, sem eg hafði komið þèr á. Eftir þetta kallaði Fagnaðarboði hárri röddu til himins að staðfesta það, er hann hafði sagt. Komu þá orð og eldr út úr fjallinu, sem vesalíngs Kristinn stóð undir, og risu honum hár á höfði. Orðin hljómuðu þannig: Svo margir sem eru undir verkum lögmálsins, eru undir bölvuninni, því skrifað er, bölvaðr sè sá, sem ekki heldr sèr fast við allt það, sem í lögmáls bókinni skrifað er, til að breyta eftir því. (Gal. 3. 10.)
Nú sá Kristinn ekkert annað fyrir enn dauða, og tók að veina hörmulega; hann bölvaði þeirri stund, er hann mætti herra Heimskænum, og kallaði sig þúsundfaldan glóp, að hafa gegnt ráði hans. Hann blygðaðist sín sárlega, er hann hugleiddi, að ástæður Heimskæns, sem að eins komu frá holdinu, skyldu hafa orkað því, að tæla sig af rèttum vegi. Að svo búnu snèri hann sèr að Fagnaðarboða aftr með þessum orðum: Herra minn, hvað haldið þèr, er nokkur von um mig? Get eg nú horfið aftr, og gengið upp að þröngva hliðinu? Ætli mèr verði ekki útskúfað fyrir þetta, og ætli eg verði ekki rekinn með skömm á bak aftr frá því? Mig iðrar, að eg hlýddi ráði þessa manns. Enn verðr synd mín fyrirgefin?
Fagnaðarboði svaraði þá: Synd þín er næsta mikil, því með henni hefir þèr tvent á orðið, og þó hvorttveggja ilt. Þú hefir horfið af þeim vegi, sem góðr er, til þess að troða fyrirboðnar brautir. Þó mun hliðvörðr taka við þèr, því hann er mönnum velviljaðr. Enn, sagði hann, varastu nú, að fara afvega aftr, svo að þú ekki týnist á veginum; því hans reiði mun kvikna bráðum. (Sálm 2. 12.)