Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

Átjándi kafli

Áin og borgin

um 16 mín. lestur

Nú sá eg að pílagrímarnir voru komnir yfir Töfravelli, og komnir inn í hið fyrirheitna land (Es. 62. 4-12; Lofkv. 2. 10-12); þar var loftið hreint og unaðlegt; vegrinn lá beint fyrir þeim um landið, og nú hresstu þeir sig um tíma. Já, hèr heyrðu þeir stöðuglega kvakið í fuglunum, daglega spruttu framm ný og ný blóm, og allt af heyrðu þeir rödd turtildúfunnar í landinu. Hèr skein sólin björt og heið dag og nótt, og mátti þar af sjá, að land þetta var fyrir handan dauðans-skugga-dal, og ekki undir stjórn nè umráðum risans vonda, Örvæns, og hèðan gátu þeir ekki svo mikið sem eygt Efavirki. Nú sáu þeir staðinn, er þeir voru að ferðast til, og mættu þeim hèr ýmsir bæjarbúar, því að hinir skínandi menn voru jafnan á gángi um land þetta, því það lá á takmörkum himinsins. Í þessu landi var endrnýaðr sáttmálinn milli brúðgumans og brúðurinnar. Hèr er það, að Guð gleðst af þeim, eins og brúðguminn gleðst af brúðurinni. Hèr skorti þá hvorki korn nè vín, því hèr fundu þeir alls nægtir af þeim hlutum, er þeir höfðu þráð á pílagrímsferð sinni. Hingað heyrðu þeir raddir frá borginni, glöggvar raddir, er sögðu: Segið dótturinni af Zíon: Sjá frelsi þitt kemr; laun hans eru með honum. Hèr nefndu landsbúar þá ekki öðru nafni enn hina endrleystu Drottins, hina útvöldu.

Meðan þeir voru á ferð um þetta land, skemmtu þeir sèr betr enn þar, sem þeir höfðu farið um löndin fjær konungs ríkinu, sem þeir ætluðu að ferðast til. Þegar þeir færðust nær bænum, sáu þeir hann glöggvar. Hann var reistr úr perlum og dýrindis steinum, strætin voru gulli lögð fyrir fótgangendrna. Hin eðlilega fegurð bæjarins og geislabrot sólarljóssins, er skein á hann, fengu svo á Kristinn, að hann varð veikr af gleðiþrá eftir því, að komast inn, og Vongóðr fekk ýms aðsvif af sama tagi, og láu þeir um tíma og andvörpuðu af fullu brjósti: Ef þú sèrð minn ástvin, þá seg honum, að eg sè veikr af elsku.

Enn er af þeim brá, og þeir styrktust nokkuð, fóru þeir af stað og gengu áframm veginn, færðust nær og nær framm hjá aldingörðum, vínekrum og blómreitum, og voru hliðin opin við alfaraveginn. Þegar þeir fóru um þessa staði, sjá, þá stóð garðyrkjumaðrinn í vegi þeirra og mæltu þeir við hann: Hver á þessa blómvöxnu garða? Konungrinn, svaraði hann, þeir eru yrktir honum til yndis, og til huggunar fyrir pílagríma. Tók garðyrkjumaðrinn þá síðan, með sèr inn í víngarða þessa og beiddi þá neyta hnossgætis þess, er í görðunum væri að fá (5 Mós. b. 23. 24); líka sýndi hann þeim staði þá er konungr gengr um sèr til skemmtunar, og eikilundana þar er hann unir sèr bezt; hèr stóðu þeir við, og sofnuðu.

Mèr þótti þeir tala í svefni meira á þessum stað enn nokkuru sinni fyrr á allri leiðinni; og er garðyrkjumaðrinn sá, að eg var að velta því fyrir mèr, hvað til þessa mundi bera, sagði hann: Hví furðar þig á þessu? það er eðli vínviðar aldinanna í þessum görðum, að þau ganga ljúft niðr og láta varir hinna sofandi mæla. (Lofkv. 7. 9.)

Þegar þeir vöknuðu, sá eg, að þeir bjuggust til að fara upp í borgina. Enn eins og eg sagði áðr, var geislabrotið svo geysi sterkt (bærinn er gjörr úr hreina gulli (Opb. b. 21. 18), að þeir fengu ekki horft á hana opnum augum, heldr gegnum sjóntól er þar til var gjört. (2 Kor. 3. 18.) Eg sá nú, að þeir hèldu áframm, og mættu þeim tveir menn í klæðum er blikuðu sem gull, enn auglit þeirra skein sem ljós.

