Áttundi kafli
Dauðans-skugga-dalr
Þegar þessum lauk, tók við annar dalr, sem heitir Dauðans-skugga-dalr. Kristinn varð að leggja leið sína gegnum þenna dal, vegna þess, að vegrinn til hinnar himnesku borgar lá um hann miðjan. Dalr þessi er mjög afskektr; Jeremías spámaðr lýsir honum svo, að hann sè eyðimörk ein; land fullt af auðnum og holum; þorsta land og þurks, og dauðans skugga, það er land, sem enginn maðr fer um, og þar býr enginn. (Jer. 2. 6.)
Hèr komst nú Kristinn í enn meiri vanda enn í bardaganum við Apollyon, og má sjá það af því, er hèr fer á eftir.
Þegar Kristinn var kominn í mynnið á dal þessum, þótti mèr hann mæta tveimr mönnum, er komu hlaupandi móti honum, og höfðu snúið aftr á dalnum; þeir voru synir þeirra manna, er komið hafa á loft illum sögum um hið góða land. (4 Mós. b. 13. 32.) Kristinn tók þá nú tali og sagði:
Hvert ætlið þið?
Þeir: Heim aftr, heim aftr, og vildum við ráða þèr til hins sama, ef þú metr nokkurs líf og frið.
Kristinn: Nú, nú, hvað er að?
Þeir: Að? Það skaltu nú fá að vita bráðum. Við fórum sama veg og þú ferð nú, og hèldum áframm eins lengi og við þorðum, og vorum nærri komnir svo langt, að ekki var hugsandi til þess, að snúa við aftr; hefðim við farið dálítið lengra, þá hefðim við ekki komizt hingað, til að segja þèr frèttirnar.
Kristinn: Enn hvað hefir ykkr mætt, þá?
Þeir: Við vorum nærri því komnir inn í Dauðans-skugga-dal, enn þá vildi svo vel til, að við litum framm fyrir okkr og komum auga á hættuna, áðr enn við lentum í henni. (Sálm 44. 19; 107. 10.)
Kristinn: Já, já, enn hvað sáuð þið þá?
Þeir: Hvað sáum við? Hvað ætli við sæjum annað enn dalinn sjálfan, kolsvartan eins og bik. Allt úði og grúði í draugum, forynjum og drekum í díkinu. Við heyrðum þar stöðugt óp og vein þeirra, er þar sitja fjötraðir eymd og járnum, og var að heyra til þeirra eins og til manna er undir eymd búa, sem orð fá ei lýst; yfir dalnum grúfa hin dimmu geigþrúngnu ský ófarsældarinnar, og dauðinn þenr sífelt vængi sína yfir hann. Í stuttu máli: Dalrinn er hvervetna ægilegr og hinn villuhættasti. (Job 3. 5; 10. 22.)
Kristinn: Af öllu, sem þið hafið sagt, fæ eg þó ekki enn þá betr sèð, enn að þetta sè vegr sá, er eg verð að fara til hinnar þreyðu hafnar. (Sálm 44. 18, 19; Jer. 2. 6.)
Þeir: Veri það þá vegr þinn; okkar vegr verðr það aldri.
Skildu þeir nú, og fór Kristinn leiðar sinnar, enn hafði þó allt af brugðið sverðið, því hann óttaðist, að á sig yrði ráðizt.
Mèr þótti nú eg sjá til hægri handar í dal þessum djúpa gjá, og var hún svö löng sem augað eygði. Þetta er gröfin, sem blindr hefir jafnan leitt blindan í frá byrjun heims, og báðir hafa farizt í hörmulega. Til vinstri handar var fen mjög hættulegt; því það má einu gilda, hvað góðr sá er, sem í það dettr, hann finnr hvergi botn fótum sínum. Í þetta fen datt Davíð konungr, og hefði eflaust sokkið niðr í, hefði ekki hann, sem er máttugr, dregið hann upp úr. (Sálm 69. 14.) Ofan á allt þetta bættist það, að stigrinn var hèr örmjór, og kom það Kristni í enn meiri vanda; því að þegar hann var að reyna í niðamyrkrinu að forðast gjána annars vegar, þá var hann nærri kominn út af stignum hinumegin ofan í fenið. Þannig hèlt hann nú áframm ferðinni, og heyrði eg hann stynja þúngan; því auk hættu þeirrar, er þegar hefir verið minnzt á, var svo dimmt á veginum, að Kristinn vissi margsinnis oft ekki, hvar hann átti að drepa niðr fætinum, eða hvað undir honum mundi verða, þegar hann tók sporið.
