Fara í efni
← BækurFör pílagrímsins

31. kafli

Yfir ána

um 15 mín. lestur

Nú horfði eg enn á þá, þangað til þeir komu í fyrirheitanna land, þar sem sólin skín nótt og dag. Hèr tóku þeir stundar hvíld, því að þeir voru mjög þreyttir. Með því nú þetta land var pílagrímum heimilt og víngarðar og aldingarðar þess voru eign konungsins yfir Himnaborg, var pílagrímum heimilt að neyta hvers er þeir vildu. Enn hèr endrhresstust þeir á skömmum tíma, því að klukkurnar hringdu og luðrarnir hljómuðu í sífellu, svo að þeir fengu ekki sofið, og þó varð þeim enn stutti blundr svo endrnærandi eins og þeir hefðu sofið langa tíð fast og lengi. Þeir sem um göturnar gengu hrópuðu stöðugt: Pílagrímar komnir til bæjar enn! Og aðrir svöruðu: Og fjöldi pílagríma kom yfir ána í dag og var hleypt inn um gullna hlið. Enn aftr kölluðu þeir: Herskari enna ljómandi er kominn til borgar í dag, og þar af fáum vèr ráðið, að fleiri pílagrímar eru enn svo sem ókomnir, því þeir koma hingað til þess, að bíða þeirra og að hugga þá eftir harma þeirra. Nú stóðu pílagrímar upp og gengu framm og aftr um grundirnar. Enn hve eyru þeirra fyltust nú himneskum hljóðum, og augu þeirra undu sèr við himneskar sýnir! Í þessu landi heyrðu þeir ekkert, sáu ekkert, fundu til einskis, þefuðu ekkert, bergðu engu er leitt var skyni nè skilningarvitum, nema hvað þeim þótti vatnið í ánni er þeir áttu yfir að fara, vera hálf bitrt er þeir fyrst supu á því; enn er þeir höfðu kyngt því var það sætt á eftirbragð.

Á þessum stað var skrá geymd yfir nöfn þeirra, er verið höfðu pílagrímar að fornu, og saga um öll afreksverk þeirra og unnar þrautir. Þar var og margt ritið um flóðið er í ána kæmi þá er sumir færi yfir hana, og um það hve framm úr henni setti, þá er aðrir færu yfir um. Hefir hún svo að kalla legið niðri í aur, er sumir hafa farið yfir um, enn flóð á bökkum þá er aðrir fóru yfir hana.

Hèr var það venja bæjarbarna að ganga út í garða konungs og safna blómknippum og færa þau pílagrímum með ljúfu og elskulegu barna viðmóti. Hèr óx kamfóru-viðr, brodd-nardus og saffran, ilmreir, kanelviðr og þau trè, er ilmandi reykelsi veita, myrra og aloe og allskonar beisksætar æti-jurtir. Herbergi pílagríma ilmuðu af þessu öllu meðan þeir stóðu við hèr, og líkamir þeirra voru smurðir angan-olíu til þess, að búa þá undir yfirferðina yfir ána, er þar að kæmi. Meðan þeir höfðust hèr við og biðu ennar góðu stundar, frèttist það þangað, að sendiboði væri kominn frá Himnaborg með áríðaudi erindum til Kristínar nokkurrar, konu Kristins pílagríms. Menn spurðust fyrir um hana, og húsið fannst loks er hún bjó í. Sendimaðr bar henni brèf, og var þar á ritað: Heill sè þèr, góða kona, eg færi þèr þau tíðindi, að meistarinn kallar á þig, og býðr að þú komir og standir fyrir augliti hans íklædd ódauðleikanum eins og fati, og það innan tíu daga.

Þegar sendimaðr hafði lesið henni brèfið, afhenti hann henni jarteiknir um það, að hann væri sannarlega sá, er hann kvaðst vera og væri hann kominn til þess, að bjóða henni að leggja allan hraða á ferð sína. Jarteikn hans var ör, og var broddrinn beittr sorfinn af ást. Örinni stakk sendimaðr í hjarta hennar og urðu áhrif hennar þau, að hún varð algagntekin smátt og smátt af löngun til að flýta för sinni, svo að hún legði af stað á ákveðinni tíð.

