30. kafli
Töfravellir og Staðfastr
Um þetta leyti voru þeir komnir inn á Töfravelli þar sem loftið færir yfir mann höfugleik og svefnmók. Alstaðar óx hèr broddrós og þyrnir. Hingað og þangað voru þó töfraskýli, og segja sumir að það sè efamál, hvort sá er þar sezt einu sinni niðr eðr sofnar fái nokkurn tíma risið á fætr eðr vaknað aftr til þessa lífs. Um þetta skóglendi fóru pílagrímarnir, og rèð Hugprúðr ferðinni, enn Sannleikshetja fór aftastr, var eftirliðsvörðr til þess, að vera til taks, ef einhver fjandi, eða dreki, eða tröll, eða ræningi skyldi ráðast á sveit þeirra aftan að og vinna þeim ógagn þeim megin. Hèr gekk hver maðr undir vopnum með brugðið sverð í hendi, því þeir vissu, að þetta var hættustaðr mikill. Þeir hresstu hver annan sem bezt þeir gátu. Hugprúðr bauð að Ístöðulaus skyldi ganga á eftir sèr, enn Þreklaus var undir umsjá Sannleikshetju.
Er þeir höfðu gengið skamman veg, datt á þá þoka og myrkviðri, svo að um langan tíma fengu þeir varla sèð hvor annan. Þeir neyddust því til þess, að leita fyrir sèr hvor að öðrum með orðum; því eftir sjón fengu þeir ekki gengið. Enn það gat hver einn fundið, að þetta var óhugnaðarlegt ferðalag hverjum karlmanni, jafnvel enum færasta meðal þeirra, hvað þá heldr kvennfólkinu og börnunum, er hvor tveggju voru linhjörtuð og veikfætt. Þó fór það svo, að fyrir örfunar-yrði þeirra sem fyrir fóru og eftir þeim vannst þeim furðanlega áframm veginn.
Vegrinn var og allþreytandi sökum slabbs og saurs, enda var hvergi á þessum vegi svo mikið sem eitt einasta inni eðr matvælahús er enir veikari gæti fengið hressingu í. Hèr gekk ekki á öðru enn stunum, mási og andvörpum; er einn hrasaði um broddvíðisrunn, hèkk annar fastr í efjunni, og sum af börnunum mistu skó sína í mykjunni; einn heyrðu menn kalla: Eg er dottinn; annan: Ha? hvar ertu? enn þriðja: Runnarnir halda mèr svo fast, að eg held eg fái ekki komizt brott frá þeim.
Nú komu þeir að laufskála einum hlýjum, er pílagrímum þótti sem veita mundi sèr ljúfa hvíld og endrnæringu; því fagrlega var frá honum gengið til ræfrs, og allr var hann skreyttr grænum grösum og gróðri og búinn bekkjum og setum. Þar stóð og mjúkr legubekkr, er enir veiku fengu hvílzt á. Þetta var freistandi sjón, er alls er gætt, því pílagrímar voru farnir að gefast upp, svo var vegrinn illr umferðar: enn ekki einn einasti inti í þá átt, að standa við hèr. Já, að svo miklu leyti sem eg gat sèð gáfu þeir ráðum leiðtoga síns svo glöggt athyggli, og hann sagði þeim svo trúlega til hverrar hættu er fyrir lá, og til þess, hvernig hverri hættu væri farið, er nær henni dróg, að flestum óx hugr við, enda eggjuðu hvor annan að afneita holdinu. Þessi laufskáli hèt Slæpingshýra og var til þess gjörr, að hæna að sèr pílagríma er þreyttir urðu, að þeir leituðu sèr þar hvíldar.
