Sjöundi kafli
Apollyon í Niðrlægingardal
Í Niðrlægingardal átti Kristinn brátt í illri vök að verjast; því þegar hann hafði gengið skammt eitt af dalnum, sá hann illan fjanda, er kom rakleiðis yfir slèttlendið móti honum. Óvættr þessi hèt Apollyon. Við þessa sjón skaut Kristni skelk í bríngu, og kom hik á hann, hvort aftr skyldi nú hverfa, eða viðnám veita. Enn þá kom honum það í hug, að hann var hlífalaus að baki, og sá hann, að fjandi þessi mundi geta hæft sig því meinlegar með örfum sínum, ef hann snèri sèr undan. Rèð hann því af, að leggja á hættu að taka móti honum; því hann hugsaði með sèr: þó ekki væri annað, enn að verja lífið, yrði það bezt afráðið, að standa og hörfa hvergi.
Nú hèlt hann áframm, og mættust þeir Apollyon. Apollyon var hræðilega ljótt skrímsli. Hann var allr hreistraðr eins og fiskr, og telr sèr hreistrið til ens mesta ágætis. Hann hafði vængi sem dreki og lappir eins og bjarnarhramma; út úr kviði hans stóð eldgusa og svælumökkr og kjaftrinn var lagaðr eins og ljónsgin. Þegar hann mætti Kristni, leit hann niðr á hann með fyrirlitningar svip miklum, og tók nú að frètta hann, hvaðan hann kæmi og hvert hann ætlaði.
Kristinn svaraði: Eg kem frá Glötunarborg, þar sem allt illt er saman komið, og eg er á leiðinni til Zíons borgar.
Apollyon: Eg heyri þá, að þú ert einn af mínum þegnum; því það land á eg allt, þar sem Glötunarborg stendr, og eg er konungr og guð yfir því. Hvernig víkr því þá við, að þú hefir stokkið burt frá konúngi þínum? Ef eg ekki ímyndaði mèr, að þú kynnir að ganga aftr í þjónustu mína, þá skyldi eg dauðrota þig með einu einasta höggi.
Kristinn: Satt er það, að eg fæddist í landar eign yðar; enn þjónkan yðar var hörð aðgöngu, og af launum þeim, er þèr buðuð fyrir hana, gat enginn maðr lifað, því að laun syndarinnar er dauðinn. (Róm. 6. 23.) Þess vegna tók eg það sama fyrir, sem aðrir hyggnir menn, að eg fór að leggja mig í frammkróka um það, að bæta kjör mín.
Apollyon: Enginn konungr vill láta þegna sína þannig fyrir ekkert, enda vil eg heldr ekki missa af þèr. Enn með því að þú kvartar yfir þjónustu þinni og launum, þá gjörðu þig nú ánægðan með það, að hverfa heim aftr; og lofa eg þèr því fyrir statt og stöðugt, að þú skalt njóta alls þess, er land vort gefr af sèr.
Kristinn: Enn eg er nú farinn í vist hjá öðrum, hjá konúngi konúnganna; og það væri ósanngjarnt að hverfa nú aftr með þèr.
Apollyon: Það sannast á þessu ráðlagi þínu, að sjaldan fer betr þá breytt er. Enn það er alvenja, að þeir sem hafa gengið í hans þjónustu, hafa stokkið úr vistinni eftir litla hríð og farið til mín aftr. Gjörðu slíkt hið sama, og mun allt vel fara.
Kristinn: Eg hefi gefið honum trú mína, og svarið honum hollustu, hvernig á eg að rjúfa slík særi, án þess, að verða hengdr fyrir drottinssvik?
Apollyon: Nú, þetta sama hefir þú gjört mèr, og þó læt eg það allt ótalið, ef þú vilt nú snúa við heim aftr.