Eg sá, að í miðjum dalnum var opið helvíti fast hjá veginum. Á hverju augnabliki komu feikna eldgusur og reykjarstrokur með svo óttalegum drunum, að Kristinn neyddist til að slíðra sverð sitt, og taka til annars vopns, sem kallað er bæn, Eph. 6. 18, (því að við þessa hluti verðr ekki sverði beitt). Hann kallaði upp, svo hátt að eg heyrði það: Ó Drottinn, eg bið þig, frelsaðu sálu mína! (Sálm 116. 4.) Hann gekk nú áframm góðan tíma, og sló logunum oft nærri því á hann; hann heyrði hörmulegar raddir, og gekk þar á slíkum umbrotum og usla, að hann hèlt að hann mundi stundum verða rifinn sundur, eða fótum troðinn, eins og skarnið á götunni. Hann hèlt áframm margar mílur, og hafði allt af þessa ógurlegu sjón fyrir augum, og heyrði stöðugt þessar hörmulegu raddir. Enn nú nam hann staðar, því honum heyrðist flokkr af djöflum koma móti sèr, og fór hann að velta fyrir sèr, hvað bezt mundi til ráða. Stundum runnu á hann tvær grímur um að hverfa aftr, enn þá þótti honum líklegt, að hann mundi vera búinn að fara helminginn af dalnum. Hann fór líka að hugleiða, hvað mörgum hættum hann hafði sigrazt á, og það gæti svo farið, að það væri helmingi meiri hætta, að hverfa aftr, enn að halda áframm. Hann rèð því af, að halda áframm, þó honum heyrðist djóflarnir þokast nær og nær. Þegar þeir voru komnir fast að honum, kallaði hann upp með ákaflega mikilli röddu: Eg geng í krafti Drottins. Þá hörfuðu þeir aftr og fóru ekki lengra.
Eins hlutar verð eg að geta enn. Eg tók eftir því, að Kristinn var nú svo utan við sig, að hann þekkti ekki sína eigin rödd. Og skal nú greint, hvernig eg komst að því. Í sömu svipan og hann var kominn á móts við mynnið á hinu brennanda díki, læddist einn hinna illu aftan að honum, og hvíslaði að honum mörgum óttalegum guðlöstunum, svo töfralega, að Kristinn hèlt víst, að þær hefði vaknað upp í sinni eigin sál. Olli það nú Kristni miklu meiri sorgar, enn nokkur annar hlutr hafði gjört, að hugsa til þess, að hann skyldi nú leggja þeim guðlastanir til, er hann hafði áðr elskað svo heitt. Enda mundi hann sízt hafa leyft sèr þær, hefði allt verið sjálfrátt, enn hann var ekki svo forsjáll, að stínga upp í eyrun á sèr, eða gjöra alvarlega gángskör að því, hvaðan þessar guðlastanir kæmi.
Í þessarri örvæntingu hèlt nú Kristinn samt áframm ferð sinni góðan tíma, þangað til hann heyrði manns rödd er sagði: Þó að eg gángi í dimmum dal og dauðans skugga þá óttast eg ekkert illt, því að Þú ert með mèr. (Sálm 23. 4.)
Þá varð Kristinn glaðr, bæði vegna þess, að hann fèkk ráðið af þessu, að einhverir væri fleiri guðhræddir á dalnum enn hann sjálfr, og svo af því, að Guð væri með þeim, þó hagr þeirra væri sorglega bágborinn; hann hugsaði því með sèr: Hví skyldi Guð þá ekki eins vera með mèr, þó eg fái ekki sèð það, vegna tálmana þeirra, er ásigkomulag staðarins leggr fyrir mig? (Job 9. 11.) Það fèkk honum og, í þriðja lagi, gleði, að hugsa til þess, að geta orðið þessum mönnum samferða af og til, ef hann gæti náð þeim. Nú hvatti hann sporið, og kallaði til þess, sem á undan var; enn hann vissi ekki hverju hann átti að svara, því hann hèlt líka, að hann væri hèr einn á ferð. Nú tók smátt og smátt að ljóma af degi. Þá sagði Kristinn: Hann hefir snúið skugga dauðans í morgungeisla. (Amos 5. 8.)