Nú þótti mèr þeir halda áframm yfir þessa einmanalegu mörk unz þá bar þar að, er mönnum hætti við að missa vegar. Nú þótt leiðtogi þeirra þekkti vel þær götur er hjá skyldi sneiða, er bjart var, varð hann að standa við í dimmunni ráðþrota. Í vasa sínum hafði hann brèf er sýndi alla þá vegi er liggja að og frá enni himnesku borg. Hann sló því eld, því aldrei skilr hann tundrbauk sinn við sig, og kveykti ljós og hugði að vegaskrá sinni, og var þar ritað, að hèr yrði menn að muna eftir því að halda á hægri hönd. Ef hann hefði ekki gætt að vegaskrá sinni í tíma, eru allar líkur til, að þeir hefði kafnað hèr í mykjunni, því skammt eitt framm undan þeim, og þar sem vegrinn var hvað þurrastr var díki, er enginn veit hvað djúpt er, sem fullt er af mykju og gjört er til þess, að kæfa í pílagríma.
Þá hugsaði eg með mèr: Ó, að þeir er ráðast í pílagrímsfarir vildu hafa með sèr vegabrèf þetta, til þess að glöggva sig á enum rètta vegi þegar þeir verða ráðþrota hverja götuna skuli fara.
Nú hèldu þeir áframm yfir Töframörk þessa, þangað til þeir komu þangað, er annar laufskáli var fyrir þeim og reistr var við alfara veginn. Í þessum skála láu tveir menn, Gálaus og Fífldjarfr að nafni. Þessir tveir höfðu gjörzt pílagrímar og komizt þetta áleiðis, enn urðu yfirkomnir af þreytu hèr, settust því niðr að hvíla sig og duttu út af í fasta svefn. Þegar pílagrímar sáu þá, stóðu þeir við og hristu höfuð sín, því að þeir vissu að sofendr þessir voru háskalega staddir. Nu báru menn saman ráð sín, hvort þeir skyldu halda áframm og lofa þeim að sofa, eða ganga að þeim og reyna að vekja þá. Þeir rèðu af að fara og vita, hvort þeir fengju vakið þá. Enn allir bundust fastmælum um það, að setjast ekki niðr, nè færa sèr að neinu í nyt hagræði það, er þessi skáli bauð.
Nú gengu pílagrímar inn í skálann og töluðu við mennina og kölluðu á hvorn um sig með sínu nafni, því leiðtoginn bar kennsl á þá. Þá hristi leiðlogi þá og skók og gjörði allt er hann gat að fá rofið svefn þeirra. Þá sagði annar: Þegar eg fæ peninga mína, skal eg borga þèr. Þá hristi leiðtogi höfuðið. Eg berst eins lengi og eg fæ haldið á sverðinu, sagði hinn. Þá hló eitt af börnunum.
Þá mælti Kristín: Hvað á þetta að þýða? Leiðtogi svaraði: Þeir tala í svefni. Þó þú lemir þá og berir, eða hvað sem þú gjörir þeim, ansa þeir ekki öðru enn þessu og því líku óráði. Þeim fer eins og einum fór forðum, sem sagði, er öldr hafsins belldu á honum og hann svaf eins og maðr á siglu húna (Orðskv. 23. 34, 35.) Hvenær mun eg vakna? Eg ætla að reyna það enn einu sinni. Þú veizt að í svefni tala menn hvað sem vera skal, enn orðum þeirra stýrir hvorki trú nè skynsemi. Orð þeirra eru eins sundrleit nú, eins og athæfi þeirra var áðr, er þeir rèðust í pílagrímsferð, enn settust þó niðr til að hvílast hèr. Þetta er því óláníð, að þegar gálausir menn fara í pílagrímsferð er hættast við að þeir allir fái þessi afdrif. Töframörk þessi er eitt hið síðasta af tálbrögðum þeim er óvinr pílagríma beitir þá. Því er það, að hún er eins og þið sjáið nærri því á vegar enda, og því er hættan enn meiri að pílagrímar láti tælast. Því að óvinrinn hugsar með sèr: Hvenær skyldi fíflum þessum koma betr að setjast niðr og hvílast enn hèr, er þeir eru þreyttir? Og hvenær mundu þeir þreyttari enn þegar þeir eru að komnir enda farar sinnar? Því er það, að Töframörk er svo nærri landamærum Beulah og svo nærri skeiðsenda. Hafi pílagrímar því gætr á sèr, að eigi hendi þá hið sama sem hent hefir þessa, er dottnir eru útaf í fasta svefn og enginn fær vakið.