Kristinn: Loforð mín við þig voru gjörð þá, er eg var ómyndugr; eg tel það þar að auki víst, að höfðingi sá, er eg þjóna nú, sè fær um að veita mèr aflausn, sem og einnig að fyrirgefa það, er eg hefi gjört þèr til vilja. Enn þèr satt að segja, Apollyon glötunarár, líkar mèr allt betr hjá mínum konungi, enn hjá þèr, bæði þjónusta hans, laun hans, þjónar hans, stjórn hans, fèlagið við hann, og land hans. Hirtu því ekki um að hafa fleiri tælíngar í fraumi við mig; það kemr fyrir ekki. Eg er þjónn hans og mun fylgja honum.
Apollyon: Hugleiddu, segi eg þèr, enn einu sinni, með stillingu, hvað kann að mæta þèr á vegi þeim er fyrir þèr liggr. Þú veist það þó, að þjónar hans sæta oftast nær einhverjum vofeiflegum dauðdaga, og það vegna þess, að þeir eru margbrotlegir orðnir við mig og hafa horfið af mínum vegi. Hvað margir þeirra hafa ekki beðið háðuglegan dauðdaga? En sleppum nú því. Þú kýs hans þjónusta framm yfir mína; hans, sem aldrei enn hefir orðið að vegi að hreifa sig að heiman, til að frelsa þjóna sína úr höndum óvina þeirra. Það er munr eða eg; því það veit þó allr heimrinn, hvað oft eg hefi frelsað hina dyggu þjóna mína úr greipum hans og þjóna hans með valdi eða vèlum. Og eins skal eg frelsa þig.
Kristinn: Hann tefr við um stund, að frelsa þjóna sína, af ásettu ráði, til þess, að reyna, hvort elska þeirra sè svo einlæg, að þeir vili fylgja honum fastlega til enda. Enn hinn illa dauðdaga, sem þú varst að tala um, telja þeir hina mestu frægð sína. Þeir meta ekki mikils frelsi í þessum heimi; því að þeir bíða eftir vegsemd þeirri, sem þeim er fyrirbúin, þegar konungrinn kemr í dýrð sinni og englahersveita sinna.
Apollyon: Hvernig getrðu búizt við endrgjaldi hjá honum, þú, sem hefir verið honum svo ódyggr?
Kristinn: Í hverju hefi eg verið honum ódyggr, Apollyon?
Apollyon: Fyrst þegar þú fórst af stað og varst nærri kafnaðr í Sturlandíki, þá varstu kominn að niðrlotum. Þú fórst ranga leið, til að losast við byrði þína, í stað þess, að bíða við, þangað til konungr þinn kæmi og tæki hana af þèr. Þú dattst út af í syndanna svefn, og misstir kjörgrip þinn. Þegar þú sást ljónin, varstu nærri því alráðinn að hverfa aftr. Og þegar þú segir ferðasögu þína, og lýsir því, er þú hefir heyrt og sèð á leiðinni, þá má lesa hegómagirnd þína úr hverju orði og atviki.
Kristinn: Þetta er allt satt, og mörgu hefir þú sleppt. Enn konungr sá, er eg þjóna og tigna, er náðugr og fús að fyrirgefa. Nú er það aðgætandi, að þetta dáðleysi gagntók mig í þínu ríki, þar drakk eg það inn og hefi lengi harmað og andvarpað út af því, þó nú hafi eg fengið fyrirgefníngu konúngs míns.
Nú varð Apollyon öldungis hamslaus af reiði og sagði: Eg er svarinn fjandi þessa konúngs, eg hata hann sjálfan, lög hans og lýð, og nú er eg hèr kominn til þess að sjá um að þú farir ekki lengra.
Kristinn: Gætt’ að, hvað þú gjörir, Apollyon. Eg er hèr á konúngsins alfaravegi, á heilagleikans braut. Varaðu þig!
Þá glenti Apollyon sig út yfir veginn, eins og hann var breiðr til, og sagði: Þetta er það sem ekki hræðir mig. Enn búðu þig nú undir dauðann, því það sver eg við mitt helvízka díki, að þú skalt ekki lengra fara; hèr skal eg skvetta sál þinni þèr úr búk.—Í þessari svipan skaut hann brennandi ör, og beindi henni á brjóst Kristins. Kristinn brá fyrir sig skildinum, og festist örin í honum, enn Kristni varð ekki meint af.