Þegar bjart var orðið, leit hann aftr yfir leið sína; það var reyndar ekki af löngun til þess, að snúa aftr, heldr til þess, að sjá á albjörtum degi, hvaða hættur hann hafði farið í gegnum í myrkrinu. Nú sá hann enn þá glöggvar gröfina, sem var annars vegar, og fenið hinumegin, sem og, hvað mjór vegrinn var, sem lá milli beggja. Hann sá líka draugana, forynjurnar og drekana í díkinn, enn það var nú allt orðið í fjarska, því að þegar bjartr dagr er runninn, þá kemr það ekki nærri, enn hann sá það allt saman eins og skrifað er: Hann flytr hluti út úr myrkrinu og gjörir dauðans skugga að ljósi. (Job 12. 22.)
Kristinn var nú frá sèr numinn í hugleiðingum sínum um það, að hafa frelsast út úr öllum þessum hættum. Hann hafði reyndar óttast þær harðla mikið áðr, enn nú sá hann þær enn þá glöggvar í dagsljósinu. Um þetta leyti kom sólin upp; það var mikil náð fyrir Kristinn; því vita megið þèr, að þó að fyrri hluti dalsins væri hættulegr fyrir hann, þá var þó sá hlutinn, er hann átti enn þá ófarinn, langtum hættulegri; því þaðan, sem hann stóð nú, og alla leið út úr dalnum, var vegrinn svo krökr í snörum, gildrum, vèlum og netum, og svo þakinn holum, gryfjum, gjám og íhlaupum, að ef að nú hefði verið myrkr, eins og var, er hann fór hinn hluta dalsins, þá hefði hann, þó hann hefði haft þúsund sálir, hlotið að tortýnast með þeim öllum; enn, eins og eg sagði, var sólin að koma upp einmitt nú. Þá sagði hann: Hans kertaljós skín yfir höfði mèr, og við hans birtu geng eg gegnum myrkrið. (Job 29. 3.)
Nú var þá albjartr dagr, og Kristinn hèlt áframm, unz hann kom að dalmynninu. Þar þótti mèr eg sjá liggja á víð og dreif blóð, bein, ösku og sundr marin lík af mönnum, einkum af pílagrímum, sem farið höfðu þenna veg áðr. Og er eg var að velta fyrir mèr í draumnum, hvað mundi valda þessu, þá sá eg skammt burtu helli einn. Í þeim helli bjuggu risar tveir, að nafni Páfi og Heiðingi; höfðu þeir haldið til í helli þessum um langan tíma, og var blóðið, beinin og askan, sem lá hèr á víð og dreif fyrir utan, af mönnum þeim, er þeir höfðu ráðið bana með ofríki og grimmuðgri harðstjórn. Enn Kristinn komst framm hjá þessum stað hættulítið, og furðaði mig það mjög; enn seinna hefi eg frètt, að Heiðingi sè löngu dáinn. Hinn risinn er reyndar enn á lífi, enn hann gjörist nú gamlaðr mjög, og hefir oft verið all-illa leikinn á yngri árum, og er orðinn svo hrumr og stirðr í limum, að hann fær ekki annað að gjört, enn sitja í hellis skúta sínum og gretta sig og ygla framan í pílagrímana, þegar þeir fara framm hjá; og naga neglr sínar af því, að geta ekki náð í þá.
Nú þótti mèr Kristinn halda áframm leið sína; enn er hann sá fauskinn í hellis munnanum, vissi hann ekki, hvað hann átti að hugsa, einkum er hann varpaði á hann þessum orðum: Aldrei batnið þið fyrr, enn búið er að brenna fleiri af ykkr. Enn Kristinn svaraði engu, lèt sèr ekkert um finnast, gekk rakleiðis framm hjá, og beið ekkert tjón af. Þegar hann var kominn framm hjá, söng hann:
Hvílíkt kraptaverk, hvílík náðHefir stutt mig um þetta láð!Þar sem að hvers kyns hætta og neyðHefir grúft yfir minni leið.Ó, blessuð sèrtu, höndin há,Er hörmungum mèr bægði frá.Hættur í myrkri, helja, djöfull, syndHorfðu við mèr í dimmri voða mynd;Já snörur, gryfjur, íhlaup, netUmkringdu mig við sèrhvert fet:Að eg, fáráðr, flæktist, veiddistFjötraðist og í dauðann leiddist.Þó lifi eg enn þá, Lausnarinn,Lof og dýrð fái, Jesus minn.