Þegar Kristín sá, að tími sinn var kominn, og að hún var hin fyrsta af sveit sinni er yfir skyldi fara ána, kallaði hún Hugprúð til sín og sagði honum, hvað um væri að vera. Hann kvað þau tíðindi vera hin beztu, og sagðist vildi óska að sendimaðr hefði verið til sín. Hún bað hann nú leggja sèr ráð um allan viðbúnað til fararinnar. Hann rèð henni allt hið heilasta í hverju einu, og sagði, þannig skal þetta, og þannig skal hitt vera; enn við sem eftir verðum skulum fylgja þèr til árinnar.

Síðan kallaði hún börnin til sín, gaf þeim blessan sína, og sagði þeim, að það fengi sèr huggunar að lesa merki þau, er látin hefði verið á enni þeirra, það fengi sèr og gleði, að sjá þau þar kringum sig, og að þau skyldi hafa haldið fötum sínum svo hreinum. Að lokum ánefndi hún fátækum hið litla, er hún skildi eftir sig, og bauð sonum og dætrum sínum að vera viðbúnum þegar sendimaðr kæmi að kalla þau.

Þegar hún hafði þannig fyrir mælt í viðrvist leiðtoga síns og barna sinna, kallaði hún á Sannleikshetju, og sagði við hann: Góði herra, þú hefir sýnt það, hvar sem þú hefir komið, að þú hefir hjarta trútt í brjósti, vertu trúr allt til dauða, og mun þá konungr minn gefa þèr lífsins kórónu. Eg verð líka að biðja þig, að líta eftir börnum mínum, og bið eg þig að mæla þeim huggunar orð til, ef þú sèrð þau nokkurn tíma vanmegnast á leiðinni. Því dætr mínar, konur sona minna hafa verið trúfastar, og munu orð fyrirheitanna vissulega rætast á þeim. Síðan gaf hún Staðfasti hring.

Þá kallaði hún á gamla Ráðvand, og sagði: Sjá þar þann í Israel er engin svik finnast í. (Jóh. 1. 47.) Ráðvandr svaraði: Eg óska þèr fagrs dags og fararheilla, er þú leggr á leið til Zíons fjalls; og skyldi mèr verða það fagnaðar efni að sjá þig ganga þurrum fótum yfir ána.—Hvort sem vætu eða þurki er að mæta fýsir mig sárlega farar minnar; því hverju sem viðrar á leið minni veit eg að eg hefi allan dag til stefnu hinumegin að að hvíla mig og þerra.

Þá kom inn hinn góði maðr Bægifótr til að sjá hana, og sagði Kristín við hann: Hingað til hefir för þín verið erfið og þung, enn það gjörir hvíld þína að sætari á síðan. Vaktu, og vertu við búinn, því þá stund, er þig sízt varir kemr sendimaðrinn.

Eftir hann kom Þreklaus og Dauðhrædd dóttir hans, og mælti hún við þau: Þið megið minnast þess með þakklæti alla ykkar æfi, að þið voruð leyst úr höndum Örvæns risa og út úr Efavirki. Sá er nú árangr þess miskunnar verks orðinn, að þið eruð komin heilu og höldnu hingað. Vakið og varpið brott hræðslunni; verið gætin og vonið til enda!

Við Ístöðulausan mælti hún: Þèr var bjargað úr gini risans Góðrabana að þú mættir lifa í ljósi lifenda og sjá fagnandi konung þinn. Eg vil einungis ráða þèr að iðrast, áðr enn hann sendir eftir þèr, fyrir það að þèr hætti við að óttast og efa gæzku hans, svo að þú neyðist ekki til þess, að standa með blygðun frammi fyrir honum þegar hann kemr.

Nú leið að þeim degi, er Kristín varð að fara brott. Meðframm veginum var fjöldi fólks til þess að horfa á ferð hennar. Enn hinumegin árinnar, var bakkinn alskipaðr vögnum og hestum er komið höfðu að ofan til þess að fylgja henni að Himinhallar dyrum. Nú kom hún og lagði í ána og veifaði kveðju til þeirra er með henni fylgdust. Hin síðustu orð, er menn heyrðu hana tala voru þetta: Eg kem, Drottinn, til þess að vera hjá þèr og blessa þig! Börn hennar og vinir hurfu nú heim aftr, er þeir er hennar biðu höfðu numið hana brott úr augsýn. Hún fór nú upp að hliðinu og kallaði þar og sagði til sín, og fór síðan inn og var öll hin sama viðhöfn höfð sem áðr, er Kristinn hafði farið þar inn, maðr hennar.