Menn þessir inntu pílagrímana að, hvaðan þeir kæmu, og sögðu þeir sem var. Þeir spurðu þá líka, hvar þeir hefðu gist, hvaða þrautum og hættum þeir hefði mætt á leiðinni, og hvaða skemmtanir og unaðr þeim hefði borizt að hendi, og sögðu þeir allt hið sannasta um þetta. Þá mæltu mennirnir við þá, það eru að eins tvær þrautir eftir fyrir ykkr, og þegar þið hafið yfirstigið þær, eruð þið í borginni.

Nú beiddu þeir Kristinn menn þessa verða sèr samferða, og kváðust þeir þess albúnir, enn þið verðið, sögðu þeir, að komast þangað, með ykkar eigin trú. Eg sá nú, að þeir urðu allir samferða þangað til þeir fengu auga á hliðinu.

Nú sá eg að milli þeirra og hliðsins var á, enn engin brú var yfir hana, enn áin var býsna djúp. Þegar því pílagrímarnir sáu fljótið, urðu þeir forviða, enn mennirnir, sem með þeim fóru, sögðu: Þið verðið að vaða yfir um, því ella komizt þið ekki að hliðinu.

Pílagrímar spurðu nú, hvort ekki væri annar vegr til hliðsins. Hinir svöruðu: Jú, enn þann veg hefir engum verið leyft að fara frá byrjun heims nema tveimr: Enoch og Elíasi, engum mun heldr leyft verða, að fara þenna veg öðrum, allt þangað til hinn síðasti lúðr gellr. Við þetta tóku Pílagrímarnir, einkum Kristinn, að örvænta; þeir lituðust um í allar áttir, enn þeir fundu engan veg, er þeir gætu farið, og komizt fyrir ána. Þá spurðu þeir mennina, hvort vatnið væri alls-staðar jafn djúpt. Þeir kváðu nei við; enn sögðust þó ekki geta hjálpað þeim í þessu efni, því að vatnið verðr djúpt og grunt, á ykkr, sögðu þeir, allt eftir því, hvað trú ykkar á konunginn í borginni er einlæg.

Nú bjuggust þeir til að vaða yfir um ána; og er þeir komu út í vatnið, þá tók Kristinn að sökkva; kallaði hann þá upp hástöfum til vinar síns, Vongóðs, og sagði: Eg sekk í hinu djúpa vatni, bárur þess ganga mèr yfir höfuð, allar öldur þess ganga yfir mig.

Vongóðr svaraði: Vertu hugrakkr, bróðir. Eg kenni botns og hann er góðr. Kristinn svaraði: Æ, vinr minn, dauðans harmar hafa hrifið mig með sèr; eg mun ekki sjá landið er flýtr í mjólk og hunangi. Í þessu datt kolniða myrkr á Kristinn, og skelfing heltók hann, og sá hann nú hvergi frá sèr. Hann varð að miklu leyti rænulaus, svo hann mátti hvorki muna, nè mæla greinilega um, neinn sætan unað, er hann hafði notið á pílagrímsferð sinni. Enn af öllum orðum þeim er hann mælti mátti ráða, að hann vildi láta menn skilja, að skelfing nokkur lægi á huga sèr og hræðsla á hjarta sínu fyrir því, að hann mundi deyja í fljóti þessu, og aldrei fá inngönguleyfi um hliðið. Þeir sem sáu hann nú, gátu og ráðið í það, að hann þjáðizt harðlega af hugsunum um syndir, er hann hefði drýgt bæði áðr og eftir að hann hóf pílagrímsferð sína. Menn sáu og, að hann var fullr óróa vegna drauga og illra anda, er ásóktu hann, því hann talaði um það hvað eftir annað.

Vongóðum veitti nú erfitt að halda höfði bróður síns upp úr vatninu. Stundum fór hann um tíma allr í kaf, og var þá nær dauða enn lífi, þegar hann kom upp úr aftr. Stundum reyndi Vongóðr að hughreysta hann, og sagði, heyrðu bróðir, eg sè hliðið, og menn í því, sem viðbúnir eru að taka móti oss. Enn þá svaraði Kristinn jafnan, það ert þú, það ert þú, sem þeir bíða eftir. Þú hefir verið vongóðr allt af síðan fyrst að eg þekkti þig. Þú hefir líka verið það, sagði Vongóðr við Kristinn. Kristinn svaraði: Minnstu ekki á það, bróðir: Væri allt rètt með mig, þá mundi Hann sannarlega rísa upp, og hjálpa mèr, enn Hann hefir leitt mig í snöruna og yfirgefið mig vegna synda minna. Ó, bróðir, sagði Vongóðr, þú hefir alveg gleymt orðunum: Allt til dauðans hittir þá engin armæða og líkami þeirra er vel mettaðr. Í mæðu rata þeir ekki, eins og aðrir menn, og þjást ekki, eins og aðrir dauðlegir. (Sálm 73. 4, 5.) Baráttan og háskinn, sem þú verðr að berjast við í vötnum þessum sanna alls ekki það, að Guð hafi yfirgefið þig, enn eru þvert á móti send til þess, að reyna þig, hvort þú vilir þakklátlega endrminnast þess, er þú hefir þegið af náð hans hingað til, og vilir lifa í honum í mótlæti þínu.