Nú var pílagrímum órótt um að halda áframm, og beiddu leiðtoga sinn að slá eld og kveykja ljós, svo að þeir fengju gengið við birtu af skriðljósi það er eftir væri vegarins. Hann brá upp ljósi, og gengu þeir við birtu þess það er eftir var, þó mikið væri myrkrið (2 Pèt. 1. 19.) Enn nú voru börnin orðin úrvinda af þreytu og þau hrópuðu á hann er elskar pílagríma, að gjöra þeim leiðina þægari. Eftir litla stund rann á vindgola, er feykti brott þokunni, og loftið varð bjartara. Enn þá var þó allmikið ófarið af Töframörk; enn nú fengu þeir þó sèð hvor annan, og veginn er halda skyldi.
Er þeir voru nærri því komnir yfir Töframörk heyrðu þeir skammt framm undan sèr rödd, og var eins og hún kæmi frá manni er mjög hefði margt á hjarta. Þeir hèldu nú áframm og lituðust fyrir sèr, og sáu loks, að því er þeim virtist, mann á hnjánum, er hafið hafði hendr og augu til himins, og var svo að sjá, sem hann væri að tala alhugamáli við einhvern á himni. Þeir færðust nær, enn fengu ekki greint hvað hann mælti; fóru þeir því hægt og hljótt, þangað til hann hafði lokið máli sínu. Þegar því var lokið, stóð hann upp, og tók til fótanna og hljóp í áttina til ennar himnesku borgar. Þá kallaði Hugprúðr eftir honum og mælti: Heyrðu, vinr, lofaðu okkr að njóta samfylgdar þinnar, ef þú ert á leið til himnaborgar, eins og mèr virðist þú vera. Maðrinn stóð við; enn hina bar að. Enn þegar er Ráðvandr sá hann, mælti hann: Ó, eg þekki manninn. Sannleikshetja mælti: Segðu mèr, hver er hann? Hann kemr þaðan er eg átti heima, mælti Ráðvandr, hann heitir Staðfastr og er sannarlega ágætr pílagrímr.
Nú bar þá fundum þeirra saman. Þá kallaði Staðfastr til gamla Ráðvands og sagði: Nei, sko, gamli faðir Ráðvandr kominn hèr! Ójá, svo er sem þèr sýnist, eins víst og þú ert þarna, mælti Ráðvandr. Það er mèr sannarlega fagnaðar efni, að hitta þig hèr á þessum vegi, mælti Staðfastr. Og eg er eins glaðr, sagði hinn, að hafa komið auga á þig, þar sem þú varst á hnjánum. Þá roðnaði Staðfastr í andliti, og sagði, hvað þá? sástu mig? Já, svaraði hinn, það gjörði eg víst, enda gladdist hjarta mitt við þá sjón. Nú, hvað hugsaðir þú þá? sagði Staðfastr. Hugsaði eg? sagði gamli Ráðvandr, hvað skyldi eg hugsa? Eg hugsaði það, að þar hittum við fyrir okkr góðan dreng á vegi, og fengjum líklega samfylgd hans með tímanum. Það fær mèr sannarlega fagnaðar ef hugsun þín er rètt mælti Staðfastr. Enn ef eg er ekki eins og eg ætti að vera, þá er það þó eg einn, sem verð að bera þá byrði. Þetta er satt, svaraði hinn, enn ótti þinn sannar mèr það, að vel fer á með sál þinni og konungi pílagrímanna. Því hann segir: Sæll er á maðr, er jafnan óttast. (Orðskv. 28. 14.)
Sannleikshetja: Nú nú, bróðir góðr, segðu mèr, hvað bar til að þú varst á hnjánum núna er við sáum þig fyrst? Var það af því, að nokkur sèrstakr náðarvottr Guðs knýði þig til þess, eða hvað?