Þegar tímar liðu, kom annar sendiboði til bæjarins þar er pílagrímar höfðust við. Hann átti erindi við Bægifót. Sendimaðr spurði hann uppi og sagði: Eg er til þín kominn frá honum sem þú hefir elskað og fylgt, þó á hækjum færir. Hann gerir þèr boð, að koma og neyta kvöldverðar í sínu ríki við sitt eigið borð næsta dag eftir Páska. Bú þig því til ferðar. Hann gaf og Bægifót jartein um það að hann væri enn rètti sendiboði, segjandi: Eg hefi brotið gullskál þína og skorið silfrsnúruna. (Prèd. 12. 6.)

Síðan gjörði Bægifótr boð eftir fèlögum sínum og sagði: Nú er sent eftir mèr, og Guð mun vissulega senda eftir yðr þó seinna verði. Hann beiddi nú Sannleikshetju að búa til skiftabrèf sitt. Enn með því hann átti ekkert, er hann gæti skilið örfum sínum eftir, nema hækjurnar og góðar óskir, mælti hann þannig fyrir: Þessar hækjur skil eftir syni mínum, er feta mun í fótspor mín, og með þeim gef eg honum allar góðar óskir og bænir, að hann megi betri reynast enn eg hefi verið. Síðan þakkaði hann Hugprúð fyrir leiðsögu hans og alla ljúfmennsku og bjóst síðan til ferðar. Þegar hann kom á árbakkann sagði hann: Þessarra hækja hefi eg enga þörf lengr, er hinu megin bíða mín vagnar með hestum að aka í. Hið síðasta er menn heyrðu hann segja, var: Eg fagna þèr, eilífa líf! Síðan fór hann sína leið.

Þessu næst komu Ístöðulausum þau tíðindi, að sendimaðr blèsi köllunarhornið við hússdyr hans. Kom sendimaðr inn síðan og mælti: Eg er kominn með þau boð, að Drottinn þinn hefir þín þörf, og að þú verðir innan mjög skamms tíma að skoða andlit hans í birtu dýrðarinnar. Og hafðu til jarteina um sannleika þessa boðskapar orðin: Dimt skal verða hjá þeim, sem líta út um gluggana. (Prèd. 12. 3.) Nú kallaði Ístöðulaus saman vini sína, og sagði þeim, hver boð sèr hefði komið, og hverjar jarteinir sèr hefði verið gefnar um sannindi boðanna. Síðan mælti hann: Eg hefi ekkert eftir mig að skilja, hví skyldi eg þá setja upp skiftaskrá? Ístöðuleysi mitt skil eg reyndar eftir, því þess þarf eg ekki hinu megin, enn ekki er það þess virði að það sè ánefnandi einusinni hinum armasta pílagrími. Þegar eg því er farinn bið eg þig, Sannleikshetja, að grafa það í enum næsta sorphaug. Að svo búnu fór hann, daginn sem hann var kallaðr brott, yfir ána, eins og hinir. Hans síðustu orð voru: Bilið ei, trú og þolinmæði! Síðan fór hann yfir um.

Þegar margir dagar höfðu liðið, var sent eftir Þreklausum, kom sendimaðr til hans með þessi skilaboð: Skjálfandi maðr, með boðskap þessum er þèr stefnt, til að vera hjá konungi næsta Drottins dag, til þess að láta rödd þína hljóma fagnaðarlega fyrir lausn þína frá öllum efa. Haf þessi orð fyrir jartein um sannindi sögu minnar, mælti sendiboði: Og hann gaf honum engisprettu til þess að vera honum til byrðar. (Prèd. 12. 5.)