Nú þótti mèr Kristinn verða hugsi um stund. Vongóðr ávarpaði hann þá, og mælti þessum orðum. Vertu hughraustr, Jesús Kristr mun lækna þig. Rètt í þessu hóf Kristinn rödd sína, og kallaði hástöfum: Ó, eg sè hann aftr og hann segir: Þegar þú ferð yfir vötnin, vil eg vera með þèr, og yfir árnar og þær skulu ekki flóa yfir þig. (Es. 43. 2.) Nú tóku þeir í sig hugmóð og óvinr þeirra varð lygn og svo kyrr eins og steinn, þangað til þeir voru komnir yfir um. Kristinn kendi botns þegar, og úr því var áin að eins grunn. Þannig komust þeir yfir um.

Nú mættu þeir aftr hinumegin árinnar hinum skínandi mönnum, og biðu þeir þeirra á árbakkanum. Þegar pílagrímarnir því komu yfir um, heilsuðu mennirnir þeim, og sögðu: Vèr erum þjónustu-andar, sendir út vegna þeirra, er öðlast skulu sáluhjálpina. Nú fóru þeir og stefndu á hliðið.

Nú er þess að geta, að bærinn stóð á hárri hæð, enn pílagrímarnir fóru upp hæðina og veitti það hægt, því að þeir höfðu þessa tvo menn að styðjast við, sem leiddu þá sèr við hönd. Þeir höfðu líka misst hjúp dauðlegleikans í ánni, því þeir fóru í honum niðr í hana, enn komu án hans upp úr henni. Þeir runnu því upp hæðina skjótt og hvatlega, og þó var borgarstæðið hærra enn skýin. Þeir fóru því upp um loftsgeimana, töluðu saman sætlega og fagnandi um leið og þeir fóru áframm, því þeir voru svo huggunarglaðir, sökum þess, að þeir höfðu komizt heilu og höldnu yfir um, og af því, að þeir höfðu svo dýrðlega fèlaga til samfylgdar.

Þeir ræddu við hina skínandi menn um dýrð og frægð staðarins; sögðu þeir, að fegrð hans og dýrð væri ofar öllum orðum. Þarna, sögðu þeir, er Zíons fjall, hin himneska Jerúsalem, hið ótölulega fèlag englanna og hinir algjörðu andar rèttlátra manna. (Hebr. 12. 22-24.) Nú eruð þèr, sögðu þeir, á leiðinni til Paradísar Guðs, þar sem þèr munuð sjá lífsins trè og neyta lífgjafar ávaxta þess, og þegar þèr komið þángað, munuð þèr fá hvít klæði að fara í, og þið skuluð ganga með konunginum daglega og tala við hann jafnvel um alla eilífðarinnar daga. (Opb. b. 2. 7; 3. 4, 5; 22. 5.) Þá munuð þið ekki sjá aftr þá hluti, sem þið sáuð, þegar þið voruð á enum lágu stödvum jarðarinnar, hvorki sorg nè sjúkleik, mótlæti nè dauða. Því hinir fyrri hlutir eru um liðnir. (Es. 65. 16, 17.) Nú eruð þið á leiðinni til Abrahams, Isaaks, og Jakobs, og til spámannanna, þeirra manna, sem Guð hefir numið frá hinni komandi ófarsæld, og sem nú hvílast eftir unnið verk og ganga, hver um sig, í rèttlæti sínu. Nú spurðu pílagrímarnir: Hvað eigum við að gjöra í hinni heilögu borg? Þið meðtakið þar huggun eftir alla ykkar mæðu, og gleði og fögnuð fyrir alla yðar harma, þèr verðið að uppskera það, sem þèr hafið sáð, jafnvel ávöxtu allra bæna, tára, og böls, er þèr hafið beðið, vegna konungs þess er við veginn býr. Á þeim stað verðið þið að bera gullnar kórónur og njóta eilífs fagnaðar við það, að horfa á, og virða fyrir yðr, hinn Heilaga, því þar munuð þið sjá hann, eins og hann er. (1 Joh. 3. 2.) Þar skuluð þið fremja eilífa þjónustu, með fagnaðar kvæðum og þakklætis söngvum, þeim sem þèr kusuð að þjóna í heiminum, þó sú þjónusta væri ervið, sökum veikleika holdsins. Þar skulu augu yðar fljóta í unaðar tárum af því, að sjá hinn Volduga; þar skulu eyru yðar hlusta í himneskri leiðslu á hina unaðlegu rödd hans. Þar munuð þið hafa fögnuð af að finna þá vini yðar aftr, sem farnir voru á undan yðr, og þar skuluð þið taka með fagnaði móti sèrhverjum þeim, er kemr til þessa heilaga staðar á eftir ykkr. Þar skuluð þið skrýddir verða dýrð og hátign, og verða settir á dýrðlega kerru til þess, að aka með konungi dýrðarinnar. Þegar hann kemr með hinum gjallanda lúðri í skýjum himins eins og á vængjum vindanna, þá skuluð þið vera með honum, og þegar hann sitr á dómstólinum þá skuluð þið sitja hjá honum; já þegar hann fellir dómsatkvæði á alla þá, er illt að hafast, hvort sem þeir eru englar, eða menn, þá skuluð þið og eiga atkvæði í þeim dómi, því að hinir dómfeldu voru óvinir bæði hans og ykkar. Þegar hann kemr aftr til bæjarins, þá skuluð þið og fara með honum í lúðrhljómi til borgarinnar og vera með honum að eilífu. (1 Thess. 4. 13-17; Júd. 14, 15; Dan. 7. 9, 10; 1 Kor. 6. 2, 3.)