Kristinn sá, að ekki var annað, enn að taka á því er hann hafði til; og dróg nú sverð sitt úr slíðrum. Enn Apollyon sókti að ið fastasta, og drifu nú örvar hans á Kristinn eins þètt og haglhríð væri. Kristinn varðist allt er hann kunni, enn þó særði Apollyon hann á höfði, hendi og fæti, og hopaði hann lítið eitt í þessari svipan. Þegar Apollyon sá það, sókti hann að í ákafa, enn Kristinn herti nú upp hugann að nýu, og sýndi drengilega vörn, allt er hann mátti. Þetta harða einvígi stóð meir’ enn halfan dag, og var Kristinn þá nærri þrotinn; enda drógu og sár hans meir og meir þrótt úr honum, eins og við var að búast. Nú sætti Apollyon því lagi, og óð að Kristni, tók hann glímu tökum og slengdi honum niðr svo harða byltu, að sverðið hrökk úr hendi hans. Nú á eg alls kosti við þig, sagði Apollyon, og greip Kristinn og knúði hann svo hart undir sig, að hann nærri marði hann til dauðs, og tók Kristinn nú að örvænta um líf sitt. Enn Guð vildi ekki, að hann skyldi deyja að svo komnu: því meðan Apollyon var að reiða til bana höggs við hann, gat hann rètt höndina til sverðs síns; þreif hann það skjótt og sagði: Hlakka þú ekki yfir mèr, óvinr!—þó eg falli, mun eg komast á fætr aftr. (Mik. 7. 8.) Lagði Kristinn hann nú banvænu sári, og varð Apollyon við það að síga undan eins og maðr sem hefir verið særðr til ólífis. Þegar Kristinn sá þetta, lagði hann til Apollyons að nýju, og sagði: Já í öllu þessu erum vèr meir enn sigrvegarar fyrir hann, sem elskaði oss. (Róm. 8. 37.) Nú þandi Ap. út dreka vængi sína og hafði sig undan hið bráðasta, og sá Kristinn hann ekki úr því. (Jak. 4. 7.)
Enginn, sem ekki sá þetta einvígi, eins og eg gjörði, getr gjört sèr neina ímyndun um hið viðbjóðslega öskr, er Apollyon lèt ganga allan bardagann út; því hann talaði eins og dreki. Allt hið sama er að segja um stunur þær og andvarpanir er brutust upp frá brjósti Kristins. Mèr er minnisstætt, hvaða óhugnaðr hvíldi stöðugt yfir augnaráði hans, þangað til hann hafði veitt Apollyon bana sár með hinu tvíeggjaða sverði sínu; þá brosti hann fyrst, og leit glaðlega upp. Þetta er sá óttalegasti bardagi, sem eg hefi nokkuru sinni sèð.
Þegar bardaginn var af liðinn, sagði Kristinn: Hèr ætla eg að þakka honum, sem hefir frelsað mig úr gini ljónsins; Honum, sem veitti mèr lið gegn Apollyon; það gjörði Kristinn með þessum söng:
Beelsebub, ríkr ræsir þessa fjanda,Rèð mèr glötun, og brynju varinn þegnSendi til höfuðs mèr—í byli brandaOg bræði vítis rèðst hann mèr í gegn.Enn hjálp mèr kom frá Michael engli mæra,Eg mæki skrímslið rak á flótta þá.Því skal æ lofi þenna engil stæra,Þökk og blessun hans dýra nafni tjá!
Þá kom að honum hönd ein, og rètti honum nokkur blöð af lífsins trè; tók Kristinn þau, og lagði við sárin, er hann hafði fengið í bardaganum; og varð heill á sömu stundu. Hann settist á þessum stað niðr og át brauð og drakk úr vínflöskunni, sem honum hafði verið gefin rètt áðr. Þegar hann var nú búinn að hressa sig á þenna hátt, bjóst hann til ferðar, og hafði nú nakið sverðið í hendinni, því hann hugsaði með sèr: Eg veit ekki nema einhver nýr óvinr kunni að vera á næstu grösum. En Apollyon veitti honum engar búsyfjar framar á dalnum.