Staðfastr: Sèrðu það ekki, að við erum á Töframörk? meðan eg var á ferðinni var eg að hugsa um það, hversu hættulegr þessi vegr væri, og hversu margir, er þó komizt hefðu alla leið hingað, hefðu látið hèr fyrir berast og hefði tortýnzt hèr. Eg hugsaði og um þann dauðdaga er þeir bíða, sem hingað komast og hèr farast. Enginn þeirra er hèr deyja bíða bráðan og vofeiflegan dauða; dauði þeirra er þeim ekki kvalafullr. Því sá sem gengr veg allrar veraldar í svefni hefr ferð sína í nautn og unaði. Já, þeir unna banasótt sinni.
Hèr tók Ráðvandr framm í og sagði: Sástu þá tvo, er láu sofandi í laufskálanum?
Staðfastr: Jú, jú; eg sá Gálausann og Fífldjarfann víst; og að því er eg fæ sèð munu þeir þar liggja þangað til þeir fúna upp. (Orðskv. 10. 7.) Enn lofaðu mèr að halda áframm sögunni. Þegar eg var að hugsa um þetta, birtist mèr kona í fögrum klæðnaði, enn þó fornum, er bauð mèr þrent að þyggja: líkama sinn, sjóð og sæng.
Nú er það sannast að segja, að eg var aðframm kominn af þreytu og svefni, enda er eg eins fátækr eins og uglu ungi og má vera að norn þessi hafi vitað það. Eg hratt henni frá mèr hvað eftir annað; enn hún lèt, sem hrindingar mínar kæmi ekki til sín, og brosti blíðlega. Þá varð eg reiðr; enn hún lèt, sem hún sæi það ekki. Síðan tók hún að gjöra mèr ný kostaboð og kvaðst mundu fá mèr frægðar og sælu ef eg vildi láta að hennar vilja. Því eg er yfir ráðandi þessa heims, sagði hún, og mèr eiga menn sælu sína að þakka. Eg spurði hana að nafni, og kvaðst hún Bóla-þunn heita. Þá hrökk eg við og hèlt mèr enn fjær frá henni; enn hún elti mig enn með kostaboðum og munaðar hótum. Þá kraup eg á knè, eins og þú hefir sèð, og með upp lyftum höndum og andvörpunum bað eg bænir mínar og sendi þær honum, er sagt hefir, að hann vili hjálpa. Enn rètt í því að þið komuð hörfaði frúin á brott. Síðan hèlt eg áframm að gjöra þakkir fyrir þessa miklu lausn, því eg trúi því víst, að hún ætlaði mèr illt eitt og hugði að fá tafið mig og haft aftr af ferð minni.
Ráðvandr: Þar á er enginn efi, að henni gekk til illt eitt. Enn hvað er nú að tarna? það er eins og mig minni, að eg hafi annað-hvort sèð hana einhvern tíma, eða hafi lesið einhverja sögu um hana.
Staðfastr: Hvort tveggja, ef til vill?
Ráðvandr: Frú Bóla-þunn? er hún ekki há og grönn og kurteis að sjá í frammgöngu og nokkuð dökk á hörund?
Staðfastr: Öldungis satt; þarna er henni rètt lýst.
Ráðvandr: Er hún ekki ofr mjukmál, og brosir hún ekki eftir hverja setningu sem hún talar?
Staðfastr: Jú, jú; þú getr aftr í kollinn. Þetta er einmitt viðmótið hennar.
Raðvandr: Hún ber stóran sjóð við síðu, og hefir fyrir venju að stinga hvað eftir annað hendinni í hann og hringla í peningunum eins og það væri hennar hjartans unaðr að heyra hringlið, er ekki svo?
Staðfastr: Það kemr allt heim. Þó hún hefði staðið sjálf hèr frammi fyrir okkr hefðir þú ekki getað gefið fyllri lýsingu á henni, eðr betr skýrt andlitsfar hennar og viðmót.