Þegar þeir voru komnir allnærri borgarhliðinu, sjá, þá kom sveit hinna himnesku herskara út á móti þeim. Hinir skínandi menn sögðu við sveit þessa: Þessir menn elskuðu Drottinn vorn meðan þeir voru í heiminum og hafa yfirgefið allt fyrir hans heilaga nafn. Hann hefir sent oss til þess, að sækja þá; og erum vèr nú komnir hingað með þá, á þeirra þráðu ferð, svo að þeir geti farið inn og sèð Endrlausnara sinn augliti til auglitis. Þá hóf hinn himneski skari upp fagnaðar óp og mælti: Blessaðir eru þeir, sem boðnir eru til brúðkaups lambsins. (Opb. b. 19. 9.) Um þetta leyti komu og ýmsir lúðrþeytarar konungsins út, voru þeir klæddir í hvít og skínandi klæði, og með háværum gleðisamsöngvum létu þeir himnana endrtaka. Þessir lúðrmenn heilsuðu Kristni og fèlaga hans, og báðu þá tíuþúsund sinnum vel komna frá heiminum, og þetta táknuðu þeir með háum lúðra hljómi.

Að þessu búnu þyrptust þeir hvervetna utan að pílagrímunum, sumir fóru undan þeim, sumir eftir, sumir til hægri, sumir til vinstri handar, eins og þeir vildu vera verðir og leiðtogar þeirra um hina æðri himingeima. Sungu þeir um leið og þeir fóru áframm í háum samsöng, svo að hverjum, er sèð hefði þessa sjón, mundi hafa virzt, sem himininn væri kominn allr á ferð ofan á móti þeim. Þannig hèldu þeir nú áframm, og gáfu lúðrblásendr þeim fèlögum, Kristni og bróður hans, að skilja, með augnaráði og viðmóti, söng og gleðihljómi lúðranna, hversu kærkomnir þeir væru fèlagi sínu, og hversu glaðir þeir hefði orðið, að mega koma út til að taka á móti þeim. Þessir pílagrímar voru því í himninum áðr enn þeir komust þangað, ef svo má að orði kveða, því að þeir liðu áframm í himneskri leiðslu við skoðun englanna og heyrn hinna unaðlegu lúðrhljóma þeirra. Nú sáu þeir og borgina sjálfa, og virtist að allar bjöllur hljómuðu til að veita sèr þar móttöku. Enn yfir allt tóku hinar hlýju og gleðiríku tilhugsanir þeirra, er þeir höfðu um dvöl sína þar með slíku samfèlagi um alla eilífð—ó, hvaða túnga, eða hvaða penni fær lýst hinum dyrðlega fagnaði þeirra?

Nú komu þeir að borgar hliðinu. Þegar þar var komið, sáu þeir, að ritað var yfir það með gullnu letri: Blessaðir eru þeir, sem hlýða boðum Hans, svo að þeir nái að komast, að lífs trènu og geti farið inn um hliðið inn í borgina. (Opb. b. 22. 14.)