Dauðhrædd dóttir Þreklauss kvaðst nú fyrir hvern mun vilja fara með föður sínum, er hún heyrði, hvar máli hans var komið. Þá mælti Þreklaus við vini sína: Yðr er kunnugt hvað við höfum verið, eg og dóttir mín, og hversu vandræðalega við höfum borizt af í hverra hóp sem við höfum verið. Það er vili minn og dóttur minnar, að þrekleysi okkar og þrælsótti verði aldri neins manns eign, frá þeirri stund, er við förum brott, og um allar aldir síðan; því eg veit það, að hvort tveggja muni reyna að snýkja sig inn á aðra er við erum öll. Því satt að segja eru þetta draugar, sem við sýndum beina um það leyti, að við fyrst lögðum af stað í pílagrímsför okkar og fengum aldri síðan frá okkr sært með neinu móti. Þeir munu ganga milli manna og beiðast húsa hjá pílagrímum er við erum farin, enn látið okkr verða yðr að varnaði, og lokið dyrum yðar fyrir þeim. Þegar brottfarar tími þeirra kom genga þau á árbakkann. Hin síðustu orð Þreklauss voru: Eg kveð þig nótt, kom heill þú dagr! Dóttir hans fór syngjandi yfir ána, enn enginn fèkk skilið orð af því, er hún fór með.

Nokkuru síðar bar svo við, að sendimaðr kom til bæjarins og spurði eftir Ráðvandi. Fór hann til húss Ráðvands og rètti honum brèf með þessu á skrifuðu: Þèr er boðið, að vera við búinn, þessa dagstund á sjöunda degi hèðan frá, að koma framm fyrir Drottinn þinn í húsi föður hans. Til sanninda merkis um það, að boð mín sè sönn, sè þèr þessi jartein: Allar dætr söngsins skulu verða lágrómaðar. (Prèd. 12. 4.) Þá kallaði Ráðvandr vini sína og sagði við þá: Eg dey, enn skiftabrèf set eg ekkert upp. Ráðvendni mín skal með mèr fara; látið þá er eftir koma vita þessa ráðstöfun mína. Þegar brottfarar dagr hans var kominn, bjóst hann, að fara yfir ána. Nú stóð svo á að áin flóði á bökkum uppi sumstaðar, enn Ráðvandr hafði eitt sinn á æfi sinni samið við mann er Samvizkuhreinn hèt, að mæta sèr hèr, og efndi sá loforð sitt nú, rètti Ráðvand höndina og hjálpaði honum yfir um. Hin síðustu orð Ráðvands voru: Náðin ríkir! Síðan hvarf hann heiminum.

Eftir þetta spurðist það, að Sannleikshetja hefði fengið boð með sama sendimanni og hinir, að koma, og fengið með til sanninda þessa jartein: Að krukka hans væri brotin við uppsprettuna. (Prèd. 12. 6.) Þegar honum komu boð þessi kallaði hann á vini sína og sagði þeim frèttirnar. Síðan sagði hann: Nú fer eg til Föður míns; og þótt eg hafi við margar raunir hingað komizt, iðrar mig samt alls ekki nú, að eg hefi við svo mikil vandræði átt að stríða, úr því hingað er komið. Sverð mitt áskil eg þeim, er við tekr pílagrímsförinni af mèr, og hugrekki mitt og vopnfimi þeim er fær náð því. Skeinur og ör mín tek eg með mèr, til þess að vera mèr til vitnis um það, að eg hefi barizt fyrir hann, er nú endrgeldr mèr laun mín. Þegar sá dagr kom, er hann skyldi brott fara, fylgdu margir honum á árbakkann, og er hann stè út í ána, kallaði hann: Dauði, hvar er broddr þinn? Og er á honum dýpkaði, sagði hann: Gröf, hvar er sigr þinn? (1 Kor. 15. 55.)