Ráðvandr: Þá hefir sá er dróg upp mynd hennar verið góðr uppdráttarmaðr, og sá er ritaði lýsingu hennar sagt satt.
Hugprúðr: Þetta er galdranorn; og er það fyrir galdra hennar, að þessi mörk er töfruð. Hver sem höfuð leggr í skaut henni mætti eins vel leggja það á högg-stokkinn sem öxin hangir yfir; og hver, sem gjörir sèr títt um fegrð hennar, er talinn Guðs óvinr. Það er hún er heldr við rausn og alls nægtir fjandmönnum pílagríma. (Jak. 4. 4.) Já, og hún er það, sem mútað hefir mörgum manni til þess, að hætta við pílagríms líf sitt. Hún er sú mesta þvaðrkind sem til er; hún og dætr hennar liggja sífelt pílagrímum í hælum, síhælandi og sífegrandi góðgæti þessa lífs. Hún er óskammfeilin ódámr, og flaðrar upp á hvern mann. Hún hæðir og spottar fátæka pílagríma, enn dýrðast jafnan um hina auðugu. Ef hún heyrir þess getið að einhvers staðar sè maðr er greitt lætr að safna fè, flytr hún lof hans hús úr húsi. Hún er ær eftir stórveizlum og gildum, og er allt af einhvers staðar þar sem borð eru full krása. Sumstaðar hefir hún sagzt vera gyðja, enda tigna sumir hana eins og gyðju. Hún hefir vissan tíma og vissa staði til þess, að fremja tálræði sitt; hún segir og sver, að enginn maðr hafi efni, er jafnazt fái við sín. Hún lofar, að hún skuli dvelja hjá barnabörnunum ef þau að eins vili elska hana og hafa hana í hávegum. Hún varpar peningum eins og sandi úr pússi sínum á sumum stöðum og til sumra manna. Henni er það mest yndi að eftir henni sè gengið, vel sè um hana talað, og að hvíla í fangi karla. Aldri þreytist hún að hæla góðgæti því er hún hefir að bjóða, og elskar þá bezt sem vænst þykir um hana. Sumum heitir hún kórónu og konungdæmi ef þeir vili að eins taka ráðum hennar. Enn ei að síðr hefir hún komið hálsi margs manns í snöruna, og tíu þúsund sinnum fleirum hefir hún hrundið til vítis.
Staðfastr: Hvílík náð var það ekki, að mèr skyldi auðnast að veita henni viðnám. Hvert hefði hún ekki getað dregið mig ella?
Hugprúðr: Hvert? Já, það veit enginn nema Guð einn. Enn óhætt má fullyrða það, að hún hefði að minnsta kosti dregið þig inn í margs konar heimskufullan og háskalegan losta, sem drekkir mönnum í fári og glötun. (1 Tím. 6. 9.) Það var hún er setti Absalon gegn föður sínum, og Jeróbóam gegn yfirboðara sínum. Það var hún, er fèkk Júdas til að framm selja Herra sinn, og talaði svo um fyrir Demas, að hann fyrirlèt guðhræðslufult pílagrímalíf. Enginn fær talið allan þann óskunda er hún fær af stað komið. Hún kemr af stað ósamlyndi milli stjórnenda og þegna, milli foreldra og barna, milli nágranna, milli manns og konu, vekr innvortis stríð með mönnum, og setr holdið upp mót andanum. Berðu því, góði Staðfastr, nafn með rentu, og þegar þú hefir lokið öllu, þá stattu fastr enn?
Meðan þessarri viðræðu fór framm var að sjá á pílagrímum bæði fögnuð og ótta. Seinast hófu þeir samhljóma raddir sínar og sungu:
Hættur hve margar mæta oss hèr,Marga hve fèndr eigum vèr,Leiðir í synd hve margar liggjaLifenda enginn kann að hyggja.
Sumir atast í fenja saur,Sumir veltast í djúpum aur,Sumir, þá undan síum hrökkva,Sviplega mitt í eldinn stökkva.