Nú sá eg, að hinir skínandi menn tjáðu þeim, að þeir skyldu beiðast inngöngu, og er þeir höfðu gjört það, þá komu menn framm á hliðburstina ofanverða og litu framm yfir hliðið, meðal þessara manna voru þeir Móses, Elías, Enoch og fleiri. Þeim var sagt, að hèr væri komnir pílagrímar frá Glötunarborg, sökum elsku þeirra til konungsins er yfir rèði borg þessarri. Nú afhentu pílagrímarnir hvor um sig vegar brèfin er þeir höfðu fengið á öndverðri pílagríms ferðinni. Þessi skjöl voru lögð fyrir konunginn og er hann hafði lesið þau, spurði hann, hvar mennirnir væru. Honum var svarað: Þeir standa við hliðið. Þá skipaði konungrinn að opna hliðið, svo að hinn rèttláti lýðr, sagði hann, sem varðveitir sannleikann, fái inn að ganga. (Es. 26. 2.) Þótti mèr nú mennirnir báðir fara inn; og sjá, jafnskjótt og þeir komu inn, voru þeir ummyndaðir, og þeir voru ífærðir klæðum, er ljómuðu sem gull væri. Þar komu og menn með hörpur og kórónur, og gáfu þeim þær; hörpurnar til að flytja á þær eilíft lof, enn korónurnar fyrir heiðrs merki. Nú heyrði eg í draumnum að um allan bæinn gall við gleðilegr klukknahljómr, og að sagt var við pílagrímana: Gangið inn í fögnuð Drottins! (Math. 25. 23.) Eg heyrði líka mennina sjálfa kveða við, með hárri röddu, og segja: Þeim sem í hásætinu sitr og lambinu sè þakkir og heiðr, dýrð og veldi um aldir alda. (Opb. b. 5. 13.)

Þegar hliðunum var lokið upp, og mennirnir fóru inn, horfði eg inn á eftir þeim, og virtist mèr borgin ljóma eins og sól, strætin voru gullin, og gengu margir menn um þau með kórónur á höfðum, pálmaviðar kvistu í höndum sèr, og gullnar hörpur til að flytja sína eilífu lofsöngva.

Sumir þeirra höfðu vængi og svöruðu þeir hvorir öðrum stöðugt: heilagr, heilagr, heilagr er Drottinn! Síðan lokuðu þeir hliðunum, og er eg hafði sèð allt þetta, óskaði eg að mega vera kominn sjálfr meðal þeirra.

Þegar eg hafði nú horft á allt þetta, sneri eg mèr við og varð mèr þá litið á Fávísan, hvar hann kom að ánni, komst hann fljótt yfir um, og hafði ekki helmings þraut við þá Kristinn og Vongóðan. Því svo stóð á, að ferjumaðr var kominn á ána, að nafni Tálvona, og hann skákaði Fávísum yfir um hana; hann fór upp hæðina, eins og hinir, til þess að komast upp að borgarhliðinu, enn hann kom einn sèr, og enginn mætti honum honum til uppörfunar. Þegar hann var kominn að hliðinu, leit hann upp og sá letrið yfir dyrunum; tók því næst að berja að dyrum, og bjóst við því, að bráðum mundi verða opnað fyrir sèr. Enn mennirnir er litu framm yfir hliðið að ofanverðu spurðu og sögðu: Hvaðan kemr þú? og hvað er þèr á höndum? Hann svaraði: Eg hefi etið og drukkið í nærveru konungsins, og hann hefir kennt á strætum vorum. Þá beiddu þeir um vegabrèf hans, svo að þeir fengi sýnt konunginum það. Hann gaufaði í barm sèr eftir skjalinu, enn fann þar ekkert. Þá sögðu þeir, er yfir hliðinu voru: hefrðu ekkert leiðarbrèf? Enn hann steinþagði. Þeir fóru nú og sögðu konungi hvar komið var fyrir aðkomumanni; hann vildi ekki koma niðr að hliðinu að sjá hann, enn skipaði hinum skínandi mönnum, er sögðu Kristni og Vongóðum til vegar, áð fara út, taka Fávísan, binda hann á höndum og fótum, og hafa hann á brottu. Þeir tóku hann, fóru með hann um loftið, og fluttu hann að dyrunum, sem eg sá á hæðinni (hjá hirðunum), og lètu hann þar inn. Þá sá eg, að vegrinn til helvítis er eins opinn frá hliðum himnaríkis eins og frá Glötunarborg.

Síðan vaknaði eg. Og sjá, það var draumr!

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

18. kafli af 31 · 16 mín. eftirÁin og borgin