Nú var Staðfast stefnt af heimi. Hann var enn sami sem pílagrímar fundu á hnjám sínum á Töframörk. Sendimaðr færði honum stefnuna opna í hendi sèr, og var hún þess efnis, að hann skyldi búast við lífsumskiftum, því að það væri ekki vili Herra hans, að hann skyldi lifa lengr svo fjarri sèr. Þegar hann fèkk boð þessi, varð Staðfastr hugsi um tíma. Enn sendimaðr sagði: Nei, þú þarft ekki að efast sannindi sögu minnar, því hèr er jartein er bezt sannar hana: Hjólið er brotið við brunninn. (Prèd. 12. 6.) Síðan kallaði hann Hugprúð til sín, sem verið hafði fylgdarmaðr þeirra, og sagði við hann: Herra, þó að eg ætti aldri því láni að fagna, að verða fèlags yðar njótandi til lengdar, á pílagrímsdögum mínum, hafið þèr þó verið mèr næsta hjálplegr síðan við fyrst fundumst. Þegar eg fór að heiman, lèt eg eftir konu og fimm ung börn. Gjörðu mèr þann greiða, þegar þú ferð heim aftr—því eg veit að þú ferð heim aftr í hús herra þíns í þeirri vor að þú fáir enn heilaga pílagríma að fylgja—að þú sendir boð heim til mín, og segir hyski mínu allt er drifið hefir og enn kann að drífa á daga mína. Láttu þau vita hversu sæll hagr minn er nú, og segðu þeim frá ferð minni inn í Himnaborg. Segðu þeim og söguna um Kristinn og Kristínu konu hans, og láttu þau vita, að hún og börn hennar lögðu í pílagrímsför eftir manni hennar. Segðu þeim líka, hversu farsællega henni fórst að lokum og hvert hún er nú komin. Eg hefi lítið eða ekkert að senda hyski mínu nema bænir mínar og tár, og væri það vel, að segja þeim frá þeim; því hver veit nema þau hríni á þeim. Þegar Staðfastr hafði gjört þessa skipun, og tíminn var kominn, er hann skyldi brottu hvata, fór hann niðr að ánni. Um þetta leyti var áin lygn mjög og er Staðfastr var miðja vega í ánni snèri hann við og talaði við þá er höfðu fylgt honum þangað. Hann mælti: Þessi á hefir verið ógn mörgum manni; já og oft hefir eg skelfzt er eg hefi hugsað til hennar; enn nú finnst mèr ekki betr enn að eg standi hægt; fótr minn stendr á sömu undirstöðu eins og fætr prestanna er báru sáttmálsörkina, þegar Israel fór yfir Jórdan. (Jós. 3. 17.) Vötnin eru að vísu bitr á smekk, og köld fyrir magann; enn tilhugsunin um það, er eg fer nú að starfa, og um farar sinni það er bíðr mín hinu megin hvílir eins og heitar glæður mèr við hjarta. Nú sè eg að eg er kominn framm að enda minnar vegfarar; mæðudagar mínir eru liðnir. Eg fèr að sjá höfuðið er þyrnum var krýnt, og andlitið er í var hrækt mín vegna. Hingað til hefi eg lifað af heyrn og trú; enn nú fer eg þangað er eg lifi af sjón; og mun verða hjá honum sem minn unaðr skal vera að vera í fèlagi við. Það hefir verið mèr unan alla daga, að heyra talað um Drottin minn, og hvar sem eg hefi sèð fótaför hans á jörðu þar hefir mig fýst að setja fót minn líka. Nafn hans hefir verið mèr anganbaukr, já sætara enn nokkur ilmr. Rödd hans hefir jafnan verið mèr full unaðar, og andlit hans hefi eg þráð eins sárlega eins og þeir er mest þrá að sjá sólarljósið. Eg hafði orð hans mèr að fæðslu og lyfjum við vanmegni mínu. Hann hefir haldið hönd sinni yfir mèr, og verndað mig gegn ranglæti; já fótum mínum hefir verið styrkr veittr á hans vegum. Meðan hann mælti þessum orðum skifti andlit hans mynd. Hinn öflgi maðr hnignaði undir eigin byrði sinni. Og er hann hafði mælt þessi orð: Tak mig, því eg kem til þín! hvarf hann sjónum þeirra að fullu.

Enn dýrðlegt var þá að horfa til uppgeima, er voru allir fylltir hestum og vögnum með lúðramönnum og pípurum með söngvurum og leikurum er lèku á strenghljóðfæri, til þess að bjóða pílagrímum velkomu er þeir liðu upp leið sína um geiminn og fóru hver eftir annan inn um Himinborgar dyr.

Um börn þeirra Kristínar, sonu þeirra fjóra, er Kristín hafði með sèr, og konur þeirra og börn, er það að segja, að eg stóð ekki við þangað til þau voru komin yfir um. Síðan hefir mèr borizt, að þau muni enn á lífi vera, og auka og margfalda þau þannig kirkjuna þar sem þau hafazt við um tíma.

Ef mèr verðr auðið, að leið mín liggi þar um aftr, getr verið, að eg segi þeim er heyra vilja, söguna um það, er eg læt nú liggja í þagnar gildi. Þangað til bið eg lesara minn

Vel fara!

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

31. kafli af 31 · 15 mín. eftirYfir ána